Leita í fréttum mbl.is

Sameinuðu þjóðirnar og ESB tengd peningaþvætti fyrir Norður-Kóreu

"Stofnanavætt peningaþvætti"

Evru-Seðlabankastjóri Lettlands hefur nú verið handtekinn en látinn laus aftur gegn tryggingu sem greidd var af aðila sem ekki er enn vitað hver er

Bandaríska fjármálaráðuneytið birti þann 13. febrúar 2018 tilkynningu þar sem segir að ABLV-bankinn í Lettlandi hafi stofnanavætt peningaþvott sem kjarnastarfsemi sína, og að hún tengist aðilum á vegum Sameinuðu þjóðanna til fjármögnunar á norður-kóreönskum eldflaugum sem ná heimsálfa á milli, berandi kjarnorkuvopn. ABLV er þriðji stærsti banki Lettlands og einn stærsti bankinn í Eystrasaltsríkjunum. Hann er í 9 löndum og rekur útibú í Lúxemborg undir nafninu ABLV Bank Luxembourg, S.A.

Þar sagði:

****

"As described in FinCENs finding, ABLV has institutionalized money laundering as a pillar of the banks business practices. Illicit financial activity at the bank includes transactions for parties connected to UN-designated entities, some of which are involved in North Koreas procurement or export of ballistic missiles. In addition, ABLV has facilitated transactions for corrupt politically exposed persons and has funneled billions of dollars in public corruption and asset stripping proceeds through shell company accounts. ABLV failed to mitigate the risk stemming from these accounts, which involved large-scale illicit activity connected to Azerbaijan, Russia, and Ukraine."

****

ECB-aukaseðlabanki Þýskalands í Evrópusambandinu tengist málinu því hann er mamma Seðlabanka Lettlands og hefur þar að auki beint eftirlit með ABVL-bankanum, sökum stærðar hans, og hann hefur fóðrað ABLV-bankann á miklu lausafé í evrum miðað við stærð bankans og tekið inn tryggingar frá peningaþvottastöð bankans í staðinn; undir yfirstjórn ECB-seðlabankans í Frankfurt. Enginn getur rekið seðlabankastjóra Lettlands úr starfi, sökum sjálfstæðis bankans og enginn getur rekið ECB-seðlabankastjórana sem fóðra hann, en þeir eru þekktir fyrir að verja sína menn í evrulöndunum með kjafti og klóm gegn rannsóknum og yfirvöldum. Bæði forsætis- og fjármálaráðherra Lettlands kröfðust afsagnar lettneska seðlabankastjórans um síðustu helgi, án árangurs. Í gær var seðlabankastjórinn hins vegar settur tímabundið til hliðar og var sú skýring gefin að hann hefði sóst eftir mútufé

Annar en minni banki í Lettlandi, með Andres Fogh Rasmussen fyrrverandi NATO-stjóra sem varastjórnarformann, ásamt fyrrverandi yfirmann þýsku leyniþjónustunnar í stjórn, tengist málinu. Það sá rússneska útvarpið um að tilkynna hlustendum

Sá banki heitir Norvik, en hann er minni en ABLV-bankinn og því fyrir utan áhugasvið þess SSM-eftirlits sem fylgjast á með fjármálastofnunum evrukerfisins (Single Supervisory Mechanism). Þessi smærri Norvik-banki er sagður hafa verið fjárkúgaður af háttsettum aðilum í hinu ESB-sérhannaða stjórnkerfi Lettlands, og sem í óstaðfestum fréttum sagður er vera seðlabankastjórinn sjálfur. Stjórnarformaður Norvik er hinn bresk-rússneski Grigory Guselnikov, sem tengist Alexei Navalny, pólitískum andstæðingi Vladímírs Pútín

SSM hefur nú hvatt lettnesk yfirvöld til að grípa til ráðstafana til tryggja skuldbindingar ABLV, til að koma í veg fyrir enn verri lausafjárstöðul. Innlán viðskiptavina eru meðal skuldbindinga bankans

Bandaríska fjármálaráðuneytið mun nú hefjast handa við að loka evrubanka þennan og ef til vill hinn úti úr bandaríska peninga- og fjármálakerfinu. Hvort að Sameinuðu þjóðirnar verða einnig lokaðar úti, veit ég ekki. En þær eru að birtast mönnum sem æ gerspilltari stofnun, misnotuð í hvers kyns annarlegum tilgangi

Ef sumum mönnum finnst að íslenskir bankar hafi verið spilltir í aðdraganda hruns þeirra, þá hefur það alltaf verið mín skoðun, eftir tæplega 30 ára búsetu í ESB, að miðað við peninga og fjármálakerfi Evrópusambandsins, voru þeir eins og hvítskúraðir englar. Þar er allt að minnsta kosti mörgum sinnum verra og fer versnandi

Enginn ætti nokkru sinni að gleyma því að það var Deutsche Bank sem fjármagnaði mannvikri Helfararinnar á Gyðingum. Lítið hefur breyst í Evrópu síðan þá, nema það, að þar eru næstum engir Gyðingar eftir á lífi. Og samsærið gegn þeim þeim sem eftir eru, en fer hratt fækkandi þessi árin, hefur eflst með tilkomu hinnar æ hraðar rotnandi stofnunar Sameinuðu þjóðanna og samsteypu Evrópusambandsins. Flótti Gyðinga frá Evrópu er hafinn á ný

Nurnberg-lögin voru ný og þóttu nútímaleg lög árið 1935. Þau áttu að vernda. Og ef Hitler, Stalín og Maó hefðu haft samfélagsmiðla til umráða, þá væri ekkert nema "góða fólkið" eftir í heiminum - og Leni Riefenstahl hefði misst vinnuna fyrirfram. Hér verður Alþingi Íslendinga að passa sig í sínum lagasmíðum. Auðvelt er að sökkva sér í svaðið, en afar erfitt er að komast óskaddaður upp úr því aftur

Tengt

Ætlar Framsóknarflokkurinn ekki að banna fóstureyðingar líka?

Framsóknarmenn hugi að mörkum sínum

Fyrri færsla

Umskorið heilabú Líberalista?


Umskorið heilabú Líberalista?

Já það er nú það

Þeir einir hafa svör við öllu. Þeir einir vita allt best. Þeir einir geta sagt öllum hvað er rétt og rangt, með vísan í mannréttindi andskotans. Hann hefur jú sín rétttindi, ekki satt. Varla ætlið þið að neita honum um þau

Fyrst þið eruð svo alvitrir og gáfaðir að þið getið "staðið með börnunum" (en ekki fóstrunum) getið þið þá ekki vinsamlegast bent til dæmis þeim sem samkvæmt ykkur hafa svona hroðalega rangt fyrir sér -og eru jafnvel að "blanda trúmálum", trúarheimspeki og þar með pólitískri heimspeki út í naglasúpuna ykkar- já getið þið þá ekki bent þeim á pottþétta meðferð við sjúkdómi sínum. Hvað segið þið um það vantrúarmenn líberalismans (oftast kommar og úníversal kommakirkja þeirra)

Hvað segið þið um að benda okkur á þann stað í heilanum sem hægt er að skera burt svo við losnum við að þurfa trufla alvitrun ykkar. Bendið okkur á rétta staðinn og veitið okkur réttu meðferðina við sjúkdómi okkar. Það er algert lágmark, miðað við þann þvætting sem þið segið að allir nema þið séu haldnir

Komið með rétta staðinn og skerum hann burt. Samkvæmt ykkur er ekkert mál flóknara en svo að þið hafið ekki réttu svörin og græjurnar við því. Til dæmis til mannréttínga á mannréttindaverkstæði ykkar. Þetta hefur að vísu verið reynt áður, en þið þurfið ekkert að vita um það, frekar en neitt annað sem þið bara vitið ekkert um. Setjið meðferðina svo í nýju lögin ykkar og heimurinn verður loksins frjáls. Alveg frjáls. Meira að segja alveg alveg frjáls. Svo getið þið fundið hvar frelsisstöðvarnar eru í heilanum og skorið þær burt. Það versta er samt það að þið mynduð ekki þekkja frelsi þegar þið sjáið það. Það hafið þið þegar sannað, svo ekki verður um villst. Allt ykkar hefur alltaf endað sem guðlaust Sovétríki, guðlaust imperíal Þriðja ríki, imperíal Egyptaland, imperíal Babýlóníuveldi, imperíal þrælaríki Rómar og enn verra; sem algerlega guðlaust Kína

Guð, sem þið segið að sé ekki til, forði ykkur frá að "blanda" pólitík í stjórnmálin ykkar. Það væri nú alveg hroðalegt. Setjið bara lög. Heimsk lög, dægurlög, umskurðarlög og nýju lögin um heilaskurðaðgerðir. Hvað er hvar og hvað má fjarlægja og hvað má ekki fjarlægja. Lögin gætu til dæmis gengið út frá því að allir hafi heila. En er það nú alveg öruggt. Ég bara spyr

****

Lesefni dagsins:

Tímaritið Standpoint

1. Talmúdistinn í Turninum (já hann sat inni í Tower of London). Grein Noels Malcolm um lögfræðinginn John Selden - eða réttara sagt um bók Ofir Haivry sem er um þann mesta Íhaldsmann allra tíma og brautryðjanda okkar Íhaldsmanna, sem líka var örsjaldgæfur sérfræðingur í lögum hins forna Ísraelsríkis - þegar Vesturlönd voru að myndast sem þjóðríkin

Sax: "John Selden is famous, but not at all well known. His fame was earned as a lawyer (one of the cleverest, and absolutely the most learned, in 17th-century England), and as an MP who played a significant role in English political history from the 1620s to the 1640s. [...] He also earned a place in English religious history, through his decisive interventions in the Westminster Assembly. This was an advisory body, set up by Parliament in 1643 in order to work out how to convert an episcopal Church of England into a Presbyterian one." | Greinin í heild

 

Tímaritið American Affairs

2. What Is Conservatism? (hvað er Íhaldsstefna): Eftir Ofir Haivry og Yoram Hazony. Merkileg og ansi ýtarleg ritgerð sem markar þáttaskil í hvað og hvernig Vesturlandabúar halda að Íhaldsmaður sé, en er samt ekki. Þeir sem skilja tímana núna, skilja það sem greinin er að segja. Þeir sjá að einmitt núna eru Íhaldsmenn að skilja við Líberalista og Líberalistar að skilja við þá. Þetta voru alltaf grunnleggjandi andstæðir og ósamrýmanlegir pólar í stjórnmálum Vesturlanda. Eftir lesturinn ættu menn að skilja Donald Trump og stjórnmál hans og Brexit ögninni betur

Sax: "Todays confusion of conservative political thought with liberalism is in a way understandable, however. In the great twentieth-century battles against totalitarianism, conservatives and liberals were allies: They fought together, along with the Communists, against Nazism. After 1945, conservatives and liberals remained allies in the war against Communism. Over these many decades of joint struggle, what had for centuries been a distinction of vital importance was treated as if it were not terribly important, and in fact, it was largely forgotten. But since the fall of the Berlin Wall in 1989, these circumstances have changed. The challenges facing the Anglo-American tradition are now coming from other directions entirely." | Ritgerðin í heild

 

Áhorf dagsins:

Cambridge Universitiy Press

Heimspeki Biblíunnar: Án Gamla testamentisins væri náttúrlega ekkert Nýtt testamenti. Þau eru ein heild og bandalag vestrænna manna | You Tube

****

Fyrri færsla

Stjórnlaust Þýskaland. "Þeirra" guð sagður stærstur


Stjórnlaust Þýskaland. "Þeirra" guð sagður stærstur

Sumir muna kannski enn eftir loftslags,- umhverfis,- og jarðarkenningunni sem kennd er við heitið Gaia. Kenningin ruddi sér til rúms upp úr 1970 og hún sagði að jörðin væri eins konar lifandi organismi sem stýrir sér sjálfur. Já eins konar sjálfkeyrandi pláneta, en þó án þess að fara skyndilega sem sturtuklefi á sporbraut um Mars. En það var hins vegar ekki nógu mikill peningur í þessari kenningu, því hún hræddi og bræddi svo fáa að hún varð ekki að massífri hysteríu með afleiddri, þ.e.a.s. afvegaleiddri peningamaskínu

Til dæmis veit ég meira en hysterískir hlýnunarmenn jarðar vita í dag. Ég veit að líkamshiti minn er algerlega óbreyttur þrátt fyrir það að mér sé kalt á tánum. Ég er ekki að farast þó tánum sé kalt eða heitt. En það halda menn um leið og einn ísjaki yfirgefur mömmu sína, jökulinn. En undir jöklinum er samt hlýtt

Ef fólk setur frosinn kjúkling undir hatt á höfði sér, þá fær það aðsvif. En líkamshiti þess er þó ekki neitt lakari þrátt fyrir það. Þetta gerði ein norsk kona í þarlendri verslun og reyndi að ganga þannig út, en fram hjá búðarkassanum. En hún komst ekki nógu langt, því það leið yfir hana og upp komst um kólnun jarðar

En hvað gerist þá næst? Jú hún þurfti að borga fyrir kjúklinginn, en til viðbótar gerist það í dag á okkar dögum að Bogi Bráðjökull DDRÚVson kemur á skjáinn og græn málning frussast yfir allt -kjarnorkuvopnin líka- og fólk setur próteininnkaupapokana yfir höfuð sér og kafnar. Við það opnast gáttir ríkissjóðs og peningarnir verða að svifryki yfir höfuðplastpokaborginni Reykjavík í nýlenduvöru-verslun IKEA og Hennes martröð. Og svona heldur þetta áfram frá fjölmiðli til fjölmiðils, þar til miðilsfundir þeirra verða að me Too. Og glösin glamra. Nýr leiðtogi jarðar er fæddur

En þetta fór víst ekki alveg þannig, því þessi umræddi nýi leiðtogi "hins frjálsa heims", sjálf Angela Merkel, húkir nú ein heima í stjórnlausu Þýskalandi og hefur hvorki stjórn á barnlausri sjálfri sér, flokk sínum, landinu né neinu. Hún er algerlega komin í þrot. Bara alveg. Flokkurinn hennar þolir hana ekki, hún er svo hroðalegur hugleysingi að það er henni að kenna, segja flokksmenn, að Þýskaland er varnarlaust land og án nokkurrar getu til að verja sig né hvað þá NATO-bandamennina sem landið hefur skuldbundið til að koma til varnar, en getur ekki, vegna hugleysis hennar í samvinnu við sósíaldemókrata. Þetta sagði Norbert Röttgen flokksbróðir hennar og formaður utanríkismálanefndar þýska þingsins í síðustu viku. Hann segir að pólitík Angelu Merkel sé skandall fyrir Þýskaland og grafi undan trausti boraranna á landi sínu. Enda hefur flokkurinn nú í fyrsta skiptið í sögunni mælst með undir 30 prósent fylgi í virtri skoðanakönnun. Og þar eru þýskir sósíaldemókratar komnir niður í 16 prósentur. Aðeins 1,5 prósent skilur nú á milli fylgis þeirra og AfD

Einu vinirnir sem Merkel á eftir, eru þeir sem sköffuðu forvera hennar í kanslarastarfinu þá gulu bót sem sá lét sauma fasta á Gyðinga í Evrópu. En það gerðu múslímar fyrstir og bönnuðu Gyðingum að biðjast upphátt fyrir, ríða hestum og sinna opinberum störfum í sínu eigin landi Ísraels, um það leyti sem múslímar undir Ómar lögðu hald á það í kringum árið 600. Þá var Gyðingum gert skylt að bera gula bót til að aðgreina sig frá þeim sem tóku land þeirra yfir, eftir að Rómaverjar höfðu tekið það, rústað helgistað þeirra, réðu öllu í landi þeirra í langan tíma og gerðu Gyðinga útlæga úr höfuðborg sinni, Jerúsalem. Skömmu eftir fæðingu Krists og aftöku hans, drepa úniversal imperíal Rómverjar hálfa milljón Gyðinga í þjóðríki þeirra, brenna þúsund þorp og bæi þeirra niður og skíra Jerúsalem öðru nafni, Aelia Capatolina, og gefa Júdeu nafnið Palaestina til að reyna að afmá öll bönd Gyðinga við land þeirra Ísrael

Þeir sem tóku við úniversal imperíal kyndli Rómverja heita Líberalistar í dag. Þeir ætla eins og Rómverjar að koma einu únversal regluverki yfir allt mannkyn. En það bannar Biblía Vesturlanda alveg stranglega. Hún harðbannar það því það það er af hinu ógurlega illa og vonda að reyna að ráða þannig yfir öllum heiminum. Það má enginn gera. Maðurinn er ekki skapaður til að vera eitthvað eitt samkvæmt einni reglu þannig úníversal imperíalisma. Gamla testamentið kom því með landamærin og þjóð-ríkið til okkar til að koma í veg fyrir að þjóðir flæddu út fyrir þau til að gleypa heiminn. Þess vegna var hið forna Ísrael svona einstakt í mannkynssögunni. Það varð hornsteinn Vesturlanda

Eina áþreifanlega sönnunargagnið um tilvist Pontísuar Pílatusar fannst árið 1963 í rústum Caesarea, sem múslímar urðu að taka yfir þarna seint á sjöttu öld til að geta hrifsað til sín allt landið, og saumað gula merkimiðann fastan á Gyðinga í þeirra eigin landi. Yfir innganginum hafði nefnilega skilti með áletruninni TIVS PILATUS hangið. Það er fundið. Skilti og opið leikhús fékk hann, og Jesú Krist upp á kross, en gulan merkimiða fengu Gyðingar, þá og einnig löngu síðar, ásamt íslömsku vígahreiðri klaskað beint ofan á þeirra helgasta helgistað. Og sem hafði verið sá helgi staður þeirra frá því þúsund árum fyrir Krist. Þar stendur hið niðurklaskaða vígahreiður íslamista enn og safnar í sig púðri

Já, gula bót til að aðgreina þá frá herraþjóðinni, sem Angela Merkel bauð nýlega velkomna í sitt land til að drekkja sinni þjóð. Þetta er að verða fyrsta boðorðið í hjálparstarfi nútímans; ávallt að drekkja sjálfum sér fyrst, áður en öðrum er svo "bjargað" með engu, því allt er farið. Þetta er hin nýja Gaia-kenning Líberalista. Gamla hryllings-bandalagið er þetta sterkt, enn þann dag í dag. Enda voru múslímar miklir bandamenn Hitlers

Svo klöskuðu múslímar, sjö hundruð árum eftir Krist, stórmosku yfir sjálfan helgasta helgistað Gyðinga í Jerúsalem, þá tæplega tvö þúsund ára gamlan, eins og þeir -ef svona vel viðrar fyrir þá áfram í geldri Evrópu- munu reisa yfir tómarúm Angelu Merkels. Enda er verið að byggja þannig musteri út um allt í Þýskalandi. Þar er nú kallað til bæna og í gjallarhornin öskrað "okkar guð er stærstur"

Einn þýskur maður hefur þó kært hátalarakerfið og er sú kæra nú í athugun í steingeldu Þýskalandi. En það er hún einungis vegna þess að hornið gellur því út yfir allt og alla, að guð annarra sé stærri en þeirra þýski eigin (sem er næstum enginn) og sem Mekrel hefur gert svo kyrfilega lítið úr, að hann er næstum því ekkert orðinn. Skiljanlega er ekki er von á annars konar gjallandi horni úr hörðustu humátt sem gellur ekki hærra en áunnið heyrnarleysi hennar og annarra steingeldra sekúlarista mögulega getur numið. Sagt er að kanslaraínan kunni þó enn að lesa og kannski að skrifa, en alls ekki að skrifta, enda alin og forhert upp í DDR, þar sem hún var í guðlausri ungliðahreyfingu kommúnistanna sem drápu landið sitt svo innanfrá að það hefur aldrei beðið þess bætur. Hún neitar því forhert enn og án afláts að viðurkenna mistök sín, sama hversu grafalvarleg og slæm þau eru fyrir Þýskaland og allt meginland Evrópu. Pólland fær hún þó aldrei

Sem sagt: "leiðtogi hins frjálsa heims" er greinilega nýfæddur. Þýskaland myndi verða gjaldþrota á fimm sekúndum við það eitt að verja sig sjálft. En þar telur bara enginn að neitt sé til, sem vert sé að verja - og gildir það álit Þýskalands einnig um allt meginland Evrópu. Í því felst leiðtog Þýskalands, eins og ávallt áður; Að stúta því öllu - líka á undanhaldinu

Fyrri færsla

Ætlar Framsóknarflokkurinn ekki að banna fóstureyðingar líka?


Ætlar Framsóknarflokkurinn ekki að banna fóstureyðingar líka?

Undir fána Framsóknarflokksins er nú rennt blint í sjó athyglissýkinnar með því að leggja til að umskurður drengja sé bannaður. Hyggst kvenþingmaður flokksins reisa sér pólitískan minnisvarða á kostnað annarra - og fara létt með, sökum þess sem aðeins er hægt að stimpla sem almenna heimsku og fáfræði Líberalista

Undir fánum mannréttindahreyfinga leynast hinir verstu ofstækis- og glæpamenn eins og annars staðar. En samt meira þar, því mest er af slíkum hreyfingum undir fána Sameinuðu þjóðanna, sem eru ekki til nema sem misnotuð bygging einræðis- og ofstækisherra á kostnað Bandaríkjanna

Erfitt er að segja til um hvort að mannréttindafólk sé verra en annað fólk. En það er að minnsta kosti ekki betra. Sennilega er það oft heimskara, því hreyfingar þeirra lykta meira af ofstæki en til dæmis hreyfingar þeirra hreyfinga sem hreyfa sig minna og hægar

Góðgerðastarfsemi margra hreyfinga er í dag rekin á sömu prinsippum og okurlánastarfsemi og enn verra. Þetta má því miður segja um stóran hluta hjálpariðnaðarins, það er að segja hjálparbransans. Hann er nefnilega bransi. Við skulum ekki minnast á náttúru- og loftslagsfasismann hér, því þá lýkur þessu aldrei

Þeir sem minnast aðferðafræði læknavísindanna síðastliðin bara hundrað ár, muna að þar á bæ var ekki verið að tvínóna við að skera lífið undan fólki. Og sá bransi er mjög duglegur við að drepa ófædd börn í dag. Klakaböð í spennitreyjum, raflost og geldingar heyrðu til nýjunga sem Líberalistar fögnuðu ákaft á hverjum tíma. Um stórkostlegar framfarir var að ræða, sönglaði sá kór

Spyr ég því hvort að Framsóknarflokkurinn ætli ekki örugglega að banna fóstureyðingar líka? Og í leiðinni væri ekki úr vegi að spyrja þann flokk þingmanna hvort að hann ætli ekki örugglega að banna bólusetningar kornabarna í leiðinni með umskurðinum, þar sem nálum er stungið í ómálga börn og framandi efnum dælt inn í líkama þeirra. Á ekki að banna þetta líka? Og fyrst við erum komin í gang, ætti þá ekki líka að banna göt í eyru og annarsstaðar á börnum undir tvítugu, því "heili" fólks nær ekki fullum þroska fyrr en eftir þann löglega áfengisaldur, eins og þar stendur

Og hvað með að ganga loksins frá gamla fólkinu eins og fóstrunum, með því að segja að "eiginlega" sé ekki um fullt líf að ræða, heldur bara hálft líf gamals og slitins fólks. Varla ætlið þið að standa í vegi fyrir því. Það get ég ekki ímyndað mér, því svo litlir eru fætur ykkar orðnir; skóstærð 10,7 - er það ekki? Sú umskorna stærð segir sig sjálf, eins og sést og heyrist þessa daga. Tíu komma sjö

Einu sinni fékk ég sem 7 ára drengur heiftarlega sýkingu undir forhúðinni. Þá var ég í sveit í torbæ. Bað og þannig lúxus og salerni voru ekki fyrir hendi. Slík var staðan líka á byggingarstöðum höfuðstaðarins, þegar ég 15 ára var að hræra og hífa steypu frá morgni til kvölds. Sementspokar komu sér þá vel, enda hús þá bara byggð, en ekki "uppbyggð" eins og allt er í dag. Hefði ég sem 7 ára verið umskorinn, þá hefði ég bara getað dýft honum í bæjarlækinn. En það var ég því miður ekki. Og ég var heldur ekki nógu gamall til að láta mér detta í hug að banna ætti Framsóknarflokkinn vegna þessa, því kjör bænda voru þarna á sjöunda áratug síðustu aldar ekkert til að hrópa húrra fyrir. Ég sagði engum frá þessu, heldur hélt flokkinn út. Og mér sýnist ég ætla að lifa hann af, því hann virðist orðinn hættulega heimskur flokkur manna. Það sannast þessa dagana, eða afsannast

Hafa Líberalistar Vesturlanda náð því stigi í dag að vera orðnir klárir í að verða framkvæmdastjórar nýrrar Helfarar eins og þeir voru framkvæmdastjórar þeirrar síðustu? Manni sýnist það. Þeir eru oft heimskustu, fáfróðustu og hámenntuðustu eintökin sem til eru í skúffum mannlífsins á Vesturlöndum í dag. Þeir hata þó yfirleitt Gyðinga á annan hátt en forfeður þeirra gerðu. Þeir henda ekki grjóti í glugga hjá Gyðingum og þeir brjóta ekki bein þeirra. Nei það gera þeir ekki, en þeir eru yfirleitt samtaka um að hata Ísraelsríkið þeirra út af lífinu

Það styttist í þá næstu, því heimska Líberalista ræður för. Leið þeirra til himna liggur alltaf um heljarins helvíti fyrst, sérhannað fyrir litlar þjóðir

Ég er Íhaldsmaður. Mannlífið í torfbænum var gott líf og algerlega einstakt. Það var hógvært og staðfast líf, fullt sjálfstrausts og sjálfstæðis í landi fiskimanna og bænda, - þrátt fyrir mannréttindi Framsóknarflokksins

Fyrri færsla

Ríkisútvarpið er blikkandi rautt neyðarljós


Ríkisútvarpið er blikkandi rautt neyðarljós

Eitt skærasta merki um að eitthvað verulega mikið sé að í nútímalegu lýðræðisríki, hlýtur að vera sérhvert verksummerki um tilvist einhverskonar "Ríkisútvarps" í þannig ríki. Það eitt að ríkisrekinn fjölmiðill skuli vera til í nútímanum, hlýtur að vera eitt skærasta blikkandi rauða ljós um að eitthvað verulega mikið sé að í því ríki

Ekkert réttlætir tilvist Ríkisútvarps, sem þekkt eru fyrir að dæla út pólitískum áróðri í eina átt en grafa undan hinni áttinni, með lögvernduðu umboðsleysi þess, en sem fólki er gert skylt að borga fyrir eins og að um alvörumál lífsins sé um að ræða, eins og til dæmis lögreglu eða landvarnir

Við sáum einmitt enn eitt þannig dæmi í kvöld, þar sem starfslið ríkisfjölmiðilsins réðst að kjörnum fulltrúa fólksins. Ef fórnarlambið hefði verið einn af þeim, þ.e. rautt, þá hefði ekkert heyrst og þessi nauðgun ekki farið fram. Allir hljóta að sjá hverskonar pólitísk mannætustofnun Ríkisútvarpið er orðið. Það er einkaklúbbur fámennrar elítu sem hatar þjóðríkið Ísland

Alþingi þyrfti einnig að flytja starfsemi sína frá Reykjavík, áður en sú æðsta stofnun Íslenska Lýðveldisins verður lakagígum Reykjavíkur að bráð, í endalausum pólitískum móðuharðindum þess staðar, sem sjúga kraftinn úr öllu sem á Íslandi lifir

Ég er ansi hræddur um að Ríkisútvarpið sé orðið rotnasta stofnun Lýðveldisins. Enda skammast það sín og notar feluliti yfir nafnið sitt. Það heitir Ríkisútvarpið, en er DDRÚV. Það gæti alveg eins heitið pólitíska hóruhúsið eins og RÚV

Ég hvet þingmenn til að berjast fyrir því að Ríkisútvarpið hætti umsvifalaust öllum rekstri og að öllum starfsmönnum þess verði sagt upp og útsendingarbúnaði þess varpað í Kleifarvatn. Og að þeir peningar sem þannig sparast séu á hverju ári næstu 10 árin settir í vegakerfi Íslendinga og að sú framkvæmd sé boðin út. Um tvennt er að velja. 1) niðurrifsstarfsemi DDRVÚ eða 2) uppbyggingu vegakerfis Íslendinga

Lífið á Íslandi var þrátt fyrir allt betra og hugrakkara áður en Ríkisútvarpið kom til sögunnar. Það hefði aldrei átt að fæðast á kostnað skattgreiðenda. Ríkisútvarpið var misráðin pólitík um misráðna pólitíska stofnun

Fyrri færsla

PISA-lánshæfnismat OECD-Ratings í menntamálum


PISA-lánshæfnismat OECD-Ratings í menntamálum

Við ættum ekki láta Fitch-Ratings um menntakerfið okkar. Hvort það sé "lánshæft" eða ekki. Allir muna hvernig svona glóbal ríkisstjórnun (e. governance) í þeim geira gekk fyrir sig. Hann varð gjaldþrota og kostaði þjóðir næstum lífið, efnahagslega séð - og þar með einnig menntalega séð

Það er enginn munur hér á og því að hleypa OECD-Ratings í menntakerfið okkar. Það má ekki gerast að íslensk ríkisstjórn og menntamálaráðherrar depóneri til OECD hvað menntakerfið okkar á að gera og geta eða ekki gera og geta, og hvenær það á að gera hvað. Út með OECD úr íslensku menntakerfi

Þeir sem kaupa PISA-lánshæfnina í menntamálum, þeir kaupa allt. Þeir eru auðvitað glataðir Líberalistar. Allir vita hvaða bóluefni svona stofnanir koma svo með á borð ríkisstjórna, sem "lagfæra" á það sem OECD-Ratings hefur mælt að sé að. Staðlaðir kjánar úr OECD-menntakerfum fyrir staðlað glóbal atvinnulíf, er mjög slæm hugmynd

Þetta er þvæla út í gegn og enginn ætti að koma nálægt þessu. Þetta er algjör uppgjöf og enn eitt Ponzi skemað í glötuðum glóbalisma. Hvar er sjálfstraust manna, spyr ég. "PISA-áhrifin" (e. "the PISA effect") á menntakerfi er ekkert til að sækjast eftir. Þvert á móti. Látið ekki glepjast af pisskeppni PISA

Hættið að ganga með hækjur bara vegna þess að aðrir gera það. Sleppið hækjunum. Það er alveg óhætt, þið dettið ekki, kæru stjórnmálamenn. Þið getið gengið, en þið verðið að sjálfsögðu að vilja það. Skríðandi stjórnmálamenn er ófögur sjón. Reynið endilega að rifja upp það sem amma ykkar sagði. Það hefur reynst vel

Fyrri færsla

Kva! Engin nauðgun í kvöldfréttum DDRÚV


Kva! Engin nauðgun í kvöldfréttum DDRÚV

Ja hérna. Heimurinn er að farast. Engin nauðgun, ekkert klof, ekkert kyn(þetta eða hitt)- ofbeldi í fréttatíma DDRÚV í kvöld. Hvað er að gerast! Heill ofbeldislaus fréttatími hlýtur að vera ársmetið núna

Það eina sem gerðist var að manni var nauðgað til að horfa á íþróttir til þess að fá að horfa á það sem öllu máli skiptir; veðurfréttir. Besti maður allra kvelda á þessari vesælu örfréttastofu Líberalista, er veðurfræðingurinn. Lengi lifi þeir! Þeir eru nefnilega íhaldsmenn. Annars myndu þeir verða eins og DDRÚV. Enginn myndi taka mark á þeim

Hmpf!

Best að halda áfram að moka

Fyrri færsla

Ekki í beinni - heldur í óbeinni óbeinni


Ekki í beinni - heldur í óbeinni óbeinni

Þetta kort -teiknimynd- er alls ekki bein útsending af neinu, né hvað þá óbein útsending. Það er ekki einu sinni útreikningar í rauntíma heldur er um þriggja tíma gamla tölvukeyrslu að ræða. Það er ekkert beint við þetta kort. Ekki frekar en það hitastig sem birt er notendum snjallsíma á hverjum og einum stað sem þeir eru. Það hitastig sem birt er, er ekki veðurathugun heldur aðeins útkoma úr reiknilíkani. Ekkert þessara prógramma (apps) tímir að borga veðurathugunarstöðvum fyrir alvöru mælingar. Þeir sem kunna að forrita hafa hér forritað sig framhjá staðreyndum

Þessi færsla er heldur ekki bein útsending, en hún er samt nýrri en það sem þarna er sagt vera "beint" en óbeint. Og hún er byggð á mínum athugunum, en ekki reiknilíkani

Takið endilega fleiri PISA-próf! Þeir sem fá hæst trúa mest á teiknimyndir

Best er að horfa út um gluggann. Nema að búið sé að taka gluggana úr bæði híbýlum og ökutækjum manna, eins og gerðist þegar nýtt skattakerfi tók við eftir frönsku byltinguna, þar sem fjöldi glugga í húsum var skattlagður og fólk múraði því bara upp í þá - og menn sögðu "Me-too"

Fyrri færsla

Pisskeppnin PISA


mbl.is Stormurinn nálgast hámarkið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Pisskeppnin PISA

Hreyfimynd: Borgarlína Donalds J. Trump

****

Kaþólskari en páfinn

Til hvers voru menn að sækjast eftir fullveldi, ef þeir ætla síðan að láta elítu alþjóðaisma ráða yfir sér. Við urðum Mótmælendur vegna þess að við vildum fá að lesa og túlka Biblíuna samkvæmt okkar eigin skilningi á henni. Þá vorum við í reynd að segja þeim sem réðu að við vildum fá okkar eigin stjórnarskrá svo við gætum stjórnað okkur sjálf samkvæmt okkar skilningi, þörfum og með okkar eigin lögum. Við vildum hafa sjálfsákvörðunarrétt í okkar málum. Við vildum ekki lúta úniversalisma Páfagarðs, né neinna úniversal heimsvelda og allra síst úniversal imperíal-veldi Líberalista okkar daga, sem klessti veröld Vesturlandabúa árið 2009

En hvað sér maður núna? Jú fullfrískir menn hokra í púpum sínum og éta alþjóðlegt delluverk sem engum Sjálfstæðismanni hefði dottið í hug að væri til neins annars en að ná tökum á lirfulífi þeirra, samkvæmt skilningi alþjóðlegra elíta, sem komið hafa í stað Páfagarðs á okkar dögum. Og að þeir myndu því koma úr úr því lífi sem staðlaðir ormar

Hví eru menn að leggja þeim elítum til svona sjálfsmörk. Erum við ekki okkar eigin herrar. Fráfall í menntakerfi er sennilega heilbrigðismerki. Lítið fráfall er lítið, vegna aðstæðna sem eru svo ömurlegar, að um allt er að tefla eða ekkert. Sýnist ykkur að alþjóðleg menntunarveldi á borð við hvellsprungið Japan í 30 ár og ýmis önnur Asíulönd, sé það sem vert er fyrir okkur að sækjast eftir. Hvað er að mönnum. Eru þeir orðnir páfar

Í Danmörku er staðan þannig að ef þau örfáu börn sem þar fæðast enn, detta út úr skóla þá detta þau út í Evrópusambandslegt og massíft 100 ára atvinnuleysi ungmenna þar sem ekkert er að hafa. Það er því aðeins um tvennt að velja. Hýrast áfram í þeim ónýtu, mygluðu og að hruni komnu skólabyggingum sem þar hýsa resta-afkvæmi geldneytis evrópskra Líberalista, og sem ekki var eytt sem fóstrum, eða þá að fara í hundana, sem eru margir og miklir í formi þess gelda þjóðfélags sem aðild Danmerkur að Evrópusambandinu hefur búið landinu. Samt er staðan í Danmörku betri en í flestum löndum úrkynja meginlands Evrópu. Þar eru engin vandamál með þau börn sem fæðast þar ekki

Hin endalega lausn á skólamálunum í Evrópu er fundin. Hún heitir gelding í nafni Líberalista. Og hún er í fullum gangi. Þetta er sú statistíkk sem menn eiga að horfa á. Þeir eiga ekki að haga sér eins og flugmennirnir sem þoldu ekki að vita ekki hvers vegna rautt ljós blikkaði í mælaborði flugvélarinnar, og fóru því í að leysa það mál á meðan vélin, með nefið niður, hrapaði hægt og rólega til jarðar og drap alla um borð. Og þetta er ekki einu sinni lygi. Þetta gerðist. Það er þetta sem piss PISA bunar á; rautt ljóst fyrir þá sem hugsa á bókina og vilja hrapa

En hvar eru svo allir iðnskólarnir sem einu sinni voru hér? Ég spyr, því vandamálið í löndum með sæmilegt magn lifandi en ekki drepinna barna, er það að allir foreldrar, eins og ég, eru sérfræðingar í skólakerfum, því allir foreldrar hafa verið þar og vita því um hvað þeir tala. Allir foreldrar eru sérfræðingar í skólamálum. Þeir sem eiga engin börn, eru hins vegar bara sérfræðingar og ekkert annað. Allir vita að slíkri geldstöðu mæltu heilagar Ritningar Vesturlanda alls ekki með. Þar skiptir fjöldi barna öllu máli, en ekki gæðin. Sumt er nefnilega börnum meðfætt og það eru gáfur. Heimska er ekki meðfædd, hún er áunninn sérfræðilegur verknaður Líberalista

Og vert er að minnast þess að skólakerfi Sovétríkjanna var gott. En þau dóu samt úr menntun og náttúruauðæfum upp í háls. Það ríki var einnig úniversal-imperíal-veldi. Sovétríkin urðu veldi þeirra sem tóku Líberalismann alla leið þangað sem hann alltaf endar; þ.e. sem OECD í öðru veldi. Þangað stefnir ESB

Það er íslenskum ungmennum til mikils hróss, að þau eru alls ekki sænsk í hugsun. Fyrir þau er ekki hægt að henda hvaða skeinipappír sem er, án þess að þau spyrji fyrst; til hvers erum við að þessu? En þannig er margumtalaður "dugnaður þjóða" sem grúfa sig yfir hvaða verkefni sem hent er fyrir þær, til úrlausnar og endanlegrar útrýmingar. Mér er létt, því íslensk ungmenni stóðust prófið með glans

Haldið endilega áfram að pissa PISA. Fyrir alla muni, nema okkar fjármuni. Þeir sem síðan vilja láta jaðarsetja sig í alþjóðlegum kirkjugarðadeildum OECD, geri bara einmitt það. En komið ekki nálægt okkar heilaga garði; fullveldi og sjálfsákvörðunarrétti íslenskrar þjóðar

Fyrri færsla

Norðurlandaráð þjáist af hámenntun


Norðurlandaráð þjáist af hámenntun

Menntamannasetur Norðurlandaráðs

Mynd: bein krækja á menntamenn og skýrsluframleiðendur Norðurlandaráðs (enda er Lenovo vörumerki kínverskra, en ekki hæverskra). Svona hefur þetta verið árum saman. Aular! Enginn í ráðinu hefur tekið eftir að enginn les neitt frá þeim vegna þess að það er ekki hægt að nálgast það. Ráðið er orðið tankur sem talar við sjálfan sig og fréttastofur, til að vekja þá athygli á sér sem það er sjálft ófært um að gera. "Tökum menntamálin fyrir núna til að skaffa okkur fleiri peninga og gefum út skýrslu á ensku sem enginn getur nálgast"

****

Það kann bara eitt tungumál núna: ensku!

Ráðið kann ekki að búa til heimasíður. Krækja á enska skýrslu virkar ekki því hún vísar í rótina á Windows-tölvu ráðsins, en ekki á vefsetrið. Og þannig er það búið að vera í nokkur ár! Gæðastjórnun er engin og gæðaeftirlit ekkert. Þekking er engin. Og vandvirki ráðsins er frosthrunin bygging í Síberíu

Ég hef fylgst með og lesið tölfræðileg ársrit ykkar síðustu 12 árin. Og síðustu mörg árin hef ég þurft að nálgast gögn ykkar eftir krókaleiðum vegna vanrækslu ykkar á eigin setri. Þið fylgist ekki með neinu, enda les enginn það sem þið birtið, en þó alveg án þess að þið gerið ykkur grein fyrir því. Þið þiggið bara laun

Fjallað er um menntun í skýrslunni. Ráðið sjálft er árangur menntunar. Það kann eitt tungumál og er mannað miklum árangri í atvinnuleysi. Því hærra sem það er, því meiri menntun

Ég er langþreyttur á að þurfa að halda þessu og álíka predikandi menntapakki um allt þjóðfélagið uppi. Það skilar engu nema bremsuklossum og er því landsframleiðslan á hvern íbúa á Íslandi sú næst hæsta á Norðurlöndum, þrátt fyrir að heilum geira menntafólksins skyldi af mörkuðum vera sturtað á haugana: þ.e. hinu alþjóðlega fjármálaherfi íslenskra menntamanna. Og ef olíuverð helst lágt þá fer norska landsframleiðslan á mann niður fyrir þá íslensku, eins og hendi sér veifað. Alveg gratís

En hvernig getur það verið að landsframleiðslan á hvern alvitran Finna skuli vera sú áberandi versta á Norðurlöndum, því þeir gengu jú í hlaðborð menntamanna og drekktu landi sínu í evrum. Finnland hefur látið lífið á hlaðborði evrópskra menntaelíta. Hámenntun í heimsku er orðin sjúkdómsplága á Evrópu

Það er lágmark að Norðurlandaráð hysji upp um sig brækurnar. Annars verður því lokað og þið öll rekin úr starfi fyrir fúsk með annarra manna tölur og vanrækslu

Ekkert Norðurlandanna hefur ensku sem móðurmál. Enska er eins og að kunna að skeina sig í dag. Kunnið þið ekkert annað?

Skýrslufarganapakk Íslands finni sér annan vettvang fyrir þvaður sitt. Nóg er komið af súrum gúrkum ykkar. Og lokið vinsamlegast DDRÚV áður en öll þjóðin lendir á Kleppi

Fyrri færsla

Drög að bráðabirgðastjórn komin í Þýskalandi?


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband