Fimmtudagur, 8. febrúar 2018
Drög að bráðabirgðastjórn komin í Þýskalandi?
Úr Þýskalandi berast þær "fréttir" að stjórnarmyndun tveggja pólitískra andstæðinga hafi tekist, gegn þeim sem eru enn meiri andstæðingar flests þess sem þeir tveir flokkar standa fyrir, eða í vegi fyrir, allt eftir því hvernig menn líta á stjórn-málin þar í landi, sem er öll Evrópa núna, að minnsta kosti eftir hádegi og fram eftir nóttu, alla ársins daga
Látið er líta svo út að flokkur Merkels hafi þurft að "gefa eftir" fyrir "kröfum" sósíaldemókrata, svo að blaðamenn skrifi einmitt það í skrifum sínum, til að auðvelda flokksmeðlimum SPD að afsaka fyrir sjálfum sér af hverju þeir í komandi atkvæðagreiðslu, eigi að svíkja þá sem kusu flokkinn í þingkosningunum út á loforð formannsins, um að fara ekki í enn aðra ríkisstjórn með pólitískum andstæðingum hans, því flokkurinn er einmitt núna að hverfa af yfirborði jarðar vegna tólf ára þannig hjónabands
Þetta kák gleypa svo kallaðir blaðamenn að sjálfsögðu og kák þetta halda þeir því að haldi bara endalaust áfram. En svo er alls óvíst, því um sjálft líf þýska sósíaldemókrataflokksins er hér að ræða. Flokkurinn er að verða undir í samsteypusamsæri tveggja Líberalistaflokka um völdin. Sossar hafa gleymt rótum sínum með öllu og kristilegir demókratar eru fornleifar af því sem flokkur þeirra átti einu sinni að snúast um. Kristilega heitið á þeim flokki jaðrar við kímnigáfu kölska um sjálfan sig og ekkert demókratískt er við þann flokk lengur. Pólitískt lögmætt demos hans er kyrfilega svikið, fyrir ekkert demos Evrópusambandsins, sem hefur heldur ekkert ethos og allra síst neitt telos. Flokkurinn hýsir ekkert af stofnsáttmála hinna Heilögu ritninga þjóðríkja Vesturlanda. Lítið nema slæmt hefur komið út úr Þýskalandi frá stofnun þess 1871, sem var fölsk, þó svo að sjálft demos þess sé nokkuð pólitískt lögmætt
Wall Street Journal skrifaði í gær að SDP hefði byggt flóttaleið inn í stjórnarsáttmálann, með því að krefjast rétts til endurskoðunar hans eftir tvö ár. Ef það er rétt, þá er hér um bráðabirgðastjórn að ræða. Það besta sem gamla ESB-elítan gegn fólkinu í Þýskalandi getur hóstað upp, eftir 27 ára hörmungareið hennar yfir Evrópu
Ef ég væri Angela Merkel þá myndi ég í það minnsta fá mér annan jakka, því þessi sem hún á var, er og verður alltaf fúll
Fyrri færsla
Þýska stemmingin gerbreytt; en bara ekki í "ríkisstjórn"
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 7. febrúar 2018
Þýska stemmingin gerbreytt; en bara ekki í "ríkisstjórn"
Mynd: Flokkstákn þýskra sósíaldemókrata; limosína með innbyggðri "ostpolitik"
****
Eins og ég skrifaði um í gær, hefur meiri-hluti þegar fjarað undan þýskri "grand-samsteypu" þýskra sósíaldemókrata og kristilegra fornleifa demókrata, áður en hún gat myndast. Fornleifar kristni eru af sérfræðingum sagðar sjást enn á einni röntgenmynd í sjúkraskrá flokksins. En hvað um það..
Hverjum hefði fyrir fjórum árum dottið í hug að sitjandi Bandaríkjaforseti hefði það í hendi sér hvort að þýski sósíaldemókrata-flokkurinn myndi samþykkja sitt eigið sjálfsmorð eða ekki. En í aðalstöðvum Bandaríkjahatursins í Evrópu, Þýskalandi og Frakklandi, er nú litið svo á að Donald Trump hafi brugðist Evrópu með því að gera ekkert í heila tvo mánuði sem þjappað gæti þýskum sósíaldemókrötum saman að beinlausu baki Angelu Merkels, sem massafjölmiðlar Líberalista hafa kosið sem leiðtogleður hins frjálsa heims. Afsakið "leiðtogi" átti það að vera, en ekki kústskaft fullt af "soft power" - eða því sem á mannamáli heitir blautt púður er betra en ekkert. En þetta er staðan í dag
Allir lokafrestir stjórnmálaþýsku grand samsteypunnar eru liðnir án þess að neitt bóli á yfirlýsingum um hvers vegna ekkert gerist, annað en það sem þýsk dagblöð hlægja daginn út og inn að; sem er að ef þessi stjórn fæðist, þá sé tími hennar þegar liðinn
Þeir 30 þúsund nýir meðlimir sem gengið (hlaupið) hafa í flokk sósíaldemókrata undanfarna mánuði -lokafresturinn rann út í gær- ætla víst allir sem einn að segja nei við því að fara í ríkisstjórn með Merkel. Formaður sossa liggur nú á bæn alla daga um að Trump geri bara eitthvað sem afsaki það sem hann getur ekki afsakað fyrir neinum; að hann hafi neyðst til að fara í sjálfsmorðsstjórnina til að bjarga Þýskalandi frá Bandaríkjunum í nafni stöðugleika
Síðasta von hans er að stjórnarskrárdómstólinn ógildi kosninguna í flokknum um stjórnarsamstarf eða ekki. Það væri svo sem eftir þeim gervidómstól, að banna slíkt þjóðaratkvæði núna en ekki fyrir fjórum árum, en að þessu sinni í nafni stöðugleika gegn Bandaríkjunum og þýskum kjósendum, sem eru einkaþrælar þýskra elíta. Og hafa aldrei verið neitt annað og sem aldrei munu aldrei uppskera annað en hörmungar hennar
Skyldi einhvern tíma verða reistur minnisvarði um þýska sósíaldemókrata þá mun hann verða reistur af þýskum aðli, sem þökk fyrir að hafa skotið 1930 nýjum fótum undir allt meginland Evrópu á ný - í nafni gamla stöðugleikans
Fyrri færsla
Þýska "grandið" orðið að minni hluta
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 6. febrúar 2018
Þýska "grandið" orðið að minni hluta
Eins og ég skrifaði í athugasemd í gær:
"Þeim tveimur andstæðu flokkum sem standa að stjórnarmyndunarviðræðum í Þýskalandi (CDU/CSU og SPD), tókst ekki að standa við þann lokafrest sem þeir höfðu sett sér um að ná saman í síðasta lagi um síðustu helgi
Ný skoðanakönnun INSA í Þýskalandi sem birtist í gær og komst á forsíðu Bild, sker enn frekar af fylgi CDU/CSU-flokksbandalags Angelu Merkel. Það mælist nú með aðeins 30,5 prósent fylgi, en flokkurinn fékk 32,9 prósent í kosningunum þann 24. september í fyrra
Flokkur sósíaldemókrata (SPD) mælist með tapandi 17 prósent stöðu í dag og þokast fylgið neðar og neðar með hverri vikunni sem líður. Þeir fengu 20,5 prósent í kosningunum
Fylgi AfD, Valkostur fyrir Þýskaland, mælist nú 15 prósent, en þeir fengu 12,6 prósent í kosningunum. Bilið á milli þeirra og SPD er að verða ekkert. AfD er að verða næst stærsti flokkurinn í þýskum stjórnmálum"
Ja hérna. Samkvæmt þessari könnun er meiri hluti svo kallaðrar stórstamsteypustjórnar CDU/CSU og SPD horfinn. Gufaður upp. Þessir tveir flokkar eru orðnir að minni hluta í stað meiri hluta. Í þessari könnun fá þeir aðeins 47,7 prósent stuðning kjósenda. Það er ekki lengur neitt "grand" við þá "grand coalition", er það?
FAZ segir að enn séu þrjár til fimm vikur í að meðlimir SDP kjósi um hvort ganga eigi til samstarfs við CDU/CSU eða ekki - og þar með endanlega að kála flokknum, ef af verður. Sumir búast við að sú kosning verði kærð til stjórnarskrárdómstóls Þýskalands, þar sem þjóðaratkvæðagreiðslur eru samkvæmt lögum bannaðar. En ólíklegt þykir að sá gervidómstóll haldi öðru áfram en að drekka bara bjórinn sinn og plokka úr sér vitið, sem aldrei var þar
Þetta er að verða átakanleg staða í pólitískt lofttæmdu Þýskalandi. Sossar að hverfa. Summa stærstu flokkanna orðin að skuggamynd þeirra, þ.e. að minni hluta. Formaður sossa fífl. Fuglahærðan Merkel gengur við hækjur og óttast hvern dag sem rennur upp eftir beinlausri hryggsúlu hennar. Þið vitið, hún er sjálfur leiðtogi hins "frjálsa heims" fjölmiðla. Ha ha ha ha og fliss
Vofan AfD þarf ekki að gera neitt annað en að horfa bara á þessa flokka kála sér í sínu öryrkjabandalagi, sem passlegt er orðið fyrir Þýskaland, sjálft kústskaftið í NATO. Landið þar sem meðalaldur kjósenda er kominn langt yfir sextugt, þjóðin orðin líkamlega geld og sannarlega úrkynjað sýnishorn á safni evrópska elliheimilisins
Sú stjórn sem verður þarna mynduð, verður vissulega afmynduð útgáfa af þið vitið hverju: veruleikanum, sem fjarað hefur hratt undan. Þetta er það sem stjórnar Evrópusambandinu og ekkert annað; þorskur á þurru landi
Fyrri færsla
Pólitískt tómarúm í heiminum? Á Vesturlönudum?
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 5. febrúar 2018
Pólitískt tómarúm í heiminum? Á Vesturlönudum?
Mynd, Reuters: Heiðursvörður tók á móti James Mattis varnarmálaráðherra Bandaríkjanna í Hanoi í Víetnam 25. janúar 2018. Fyrsta bandaríska flugmóðurskipið frá stríðslokum árið 1975, mun leggja að í Víetnam í mars 2018. Ástæða: Víetnam þolir ekki Kína
****
Styrmi Gunnarssyni finnst það: Hann skrifar: Heimspólitíkin: Pólitískt tómarúm á Vesturlöndum - Kína bíður
En er það virkilega þannig? Reynum að gera dæmið upp:
Þýskaland er enn nokkuð stjórnlaust land, hálfu ári eftir kosningar. Beðið er eftir landinu. En á yfirborðinu er sagt að þessi bið-staða skipti ekki máli, því síðasta stjórn sé enn við völd. En þessi nýopnaða biðstofa -Grossdeutschland - í Evrópsku samhengi, er samt það sem allir kvarta yfir. Texas er ekki í þessari stöðu. Það er ekki í biðstöðu. Það þarf ekki að bíða eftir neinum því Bandaríkin virka og eru á fullu við leiðtog, hvern einasta dag ársins. Pólitískar erjur innanlands í því landi eru heilbrigðismerki. Verið er að lækna sárin eftir misheppnaða alþjóðavæðingu Líberalista og hreinsa þá út úr íhaldsflokki Repúblikana. Heimspressa Líberalista er því að breytast í salernissandpappír vegna sjálfvígsstefnu Líberalista*, sem sitja á nær öllum hobbí-snobb fjölmiðlum veraldar. (*Bleyjumerki)
Flokkur Angelu Merkel beið afhroð í kosningunum. Hið sama gerðist hjá stjórnaandstöðunni, sem sængaði hjá pólitískum andstæðingum sínum í 13 ár. Þessir tveir flokkar gerðu með sér eins konar bandalag um að kjósendur gætu hvergi umflúið þá. En kjósendur eru hins vegar flúnir núna, vegna meðal annars nýs Valkosts fyrir Þýskaland, og þeir eru áfram að flýja þá hvern einasta dag. Þess vegna er pólitíska tómarúmið svona mikið í Þýskalandi, að varla er hægt að koma saman nýrri ríkisstjórn. Fylgi þýskra sósíaldemókrata er nú komið niður í 17,5 prósent í könnunum. Það var 32 prósent árið 2012 og 41 prósent í kosningunum 1998
Bretland hefur yfirgefið hið sökkvandi skip Evrópusambands Líberalista og snýr til baka til róta sinna; þ.e. Anglosphere
Nýkjörinn forseti hins fimmta misheppnaða lýðveldis Frakkalands; já hann situr nú einmitt þar, "bara-heima", einn og einsamall á stórri og fallegri biðstofu og bíður eftir húsbónda sínum, Þýskalandi, og hrapar svo í vinsældum meðal þjóðar sinnar að þær eru nú jafnlitlar eða lítið-miklar og þær voru hjá Hollande á sama tíma liðnum frá kosningum. Sá forseti, Hollande, fór frá völdum með fjögur prósent vinsældir og tók sósíaldemókrata-flokk sinn með sér í gröfina
Þriðja stærsta kjördæmi ókjörins Þýskalands, Ítalía, er að detta af pólitískum hengslum og tengslum við rætur sínar, vegna hins bágborna efnahags landsins, sem evran hefur lagt að velli. Peningar Ítalíu eru á kistubotnunum uppi í Þýskalandi. Sú efnahagslega niðurlagningar-fabrikka sem evran er, hefur þar með náð djúpt inn til ítalskra stjórnmála, sem því eru í pólitískum krampaköstum. Svört framtíð blasir við Ítölum. Algerlega kolsvört
Spánn, fjórða stærsta hagkerfi ESB, er þessa stundina að rífa í tætlur stjórnaskrá sína, með hörmulegum afleiðingum. Katalónía vill yfirgefa landið sem er ekki lengur það land sem það hélt að Spánn væri. Lömun færist yfir og var hún þó næg fyrir vegna þess hve evran hefur rústað efnahagnum. Beðið er eftir skipunum frá Berlín
Finnland er að þrotum komið í Evrópusambandinu og það er skuggalegt hversu algjört efnahagslega frostið hefur verið í Finnlandi, samfellt síðustu 10 árin. Þetta var "fyrirmyndarríki" ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur, en staða þess er svipuð og Jóhönnu sjálfrar; engin. Grikkland þarf enginn að minnst á því allir vita hver staða þess er; hún er vonlaus, vegna evru og esb
Kína er að falla saman eins og uppblásnar lofbólur alltaf gera. Og þeir sem hafa trúað blint á landið munu bláir missa anda sinn, þegar í ljós kemur að stærð kínverska hagkerfisins er aðeins rúmlega einn þriðji hluti af uppgefinni stærð. Það sama og gerðist þegar Japan féll saman frá því að vera 17 prósent af hagkerfi veraldar niður í sex prósentin sem það er í dag. Og um þessar mundir eru japanskar framleiðsluaðferðir -töfraorð á sínum tíma- að hrynja saman sem fyrirmynd annarra. Og það sama gildir um þýskar framleiðsluaðferðir. Hver japanski forstjórinn fer rauður í andliti frá stjórn eftir annan. Það sama er líka að gerast í Þýskalandi. Gæðastjórnun bandarískra framleiðsluaðferða er orðin betri en beggja þessara landa. Mismunurinn á 17 og 6 prósentum, var froða sem búin var til með pólitískum og fjárhagslegum brellum
"Einn-vegur og eitt-belti" útþenslustefna Kína eru pólitískar sjónhverfingar ætalaðar til heimabrúks í því harðræði sem þar ríkir núna. Svipað og skemmtiferð Pútís til Sýrlands, vegna komandi kosninga. Nýr kínverskur alræðisherra er mættur til valda yfir Kína, sem annars dytti í sundur. Þetta "veg-og-beltis" fyrirbæri undirstrikar hins vegar aðeins vanda Kína. Í reynd er aðeins um að ræða "Enn einn stoppklossann eftir annan" á götum Kína til umheimsins. Landið er læst inni í sjálfu sér og getur sig hvergi hreyft nema með samþykki annarra. Það er og verður staðsett í miðju landfræðilegs tómarúms sem skilgreinir og ákveður stjórnmálin innvortis í Kína. Kína er eins og eyja með stjórnarfar sem heldur því ávallt sem lokaðri eyju, sem að öðrum kosti brotnar upp í eyjaklasa og sundrast. Að baki eyjunnar er landfræðilegur fangelsismúr Mongólíu og í vestur er einnig lokað. Suður-um-höf Kína, er verndar- og valdasvæði stærsta flotaveldi mannkynssögunnar; bandaríska sjóhersins, sem er eini flotinn í mannkynssögunni sem ræður og skilgreinir leikreglurnar á öllum höfum veraldar samtímis
Bandaríska þjóðríkið ræður með öðrum orðum því hver fær leyfi til að gera innrás og útrás hvert, og hvenær. Þegar Bandaríkin aðhafast lítið þá er það vegna þess að þau vilja láta lönd um kála sér með eigin hendi, eða hins vegar, vaxa og dafna. Eða þá vegna þess að þau eru að safna kröftum fyrir næsta gamlárskvöld, eins og í aðdraganda Síðari heimsstyrjaldar. Bandaríkin eru og verða aldrei einangrunarsinnar, einfaldlega vegna þess að þau geta það ekki. Þau eru einn þriðji af hagkerfi heimsins. Þau geta ekki hreyft litlu tá án þess að sú hreyfing hafi áhrif um víða veröld, algerlega óháð því hver forsetinn í Hvítu húsi og á þingi er
Það felst ákveðin strategía í því að láta aðra um að kála sér sjálfir og mæta svo til leiks og handjárna stöðuna með uppsöfnuðu ofurefli. En slíkt tekur tíma, því ekkert mikilvægt fær leyfi til að gerast í sjálfum bakgarði Bandaríkjanna, heima fyrir, heldur fer það allt fram á Austurhveli jarðar. Og það er einmitt sú stefna sem er þjóðaröryggisstefna Bandaríkjanna. Að láta "þá" um að kála sér sjálfir áður en "þeir" komast í aðstöðu til að sameina sínu vondu krafta gegn Bandaríkjunum. Já þeir eru vondir þeir kraftar og hafa alltaf verið. Þess vegna fjármagnaði Reagan til dæmis Íran og Írak samtímis, svo þau yrðu duglegri við að kála hvort öðru, því á meðan þau gera það, þá kála þau ekki Bandaríkjamönnum, þ.e. Amerykanski eins og Pólverjar segja. It just plain works
Tómarúm? Nei því fer fjarri. En mannkynssagan er þannig að á öllum tímum eru til lönd sem annað hvort eru að sökkva eða rísa. Í Evrópu er það Intermarium sem er að rísa vegna þess að Bandaríkin vilja það. Þau lönd sem eru að falla? Tja, þau útskýra sig sjálf, þegar grannt er skoðað - og menn hætta að trúa því sem stendur og sést í svo kölluðum fjölmiðlum. Það er svona sem breytingar ganga fyrir sig
Fyrri færsla
Framsóknarmenn hugi að mörkum sínum
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Laugardagur, 3. febrúar 2018
Framsóknarmenn hugi að mörkum sínum
Sjá frétt Morgunblaðsins að neðan:
Upplýsandi umræða í Jerúsalem: Yoram Hazony og George Weigel: "Modernity, Religion and Morality"
****
Hvernig má það vera að hægt sé að hafa menntað sig í sagnfræði og meiri sagnfræði og þýskum bókmenntum og svo einnig í "alþjóðaviðskiptum", en samt ekki vita neitt um heiminn sem hún býr í. Er þetta vísvitandi vitsmunalegur umskurður á mannkynssögunni og menntakerfi Vesturlanda, eða er þetta einmitt það sem er að á Alþingi í dag. Að þangað safnist fólk sem er hámenntað í heimsku. Manni ofbýður einfeldningsháttur af þessu dagi. Enn einn clueless komin á þing
Ætti þá ekki að banna bólusetningar barna líka? Þar er vopni stungið í varnarlaust barn og framandi efni dælt inn í líkama þess. Held að framsóknarmenn verði að endurskoða þessa dellu sína, nema að þeir vilji að kjósendur sturti þeim út með þeim fóstureyðingum sem þeir hafa lagt blessun sína yfir í stútfullu landi af getnaðarvörnum og steingeldum Líberalistum
Hvað er að þessu fólki? Veit það ekkert? Því ef þetta gengur fram þá mun enginn gyðingur geta búsett sig á Íslandi né fæðst hér af íslenskum foreldrum. Skömm okkar í meðferð á Gyðingum er enn sótsvört frá fyrri tíð. Hví þetta hatur og fyrirlitning á því góða fólki sem hefur gefið okkur svo mikið? Gyðingar gáfu okkur Vesturlönd
Held að Framsóknarmenn þurfi að fara að huga að mörkum sínum. Þeir eru hættir að þekkja muninn á sínu fé og annarra, enda hafa þeir brugðist stétt bænda. Brugðist fjárhirðunum Abraham, Jakob, Móses og Davíð. Allir saman sauðfjárbændur sem halda hjörð sinni saman, en sundra henni ekki. Sama hvaða baráttu það kostar
Fífl!
Fyrri færsla
iPhone-X sagan, "sérfræðingar og markaðir"
![]() |
Vilja stöðva frumvarp Silju |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Föstudagur, 2. febrúar 2018
iPhone-X sagan, "sérfræðingar og markaðir"
Uppgjör Apple H/F kom í gærkvöldi eftir lokun markaða og það var það besta í sögu fyrirtækisins. Ég hlustaði samviskusamlega á opinn símafund almennings-hlutafélagsins, eins og ég hef gert frá upphafi. Þetta fyrirtæki er ekki bara venjulegt fyrirtæki því það stendur ekki bara fyrir "bréfi", heldur heilum flokki eigna (e. asset class) á markaði og er í dag líklega verðmætasta fyrirtæki á plánetu okkar
Staðfestist nú hér að í þessum -og því miður flestum öðrum efnum- vita fjölmiðlar nákvæmlega ekkert um mörg þau mál sem þeir fjalla um. Þeir apa bara apið upp eftir öðrum öpum; þ.e. sérfræðingaveldi veraldar
iPhone X var vinsælasti síminn allan þann tíma sem hann var til sölu á síðasta ársfjórðungi, þvert á það sem stendur í frétt Mbl hér að neðan og einnig í flestum öðrum fjölmiðlum veraldar. Hverja einustu viku sló hann sölumetið á öllum mörkuðum. Hann var til sölu frá og með í nóvember, og það var ekki fyrr en eftir sex vikna harða reið að Apple hafði tekist að anna pantana-biðröðinni sem myndast hafði í vefverslun þeirra. Viku fyrir jól varð iPhone X svo fáanlegur í verslunum og allan janúar hefur hann verið söluhæsti síminn sem fyrirtækið er með á boðstólum
Þessi sími er að grunni til of fullkominn og tæknilega nýstrálegur til að greinendur skilji það. Nema náttúrlega að leikur þessara svo kölluðu "greinenda" sé sá hinn sami og hann hefur verið flest árin sem nýir símar frá Apple hafa komið á markað. Sá leikur hefst með því að (1) svo kallaður "viðskiptafjölmiðill" í Asíu (til dæmis Nikkei - Asian Review) kemur með "frétt" (fake news) um að íhlutaframleiðandi fyrir Apple sé að skera afhendingar til Eplisins niður um helming, vegna þess að hann seljist ekki. Þar næst (2) sýpur allt Wall Street umstangs-umhverfið hveljur til að tala bréfin í Apple niður, svo að (3) þeir geti lánað þau ódýrar til að selja þau til að koma þeim enn neðar. Svo reynast fréttir fjölmiðlanna nær undantekningarlaust rangar og Apple kemur með uppgjör sem sýnir að enginn fótur var fyrir neinu, og þá (4) hækka bréfin fljótlega aftur (eignahluturinn í fyrirtækinu) og orðróma-versmiðjan selur lánsbréfin með miklum hagnaði. Þetta er ferli sem endurtekið hefur sig eins og klukka frá og með árinu 2013, en þá varð hún reglubundið tikk-takk þvaður
En staðreyndin er sú að nær allir "greinendur" hafa aldrei skilið Apple sem fyrirtæki og þeir munu aldrei gera það, enda er það hið eina raunverulega hlutverk sannra tæknifyrirtækja að þau skilji ekki nokkur maður. Það er svo, vegna þess að þau eru einmitt trú sjálfum sér við það að vera harðkjarnatæknifyrirtæki og ekkert annað. Þau halda ekki fyrirlestra út um bæ og borg um hve snjöll þau eru. Og þau eru sem minnst að troða sér fram í aulapressu veraldar. Borða bara sínar kleinur og afhenda áratug eftir áratug nýjungar sem varla neinum manni hafði dotti í hug að þau myndu koma með. Um leið og greinendur skilja tæknifyrirtæki þá þýðir það, að þau eru þar með hætt að vera sönn tæknifyrirtæki
Þegar Apple opnaði fyrstu verslun sína árið 2001, var hlegið innilega að þeim af greinendum sem fjölmiðlar apa sitt ap upp eftir. Í dag er velta verslananna meiri en velta allrar miðasölu á kvikmyndir og leikhús (box office) í öllum heiminum. Vörulína Apple í verslunum fyrirtækisins byggir á aðeins sex vörum sem fyrirtækið framleiðir. Tölvur, tölvusímar og handtölvur og dóti í kringum þau
Apple var síðast bandarískra tæknifyrirtækja til flytja hluta framleiðslunnar til útlanda, því þeir trúðu á Bandaríkin og bandarískt vinnuafl. En þegar "allir" eru komnir þangað út, þá vandast málið samkeppnilega séð fyrir þá sem eru þar ekki. Það kæmi mér ekki á óvart ef að Apple yrði fyrst til að flytja framleiðsluna að mestum hluta til heim á ný - og nýstárgera hana einu sinni enn, því verksmiðjur þeirra í Bandaríkjunum voru einmitt mjög svo nýstárlegar þegar þær voru að mestu leyti þar
Við lifum á óöld sérfræðinganna og veldis þeirra sem klessti veröldinni í að því er virðist óbætanlega klessu árið 2009. Frá 1945 til 2009 tókst þeim að brenna veröldina svo af, að lítil von er til að heimurinn rétti úr kútnum með þeirra aðstoð. Þetta stóð sérfræðinga tók við af gamla aðlinum og kóngaveldinu, eftir að stutt hlé hafði verið á áhrifaveldi þess frá og með bresku iðnbyltingunni og fram til 1945, sem er hátímabil sjálfsákvörðunarrétts þjóða í mannkynssögunni. Eftir heimstyrjöldina var vegna fips, fums og gepólitískra atburða, ákveðið að "sérfræðingar" þyrftu að koma að stjórn heimsins því stjórnmálamönnum hafði fipast. En þetta var dellukenning sem átti við engar staðreyndir að styðjast. Nú hefur þetta sér-fræðingaveldi náð svo langt, að í stað þess að hringja í aðalinn sem yfirsmekksdómsvald yfir lýðnum, þá er hringt í örvita og einskis nýtt sálfræðingaveldi og næringar(skorts)fræðinga til að komast á klósett eða til að forða fólki frá því að deyja úr hræðslu við eitt hárfínt bein í fiski. Fólk er almennt orðið svo lamað af hræðslu að það er gangandi taugahrúgald í tískufötum
Ameríski draumurinn á meira að segja undir högg að sækja. En hann gerði konum til dæmis kleift að lita hárið sitt bleikt ef þeim sýndist svo, án þess að vera gert skylt að hringja fyrst í hirðina til að fá staðfestingu á því að slíkt væri þeim heimilt. Evrópa saup hveljur og kennir Ameríkönum um að hafa troðið inn á sig hamborgunum, pítsum, bleiku hári og stærri brjóstum. Allt saman fyrirbæri sem komust við illan leik til Evrópu, eftir að yfirdómaraígildi kóngaveldis álfunnar í formi menningar(fá)vita og sérfræðinga var spurður álits um hvort slíkt mætti. Bandaríkjunum var að sjálfsögðu skítsama um hvað evrópskir álfar átu og gerðu. Þeir átu bara sína kleinuhringi í hring og héldu áfram að lita hárið bleikt, stækka brjóstin og háma í sig óætið. Þeir höfðu frelsi til þess. En Ameríkönum kennir samt Evrópa um allt, eftir að öll álfan hafði beiðið í hlægilegri 30 ára biðröð eftir leyfi menningar- og sérfræðingaveldis álfunnar til að fá sér einn hamborgara
En þetta veldi er að hrynja í dag. Sérfræðingarnir reyndust ekki vera sérfræðingar. Þeir eru einungis enn ein nýju föt gamla keisarans. Miklar breytingar eru því í vændum þar sem rífa þarf heiminn upp úr forarsvaði sérfræðinnar. Og mun það í sumum löndum jafnvel leiða til blóðugra byltinga, því óefnið er orðið svo mikið að enginn hagvöxtur getur lagfært misþyrmingu sérfræðingaveldisins á þjóðum Vesturlanda, þar sem millistéttin og neðri millistéttin var skilin ein eftir á fjóshaug alþjóðavæðingar og esb. Rúllustiginn upp í lífi þessa fólks var tekinn úr sambandi og þrep-1 þess stiga var með henni gert að lífslöngu refsistigi á krataforheimskandi, andþjóðlegu og framfarabanvænu altari líberalismans
Fyrri færsla
Odda-samsteypan þolir ekki hálaunaða íslenska kúnna
![]() |
Telur að Apple hætti framleiðslu á X |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Miðvikudagur, 31. janúar 2018
Odda-samsteypan þolir ekki hálaunaða íslenska kúnna
Hreyfimynd: Donald J. Trump gerði grein fyrir stöðu bandaríska þjóðríkisins á samkundu fólksins í gærkvöldi: þinginu
****
Oddaflug Odda burt af Íslandi hafið
Alþjóðlegur kaupmáttur launa á Íslandi, samkvæmt tölum OECD fyrir 2016, var sá næst hæsti í 35 löndum. Hæstur var kaupmáttur launa í Sviss. En þetta er ekki nóg fyrir Odda. Það er ekki nóg að hafa best borgandi kúnna í 34 löndum og það er ekki nóg að hafa hátt gengi sem eykur enn við kaupmátt Odda gagnvart öllum hinum löndunum, plús ódýrt rafmagn ofan í hið háa vol-og-væl-gengi krónunnar, sem aukið hefur við kaupmátt Odda erlendis, fyrir innfluttar vélar og hráefni
Odda vantar meira. Honum vantar nefnilega þræla á lágum launum. Leyfum Odda að stimpla sig út af íslenska málsvæðinu, en leyfum því ekki að snúa til baka sem þrælaveldi, engum til gagns. Þeir sem skilja þetta munu taka upp þann þráð hér heima sem Oddi sleppir, vegna þess að Ísland er land tækifæranna, en þrælakistur eru það ekki
Fyrirtæki með næst best borgandi kúnna Vesturlanda, en sem hefur ekki efni á að borga laun, á litla framtíð fyrir sér. Það segir sig sjálft. Þess vegna er öld verkfalla og pólitískrar upplausnar að hefjast í ESB, því að í fyrsta sinn í heila kynslóð er full atvinna í Þýskalandi. Fólkinu þar langar í íslenskar aðstæður og það mun nota þetta nýfengna pólitíska vogarstangarafl til að ná fram launahækkun, eftir núll ESB-prósent kaupmáttaraukningu síðastliðin 15 ár, plús ónýtt gengi evru. Milljónir manna á þýskum vinnumarkaði eru samt enn langt fyrir neðan lágmarkslaun, sem eru 8,8 evrur á tímann (1100 krónur, eða rétt yfir unglingavinnutaxta á Íslandi). IG Metall, með fjórar milljónir meðlima, hefur safnað meira en tíu þúsund milljónum evra í verkfallssjóð og rétta stundin fyrir hann er að renna upp einmitt núna. Verði ykkur að góðu. Just-in-time keðan í ESB mun heldur betur hrökkva af tannhjólinu á næstu árum. Stund hefndarinnar er að renna upp í Þýskalandi
Allir hljóta að sjá að EES-samningurinn er brunagildra fyrir Ísland. Skellum verndartollum á innfluttar umbúðir - og prentverk, sem hvort sem er er oft svo lélegt að letrið sést varla
Þeir sem missa þarna vinnuna og hent er á fjóshaug alþjóðavæðingarinnar, verða nú menntaðir í steikingum hamborgara fyrir erlenda ferðamenn. Stjórn Odda hefur hins vegar menntað sig og kompaní sitt út af Íslandi. Farvel!
Fyrri færsla
Hundrað ár liðin frá því að fjölmiðlar sáu ekkert
![]() |
Samkeppnishæfnin orðin að engu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 29. janúar 2018
Hundrað ár liðin frá því að fjölmiðlar sáu ekkert
- Fimm-millímetra-veldið
- Skuldakreppa Evrópusambandsins
- Davíð Oddsson gerði ekki það
- Fangabúð vinstrimanna opnar brunaútsölu
- Bara verkur fyrir lýðinn
1. Fimm-millímetra-veldið
Í nóvember voru hundrað á liðin frá því að Bretland gaf út Balfour-yfirlýsinguna. Hún negldi niður kúrs á þjóðarheimili fyrir Gyðinga, sem svo formlega var stofnað árið 1948, rúmlega þrjátíu árum síðar, eða heilum 54 árum eftir að Dreyfusmálið kveikti á perunni hjá Herzl. Hér er með miklum glans hægt að segja svo kölluðum fjölmiðlum veraldar það til hróss, að þeir sáu ekkert, heyrðu ekkert, vissu ekkert og hugsuðu ekkert. Stofnun Ísraelsríkis 1948 sló því eins og þrumu úr heiðskýru makró-pólitísku hálofti niður í þokubakkaveldi hins mikró-pólitíska heims, þar sem fjölmiðlar búa, fimm millímetrum ofar í gufuhvolfinu en ánamaðkar eiga heima
Það sama gilti um fall Sovétríkjanna. Þau hrundu eins og fótur sem stígur niður í fimm-millimetraheim fjölmiðla, eins og þegar Guð "birtist" Móses alls ekki á fjallinu, heldur einungis þeim sem höfðu haft fyrir því að klífa það og voru þar með á fjallinu, og þar var Móses. Komandi herbergisfélagar ánamaðkanna fyrir neðan fjallið, sáu hins vegar bara reyk og glæringar, komandi að ofan
En það voru ekki bara Bretar sem gáfu út Balfour-yfirlýsinguna. Að baki hennar stóðu líka Frakkar, Bandaríkin og já -hér kemur það- sjálfur Páfagarður. Frakkar innsigluðu yfirlýsinguna með sömu rökum og Jón Sigurðsson innsiglaði fullveldissigur Íslands; sögulegum rétti, hefðum og sem réttlætismáli. Frakkar áttu einnig mjög bágt þá stundina, því verið var að rústa landi þeirra, eins og Davíðsríki hafði áður verið rústað, algerlega óréttmætt og sú staða jók við skilning Frakka. Á þessum tímum jafngilti samþykki Breta, Frakka, Bandaríkjanna og Páfagarðs (Bandamanna), samþykki Sameinuðu þjóðanna. Rússar voru því miður og skiljanlega of uppteknir við annað, þá stundina, þ.e. við að láta gengi sósíalista kollvarapa sér úti í miðju vaði. Bretar hefðu aldrei getað sent út svona yfirlýsingu upp á eigin spýtur og staðið við hana einir. Hún var bökkuð upp með lögmæti, réttlæti, valdi og hefðum þeirra sem þá stóðu fyrir flestu. Það var nú gott að blaðamenn sáu þarna og heyrðu ekkert. Eitt stærsta nafnið í þessi samhengi er frekar óþekktur maður að nafni Nahum Sokolow - og hann var, hmm já, blaðamaður. En ekki fyrst og fremst nafnið Chaim Weizmann, eins flestir halda
2. Skuldakreppa Evrópusambandsins
Í dag sér maður best inn í fimm-millímetra heim fjölmiðla með því að skoða hvað þeir auglýsa sem verandi - og verandi ekki. Venjulegir fjölmiðlar kepptust við að hagræða forsíðum í takt við nýja uppgötvun sína, sem var sú, að evran væri að detta í sundur vegna skulda árið 2014. Þeir settu upp frétta-flipa sem hét til dæmis "Skuldakreppa ESB" (e. EMU debt crisis). Þegar svo evran datt ekki í sundur á millímetrunum fimm, þá tóku þeir málaflokks-flipann niður. Málið afgreitt. En sannar geopólitískar skrifstofur með sínar birtingarsíður, gerðu hins vegar ekki það. Þær settu flipann fyrst upp eftir að þær höfðu skilið EMU (evruna og esb) til fulls og hann verður ekki tekinn niður aftur, vegna þess að evran er að ganga frá Evrópusambandinu dauðu, og það hefðu allir átt að vita frá hennar fyrsta sjósetningardegi. Evrópusambandið er sem sagt á fullu að detta í sundur óháð fréttum og skuldastöðu -sem er sú sama og þegar hún var verst- en svona mál taka sinn síma, óháð þolinmæðinni litlu sem ríkir á millimetrunum fimm
Sama er nú í gangi innvortis í Kína og það ferli sem mélaði veldi Sovétmanna niður í salla, hvað svo sem fimm-millímetra veldi fjölmiðla segir í dag, á morgun og hinn. Og það er einnig jafnvíst og að sólin kemur upp á morgun, að Rússland mun skella lífsnauðsynlegum viðbrögðum sínum við þeirri þróun sem í gangi hefur verið frá 1993, á næsta nágrenni sitt jafn fyrirvaralaust og Heimstyrjöldinni fyrri fór af stað. Það er öruggt. Og þetta allt mun ekki ganga þegjandi og hlóðalaust fyrir sig
3. Nei, Davíð Oddsson gerði ekki það
Fjögurra þátta vinstriseríu um Bandaríska herinn, eða Varnarliðið, er lokið á aðeins eins millímetra-veldi DDRÚV. Í síðasta þættinum var tækifærið notað til að höggva sem mest niður úr fjallinu Davíð Oddssyni. En það er bara ekki hægt. Davíð gerði innrásina í Írak ekki mögulega, né hvað þá hina leigðu herferð Bandaríkjanna í Afganistan. Davíð sýndi hins vegar Íslandi og okkur Íslendingum þann sóma að vera trúr og tryggur bandamaður mestu og bestu bandamanna okkar frá upphafi allra alda. Bandamanna sem voru okkur trúir og tryggir í okkar baráttu. Trygglyndi er aðeins einhvers virði þegar það stangast á við andstöðu þess: hugleysið og aumingjaskapinn í hinu viðtekna vísindalega ánamaðkaveldi til dæmis vinstrisins. Bandaríkin höfðu þegar tekið ákvörðun um framhaldið, þó svo að Þýskaland og Frakkland snéru baki við þeim, sem Ísland gerði hins vegar ekki
Í huga Bandaríkjanna, sem háð hafa þarna, mest ein á báti, stanslaust stríð við illkynja öfl í 15 ár, var lagt upp í þessa för undir merkjum NATO, því þann 11. september 2001 var fimmta klásúla bandalagsins virkjuð í fyrsta sinn. En NATO datt fljótlega af skaftinu vegna til dæmis Þýskalands og Frakklands, og það var þá sem Ísland Davíðs Oddssonar kom og studdi við vini okkar og bandamann. Það gerðu Danir líka. Og það var líka rangt hjá þeim vinstrimönnum sem gerðu þáttinn að Bandaríkin hefðu lýst stríði á hendur þeim sem stóðu að baki 11. september 2001. Það voru einmitt þau öfl sem sjálf og fyrst lýstu stríði á hendur Bandaríkjunum, frá og með 1967 og allar götur síðan. Þessi eins millímetra þáttaröð í DDRÚV var auðvitað örsmá, en Davíð hins vegar ávallt hin stóra þekkta stærð, sannur Íslendingur
4. Fangabúð vinstrimanna opnar brunaútsölu
Þegar þessir vinstriþættir í DDRÚV um Varnarliðið eru skoðaðir, þá hugsa ég þetta: Á meðan bandarískir hermenn og fjölskyldur þeirra voru álitnir sem eins konar geislavirkur svarti dauði sem loka átti inni á Miðnesheiði, fyrir það eitt að standa með okkur vörð um fullveldi Íslands, já þá ágerist sú krafa vinstrimanna í dag, að nýtt erlent þaulsetulið verði helst að fá íslenska stjórnarráðið til sinna einkaumráða sem ókeypis mannabústað fyrir sig - vegna þess að það er "of langt" fyrir það upp á Kjalarnes. Einn helsti talsmaður þessa fólks er hið ömurlega DDRÚV, sem sennilega er sterkasta sundrungarafl íslenska lýðveldisins, sem Bandaríkjamenn voru látnir um að verja. En þegar um aðra útlendinga er að ræða, þá er krafa góða vinstra fólksins sú, að þeir eigi helst að fá stjórnarráðið að fullu til umráða. Maður kastar upp yfir hræsninni
5. Bara verkur fyrir lýðinn
Það góða við niðurlag þáttanna var það að þar sannaðist svart á hvítu að sannur sósíalisti hugsar aldrei um sinn "verkalýð". Honum hvarflar sá lýður ekki einu sinni í hug. Það eina sem fyrirbærið sósíalisti gengur fyrir er völd, til að kollvarpa. Gott hjá þér Jón Baldvin, að vera svona heiðarlegur að koma ekki auga á neina Suðurnesjamenn í sósíalistaheimum
Fyrri færsla
Nýtt heilbrigðiskerfi Lettlands lagt í rúst á netinu
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Sunnudagur, 28. janúar 2018
Nýtt heilbrigðiskerfi Lettlands lagt í rúst á netinu
Lettland var að taka í notkun nýtt heilbrigðistölvukerfi þar sem internetið er notað sem hið berandi netverk og samskiptastaðlar fyrir það (TCP/IP). Um er að ræða lyfseðlakerfi fyrir allt landið. Kerfið kostaði tæpa tvo milljarða króna, en varð strax ónothæft og lagt að velli vegna samtímis tölvuárása frá meira en 20 löndum. Og í hvert skipti er sólin kemur upp í Kína með birtu til leitar að rafmynt, þá neyðast Lettar til að endurræsa hið nýja heilbrigðistölvukerfi sitt. Kerfið heldur utan um persónulegar heilbrigðisupplýsingar borganna, eða svo héldu menn að það gerði
Tölvunar-konceptið í núverandi mynd er búið að vera. Allar upplýsingar og gögn sem skipta máli verða eyðilögð, jafnvel án þess að nokkur taki eftir því. Gögn lyfjarannsókna og grunnrannsóknir og erfðafræðilegar vinnslur verða allar smitaðar, ruglaðar og brenglaðar. Ekkert sem er tölvuvætt og nettengt er óhult og allir grunnleggjandi innviðir tölvunar eru að falla saman, vélbúnaðurinn líka
Tæknin var hönnuð til að virka ekki, og kostnaðurinn við hana lýsir sér í fallandi framförum í framleiðni á Vesturlöndum og þar með slakari landsframleiðslu landa og glötuðum tækifærum. Tölvunarbransanum er best lýst með fréttum af hinu nýja heilbrigðistölvukerfi Lettlands; þar sem hettuklætt veldi nafnlausra eininga athafnar sig með óbilandi glans, sem hvergi væri liðinn á götum, strætum né í almenningsgörðum neins staðar í veröldinni
Verjendur svona tölvunar -tölvunarbransinn allur- munu segja að kerfið hafi virkað eins og til er ætlast: það keyrði sig sjálft í klessu
Að það sé ófært um að gera grunnleggjandi greinarmun á vítamínum og svartadauða, hvarflar varla að sérfræðingum þess. Öll núll og eittur tölvunar eru óaðgreinanlega eins. Þau segja öllum það sama. Bara ef tölvunartæknin sem koncept hefði hálft prósent af áreiðanleika einnar silfurskottu, sem haldið hefur sér sem óbreytt og skotheld hönnun í 200 milljón ár. Krækjur: IR | Diena
Fyrri færsla
Hælarnir skornir undan "fréttamanni" Sky News [u
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 27. janúar 2018
Hælarnir skornir undan "fréttamanni" Sky News [u]
Myndskeið: John Bolton fyrrum sendiherra kemur með óþægilegar staðreyndir
****
Því miður er allt of mikið af þessu. Fréttamenn sem eru ekki fréttamenn. Skáldað er til að koma höggi á þá og það sem frétta "stofunni" er illa við. Að sumu leyti hafa margar svona stöðvar sem reka sig sem fréttastöðvar -og þar á meðal er herferðastofan DDRÚV- tekið við sem dulbúnir stjórnmálaflokkar, en sem enginn hefur þó kosið til að vera það sem þær eru orðnar. Fyrir utan þetta þá eru svo kallaðir fréttamenn þessara stöðva oft aðeins puntudúkkur í takt við það sem þykir út og inn í tísku þetta eða hitt tímabilið. En hér skera sem sagt staðreyndir hælana undan talandi páfagauk Sky News. Og það gerist ekki oft, þar sem myndavélin er yfirleitt bara flutt burt og skrúfað er niður í þeim sem koma með staðreyndir er kollvarpa bullinu í þessum stöðvum. Slíkt má helst ekki sjást né heyrast
Uppfært:
Páll Vilhjálmsson er með gott innlegg um það hvernig flestir svo kallaðir fjölmiðlar eru orðnir í dag: Borgaralaun fyrir blaðamenn? Nei, takk
Reyndar er staða þeirra orðin svipuð og staða verðbréfamiðlara. En þeir lifðu góðu lífi á því einu að hafa betri tengingu við kauphöllina en almúginn, sem hafði enga. En nú geta allir nálgast upplýsingar um stöðuna á markaði jafnhratt og verðbréfamiðlarar - og fyrir utan það, þá vita þeir sem miðla verðbréfum oftast ekkert meira af viti um verðbréf og markaði, en þeir sem eru það ekki. Stétt verðbréfamiðlara er því að hverfa
Fréttamenn hafa oft afskaplega lítið vit á því sem þeir eru að segja. Reyndar er staðan að verða svo átakanleg að flestir fjölmiðlar eru orðnir eins og plága af betlurum á Laugavegum veraldar. Og þar er yfirbetlarinn DDRÚV með algera sérstöðu. Hann fær alltaf að betla fyrstur. Restin fær restar
Wall Street verðbréfa-umhverfið veit yfirleitt ekkert og enginn ætti að taka sérstakt mark á því, enda er hið sanna hlutverk þess ekki annað en að birta verðskrá. Það eina sem það umhverfi gerir fyrir utan það, er að búa til kommenta um verðlagið á bréfum og umstang og hávaða (e. action), mest í formi ekki-frétta, slúðurs og æsings. Þannig eru mjög margir venjulegir fjölmiðlar líka, en þó sértaklega þeir sem eru á opinberri framfærslu
Að skylda fólk til að borga fyrir þá er hneyksli - þar sem til dæmis DDRÚV getur ekki einu sinni birt verðin sem fást upp úr kjörkössunum í kosningum, án þess að froðufella þau. Og það er einmitt það sem DDRÚV gerir. Talar niður hið pólitíska kauphallarverð þeirra stjórnmálamanna- og flokka sem því er illa við. Á maður að þurfa nauðugur og með gerræðislegum lögum að borga fyrir slíkt sölugas? Nei, það ætti maður ekki, en þannig er það nú samt. Þetta er óþolandi
Fyrri færsla
Hvernig komst Angela Merkel til Davos?
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Nýjustu færslur
- Eitthvað sem ekki passar hér [u]
- Kristrún stígur ekki í vitið, svo mikið er nú víst
- Þorgerður mín
- Kína komið til "ósubbulegs" sálfræðings
- ESB og Kína þekkja ekki bandaríska miðvestrið
- Bóndinn og prófessorinn í Selma um tolla Trumps. Grænland
- Evrópa er á leiðinni á nauðungaruppboð: Kaninn unir ekki að G...
- Svo lengi sem Grænland er viðriðið Danmörku mun heimurinn ekk...
- Landsölupakkhús Þorgerðar fúlt út í JD Vance
- Kannski hægt að byrja á farsímavef Veðurstofunnar - strax í d...
- Hamast við moksturinn í Reykjavík
- Grunnvextir hækka á evrusvæðinu - varanlega
- Fallbyssur Trumps í tollamálum
- Bandaríkin eru tilbúin að fjárfesta milljörðum dala í Grænlan...
- Já, Pólverjar verða að vakta landamærin upp að Þýskalandi. Þa...
Bloggvinir
-
Heimssýn
-
Samtök Fullveldissinna
-
ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE
-
Guðmundur Jónas Kristjánsson
-
Ragnhildur Kolka
-
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
-
Haraldur Hansson
-
Haraldur Baldursson
-
Páll Vilhjálmsson
-
Halldór Jónsson
-
Valan
-
Samstaða þjóðar
-
Frjálshyggjufélagið
-
Sigríður Laufey Einarsdóttir
-
Eyþór Laxdal Arnalds
-
Jón Valur Jensson
-
Samtök um rannsóknir á ESB ...
-
Kolbrún Stefánsdóttir
-
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
-
Jón Baldur Lorange
-
Guðjón E. Hreinberg
-
Jón Ríkharðsson
-
Anna Björg Hjartardóttir
-
Loftur Altice Þorsteinsson
-
Valdimar Samúelsson
-
Fannar frá Rifi
-
Bjarni Jónsson
-
Sigurður Þorsteinsson
-
Gunnar Ásgeir Gunnarsson
-
Haraldur Haraldsson
-
Örvar Már Marteinsson
-
Kristin stjórnmálasamtök
-
Gestur Guðjónsson
-
Ingvar Valgeirsson
-
Predikarinn - Cacoethes scribendi
-
Guðsteinn Haukur Barkarson
-
Guðmundur Helgi Þorsteinsson
-
Lísa Björk Ingólfsdóttir
-
Bjarni Kjartansson
-
Bjarni Harðarson
-
Guðrún Sæmundsdóttir
-
Sveinn Atli Gunnarsson
-
gudni.is
-
Gústaf Adolf Skúlason
-
Tryggvi Hjaltason
-
ESB
-
Marinó G. Njálsson
-
Baldvin Jónsson
-
Elle_
-
Sigurbjörn Svavarsson
-
Emil Örn Kristjánsson
-
Johnny Bravo
-
Jón Finnbogason
-
Rýnir
-
Þórarinn Baldursson
-
P.Valdimar Guðjónsson
-
Már Wolfgang Mixa
-
Ívar Pálsson
-
Júlíus Björnsson
-
Guðjón Baldursson
-
Baldur Fjölnisson
-
Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
-
Einar Ólafsson
-
Sigríður Jósefsdóttir
-
Vilhjálmur Árnason
-
gummih
-
Sveinn Tryggvason
-
Helga Kristjánsdóttir
-
Jóhann Elíasson
-
Baldur Hermannsson
-
Kristinn D Gissurarson
-
Magnús Jónsson
-
Ketill Sigurjónsson
-
Birgitta Jónsdóttir
-
Axel Jóhann Axelsson
-
Þorsteinn Helgi Steinarsson
-
Aðalsteinn Bjarnason
-
Magnús Þór Hafsteinsson
-
Erla Margrét Gunnarsdóttir
-
Sigurður Sigurðsson
-
Þorsteinn H. Gunnarsson
-
Haraldur Pálsson
-
Sveinbjörn Kristinn Þorkelsson
-
Bjarni Benedikt Gunnarsson
-
Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
-
Ægir Óskar Hallgrímsson
-
Helgi Kr. Sigmundsson
-
Óskar Sigurðsson
-
Tómas Ibsen Halldórsson
-
Axel Þór Kolbeinsson
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Hörður Valdimarsson
-
Adda Þorbjörg Sigurjónsdóttir
-
Þorsteinn Valur Baldvinsson
-
Margrét Elín Arnarsdóttir
-
Ásta Hafberg S.
-
Erla J. Steingrímsdóttir
-
Helena Leifsdóttir
-
Agný
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
Jón Árni Bragason
-
Jón Lárusson
-
Högni Snær Hauksson
-
Kristján P. Gudmundsson
-
Kristinn Snævar Jónsson
-
Sigurður Ingólfsson
-
Rakel Sigurgeirsdóttir
-
Sigurður Þórðarson
-
S. Einar Sigurðsson
-
Pétur Steinn Sigurðsson
-
Vaktin
-
Sigurjón Sveinsson
-
Dóra litla
-
Arnar Guðmundsson
-
Jörundur Þórðarson
-
Rafn Gíslason
-
Hjalti Sigurðarson
-
Kalikles
-
Vésteinn Valgarðsson
-
Bjarni Kristjánsson
-
Egill Helgi Lárusson
-
Gunnar Skúli Ármannsson
-
Halldóra Hjaltadóttir
-
Jón Pétur Líndal
-
Guðmundur Ásgeirsson
-
Reputo
-
Gunnar Helgi Eysteinsson
-
Sigurður Sigurðsson
-
Ólafur Als
-
Friðrik Már
-
Gísli Sigurðsson
-
Sigurður Einarsson
-
Rauða Ljónið
-
Sumarliði Einar Daðason
-
Gísli Kristbjörn Björnsson
-
Kári Harðarson
-
Sigurður Antonsson
-
Valdimar H Jóhannesson
-
Rósa Aðalsteinsdóttir
-
Dagný
-
Guðmundur Pálsson
-
Jakob Þór Haraldsson
-
Birgir Viðar Halldórsson
-
Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
-
Tíkin
-
Jón Þórhallsson
-
Íslenska þjóðfylkingin
-
Erla Magna Alexandersdóttir
-
Óskar Kristinsson
-
Dominus Sanctus.
-
Ingólfur Sigurðsson
-
Jón Þórhallsson
Tenglar
Hraðleiðir
- www.tilveraniesb.net www.tilveraniesb.net Vefsetur Gunnars Rögnvaldssonar
- www.mbl.is
- Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir
- Bréf frá Jerúsalem - Yoram Hazony Yoram Hazony er einn fremsti stjórnmálaheimspekingur Vesturlanda í dag
- NatCon Þjóðaríhaldsstefnan
- Victor Davis Hanson bóndi og sagnfræðingur Victor Davis Hanson er einn fremsti sagnfræðingur Vesturlanda í klassískri sögu og hernaði
- Bruce Thornton sagnfræðingur Bruce Thornton er sagnfræðingur - klassísk fræði
- Geopolitical Futures - geopólitík Vefsetur George Friedmans sem áður hafi stofnað og stjórnað Stratfor
- Strategika Geopólitík
- TASS
- Atlanta Fed EUR credit & CDS spreads
- N.Y. Fed EUR charts
- St. Louis Fed USD Index Federal Reserve Bank of St. Louis - Trade Weighted U.S. Dollar Index: Major Currencies
- Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983 Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983
Þekkir þú ESB?
Greinar
Lestu mig
Lestu mig
• 99,8% af öllum fyrirtækjum í ESB eru lítil, minni og millistór fyrirtæki (SME)
• Þau standa fyrir 81,6% af allri atvinnusköpun í ESB
• Aðeins 8% af þessum fyrirtækjum hafa viðskipti á milli innri landamæra ESB
• Aðeins 12% af aðföngum þeirra eru innflutt og aðeins 5% af þessum fyrirtækjum hafa viðskiptasambönd í öðru ESB-landi
• Heimildir »» EuroChambers og University of LublianaSciCenter - Benchmarking EU
Bækur
Á náttborðunum
-
: EU - Europas fjende (ISBN: 9788788606416)
Evrópusambandið ESB er ein versta ógn sem að Evrópu hefur steðjað. -
: World Order (ISBN: 978-1594206146)
There has never been a true world order, Kissinger observes. For most of history, civilizations defined their own concepts of order. -
: Íslenskir kommúnistar (ISBN: ISBN 978-9935-426-19-2)
Almenna bókafélagið gefur út. -
Velstandens kilder:
Um uppsprettu velmegunar Evrópu
: - Paris 1919 :
- Reagan :
- Stalin - Diktaturets anatomi :
-
Penge
Ungverjinn segir frá 70 ára kauphallarreynslu sinni
: -
: Gulag og glemsel
Um sorgleik Rússlands og minnistap vesturlanda - Benjamín H. J. Eiríksson :
- : Opal
- : Blár
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (25.6.): 2
- Sl. sólarhring: 42
- Sl. viku: 606
- Frá upphafi: 1404648
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 380
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Júní 2025
- Apríl 2025
- Mars 2025
- Febrúar 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- September 2024
- Júní 2024
- Apríl 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Júlí 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008