Leita í fréttum mbl.is

Hvernig komst Angela Merkel til Davos?

Myndskeið: Ungur kínverskur "hagfræðingur" fær kast hjá Michael Pettis (horfið á vantrúa svip hans í lokin), þetta er sprenghlægilegt. Kínverska efnahags-viðundrið blasir bara við. Þarna sést eitt lifandi sýnishorn af vitleysunni. Engan dreymdi um að Kína væri svona geggjað galið, eins og lifandi lífsýnið þarna sannar sjálft. LSD?

****

Batt hún sig við þær milljónir innfluttu friðardúfa úr leir sem hún tollaði sjálf inn í Þýskaland á kostnað annarra, og sem nú drita magainnihaldinu sem teppasprengjuregni í höfuð kúgaðra þegna hennar? Eða komst hún til Davos vegna Marshallaðstoðar bandarískra skattgreiðenda? Svarið er bæði já og nei, en samt mest já

En staðreynd er hins vegar það, að hún komst þangað vegna þess að Bandaríkin eru með viðskiptahalla við sérstaklega Þýskaland. Þau kaupa það sem hún selur, því annars yrði innvortis bylting í Þýskalandi og hún Merkel þyrfti þá að flýja eftir gömlum leiðum til Suður-Ameríku. Hún og forverar hennar hafa eyðilagt landið með krónískri undirneyslu sem þvinguð er fram í landinu með því að gera hlut heimilanna í neyslu landsframleiðslunnar svo lítinn, að sú stefna þvingaði sparnað heimilanna yfir til fyrirtækja landsins, sem síðan sendu hann til útlána í Suður-Evrópu, þar sem þeim var still út í búðarglugga bankanna í neikvæðum raunstýrivöxtum, sem ekki var mögulegt heima í Þýskalandi vanneyslunnar, undir staðbundið jákvæðum raunstýrivöxtum. Þessi púðurtunna í hagkerfum landa Suður-Evrópu bjó að sjálfsögðu til þá eftirspurn eftir þýskt framleiddum vörum sem til var ætlast. Þetta gerist alltaf þegar sparnaði annarra er þrýst út í umferð með útlánastöðlum sem tilheyra banananýlendum. Evran er bananalýðveldi og Suður-Evrópa er því liðið lík í dag

Svo sprakk að sjálfsögðu allt heila klabbið og Angela Merkel breyttist sjálf í púðurtunn-una. En vegna þess að Bandaríkin kaupa enn af henni það dót sem hálfglötuð þýsk fyrirtæki vegna svona stefnu framleiða, þá komst hún til Davos til að hæðast að þeim eina sem heldur henni uppi. Þangað upp skreið hún í kolaknúnum skrjóði Schröders til að baða sig í sólinni, sem Þýskalandi er hætt að birtast

Sagt er að til séu þrjú skeið ríkja: 1. villimennska - 2. siðmenning - 3. úrkynjun og hnignun. Þar sem Þýskaland var stofnað svo seint sem 1871 þá hófst ferill þess fyrst og fremst sem villimennska, þar næst hoppaði landið yfir siðmenningu og í dag er það mest úrkynjun og hnignum. Ekki það að Deutsche Bank sem er árinu eldri en sjálft Þýskaland, hafi breytt neinu um þennan feril landsins, því hann fjármagnaði hann. En sjálfa orsök stofnunar Þýskalands 1871 má hins vegar að sumu leyti rekja til þess að það hafði sjálft verið vígvöllur fyrir villimennsku nágranna þess

Þessa brunarúst hefur Ísland ákveðið að binda sig sem fastast við til að sökkva með henni. En þar sem Ísland hefur einnig bundið sig hugarfarslega galið við villimannaveldið Kína, í skrúðgörðum utan-ríkis-ráðuneytisins, þá má segja að við séum komin heim til okkar framtíðarhelvítis með þessu áframundanhaldi. Hvernig væri að veðja á smá vestræna siðmenningu, kæru stjórnmálamenn. Eigum við það ekki skilið eftir 700 ár evrópskar villumennsku hér á landi?

****

Það var athyglisvert að fylgjast með heimsókn Mike Pence varaforseta Bandaríkjanna til höfuðborgar vestræns Ísraels, Jerúsalem. Reyndar er sú heimsókn sendiboðans hin sanna stórfrétt, en ekki kolaverkið í Davos, knúið koksi

Hvernig væri að segja Ísland fyrst. Til þess eruð þið kjörnir

Fyrri færsla

Þúsund einkaþotur lentar í Davos


Þúsund einkaþotur lentar í Davos

Einkaþotur Davos - Reuters

Mynd: Reuters

Hvað er ég eiginlega að tala um? Jú Davos-mennina. Exelið. Þeir eru lentir í Davos í Sviss í meira en þúsund einkaþotum, til að bjarga plánetunni frá endalokum hennar (þeirra): þ.e.a.s. frá umhverfismálaógninni (lesist hlýnun af þeirra völdum)

Um er að ræða allar helstu elítur jarðar og þar með talin nokkur ríkishöfuð, seðlabankamenn og bankastjóra, forstjóra og helstu frammámenn í alþjóðavæðingar-kirkjunni, sem hlýða þar á afspiluð Parísar- og fjölþjóðasamkomulög af grammafóni þeim sem kann bara eitt lag í dag; loftslagið

Þetta er svo sprenghlægilegt að ég fór út og pissaði á klakann til að leggja mitt af mörkum til hlýnunar jarðar þeirra. Þeir eiga hana, halda þeir

Síðast þegar tímabil svona kirkjudeilda gat kallað til hámessu eins og þeirrar sem fram fer þarna í Davos, þá var ástandið svipað og það er í dag. Páfar, ókjörnir kóngar, prinsarnir og þjónar þeirra voru bornir í hásætum hvert sem var, hvenær sem þeim þóknaðist, af vesalingum eins og mér og þér; algerlega gratís. Okkur var gert skylt að bera þetta lið hvert sem því þóknaðist að stíga fæti til jarðar. Í dag lenda þeir hins vegar á þúsund einkaþotum til að bjarga jarðríki sínu frá hlýju vatni eins og kastaðist af mér

En það sem verra er, vondur maður er nú mættur á staðinn og ætlar sá að halda ræðu sína yfir þeim á morgun. Hann heitir Donald Trump. Hann er lentur, fullur af umboði þeirra sem þetta lið skildi eitt eftir á fjóshaug alþjóða-væðingarinnar. Mikið hlakka ég til. Þetta gæti orðið byrjunin á nýrri engilsaxneskri iðnbyltingu, eins og þeirri sem leysti lita pissandi manninn úr ánauð elíta sem bera þurfti hvert sem var, hvenær sem var

Forsætisráðherra Indlands verður sennilega skúffaður, en hann spilaði í gær fyrsta fjárkúgunarstefið úr Parísarsamkomulaginu: "þið sem eruð ríkari en við, þið verðið að gera ykkur fátæka eins og við. Annars fer jörðin til helvítis og þið öll með. Komið þið með peningana"

Þetta lið hefur frá lokum síðustu heimsstyrjaldar verið að þræða fullvalda þjóðríki jarðar upp á einkalyklakippu sína, sem heitir alþjóðlegar stofnanir og samtök. Gamla ókjörna kónga-elítan var hins vegar mest innanríkisleg, því hestar voru ekki einkaþotur. Þetta lið talar ekki við náungan í næstu götu, heldur einungis við þann sem kann alþjóðlegt tungumál þeirra í næsta landi á lyklakippunni, eða hinumegin á plánetunni. Svo lendir það og messar yfir mér og þér í formi hinna og þessara endalausu alþjóðlegu stofnana sem stútfullar eru af svo kölluðum "sérfræðingum". Þetta lið er orðið nýr lykla-Pétur og úniversal-imperial eitur fyrir fullvalda þjóðir. Ekkert er lengur hægt án samþykkis þeirra eða vottunar. Theresa May komst vel að orði þegar hún sagði að þetta lið væri orðið heimilislaust afglapaveldi einskis

Best að fara út aftur og endurtaka síðustu hlýnun einkajarðar minnar. Gott fyrir bláberin, kartöflurnar, rabarbarann, birkið og snarrótina, en vont fyrir nef rebba. Svo tala ég við krumma og bíð eftir horssagauknum

Já. Þúsund einkaþotur í Sviss eru lentar, þér til bjargar (hringja klukkum hér), og himnar opnast. Restina kunna flestir. Þetta lag verður spilað svo lengi sem það eru peningar í því, fyrir útgefandann

Krækja

Irony Alert: A Thousand Private Jets Deliver Globalist Elite to Davos for Climate Change Summit

Fyrri færsla

Smölun hafin í Þýskalandi


Smölun hafin í Þýskalandi

USS Hopper DDG-70

Mynd: USS Hopper tundurspillir Bandaríkjanna

Þýskaland

Wolfgang Munchau skrifaði á þessa leið um Þýskaland í gær: Munið þið hvernig Jeremy Corbyn tókst gegn öllum líkum að verða formaður breska Verkamannaflokksins? Þeir lengst til vinstri í þeim flokki hófu smölun ungs fólks inn í flokkinn í aðdraganda formannskjörsins. Þetta er einnig að gerast hjá þýskum sósíaldemókrötum (SPD) núna í aðdraganda flokkskosninga um það hvort flokkurinn eigi að fara í ríkisstjórn með flokki Angelu Merkel, eða ekki, að loknum formlegum viðræðum um stjórnarmyndun. Engar kröfur eru gerðar um að þeir sem kjósa hafi verið flokksmeðlimir í lengri tíma en til dæmis einn dag fyrir þann dag sem flokksforystan ákveður samkvæmt eigin höfði að sé síðasti dagur til að ganga í flokkinn fyrir kosningar um málið. Die Welt segir að í gangi sé massíft innflæði af nýjum meðlimum í flokkinn frá því að þingkosningar fóru fram, sem er í hlægilegri mótsögn við þá verstu útreið sem flokkurinn þar hlaut frá stríðslokum. Þetta gæti styrkt hinn óvinsæla Martin Schulz formann flokksins í sessi og innaustur af lengst til vinstrimönnum gæti jafnvel komið því um kring að SPD losni við Angelu Merkel fyrir fullt og allt, með því að fella stjórnarsamstarf, sem þýða myndi nýjar þingkosningar í haust. Samkvæmt skoðanakönnun Spiegel eru 51 prósent Þjóðverja mjög neikvæðir eða neikvæðir í garð slíks stjórnarsamstarfs SPD, en einungis 16 prósent segjast ánægðir, ef af því verður

Bretland

Gengi breska sterlingspundsins gagnvart Bandaríkjadal er nú á svipuðu róli og það var þegar Bretar kusu í júní 2016 í þjóðaratkvæði að yfirgefa Evrópusambandið. Og stærsta hlutabréfavísitalan stendur 25 prósent hærra en þá

Bandaríkin

USS Hopper stýriflaugabúinn tundurspillir bandaríska sjóhersins sigldi fyrstu sjófrelsis- og hafréttar siglingu ársins inn á það hafsvæði sem Kínverjar segja að sé nú innan landhelgi þeirra, umhverfis gervieyjar í Suður-Kínahafi sem þeir hafa dælt upp með sanddælum og staflað eldflaugum ofan á. Sigling bandaríska flotans þykir koma mun fyrr en gera mátti ráð fyrir, en hún var sigld 17. janúar. Taívan og Filippseyjar gera einnig tilkall til hafsvæðisins. Ný þjóðaröryggisstefna Bandaríkjanna hefur skilgreint Kína sem mikilvægustu ógn er steðji að vestrænum lifnaðarháttum og þar með fyrst og fremst Bandaríkjunum. En einnig er búist við að Bandaríkin herði varðstöðu sína gagnvart Evrópusambandinu og sérstaklega Þýskalandi, vegna yfirþyrmandi ójafnvægis í viðskiptum þeirra við heiminn utan -og jafnvel innan- Evrópusambandsins. Mörg evrulönd eru að þar að þrotum komin

Fyrri færsla

Þegar gamla Sovétið átti að verða stærst. Í dag er það Kína


Þegar gamla Sovétið átti að verða stærst. Í dag er það Kína

Myndskeið: Hin smáu Cherbourg-skip nýja þjóðríkisins - 1969

****

"Þjóðhagfæðingar" sem vita hvorki hvað þjóð né þjóðríki er - og heldur ekki hvað Biblían (sjálf uppskriftin að þjóðríkinu) er?

Þeir sem þekkja ögn til í heimi þjóðhagfræðinnar vita að Paul Samuelson var fyrsti bandaríski hagfræðingurinn sem hlaut Nóbelsverðlaunin í hagfærði og það gerðist árið 1970. Það merkilega við þennan prófessor var örugglega margt. Biblíur hans eru því víða í bókahillum enn. En það merkilegasta finnst mér vera spá hans um Sovétríkin. Kannski var það hennar vegna að sænska seðlabankaða akademíuelítan verðlaunaði hann. Hann spáði nefnilega því að sovéska hagkerfið myndi taka framúr bandaríska hagkerfinu að stærð. Og það átti að gerast árið 1984. Þá yrði sovéska þjóðarframleiðslan orðin stærri en sú bandaríska

Þetta finnst mér ekki merkilegt fyrir það hversu röng spá Samuelsons reyndist, heldur finnst mér þetta merkilegt vegna þess að Sovétríkin voru ekki og myndu aldrei verða hluti af Frjálsverslunarkirkjunni, sem væntingafullir lófar svo margra néru sér saman um (e. free trade). Og ekki nóg með það, heldur uppfræði Nóbelsverðlaunahafinn spá sína þegar hún gekk ekki eftir. Og það oftar en einu sinni. Hann flutti 1984 bara lengra inn í framtíðina - þar sem hún svo skyndilega varð uppseld. Væntanlegu og framfluttu sovésku heimsmetsárin hans 2002 og 2012 runnu aldrei upp. Bara allt þegar farið til fjandans og enn lengra árið 1989. Sovétríkin áttu sem sagt að verða stærst og mest án fríverslunar. Ja hérna. Svarið hér er auðvitað það að þarna var svo kölluð "frjáls verslun" ekki enn orðin að nýjum og viðteknum trúarbrögðum. Sú rétttrúandi kirkjudeild opnaði fyrst þegar sú sovéska lokaði. En hvað gerðist svo næst?

Jú. Fjórum árum eftir 1970 fékk annar snillingurinn Nóbelsverðlaunin í hagfræði. Hann hét Friedrich Hayek. Margt var örugglega einnig merkilegt við þann mann. Hann hafði rétt fyrir sér um margt. En rangt hafði hann líka fyrir sér um ofboðslega mikilvæga hluti, eins og Samuelson. Hayek vissi ekkert um þjóðina, þjóðríkið og þjóðarlöggjöf sem stofnanir. Hinn króníski líberalisti Hayek lagði nefnilega til í ritgerð sinni árið 1939, að skipta þyrfti út sjálfstæðum þjóðum og þjóðríkjum þeirra fyrir eins konar alheimsríki, eða alheimsríkisamband þar sem heimslög myndu ríkja. Þetta væri nauðsynlegt í nafni líberalismans

En Líberalismi er nýleg og algerlega öndverð stjórnmálaskoðun við Íhaldsstefnuna sem varð til sem stjórnmálaafl í Englandi á 14. og 15 öld. Líberalismi kom til sögunnar hundruðum árum síðar með sósíalistanum John Locke, sem var að minnsta kosti jafntakmarkaður og Hayek, eins og sést á Frakklandi enn þann dag í dag, og á heimsveldi líberal sérfæðingaveldisins sem klessukeyrði sig algerlega árið 2009. John Locke vissi lítið hvað hann var að gera með ritgerðadundi sínu og Hayek vissi ekki að Locke vissi lítið sem ekkert mikilvægt um það sem hann var að segja. Og nú er komið að hagfræðikirkjudeild Hayek að falla eins og sovétinu gamla. Fyrst voru það Sovétríkin, svo er það Kína í dag og þessi árin er það líberalisminn sem kominn er langt langt fram yfir síðasta söludag. Reyndar þoldi hann aldrei notkun

En menn þurfa ekki að hafa svo miklar áhyggjur, því það var þjóðríkisvaldið sem bjó til kapítalismann með lögum. Og þau lög geta aðeins fullvalda þjóðríki sett. Lögin um takmarkaða ábyrgð hlutafélaga er það sem bjó kapítalismann til. Annars þyrftu öll þjóðleg sem alþjóðleg fyrirtæki að hafa einkaher sér til varnar, því aðeins einn drepinn maður myndi þá koma öllum á hausinn. Þess vegna þurftu ítalskir bankar sem opnuðu útibú fyrir utan landssteinana að hafa einkaher til að gæta peninganna. Lög um hlutfélög með takmarkaða ábyrgð voru þá ekki til og gátu ekki verið til því þjóðríkin voru ekki til, nema sem sjálf uppskriftin að þeim í Gamla testamentinu. Eini valkosturinn við þau voru andskotans heimsveldi úniversalista; þ.e. keisaraveldið og þar með þrælaríkið og nýja Sovétríkið, verstu plágur mannkyns frá upphafi. Einungis hið forna Ísraelsríki úr Biblíunni þar sem Dabbi var kóngur, gat vísað Íhaldsmönnum síðari tíma veginn - og hann fóru þeir og stúderuðu lög þess og gerðu sé mat úr einmitt þeim. Þess vegna eru Bandaríkin öflugasta hagkerfi og þjóðríki allrar mannkynssögunnar frá upphafi fram til dagsins í dag. Ekkert kemst með tærnar þar sem þau hafa hælana

Enginn myndi til dæmis senda einkapersónunni mér alla þá peninga sem brautryðjandi ítalskir bankar höfðu til varðveislu og lánuðu út á miðöldum, og enginn lífeyrissjóður myndi lána mér einn túkall gegn persónulegri ábyrgð og allra síst myndu þeir lána Locke og Hayek persónulegt stórfé út á andlit þeirra, til þess að reka bara eitt fyrirtæki sem þeir með hundrað prósent öryggi myndu koma á hausinn innan 24 klukkustunda, sökum snilligáfnafars

Ég er Íhaldsmaður. Hinir hafa því miður ekki minnstu hugmynd um hvað það er sem býr til öflugasta og lífvænlegasta hagkerfi veraldar. Bara Íhaldsmenn vita það, því aðeins þeir virðast vita hvað þjóð og þjóðríki er - og geta þar af leiðandi haldið uppi vörnum fyrir þau. Restin fer til helvítis. Þess vegna verða menn að vita What Is Conservatism? - annars lendum við öll.. þið vitið hvar

Fyrri færsla

Eftir endurtalningu fékk SPD samþykki til stjórnarmyndunarviðræðna. Flokkurinn að hverfa


Eftir endurtalningu fékk SPD samþykki til stjórnarmyndunarviðræðna. Flokkurinn að hverfa

Fréttir af úniversal fávitahæli evrunnar

Það var ekki fyrr en eftir endurtalningu atkvæða 642 fulltrúa þýskra sósíaldemókrata í dag, að flokksforysta þessa svo kallaða SPD-flokks treysti sér til að lýsa því yfir að samþykki hefði fengist á ráðstefnu flokksins um helgina, fyrir því að ganga til "formlegra stjórnarmyndunarviðræðna" við CDU/CSU flokksbandalagið sem Angela Merkel leiðir

Og það var ekki fyrr en eftir að hafa "lofað" að SPD myndi fá meiri tilslakanir en gert hafði verið ráð fyrir í óformlegum viðræðum, að 362 af 642 fulltrúum flokksins létust til leiðast að samþykkja formlegar viðræður. 279 sögðu nei. Flokkurinn hefur tapað nálægt helmingi kjósenda og misst fylgi í hverjum einustu kosningum síðastliðin 15 ár

SPD-flokkurinn tapar í takt við versnandi kjör kjósenda vegna trúarbragða "frjálsrar" verslunar/viðskipta undir fjölþjóðaisma (e. multilateralism), ESB og alþjóðavæðingar, sem flokkurinn tók til sín og hefur dýrkað. Sú trú boðar tvennt; 1) að hún sé nauðsynleg og ávallt og stanslaust af hinu góða, og 2) að allir hagnist á henni. Tvennt er samt enn óútskýrt í þessum trúarbrögðum; 1) hve langan tíma tekur það fyrir trúna að virka, og 2) hvert fór hagnaðurinn af þessari svo kölluðu "frjálsu verslun", því ekki fór hann til þeirra sem áður fyrr kusu einmitt sósíaldemókrata. Þeim reið flokkurinn og verkalýðshreyfing hans hins vegar til fjandans og hengdi þá til afbakaðs þerris inn í EMU og gerði Þýskaland að láglaunalandi, sem kaldhæðnislega hefði átt að stækka sjálfan grundvöllinn fyrir flokkinn, en sú reið virkaði að sjálfsögðu þveröfugt, því fólk er ekki heimskt. Og svipað hafa sósíaldemókratar og verkalýðshreyfing þeirra einnig gert á öllum Vesturlöndum. Þeir eru orðnir versti óvinur skjólstæðinga sinna. Og vegna þess að kjósendur sjá ekki lengur neinn mun á SPD og CDU vegna illa lyktandi samvinnu þeirra um sömu stefnu, þá kýs allur almenningur í vaxandi mæli hvorugan þessara flokka. Og þýsku CDU/CSU eru of heimskir til að skilja stöðuna. Þeir eru það sem kallað er nautheimskir merkantílistar, enda er það það sem ESB-gengur út á. Líberalistar sem halda að þeir séu Íhaldsmenn, þ.e. öfuguggar út í gegn, enda vita þeir varla hvað engilsaxnesk-amerísk arfleið íhaldsmanna er, eins og svo greinilega sést á úniversal fávitahæli evrunnar í dag, og reyndar alla áðurgengna daga hennar. The European Monetary Madness Area (EMMA) talar fyrir sig sem úníversal fávitahæli líberalista. Hvernig gat öðruvísi farið með þá smíði líberalista?

Gert er nú ráð fyrir að þessar viðræður geti hafist eftir nokkrar vikur. Allt tekur langan tíma í steinrunnu Þýskalandi og er þá með talið sjálft hrun stjórnmála landsins. En þegar það gerist, þá gerist það með því öryggi sem við sjáum birtast núna. Síðan þarf að hefja harðsóttar viðræður og þá erum við komin fram í apríl/maí - og ef samningar nást ekki þá verður kosið á ný næsta haust. Heilt stjórnlaust ár er farið í ekki neitt, hvernig sem málin fara því landið lokar því sem næst niður á sumrin

Þverklofinn SPD-flokkur þýskra sósíaldemókrata hefur hér með ákveðið að ganga til formlegra stjórnarmyndunarviðræðna við klofna flokksbandalagið sem restin af Angelu Merkel leiðir. Hefur henni og SPD á aðeins 13 árum tekist að rústa þýskum stjórnmálum niður að stjórnleysismörkum. Þetta er vélin í Evrópusambandinu, eins og "allir" fjölmiðlar hafa sagt ykkur frá, líklega milljón sinnum. Sjálf vélin já

Tengt

Þýskaland: Verður stjórnarmyndunarviðræðum hafnað?

Fyrri færsla

"Góðir innviðir" einkennandi fyrir einræðisríki?


mbl.is Jafnaðarmenn til viðræðna við Merkel
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Góðir innviðir" einkennandi fyrir einræðisríki?

Það var sagt um hið sovéska neðanjarðarlestarkerfi Moskvu að það væri einstakt og slægi flestum slíkum kerfum á Vesturlöndum við. Í dag eru það "innviðir" í vissum hlutum Kína sem fá menn til að missa máttinn af hrifningu

Allt fyrir utan Moskvu Sovétríkjanna var hins vegar ein samhangandi brunarúst á vegum þeirra sem komust svo flott til og frá vinnu við lítið nema gagnslitla þvælu í höfuðborginni. Lestarkerfið inn í fáránleikann virkaði svo vel

Það að almenningssamgöngur í Moskvu Sovétríkjanna væru góðar gerði ekkert fyrir Sovétríkin annað en að framlengja hörmungum þeirra. Að flytja massa af fólki til og frá gagnslausri vinnu stuðlaði ekki að neinu nema veldisuppbyggingu gagnsleysisins

Lestir og brýr yfir í ekkert og til einskis nema brúarsmíði eru til lítils. Að flytja Kínverja dagsins í dag til og frá vinnu við lítið nema rangstæðar og glataðar fjárfestingar, er það sama og gerðist í Sovétríkjunum. Vinnan við ekkert engum til gagns stendur nú sem hæst í Kína. Ríkisstjórnin hefur jafnvel byggt skjaldborg utan um sýndarveruleika hennar og kallast hann alræði og hagtölur

Japan státaði einu sinni af slíkum furðufjárfestingum í "innviðum" en þeir komu ekki í veg fyrir að Japanska hagkerfið féll saman á svo svæsinn hátt að aðeins lönd í miðjum sprengjugíg heimsstyrjalda geta státað af slíkum samdrætti. Á hátindi japönsku vitleysunnar stóð landið fyrir 17 prósentum af heimsframleiðslunni. Svo hrundi spilaborgin og Japan er aðeins 6 prósent af hagkerfi veraldar í dag

Í millitíðinni hefur hlutfall Bandaríkjanna í heimshagkerfinu varla haggast, þrátt fyrir nýju Kínaþvæluna og bandaríska innviði sem vinsælt er að bölva í sand og ösku. Um þá flýtur hins vegar ekki hagtöluþvæla á borð við þá sovésku og síðar þá japönsku og svo í dag þá kínversku. Kína verður í þessum efnum miklu verra en Japan og enn verra en Sovétríkin. Meira um þetta síðar

Fyrri færsla

Þýskaland: Verður stjórnarmyndunarviðræðum hafnað?


Þýskaland: Verður stjórnarmyndunarviðræðum hafnað?

Þýskaland

Sósíaldemókratar (SPD) í Berlín höfnuðu í gær með 21 atkvæði gegn átta, að flokkurinn tæki þátt i myndun nýrrar samsteypu-ríkisstjórnar með CDU-flokki Angelu Merkel ásamt CSU-bróður hans í Bæjaralandi. Á laugardag höfnuðu einnig SPD-menn í Saxlandi-Anhalt því að flokkurinn tæki þátt í myndun slíkrar stjórnar. SPD heldur um helgina landsflokksráðstefnu þar sem kosið verður um málið. Takið eftir að hér er ekki verið að tala um að samþykkja það að fara í stjórn, heldur aðeins að hefja formlegar stjórnarmyndunarviðræður. Fjórir mánuðir eru liðnir frá kosningum

Fylgi SPD hefur samkvæmt skoðanakönnun dalað verulega frá kosningum, sem fram fóru 24. september, þar sem flokkurinn hlaut sína verstu úrreið frá stríðslokum. Það sama gerði flokkur Angelu Merkels. SPD-fékk þar aðeins 20,5 prósent atkvæðanna og tapaði 5,2 prósentum, en mælist nú með aðeins 18,5 prósent fylgi, eða rétt tæplega 6 prósentum meira en AfD-flokkurinn fékk í kosningunum. En í þessari INSA-skoðanakönnun sem ég nefni, mælist AfD hins vegar með 14 prósent fylgi. Þannig að á milli SPD og AfD standa samkvæmt þeirri könnun aðeins 4,5 prósentur í dag. Og í könnuninni er CDU/CSU-flokksbandalag Merkels komið niður í aðeins 31,5 prósent fylgi, en fékk 33 í kosningunum í haust með því að tapa þar heilum 8,5 prósentum kjósenda

Ljóst er að örvæntingin er smám saman að grípa um sig í þýskum stjórnmálum. Formaður SPD ríður gandreið um ríkið til að hotta á flokksmenn inn í þær tilvonandi limósínur sem pólitík flokksins hefur ávallt gengið út á; þ.e. að fá að lifa góðu lífi með völd og aka um í limósínum. En ljóst er að flokkurinn er svo klofinn að þó svo að formanni-Schulz, sem kominn er langt fram yfir síðasta söludag (og var jafnvel aldrei söluhæfur) eins og Merkel, takist að píska fram samþykki við stjórnarmyndunarviðræðum með taparanum-Merkel, að þá er lítil von til að sú stjórn haldi full af efasemdum kjörtímabilið út

Þýskaland þokast með öryggi í átt til stjórnleysis. Bæði SPD og CDU/CSU eru orðnir skýjaðir flokkar (e. clouded). SPD er að farast vegna þess að hann vann með CDU/CSU. Og CDU/CSU eru að farast vegna þess að þeir unnu með SPD. Fólk vill fá heiðskýra flokka (e.unclouded). Það sem við sjáum er einmitt árangur skýjastjórnmála. Þessir flokkar hafa með þokulúðrun gert sig að þokubökkum sem eru að leysast upp

Hagtölur og hagtölur

Þessa dagana er ég að hugsa á rannsóknarnótum um hagkerfi Kína og bera það saman við japanska viðundrið sem var á hagtölutoppinum 1993/4 (VLF). En þá var það hagkerfi hins vegar þegar búið að vera hvellsprungið í 5 ár. Eiginlega efast ég um að hagkerfi Kína sé í reynd meira en 30-40 prósent stærra en hagkerfi Japans er í dag. Það er aðeins 6 prósent af heiminum núna (VLF). Nánar um þetta síðar

Janúar 1997

Hreyfimynd: Evruguðsþjónusta í europhile-BBC, janúar 1997. Bernard Connolly yfirheyrður af rannsóknarréttinum sem geisaði í Evrópu á þessum tíma, þegar flestir voru haldnir eins konar evrugeðbilun og esb-múgsefjun

Bernard Connolly hafði rétt fyrir sér. Norman Lamont sem þarna spyr hann fyrst, var fjármálaráðherra barónessu Margaret Thatcher þegar ERM-gengisbindingarkerfi ESB hrundi til grunna árið 1992. Allt meginland Evrópu er nú í steik vegna ESB-evru og hún er að gera útaf við flest evrulöndin sem létu stjórnmála- og embættismenn ljúga henni inn á sig. Bretland hefur sagt bless og fleiri lönd vilja út, en komast ekki vegna evru, því það er ekki hægt að skila henni án þess að drepa sjálfan sig í leiðinni, enda var það hinn eini sanni tilgangur með henni. Og nýjustu rannsóknir segja þar að auki í dag, að hinn svo kallaði "innri-markaður ESB" (e. single market) hafi engum efnahagslegum árangri skilað ESB-löndum, og að í mörgum tilfellum séu afleiðingar hans neikvæðar fyrir minni og minnstu löndin. Meira að segja erfiðustu evrusjúklingarnir viðurkenna þetta núna (í örstuttu máli hér). Ég mun fjalla meira og ýtarlegar um þetta síðar. Ísland verður að segja sig frá EES-samningnum áður en hann skaðar okkur enn meira

Brexit

Bernard Connolly segir í nýjustu grein sinni í International-Economy, sem ber yfirskriftina "No Deal", að það séu aðeins þrjár ástæður fyrir því að Evrópusambandinu er illa við fjármálamarkaði Bretlands:

1. Þeir eru breskir
2. Þeir hafa með fjármál að gera
3. Þeir eru markaðir

Fyrri færsla

Ísland of dýrt fyrir þýska óðaöldrun


Ísland of dýrt fyrir þýska óðaöldrun

Hér er tekið klassíska dæmið um geimveruna. Hún býr ekki á jörðinni, er ekki háð efnahag neins lands jarðar, hefur ekki tekjur á jörðinni, en var gefinn túkall jarðarkrónur. Hér spyr geimveran sig að því hvar hún fái mest magn af því sem geimverur neyta á ferðalagi fyrir einn túkall

Dæmadæmið er stillt þannig að eins túkallsvirði fyrir geimveru kosti einn túkall í Þýskalandi. Restin af veröldinni er svo miðuð út út frá því, eins og þegar jörðin var flöt. Ef farið var of langt frá miðju túkallsins þá datt maður af jörðinni

Þjóðverjar eru dottnir af jörðinni vegna þess að þeir eru með ranga mynt. Þeir eru með mynt sem er sérhönnuð fyrir útflutnings-dópistann Þýskaland. Ef Þýskaland væri með sína eigin mynt, en riði ekki um heiminn á mölbrotnum bökum annarra þjóða sem halda þannig myntinni niðri, já þá væri gengi þýska marksins um það bil 70 prósent hærra en gegni aumingja evrunnar er í dag. Og þar með kostaði túkallsviðrið enn meira en það kostar á Íslandi í dag

Svona er það að vera með ónýta mynt. Í þessu tilfelli heitur hún stálfátæktarevra. Hún er sérsniðin fyrir Þýskaland. Ef Þýskalandi vantar enn lægra gengi til að einn extra gámur úr höfninni í Hamborg hendist í hausinn á kínverjum Asíu, já þá kveikir Þýskaland bara í enn einu evruríkinu og gengið helst lágt eða lækkar jafnvel enn frekar - og það land verður enn ein brunarústin á evrusvæði

Á meðan má þýskur almenningur sætta sig við að Ísland er og verður aldrei innan seilingar kaupmáttleysis einmitt þeirra. Svona er óðaöldrunarhagkerfi Þýskalands. Þjóðverjar eru kínverjar Evrópu. Þeir munu kveikja í Evrópunni einu sinni enn. Og það er það sem þeir hér með einmitt eru að gera

Geimverudæmið í fréttinni hefur ekkert með efnahag Íslendinga sjálfra að gera, nema kannski það að þeir geta keypt einn þýskan þræl fyrir svo gott sem ekki neitt. Þökk sé stálfátæktarevru Þýskalands, því þýskir þrælar hafa ekki fengið raunlaunahækkun í samfellt 16 ár. Þeir eru og verða þrælar og komast því aldrei í geimferð. Tillitið til útflutnings ritvéla hins þýskra aðals, elíta og europhiles, vegur ætíð þyngra. Krónísk undirneysla einkennir því þýska hagkerfið, það er orðið svo vanskapað

Þessa vegna er meira en helmingur þýskra kjósenda orðinn sextíu ára og eldri. Og þeir kjósa helst ekki um það sem ungt fólk kýs að kjósa um. Þýska framtíðin er svo svört að ungt þýskt fólk er hætt að verða til, fæðast. Vandamál landsins hefur tekið á sig líkamlega ómynd; þ.e. þjóðargeldingu. Banka þarf á endalaust margar hurðir til að ein kona á frjósemisaldri komi til dyra og svari kalli náttúrunnar. Hvernig mynt ætti svona þjóð sem borðar útsæðið að hafa? Jú, hjólastóla!

Að byggja upp sólkerfi umhverfis svona svarthol er það sem ESB-stendur fyrir. En það gengur bara alls ekki upp; þ.e.a.s. ef maður vill vera lífvænleg pláneta

Fyrri færsla

ESB-Ítalía að breytast í "skítaland"?


mbl.is Ísland dýrast í Evrópu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ESB-Ítalía að breytast í "skítaland"?

Gallup 2013-2016 - Óska eftir að flýja landið sitt

Mynd: Gallup - hlutfall íbúa sem vilja flýja landið sitt

Gallup hefur í áratug kannað hvernig fólk unir sér í 156 löndum. Og ef það unir sér ekki, þá til hvaða lands það myndi vilja forða sér ef það gæti

Allan þennan tíma eru Bandaríkin efst á listanum yfir þráða ákvörðunarstaði. BBC lét einnig áratugum saman fyrirtæki á borð við Gallup kanna hvernig landið liggur í þessum málum og þar var niðurstaðan ávallt sú sama og hjá Gallup: Bandaríkin trónuðu alltaf efst á listanum yfir þráða áfangastaði. 21 prósent vildu allra helst flytja þangað. Gallup-könnun þessi byggir á persónulegum viðtölum augliti til auglits við tæplega 600 þúsund manns í 156 löndum, sem eru heimili 98 prósent íbúa jarðar

Það sem vekur athygli mína núna er það að Ítalía er að komast ofarlega á listann yfir þau lönd sem eru mest í klessu hvað þetta varðar og sem hugsar kannski minnst vel um fólkið sitt. Þetta er rökrétt því engin ESB-lönd hugsa fyrst og fremst um sitt eigið fólk, því það er bannað. ESB er stofnun sem stangast á við og kemur í veg fyrir gott mannlíf, með því að banna ríkjum að hugsa fyrst og fremst best um sitt eigið fólk

Munurinn á ESB-Ítalíu og "skíta" El Salvador er að minnka til muna, enda bæði löndin með mynt sem þau ráða algerlega engu um. Ítalía hefur breyst til hins mun verra og stendur nú við hlið ESB-Kýpur. En átakanlegast er þó það að munurinn á Sýrlandi og Ítalíu minnkar óðum, því ESB-keisaraóvitinn Merkel bað um einmitt það. Það er ekki mjög langt í það að allt ESB verði eitt samfellt Sýrland. Sennilega styttra en flesta grunar

Þýskaland varð næstvinsælasta land á listanum að þessu sinni (6 prósent vilja flytja þangað), vegna þess að Angela Merkel sagaði heiminum öllum að engin efrimörk væru á því hve mörgu fólki hún ætlaði að hleypa inn í Þýskaland og þar með til annarra ESB-landa. Ítalía ræður engu í ESB og stefnir í að verða "skítaland" framleitt af skíta-ESB, ef landið er þá þegar ekki orðið einmitt það. Fasteignaverð á Ítalíu heldur því bara áfram að lækka og lækka og skuldastaða landsins að versna og versna

Eins og þið sjáið eru löndin sem Donald Trump nefndi í hásæti á listanum. Og þar að auki hefur mesta íbúahrun heimsins frá árinu 2000 orðið í ESB-Lettlandi, ESB-Litháen og Georgíu. Þessi lönd hafa misst um 18 prósent hluta af þjóðum sínum. Og þessi þrjú lönd eiga víst það sameiginlegt, að hafa upplifað verstu útreið nokkurs lands í þessum málum, samkvæmt vesalingaveldistölum Sameinuðu "skíta?" þjóðanna

Fyrri færsla

Áslaug Arna spyr hvort myndin sé við hæfi


Áslaug Arna spyr hvort myndin sé við hæfi

Þessu geta aðeins kjósendur svarað þér Áslaug, við næstu kosningar. Það versta er þó það að á þér hangir ekki bara þú sjálf, heldur einnig fylgi Sjálfstæðisflokksins sem heildar, sem alltaf er stærri heild en persóna þín

Skoðanakannanir og likes geta ekki svarað þessari spurningu fyrir þig Áslaug, því villumörk þeirra eru þannig að þau staðfestast aðeins þegar talið er upp úr kjörkössunum. Þá rennur stund sannleikans upp

En það kæmi mér ekki á óvart að með þessari spurningu þinni hafi kvarnast enn frekar úr fylgi Sjálfstæðisflokksins sem heildar, því þú virðist ekki sjálf vita hvað sé í lagi og ekki í lagi. Myndi ég því segja að þú sért harla clueless og ósjálfstæð enn. Að vera leidd er ekki það sama og að leiða

Fyrri færsla

Þegar sumir vildu að Ísland yrði "skítaland"


mbl.is
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband