Leita í fréttum mbl.is

Smölun hafin í Þýskalandi

USS Hopper DDG-70

Mynd: USS Hopper tundurspillir Bandaríkjanna

Þýskaland

Wolfgang Munchau skrifaði á þessa leið um Þýskaland í gær: Munið þið hvernig Jeremy Corbyn tókst gegn öllum líkum að verða formaður breska Verkamannaflokksins? Þeir lengst til vinstri í þeim flokki hófu smölun ungs fólks inn í flokkinn í aðdraganda formannskjörsins. Þetta er einnig að gerast hjá þýskum sósíaldemókrötum (SPD) núna í aðdraganda flokkskosninga um það hvort flokkurinn eigi að fara í ríkisstjórn með flokki Angelu Merkel, eða ekki, að loknum formlegum viðræðum um stjórnarmyndun. Engar kröfur eru gerðar um að þeir sem kjósa hafi verið flokksmeðlimir í lengri tíma en til dæmis einn dag fyrir þann dag sem flokksforystan ákveður samkvæmt eigin höfði að sé síðasti dagur til að ganga í flokkinn fyrir kosningar um málið. Die Welt segir að í gangi sé massíft innflæði af nýjum meðlimum í flokkinn frá því að þingkosningar fóru fram, sem er í hlægilegri mótsögn við þá verstu útreið sem flokkurinn þar hlaut frá stríðslokum. Þetta gæti styrkt hinn óvinsæla Martin Schulz formann flokksins í sessi og innaustur af lengst til vinstrimönnum gæti jafnvel komið því um kring að SPD losni við Angelu Merkel fyrir fullt og allt, með því að fella stjórnarsamstarf, sem þýða myndi nýjar þingkosningar í haust. Samkvæmt skoðanakönnun Spiegel eru 51 prósent Þjóðverja mjög neikvæðir eða neikvæðir í garð slíks stjórnarsamstarfs SPD, en einungis 16 prósent segjast ánægðir, ef af því verður

Bretland

Gengi breska sterlingspundsins gagnvart Bandaríkjadal er nú á svipuðu róli og það var þegar Bretar kusu í júní 2016 í þjóðaratkvæði að yfirgefa Evrópusambandið. Og stærsta hlutabréfavísitalan stendur 25 prósent hærra en þá

Bandaríkin

USS Hopper stýriflaugabúinn tundurspillir bandaríska sjóhersins sigldi fyrstu sjófrelsis- og hafréttar siglingu ársins inn á það hafsvæði sem Kínverjar segja að sé nú innan landhelgi þeirra, umhverfis gervieyjar í Suður-Kínahafi sem þeir hafa dælt upp með sanddælum og staflað eldflaugum ofan á. Sigling bandaríska flotans þykir koma mun fyrr en gera mátti ráð fyrir, en hún var sigld 17. janúar. Taívan og Filippseyjar gera einnig tilkall til hafsvæðisins. Ný þjóðaröryggisstefna Bandaríkjanna hefur skilgreint Kína sem mikilvægustu ógn er steðji að vestrænum lifnaðarháttum og þar með fyrst og fremst Bandaríkjunum. En einnig er búist við að Bandaríkin herði varðstöðu sína gagnvart Evrópusambandinu og sérstaklega Þýskalandi, vegna yfirþyrmandi ójafnvægis í viðskiptum þeirra við heiminn utan -og jafnvel innan- Evrópusambandsins. Mörg evrulönd eru að þar að þrotum komin

Fyrri færsla

Þegar gamla Sovétið átti að verða stærst. Í dag er það Kína


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Unga fólkið er framtíðin og nú vill VG lækka kosningaaldurinn. Þeir hafa líka fylgst með Corbyn.

Ragnhildur Kolka, 24.1.2018 kl. 18:55

2 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér Ragnhildur.

Kosningar snúast ávallt um nútíðina, hér og nú og þannig á það að vera, því það verður engin framtíð ef svona hörmuleg frjósemi vestrænna kvenna heldur áfram að loka á framtíðina. Þær íslensku eru einnig að gefast upp, sýnist mér, þær hafa það svo svakalega vont, versnandi verst og ferlega. Ömmur þeirra voru harðari af sér, enda höfðu þær það mikið betra en þessi vesalinga afkvæmi þeirra hafa það í dag.

Svo já.. bíddu aðeins.. meiri harðfiskur.. kaffi.. pípa.. og púff, við erum hér öll enn, en það syrtir í álinn því lengra sem reynt er að skyggnast inn í framtíðina án manna. Kannski unga fólkið vilji gefa þeim sem nenna að eignast börn landið okkar. Enginn mun erfa það því erfingjar verða svo fáir og algerlega gersamlega huglausir og hugsjúkir.

Kveðjur - og púff

Gunnar Rögnvaldsson, 24.1.2018 kl. 21:35

3 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Hér eru ógnirnar sem unga fólkið byr við í dag:

1. Æfingafíkn getur verið stórhættuleg

2. Hræðsla við að fitna

3. Sálfræðingur sem hefur yfir 2

Þetta er einungis örlítið sýnishorn af því sem er að gera útaf við ungt fólk í dag.

..ZZZZZzzzzzzz..

Gunnar Rögnvaldsson, 24.1.2018 kl. 21:47

4 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Allt satt og rétt sem þú segir, en ég er ekki að halda því fram að VG búi yfir kristal kúlu sem leyfir þeim að sjá inn í framtíðina. VG mun eflaust láta sér nægja að koma þeim á kjörstað í næstu kosningum.

Ragnhildur Kolka, 24.1.2018 kl. 22:24

5 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

"Heilinn nær ekki fullum þroska fyrr en eftir 20 ára aldur." - (þetta er tilvitnun úr áfengismálamálunum á Alþingi)

Svo, já.... bíddu aðeins.. meiri harðfiskur.. meira kaffi.. pípan.. púff.. já hérna kemur það.. já þeir sem halda fram þessu kjaftarugli með að lækka kosningaaldurinn enn frekar verða þá samtímis að lækka áfengisaldurinn. Það er klárt. Það er það eina sem getur bjargað okkur frá vinstrahvels heiladauða. Hella óþroskuðum heilabúum, en nú drukknum, ofan í kjörkassana. Eins konar afruglun. Þá gæti þetta reddast.

Er fólk þarna á þjóðarsamkundunni örugglega edrú? Ég bara spyr! Manni dettur ekki einu sinni í hug að reyna að hlusta á þetta.

Gunnar Rögnvaldsson, 24.1.2018 kl. 22:43

6 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Það hlýtur að vera barnlaust fólk sem leggur svona dellu fram um að lækka kosningaaldurinn enn frekar.

Þeir sem hafa átt táningadætur vita að heilabúi þeirra er drekkt í hormónum við 13-14 ára aldur og þær finna venjulega ekki heilabú sitt aftur fyrr en um 18 ára aldur. Táningadrengir eru öðruvísi. Þeir vita venjulega ekki fyrr en rétt um tvítugt að þeir hafa heilabú.

Gunnar Rögnvaldsson, 24.1.2018 kl. 22:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband