Leita í fréttum mbl.is

Donald Trump lokar á kínverska "fjárfesta"

Donald J. Trump

Trump Bandaríkjaforseti (mynd) hefur í fjórgang á skömmum tíma stöðvað erlenda fjárfestingu inn í Bandaríkin. Um er að ræða kínverska yfirtökutilraun á bandarísku tæknifyrirtæki í gegnum fjárfestingarfyrirtæki sem kallar sig Canyon Bridge Capital Partners

Ástæðan fyrir banni forsetans er sú að forsetaembættið rakti fjárfestingarfé þessara svo kölluðu "fjárfesta" til kínverska kommúnistaflokksins. Aðgerð forsetans er bein yfirlýsing um að fé kínverska kommúnistaflokksins verður ekki liðið í þeim lögum bandarísks efnahagslífs sem talin eru hafa strategíska þýðingu fyrir bandaríska lýðveldið. Þessi aðgerð forsetans er einnig talin geta varpað skugga yfir nýlega gerðar fjárfestingar kínverskra aðila í Bandaríkjunum. Hætt er við að kafað verði djúpt ofan í þær. Bandaríkin eru að kafna í sparifé innlendra fyrirtækja (eiginfé) og hafa enga þörf fyrir erlent fé til fjárfestinga

Trump hefur aðeins setið í forsetaembættinu í átta mánuði. En á þeim tíma og í kosningabaráttu sinni hefur honum tekist að gerbreyta sýn margra á margt það sem á undan er gengið og sem gert var í veröldinni frá og með falli Sovétríkjanna. En þá hvarf samvinnugrundvöllur íhaldsmanna og líberalista með því að sameiginlegur óvinur þeirra hvarf úr veröldinni; Sovétríkin. Samvinna þessara tveggja grunnleggjandi ólíku pólitísku afla hófst í síðari heimstyrjöldinni, og gengu kommúnistar þá einnig í lið með þeim í baráttunni við alræðisstefnur meginlands Evrópu

Í kalda stríðinu börðust íhaldsmenn og líberalistar einnig saman, en þá gegn kommúnismanum. Nú skilja leiðir þeirra á ný, því að pólitísk hugmyndfræði líberalista hefur reynst ónothæf og útópía við lausn á þeim málum sem leysa þarf úr í veröld manna í dag. Rekja má íhaldsmannahefðina aftur til ca 1300, og kallast hún Anglo-American Conservatism Tradition. Líberalistar komu mun síðar að sögunni og át Franska byltingin því boðskap þeirra of hráan. Þess vegna er byltingin sú á sinni fimmtándu stjórnarskrá og sínu fimmta lýðveldi, og lítið gengur enn upp á síðum hennar og enn verr í praxís

Vegna samvinnu þessara tveggja andstæðu pólítísku póla, íhaldsmanna og líberalista, voru margir farnir að halda að um eina og sömu skepnuna væri að ræða. En svo er auðvitað ekki. Slíkt hald manna var aðeins ávanamyndandi skynvilla og blindlestur

Kínverjar óttast að ríkisrekin stálframleiðsla þeirra og sem seld er til Bandaríkjanna og víðar, geti einnig endað undir fallöxi forsetans. Donald Trump forseti segir að auður vinnandi stétta bandaríska lýðveldisins hafi áratugum saman --þ.e. frá og með falli Sovétríkjanna og þeim merku kaflaskilum sögunnar-- verið rifinn upp með rótum og honum skipað út til fjarlægra landa. Þannig hafa Bandaríkin frá 1997 misst einn þriðja hluta allrar framleiðslu úr landi, þrátt fyrir að þjóðinni hafi fjölgað um 50 milljón manns á tímabilinu

Mikill fjármagnsflótti er frá Kína því þar borgar svo fátt sig lengur. Reynt er er því að koma kínversku fé í fjárfestingar erlendis sem bera arð. Gallinn er bara sá að þetta er dulbúið ríkisfé og í mörgum tilfellum afar illa fengið og ólöglegt. Kínverski kommúnistaflokkurinn er eitt gerspilltasta pólitíska afl veraldar ásamt útópíska Evrópusambandinu

Krækja: What Is Conservatism? (American Affairs Journal)

Fyrri færsla

Pólitískt gjaldþrot kennitöluflakkara vinstri vængsins endurómar enn


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Þórhallsson

Gerir það nokkuð til þó að USA hægi eitthvað á kína sem að er besti vinur N-koreu?

Jón Þórhallsson, 17.9.2017 kl. 13:50

2 identicon

Sæll Gunnar

Er ekki með réttu hægt að kalla þetta allt saman "Gjaldmiðla Heimstyrjöldin I"?

Sigþór Hrafnsson (IP-tala skráð) 17.9.2017 kl. 17:48

3 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka ykkur fyrir.

Nei, Sigþór, sennilega er það ekki hægt. Þetta hefur lítið með efnahagsmál að gera. Sennilega ekki neitt. Ekki frekar en Bexit hafði neitt með landsframleiðsluna að gera.

Þetta er, hins vegar, einungis kaldur veruleikinn sem tók aftur við eftir að í ljós kom að hinn "100 kynslóða friður" úníversal útópíumanna (liberals) reynist vera sú syndandi-sýra sem menn fóru pólitískt geðveikt á þegar Sovétríkin féllu saman og Evrópusambandið var stofnað 1991 og heimurinn átti þá og þar með allt í einu eftir fimm þúsund ára kaldan veruleika, að hætt að vera eins og hann er.

Þessari útópíu er nú lokið og kaldur raun-veruleikinn er tekinn við. Og talsverðir timburmenn gera illilega vart við sig í höfðum svo margra.

Upplausnin sem við sjáum í dag á Vesturlöndum er skilnaður íhaldsmanna og liberals. Hann kemur svona fram og rykmökkurinn þyrlast upp og blindar, en þó aðeins tímabundið, sýn venjulegs fólks á heima-stjórnmálin og þar með heimsmálin líka.

Þetta snýst ekki um efnahagsmál. Þetta snýst um tap á verkfærum til að glíma við þau mál sem mannkynið hefur þurft að glíma við í fimm þúsund ár og mun alltaf þurfa að glíma við. Ástandið frá og með 1991 til og með 2008, var aðeins undantekningarástand; ÚTÓPÍA. Henni er lokið.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 17.9.2017 kl. 18:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband