Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Fitch snjóþrúgaðist út á eggjaskurn myntbandalags ESB

Evran er Skjaldborg gegn kreppunni, Barroso í ræðu febrúar 2009

WSJ: "Fitch Downgrades France Credit Rating to AA From AA+". Já: Frakkland, Ítalía, Grikkland, Spánn, Portúgal, Kýpur, Írland, Belgía, Finnland og hálfþjóðnýtt bankakerfi Austurríkis

Á slaginu eftir lokun markaða —samkvæmt kröfu Brussels um að ekki sé gengið á peningagólfi evrunnar á opnunartíma— hætti matsfyrirtækið Fitch Ratings sér í snjóþrúgurnar og stökk út á eggjaskurn myntbandalags Evrópusambandsins og lækkaði lánshæfnismat ríkissjóðs Frakklands gagnvart umheiminum. Og einnig innanlands, því Frakkland á enga innlenska mynt nema þá sem Þjóðverjar eiga nú Móralskan Rannsóknaréttarfarslega diktat-peningastefnulegan einkarétt á

"Government debt is entirely euro-denominated rather than in foreign currency"

Miðaldir sjálfspyntinga eru gengnar í garð í Evrópu á ný. Peningalegt fullveldi evrulanda er horfið. Krónískt Eurosclerosis atvinnuleysi í Frakklandi er nú 10,5 prósent og fjárlög landsins þarf að bera undir geggjað veruleikafirrt elítuveldi Brussels

En hvað nú ef þeir eru ekki geðbilaðir? (Flash)

Nú er lánshæfnismat Frakklands í bókum Fitch á pari við Belgíu og Abu Dhabi; það er nú AA en ekki AA+ né AAA. Slík eru áhrif evrunnar. Undir henni þurfa öll lönd að líða. Það er eðli myntbandalagsins og Evrópusambandsins. Í heiminn var hún sett til að sprengja Evrópu í loft upp. Árangurinn er fullkominn og vaxandi horror, samkvæmt áætlun

Standard & Poor's lækkaði hins vegar ríkissjóð ESB-Búlgaríu niður í ruslfokk við þetta sama tækifæri, föstudaginn 12. desember 2014 

Fyrri færsla

Norskir stýrivextir áfalla-lækkaðir og gengisfall NOK heldur áfram

Tengt

Aðflug evru-Ítalíu á ruslahauga evrusvæðis


Norskir stýrivextir áfalla-lækkaðir og gengisfall NOK heldur áfram

NOK-ISK-USD-11-des-2014-Comparative Daily Exchange Rates-Relative to US Dollar

Mynd: Vísitala gengisþróunar NOK og ISK gagnvart USD

Norski seðlabankinn neyðar-lækkaði óvænt í morgun stýrivexti niður í það sögulega lægsta sem aðeins áður gerðist þar í landi árið 2009, eða niður 1,25 prósentur. Seðlabankinn skar um leið hagvaxtarspá sína fyrir norska hagkerfið niður í 1 prósent only hagvöxt, sem er núllvöxtur. Þetta örþrifaráð norska seðlabankans er gagnstætt öllum væntingum

Norska krónan féll instant um meira en 1 prósent og er hún nú að nálgast 20 prósent fall sitt gagnvart Bandaríkjadal og íslensku krónunni, frá því að olíuverð byrjaði að brotna saman undan hinum efnahagslega raunveruleika heimsmála og innvortis evru-víetnamstyrjaldar Evrópusambandsins

Í Rússlandi er svipað að gerast. Rússneski seðlabankinn gerir nú ráð fyrir tíu prósent verðbólgu þar í landi vegna gengisfalls rúblunnar. Svipað gæti orðið uppi á teningnum í Noregi á næstu árum haldi norska krónan áfram að falla eins og steinn

Olíuverð er nú hrunið um 43 prósent síðan í júní. Margt bendir til þess að það munu falla niður fyrir 40 dali tunnan. Árið 1999 féll það niður í 20 dali tunnan. Forsætisráðherra Noregs var þá lagður inn með taugaáfall

Fjöldi lækna á hverja 100 þúsund íbúa:

Davíð

Ár 2005 - Ísland 368 - Noregur 369 - Svíþjóð 334 - Danmörk 321

Jóhanna & Steingrímur

Ár 2012 - Ísland 350 - Noregur 425 - Svíþjóð 375 - Danmörk 350

Norskir læknar munu nú þurfa að taka til hendinni, þar sem umskipaðir erlendir landlegulæknar í norska hagerfinu munu hætta að leggja þar að bryggju. En þar hafa t.d. danskir læknar kastað trollum sínum áratugum saman vegna bágra kjara og skattpíningar heimafyrir í landi þeirra þar sem norskir læknanemar hafa áratugum saman yfirfyllt læknaskóla Danmerkur

Fyrri færsla

Aðflug evru-Ítalíu á ruslahauga evrusvæðis

Tengt

Northland files for bankruptcy – who’s next? (járngrýti)


Aðflug evru-Ítalíu á ruslahauga evrusvæðis

S&P lækkaði lánshæfnismat Ítalíu á föstudagskvöldið eftir lokun markaða. Þeir urðu, samkvæmt kröfu ESB-Brussels um að ekki sé gengið um á peningagólfi evrunnar nema á snjóþrúgum, að bíða með fréttatilkynninguna um þessa jólagjöf til Ítalíu, þar til markaðir lokuðu

Ítalía er því höfnuð í þeirri stöðu að vera aðeins einu þrepinu fyrir ofan ruslflokk ríkisskuldabréfa. Enginn hagvöxtur hefur verið í súper-öldrunarhagkerfi Ítalíu samfellt hin síðustu 13 árin. Eftir samfelldan 13 ára barning, stendur Ítalía steinrunnin í sömu sporum og hún var árið 2000 - alveg eins og var ævilangt í öllum Sovétríkjunum

Fari Ítalía í ruslflokk þá mun Frakkland fylgja henni þangað, því útrás franskra stórbanka til Ítalíu hefur komið Frakklandi í þá aðstöðu sem fimm þúsund galematis útibú franskra banka á Ítalíu þýða fyrir alþjóðlega lánshæfni Frakklands. Sem þá mun zappast eins og rústuð rauðspretta til hins óþekkjanlega og taka björgunarsjóði evrusvæðis með sér í fallinu

Þá mun kvikna í Þýskalandi og DDR-Merkel giftast Putin og þau hefja búskap í nýju DDR Evrópusambandsins. Mun DDRÚV þá ekki segja neinum frá neinu í ESB frekar en fyrri daginn á gjaldþrútinni ekki-fréttastofu-vakt þess ríkis í ríkinu

2014-árbók yfir Hagtölur Norðurlanda er nú komin út. Hægt er að nálagst útgáfuna á vefsetri norsku hagstofunnar hér

Menningar-Sovétríki Íslands koma þar við sögu, því þau nema 3,3 prósent af landsframleiðslunni. Þetta Sovétríki Íslands er meira og stærra en nokkurt Norðurlandanna eyðir í hin lífsnauðsynlegu varnarmál sín. Þetta hobby snobb glingur á kostnað íslenskra skattgreiðenda virkar eins og blaut tuska framan í andlitið á bandamönnum okkar, sem látnir eru um að bera hitann og þungann af þjóðaröryggi Íslendinga. Þetta er svo skammarlegt að ekki er hægt að segja nokkrum manni frá þessu. En nú stendur þetta þarna öllum til sýnis

Fyrri færsla

Myntbandalag ESB: vissu ekki hvað þeir voru að gera


Myntbandalag ESB: vissu ekki hvað þeir voru að gera

Forza Italia flokkur Silvio Berlusconi virðist ætla að reyna að vinna að því að ítölsk mynt verði tekin upp á Ítalíu samhliða evru. Bíddu aðeins. Já, þú heyrðir rétt; samhliða evru, segja þeir

Reyndar eru allir stjórnmálaflokkar Ítalíu nema einn, nú andsnúnir aðild Ítalíu að myntbandalagi Evrópusambandsins. Allir andsnúnir evruaðild nema einn. Forza Italia vill reyna að endurheimta fullveldi landsins í peningamálum

Ítalía er að deyja evrudauða. Landið er að kafna, það er komið með krónískt Eurosclerosis (ESB-eyðni). Jarðarför Ítalíu nálgast. Og elítupólitískir kirkjugarðar Evrópusambandsins geta varla beðið eftir kistunni ofan í fjöldagröf sína

Mikið langar mig að kalla þetta myntbandalag fyrir myntbrandaragúlag Evrópusambandsins. Það langar mig því hugdetta Forza Italia sýnir að stjórnmálamenn á Ítalíu höfðu enga hugmynd um hvað þeir voru að skrifa undir er þeir árituðu Maastrichtsáttmálann fyrir hönd ítölsku þjóðarinnar í desember 1991. Þar sem fullveldi landsins í peningamálum var óafturkræft varpað fyrir róða

Þeir höfðu ekki minnstu hugmynd um hvað þeir voru að gera í misnotuðu nafni þjóðarinnar. Sem og var gert í næstum öllum þeim löndum sem undirrituðu sáttmálann. Kjósendur komu næstum hvergi nærri þessu stórslysi stjórnmálastéttarinnar. Því þetta myntbandalag er eitt allsherjar elítuverk

Eitt land neitaði þó með þjóðaratkvæðagreiðslu að skrifa undir. Það var Danmörk. Þar með hefði Maastrichtlestin átt að stöðvast og falla dauð og ómerk, því sáttmálar kröfðust samhljóða samþykkis allra landa

En auðvitað neituðu Brusselelítur Evrópusambandsins að fara eftir því sem í sáttmálum Evrópusambandsins stendur og Danmörk var þvinguð til að kjósa aftur undir hótunum um útlegð og brottvísun frá því sem einu sinni hét Efnahagsbandalagið EB. Það var það sem danskir kjósendur ákváðu að ganga í á sínum tíma. Nú eru þeir hins vegar hafnaðir í orðnum klesstum elítu-hlut

Þýskaland mun ekki sleppa tökunum, nú þegar Aladdín rúgbrauðsandi þess er loksins sloppinn út úr lampanum og hefur lagt sig fast sem endurkoma móðunnar miklu yfir meginlandi Evrópu -- og stakkels Frakklandi sem loksins hefur af nýsameinuðu Þýskalandi verið troðið ofan í flöskuna sína, tappinn hamraður í og líkið innsiglað

En þessu er ekki hægt að hlægja að, því hörmunar menginlands Evrópu eru orðnar svo hroðalegar að úti er um velmegun og frið þann sem Bandaríkin plöntuðu þar. Evrópa er ónýt. Evrópusambandið hefur eyðilagt hana

Fyrri færsla

Mun norska krónan falla um 40 prósent?

*** Tengt ***

TARGET2: Luftwaffe sem innheimtustofnun?


Mun norska krónan falla um 40 prósent?

Geri hún það gætu nokkuð margir Íslendingar læsts fast í fátæktargildu í Noregi. Olíutengdar skattatekjur norska ríkisins gætu vegna yfirstandandi verðhruns olíu meira en helmingast og það sama gildir um Danmörku. Norska krónan er nú þegar á síðustu tólf mánuðum fallin spýta um 19 prósent gagnvart íslenskri krónu og 14 prósent gagnvart Bandaríkjadal. Olían er fallin í verði um meira en 35 prósent á bara nokkrum mánuðum

Stýrivextir í Noregi gætu margfaldast og gert lífið að martröð fyrir húsnæðiseigendur, eins og þeir gerðu síðast er olíuverðið hrundi niður í 20 dali tunnan árið 1999. Þá þurfti að leggja Bondevik forsætisráðherra landsins inn með taugaáfall. Árið 1986 var norskum stýrivöxtum skutlað í skamma stund upp í himinhá 50 prósentustig og í olíuverðfallinu 1998/9 var þeim dælt frá rúmlega þremur prósentustigum upp í sjö til átta prósent árum saman

Vextir á standandi húsnæðislánum í Noregi láta þá undir svona hrikalegum átökum afar illa. Það hefðu þeir ekki gert ef Noregur hefði verið svo snjall að bjóða landsmönnum upp á verðtryggð húsnæðislán

Á Íslandi hefur verðtrygging húsnæðislána komið í veg fyrir 60 prósentustiga raunverðshrun á fasteignum Íslendinga í kjölfar bankahruns

Verðhrun á fasteignamarkaði í Noregi er sannarlega stand-by möguleiki í dag. Gæti sú blöðrusprenging orðið risavaxinn útreiðartúr með ófyrirsjáanlegum afleiðingum

Í gær féllu hlutabréf Statoil um 10 prósent. Ein mesta intra-day lækkun nokkru sinni. Falli olíuverð undir 40 dali, munu Norðmenn þurfa að greiða standandi gangsettar olíuvinnslu-fjárfestingar niður. Þær yrðu óarðbærar. Þá munu fyrirtæki þessa geira og bankar hæglega getað rúllað yfir um

Hér ættu hroðaleg útópísk raflost Landsvirkjunarmanna að slá inn í heilabúskap stjórnar þess kumbalda áður en þau þjóðhagslega banvænt verða leidd yfir í íslenskan almenning til útafgjörnings

Hvað mun nú verða um viðmiðunarlaun landspítalalækna- og tækna þegar norska krónan er fallin spýta?

Þumbaralega aulalegt er að nú skuli allt í einu ekkert minna duga til en samanburður íslenskra launa við ríkasta og dýrasta land veraldar. Hvar er raunveruleika-sans svo margra? Ég spyr. Er hér ekki um hreina Baugs-mannjöfnunar-áráttu að ræða? Áráttu sem kom landinu okkar næstum fyrir kattarnef!

Fyrri færsla

ESB-aðild og evruupptaka Finnlands að ríða landinu að fullu

*** Tengt ***

Gildir ekki lengur (úrelt, Obs: gjeller ej): Krugman í janúar 2014: Hadde Norge vært som andre land, ville boligbobla sprukket. Det mener nobelprisvinner Paul Krugman

Tåler du et slikt fall i boligprisene igjen?

 


ESB-aðild og evruupptaka Finnlands að ríða landinu að fullu

Finnland- nettógreiðslur þess til Evrópusambandsins í Brussel

Mynd; Petr Mach. Nettógreiðslur Finnlands til ESB frá 1995 til 2012 eru 7,6 miljarðar evra: Krækja 

Standard & Poor's lækkaði glansmyndar lánshæfnismat Finnlands þann 10. október 2014. Frá AAA niður í AA+ með þeim rökum að:

- Landið standi varnarlaust inni í ESB og evrum frammi fyrir langvarandi stöðnun. Mesta hrun í landframleiðslu Finnlands frá því 1918, varð árið 2009, en þá hrundi hún um 9 prósent og útflutningur um 24 prósent í magni og evrum. Finnland situr varanlega fast í óafturkræfu áfalli ESB-aðildar og evruupptöku landsins

- Óðaöldrun þjóðarinnar, sem í reynd og að miklu leyti er sökum ESB-sjúkdómsins Eurosclerosis, sem er langvarandi samfélagsleg eyðni vegna ESB-aðildar og evrurústunar hagkerfisins. Atvinnuleysi er krónískt Eurosclerosis-hátt og bannar ERM-viðrini ESB að frumþörfum landsmanna sé fullnægt, því ERM Evrópusambandsins fra 1977 er perverst illkynja fyrirbæri. Eyðileggjandi vesaldómur þess hefur því sest að í höfðum nú tannlausra Finna

- Minnkandi og þverrandi vinnuafli. Enginn vill auðvitað flytja til Finnlands þrátt fyrir fjölfaldaðar glansmyndaseríur frá ECB-plakatdeild Brussels og evruhæli ESB-elíta Finnlands heima fyrir

- Minnkandi utanaðkomandi eftirspurnar vegna evruupptöku og handjárnunar hagkerfisins við sogrörs ECB-aukaseðlabanka kínverja Evrópu (Þýskalands)

- Glötunar alþjóðlegrar samkeppnishæfni finnska hagkerfisins vegna óafturkræfrar gengis-læsingar þess við kína-niðurfallsrör Evrópu (Þýskalands)

- Eyðileggingu á upplýsingatækni-geira landsins vegna evruupptöku og ESB-aðildar

- Grundvallar-eyðileggingu á skógariðnaði landsins sem hjálparlaus glápir nú ósamkeppnishæfur á 230 þúsund ferkílómetra stóra skóga landsins, sem vaxa hlægjandi úr sér, engum til gagns í evrum

- Ónýtan vinnumarkað, enda er Eurosclerosis-atvinnuleysi Finnlands nú brennt erfðafræðilega fast við aðalstöðvar Hegels í Þýskalandi, sem er faðir Marxisma & kommúnisma ásamt nasistískum rotnunar-afleiðum hinnar fölsku ríkismyndunar prinsins Bismarck frá 1871, sem Bandaríkin misskildu kjánalega frá upphafi - og gera því miður enn

Við þetta má svo bæta súgþurrkun skattatekna ríkissjóðs Finnlands, sökum ólæknanlegs atvinnuleysis og samkeppnisóhæfni á veraldarvísu, sem hefur eyðileggjandi áhrif á lánstraust landsins erlendis frá og sem nú rúllar sér sjálfkrafa saman, því uppþornunin kallar á sífellt hækkandi skatta. Sem svo bíta höfuðið af möguleikanum á hagvexti - og svo koll af kolli

Og svo var auðvitað engin vörn í því fyrir Finnland að ganga og hanga í ESB frá 1995, því landið er nú ekki aðeins varnarlaust, heldur er það algerlega utterly varnarlaust ofan í púðurdós kanslara Merkels yfir Evrópu, miðað við finnsku kreppuna 1990

Svona fór um sjóferð þá. ESB-aðildin og evruupptaka hefur rústað Finnlandi um aldur og ævi og kostað Finnland 7,6 miljarða evra í nettógreiðslur til sambandsins. Öll árin nema eitt.

Þýskaland álítur að erfðafræðilega mikilvægasti nágranni þess sé Rússland. Á milli Rússlands og Þýskalands liggja hins vegar heimili 160 milljón manna Austur-Evrópu. Þau lönd eru að erfðafræðilegu áliti Þýskalands afskipt rusl og  sögulega fórnandi leiguliðapeð uppi í hinum vanvita kolli aðalstöðva Hegels í Þýskalandi

Þeim mun og verða fórnað vegna hins erfðafræðilega haturs Þýskalands og Frakklands á Bandaríkjum Norður-Ameríku og óreglulegum ("disorderly") bílskúrskapítalisma þess öflugasta þjóðríkis veraldarsögunnar. Allt í Þýskalandi mun því um aldur og ævi snúast um að þurrka út hin Engilsaxnesku áhrif sem með yfirþyrmandi lögmæti réðu málum landsins í kjölfar hinnar síðari borgarastyrjaldar Evrópu, sem Bandamenn bundu enda á sumarið 1945

Allt í Þýskalandi snýst um að reka hin Engilsaxnesku áhrif ábyrgðar, lögmætis og lýðræðis (the Anglosphere) út í sjó Atlantshafsins, svo að hinn erfðafræðilegi keisaralegi stofnunar-tilgangur þýska ríkisins njóti sín og giftist með tímanum hinni fyrstu útgáfu sovétríkisins í Evrópu. Því aðeins fái gegnheilt —en utanþings ráðandi— aristókratí export- banka- og europhiles mafía landsins að njóta sín og mjólka þýskar leiguliða-þjóðir landsins áfram

Sögusögnin um Sonderweg Þýskalands burt frá aðli- og elítum þess er sennilega ein mesta þvæla sem rituð hefur verið um sögu mannkyns. Enda er hún skrifuð af sömu óheillindum og réðu við stofnun hins þýska keisaralega heimsveldis Bismarcks 1871. Er Evrópusambandið því þegar orðið ósnertanleg keisaraleg abstraction með sovésku ívafi yfir álfunni

Enginn annar tilgangur en þessi liggur að baki stofnun Evrópusambandsins. Hún hófst með uppá-vindiningum þriggja til sex ruslahrúga á Lotharingaöxli Evrópu árið 1947 og spratt svo tilganglaust frá Róm inn í hinn macro-pólitíska veruleika veraldar árið 1957, dulbúið sem Evrópusamband; þ.e. fjarvistarsönnun Þýskalands og Frakklands frá fortíð sinni sem hin fyrrverandi fyrirbæri af öllu því sem fyrrverandi er. En sem í reynd aðeins er nýtt Grosswirtschaftsraum Deutschlands

Frakkland er hins vegar sjálft sem afleiðing þessarar þróunar orðið að þeim "trimmings" (afgöngum) sem Charles de Gaulle ætlaði öllum öðrum ríkjum ESB en Frakklandi og Þýskalandi að verða

Af aurum urðu þeir apar

Fyrri færsla

Fjölþjóðasúpan: George W. Bush Predicts ISIS In 2007

**** Tengt ****

Great, Greater, Greatest – Three Finnish Depressions

Finnland: Evran virkar - enginn hagvöxtur í 5 ár

Evruupptaka hamlar vexti, það vitum við

Finnland á ekki afturkvæmt út úr ESB eða evru

Finnskur ráðherra: mistök að Finnland skyldi taka upp evru

Síðasta verksmiðja Nokia í Vestur-Evrópu

Áhlaupið á íslensku krónuna


Fjölþjóðasúpan: George W. Bush Predicts ISIS In 2007

 
 

Það er alls ekki undarlegt að Ísrael skuli vera á tröppunum með nýja löggjöf sem undirstrikar enn einu sinni að þjóðríkið Ísrael sé áfram fyrst og fremst heimili Gyðinga. Með lögunum e. "Jewish State Law", sem forsætisráðherrann Benjamin Netanyahu leggur fram, er stofnsáttmáli þjóðríkis Gyðinga uppfærður eftir tilraunir vissra afla sem reyndu að útþynna það sem Theodor Herzl setti í gang er hann ruddi brautina fyrir heimili Gyðinga

Ríkjandi kjarnorkuvetur fjölþjóðasamfélaga nágrannaríkjanna, eru vítin sem Ísrael ætlar að varast. Þar logar allt stafnana á milli í morðæði, styrjöld, hryðjuverkum og slátrunum á óbreyttum borgurum sem þrá það eitt að fá að búa í eigin þjóðríki með frelsi, lögum og rétti, en sem eru bara ekki til. Þetta eru allt framaskriðin Evrópusambönd sem komin eru á endastöð sína; sérhönnuð af embættismannaverki a la ESB, með engan sjálfsákvörðunarrétt

Syria: hannað af Frökkum: inniheldur fimm þjóðir

Írak: hannað af Bretum: inniheldur fjórar þjóðir

John Stuart Mill vissi nákvæmlega hvað gerist í svona ríkjum. Þess vegna barðist hann fyrir þjóðríkinu sem hinni fremstu manngæskuberandi stofnum veraldarsögunnar

Svona verður Evrópusambandið (inniheldur 30 þjóðir). Það verður summan af Úkraínu, terror Sovétríkjanna og Mið-Austurlanda. Steikhús frelsis, velfarnaðar og öryggis - fjórða ríkið

"In Europe, the result has been the attempt to dismantle the system of independent nation-states and replace it with a European Union"

Jerúsalem-bréf Yoram Hazony, númer 31, er allrar athygli vert; Israel’s ‘Jewish State Law’ and the Future of the Middle East

Fyrri færsla:

Kissinger: Mistök að hefja refsiaðgerðir gegn Rússlandi

Tengt:

Standards, Fallen (WSJ, Peggy Noonan)

President George W. Bush and President Bill Clinton discuss Presidential Leadership Scholars (The Bush Center, YouTube)


Kissinger: Mistök að hefja refsiaðgerðir gegn Rússlandi

Henry Kissinger fyrrum utanríkisráðherra Nixons Bandaríkjaforseta segir það mistök að Vesturlönd hafi gangsett refsiaðgerðir og þvinganir gegn Rússlandi vegna Úkraínu

Úkraína var rússneskt land í langan tíma. Úkraína ætti ekki að gera sér vonir um aðild að NATO. Kissinger segir að bandalagið muni aldrei samhljóða samþykkja Úkraínu sem meðlim

Það voru hrapalleg mistök [heiladautt og ábyrðarlaust athæfi] að Evrópusambandið skyldi nálgast Úkraínu

Evrópusambandið mun aldrei viðgangast mistök sín og aldrei sýna ábyrga hegðun í alþjóðlegu samhengi né hvað þá á þeirri spínatstöppu sem sambandið hefur búið til úr Evrópu með óðu og umboðslausu fílatrampi sínu í eigin bakgarði

Evrópusambandið er hættulegasta hugmynd nútímans. Sambandið hefur eyðilagt Evrópu. Það ógnar friði í álfunni og jafnframt í veröldinni

Hvenær skyldi hið utanríkismálalega útkíkk Bandaríkjanna gagnvart Evrópusambandinu taka mið af því sem í reynd hefur og er að gerast þar. Hvenær skyldu grundvallar mistökin í mótun þess frá 1871* verða leiðrétt og útkíkkið þar með verða uppfært og gert sannleikanum samkvæmt?

Hér er efnisleg yfirlýsing Kissingers í heild:

Kissinger: Ukraine should forget about Crimea and NATO membership

Former U.S. Secretary of State Henry Kissinger spoke about global threats, the secession of Crimea and Ukraine's NATO accession.

Mr. Kissinger said that there currently is an urgent need for a new world order, but its coming into being will be long and complicated. "There are no universally accepted rules," said Mr. Kissinger in an interview with the German magazine Der Spiegel. "There is the Chinese view, the Islamic view, the Western view and, to some extent, the Russian view. And they really are not always compatible."

Speaking of Crimea’s accession to Russia, he noted that this is a special case, as Ukraine and Russia were one country for a long time. In his view, the West must recognize its mistakes. "Europe and America did not understand the impact of these events, starting with the negotiations about Ukraine's economic relations with the European Union and culminating in the demonstrations in Kiev," said Mr. Kissinger. "All these, and their impact, should have been the subject of a dialogue with Russia."

He is sure that Ukraine has always had a special significance for Russia. Failure to understand this was fatal, and the Ukrainian authorities can forget about the Crimean peninsula. "Nobody in the West has offered a concrete program to restore Crimea," said Mr. Kissinger. "Nobody is willing to fight over eastern Ukraine." In his opinion, introducing anti-Russian sanctions was a mistake.

"We have to remember that Russia is an important part of the international system, and therefore useful in solving all sorts of other crises, for example in the agreement on nuclear proliferation with Iran or over Syria," Mr. Kissinger said. "This has to have preference over a tactical escalation in a specific case." He added that Ukraine should not hope to become a member of NATO in the foreseeable future, as the alliance will never vote unanimously for the accession of Ukraine.

Krækjur: Strategic Culture Foundation - Der Spiegel

* Gordon A. Craig: Germany, 1866-1945 (ISBN 0-198-22113-4)
 
Fyrri færsla:
 
 
Tengt:
 
Viðtal við Bernard Connolly sem var gestur á CNBC þann 16. maí 2013 - 5 mínútur og 31 sekúnda: En hvað nú ef þeir eru ekki geðbilaðir?
 

Evrusvæðið: Kreppan mesta

Flestir þekkja Kreppuna miklu. Hún var skelfileg. Landsframleiðslan hrundi massíft og atvinnuleysi varð óbærilegt. Kreppan mikla hófst árið 1931 með gjaldþroti austurríska bankans Kredtitanstalt. Það gjaldþrot reyndist eins og að bjargi væri kastað í stöðuvatn hins alþjóðlega fjármálakerfis. Öldurnar breiddu úr sér og kaffærðu þá sem fyrir þeim urðu

Yfirstandandi kreppa á evrusvæðinu er þó orðin verri og skaðlegri en Kreppan mikla var fyrir meginland Evrópu. Þá kreppu, segir Brad DeLong, ætti því að kalla sínu rétta nafni: Kreppuna mestu

Hrun landsframleiðslunnar á evrusvæðinu er orðið stærra en í Kreppunni miklu 1931. Núverandi kreppa á meginlandi Evrópu skal því heita Kreppan mesta. Atvinnuleysið hefur náð þeim hæðum að það eitt myndi nægja til að koma nýjum Hitler til valda á meginlandi Evrópu

Það er tilvist evrunnar sem hefur slegið Evrópu svona meðvitundarlausa. Og hörmungarnar í Evrópu eiga eftir að versna og versna um mörg, mörg ókomin ár

Nú eru líkurnar á upplausn evrunnar meiri en þær voru fyrir tveim árum. Miklu meiri

Fyrir Finnland hefur upptaka evru nú haft þá þýðingu að landið er siglt í strand. Er svo komið að Finnland glímir nú við þá verstu kreppu sem hægt er að fletta upp í sögubókunum. Hún er verri en 1931 og verri en 1992. Íslendingar ættu því að biðja fyrir Finnum. Stýrivaxtahækkun seðlabanka Bandaríkjanna á næsta ári gæti ein og sér hæglega riðið evrusvæðinu til heljar

Hvers vegna er aðildarumsókn íslenska lýðveldisins að helvíti meginlands Evrópu ennþá lifandi? Hugsa menn ekkert! Er ríkisstjórninni alveg sama um lánshæfnismat ríkissjóðs og vaxtakjör í landinu? Lánshæfnismatið myndi styrkjast og erlend vaxtakör batna við það eitt að draga umsóknina strax til baka

Látið umheiminn þannig vita að við ætlum ekki að kála lýðveldinu né lýðræðinu. Að við trúum á okkur sjálf og að þingkosningar á Íslandi séu virtar. Að við séum ekki fífl

Lars Christensen: Great, Greater, Greatest – Three Finnish Depressions

Fyrri færsla

Skattaskjól ríkisstarfsmanna, ESB og myntbandalags þess 


Skattaskjól ríkisstarfsmanna, ESB og myntbandalags þess

Í Danmörku hafa dönsk yfirvöld hafið málarekstur gegn yfirmönnum danskra skattayfirvalda (skattechefer) fyrir yfirgengilegar innheimtuaðferðir, sem líkjast ólöglegum innheimtu- og málsaðferðum hins gráa og svarta heims hálf- og heilsteyptra glæpa (d. bøllemetoder og forvaltningsmæssig ulovlig disposition)

Þetta rímar óneitanlega afar illa við atkvæðakaupa-bókartitil Anders Fogh Rasmussen 1993; "Fra socialstat til minimalstat" sem nú er orðið að gegnheilu MAXIMAL-STAT og sem Danir sjálfir kalla DDR-Light. Þar hafa það allir járnvilja-gott, því allir vita að enginn möguleiki er á að nokkuð geti nokkru sinni aftur orðið gott. Eins og var í real-DDR

Það kostar embættismenn skattayfirvalda aldrei neitt að hefja byssurnar á loft og skjóta á borgara og fyrirtæki út í loftið, því ríkissjóður borgaranna borgar fyrir vopnahald þeirra og skotfæri. Skjóti skattamenn hins opinbera saklaust fólk svo úr þeim verði öryrkjar og gjaldþrota fyrirtæki, þá er það bara ergilegt og skothríðin er hert. Dómstólar eru því kaffærðir með glataðri og jafnvel vel af vitandi fyrirfram tapaðri skothríð skattayfirvalda á borgarana

Dönsk skattayfirvöld eru þekkt fyrir DDR-njósnir sínar um borgara í konungsdæminu og ferðir þeirra erlendis. Og fyrir að liggja til dæmis í leyni fyrir utan hýbýli og vakta hvort sá sem sagður er vera sofandi hjá þarbúandi sé nú örugglega sá hinn sami sem stendur fyrir svefni í þeim samkeyrandi tölvusamstæðukerfum sem standa skattayfirvöldum frítt ráðstafað til meðal annars misnotkunar, sbr. málið um bøllemetoder hér að ofan. Tölvusamstæðu-kerfum hins opinbera, sem samkvæmt nýjustu fréttum, láku árum saman kennitöluupplýsingum tvö til þrjú hundruð þúsund Dana út yfir hinn stóra heim veraldar. Embættis- og stjórnmálamenn höfðu áratugum saman fullvissað Dani um að slíkt myndi aldrei geta gerst

Þegar ríkissjóða- og einkageira fjármálakreppan skall á evrusvæðinu varð kanslara Þýskalands —Angelu Merkel frá DDR— á sú atkvæðakaupandi opinberandi aðgerð, að flokka stórhertogadæmið Lúxemborg sem "ólöglegt skattaskjól". Úr vondu var að ráða, því helsti yfirmaður stýripinna evrunnar (the eu-eurogroup) var sjálfur Jean-Claude Juncker skattaskjóls-forsætisráðherra stórhertogadæmisins, sem er samanbrunnin- og samrunnin fyrirmynd Evrópusambandsins alls

Úr þessu hefur nú verið bætt með því að gera Jean-Claude Juncker þáverandi stýripinna evruhrópsins og samtímis forsætisráðherra hins ólöglega skattaskjóls, að nýjum yfirforingja Evrópusambandsins. Hann er því orðinn framkvæmdastjóri Evrópusambandsins AG - og einnig vegna þess hversu góður hann er í lygum

Faldir lífeyrissjóðir starfsmanna Evrópusambandsins í skattaskjóli stórhertogadæmis Lúxemborgar voru því á sínum tíma óhultir á meðan ESB-meðlimir þeirra lágu —og liggja kannski enn— ósjálfbjarga á framfærslu skattgreiðenda úr ríkissjóðum heimalanda sinna, á sama tíma og þeir þáðu steinþegjandi skattfrjálsar greiðslur úr földu skattaskjóli ESB-landa í Lúxemborg

Skattaráðgjafar eru stór-stétt í landi hins nýja Móralska Rannsóknarréttar Þýskalands yfir Evrópu. Það eru þeir, því þess er krafist, vegna þess að skattakerfi Þýskalands er svo über-flókið að yfirvöld verða að nota endurunnið DDR-kerfið svo að framlag þeirrar stóru starfsstéttar skili áfram minna en núlli til landsframleiðslunnar. Á endanum verða þannig ríki jafn gjaldþrota og hið real DDR varð undir steinsteypukommúnismaaustri Austur-Þýskalands upp úr borgunum

Lengi getur vont versnað, eða svona eins og í sjötíu samfelld sovét- og hundrað Kúbuár, þar sem öngvir peningar borgaranna geta orðið til. Mál er leyst

Fyrri færsla

Moody's: Súper-öldrun Evrópu

Tengt

Þýskaland felur skuldbindingar ríkissjóðs í skattaskjólum 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband