Sunnudagur, 24. september 2017
Madríd sendir fleiri löggur
Nú hefur Madríd bætt í og komnir eru 17.000 lögreglumenn til Katalóníu, sem hún þangað hefur sent. Það verður fróðlegt að sjá hversu langt Madríd ætlar að ganga og hversu mikið vald hún ætlar að nota: Sjá: Spánn sýnir klær og skerpir
Misþyrming ESB á Spáni með samþykki ríkisstjórna í Madríd, hefur ekki farið vel niður í íbúa Katalóniu, sem ásaka Madríd fyrir að mergsjúga þá með sköttum undir niðurskurðahnífaveldi Berlínar í ESB-væddri spillingu
Það fer um ESB-menn í til dæmis París, því ef Katalóníu verður hleypt út þá mun Korsíka sennilega láta verða af því að yfirgefa Frakkland
Yfirvöld, hver sem þau kallast, með réttu nafni eða hjánefni (til dæmis Troika), eru því líkleg til að viðhafa sömu röksemdafærslu og látin er ganga yfir Bretland: þ.e. að reyna að sýna þeim sem hugsa slíkt hvað bíður þeirra ef þeir skyldu fá rangar hugmyndir
Og svo er þeim öllum sagt að þeir muni aldrei komast inn í ESB aftur, en sem ESB er að reyna að hindra að Bretland komist úr
Og nú hefur ESB-Rannsóknarrétturinn verið sendur til Póllands, til að kveða niður það sem eftir er af nýfenginni sjálfstæðri hugsun og til að særa út þær forboðnu hugmyndir sem Pólverjar hafa fengið um Evrópusambandið eftir að hafa kynnst því, þ.e. að Pólverjar ætla ekki sætta sig ekki við að hafa komist hálfdrepnir út úr einu Sovétríkinu til þess eins að vera nú komnir inn í annað slíkt. ESB hótar að bannfæra Pólland
Það hitnar í kolunum út um alla Evrópu og er sá hiti á ESB-fagmáli kallaður stöðugtleki. Man ekki lengur hvað Sovét-Kremlið kallaði svona ástand
Fyrri færsla
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 01:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Föstudagur, 22. september 2017
Spánn sýnir klær og skerpir
Katalónía vill burt úr Spáni - en fær hún það?
Það viðrar ekki vel á Spáni þessa dagana frekar en gert hefur frá því að sérfræðingar Evrópusambandsins klessukeyrðu landinu 2008. Spánn er ekki Grikkland og er það ekki neikvætt meint hjá mér, því allir vissu alltaf að Grikkland er og verður Grikkland. Það átti engum að koma á óvart
En Spánn. Já en Spánn! Það land fór í einu og öllu eftir ríkistrú ESB-kirkjunnar og rak hvorki sig né neitt sitt með fjárlagahalla og skuldaði ekkert sérstakt. Landið var notað sem fyrirsæta á áróðursskiltum ECB-aukaseðlabanka Þýskalands, ásamt Írlandi
En svo kom árið 2008 og landið var lagt í rúst í evrum. Sparifé þýskra fyrirtækja, eiginfé, sem flutt hafði verið frá þýskum heimilum með því að gera hlut þeirra í landsframleiðslunni svo lítinn að krónísk undirneysla drap þýska hagkerfið innvortis, já því fé var pumpað til Spánar í svo miklu magni að það sprengdi Spán í loft upp með innflæði sem nam 30 prósent af landsframleiðslu þess
Þýsku fé var beinlínis þrýstilofts-þrýst inn á Spánverja. Tilgangurinn var að koma sparifé þýskra fyrirtækja í vinnu --sem þýsk heimili gátu ekki unnið vegna lágra launa/kaupgetu-- með lágum og undir-beltis lánastöðlum og í staðbundnum neikvæðum evru-raunstýrivöxtum, til að skapa þannig eftirspurn eftir þýskt framleiddum vörum frá Þýskalandi. Spánn varð ein samfelld rjúkandi evrurúst og atvinnuleysi er algerlega gerræðislegt, þó svo að það sé ekki enn 26 prósent, heldur er það 17 prósent og tæplega 40 prósent hjá ungu fólki. Sem sagt, enn ein evru-brunarústin með sótsvarta eða jafnvel enga framtíð, miðað við stöðuna áður en landið fór á evruhvolf
En hvað hefur þetta með Katalóníu að gera? Jú, það að vera Katalóníubúi er að vera af katalónsku þjóðerni, því þetta sjálfstjórnarhérað á Spáni er skilgreint sem þjóð. Sú þjóð er þjóð. En þessi þjóð vill bara ekki lengur vera í annarri þjóð. Hún vill ekki vera spænsk. Hún vill fá að stjórna sér sjálf og vera sjálfstætt og fullvalda ríki
Katalónía stendur fyrir 20 prósentum af landsframleiðslu Spánar og fjárlagahalli hennar er undir einu prósenti. Þetta er eitt ríkasta og iðnvæddasta hérað Spánar og það sjálfstæðasta. Og það er vandamál sem ríkisstjórninni í Madríd geðjast ekki að
Halda átti þjóðaratkvæðagreiðslu um sjálfstæði Katalóníu 1. október næstkomandi, en líklega mun lítið verða úr henni. Spænska lögreglan lagði í fyrradag hald á 10 milljón kjörseðla, kjörgögn og sjálfa kjörskránna með þeim rökum að gögnunum sem notuð voru til að búa til kjörskránna, hefði Katalónía stolið frá spænska ríkinu. Lögreglan stormaði skrifstofur, handtók heimastjórnarmenn og sendi í gær fimm þúsund lögreglumenn í viðbót út á götur Katalóníu
En ekki nóg með það. Heitt varð á þinginu í Madríd er þingmenn Katalóníu fá þessar fréttir að heiman, þeir móðgast eðlilega illa og til munnlegra skylminga kemur og þeir yfirgefa þingið í reiði. Ganga út. Á eftir þeim öskruðu þing og ríkisstjórnamenn; "og komið ekki aftur"
Yfirmaður spænska hersins sagði 2014 að hann myndi handhefja spænsku stjórnarskrána jafnt í Katalóníu og Afganistan. Þetta fór ekki vel niður. Stjórnarskrárdómstóll Spánar hefur úrskurðað fyrirhugað þjóðaratkvæði Katalóníumanna ólöglegt. Og þannig mun einnig brátt fara fyrir þeim ríkjum sem halda áfram að vera í Evrópusambandinu. Þannig handjárnum verður að sjálfsögð laumað inn í "umbætur" á stjórnarskrá Evrópusambandsins og öll útganga gerð ólögleg
Fari sem horfir, mun þessi krísa fara upp á næsta þrep og út á götur Katalóníu. Hún er reyndar komin þangað nú þegar, og einnig út á margar götur Spánar. Næstu þrep krísunnar gætu svo legið út í alla ríkisstjórn Spánar, þingið lamast, evrubankar á brauðfótum springa, peningaskömmtun tekin upp eins og í Grikklandi, eða þá að krísan í síðasta enda myndi rusla evrunni um koll og rústa flóttamannabúðum ríkra útlendinga á grafarbökkum og loka ferðamannaiðnaði niður og þar með gera alla Evrópu norðan Sahara að einum stórum no-go-zone fyrir þá sem er annt um líf og limi sína og sem kallast erlendir ferðamenn. Þetta gæti sem sagt jafnvel endað með borgarastyrjöld á Spáni - og víðar. Byrjunin lofar að minnsta kosti ekki góðu. Fyrstu spínat-spor Madríd sjást nú þegar það vel
Hvað skyldi gerast næst, nú þegar ESB og evran hefur klippt og rakað púðurþráðinn svona stuttan á öllu Spáni árum saman. Getur ESB komið í stað Franco? Er það mögulegt?
Gauksklukka Samfylkingaflokka slær hér einn Össur enn. Viðreisn trekkir upp svarta framtíð og evrugaukshreiðrið galar enn. Svo slær klukkan Benedik eitt og Benedikt tvö. Gúkk gakk, gúkk gakk
Það sem hægt er að segja með miklu öryggi um Evrópu í dag er þetta: Evrópusambandsfáninn sem slefar sig út um svo marga glugga meginlandsins, stendur nú fyrir aðeins þessu:
1. Pólitískum óstöðugleika
2. Efnahagslegum hörmungum
3. Áframhaldandi pólitískum óstöðugleika og áframhaldandi efnahagslegum hörmungum
4. Og öllu sem þessu fylgir. Þetta er orðinn einn stór pakki pakks
Kemur ný Franco og reddar þessu, eða mun evrustaðgengill hans halda? Hvað gerist næst?
Fyrri færsla
Hefur Angela Merkel eyðilagt Þýskaland og kannski Evrópu líka?
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 06:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Fimmtudagur, 21. september 2017
Hefur Angela Merkel eyðilagt Þýskaland og kannski Evrópu líka?
Meginland Evrópu er að fyllast af "öfgaflokkum"
Enginn svo kallaður öfgaflokkur (upphafsréttur: fjölmiðlar) hefur komst inn á þing í Bretlandi. Og enginn slíkur flokkur hefur séns í Bandaríkjunum
En lönd Evrópusambandsins virðast hins vegar vera að unga út mörgum flokkum sem fengið hafa á sig öfgastimpilinn. Hvernig skyldi standa á því. Átti Evrópusambandið ekki að lækna þær orsakir sem búa til slíka flokka. Okkur var sagt það, áratugum saman
Síðast þegar slíkt gerðist á meginlandi Evrópu, var það vegna samnings sem gerður var til að viðhalda vissu valdaójafnvægi á meginlandi álfunnar. Hann var kallaður Versalasamningurinn. Er Evrópusambandið nokkuð orðið slíkur samningur? Og sem meira að segja orðinn er heil stjórnarskrá!
Bretum var sagt að deildu þeir fullveldi sínu með öllum löndum Evrópusambandsins, þá fengju þeir sennilega friðarverðlaun fyrir og miklu betra líf. Miklu betra líf. En nú vill ESB ekki skila þeim fullveldinu til baka. Er þetta gott fyrir þau lönd sem hugsuðu hið sama er þau gegnu inn í sambandið. Er kaldur veruleikinn nokkuð að renna upp í öllum löndum sambandsins. Er það þessa vegna sem svona mikil ólga er að hreiðra um sig í öllum löndum Evrópusambandsins. Mjög mikil og vaxandi ólga. Er þetta sjálfur ESB-samningurinn?
Í fyrsta skiptið frá stríðslokum mun svo kallaður öfgaflokkur verða kosinn á þing í Þýskalandi eftir aðeins nokkra daga. Líklegt er að hann verði þriðji stærsti flokkur landsins og fái 89 af 703 þingsætum, eða á bilinu 9-13 prósent. Fullyrt er að í þessum flokki sé töluverður hluti nasistar. Þetta yrði þá í fyrsta sinn frá stríðslokum sem slíkur flokkur nýtur það mikils almenns stuðnings að hann kemst inn á þing, eða; í fyrsta skiptið frá styrjaldarlokum sem nasistar taka sér sæti í Reichstag. Flokkurinn heitir AfD
Það merkilega við AfD-flokkin er að hann var stofnaður fyrir aðeins fjórum árum. Einn stofnendanna hefur sagt að öryggis síns vegna muni Angela Merkel neyðast að flýja til Suður-Ameríku eftir gömlum flóttaleiðum, þegar hún fer frá völdum. Þetta hefur gerst hratt. En þó ekki enn jafnhratt og síðast er verðbólga fór úr verðhjöðnun og upp í 500 prósent á innan við tólf mánuðum. Þýskaland er ekki hvaða land sem er, þegar að hræringum kemur
Tveir aðrir róttækir flokkar munu einnig fara inn á þýska þingið. Die Linke (kommar) og FDP, sem vill sparka Grikklandi út úr ESB og froðufellir vegna evrusvæðismála. Til samans njóta þessir flokkar um 30 prósent fylgis, eða aðeins 6 prósentustiga minna fylgis en flokkssambandið CDU/CSU, sem Merkel leiðir. Sósíaldemókratar virðast óðum vera að hverfa og fá líklega ekki meira en 22 prósent atkvæða
Sagt er að það sjóði á 30 prósentum þýskra kjósenda vegna innflytjendastefnu Angelu Merkel og ESB-mála. Merkel tók sér eins konar einræðisvald er hún bauð milljónum manna til innrásar inn í Evrópu og þar með til Þýskalands líka. Fólkið er orðið hrætt um sig í sínu eigin landi og það kýs út frá persónulegum aðstæðum, að sjálfsögðu
Við hliðina á Þýskalandi er Austurríki og þar er flokkur skammstafaður FPO eða Frelsisflokkur Austurríkis og fullyrt er að hann sér nokkuð tær nasistaflokkur. Hann mælist nú með 25 prósent fylgi
Ég ætla ekki að fella dóma hér um hverjir eru öfgaflokkar eða ekki. Hvað skyldu íslenskir kjósendur segja um það mál í sínu eigin landi núna. Þetta lítur ekki beint vel út eins og er
Í Bandaríkjunum virkar löggjafarsamkundan. Dómsvaldið virkar einnig og framkvæmdavaldið líka. Allir sinna sínum skyldum og ekkert ríki vill ganga úr Bandaríkjunum. Og atkvæði kjósenda eru virt, samkvæmt lögum. Bretland virkar líka vel. Það er að taka til sín fullveldið aftur og atkvæði kjósenda eru virt, því þau eru lög. Þar er ekki kosið aftur þar til ESB-öfgar koma út með upprétta hönd
Hvað verður um Evrópu? - þar sem svo margir vilja ekki vera með í þeirri Evrópu sem Evrópusambandsmenn hafa gert álfuna að. Vilja ekki lengur vera með. Öryggisleysið hríslast kalt niður hrygginn á íbúum ESB-landa. Þeir eru orðnir varnarlausir. Þeir hafa misst sjálfsákvörðunarrétt og fullveldi þjóðar. Þeir deildu því
Fyrri færsla
Donald Trump ávarpar þjóðirnar í stofnun Sameinuðu þjóðanna
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 07:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Miðvikudagur, 20. september 2017
Donald Trump ávarpar þjóðirnar í stofnun Sameinuðu þjóðanna
Norður-Kórea var höfð á fyrsta bekk
Ræðutextinn er viðhengdur sem textaskjal hér neðst í þessari færslu, því þetta er afar mikilvægur og stefnumótandi texti. Hann markar kaflaskil í samskiptum á milli þjóða og þjóðríkja. Að minnsta kosti í samskiptum Bandaríkjanna við önnur þjóðríki. Gamall sannleikur er tekinn upp á ný. Hér er einnig bein krækja á ræðuna hjá Hvíta húsinu
Stutt frásögn:
Við, fólkið, sagði hann
Velkomin til Nýju Jórvíkur (New York), heimaborgar minnar
Við þökkum þeim mörgu þjóðum sem boðið hafa minni þjóð aðstoð vegna náttúruhamfara
Við Bandaríkjamenn erum með elstu virku stjórnarskrá í heiminum og hún hefst á þessum þremur einföldu orðum; WE THE PEOPLE (Við fólkið/þjóðin..). Við fögnum 230 ára afmæli hennar núna. Hún er tímalaust skjal sem þjóðin elskar og hún er grunnur friðar, velmegunar og frelsis okkar Bandaríkjamanna - og einnig óteljandi milljóna annarra manna um allan veröld
Það gengur betur hjá minni þjóð en í langan tíma. Atvinnuleysi er að lagast og fyrirtækin eru að koma heim. Við erum að styrkja þjóðvarnir og herinn okkar, þannig að hann verði sá sterkasti nokkru sinni
Við lifum á tímum einstakra tækifæra. En líka á tímum einstakra ógna
Hryðjuverka- og svæsin öfgaöfl hafa breiðst út til allra horna veraldar. Til þeirra allra! Og studd af ónýtum og hættulegum ríkisstjórnum, sem eru einnig hér á þessari samkundu í dag
Þær herja á sínar eigin þjóðir og aðrar. Þetta drasl er að reyna halla veröldinni frá þeim friði sem við hölluðum henni að, með því að berja svona pakk niður með sleggju í Síðari heimsstyrjöldinni
Alþjóða-glæpasamtök og alþjóða-þrælaverslun er sama sagan. Þetta blómstrar í dag (já allt alþjóða blómstrar í dag) og massafólksflutningar ógnar landamærum okkar. Tæknivætt lið upp í háls sem notar tækni til að ógna borgurum okkar
Fullveldi er númer eitt. Aðeins fullveldi ríkja getur bætt heiminn. Og aðeins fullvalda ríki geta bætt heiminn. Fullvalda sjálfstæðar þjóðir sem taka sig af þegnum sínum. Fullveldi fólksins númer eitt
Öryggi og þjóðaröryggi
Og meira öryggi og þjóðaröryggi
Velmegun
Og meiri velmegun
Það vorum við sem komum Evrópu á fætur á ný. Við gáfum löndum hennar framtíð (sem ESB fer illa með, segir hann óbeint síðar í ræðunni um þannig "fjarlæg skrifstofuveldi")
Okkur er sama hvernig önnur ríki stjórna sér, búa, lifa, anda og trúa, svo lengi sem þær gera þetta hér tvennt: 1) gæta hagsmuna eigin þjóðar og borgara sinna, og 2) virða rétt og réttindi annarra fullvalda þjóða (hér er slæm hugmynd líberalista (vinstrimanna) um frelsun heimsins með úniversal reglustrikuverki John Locke á stöng, jörðuð, grafin og steindrepin. Trump íhaldsmaður segir að svo sé. Amen)
Norður-Kórea er að drepa fólkið sitt og ógna heiminum. Við munum þurrka hana út, sé Bandaríkjunum og bandamönnum okkar ógnað
Íran er helvíti, sérstaklega fyrir sitt eigið fólk sem það mergsýgur til að ógna nágrönnum sínum. Við munum rifta samningi við þetta ríki ef þess þarf
Allar þjóðir verða að setja sjálfar sig í fyrsta sætið. Hugsa um sitt eigið fólk fyrst. Það er skylda allra og til þess eru menn kjörnir
Bandaríkin hafa tekið á sig sinn skerf af fólksflutningum í gegnum söguna. Við þekkjum vel hversu stjórnlausir fólksflutningar eru mjög svo óréttlátir gagnvart þeim löndum sem missa fólkið sitt og þeim löndum sem taka á móti því. Ekkert réttlætir að sjúga blóðið úr öðrum löndum sem þurfa svo mjög á því að halda við betrumbætur og þróun. Og ekkert réttlætir að drekkja sínu eigin fólki með öðru fólki (móttökuþjóðinni) því þetta eyðileggur vinnumarkað hennar. Og þetta eyðileggur líka vinnumarkað sendandans. Sérstaklega hinna lægra launuðu í móttökulandinu. Þeir bera þyngstu byrðarnar vegna innflæðis fólks og því fólki eigin þjóðar gleyma oft ríkisstjórnir og fjölmiðlar
Ef Sameinuðu þjóðirnar eiga að lifa af sem stofnun, þá verður hún að bæta sig. Spillt ríki sem virða rétt borgara sinna að vettugi, sitja á fé stofnunarinnar til mannréttindamála. Stofnunin þarf að vera ábyrgari gagnvart umboði sínu
Við borgum yfirgnæfandi undir þessa stofnun miðað við alla aðra. Yfirgnæfandi
Sum ríki heimsins eru á leið til helvítis
Stjórn Venesúela er að rústa þjóðinni með sósíalisma sem allsstaðar í veröldinni hefur bara framleitt ömurleika. Við munum ekki horfa þegjandi á þetta pakk sem er að svelta þjóðina. Vandamálið í þessu landi er ekki það að sósíalisminn hafi verið illa framkvæmdur, heldur var hann innleiddur og framkvæmdur með fullkominni dyggð
Alþjóðleg viðskipti eru góð ef þau eru sanngjörn. En of lengi var okkur Bandaríkjamönnum sagt að mammút-stærðar fjölþjóða fríverslunarsamningar og umboðslausar alþjóðastofnanir og alþjóðleg skrifstofuveldi væri besta leiðin til að stunda viðskipti í heiminum. En milljónir starfa og þúsundir verksmiðja hurfu úr landi okkar og klettur bandaríska þjóðríkisins, millistéttin, var skilin eftir á fjóshaug, grafin og gleymd, þökk sé þeim sem kunnu á kerfið og burtu reglurnar sem eru stappa. Þessu fólki verður ekki gleymt. Aldrei aftur
Við sjálf erum að endurnýja og endurvekja fyrstu skyldur hverrar ríkisstjórnar, og þær eru þessar: að hugsa um sitt eigið fólk fyrst!
Skyldur hverrar ríkisstjórnar eru fyrst og fremst að hugsa um og tryggja sitt eigið fólk. Aðeins sjálfstæður styrkur hverrar þjóðar getur haldið þessari stofnun við efnið og borið hana uppi
Aðeins með því að gera það geta Sameinuðu þjóðirnar sinnt hlutverki sínu sem stofnun fullvalda ríkja. Styrkur fullveldis þjóðanna myndar þessa stofnun
Ekkert getur komið í stað sterkra fullvalda og sjálfstæðra þjóða sem standa á rótum sögu þeirra. Þjóða sem eru heimili föðurlandsvina, viljugir að vinna þjóð sinni gagn og fórna sér fyrir þjóðarheimili sitt
Þeir sem fórnuðu lífi sinu til að þessi stofnun gæti verið til, með því að sigra hið illa með vopnum, þeir færðu þessar fórnir fyrir þjóðina sína sem þeir elskuðu
Meira um þjóðina og þjóðirnar sem bestu stofnun jarðar, flutti Donald Trump þjóðum jarðar
Við getum ekki beðið eftir fjarlægum skrifstofuveldum. Enginn annar getur unnið vinnuna fyrir okkur, þjóðina. Við verðum að vera fyrst til að bjarga okkur sjálf. Til þess þurfum við föðurlandsvini, sem taka höndum saman um að búa þjóð sinni framtíð. Sem slá eignarhaldi á framtíð fyrir þjóð sína
Við köllum eftir endurvakningu á þjóðunum (hugtakinu sjálfu og sem stofnun)
Guð blessi þjóðirnar og mína þjóð
Örstuttri frásögn lýkur. Margt og mikið fleira er í ræðu Donalds Trump. Best er því að hlýða á hana
Fyrri færsla
Ekki-kommúnisti, er svoleiðis til ?
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 03:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Þriðjudagur, 19. september 2017
Ekki-kommúnisti, er svoleiðis til ?
VG Prinsipp-Polo
Mynd: ekki-doktor Zhivago Vinstri grænna í Brussel
Flestir vita hvað kommúnisti er. En myndi einhver venjulegur maður vita hvað ekki-kommúnisti er? Nei, það hugsa ég ekki að neinn venjulegur maður geti vitað. Reyndar er ekki-kommúnisti ekki til
En hvað þá með liberalista (vinstrimenn). Eru þeir til? Já þeir eru til. En eru þá þeir til sem kalla má ekki-vinstrimenn? Og ef þeir eru til, myndu þeir þá heita illiberals?
Það er nú það. En það er þessi stimpill sem liberlas (vinstrimenn) eru að reyna að klína á alla þá sem eru ekki vinstrimenn. Í þeirra augum eru allir sem eru ekki liberal (ekki-vinstrimenn), einfaldalega illiberals
Þeir sem eru að reyna að nota þennan stimpil á þá sem eru ekki vinstrimenn, gleyma því að mörgum mörgum öldum áður en hreyfing þeirra sjálfra varð til (vinstrið), voru það Íhaldsmenn (Conservatives) sem byggðu upp það góða sem líf flestra hvílir á í dag; þingræði, þingræðislegt lýðræði og bestu stjórnarskrár veraldar frá fæðingu Krists
En burðarstólpinn undir þessu öllu var af Íhaldsmönnum samt sóttur langt aftur fyrir fæðingu Krists, þ.e alla leið til Ísraelsríkis hins forna, þ.e. til Gamla testamentisins, sem er stór hluti heilagrar Biblíu Vesturlanda. Nefna má hér sérstaklega skiptingu valds og til dæmis þjóðríkið, þjóðkirkjur og landamærin, sem ríki áttu að halda sér innan
En svo komu Vinstrimenn (þ.e. liberals undir fána sósíalistans John Locke) fram á sögusviðið og mynduðu ásamt Abolutistum (einræði án stjórnarandstöðu) þá andstæðu póla sem uxu til höfuðs Íhaldsmönnum, sem byggt höfðu upp þingræði og lýðræði í Englandi og voru að byggja það upp í Bandaríkjunum. Stór hluti stjórnarskrár Bandaríkjanna kemur frá íhaldsmönnum Englands
Við fyrsta góða múgsefjandi skrílsláta-tækifæðið sem bauðst, sprautuðu vinstrimenn (liberals) kenningum sínum beint inn í Frönsku byltinguna og árangur þeirrar innspýtingar varð hundrað ára blóðbað um stóran hluta Evrópu, og svo sjálfur uber keisaralegur imperíalistinn Napóleon, og svo það sem við höfum í dag: þ.e. heilt og marg-misheppnað Frakkland á sinni fimmtándu stjórnarskrá og sínu fimmta, en þó enn og aftur, misheppnaða lýðveldi, samkvæmt Frökkum sjálfum. Frakkar vilja því núna fá enn eina nýju stjórnarskrá sína, sem stýra á sjötta Franska lýðveldinu. Já þið heyrðuð rétt; því sjötta! Hvað er að í Frakklandi? Jú það sem er að, er ekki-íhaldsmenn, þ.e.a.s. vinstrimenn!
Í millitíðinni hafa Bandaríkin haft aðeins eina stjórnarskrá sem þolað hefur tuttugu þúsund áhlaup vinstrisins á hana, og Bandaríkin því orðið stórveldi á meðan Frakkland varð næstum ekki neitt, nema með aðstoð stofnunar ESB, sem er neyðarbjörgun þess frá núlli, miðað við það sem landið áður var
Og enn eru Bretar í betri holdum en franskur almenningur sem leið svo lengi undir absalútveldi konungs. Og þannig hefur sláandi munurinn á milli þessara tveggja ríkja verið frá því að Íhaldsmenn komu með pólitískar kenningar sínar fram á völlinn í Englandi, frá og með ca. 1300. Oftast verið feitari en Frakkar, og hafa því mun síður drepist úr hor og sjúkdómum sem grassera best í hor - öldum saman
Það er ekki til neitt sem heitir ekki-vinstrimaður (illiberal) og það er ekki til neitt sem heitir ekki-vinstrimennska (illiberalism). Rétta nafnið er: Íhaldsmaður. Ég er til dæmis Íhaldsmaður
Björt framtíð og Viðreisn og Vinstri grænir segjast ekki geta unnið með okkur Sjálfstæðismönnum. En hugsið út í þetta; Íhaldsmaðurinn Winston Churchill gat unnið með kommúnistum! Einnig Dranklin D. Roosevelt. Vaú
Íhaldsmaðurinn Donald Trump hefur aðeins setið í forsetaembættinu í átta mánuði núna. En á þeim tíma og í kosningabaráttu sinni hefur honum þó tekist að gerbreyta sýn margra á margt það sem á undan er gengið og sem gert var í veröldinni frá og með falli Sovétríkjanna. En þá hvarf samvinnugrundvöllur íhaldsmanna og líberalista með því að sameiginlegur óvinur þeirra hvarf úr veröldinni; Sovétríkin. Samvinna þessara tveggja grunnleggjandi andstæðu pólitísku afla, hófst í síðari heimstyrjöldinni, og gengu kommúnistar þá einnig í lið með þeim í baráttunni við alræðisstefnur meginlands Evrópu (alræðismennin). Og í kalda stríðinu börðust íhaldsmenn og líberalistar einnig saman, en þá gegn kommúnismanum (alræðismenni líka)
En nú skilja leiðir þeirra á ný, því pólitísk hugmyndfræði líberalista hefur reynst ónothæf og útópía við lausn á þeim málum sem leysa þarf úr í veröld manna í dag
Rekja má sem sagt íhaldsmannahefðina aftur til ca 1300, og kallast hún Anglo-American Conservatism Tradition
Vegna langrar og sögulegrar samvinnu þessara tveggja andstæðu pólitísku afla, íhaldsmanna og líberalista, voru margir farnir að halda að um eina og sömu skepnuna væri að ræða. En svo er auðvitað ekki. Slíkt hald manna var aðeins ávanamyndandi skynvilla og blindlestur
Og það sem við sjáum í dag er skilnaður þessara afla. Hann er svona. Og rykið frá skilnaðinum er mikið og þykkt. Þeir sem sjá í gegnum mökkinn þann, munu lifa af, en hinir deyja út eins og kommúnistar. Eða eru þeir kannski ekki alveg örugglega útdauðir í dag. Er það kannski ekki svo?
Tímabilið frá 1941 til 1991 var undantekningarástand og tímabilið frá 1991 til 2008 var útópía líberalista sem klesstu veröldinni það ár. Því tímabili er nú lokið. Íhaldsmenn eru mættir til leiks á ný og sagan líka
Ef þú skyldir mæta Vinstrimanni með stjórnarskrá á heilanum, þá skaltu forðast hann, því hann er oft afar hættulegur maður. Hættulegur lífi þínu, eins og þú þekkir það best. Og svo er það ESB, sem einnig þýðir hor. Endalaust vinstra hor, öldum saman
Lesið Yoram Hazony og Ofir Haivry:
What Is Conservatism? (American Affairs Journal)
Fyrri færsla
Píratar fagna meintum nauðgara og þjóf - meðmælendur Viðreisnar
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (17)
Mánudagur, 18. september 2017
Píratar fagna meintum nauðgara og þjóf - meðmælendur Viðreisnar
"Alþjóða"byltíngin að hefjast
Það gerðu Píratar á niðurhalasfundi flokksins. Og það kom að sjálfsögðu fram í DDRÚV. Og lófaklapp og tár í augu. Þjófi og meintum nauðgara fagnað, ákaft
Meðmælendur Viðreisnar og Pírata vissu greinilega ekki hverju þeir voru að mæla með. Að minnsta kosti ekki þeir sem mæltu með Viðreisn; því þeir fengu bara politburo (ráðgjafaráð). Alltaf batnar það
Þetta fólk verður ekki ánægt fyrr en að kjósendum með "rangar skoðanir" (xD) hefur verið rutt úr vegi
Gætið ykkar kjósendur xD. Bráðum kemur bifreið að sækja ykkur (sjálfkeyrandi). Kannski um miðja nótt. Og þið gætuð jafnvel lent í gapastokk DDRÚV í beinni
Vagga íslenska vinstrisins er enn Sovétríkið. Það er greinilegt
Hvernig var þetta annars?:
1. Jú, úr Kommúnistaflokki Íslands kom Sósíalistaflokkurinn - Sameiningarflokkur alþýðu (bakhjarl Sovétríkin)
2. Úr Sósíalistaflokkunum - Sameiningarflokki alþýðu kom Alþýðubandalag (bakhjarl Sovétríkin, allt fram að andláti þeirra (peningarnir búnir))
3. Úr Alþýðubandalagi kom Vinstri grænir (grænt málað yfir rautt) og Samfylking, sem aðhyllist umboðslaust og yfirríkislegt Evrópusamband
4. Úr þessu kom síðan stappan sem við sjáum í dag. Samfylking á dánarbeði, bjart orðið svart og allt í loft upp
Og öll kenna þau íslenskum kjósendum með "rangar skoðanir" um ófarir sínar. Kenna Sjálfstæðiflokknum um allt
Ég kýs Sjálfstæðiflokkinn!
Fyrri færsla
Donald Trump lokar á kínverska "fjárfesta"
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Sunnudagur, 17. september 2017
Donald Trump lokar á kínverska "fjárfesta"
Trump Bandaríkjaforseti (mynd) hefur í fjórgang á skömmum tíma stöðvað erlenda fjárfestingu inn í Bandaríkin. Um er að ræða kínverska yfirtökutilraun á bandarísku tæknifyrirtæki í gegnum fjárfestingarfyrirtæki sem kallar sig Canyon Bridge Capital Partners
Ástæðan fyrir banni forsetans er sú að forsetaembættið rakti fjárfestingarfé þessara svo kölluðu "fjárfesta" til kínverska kommúnistaflokksins. Aðgerð forsetans er bein yfirlýsing um að fé kínverska kommúnistaflokksins verður ekki liðið í þeim lögum bandarísks efnahagslífs sem talin eru hafa strategíska þýðingu fyrir bandaríska lýðveldið. Þessi aðgerð forsetans er einnig talin geta varpað skugga yfir nýlega gerðar fjárfestingar kínverskra aðila í Bandaríkjunum. Hætt er við að kafað verði djúpt ofan í þær. Bandaríkin eru að kafna í sparifé innlendra fyrirtækja (eiginfé) og hafa enga þörf fyrir erlent fé til fjárfestinga
Trump hefur aðeins setið í forsetaembættinu í átta mánuði. En á þeim tíma og í kosningabaráttu sinni hefur honum tekist að gerbreyta sýn margra á margt það sem á undan er gengið og sem gert var í veröldinni frá og með falli Sovétríkjanna. En þá hvarf samvinnugrundvöllur íhaldsmanna og líberalista með því að sameiginlegur óvinur þeirra hvarf úr veröldinni; Sovétríkin. Samvinna þessara tveggja grunnleggjandi ólíku pólitísku afla hófst í síðari heimstyrjöldinni, og gengu kommúnistar þá einnig í lið með þeim í baráttunni við alræðisstefnur meginlands Evrópu
Í kalda stríðinu börðust íhaldsmenn og líberalistar einnig saman, en þá gegn kommúnismanum. Nú skilja leiðir þeirra á ný, því að pólitísk hugmyndfræði líberalista hefur reynst ónothæf og útópía við lausn á þeim málum sem leysa þarf úr í veröld manna í dag. Rekja má íhaldsmannahefðina aftur til ca 1300, og kallast hún Anglo-American Conservatism Tradition. Líberalistar komu mun síðar að sögunni og át Franska byltingin því boðskap þeirra of hráan. Þess vegna er byltingin sú á sinni fimmtándu stjórnarskrá og sínu fimmta lýðveldi, og lítið gengur enn upp á síðum hennar og enn verr í praxís
Vegna samvinnu þessara tveggja andstæðu pólítísku póla, íhaldsmanna og líberalista, voru margir farnir að halda að um eina og sömu skepnuna væri að ræða. En svo er auðvitað ekki. Slíkt hald manna var aðeins ávanamyndandi skynvilla og blindlestur
Kínverjar óttast að ríkisrekin stálframleiðsla þeirra og sem seld er til Bandaríkjanna og víðar, geti einnig endað undir fallöxi forsetans. Donald Trump forseti segir að auður vinnandi stétta bandaríska lýðveldisins hafi áratugum saman --þ.e. frá og með falli Sovétríkjanna og þeim merku kaflaskilum sögunnar-- verið rifinn upp með rótum og honum skipað út til fjarlægra landa. Þannig hafa Bandaríkin frá 1997 misst einn þriðja hluta allrar framleiðslu úr landi, þrátt fyrir að þjóðinni hafi fjölgað um 50 milljón manns á tímabilinu
Mikill fjármagnsflótti er frá Kína því þar borgar svo fátt sig lengur. Reynt er er því að koma kínversku fé í fjárfestingar erlendis sem bera arð. Gallinn er bara sá að þetta er dulbúið ríkisfé og í mörgum tilfellum afar illa fengið og ólöglegt. Kínverski kommúnistaflokkurinn er eitt gerspilltasta pólitíska afl veraldar ásamt útópíska Evrópusambandinu
Krækja: What Is Conservatism? (American Affairs Journal)
Fyrri færsla
Pólitískt gjaldþrot kennitöluflakkara vinstri vængsins endurómar enn
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Föstudagur, 15. september 2017
Pólitískt gjaldþrot kennitöluflakkara vinstri vængsins endurómar enn
- Kjóll, kjóll, segðu mér hvar engin er -
Bjarni Benediktsson sýndi svo ekki verður um villst, að hann er pólitískur leiðtogi sem vex að burðarþoli og styrkist í takt við reynslu og álag. Sjálfstæðisflokkurinn styrkist ár fyrir ár með hann við stýrið
Tvístraður, sundraður og málefnalaus vinstri vængur íslenskra stjórnmála, nær ekki enn að jafna sig eftir fall Sovétríkjanna og sigur íhaldsmanna á þeim. Kratað og örent vinstrið hefur því gengið í hugmyndafræðilegt og verklegt lið með stjórnleysingjum og óvinum lýðræðislegs stjórnarfars. Þannig hangir það nú örent á einu hálmstrái, sem hamast er við að mála grænt, yfir rautt. En jafnvel sú græna hlið er farin að flagna svo af hálmstárinu því, að í rústroðann sést
Vinstrið, sem fyrirlítur trú, ættjörð og hagvöxt, stendur nú á öndinni yfir því að til skuli vera valkostur við kosningasvik, múgæsingar, skrílslæti og harðræði handa þjóð sem kratað vinstrið hvorki þolir né unnt getur ættjarðar, fullveldis, þjóðfrelsis og velmegunar
Þeir hafa ekkert í stjórnmálamanninn Bjarna Benediktsson, leiðtoga Sjálfstæðisflokksins, né þann flokk allan. Ekkert
Það verður fróðlegt að fylgjast með því hvaða pólitíska kennitölu-klask verður boðið fram úr gjaldþrotasafni krataðs ný-vinstrisins, því stórt er safnið það. Heljarins stórt og málefnalega tundrað. Og fyrr en varir getur það safn í tóm skrílslætin breyst
Reynslan af safni þessu kolsvört er. Það hvorki í stjórn getur setið, né í stjórnarandstöðu staðið. Það vill helst pólitískt heimili sitt hafa fyrir utan þekkt og gott. Stjórnlaus stefna þess er enn austur
Fyrri færsla
Flögrandi kjóll vinkvenna í Lundúnum kominn úr ríkisstjórn
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Föstudagur, 15. september 2017
Flögrandi kjóll vinkvenna í Lundúnum kominn úr ríkisstjórn
Fjör
Vinirnir í Lundúnum sem hún skaffaði Alþingishúsið til einkaafnota verða skúffaðir er þeir frétta að kjóllinn þeirra hefur flögrað úr ríkisstjórn
Proppur óttans gaf sig og Björt er fortíð
Klukkan er hálf þrjú og allt er vel
Fyrri færsla
![]() |
Slíta samstarfi við ríkisstjórnina |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 02:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Miðvikudagur, 13. september 2017
Stefnuræða forsætisráðherra
Ég hlýddi á stefnuræðu Bjarna Benediktssonar forsætisráðherra Íslands og umræður í kjölfar hennar, við upphaf þessa 147. löggjafarþings Alþingis Íslendinga. Sjálfs þjóðþings okkar, en ekki einhvers "samfélagsþings" eins og stundum mætti halda að þingmenn úr firrtum undirheimum múgsefjandi samfélagsmiðla haldi að þjóðþing okkar sé. Alþingi er þjóðþing Íslendinga og engra annarra!
Bjarni forsætisráðherra blikkaði með stóra vasaljósinu og var sá eini sem gerði það. Hann var sá eini sem minntist á fullveldi þjóðarinnar og hve hart forfeður okkar börðust fyrir þjóðfrelsi og sjálfsákvörðunarrétti hennar. Það gerðu þeir með því að viðhafa þjóðarstefnu (e. national-ism). Og þau öfl sem svo gerðu, voru kölluð hin frjálslyndu öfl. Og þau öfl eru enn hin einu sönnu frjálslyndu öfl
En hann Bjarni Benediktsson er í afar vondum málum með Viðreisn í ríkisstjórn, því sá flokkur er þjóðfjandsamlegur okkar þjóð. Það fer ekki á milli mála
Bjarni þyrfti að hafa stöðugt kveikt á stóra ljósinu. Geri hann það, en sé ekki að fela það, þá þarf hann ekki að óttast kosningar, heldur hlakka til þeirra samfellt og endalaust alla ársins daga
Þingmaður Framsóknarflokksins talaði um að Bjarni væri "ástríðulaus". Það má vel vera. En dómsmálaráðherrann okkar minntist einmitt á það mál með því að minnast á þrískiptingu valds. Þeirri skiptingu var komið á til þess einmitt að leggja bönd á ástríður og ástríðufulla valdagræðgi pólitískra skemmtikrafta eins og til dæmis Steingríms J. Sigfússonar, sem varð fremsti kosningasvikari Íslandssögunnar er hann stóð frammi fyrir því að hafa hemil á valdagræðgi-ástríðum sínum eða ekki. Þessi maður varð því auðvitað háværasta skemmtiatriði kvöldsins. Steingrímur ætti að íhuga stöðu í leikhúsi í stað löggjafarþings Íslendinga. En það sem hann þó benti á í sambandi við bændur, er nú samt rétt. Bjarni, þú verður að koma böndum á þetta mál í þinni ríkisstjórn, því það er í fyrsta lagi nátengt fullveldi þjóðarinnar og í öðru lagi hið ömurlegasta mál. Algerlega nátengt því og ömurlegt
Katrín formaður VG minntist á þjóðtunguna, íslenskuna. Það fór henni mjög vel. Undir tilvistarlegt mikilvægi þess máls ættu allir að geta tekið, þó svo að VG hafi dæmt sig til útlegðar með krónísku rauðgrænu kommakukli og kosningasvikum
Ég hrósa dómsmálaráðherranum okkar fyrir að minnast á skiptingu valds. En 300 árum áður en Montesquieu var uppi, var annar maður uppi sem hét Sir John Fortescue, sem meira hefði verið áríðandi að minnast á. En mest áríðandi af öllu hefði þó verið að minnast á þá skiptingu valds sem Gamla testamenti Biblíunnar kom til skila til síðari kynslóða, og þar á meðal okkar, sem einum af hornsteinum Vesturlanda; þ.e.a.s. skiptingu valds í Ísraelsríki hinu forna. Þar varð skipting valds til. Og einnig landamærin, sem búa til lögsöguna og koma í veg fyrir að ríki þenji sig út fyrir þau til að gleypa alla veröldina í sig, já þau koma líka úr Gamla testamenti Biblíunnar. Það sama gildir um hina grunnpólitísku einingu sem myndar veröld manna; þjóðirnar og þjóðríki þeirra.
Ritningarnar boða þá (laga)heimspeki að enginn megi stjórna heiminum, heldur eiga þjóðirnar að stjórna sér sjálfar. Allt sem til dæmis minnir á eða kallast getur "alþjóðasamfélag" í dag, er einungis dulbúin tilraun og samsæri gegn þjóðfrelsinu, í formi nýs umboðslauss heimsveldis með lymskulegum umbúðapappír utan um, til þess auðvitað að hengja þjóðirnar í og gera þær að þrælum
Mér finnst þingmenn Pírata vera orðnir frekar gamlir, lúnir og gráhærðir. Ef þeir hefðu til dæmis teflt átta til tíu ára stúlkubörnum fram í ræðistól Alþingis, þá hefði kannski verið hægt að hafa eyrun opin og hlusta. Ekki gat þetta kjörna fólk Pírata sem röflaði, og sífellt röflar um reglur, haldið sig við einfaldar reglur um ræðutíma. Ekki frekar en þeir héldu sig við geimferðaáætlun flokksins til Evrópu
Kjólafyrirsæta vina sinna í Lundúnum úr flokki sem kallaði sig Bjarta framtíð, nennti ég ekki að hlusta á. Þá var algerlega nóg komið og ekki síst þegar kvenkyns þingmaður úr pjötluflokki kom og skammaði íslensku þjóðina fyrir að viðhafa lýðræði í landinu með því að þeir flokkar sem kosnir eru til valda séu við völd, en ekki þeir flokkar sem kjósendur hafna
Það sem stóð upp úr á þessi kvöldi var hversu ömurlegur söfnuður af innantómu þvaðri tíndist upp úr ruslatunnum smáflokkanna. Þeir eiga ekki langt eftir. En stóra fullveldisljósið hans Bjarna Benediktssonar og íslenska krónan hans lýstu þó sál mína mest upp og var það uppörvandi tilfinning
En Bjarni minn góður: Númer eitt) Hafa stanslaust kveikt á stóra ljósinu þínu, og númer tvö) boða stórfelldar skattalækkanir fyrir næstu kosningar. Þú einn getur gert það og þér einum trúir fólk til þess. Og númer þrjú) þvo bændaútrýmingarstimpilinn af flokknum. Það verður að gerast!
Gangi þér og xD þingflokknum vel
Fyrri færsla
Fyrsta kynslóð ónýtra Hörpu-forseta lætur úr Reykjavíkurhöfn
Stjórnmál og samfélag | Breytt 14.9.2017 kl. 02:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Nýjustu færslur
- Tilvistar-vandamál meginlands Evrópu komin í meðferð 7300 km ...
- Kalda stríðið orðið að leit Evrópu eftir alþjóðlegri vernd [u]
- Gunnar Bragi hefur rétt fyrir sér
- Eitthvað sem ekki passar hér [u]
- Kristrún stígur ekki í vitið, svo mikið er nú víst
- Þorgerður mín
- Kína komið til "ósubbulegs" sálfræðings
- ESB og Kína þekkja ekki bandaríska miðvestrið
- Bóndinn og prófessorinn í Selma um tolla Trumps. Grænland
- Evrópa er á leiðinni á nauðungaruppboð: Kaninn unir ekki að G...
- Svo lengi sem Grænland er viðriðið Danmörku mun heimurinn ekk...
- Landsölupakkhús Þorgerðar fúlt út í JD Vance
- Kannski hægt að byrja á farsímavef Veðurstofunnar - strax í d...
- Hamast við moksturinn í Reykjavík
- Grunnvextir hækka á evrusvæðinu - varanlega
Bloggvinir
-
Heimssýn
-
Samtök Fullveldissinna
-
ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE
-
Guðmundur Jónas Kristjánsson
-
Ragnhildur Kolka
-
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
-
Haraldur Hansson
-
Haraldur Baldursson
-
Páll Vilhjálmsson
-
Halldór Jónsson
-
Valan
-
Samstaða þjóðar
-
Frjálshyggjufélagið
-
Sigríður Laufey Einarsdóttir
-
Eyþór Laxdal Arnalds
-
Jón Valur Jensson
-
Samtök um rannsóknir á ESB ...
-
Kolbrún Stefánsdóttir
-
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
-
Jón Baldur Lorange
-
Guðjón E. Hreinberg
-
Jón Ríkharðsson
-
Anna Björg Hjartardóttir
-
Loftur Altice Þorsteinsson
-
Valdimar Samúelsson
-
Fannar frá Rifi
-
Bjarni Jónsson
-
Sigurður Þorsteinsson
-
Gunnar Ásgeir Gunnarsson
-
Haraldur Haraldsson
-
Örvar Már Marteinsson
-
Kristin stjórnmálasamtök
-
Gestur Guðjónsson
-
Ingvar Valgeirsson
-
Predikarinn - Cacoethes scribendi
-
Guðsteinn Haukur Barkarson
-
Guðmundur Helgi Þorsteinsson
-
Lísa Björk Ingólfsdóttir
-
Bjarni Kjartansson
-
Bjarni Harðarson
-
Guðrún Sæmundsdóttir
-
Sveinn Atli Gunnarsson
-
gudni.is
-
Gústaf Adolf Skúlason
-
Tryggvi Hjaltason
-
ESB
-
Marinó G. Njálsson
-
Baldvin Jónsson
-
Elle_
-
Sigurbjörn Svavarsson
-
Emil Örn Kristjánsson
-
Johnny Bravo
-
Jón Finnbogason
-
Rýnir
-
Þórarinn Baldursson
-
P.Valdimar Guðjónsson
-
Már Wolfgang Mixa
-
Ívar Pálsson
-
Júlíus Björnsson
-
Guðjón Baldursson
-
Baldur Fjölnisson
-
Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
-
Einar Ólafsson
-
Sigríður Jósefsdóttir
-
Vilhjálmur Árnason
-
gummih
-
Sveinn Tryggvason
-
Helga Kristjánsdóttir
-
Jóhann Elíasson
-
Baldur Hermannsson
-
Kristinn D Gissurarson
-
Magnús Jónsson
-
Ketill Sigurjónsson
-
Birgitta Jónsdóttir
-
Axel Jóhann Axelsson
-
Þorsteinn Helgi Steinarsson
-
Aðalsteinn Bjarnason
-
Magnús Þór Hafsteinsson
-
Erla Margrét Gunnarsdóttir
-
Sigurður Sigurðsson
-
Þorsteinn H. Gunnarsson
-
Haraldur Pálsson
-
Sveinbjörn Kristinn Þorkelsson
-
Bjarni Benedikt Gunnarsson
-
Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
-
Ægir Óskar Hallgrímsson
-
Helgi Kr. Sigmundsson
-
Óskar Sigurðsson
-
Tómas Ibsen Halldórsson
-
Axel Þór Kolbeinsson
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Hörður Valdimarsson
-
Adda Þorbjörg Sigurjónsdóttir
-
Þorsteinn Valur Baldvinsson
-
Margrét Elín Arnarsdóttir
-
Ásta Hafberg S.
-
Erla J. Steingrímsdóttir
-
Helena Leifsdóttir
-
Agný
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
Jón Árni Bragason
-
Jón Lárusson
-
Högni Snær Hauksson
-
Kristján P. Gudmundsson
-
Kristinn Snævar Jónsson
-
Sigurður Ingólfsson
-
Rakel Sigurgeirsdóttir
-
Sigurður Þórðarson
-
S. Einar Sigurðsson
-
Pétur Steinn Sigurðsson
-
Vaktin
-
Sigurjón Sveinsson
-
Dóra litla
-
Arnar Guðmundsson
-
Jörundur Þórðarson
-
Rafn Gíslason
-
Hjalti Sigurðarson
-
Kalikles
-
Vésteinn Valgarðsson
-
Bjarni Kristjánsson
-
Egill Helgi Lárusson
-
Gunnar Skúli Ármannsson
-
Halldóra Hjaltadóttir
-
Jón Pétur Líndal
-
Guðmundur Ásgeirsson
-
Reputo
-
Gunnar Helgi Eysteinsson
-
Sigurður Sigurðsson
-
Ólafur Als
-
Friðrik Már
-
Gísli Sigurðsson
-
Sigurður Einarsson
-
Rauða Ljónið
-
Sumarliði Einar Daðason
-
Gísli Kristbjörn Björnsson
-
Kári Harðarson
-
Sigurður Antonsson
-
Valdimar H Jóhannesson
-
Rósa Aðalsteinsdóttir
-
Dagný
-
Guðmundur Pálsson
-
Jakob Þór Haraldsson
-
Birgir Viðar Halldórsson
-
Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
-
Tíkin
-
Jón Þórhallsson
-
Íslenska þjóðfylkingin
-
Erla Magna Alexandersdóttir
-
Óskar Kristinsson
-
Dominus Sanctus.
-
Ingólfur Sigurðsson
-
Jón Þórhallsson
Tenglar
Hraðleiðir
- www.tilveraniesb.net www.tilveraniesb.net Vefsetur Gunnars Rögnvaldssonar
- www.mbl.is
- Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir
- Bréf frá Jerúsalem - Yoram Hazony Yoram Hazony er einn fremsti stjórnmálaheimspekingur Vesturlanda í dag
- NatCon Þjóðaríhaldsstefnan
- Victor Davis Hanson bóndi og sagnfræðingur Victor Davis Hanson er einn fremsti sagnfræðingur Vesturlanda í klassískri sögu og hernaði
- Bruce Thornton sagnfræðingur Bruce Thornton er sagnfræðingur - klassísk fræði
- Geopolitical Futures - geopólitík Vefsetur George Friedmans sem áður hafi stofnað og stjórnað Stratfor
- Strategika Geopólitík
- TASS
- Atlanta Fed EUR credit & CDS spreads
- N.Y. Fed EUR charts
- St. Louis Fed USD Index Federal Reserve Bank of St. Louis - Trade Weighted U.S. Dollar Index: Major Currencies
- Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983 Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983
Þekkir þú ESB?
Greinar
Lestu mig
Lestu mig
• 99,8% af öllum fyrirtækjum í ESB eru lítil, minni og millistór fyrirtæki (SME)
• Þau standa fyrir 81,6% af allri atvinnusköpun í ESB
• Aðeins 8% af þessum fyrirtækjum hafa viðskipti á milli innri landamæra ESB
• Aðeins 12% af aðföngum þeirra eru innflutt og aðeins 5% af þessum fyrirtækjum hafa viðskiptasambönd í öðru ESB-landi
• Heimildir »» EuroChambers og University of LublianaSciCenter - Benchmarking EU
Bækur
Á náttborðunum
-
: EU - Europas fjende (ISBN: 9788788606416)
Evrópusambandið ESB er ein versta ógn sem að Evrópu hefur steðjað. -
: World Order (ISBN: 978-1594206146)
There has never been a true world order, Kissinger observes. For most of history, civilizations defined their own concepts of order. -
: Íslenskir kommúnistar (ISBN: ISBN 978-9935-426-19-2)
Almenna bókafélagið gefur út. -
Velstandens kilder:
Um uppsprettu velmegunar Evrópu
: - Paris 1919 :
- Reagan :
- Stalin - Diktaturets anatomi :
-
Penge
Ungverjinn segir frá 70 ára kauphallarreynslu sinni
: -
: Gulag og glemsel
Um sorgleik Rússlands og minnistap vesturlanda - Benjamín H. J. Eiríksson :
- : Opal
- : Blár
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (13.9.): 8
- Sl. sólarhring: 24
- Sl. viku: 110
- Frá upphafi: 1407505
Annað
- Innlit í dag: 8
- Innlit sl. viku: 73
- Gestir í dag: 5
- IP-tölur í dag: 5
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Ágúst 2025
- Júlí 2025
- Júní 2025
- Apríl 2025
- Mars 2025
- Febrúar 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- September 2024
- Júní 2024
- Apríl 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Júlí 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008