Leita í fréttum mbl.is

Mun norska krónan falla um 40 prósent?

Geri hún það gætu nokkuð margir Íslendingar læsts fast í fátæktargildu í Noregi. Olíutengdar skattatekjur norska ríkisins gætu vegna yfirstandandi verðhruns olíu meira en helmingast og það sama gildir um Danmörku. Norska krónan er nú þegar á síðustu tólf mánuðum fallin spýta um 19 prósent gagnvart íslenskri krónu og 14 prósent gagnvart Bandaríkjadal. Olían er fallin í verði um meira en 35 prósent á bara nokkrum mánuðum

Stýrivextir í Noregi gætu margfaldast og gert lífið að martröð fyrir húsnæðiseigendur, eins og þeir gerðu síðast er olíuverðið hrundi niður í 20 dali tunnan árið 1999. Þá þurfti að leggja Bondevik forsætisráðherra landsins inn með taugaáfall. Árið 1986 var norskum stýrivöxtum skutlað í skamma stund upp í himinhá 50 prósentustig og í olíuverðfallinu 1998/9 var þeim dælt frá rúmlega þremur prósentustigum upp í sjö til átta prósent árum saman

Vextir á standandi húsnæðislánum í Noregi láta þá undir svona hrikalegum átökum afar illa. Það hefðu þeir ekki gert ef Noregur hefði verið svo snjall að bjóða landsmönnum upp á verðtryggð húsnæðislán

Á Íslandi hefur verðtrygging húsnæðislána komið í veg fyrir 60 prósentustiga raunverðshrun á fasteignum Íslendinga í kjölfar bankahruns

Verðhrun á fasteignamarkaði í Noregi er sannarlega stand-by möguleiki í dag. Gæti sú blöðrusprenging orðið risavaxinn útreiðartúr með ófyrirsjáanlegum afleiðingum

Í gær féllu hlutabréf Statoil um 10 prósent. Ein mesta intra-day lækkun nokkru sinni. Falli olíuverð undir 40 dali, munu Norðmenn þurfa að greiða standandi gangsettar olíuvinnslu-fjárfestingar niður. Þær yrðu óarðbærar. Þá munu fyrirtæki þessa geira og bankar hæglega getað rúllað yfir um

Hér ættu hroðaleg útópísk raflost Landsvirkjunarmanna að slá inn í heilabúskap stjórnar þess kumbalda áður en þau þjóðhagslega banvænt verða leidd yfir í íslenskan almenning til útafgjörnings

Hvað mun nú verða um viðmiðunarlaun landspítalalækna- og tækna þegar norska krónan er fallin spýta?

Þumbaralega aulalegt er að nú skuli allt í einu ekkert minna duga til en samanburður íslenskra launa við ríkasta og dýrasta land veraldar. Hvar er raunveruleika-sans svo margra? Ég spyr. Er hér ekki um hreina Baugs-mannjöfnunar-áráttu að ræða? Áráttu sem kom landinu okkar næstum fyrir kattarnef!

Fyrri færsla

ESB-aðild og evruupptaka Finnlands að ríða landinu að fullu

*** Tengt ***

Gildir ekki lengur (úrelt, Obs: gjeller ej): Krugman í janúar 2014: Hadde Norge vært som andre land, ville boligbobla sprukket. Det mener nobelprisvinner Paul Krugman

Tåler du et slikt fall i boligprisene igjen?

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anton Þór Harðarson

hér í noregi er nú reiknað með vaxtalækkun vegna fallandi olíuverðs

"

Over 50 % sjanse for rentekutt

Bedriftene sliter mer, mens konsumet og ledigheten overrasker positivt. Oljeprisfallet gjør at Norges Bank trolig kutter renten i desember, tror Handelsbanken"

það er líka auðvelt að tryggja sér hagstæð húsnæðislán og binda vextina fasta í allt að 10 árum.

Ef þú villt festa vexti í 3 ár þá eru það 3,25% vextir (engin verðtrygging)

Ef þú villt taka fasta vexti í 10 ár þá eru vextirnir 4,1% (heldur ekki hér nein verðtrygging)

Þannig að ég held þú þufir ekkert að óttast að allt sé að fara til helvítis hér í Noregi

Anton Þór Harðarson, 29.11.2014 kl. 10:52

2 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér fyrir innlitið og innskot Anton

Það gagnast víst lítið að binda húsnæðislánavexti til 10 ára ef, eins og þú segir, að Handelsbanken telji meira en 50/50 líkur á vaxtalækkun. Hún mun, ef til kemur, ekki skila sér til þeirra sem hafa bundið vextina fasta í 10 ár. Fallandi húsnæðisverð, skyldi það gerast, um 35 prósent, eins og gerðist frá 1988 til 1992, mun þá koma sér afar illa.

En það er alveg öruggt að verðfall á olíu um 60-70 prósent mun ekki ganga átakalaust fyrir sig í Noregi. Sagan sannar það.

Noregur mun ekki geta gengið áfallalaust í gengum 40 prósent gengisfall norsku krónunnar, eins og það varð frá 1992 til 2000. Þar á eftir hækkaði það um 100 prósent gagnvart Bandaríkjadal þar til það byrjaði að falla aftur frá og með haustinu 2007.

Hér á Íslandi töldu menn það firru að eitthvað væri að árið 2007. En annað kom svo í ljós.

Stand-by húsnæðisbóla Noregs getur brostið hvenær sem er. Fermetraverð húsnæðis í norska hagkerfinu hefur hækkað frá 5.000 NOK árið 1985 og upp í 30.000 NOK árið 2012. Þetta er 500 prósent hækkun.

Frá 1992 til 2010 hafa ráðstöfunartekjur norskra heimila aðeins hækkað um 50 prósent á sama tíma og húsnæðisverð hefur fjórfaldast. Smávægileg vaxtahækkun mun þar af leiðandi hæglega geta kippt fótunum undan húsnæðiseigendum.  

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 29.11.2014 kl. 12:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband