Leita í fréttum mbl.is

ESB-Ítalía að breytast í "skítaland"?

Gallup 2013-2016 - Óska eftir að flýja landið sitt

Mynd: Gallup - hlutfall íbúa sem vilja flýja landið sitt

Gallup hefur í áratug kannað hvernig fólk unir sér í 156 löndum. Og ef það unir sér ekki, þá til hvaða lands það myndi vilja forða sér ef það gæti

Allan þennan tíma eru Bandaríkin efst á listanum yfir þráða ákvörðunarstaði. BBC lét einnig áratugum saman fyrirtæki á borð við Gallup kanna hvernig landið liggur í þessum málum og þar var niðurstaðan ávallt sú sama og hjá Gallup: Bandaríkin trónuðu alltaf efst á listanum yfir þráða áfangastaði. 21 prósent vildu allra helst flytja þangað. Gallup-könnun þessi byggir á persónulegum viðtölum augliti til auglits við tæplega 600 þúsund manns í 156 löndum, sem eru heimili 98 prósent íbúa jarðar

Það sem vekur athygli mína núna er það að Ítalía er að komast ofarlega á listann yfir þau lönd sem eru mest í klessu hvað þetta varðar og sem hugsar kannski minnst vel um fólkið sitt. Þetta er rökrétt því engin ESB-lönd hugsa fyrst og fremst um sitt eigið fólk, því það er bannað. ESB er stofnun sem stangast á við og kemur í veg fyrir gott mannlíf, með því að banna ríkjum að hugsa fyrst og fremst best um sitt eigið fólk

Munurinn á ESB-Ítalíu og "skíta" El Salvador er að minnka til muna, enda bæði löndin með mynt sem þau ráða algerlega engu um. Ítalía hefur breyst til hins mun verra og stendur nú við hlið ESB-Kýpur. En átakanlegast er þó það að munurinn á Sýrlandi og Ítalíu minnkar óðum, því ESB-keisaraóvitinn Merkel bað um einmitt það. Það er ekki mjög langt í það að allt ESB verði eitt samfellt Sýrland. Sennilega styttra en flesta grunar

Þýskaland varð næstvinsælasta land á listanum að þessu sinni (6 prósent vilja flytja þangað), vegna þess að Angela Merkel sagaði heiminum öllum að engin efrimörk væru á því hve mörgu fólki hún ætlaði að hleypa inn í Þýskaland og þar með til annarra ESB-landa. Ítalía ræður engu í ESB og stefnir í að verða "skítaland" framleitt af skíta-ESB, ef landið er þá þegar ekki orðið einmitt það. Fasteignaverð á Ítalíu heldur því bara áfram að lækka og lækka og skuldastaða landsins að versna og versna

Eins og þið sjáið eru löndin sem Donald Trump nefndi í hásæti á listanum. Og þar að auki hefur mesta íbúahrun heimsins frá árinu 2000 orðið í ESB-Lettlandi, ESB-Litháen og Georgíu. Þessi lönd hafa misst um 18 prósent hluta af þjóðum sínum. Og þessi þrjú lönd eiga víst það sameiginlegt, að hafa upplifað verstu útreið nokkurs lands í þessum málum, samkvæmt vesalingaveldistölum Sameinuðu "skíta?" þjóðanna

Fyrri færsla

Áslaug Arna spyr hvort myndin sé við hæfi


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Borgþór Jónsson

Þetta eru flókin mál og hægt að horfa á þau frá mismunandi sjónarhornum.

Þarna ertu að vitna í Gallup könnunn um hverjir og hvert menn vilja flytja. Þetta er oftast mjög fátækt fólk sem vill bara flytja eitthvað og af einhverjumm ástæðum telja margir sér best borgið í Bandaríkjunum.

Ef við hinsvegar skoðum þá sem búa í Bandaríkjunum, þá virðist vera að þau séu hægt og bítandi að breytast í "shit hole" eins og sagt er. Ef við skoðum könnum Gallups frá 2017 ,þá hefur þeim fækkað um 20% sem telja sig hafa það gott í Bandaríkjunum, á síðustu tíu árum.

Þetta fleitir Bandaríkjunum í áttunda sætið yfifr lönd með vaxandi óánægju íbúanna á sftir Grikklandi ,Spáni og nokkrum álíka löndum. 

Ástandið er enn verra í Bretlandi,en þar hefur ánægðum fækkað um 23%.

Annað er upp á teningnum hjá Putin vini mínum,en þar hefur ánægja vaxið um 2% á síðasta áratug þrátt fyrir nokkuð bakslag á síðustu þremur árum,enda því landi stjórnað með hagsmuni almennings í huga.

Borgþór Jónsson, 15.1.2018 kl. 18:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband