Leita í fréttum mbl.is

Þegar sumir vildu að Ísland yrði "skítaland"

El Salvador var um tíma notað hér heima sem "flott dæmi" um ríki er einhliða tók upp mynt annars ríkis. En við það varð það þó bara enn meira og þrálátara "skítaland" en það var orðið þá þegar

20-25 prósent af tekjum landsins koma nú í formi heimsendra peninga frá þeim íbúum er flúðu skítinn heima fyrir í El Salvador og upp til Bandaríkjanna og vinna þar. Allt varð bara enn verra við það að taka upp mynt sem landið ræður engu um

Eru þeir þá skíthælar sem eftir slíku óska? Það segi ég ekki, þó svo að mig langi til að segja það. Sá hópur hér heima sem staglast hefur í 10 ár á því að Ísland sé "skítaland" vegna okkar eigin íslensku krónu, já hann hlýtur að flytja til El Salvador og finnast hann loksins vera kominn heim. Skemmst er að minnast til dæmis fyrrverandi fjármálaráðherra Íslands, Benedikts úr Viðreisn, sem kom á skítabol sínum og sendi sjálfri þjóð sinni fingurinn með því að haga sér sjálfur eins og skíthæll. Já, hann hlýtur að flytja líka

Hvað er í reynd að gerast?

Jú, Donald Trump forseti Bandaríkjanna er í reynd að reyna að minnka innflæði af fólki til Bandaríkjanna vegna þess að næstum allur heimurinn sækir þangað og það dæmi gengur bara alls ekki upp. Ólöglegir innflytjendur eru þó versta vandamálið vegna þess að þeir grafa undan því að Bandaríkin geti yfir höfuð haldið uppi réttarríki fyrir Bandaríkin sjálf og ríkisborgara þess. Og það var réttarríkið sem bjó til mannréttindi, en ekki öfugt. Það er forsenda mannréttinda

Ef þingið væri samvinnuþýðara þá myndu þessi mál vera afgreidd þar. En þingið er bara ekki samvinnuþýtt. Forsetinn er því að gera það sem hann sjálfur getur gert innan ramma laganna til að stöðva innflæðið með því að tala það niður og senda merki til ríkja sem eru svo mikil hörmung að þau sinna ekki frumskyldum sínum, sem eru að hugsa fyrst og fremst vel um sína eigin borgara, en ekki haga sér eins og "skítalönd"

Þetta er aðferð forsetans við að uppfylla kosningaloforð hans til kjósenda, án þess að þingið þurfi að koma þar að málum, því þar ríkir of mikil pólitísk-harðlæsing til að þingið geti tekið sig af málinu og unnið landinu það gagn sem það á að gera. Við þekkjum vel slíkt ástand hér heima í okkar eigin landi, þar sem þingið gerði sig óstarfhæft og framdi samsæri gegn þjóðinni. Ólafur forseti, takk!

Sem sagt: enn einu sinni sannast hér að stjórnarskrá Bandaríkjanna virkar eins og til er ætlast. Forsetinn má senda merki til umheimsins - og það gerir hann

Fyrri færsla

Lengi lifi apalýðveldi okkar


mbl.is Ummæli forsetans til skammar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lengi lifi apalýðveldi okkar

Tianasquare

Mynd: Leiðin inn í ormaveldið valin 1989

Það var í miklum mæli alþjóðlega stofnana- og fjármálakerfið sem stjórnaði heiminum frá og með falli Sovétríkjanna og fram til endurkomu Rússlands til sögunnar og falls Lehmansbræðra bankans haustið 2008. Og það var einmitt þar sem alþjóðlega stofnana- og fjármálakerfið hætti að stjórna heiminum, pakkaði saman og varð að svo gott sem engu, stjórnarfarslega séð. Sovétríkin sem einnig voru orðin að engu, snéru hins vegar á sama tíma aftur til sögunnar sem Rússland. Og endurkoma þess varð skyndilega mjög svo áþreifanleg á sál og líkama verulega margra. Þetta hafa margir varla fattað, því þeir halda að sumu leyti enn að hagfræði (ha ha ha) og bankar- og alþjóðavæðing (ho ho ho) séu enn stjórnarform við völd, en þetta tvennt er það bara alls ekki. Í dag er það hernaðarmáttur og þjóðarhagsmunir sem stjórna í heiminum og þeim mætti stjórna ekki bankar, heldur apar eins og ég og þú

Hitt stjórnarformið sannaði sig sem verandi orðið alþjóðlega ormaveldið. Það veldi sást síðast við völd hér á jörðu niðri seint á miðöldum. Þá var alþjóðlega ormaveldið kóngar og hirðir, konungaherir og klerkaveldi undir páfum. Þetta lið gat allt það sem ormaveldi fjármála- og alþjóðastofnana gat fyrir hrun; Ferðast hvar sem var og hvert sem var, og látið bera sig hvenær sem var, gratís. Öllum var skylt að fóðra þá, bera þá, hlusta á þá, segja amen og lifa samkvæmt þeim. En svo kom breska iðnbyltingin og leysti litla manninn úr læstum 50 kílómetra átthagafjötra-radíusi frá heimili hans, þ.e. okkur apana. Og í dag stjórnum við aparnir Íslandi og Bandaríkjunum sem stjórna heiminum. Við erum apaplánetan. Evrópusambandið er ekki með á þeirri plánetu, það er bara stjórnlaust ormaveldi

Það var einnig ormaveldi sem tók stjórnina í vissum hluta heimsins þegar annað og miklu betra stóð til boða - og sú öfuguggastjórn kallaði að mörgu leyti fram endalok ormaveldis nútímans og valdatöku okkar, apanna. Þetta var Kína. Það land stóð frammi fyrir tveimur afgerandi valkostum árið 1989, úti á miðju Torgi hins himneska friðar. Fyrirsjáanlega -eins og Sovétríkin voru óaðfinnanlega alltaf- valdi Kína leið ormsins inn í framtíðina. Það valdi ofbeldið, kúgun og steingeldingaríkið og einræðið. Af ormum er því Kína komið og að ormum mun það verða

Flotaveldi Ronalds Regan var 600 herskip. Sótsvartur Obama fór skilningssljór og visku rúinn frá borði aðeins 300 skipa. Trump þreif af honum stýrið og er að snarsnúa skipum okkar frá svörtum kúrs yfir í sól og jól í skipasmíðastöðvum

Og hananú. Áttu meiri harðfisk? Sem sönnunargagn býð ég endalok 14 ára áskriftar minnar að Financial Times, hún endar á morgun og verður ekki endurnýjuð. Ormablaðið það nenni ég ekki að lesa á lengur. Ég skipti yfir í Telegraph, held Wall Street Journal áfram og auðvitað Mogganum. Íhaldið ég. Andrés Önd er orðið svo miklu betra en Financial Sjibbólet Times. Lengi lifi apalýðveldi okkar Íhaldsmanna. Og sannir apar hafa nóg af þyrlum í landhelgisgæslum, en ormar kunna ekki að fljúga. Ert þú nokkuð ormur?

Fyrri færsla

Óheiðarleiki Angelu Merkel og SPD í lofslagsmálum


Óheiðarleiki Angelu Merkel og SPD í lofslagsmálum

Hreyfimynd: Fyrirsjáanleiki Merkels tekinn föstum tökum. Hér í meðförum hinna engilsaxnesku

****

Í gær bárust þær fréttir frá Þýskalandi að það liti betur út með stjórnarmyndun í þeim könnunarviðræðum sem fram fara á milli CDU-flokks Angelu Merkels og sósíaldemókrata (SPD), vegna þess að formönnum beggja flokka hefur tekist að afgreiða strax svo kölluð loftslagsmál með því að vera sammála um að engum markmiðum um losun svo kallaðra gróðurhúsalofttegunda verði náð. Hvorki þeim markmiðum sem Þýskaland setti sér einhliða sjálft, né þeim sem svo kallað Parísarsamkomulag snýst um - á plötuspilaranum

Þýskir segja nú að í loftslagsmálum hafi Donald J. Trump komið mjög heiðarlega fram en Þýskaland afar óheiðarlega. Búist er við brjálun svo kallaðra "umhverfissinna" í Þýskalandi vegna þessa máls í þessari annarri lotu stjórnarmyndunarviðræðna á byrjunarstigi í stjórnlausu Þýskalandi

Auðvitað ráða pólitískar staðreyndir hér för, þó svo að kjósendur hafi viljandi verið fylltir upp af blekkingum. Sósíaldemókratar þora ekki að horfast í augu við kolaknúna kjósendur í austurhlutum landsins og Angela Merkel þorir ekki að horfast í augu við kolaknúin fyrirtæki landsins sem hún myndi gjaldþrjóta með yfirlýstri dellu sinnu í þessum málum, og einhliða fljótfærni sem hún seldi græningjum um lokun kjarnorkuvera í fjölmiðlavænu samúðarkasti með Japan, sem er hinumegin á hnettinum

Þannig að bæði hið hlægilega og fjölmiðlavæna Parísarsamkomulag og eigin yfirlýsingar Þýskalands í þessum efnum eru svo sprenghlægilegar að Donald Trump hlýtur að kveinka sér af hlátursverkjum á leið sinni með Bandaríkin áfram. Og Bandaríkin eru nú orðin næstum eina tekjulind fjölmiðla veraldar á ný. Þetta er bara byrjunin hjá Trump, og það vita þeir vel, þessir svo kölluðu fjölmiðlar

Rauðgrænir eru blaðamenn í Þýskalandi flestir og höfðu þeir því miklu meiri áhuga á kollsigldum stjórnarmyndunarviðræðum Merkels, FDP og græningja. En í millitíðinni hefur þýskur almenningur, samkvæmt könnun ARD, misst trúna á hugsanlegri allsherjarsamsteypustjórn CDU/CSU og SPD. Og innan SPD er hræðslan orðin svo mikil við enn eina þannig stjórn, að ég tel eins víst að boðað verði til nýrra kosninga í landinu í vor -og þær haldnar næsta haust- þar sem hin laskaða og lamaða Angela Merkel verður ekki með á neinum lista. Hún verður hreinsuð út, vegna aulaháttar sem henni einni er lagið

Brandarinn í pylsuendanum varðandi samkomulag flokkanna um að engum markmiðum í loftslagsmálum verði náð, er sú afsökun Merkels að holskefla innflytjenda, farand- og flóttamanna geri það að verkum að erfiðara hefði verið að ná settum markmiðum en ella, hefðu þau verið látin standa. Það var hún sem bjó þá hörmung til sjálf. En markmiðin standa þó áfram á hljómplötunni með Parísarsamkomulaginu. Og hún verður spiluð áfram. Sirkusinn snýst áfram um sjálfan sig - eins og MeToo sem Catherine Deneuve hefur nú tosað nærbrækurnar af og rassskellt. Glæsileg er hún konan sú

Þetta er allt saman sprenghlægilegt, svo ekki sé minna sagt, en mjög svo fyrirsjáanlegt. Dulbúin aðförin að Bandaríkjunum er að renna út í sandinn

Fyrri færsla

Svíþjóð orðin skít-hrædd


Svíþjóð orðin skít-hrædd

Einu sinni enn hafa Kúrekarnir verið sóttir Evrópu til bjargar. John Fogerty styður auðvitað Donald J. Trump, hvað annað?

****

Það er með eindæmum að hlusta sjálfskaparvítisvolið sem kemur frá Svíþjóð um þessar mundir. Hræðslan við innlimun hluta Svíþjóðar í Rússland hefur allt í einu ekkert minnkað þrátt fyrir að Svíum af Svíum og ESB væri sagt að innlimun þeirra í Evrópusambandið 1994 væri "eini valkosturinn" við það að vera í bandalagi við hábölvuð Bandaríkin. Svíar eru orðnir verulega hræddir um að Rússland ráðist á land þeirra, þrátt fyrir að landið hafi til rústunar verið innlagt á Evrópusambandshælið frá 1994

Nú fer að líða að því að Múhameðstrúarlöndin í Svíþjóð neiti að viðurkenna Stokkhólm sem höfuðborg Svíþjóðar og flytji sendiráð sín til Malmö. Þaðan geta síðan pólitískt trúarlegar stofnanir hinnar nýju höfuðborgar Nýju norðausturlanda náð með eldflaugum sínum bæði til Stokkhólms, Kaupmannahafnar og í neyðartilfelum til Helsinki

"Alþjóðasamfélagið" mun svo ávíta Stokkhólm fyrir aðför að rétttrúnaði, sem er réttur en Stokkhólmur rangur. Svíþjóð verður að sjálfsögðu gert að klippa á öll tengsl sín við Norðurlönd. En bíddu, kannski verður það öfugt

Munu Pólverjar koma Svíþjóð til bjargar? og bjóða því inn í Intermarium, sem Donald Trump vígði ósýnilega sýnilega formlega í Varsjá síðasta sumar. Það er stóra spurningin

Ekkert hefur komið út úr vist Svíþjóðar í Evrópusambandinu annað en tært helvíti. Nálagst nú hin árlega heimsókn ECB-aukaseðlabanka Þýskalalands til nýlendunnar Svíþjóð, til að gera þar hina annaðhvort árslegu úttekt seðlabankans á því hvernig landinu gengur með að taka upp stálfátæktarevrur Þýskalands. Konvergens-rapppppport 2018 kemur svo út í júní, því sú síðasta var fyrir árið 2016

Tengt

Stærsta æfing sænska hersins í 20 ár hófst í dag. Edrúsaft sent til Stokkhólms (September 2017)

Fyrri færsla

Vírusvörnin sem reyndist njósnahugbúnaður


Vírusvörnin sem reyndist njósnahugbúnaður

Vegna þess að stýrikerfið Microsoft Windows er stórgölluð vara frá fæðingu, þá hefur notendum þess frá blautu barnsbeini verið kennt að það þarfnist lækna- og hjúkrunarliðs úti í bæ í formi vírus-, svika- og bragðavarna, sem í daglegu tali er kallað "vírusvörn". Windows þolir ekki notkun og er hannað til að bregðast

Sú vörn skannar hvaða gögn og hugbúnaður er á tölvum og segir þær "sýktar" ef hugbúnaðurinn finnur hlut sem til er í minnisbók hjúkrunarliðsins sjálfs um þekktar óværur. Ef óværan stendur ekki í minnisbókinni og er þar með henni "óþekkt", þá finnur hjúkrunarliðið ekkert, sama hversu sneisafull tölvan er af banvænum forritum og tortímingargögnum. Og hjúkrunarliðið finnur að sjálfsögðu ekki sig sjálft, því það er fyrirfram bólusett við sjálfu sér, þó svo það sé tölvunarlegur svartidauði fyrir alla aðra

Nú er komið í ljós að vírusvarnarfyrirtækið Kaspersky er sennilega njósnafyrirtæki og að hugbúnaður þess situr á 400 milljón tölvum um allan heim. Þetta segir í Wall Street Journal á laugardaginn í greininni; How Kaspersky’s Software Fell Under Suspicion of Spying on America

Þingnefnd í Bandaríkjunum hefur tekið málið fyrir því hugbúnaður Kaspersky, sem er rússneskt hugbúnaðarfyrirtæki, hefur setið á tölvum starfsmanna ríkisins. Bandarískir sérfræðingar segjast ekki myndu vilja hafa þennan hugbúnað á sínum tölvum lengur. Þessi grein er stórmerkileg lesning

Forstjóri fyrirtækisins, Eugene Kaspersky, var menntaður í KGB-styrktri dulkóðunarstofnun Sovétríkjanna sem hét Institute of Cryptography, Telecommunications, and Computer Science og útskrifaðist þaðan 1987

Hér heima

Í gær kom í kvöldfréttum DDRÚV íslenskur einfeldningur á vegum "gagnavers" hér á landi. Hann hafði þar með boðið öllum heiminum í heimsókn í gagn- og gamansver sitt og auðkennt fyrir öllum heiminum hvar öll gögn íslenska ríkisins í vissum málum sitja í byggingu hans - og á hvers gerðar tölvunarplatformi þau eru vistuð, höfð og unnin. Gjörið svo vel heimur

Þarna fenguð þið að sjá tölvunarheiminn í hnotskurn. Hann er fullur af svona sakleysingjum og bjartsýnismönnum. Enginn með fullu viti býður heiminum í heimsókn í alvöru gagnaver. Þangað fær engin inn að koma og allra síst fjölmiðlar

Þegar svo allt bregst, veldur skaða og kostar jafnvel mannslíf þá er kallað á svartsýnismennina með hóflega ofsóknarbrjálæðið og þeir látnir um að elta glæpagengi og hryðjuverkamenn uppi, því bjartsýnismennirnir finna þá aldrei og eru bara gjaldþrota heima í sófa, klórandi sér í hausnum. Þeir eru sérfræðingarnir

Fyrri færsla

Ný iðnbylting krefst auðvitað byltingar


Ný iðnbylting krefst auðvitað byltingar

Work Done in 1930 original

Verktakafyrirtækið Inc. auglýsir: "Unnin verk okkar á árinu 1930". Donald J. Trump er að sjálfsögðu verktaki. Borgarastyrjöldinni í Bandaríkjum lauk árið 1865, en aðeins 50 árum síðar framleiddu Bandaríkin helming alls þess sem framleitt var í heiminum. Kína er landfræðilega rústuð rauðspretta

****

Engin iðnbylting hefst á öskuhaugunum. Í síðustu viku var heiminum gert ljóst að svo alvarlegir gallar eru í öllum örgjörvum er knýja næstum alla tölvun í heiminum, að vonlaust er að bæta úr svo gott sé nema með því að henda þeim á haugana. Og þetta er einungis byrjunin á því sem koma skal og stýrikerfi tölvunar eru einnig ónýt. Það er þetta drasl sem misvitrir stjórnmálamenn nútímans eru að nota í pólitískum áróðri sínum, eins og þeir gerðu þegar þeir sögðu okkur að dísilvélar í bifreiðum væru nýr guð. Nýjasti guðinn þeirra átti hins vegar að vera sjálfkeyrandi. Keyrt hefur hann sig nú í þessa klessu

Tölvunar-koncept sem byggir á því að öll núll og allar eittur séu eins, á litla framtíð fyrir sér. Þannig tölvur geta ekki vitað hvor þær eru að drepa eiganda sinn eða þjóna honum. Og þannig eru tölvur í dag: þær geta ekki vitað hvort þær eru að keyra vírusa og glæpi eða ekki. Þær munu aldrei skilja á milli löglegra og ólöglegra aðgerða. Líkami okkar lifir af því að hann veit hvað hann má og má ekki samþykkja sem góðar og gildar bakteríur og veirur

Ný iðnbylting krefst einnig þess, ef hún á að byggja á tækni, að þénusta hennar byggist ekki á ódýru vinnuafli hinumegin á hnettinum. Þrælahald er ekki bylting og alþjóðavæðing er hvorki bylting né framfarir. Hún er afturför

Nýju föt keisarans taka á sig ýmsar myndir. Allt frá túlípönum til dot.com og sjálfkeyrandi battería - með ónýtri tölvunartækni. Það er að segja:  Sjálfsmorðið H/F

Fyrri færsla

Donald J. Trump gerbyltir heilbrigðiskerfum Vesturlanda


Donald J. Trump gerbyltir heilbrigðiskerfum Vesturlanda

Þetta er með eindæmum. Eftir að sérfræðingaveldi Vesturlanda -og einræðisherra eindæmi Evrópusambandsins- missti algerlega tökin á öllu því sem það hélt að það héldi traustum tökum um, með því að klessa veröldinni og kollvarpa henni algerlega í mörgum löndum, með hruni mest laga- og regluvædda bransa sama hluta heims -á eftir óheilbrigskerfunum- það er að segja sjálfum fjármálageiranum, já þá standa menn nú á öndinni yfir því að aðeins einn maður geti umbylt öllum óheilbrigðiskerfum sama heimshluta yfir í það að vera alvöru heilbrigðiskerfi

Maðurinn sá eini heitir að sjálfsögðu Donald J. Trump. Hann, já bara hann, getur þetta. Hann er búinn að spara skattgreiðendum þessa heimshluta ofboðslegt fé með því að taka heilbrigðisgeirann svo í gegn, að nú þurfa sérfróðir læknar (já sérfræðingar) ekki lengur að hitta sjúklinga sína né hvað þá heldur að tala við þá. Það er nóg að senda þeim bara mynd af sjúklingnum í snjallsíma. Sérfróða geðlækna- og sálfræðingastéttin er hér með orðin fær um að gefa út sjúkdómsgreiningu á fólki bara við það eitt að sjá ósamsetta og jafnvel samsetta ljósmynd af sjúklingnum. Sjúkdómsgreiningin kemur síðan í kvöldfréttum og hún er endanleg. Þetta er ofboðsleg framför, því nú þarf enginn lengur að efast um að 100 milljarðar drepnar klukkustundir Sigmundar Freud, voru einmitt bara fraud (svindl). Og var sú þekking þó þegar orðin óhagganleg staðreynd. Freud var tóm tjara

En það er þó strax komið að minnsta kosti eitt babb í bátinn. Stéttarfélag algerlega sérfróðra "geðlækna- og sálfræðinga" í Danmörku, hefur ávítt þar í landi búandi slíkan "lækni" fyrir að grafa undan sérfræðingaveldi "heilbrigðisstéttanna" með því að fjargreina þann eina mann sem umbyltir hér stétt þeirra með þessum hætti

Hvað skyldu þeir forhertu þorskhausar er hanga til þerris í hjalli íslenska utanríkisráðuneytisins segja við þessu?

Einu sinni voru til hellismenn. Þeir bjuggu í hellum. Og þeir krotuðu heimsmynd sína á hellisveggina og þær hafa fundist og jafnvel verið gefnar út í prentuðum bókum. Ekkert hefur samt breyst síðan þá. Allt er við það sama þrátt fyrir fossandi mikið meira fé. Enn hakka menn á sömu blaðsíðunni og selja fólki sömu gömlu snákaolíuna og þeir gerðu í hellunum. Og undir hinu sama gamla verndaða vörumerki: snákaolía sérfræðinnar

Fyrri færsla

Tölvuárásum verði svarað með kjarnorkuvopnum. "Fjórða iðnbyltingin" skollinn á


Tölvuárásum verði svarað með kjarnorkuvopnum. "Fjórða iðnbyltingin" skollinn á

Nýr þáttur í þjóðaröryggisstefnu Bandaríkjanna

Bandaríkin eru að uppfæra þjóðaröryggisstefnu landsins. Gefið er til kynna að breyting verði á því hvernig tölvuárásum sé svarað. Frá og með nú geta þeir sem gera tölvuárás á Bandaríkin átt á hættu að þeim sé svarað með hefðbundnum vopnum (off-line), en ekki stafrænum aðgerðum. Kemur nú einnig til greina að þannig árásum verði svarað með kjarnorkuvopnum, ef þær valda það umfangsmiklum skaða að hann sé hægt að setja í flokk með þeim skaða sem víðtæk hefðbundin hernaðarárás veldur. Þeim flokki árása getur því undir nýrri þjóðaröryggisstefnu verið svarað með kjarnorkuvopnum

Dæmi: Norður-Kórea gerði tölvuárás á innviði Bandaríkjanna með því að taka hluta þeirra í gíslingu og krefjast lausnargjalds sem greitt var með tölvumyntinni bitcoin. Talið er að árásin hafi aðeins verið forsmekkur eða sýnishorn -eins og sum eldflaugaskot landsins undanfarið- á því sem það land er í standi til að gera við önnur lönd og innviði þeirra, með tölvum. Með því að segja að kjarnorkuvopn verði ekki aðeins notuð sem svörun og vörn gegn þeim sem gera kjarnorkuvopnaárás á Bandaríkin, eða stórtæka árás með hefðbundnum vopnum, er verið að segja að hlutfallsleg svörun með bæði hefðbundnum vopnum og kjarnorkuvopnum eigi einnig við um árásir á innviði landsins með tölvum. Umfang skaðans mun ráða til hvaða vopna verður gripið. Þetta fær kannski einræðisherra Norður-Kóreu til að hugsa sig aðeins um áður en hann sleppir stafrænum herdeildum sínum lausum næst, með aðstoð annarra ríkja

Kínverski einræðisherrann fær innanríkisher til einkaumráða

Ákveðið hefur verið að 1,5 milljón manna innvortis herlögregludeildir Kína falli ekki lengur undir hefðbundna herstjórn landsins né heldur undir nein önnur ráðuneyti eða stofnanir aðrar en sjálfan einræðisherrann Xi Jinping. Nú þarf einræðisherrann ekki lengur að deila völdum yfir þessum her með neinum öðrum í ríki sínu. Áður fyrr gátu ríkisstjórnir landshluta kallað á þennan lögregluher. En þar sem hann hefur nú verið færður undir æðstu pólitísku miðstjórn hermála, sem Xi Jinping stýrir sjálfur, þá er hann sá eini sem sigað getur hernum á hvern sem er, hvenær sem er og hvar sem er í landinu. Og það mun hann þurfa að gera næstu mörg árin. Xi Jinping er nú orðinn fullhertur einræðisherra Kína. En sennilega þó ekki jafn hertur og þeir þorskhausar sem hanga til þerris í hjalli íslenska utanríkisráðuneytisins, því þeir hljóta einnig að hafa verið forhertir fyrst

EXTRA: Fjórða "iðnbyltingin" er skollinn á

Komið er í ljós að allir þeir örgjörvar sem sitja í nær öllum tölvum veraldar, innihalda framleiðslu- og hönnunargalla sem gera þær að gapandi ónýtu drasli með öryggislegum eldglæringum, sem einungis er hægt að tryggja sig gegn með því að henda þeim á öskuhaugana. Þessu greinir Financial Times frá í dag. Þar mun þessi tölvunartækni svo iðnbylta heimsbyggðinni í sjálfkeyrandi ruslahrúgur með rottur við stýrið. Sérstaklega á þetta við um nýjustu föt nakta tölvunarkeisarans, sem kölluð eru "skýjatölvun" (e. cloud computing)

Svar svo kallaðra "sérfræðinga" við þeim göllum sem eru í nær öllum örgjörvum er knýja tölvu- og snjallsímatækni veraldar, ásamt ótal mörgu fleiru er það, að eina vörnin gegn þessari fjórðu eða jafnvel fimmtu iðnbyltingu sé að skipta öllum tölvukerfum heimsins út. Hvorki meira né minna. Henda þeim á haugana

En það er samt ekki hægt að skipta út vélbúnaðinum, segir svo annar "sérfræðingur", því kostnaðurinn við að skipta honum út myndi koma flestum fyrirtækjum á hausinn. Þetta er sem sagt alveg ný og sjálfkeyrandi iðnbyltíng

Það er ekki að ástæðulausu að ég hef lengi sagt; Tölvunarbransinn kominn í dauðastríð

 

Fyrri færsla

Vandamálin á Kóreuskaga í hnotskurn


Vandamálin á Kóreuskaga í hnotskurn

Í reynd er erfiðasta vandamálið ekki sjálf Norður-Kórea. Það mál er að sjálfsögðu mjög slæmt, en verra er að það er Suður-Kórea sem allt snýst um, ef ráða á niðurlögum þeirrar bráðu hættu sem heimshlutanum og jafnvel veröldinni allri stafar af Norður-Kóreu

Norður-Kórea á nokkuð voldugan bandamann og hann heitir Kína. Hernaðaráætlun Norður-Kóreu gengur út á að þrýsta Bandaríkjaher burt af Kóreuskaga og þar með að raska valdahlutföllunum sér í hag og láta síðan tímann vinna með sér við að sameina Kóreu undir merkjum einhverskonar Norður-Kóreu. Og þarna renna hagsmunir Norður-Kóreu og Kína saman í eina allsherjar geopólitíska fullnægingu

Suður-Kórea hefur hingað til neitað að samþykkja hernaðarlausn sem leggja myndi veldi Norður-Kóreu í gips og fatla, með því að kjarnorkuvopnaáætlun hennar sé endanlega stöðvuð. Þarna er Suður-Kórea að vinna gegn trúverðugleika Bandaríkjanna í heimshlutanum og sem eru eina aflið er verndað getur heimshlutann gegn síseytlandi, æ meira umfaðmandi og ömurlega neikvæðum ógnaráhrifum einræðisríkis Kína. Þetta er sérstaklega ógnvænleg þróun fyrir Japan, því ef Bandaríkjunum er þrýst af Kóreuskaga, þá stendur ekkert lengur á milli Japans og annars vegar Kína og Norður-Kóreu. Miklu fleiri ríki í heimshlutanum eru einnig í hættu, ef valdahlutföllin raskast Bandaríkjunum verulega í óhag. Höfin í heimshlutanum verða ekki lengur örugg. Og enn sunnar eru Ástralía og Nýja Sjáland, sem hugsa sitt. Öndunarfæri beggja eru Kyrrahaf, þ.e. þau eru utanáliggjandi. Japan þarf til dæmis að flytja á þessum höfum inn öll hráefni sem það notar og svo skipa öllu út sömu sjóleiðir

Bandaríkin eiga afar erfitt með að vaða yfir vilja núverandi ríkisstjórnar Suður-Kóreu og hefja einhliða eyðileggingu á kjarnorkuvopna-apparati Norður-Kóreu, því höfuðborg Suður-Kóreu er í gíslingu stórskotaliðs Norðursins. Varnarmálaráðherra Bandaríkjanna hefur þó gefið til kynna að hægt sé að komast hjá borgaralegu mannfalli, þó svo að Bandaríkin grípi til vopna til þess einhliða að vernda þjóðaröryggi sitt óháð öllu öðru, sem er frumskylda hvers einasta þjóðkjörins forseta er þar situr, sama hvaða nafni hann nefnist. Úti er um þann forseta sem hættir sér of langt í þolinmæði vegna eins bandamanns sem stendur í vegi fyrir þjóðaröryggi Bandaríkjamanna. Og hernaðargeta Bandaríkjanna til að glíma við þetta mál er margföld. Hún er þarna til ráðstöfunar í einmitt svona málum

En það er meira. Suður-Kórea mun snúa sér í átt til Kína ef Bandaríkin missa þolinmæðina eftir lausn án ofbeldis. Og þar með gengi draumur Norður-Kóreu í uppfyllingu án þess að hún sjálf hafi þurft að lyfta litla fingri til að koma brottför Bandaríkjahers af Kóreuskaga í kring. Sunnar svitnar Japan vegna þessarar hættu og þróunar mála í ógæfuátt fyrir sig. Japan er því að vígbúast vegna þess að það efast meira og meira um að nógu öruggt sé að vera einungis undir varnarregnhlíf Bandaríkjanna, fyrst þau standa og geta lítið aðhafst vegna ríkisstjórnar Suður-Kóreu. Bandalag Suður-Kóreu og Bandaríkjanna er komið í verulega hættu

Allt hjal um þýðu vegna íþróttaleika er svæsin veruleikafirring. Þeir skipta hér engu máli og eru fullkomið sjónarspil eins og flest annað hingað til í þessu máli

Á meginlandi Evrópu er svipaður undirliggjandi valdahlutfallaleikur í gangi og þar er stóri óvissuþátturinn Þýskaland. Því landi hefur nú allt í einu dottið í hug að líta ekki lengur á Úkraínudeiluna sem verandi í djúpfrosti. Hvað gengur Þýskalandi til, spyrja menn. En sú spurning er einungis framkomin vegna fávísi. Þýskaland hefur alltaf verið og er enn algerlega óútreiknanleg stærð í Evrópu. Enginn veit í reynd hvar landið stendur. Þarna mun einnig hættuleg þróun valdahlutfalla verða, eins og sú sem við sjáum í Suðaustur-Asíu. Landmassi EvrópuAsíu og Austurlanda nær er að brotna upp. Það er að segja: Austurhvel jarðar er allt að riðlast, nema Indland. Spennið beltin

Fyrri færsla

Bandarísk verðbólga í Íran?


Bandarísk verðbólga í Íran?

Vesturlöndum: Um það bil er klerkaveldið tók völdin í Íran 1978/79 - og Margaret Thatcher þingmaður Íhaldsflokksins nýorðin forsætisráðherra Stóra-Bretlands. Gúlag þræla- og fangabúðakerfi sérfræðingaveldis Sovétríkjanna enn full af föngum. Samtals sextíu þúsund kjarnorkuvopn Bandaríkjanna og Sovétríkjanna stóðu klár andspænis hvort öðru

****

Það var svo sem auðvitað. Peningasekkirnir sem manngerður Obama losaði yfir Íran, hafa nú komið af stað mótmælum í landinu. Svo virðist sem seðlabrottkast Obama hafi valdið svo mikilli Friedman-verðbólgu (losun!), að algerlega ljóst er hvaðan hún kom; þ.e. frá sjálfum Obama! Þetta átti samt að vera órekjanlegt. En er það svo?

Nei. Það er náttúrlega auðvitað ekki svo, sillí ég

Lítið fjörleg mótmæli, eðli málsins samkvæmt, hmmm, hafa farið fram í landinu undanfarna sólarhringa. Hverju er verið að mótmæla? Jú verðbólgu og atvinnuleysi og sjálfri ríkisstjórninni. Og nú er úr vondu að ráða fyrir stjórnvöld landsins, því þeim hefur ekki enn tekist að sannfæra allan almenning um að verðbólgan sé óvininum Ameríku að kenna. Fólkið veit nefnilega vel að hún er heimatilbúin. Og sama er að segja um atvinnuleysið. Mun Íran detta í sundur? Nei, það þarf líklega mikið og miklu meira til

Allt í einu langar mig í dagatal með PinUp stúlkum. Sérstaklega þegar ég hugsa um þetta hér fyrir ofan. Hvað er að mér? Að banna svona dagatöl finnst mér jaðra við klerkaveldi. Er verndaðasta, öruggasta og velsælasta kynslóð mannkynssögunnar nokkuð að breytast í taugahrúgur af aulum. Ég bara spyr

Hvað er flottara en glæsileg PinUp stúlka sem hallar sér upp að nýjasta skrúfstykkinu frá Caterpillar, sem varð Dow Jones hlutabréf ársins 2017, númer tvö - á eftir Boeing

Æææi..

Fyrri færsla

Óútreiknanlegur kuldi


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband