Miðvikudagur, 4. október 2017
Boðað er til sérstaks þingfundar í Katalóníu
Tilkynnt hefur verið að haldinn verði sérstakur þingfundur í þinginu í Katalóníu þann 9. október, eftir fimm daga. Opinberlega er gefið upp að þing sé kallað saman til að ræða niðurstöður þjóðaratkvæða-greiðslunnar síðasta sunnudag, sem var bindandi
Þann 7. september setti þingið í lög að lýsa yrði yfir sjálfstæði innan nokkurra daga ef meiri hluti kjósenda, óháð kjörsókn, kysi sjálfstæði. 90 prósent þeirra sem greiddu atkvæði kusu sjálfstæði
Talið er líklegt að Katalónía muni nota þingfundinn til að lýsa yfir að frá og með þá sé Katalónía sjálfstætt og fullvalda lýðveldi
Gerist það, þá er þar með fætt nýtt ríki með stærra hagkerfi en Portúgal
Fyrri færsla
Þeir sem það gera eru þjóðernissinnar
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Þriðjudagur, 3. október 2017
Þeir sem það gera eru þjóðernissinnar
Vorkoma Evrópusambands Vinstri grænna og Samfylkingar
Ef ég hefði verið fæddur og haft kosningarétt árið 1918 og 1944 þá hefði ég kosið með sannfæringu þjóðernissinna Íslands sem voru 99 prósent þjóðarinnar. Það hefði ég gert vegna þess að ég er þjóðernissinni. Ég aðhyllist sjálfsákvörðunarrétt þjóða og þeir sem það gera eru þjóðernissinnar
Þrjár ESB-ríkisstjórnir hafa nú lýst yfir stuðningi við ESB-ríkisstjórnina í Madríd í baráttu hennar með ofbeldi við heimastjórn Katalóníu, sem handtekin var að hluta til í síðustu viku af lögreglu og þjóðvarðliði frá Madríd, sem beitti síðan bareflum og gúmmíkúlum á þá borgara Katalóníu sem vildu greiða atkvæði um sjálfstæði sitt, eða ekki, á sunnudag
Þetta eru ríkisstjórnir Þýskalands, Frakklands og Hollands. Utan ESB er það ríkisstjórn Serbíu sem lýst hefur yfir stuðningi við Madrid. Þar er það Kosovomálið sem ræður afstöðu Belgrad
Innan ESB hefur ríkisstjórn Tékklands hins vegar gagnrýnt Madrid. Prag þekkir svona vorkomur ákaflega vel
Miðstýrð mynt- og bankamálin ráða afstöðunni í Berlín og París og Holland gerir ekkert sem styggt getur Berlín. Þýskaland þolir ekki að neitt land hverfi út af efnahagssvæði þess og Frakkland þolir ekki að neinn yfirgefi ESB-lögsöguna sem það hefur búið til sem fóðurkál handa Þýskalandi
Það verður fróðlegt að fylgjast með viðbrögðum allra ríkisstjórna í Evrópu við því sem er að gerast í Katalóníu. Mjög fróðlegt
Sautján danskir þingmenn hafa sent aðvörunarorð til ESB-ríkisstjórnarinnar í Madrid
Spáni hefur mistekist að búa til eina þjóð úr mörgum þjóðum. Og Spáni hefur einnig mistekist að búa til ríki sem rúmað getur margar þjóðir. Spánn er hvorki sambandsríki né þjóðríki. Það er ESB-upplausn í hnotskurn og stjórnarskrá þess frá 1978 er ónýt, eins og stjórnarskrá Evrópusambandsins er líka og sömu sögu er að segja um stjórnarskrárdómstóla beggja
Á Spáni var stjórnarskrárdómstóllinn notaður sem pólitískt verkfæri Madrid-stjórnarinnar gegn Katalóníu árið 2010. Fyrir allt Evrópusambandið er ECJ-dómstóll þess hins vegar notaður sem leiðin til alræðis (e. totalitarianism) þar sem ólöglegt er að lifa lífi sem stangast á við samruna. Evrópusambandið hatar því þjóðernissinna. Þeim þarf helst að útrýma. Dómstóllinn dæmir þá samrunanum í hag
Í sovétríkjunum mátti hins vegar ekki lifa lífi sem stangaðist á við kommúnisma. Fólk og fyrirtæki sem slíkt gerðu voru send í gúlag og gerð upptæk. Dómstóllinn dæmdi þá kommúnismanum í hag
Fyrri færsla
Setulið í Katalóníu með samþykki miðstjórnar ESB
Stjórnmál og samfélag | Breytt 4.10.2017 kl. 11:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 3. október 2017
Setulið í Katalóníu með samþykki miðstjórnar ESB
Engan skyldi undra að meðal íbúa Katalóníu er nú talað um lögreglu- og þjóðvarðliðið sem ríkisstjórnin í Madrid hefur sent, sem "setuliðið"
Og engan skyldi undra að staðan sé eins og hún er á meðan við lýði er stjórnarskrá sem borgararnir hvorki elska né virða mikils, eftir að ríkisstjórnin í Madrid með stjórnarskrárdómstól í rassvasanum hefur notað hann að eigin pólitískum geðþótta
Slíkt er bara hægt í löndum þar sem borgunum er annað hvort illa við stjórnarskránna, bera ekki traust til hennar vegna þess að vitað er að þeir sem sömdu hana voru útópískir afglapar og sem borgararnir höfðu því ekki fyrir að kjósa það sem frá þeim kom, og að dómstóll hennar hefur verið og mun verða gróft misnotaður í pólitískum tilgangi, eins og orðinn er staðall hjá Madrid, en einnig Berlín, svo að tvö ESB-lönd séu sett á sama listann
Á þann lista ætti líka að setja allt afglaparáð rugludalla og stjórnleysingja í Reykjavík svo að þeir forarháleistar ömurleikans séu nefndir til sögunnar hér í þessu samhengi. En það geggjunarlið götunnar hóf að grafa undan stjórnaskrá Íslands við fyrsta tækifæri sem brast á okkur sem áföll. Það lið er enn að reyna að efna til innri ófriðar til að komast þannig með Ísland, sem það reynir eyðileggja, inn í Evrópusambandið. Aðeins dulbúið vinstrið sem dýrkaði hreinræktaðan kommúnisma í austri ræðst til atlögu á stjórnarskrá sem íslenska þjóðin samþykkti með 98,5 prósent meirihluta. Sú sátt er nú komin í pólitískar hakkavélar vinstrisins og stjórnleysingja, nema að varðstaða um stjórnarskrá okkar sé staðin fast. Slíkt áhlaup gera aðeins pólitískir vitfirringar og forarháleistar
Í austri ofsækir Evrópusambandið Pólland fyrir að réttkjörin mikils meiri hluta ríkisstjórn efni kosningaloforð sín við kjósendur, á meðan sama Evrópusamband ömurleikans segir að það sé "innanríkismál" þegar lögreglu og þjóðvarðliði er sigað með bareflum og gúmmíkúlum á borgarana með um leið og þeir reyna að koma lýðræðislegum skilaboðum til miðstjórnar sem er í vösum hins sama Evrópusambands - vegna banka á barmi gjaldþrots og stórpólitískrar myntar
Það styttist í fullt Sovét í Evrópusambandinu og þangað stefna kosningasvikarar Vinstri grænna með aðstoð stjórnleysingja. Stjórnleysi er besti flokkur slíkra afla. Engin broskerling breytir því sem þar undir feldi liggur og bíður færis
Fyrri færsla
Ónýtar stjórnarskrár: Annar hluti spænsku stjórnarskráarinnar
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Mánudagur, 2. október 2017
Ónýtar stjórnarskrár: Annar hluti spænsku stjórnarskráarinnar
Sú stjórnarskrá er árgerð 1978: Þar segir:
****
Þýðing: "Stjórnarskráin er byggð á ósundrandi einingu spænsku þjóðarinnar, opinberu og ósundrandi landi allra Spánverja; hún viðurkennir og tryggir sjálfsstjórnarrétt þjóða/þjóðerna héraðanna sem hún samanstendur af og samstöðunni meðal þeirra allra"
Enska: Section 2. "The Constitution is based on the indissoluble unity of the Spanish Nation, the common and indivisible homeland of all Spaniards; it recognizes and guarantees the right to self-government of the nationalities and regions of which it is composed and the solidarity among them all."
Vandamálið hér að að þjóð samanstendur ekki af öðrum þjóðum. Sú þjóð sem samanstendur af öðrum þjóðum er ekki þjóð. Hún er ekki þjóð. En þjóð er hins vegar þjóð; punktur
Sem sagt: spænska stjórnarskráin segir fyrst að Spánn sé ein sameinuð þjóð. Í næstu línu segir hún að það sé þeirrar þjóðar að tryggja sjálfsákvörðunarrétt þeirra þjóða sem sem mynda þjóðina. Auðvitað hefur Spáni hér mistekist að taka margar þjóðir og reyna að búa til úr þeim eina þjóð. Það er ekki hægt, vegna þess að þjóð er þjóð og margar þjóðir eru margar þjóðir
Hefðu menn flett upp í Gamla testamenti Biblíunnar þá hefðu þeir svart á hvítu séð að þetta gengur ekki upp, því þar stendur:
"þitt fólk er mitt fólk og þinn Guð er minn Guð"
****
Hér er einn eitt dæmið um vonlitlar stjórnarskrár þeirra landa sem mynda Evrópusambandið, ásamt sjálfri yfirstjórnarskrá sambandsins sjálfs, sem er sovésk klessa
Franska stjórnarskráin hefst á enn verri mótsögn og sem kostað hefur fimmtán nýjar stjórnarskrár og fjögur ný lýðveldi ofaní það fyrsta. Um er að kenna því sem næst banvænu sósíalistísku líberalisma-sprautuverki John Locke og félaga
Þetta er sama liðið og sífellt ræðst á stjórnarskrá okkar Íslendinga; Kommar, kverúlantar; sossar og stjórnleysingjar
Nú bíður maður bara eftir því að Evrópusambandið í Brussel fagni þjóðaratkvæði Katalóníubúa. Það segi ég vegna þess að Evrópusambandið fagnaði ákaft þegar aðeins 29 prósent kjósenda ákváðu að Króatía skyldi afsala sér sjálfstæðinu og ganga í Evrópusambandið til að í bitum að afhenda því einnig fullveldið. Þetta gerðist svo seint sem 22. janúar 2012
Evrópusambandið varð sjálfstætt yfirríki yfir öllum löndum sambandsins með Maastricht-sáttmálanum árið 1992
Nú hlýtur einnig Gíbraltar að hafna því að deila fullveldi sínu með Spáni eftir sýninguna í gær. Svo líklegt er að Gíbraltar verið áfram hluti af Stóra Bretlandi, en ekki Spáni
Og svo eru það spænsku bankarnir. Já bankarnir og skjálfandi Royalbúðingurinn evran
Fyrri færsla
840 særðir í átökum vegna þjóðaratkvæðagreiðslu um sjálfstæði
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Sunnudagur, 1. október 2017
840 særðir í átökum vegna þjóðaratkvæðagreiðslu um sjálfstæði
Í dag á að fara fram þjóðaratkvæðagreiðsla meðal þeirrar þjóðar sem byggir Katalóníu, sem nú er hluti af Spáni, sem er hluti af ESB. Lögregla frá Madrid hefur hindrað þjóðina í að kjósa í dag og undanfarnar vikur. Að sögn Reuters var skotið með gúmmíkúlum og kylfum beitt á þjóðina til að koma í veg fyrir að hún gæti greitt atkvæði um framtíð sína
Spánn er í Evrópusambandinu gegn þjóðum. Því sambandi er mjög illa við þjóðir og þjóðaratkvæðagreiðslur. Sambandið reynir að afmá þjóðirnar með nýju auðkenni sem heitir evrópuismi-ESB; eða evrópumenni
Það verður fróðlegt að sjá hver útkoma þessa mál verður. Þetta er mál sem spænska ríkisstjórnin með ESB í bakið getur ekki unnið, nema með hörmulegum afleiðingum
Bandamenn Evrópusambandsins á Íslandi er þessir:
- Samfylkingin
- Vinstri grænir
- Viðreisn
- Píratar
- Björt framtíð
- DDRÚV
Tengt
Vandamál: Pólland stendur fast gegn evrópuisma ESB
Fyrri færsla
Sögulegt: Danski herinn settur í lög- og landamæragæslu
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Föstudagur, 29. september 2017
Sögulegt: Danski herinn settur í lög- og landamæragæslu
Stuttar fréttir
Í dag rann upp sá dagur að danski herinn hefur verið settur inn á götur, torg og við landamæri til löggæslu. Í suðri er hann settur inn við landamærin til að loka á afleiðingar lögleysu- og geðþóttaákvarðana Angelu Merkel, kanslara Þýskalands og keisarans af Evrópusambandinu
Á vissum torgum, strætum og við byggingar er hann settur inn til að handhefja líf- og löggæslu við samkomustaði Gyðinga og annarra sem í hættu eru vegna sjálfsvígsaðgerða Angleu Merkel á Evrópu. Danski herinn mun til að byrja með starfa við þessa löggæslu fram í mars á næsta ári og þá verður tekin ákvörðun um framhaldið. Lögreglulið landsins er örmagna og nær ekki lengur utanum hlutverk sitt
Í sumar var fjögurra ára stúlkubarni rænt úr leikskólanum við Snogebæksvej þar sem ég árum saman gerði hreint á námsárum mínum í Árósum og sem börn okkar hjóna gengu í. Stúlkunni var svo nauðgað af samskonar gesti og danski herinn er nú settur í til að stöðva innflæði af
Sunnan landamæra Danmerkur segir Beatrix von Storch varaformaður þýska AfD flokksins í viðtali við JerúsalemPóstinn, að fyrirmynd þess sem flokkurinn vill ná fram í Þýskalandi sé að finna í Ísraelsríki, þar sem lög landsins ráði en ekki geðþóttaákvarðanir og þar sem tilvist ríkisins snýst um að varðveita menningu borgaranna en ekki að rústa henni
Í janúar í fyrra sagði von Storch í þýska ARD ríkissjónvarpinu að kanslari Þýskalands yrði, öryggis síns vegna, að vera tilbúin að flýja til Suður-Ameríku þegar hún lætur að völdum. Kanslarinn Merkel, sagði hún, hefur eyðilagt Þýskaland það mikið að leita þarf aftur til ársins 1945 til að finna álíka eyðileggingarafl í landinu og gjörvallri Evrópu
Þetta voru stuttar fréttir úr Evrópusambandinu
Fyrri færsla
Vandamál: Pólland stendur fast gegn evrópuisma ESB
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Fimmtudagur, 28. september 2017
Vandamál: Pólland stendur fast gegn evrópuisma ESB
Kva, enginn ESB-fáni viðstaddur..
Evrópusambandinu líkar ekki lengur við Pólland
Þegar Pólland með aðstoð Kaþólsku kirkjunnar var að brjótast undan oki sovéska kommúnismans, þá féll svo kölluðum "leiðtogum" Evrópusambandsins vel við Pólland. En nú þegar það sýnir sig að Pólland er enn Pólland og vill umfram allt áfram vera bara Pólland og að Kaþólska kirkjan er enn Kaþólska kirkjan í Póllandi og mun áfram verða Kaþólska kirkjan í Póllandi, já þá er Evrópusambandinu allt í einu hætt að líka við Pólland sem Pólland og við Kaþólsku kirkjuna sem Kaþólsku kirkjuna. Hvað gerðist?
Jú, Evrópusambandinu er skyndilega orðið illa við að Kaþólska kirkjan í Póllandi sé enn gegnheil alvöru stofnun sem breytist ekkert, sama hverjum líkar við hana eða ekki. Hún er áfram sú sama Kaþólska kirkja er leiddi Pólland úr heljarklóm alræðisins. Þetta er að verða stórt vandamál fyrir Evrópusambandið
Jú, og vandamálið með sjálft Pólland núna er að það vill ekki aðlaga sig að þeim evrópuisma sem Evrópusambandið krefst að sé tekinn upp í landinu í stað þess pólska þjóðareinkennis sem Pólverjar börðust fyrir að halda fast í undir sovéska-kommúnismanum og sem að lokum réði niðurlögum hans. Haglar því nú niður í Pólland allskyns árásum frá Þýskalandi, sem með harðnandi höndum stjórnar orðið Evrópu með Evrópusambandinu
Það sem áður þótti gott hefur nú breyst í vont. Mjög vont. Það hefur það gert, vegna þess að Pólland vill ekki gangast undir evrópuismann sem Evrópusambandið krefst með vaxandi alræðisvaldi að eigi einnig að drottna yfir Pólverjum í sjálfu landi þeirra
Úr alræði kommúnismans var mjög erfitt fyrir Pólland að komast. Bandaríkin studdu og fjármögnuðu að miklu leyti þá baráttu landsins og hlutu þá oft bágt fyrir frá Vestur-Þýskalandi, því ekki mátti styggja sovétið of mikið. Málið vandast því núna þegar að Evrópusambandið með ofsóknum er að reyna að beygja Pólland undir nýju alræðisstefnuna sem að þessu sinni heitir evrópuismi ESB
Munu Bandaríkin koma Póllandi til aðstoðar á ný? Já það munu þau gera og það eru þau að gera. Þess vegna fór til dæmis Donald Trump fyrst til Varsjá, en ekki til Þýskalands. Í Varsjá dældi Trump auknu magni hraðsements í sökklana undir Intermarium. Þar mun Pólland fá að vera Pólland. Bandaríkin tryggja það
Ef og þegar Græningjar setjast með Merkel í nýja ríkisstjórn Þýskalands og hóta að loka niður kolaverkunum sem framleiða þýska rafmagnið, þá er nú gott að síðasti kanslari Þýskalands sitji fast með Pútín í stjórn Rosneft, svo að aukinni rússneskri orku sé hægt að veita framhjá Úkraínu og Póllandi til Þýskalands. Lítil hætta er á að Merkel myndi styggja Pútín að ráði þegar hann lætur gamminn geisa yfir Eystrasaltslönd og Úkraínu, upp að öllum austur-landamærum Póllands. Þýskir ráðamenn hafa þegar sagt að þeir geti "sætt sig við" Rússland upp að landamærum Póllands, en þeim láðist þó geta hvoru megin við Varsjá sú sátt átti að liggja flöt á landamærum þess. Það eina sem aftrað hefur Rússlandi fram til þessa er of lágt olíuverð (fjármagn) og einkennisbúnar lifandi aðvörunarbjöllur Bandaríkjahers í Austur-Evrópu
Þegar bandarísk herskip þurfa að koma og vernda siglingar skipa í Eystrasalti með orku til Póllands frá Texas, þá vitum við að hvað er að gerast
Ef ég væri Pólland, myndi ég henda þýsku kosningunum í hausinn á Merkel og skipa henni að ryksuga og taka til í draslinu heima hjá sér, en ekki í Póllandi! Það mun Pólland að sjálfsögðu gera
Góðir bandamenn eru mikils virði. Ísland og Pólland eiga sameiginlegan bandamann; Bandaríki Norður-Ameríku. Og þau eiga líka, eins og undir kommúnismanum, sameiginlegan óvin. Þá hét hann sovéskur kommúnismi, en evrópuismi ESB núna
Það er ánægjulegt að eiga svona stóra sameiginlega hagsmuni
xD
Fyrri færsla
Erlendar ESB-fréttir vegna greindarskorts
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Miðvikudagur, 27. september 2017
Erlendar ESB-fréttir vegna greindarskorts
4. júlí fagnað í Intermarium í Búkarest
Vegna þess að á skrifandi stund er ekki hægt að fjalla um íslensk stjórnmál á vitrænan hátt, þá neyðist ég til að beina athygli minni að því sem okkur af óvitaklúbbi íslenskt samfylktra stjórnleysisflokka hefur svo lengi verið sagt að sé svo ofboðslega gott í útlöndum. En þar var ég í tæp 30 ár og fylgdist með 30-ára herferð sömu ESB-krata- og kommaflokka byggja sér það grafhýsi sem þeir nú hvíla í, eftir þeir höfðu staðið í 30-ára styrjöld við þjóðirnar sem þeir áttu að þjóna, en sem þeir þess í stað hafa skaðað svo mjög, að það styttist óðum í næsta stóra tundurdufl Evrópu og reglulega flugelda
Erlendar ESB-fréttir hefjast hér
Í bunker einum í Berlín hírist nú Angela Merkel frúin af höfuðborg hinna barnlausu einhleyptu sem engu hafa fjárfest í framtíð landsins. Hún er í áfalli og neitar að viðurkenna að fyrir utan steypuklossann bíður kaldur veruleki sem krafist gæti jafnvel ákvarðanatöku. Það sem gerðist var að slökkt var með blýant á stillimyndinni af henni á sunnudag. Tómur imbinn ARD/ZDF og Zarg Puffptz var þó allur eins og hann leggur sig búinn að segja henni hvað hún átti að gera, en ekkert gerðist ekki samt. Þetta er með ólíkindum. Ekkert virkar lengur. Þetta var ekki svona í síðustu viku, segir hún. Þá var ég "leiðtogi hins frjálsa heims". Hvað gerðist!
Jú kjósendur hennar flúðu og "umbættu" Merkel með einu exi (e. reforms). Þeir sjá að hún er orðinn krati eftir öll þessi átta ár í inntýndum samvistum við þann stjórnmálaflokk er kynnir sig sem krata í vesturhluta landsins en sem kommúnistaflokk í austurhlutanum, svo hann nái til fólksins. Þar keppir hann við hreinræktaða kommúnista die Linke, vegna þess að sameining Þýskalands eftir kannski tveggja billjóna dala "transfer-union" örvunarpakka, er enn að allt of miklu leyti fíaskó, eins og slíkar yfirfærslur allsstaðar enda. Kjósendur hennar flúðu til AfD-flokksins sem berst við samstarfskomma Merkels í austri. Á villisíðum steinrunninna dagblaða og ZDF-steypu-skjáum sem breyst hafa í stillimyndina af imbum í stað umba, er látið eins og ekkert hafi gerst þegar Merkel tók upp samfylkingarstjórnarhætti svartar framtíðar og bauð milljón manns til landsins er keypt hafði sér flóttamannastimpil hjá glæpalýð til að komast þar inn og í næstum alla fjandans ESB-Evrópu líka. Fólk froðufellir enn af bræði, en Merkel sagði þeim hins vegar bara að fara heim og lesa í bók. Sú bók mátti þó alls ekki að heita kosningaprógramm, en hét það samt, og fólkið las
Ekki er enn víst að Merkel lifi þetta af, því óánægjan og reiðin vegna alls þessa er svo mikil að fólk þolir ekki einu sinni stillimyndina af henni sem hvarf. Fólkið hefur hent imbanum út! Það uppgötvaði með lestrinum að það hefur valkost. Í þetta skiptið heitir hann Valkostur fyrir Þýskaland, AfD. Hvað hann heitir næst, veit enginn. Úrsögn úr Sambandsríkinu Þýskalandi gæti komið til greina sem valkostur þá, ef fólkið getur ekki losnað við ESB-kratalúsina með öðrum hætti. Bæjaraland lýsti til dæmis yfir Sovétlýðveldi (Bavarian Soviet Republic) í því ríki árið 1919. Slíkt er að vísu of seint í ljósi fyrirliggjandi sönnunargagna úr austri, en að ganga í Austurríki gæti hins vegar orðið sá kostur sem kosið yrði síðar um. Slésvík- og Holsetaland gæti gengið í Danmörku og Saxland í það Intermarium sem í smíðum er, eða jafnvel lýst yfir nýju sjálfstæði, því landið er fríríki. Valkostunum við Þýskaland mun fjölga. En þeim kostum mun náttúrlega öllum verða hótað að fá ekki inngöngu í Evrópusambandið, eins og Katalóníu og Korsíku. Hótun sem orðin er því sem næst heilög frelsun. Þetta er að verða absúrt kál
Tveir burðarstólpar þýskra stjórnmála uppskáru hér sitt versta afhroð frá styrjaldarlokum. Stjórnmál Þýskalands eru að renna inn í sama upplausnarferlið og umboðslaus tilvist Evrópusambandsins hefur kallað yfir alla Vestur-og Suður-Evrópu. Þessi upplausn birtist einnig í NATO og hún gagnast Rússlandi að sjálfsögðu vel. Þessu E27-efnasambandi verður ei bjargað, svo mikið er víst. Það er einfaldlega orðið E27-óefnasambandið. Nýtt varnarbandalag er því á teikniborði Bandaríkjanna ásamt Intermarium. Lítið gagn er lengur af neinum pólitískum strúktúrum meginlands Evrópu. Bandaríkin tala því beint við Bretland og ríkin sem mynda Intermarium og víðar. Enginn viðmælandi er til í umboðslausu stjórnarfari. Það er auðvitað sjálfgefin staðreynd
Einmanna Macron
Hann tróð sér sem klodsmajor fram á ESB-vígvöllinn í gær með nýja útgáfu af Evrópusambandi hans við Berlín og sem Merkel-í-bunker gæti sótt um uppreist æru með, með því að hafna strax. Mátti hann vita það og hefði því átt að bíða með að kynna sitt nýja en Póllandsfría Varsjárbandalag Evrópu sem enginn kjósandi nokkru sinni hefur beðið um, frekar en þeir báðu um sjálft hið sovéskt klessukeyrða Evrópusamband dagsins í dag. Það sem áður hét æ-meiri-samruni, hefur nú breyst í æ-minna-samband samkvæmt framtíðarsýn Macrons. Frá því að vera ESB-28 sem datt niður í ESB-27 í fyrra, því Bretland pakkaði saman og fór, þá höfum við einnig útgáfuna sem heitir ESB-19, en það eru þau lönd sem létu leiða sig inn í evru, sem fallið hefur eins og steinn frá því að markaðir opnuðu sunnudagsnótt. Síðan höfum við líka ESB-24 sem eru þau ESB-lönd sem lúta keisaralegum utanþings geðþóttaákvörðunum stillimyndar Merkels, hvað varðar það er áður hét landamæri en er nú að breytast í styrjöld borgaranna gegn Samfylkingarkrötum Evrópu
Sjónvarpsútgáfa Macrons af Sambandinu Síminnkandi, var kynnt með hvorki meira né minna en tveggja tíma ræðu um þau ríki sem hann kallar "Evrópukjarni hinna viljugu", ja! Á pappír mun það verða skrifað ESB-4 eða ESB-5 til 6 eftir miðnætti. Það styttist því óðum í upprunalegu útgáfuna af ESB sem heitir ESB-1 og stendur fyrir þeim fullvalda og sjálfstæðu ríkjum sem réðu niðurlögum síðasta uber-krata Evrópu, herra Hitlers. Það hlýtur að vera, því á honum einum byggir Evrópusambandið alla sína tilvist. Sá pólitíkus er því í stað kjána og afglapa orðinn mikilvægasti og marktækt virtasti stjórnmálamaður alheims allra tíma. Allt er honum að kenna og á honum veltur allt
Niðurstaða: Með þýsku og frönsku kosningunum hafa borgarar með kosningarétt bætt enn einni neðanjarðar hæðinni við bunker-grafhýsi samfylkingaflokka Evrópu. Engir píramídar verða reistir, heldur áfram byggt niður til helvítis, því þangað er styttra úr því sem komið er. Upplausn ESB-Evrópu heldur áfram á fullu stími
xD
Fyrri færsla
Var eitthvað sérstakt við fyrri og síðari heimsstyrjaldirnar ?
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 26. september 2017
Var eitthvað sérstakt við fyrri og síðari heimsstyrjaldirnar ?
Í 72 ár hefur okkur verið sagt að svo sé. En er það rétt?
Allar styrjaldir hafa ávallt verið háðar með nýjustu hernaðartækni. Tækni sem stuttu síðar trítlar niður til almennings. Sigur Bandamanna í Síðari heimsstyrjöldinni vannst með fullveldi, tækni og efnahag
Kjarnorkusprengjan sem þvingaði Japani til skilyrðislausrar uppgjafar var slíkt hátækniverk að bygging píramída Egyptalands í fornöld var eins og að drekka vatn, miðað við gerð og framleiðslu fyrstu kjarnorkusprengunnar. Ofboðslega tækni þurfti til
Kalda stríðið vannst líka með tækni. Sú tækni myndar innviði allra snjallsíma í dag. Þeir eru stríðstól sem stýrt geta eldflaugum með kjarnorkuvopn út í geim og til baka niður í aðra heimsálfu
Þrjátíu ára stríðið, 1618 til 1648, sem hófst vegna innri ólgu og umbrota, og er síðar leiddi til sameiningar Þýskalands 1871, var háð með nýrri hernaðartækni sem var algerlega ómótsæðilega öflugri en allt sem sést hafði síðan Rómarveldið var og hét. Í þeirri styrjöld létu átta miljón Evrópubúar lífið og margir bæir og borgir misstu stærstan hluta íbúanna. Átta prósent íbúa Evrópu létu lífið, sem er tvöfalt hærra hlutfall en féll í Fyrri heimsstyrjöldinni
Fyrri heimsstyrjöldin hófst með katalónsku neistaflugi eins og við sjáum á Spáni í dag. Þá var það bara Alsace-Lorraine sem kveikti í púðurþræði sem lá frá 1871 inni í framtíð er braust út sem veruleiki árið 1914
Hvað í Evrópu er að gerast einmitt núna, og sem síðar mun brjótast þar út sem kerfislæg stórstyrjöld?
Mitt svar myndi vera þetta; næstum allt. Flest sem er að gerast þar núna er eitthvað sem gerðist ekki fyrir aðeins 15-25 árum og gat ekki gerst, en gerst hefur samt. Fólkið er bara búið að venja sig við nýtt normal. Og það mun venja sig við enn eitt nýja normalið ofan á því fyrsta. Og einn eitt í viðbót við það og svo koll af kolli
Og hvar er þetta allt að gerast núna Gunnar? Mitt svar væri þetta: Í Evrópusambandinu öllu, eins og það leggur sig - og víðar
Nú er svo komið að annað hvort Frakkland eða Þýskaland verða að vingast við eða gerast bandamenn Rússlands, því Rússland er búið að rugga bátnum það mikið, að ný víglína er að skapast í Austur-Evrópu. Hún heitir Intermarium. En hún er ekki víglína í sjálfu sér, heldur risavaxinn fleygur á milli þeirra sem reyna einmitt að gerast bandamenn Rússlands. Þetta er ekki enn opinber staðreynd, en það var árið 2008 ekki heldur. Og árið 1914 ekki heldur. Og ekki árið 1939. Og ekki árið 1989
Þýskaland er svo landfræðilega berskjaldað ríki að það er krónískt hrætt um tilvist sína. Það hefur næstum engin náttúrleg landamæri og það vill ekki verða vígvöllur eins og í 30-ára stríðinu. Þýskaland gerir því ekkert í Evrópu nema með það númer eitt markmið fyrir augum, að drottna yfir henni allri. Aðeins þannig getur Þýskaland verið öruggt um tilvist sína. Í dag fer þessi drottnun Þýskalands yfir Evrópu fram með Evrópusambandinu. Sem sagt ekki með her, heldur pennastrikum. Í leiðinni fær Frakkland að fylgjast með þessari drottnun Þýskalands yfir Evrópu. Frakkland veit því ávallt hvað er að gerast og ekki að gerast með Þýskaland. Eða svo héldu Frakkar þar til nýlega
En nú er svo komið að aðstæður hafa breyst það mikið að Frakkland er hætt að geta fylgst með því sem gerist næst. Evrópusambandið sem er vaktturn Frakklands inn í Þýskaland, var ekki hannað til að geta höndlað sameinað Þýskaland - og nýtt Rússland og nýja Austur-Evrópu og nýtt Tyrkland. Sambandið er því byrjað að éta Frakkland innanfrá og einnig mörg önnur lönd sem í sambandinu eru. Og vegna Rússlands er hætta á að Þýskaland lokist inni og að hlutar sambandsins detti út úr því og hætti þar með að láta að og lúta stjórn Þýskalands
Evrópusambandið hefur hér með lokið hlutverki sínu sem drottnunarverkfæri Frakklands handa Þýskalandi til að halda því frá að dottna yfir Evrópu með vopnavaldi. Strax og Þýskaland byrjar að efla sig hernaðarlega séð, þá togar Frakkland tappann úr ESB og Þýskaland annað hvort hrynur saman eða þenst út. Þetta er sem sagt ekki fyrirsjáanlegt enn, eins og á endanum er raunin með flestar pólitískar hannanir, sem byggja á því að vona hið besta. Engin þjóð getur leyft sér að viðhafa þjóðaröryggisstefnu sem byggir á því að vona það besta. Slíkt er ekki til
Napóleon gerði fyrirbyggjandi árás austur til að geta varið pólitíska afurð frönsku byltingarinnar í vestri. Hann vissi að Frakkland gat ekki varið byltinguna á tvennum vígstöðum. Og hann vissi að hann gæti ekki haldið landinu saman án þess að takmarka fjölda vígstöðva. Hann reyndi því að koma í veg fyrir að austurvígstöðvar gætu orðið til, svo hann gæti haldið Frakklandi saman til að geta varist hættum í vestri. Hann lagði einfaldlega hald á hætturnar áður en þær gætu orðið til
Þýskaland gerði það sama í síðari heimsstyrjöldinni með samningum við Rússa sem slógu tappa í opið austur og Þýskaland gat einbeitt sér vestur. En svo voru þeir samningar rifnir í tætlur og það veit Pólland mjög vel. Þess vegna fór Trump fyrst til Póllands áður en hann kom við í gamla bakaríinu Þýskalandi, því Bandaríkin vita vel hvað er að gerast
Bæði Frakkland og Pólland hafa engu gleymt og ekkert ESB getur breytt minni þeirra. Og Þýskaland hefur heldur engu gleymt. Ekkert gleymist. Þess vegna eru Bandaríkin eini staðurinn góði, því þar þurfti næstum engu að gleyma
Frakkar vilja ekki að Þýskaland vingist við Rússland. Þeir vilja það ekki vegna þess að þá gæti Þýskaland ógnað Frakklandi í vestri vegna þess að eini bandamaðurinn í Austri sem opnað gæti austurvígstöðvar inn í Þýskaland og riðlað slíkum áformum, væri frátekinn, eða uppseldur. Þetta veit Þýskaland líka mjög vel og vilja Þjóðverjar því ekki heldur að Frakkland vingist við eða gerist bandamaður Rússlands, vegna þess að þá gæti Frakkland og Rússland einbeitt sér að Þýskalandi úr báðum áttum. Og Þýskaland getur ekki, ég endurtek, getur ekki leyft sér að neinn sá möguleiki geti orðið til sem gæti gert tvennar vígstöðvar mögulegar, því þá getur Þýskaland ekki haldið ríki sínu saman og einbeitt sér að það eina sem það getur: einar vígstöðvar
Rússland er því mjög eftirsóttur bandamaður Þýskalands og Frakklands. Sú hugsun gat hins vegar ekki grasserað uppi í pólitískum höfðum meginlandsins á meðan Rússland var Sovétríki og óvinur Bandaríkjanna. Og eins og ég kom inná í síðustu bloggfærslu, þá er seta Schröders fyrrum kanslara Þýskalands í Rússastjórn Rosnefts, hjá Vladimir keisara Pútín, engin tilviljun. Slíkar tilviljanir gerast ekki, þær eru látnar gerast. Þjóðverjar eru að verða á undan Frökkum, sennilega
En því sama er ekki að heilsa með alla Austur-Evrópu. Þeir sem þar búa þola Rússland afar illa. Þeir vita vel hvað gerðist síðast og einnig þar á undan og þar á undan því
Ekkert Evrópusamband getur breytt landafræði Evrópu. Það er einfaldlega ekki hægt. Mitterand var svo vitlaus að samþykkja sameiningu Þýskalands, að ómögulegt er að neitt annað en pólitísk græðgi hafi legið þar að baki, nema ef vera skyldi paník og útópía
Bandaríkin varðveittu friðinn á meginlandi Evrópu á meðan þeir voru þar. Það gerðu þeir með því bara að vera þar. Þeir drottnuðu ekki eins og Þýskaland gerir í dag, heldir voru þeir bara til staðar. Og það var nóg. En svo fóru þeir heim, eins og þeir alltaf gera, því heima er best
En það er spurning hvort þeir hefðu átt að gera einmitt það. Bandaríkin geta ekki stöðvað stríð, því ef þau eru ekki á staðnum þá tekur það þau langan tíma að koma sér á staðinn með 100 milljón tonn í töskunni alla leið frá Vesturhveli jarðar yfir á Austurhvel jarðar. Þau verða því að geta beiðið nógu lengi og safnað kröftum á meðan sláturhúsið tekur særstu loftköstin og síðan hent sér inn í það með yfirþyrmandi ofurefli á rétta augnablikinu er tungan lafir af mæði út úr þeim sem slík hús reka, og þá einfaldlega sest ofan á það hús og skellt handjárnum á
Þetta gerðu Bandaríkin í báðum heimsstyrjöldum til að koma í veg fyrir bygginu pólitískrar einingar sem byggt gæti flotaveldi sem ógnað gæti þeim á heimavelli. Engin ein þannig pólitísk eining er til á landmassa evrasíu sem gæti slík. En hjónaband slíkra eininga gæti hins vegar gert það. Slíkt band verður að stöðva fyrir trúlofun, umfram allt
Öll ríki verða skilyrðislaust að gera það eitt sem tryggir áframhaldandi tilvist þeirra. Engin ríki eru hér undanþegin, því ef þau væru það, þá væru þau ekki lengur til. Ísland getur til dæmis aldrei leyft sér að velja sér ranga bandamenn. Ísland verður alltaf, án undantekninga, að velja sér bandamann sem ræður ríkjum á Atlantshafinu. Við erum eyja og þeir sem stjórna hafinu í kringum okkur stjórna líka því hverjir geta ráðist inn í Ísland eða ekki. Hverjir geta sótt að landi okkar
Og það vill svo til að Bandaríkin eru líka eyja og þau hafa nákvæmlega sömu tilvistarlegu hagsmuni og við. Enginn má geta sótt að Bandaríkjunum sjóleiðina. Enginn! Þess vegna drottna Bandaríkin yfir Atlantshafinu og Kyrrahafinu og Karabíska hafinu. Og þau munu aldrei líða að neitt annað ríki eða ríkjabandalag geti orðið til sem skákað getur flotaveldi þeirra. Það sama gerðu Bretar með því að koma í veg fyrir að slíkur floti gæti yfir höfuð orðið til
Þetta er okkar happ. Þessa vegna getum við ekki leyft okkur að velja ranga bandamenn. Og þetta eitt ætti að vera nóg til þess að endurskoða allt í sambandi við EES-samning Íslands við ESB-Evrópu og slökkva á Kína vitleysunni. Það er kominn tími á þessa endurskoðun því hún tekur tíma. Reyndar er þetta krafa sem ekki er hægt að hunsa lengur, nema með tilvistarlegri áhættutöku fyrir Ísland. Slík áhættutaka á ekkert skylt við þjóðaröryggi Íslendinga. Ekkert. Hún væri bæði sinnuleysi og stjórnleysi
xD
Fyrri færsla
Þýsku kosningarnar: Merkel mun sitja sem stirðnuð önd á stóli og hið undirliggjandi mjakast fram [u]
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Sunnudagur, 24. september 2017
Þýsku kosningarnar: Merkel mun sitja sem stirðnuð önd á stóli og hið undirliggjandi mjakast fram [u]
- bloggfærslan er uppfærð með nýjustu tölum og betri frásögn
Mynd (ARD kl. 06:06 þt.): Breytingar á fylgi flokka
Kosningarnar í Þýskalandi eru að birtast sem opin gröf fyrir Angelu Merkel og flokk hennar. Í Bæjaralandi er flokkurinn að fá sína verstu útreið í 68 ár, eða allar götur frá 1949, nú þegar úrslitin eru komin inn
Angela Merkel er tapari kosninganna. Flokkur hennar missti mest og endar á aðeins 33 prósentum atkvæða og missir 8,5 prósent fylgi. Þýskalandið hennar er grundig upplausn. Fyrir kosningar sat Merkel-ríkisstjórnin á 80 prósent þingsæta. Það hlutfall er hér með klippt og skorið niður í rétt rúmlega 50 prósentur
Krónísk lömunarveiki Angelu Merkels, vinstra daður og innflytjenda- og innri öngþveitisstefna hennar með fálmurum, er það sem upp gaus úr kjörkössunum. Fólkið vill fá landið sitt og sjálfsákvörðunarréttindi aftur. En fólkið mun ekki fá neitt slíkt
Í kjörkössunum voru neyðarbremsuklossar á þrennt:
Í fyrsta lagi kom AfD-flokkurinn upp úr þeim sem sigurvegari kosninganna. Stjórnmálaflokkur sem talað hefur gegn upplausnar- og öngþveitis-innflytjendastefnu Merkels. Í austri fær hann 20,5 prósent atkvæða og 12,6 prósent á landsvísu. Öll kjördæmi Saxlands fékk hann, nema Dresden, en þar munaði aðeins einu prósenti á honum og CDU. Hann er þar með orðinn þriðji stærsti flokkur Þýskalands, stofnaður fyrir aðeins fjórum árum og tæplega þrefaldar fylgi sitt núna. Hann mun leiða stjórnarandstöðuna, ef ég giska rétt á komandi stjórnarmyndun
Í öðru lagi er fimm strokka brembo-bremsuklossi FDP-flokksins á evru- og evrópusambandið og þar með á fyrirhugaða ESB-skáldsagnagerð Emmanuel Macron forseta Frakklands um Evrópu, sem koma mun honum illa út. FDP tvöfaldaði næstum fylgi sitt og fær 10,7 prósent. Ef ég giska ekki rétt á stjórnarmyndun Merkels með SPD, þá mun FDP krefjast lyklanna að fjármálaráðuneytinu og loka niður ESM (E2012-rotvarnarefni í evru) og þar með í framhaldinu hugsanlega velt evrusvæðinu um koll. Ef ekki tekst að mynda stjórn með FDP, þá gætu nýjar kosningar verið boðaðar síðar í haust eða í vetur. Þýskaland gæti orðið stjórnlaust land
Og í þriðja lagi eru úrlistin verstu afhroð þýskra sósíaldemókrata nokkru sinni (SPD). Sá flokkur fær aðeins 20,5 prósent og missir 5,2 prósent. Rauðan reykinn leggur út um eyrun á þessum skrjóði Schröders. Hann bræddi úr flokknum með grundig allsherjarsvikum; Þýskalandið hans er nú láglaunaland
Undirliggjandi og óhjákvæmilegt
- Schröder sósíaldemókrati og fyrrum kanslari situr nú í Rússastjórn Rosnefts, hjá Vladimir keisara Pútín, til að undirbúa bandalagsuppbyggingu Þýskalands og Rússlands, vegna þess að Þýskaland veit að Evrópusambandið sem það notar til að drottna yfir Evrópu, er að leysast upp. Skrjóðurinn Schröder er því sendur út af sökkvandi örk Evrópusambandsins með samþykki Merkels, til að sannfæra Pútín um að Þýskaland sé háð honum og til að koma í veg fyrir vinskap Rússa og Frakka. Heima fyrir þaggar Merkel á meðan eins og hún getur niður NATO-getuna og dælir pólitísku grumsi þar inn. Pólland, klemmt á milli þessara tveggja gömlu djöfla, veit þetta vel og hamast því við að byggja upp bolverkið gegn þessu, saman með strategíska stórvininum Donaldi Trump og gengur sú bygging mjög vel, án aðkomu NATO. Hún heitir Intermarium. Pólland verður næsta nýja stórveldið innan Evrópu. Allt mikilvægt sem er að gerast í Evrópu er að gerast í austri og er Pólland helsta miðstöð þeirrar þróunar ásamt Rúmeníu. Ungverjaland gekk úr Pútín í þessum mánuði og í lið með Póllandi. Það andaði því köldu á Pútín í heimsókn hans til Búdapest í ágúst. Þýskaland misnotar því ESB til að ofsækja Pólland og Intermarium-bandamenn þess, svo lengi sem það er í standi til að drottna yfir Evrópu með Evrópusambandinu sem verkfæri. Þýskaland er óverjandi landsvæði á norðursléttum Evrópu, ef verja þarf báða flanka þess samtímis (austur-vestur innrásarhraðbrautin). Alpar loka suðrinu að mestu og einn sjór í norðri kaupir því vissan tíma. Svipað gildir um Frakkland. Og án Bandaríkjanna er Pólland farið. Og án Póllands og Bandríkjanna er Evrópa farin
Áratuga viðskiptum með fullveldi ESB-ríkja á pólitískum kauphallargólfum meginlandsins fer nú að ljúka. Fyrst kom árið 2009 með sitt sudden-stop í fjármálum ESB-landa og þau mál standa óleyst enn. Og næst er það hið pólitíska makró Evrópu sem gengur ekki lengur upp. Fólk álfunnar er búið að fá nóg. Allir vita að "heilbrigð skynsemi" manna sá ekki neitt árið 2008/9. Hún mun heldur ekki sjá þetta koma, vegna þess að hún er eitt lélegasta verkfæri sem til er
Restin og niðurlag
Kommar og grænir fá hvor um sig í kringum 9 prósent og eru frosnir fastir þar. Engin breyting þar. Búist er við að kosningaþátttakan hafi verið 75,9 prósent
Þýska þjóðin hafnaði Angelu Merkel, en sitja mun hún samt, því að þýskt stjórnmálalíf er notbremsenresistent. Ekkert gerist þegar togað er í hemlana. Nema í Bretlandi sem hoppað hefur af ESB-lestinni á leið hennar með meginlandið til heljar. Sósíaldemókratar hugsa í límósínum og kavíar, þeir munu því hoppa í stjórn sameinaðra tapara á sjálfu meginlandi taparanna
Fyrri færsla
Stjórnmál og samfélag | Breytt 25.9.2017 kl. 08:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Nýjustu færslur
- Tilvistar-vandamál meginlands Evrópu komin í meðferð 7300 km ...
- Kalda stríðið orðið að leit Evrópu eftir alþjóðlegri vernd [u]
- Gunnar Bragi hefur rétt fyrir sér
- Eitthvað sem ekki passar hér [u]
- Kristrún stígur ekki í vitið, svo mikið er nú víst
- Þorgerður mín
- Kína komið til "ósubbulegs" sálfræðings
- ESB og Kína þekkja ekki bandaríska miðvestrið
- Bóndinn og prófessorinn í Selma um tolla Trumps. Grænland
- Evrópa er á leiðinni á nauðungaruppboð: Kaninn unir ekki að G...
- Svo lengi sem Grænland er viðriðið Danmörku mun heimurinn ekk...
- Landsölupakkhús Þorgerðar fúlt út í JD Vance
- Kannski hægt að byrja á farsímavef Veðurstofunnar - strax í d...
- Hamast við moksturinn í Reykjavík
- Grunnvextir hækka á evrusvæðinu - varanlega
Bloggvinir
-
Heimssýn
-
Samtök Fullveldissinna
-
ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE
-
Guðmundur Jónas Kristjánsson
-
Ragnhildur Kolka
-
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
-
Haraldur Hansson
-
Haraldur Baldursson
-
Páll Vilhjálmsson
-
Halldór Jónsson
-
Valan
-
Samstaða þjóðar
-
Frjálshyggjufélagið
-
Sigríður Laufey Einarsdóttir
-
Eyþór Laxdal Arnalds
-
Jón Valur Jensson
-
Samtök um rannsóknir á ESB ...
-
Kolbrún Stefánsdóttir
-
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
-
Jón Baldur Lorange
-
Guðjón E. Hreinberg
-
Jón Ríkharðsson
-
Anna Björg Hjartardóttir
-
Loftur Altice Þorsteinsson
-
Valdimar Samúelsson
-
Fannar frá Rifi
-
Bjarni Jónsson
-
Sigurður Þorsteinsson
-
Gunnar Ásgeir Gunnarsson
-
Haraldur Haraldsson
-
Örvar Már Marteinsson
-
Kristin stjórnmálasamtök
-
Gestur Guðjónsson
-
Ingvar Valgeirsson
-
Predikarinn - Cacoethes scribendi
-
Guðsteinn Haukur Barkarson
-
Guðmundur Helgi Þorsteinsson
-
Lísa Björk Ingólfsdóttir
-
Bjarni Kjartansson
-
Bjarni Harðarson
-
Guðrún Sæmundsdóttir
-
Sveinn Atli Gunnarsson
-
gudni.is
-
Gústaf Adolf Skúlason
-
Tryggvi Hjaltason
-
ESB
-
Marinó G. Njálsson
-
Baldvin Jónsson
-
Elle_
-
Sigurbjörn Svavarsson
-
Emil Örn Kristjánsson
-
Johnny Bravo
-
Jón Finnbogason
-
Rýnir
-
Þórarinn Baldursson
-
P.Valdimar Guðjónsson
-
Már Wolfgang Mixa
-
Ívar Pálsson
-
Júlíus Björnsson
-
Guðjón Baldursson
-
Baldur Fjölnisson
-
Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
-
Einar Ólafsson
-
Sigríður Jósefsdóttir
-
Vilhjálmur Árnason
-
gummih
-
Sveinn Tryggvason
-
Helga Kristjánsdóttir
-
Jóhann Elíasson
-
Baldur Hermannsson
-
Kristinn D Gissurarson
-
Magnús Jónsson
-
Ketill Sigurjónsson
-
Birgitta Jónsdóttir
-
Axel Jóhann Axelsson
-
Þorsteinn Helgi Steinarsson
-
Aðalsteinn Bjarnason
-
Magnús Þór Hafsteinsson
-
Erla Margrét Gunnarsdóttir
-
Sigurður Sigurðsson
-
Þorsteinn H. Gunnarsson
-
Haraldur Pálsson
-
Sveinbjörn Kristinn Þorkelsson
-
Bjarni Benedikt Gunnarsson
-
Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
-
Ægir Óskar Hallgrímsson
-
Helgi Kr. Sigmundsson
-
Óskar Sigurðsson
-
Tómas Ibsen Halldórsson
-
Axel Þór Kolbeinsson
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Hörður Valdimarsson
-
Adda Þorbjörg Sigurjónsdóttir
-
Þorsteinn Valur Baldvinsson
-
Margrét Elín Arnarsdóttir
-
Ásta Hafberg S.
-
Erla J. Steingrímsdóttir
-
Helena Leifsdóttir
-
Agný
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
Jón Árni Bragason
-
Jón Lárusson
-
Högni Snær Hauksson
-
Kristján P. Gudmundsson
-
Kristinn Snævar Jónsson
-
Sigurður Ingólfsson
-
Rakel Sigurgeirsdóttir
-
Sigurður Þórðarson
-
S. Einar Sigurðsson
-
Pétur Steinn Sigurðsson
-
Vaktin
-
Sigurjón Sveinsson
-
Dóra litla
-
Arnar Guðmundsson
-
Jörundur Þórðarson
-
Rafn Gíslason
-
Hjalti Sigurðarson
-
Kalikles
-
Vésteinn Valgarðsson
-
Bjarni Kristjánsson
-
Egill Helgi Lárusson
-
Gunnar Skúli Ármannsson
-
Halldóra Hjaltadóttir
-
Jón Pétur Líndal
-
Guðmundur Ásgeirsson
-
Reputo
-
Gunnar Helgi Eysteinsson
-
Sigurður Sigurðsson
-
Ólafur Als
-
Friðrik Már
-
Gísli Sigurðsson
-
Sigurður Einarsson
-
Rauða Ljónið
-
Sumarliði Einar Daðason
-
Gísli Kristbjörn Björnsson
-
Kári Harðarson
-
Sigurður Antonsson
-
Valdimar H Jóhannesson
-
Rósa Aðalsteinsdóttir
-
Dagný
-
Guðmundur Pálsson
-
Jakob Þór Haraldsson
-
Birgir Viðar Halldórsson
-
Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
-
Tíkin
-
Jón Þórhallsson
-
Íslenska þjóðfylkingin
-
Erla Magna Alexandersdóttir
-
Óskar Kristinsson
-
Dominus Sanctus.
-
Ingólfur Sigurðsson
-
Jón Þórhallsson
Tenglar
Hraðleiðir
- www.tilveraniesb.net www.tilveraniesb.net Vefsetur Gunnars Rögnvaldssonar
- www.mbl.is
- Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir
- Bréf frá Jerúsalem - Yoram Hazony Yoram Hazony er einn fremsti stjórnmálaheimspekingur Vesturlanda í dag
- NatCon Þjóðaríhaldsstefnan
- Victor Davis Hanson bóndi og sagnfræðingur Victor Davis Hanson er einn fremsti sagnfræðingur Vesturlanda í klassískri sögu og hernaði
- Bruce Thornton sagnfræðingur Bruce Thornton er sagnfræðingur - klassísk fræði
- Geopolitical Futures - geopólitík Vefsetur George Friedmans sem áður hafi stofnað og stjórnað Stratfor
- Strategika Geopólitík
- TASS
- Atlanta Fed EUR credit & CDS spreads
- N.Y. Fed EUR charts
- St. Louis Fed USD Index Federal Reserve Bank of St. Louis - Trade Weighted U.S. Dollar Index: Major Currencies
- Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983 Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983
Þekkir þú ESB?
Greinar
Lestu mig
Lestu mig
• 99,8% af öllum fyrirtækjum í ESB eru lítil, minni og millistór fyrirtæki (SME)
• Þau standa fyrir 81,6% af allri atvinnusköpun í ESB
• Aðeins 8% af þessum fyrirtækjum hafa viðskipti á milli innri landamæra ESB
• Aðeins 12% af aðföngum þeirra eru innflutt og aðeins 5% af þessum fyrirtækjum hafa viðskiptasambönd í öðru ESB-landi
• Heimildir »» EuroChambers og University of LublianaSciCenter - Benchmarking EU
Bækur
Á náttborðunum
-
: EU - Europas fjende (ISBN: 9788788606416)
Evrópusambandið ESB er ein versta ógn sem að Evrópu hefur steðjað. -
: World Order (ISBN: 978-1594206146)
There has never been a true world order, Kissinger observes. For most of history, civilizations defined their own concepts of order. -
: Íslenskir kommúnistar (ISBN: ISBN 978-9935-426-19-2)
Almenna bókafélagið gefur út. -
Velstandens kilder:
Um uppsprettu velmegunar Evrópu
: - Paris 1919 :
- Reagan :
- Stalin - Diktaturets anatomi :
-
Penge
Ungverjinn segir frá 70 ára kauphallarreynslu sinni
: -
: Gulag og glemsel
Um sorgleik Rússlands og minnistap vesturlanda - Benjamín H. J. Eiríksson :
- : Opal
- : Blár
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (13.9.): 8
- Sl. sólarhring: 24
- Sl. viku: 110
- Frá upphafi: 1407505
Annað
- Innlit í dag: 8
- Innlit sl. viku: 73
- Gestir í dag: 5
- IP-tölur í dag: 5
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Ágúst 2025
- Júlí 2025
- Júní 2025
- Apríl 2025
- Mars 2025
- Febrúar 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- September 2024
- Júní 2024
- Apríl 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Júlí 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008