Mánudagur, 5. mars 2018
Klikkaði skaparinn, er spurt
Að sjálfsögðu klikkaði skaparinn þarna, minn kæri, þar sem 500-læknar hafa skriflega afneitað eðli mannsins, sem hann skapaði. Það segir sig sjálft
Þeir hafa því að sjálfsögðu gert sjálfa sig að guði í staðinn. Maður getur bara ekki beðið eftir því að Sameinuðu þjóðirnar stigi alveg upp til himna og ryðji sér þar til rúms, sem ku vera stórt. Verst er hversu hárra fórna launa þeir krefjast af okkur, hinum vansköpuðu
En merkilegt er samt hversu stutt er síðan að 500-læknar mæltu með raflostum, klakaböðum í spennitreyjum og útrýmingu Gyðinga, sem læknisaðgerðum á mannkyni hins "klikkaða" Guðs. Það eru ekki nema rúmlega 70 ár síðan
Gasklefar Sameinuðu þjóðanna verða alveg eins, þegar að þeim kemur. Og sú stund nálgast með hverju nytsama fíflinu sem sú stofnun sendir áfram upp sem umboðsmann mannkyns. Munið: það kyn er jú svo gallað að 500-gallaðir læknar af sama kyni grípa hér inn sem guð, og sem er ekki í fyrsta sinn
"The fact is that what is now called "liberal democracy" refers not to the traditional Anglo-American constitution but to a rationalist reconstruction of it that has been entirely detached from the Protestant religion and the Anglo-American nationalist tradition"
Íhaldsstefna Vesturlanda er móteitrið við nýjum sturtuklefum á leið upp
Fyrri færsla
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 4. mars 2018
Glímt við Guð - og Trump
SUNNUDAGUR
Yoram Hazony - "Wrestling with God" at Shalem Center Conference, June 2011 from The Shalem Center on Vimeo.
****
Yoram Hazony leggur fram glímusöguna við Guð. Það skondna er að orðið "að hlýða" var ekki til í Hebresku, heldur átti maður að "hlusta á Guð" og taka eftir, en ekki hlýða blint. Lána þurfti orðið "að hlýða" úr Arameísku þegar Hebreska var endurreist sem tungumál Ísraela nútímans. Sömu götuskiltin og fyrir þrjú þúsund árum síðan vísa þar í landi vegfarendum á skyndibitastaði. Biblían er kennslubók í óhlýðni, segir Hazony. Þar var umskornum ungdómnum kennt að spyrja spurninga á meðan Grikkir drápu Sókrates fyrir að spilla honum, með því að kenna ungum þann glæp að spyrja spurninga. Gamla Testamentið er að miklu leyti lýsandi björt kennslubók í óhlýðni og pólitík sem varð svo að Vesturlöndum, en það Nýja laut að sjálfsögðu lögum um grískan harmleik - sem á tíðum var tekinn svo alvarlega að atóm kristni klofnuðu og viss jörð hætti að snúast. Okkur vantar saftmikla Spámenn, því nóg höfum við af bókfærslumönnunum. En þetta vill Framsókn auðvitað banna og líma íslensku atómin föst á Egyptaland aftur
****
Laskaða þýska iðnaðar-módelið á leið í Trump-tætarann
Þýskir óttast nú að hið efnahagslega iðnaðarlíkan landsins sé á leið í tætlur. Fyrst mútuðu þeir með aðstoð Brusselveldisins stjórnmálamönnum Evrópu til að reka áróður fyrir dísilbílum í álfunni. Hliðslá ESB-regluverks var sett á svið úr plasti svo allir í ESB kæmust undir. Svindltækni var komið fyrir í bílunum og þeim smyglað undir bommuna á markað. En svo illa tókst til að upp um svindl þeirra komst í sjálfri Ameríku. Bandaríska stjórnvaldið, sem treystir á Guð, var fært á bak við svart þýskt dísilljós. Enginn boss þýskra bílaverksmiðja þorði að stíga fæti niður í Bandaríkjunum í nokkur ár, af ótta við handtöku. En svo var samið um sekt, sem þýskir óttuðust á tímabili að myndi ríða þeim að fullu. En þá var algóður Obama forseti, og kom þeim til bjargar. Sektin stóð því ekki í þýskum þó svo að hikstað væri
En svo byrjaði þýska ESB-díslinum bara að rigna niður í ESB-borgarana, líka í sjálfu Þýskalandi, og bann við dísil-druslum í þýskum borgum er í smíðum. Þýska kanslaraínan Merkel skelfur og titrar með allt niðrum sig á leið í pólitíska ruslatunnu. Iðnaðurinn er æfur og vill sjá blóð. Og ekki batnar það við að Donald J. Trump forseti neitar að spila lengur með í fölsun Þýskalands og Kína á gengisskráningunni og er að skella handjárnum á ESB og Kína í formi tolla á stál og sennilega ál
Upphefst þá skerandi vein úr þýskum iðnaði sem í riðuveikiskasti hringir í kanslara sinn Merkel og heimtar hefnd. Gular og bláar blöðrur voru þá sprengdar í Brussel og hæsta fjall Hollands klofið í tvennt
En hvað gerðist svo? Jú Donald J. Trump man vel eftir dísilsvindli þýskra og hann veit vel að pólitískt bankahólf Þýskalands í Bandaríkjunum er galtómt, ekki síst eftir svindl Deutsche Bank með undirmálslánin á húsnæðismarkaði þar vestra, sem bankinn hljóp frá
Og ekki liðu því nema nokkrir tímar þar til gagntilboð við sprengdri blöðru í Brussel kom úr nýjum heimi í Vestri. Það er svona: Ef þið hafið ykkur ekki hæga, þá skelli ég tollum á bílana ykkar, framleiddum í ESB sem og annarsstaðar í veröld á leið heim
Svartur reykur liðast nú upp úr blöðruhálsi Brussels. Tætlur Trumps eru þær að Þýskaland er útflutningsháðasta ríki veraldar, en Bandaríkin geta þrifist vel án útflutnings til ESB og Kína. Þau eru nettóinnflytjandi. Þau eru alheims-kúnninn. Og hann hefur fengið nóg. Fengið nóg sem síðasti neytandi ESB til þrautarvarna, því flest innan landamæra ESB er brennt til ösku, og allir peningar niður-brunninna evrulanda hvíla nú á kistubotninum heima í Stór-Þýskalandi í pólitísku lömunarveikiskasti
Mjálm um afléttingu á Rússland mun nú brátt heyrast hátt úr Berlín. Í komandi aðsvifi munu þýskir nú þykjast ætla austur, til síns gamla genetíska draums. En þangað er bara lokað og næstum því læst. Tætarinn Trump er nefnilega að byggja. Hann er að byggja Intermarium austan við blöðruháls Brussels. Og þar er Pólland, sem er einn fremsti sérfræðingur Vesturlanda í óhlýðni með krossinn okkar á lofti. Póllandið, sjálf átta strokka bremsan á öllum sprungnum hjólum Berlínar til austurs
Já, á Guð við treystum í Vestri, take that. Og þið hafið hvað..?
Jæja. Best að koma sér út að pissa, standandi, og huga að veðri
Fyrri færsla
Ætti að fangelsa grænmetisætur í 6 ár?
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Föstudagur, 2. mars 2018
Ætti að fangelsa grænmetisætur í 6 ár?
Í stafrænt pósthólf mitt í morgun duttu að venju inn Skot dagsins frá Wall Street Journal. Markaðir, markaðir, ríkisstjórnir, ríkisfjármál, fjárfestingar, atvinnuástand og lífið á jörðinni almennt
Féhirðar Harward háskólans komu til dæmis síðastir (af fimm efstu sætum) út úr þeim fjárfestingum sem háskólar Bandaríkjanna þurfa að sinna til að geta lifað af og sem gera þá að bestu skólum heimsins. Harward háskólinn missti einn milljarð dala á gólfið vegna fjárfestinga í tómötum, sykri og eucalyptus, segja tölur og gröf. MIT var í efsta sætinu með 7,6 prósent ársávöxtun á ári á síðustu 10 árum, en Harward var bara með 4,4 prósent ávöxtun - og er að sjálfsögðu fallinn á PISA prófinu, ekki satt? Kjánaleg ályktun, því veðurspár eru bara spár og verða alltaf bara veðurspár. Nema þegar um "hlýnun" er að ræða. Hún ein er trúarleg staðreynd, sama um hvaða uppskeru, niðurskurð og kommúnistatrú er að ræða
Svo kom þetta hér: "Dauðsföll í heiminum eftir áhættuþáttum", allir aldurshópar. Þá datt mér í hug að skoða dauðsföll eftir áhættuþáttum hjá börnum yngri en 5 ára í heiminum öllum og í hinum ýmsu "vondu" og "ónýtu" löndum. Til dæmis í umskornum Bandaríkjunum, Ísrael og Ástralíu og svo á Íslandi. Myndin í þessum löndum er öll næstum sú sama. Númer eitt er lág fæðingarþyngd, númer tvö er það sem kallað er e. non-exclusive breastfeeding, þ.e. kornabörn undir sex mánaða aldri fá fæðu sem er ekki mjólk úr mömmu sinni (dísil í stað 98-oktan). Númer þrjú er skortur. Hvergi er umskurð að finna. Orðið finnst ekki einu sinni á skrá. Það eina trúarlegt sem ég hugsanlega kem auga á er Grænmetistrúin. Er hún að drepa börnin? og ætti þá að breyta umskurðarfrumvarpinu í grænmetisfrumvarp? Ég bara spyr | Gögn
Hvað segið þið um þetta. Á að stinga mæðrum 6 ár í steininn fyrir vanrækslu, grænmetistrúarofstæki og klikkaða megrunarkúra á meðgöngunni og eftir fæðingu?
Hraust sál í hraustum líkama vita flestir hvað er. Borða og sofa, borða og sofa er það sem gildir fyrir kornabörn. Ró, regla og næring. Það er það sem máli skiptir. Og alger óþarfi er reyna að ala börn upp á fjóshaug, hreinlætislega séð
Að mínu mati eru það eingöngu foreldrarnir sem bera ábyrgð á börnum sínum og sér sjálfum. Ef fólk hálf-kafnað úr upplýsingum á okkar dögum, vill samt borða eða ekki borða þetta eða hitt, þá á það að sjálfsögðu að fá að gera það. Foreldrar og börn eru ekki sameign
En ef elliframfærsla fólks kæmi bara frá þeirra eigin börnum, en ekki frá börnum annarra foreldra, þá myndi fólk hugsa sig tvisvar um áður en það geldir sig eða kálar börnum sínum. Því þá væri það bara gaddurinn sem bíður. Að mistakast með ávöxtun eiginfjár, væri þá ekkert til að hlægja að á neinu þingi, því steingeldur sósíalisminn fengi þar ræðustólinn allan. Harward er og verður aldrei nóg
Að foreldrar drepi börnin sín getur ekkert ríkisvald stöðvað. En það vald getur hins vegar hætt að níðast á foreldrum og börnum þeirra. Það stopp væri kærkomin tilbreyting frá yfirríkislegum stælum þeirra sem þykjast vita allt. Hægt væri til dæmis að byrja á kjaftstoppi
Að efna til ófriðar að óþörfu er slæmt. Kjaftstopp er betra
Fyrri færsla
Eru vinstrimenn fórnarlömb LED-lýsingar?
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 1. mars 2018
Eru vinstrimenn fórnarlömb LED-lýsingar?
Manni gæti svona dottið það í hug, því þeir hafa alltaf neitað að sjá manninn eins og hann er, og veröldina líka. Og það er nú þannig að LED-ljósaperur sýna aðeins 70-80 prósent af þeim litum sem sólin baðar heiminn í. Mjög oft finnst mér LED-lýsing svara til þeirrar lýsingar sem ég held að sé í líkhúsum og hef séð í sláturhúsum
Einu sinni kvartaði starfsfólk mitt yfir því að liturinn á tískufötunum sem við seldum í Skandínavíu væri á engan hátt líkur þeim litum sem við kynntum þau í á 4-5-valsa arkar,- offset,- og djúpprentverkum okkar. Þá vorum við nýflutt inn í húsnæði gamallar gluggaverksmiðju, sem hafði lokað og við gerðum upp. Hvað gerðum við í þessu vandasama máli? Jú það reyndist nóg að skipta bara um ljósrörs-perur í pökkunardeildinni, það hafði nefnilega ekki verið gert, þær voru enn þær sömu köldu og þegar gluggar heimsins voru smíðaðir þar
En er nóg að skipta um perur í hinum lokaða heimi vinstrimanna eða ekki. Hvað segið þið um það?
En kannski eru það mannréttindi að sjá heiminn í þessu ljósi. En hvers vegna þarf sérstök lög um mannréttindi ef allir í heiminum eru eins. Það ætti þá að nægja að vísa bara til sköpunarverksins. Því samkvæmt mannréttinda-stjórnmálamönnum, eru allir menn eins. Og að einmitt vegna þess, sé hægt að koma þeim öllum undir ein og sömu lögin, sem þar með eru látin gilda um alla menn. Af hverju þarf að setja slík alheims lög, ef allir menn eru eins? Getur það verið að "mannréttindalögin" séu í raun ekki mannréttindalög, heldur aðeins ný gömul lög til að ráða yfir heiminum öllum? Slíkt hefur verið reynt áður
Um leið og ég get, mun ég hætta að kaupa sovéskar ljósaperur Evrópusambandsins, sama hvaða nafni þær nefnast, og kaupa mér glóðarperur og halogen sem sýna alla 100 prósent litavísitölu heimsins. Aka mun ég svo aftur og aftur yfir LED-ljósin á 10 ára gamla V8 SRT8 kagganum mínum með drifi á öllum og njóta þess í botn. En fyrst mun ég klæðast lopapeysunni góðu, fá mér svið, og stíga svo bensíngjöfina í botn (nýju 2018-árgerðina má sjá hér). Mig langar að sjá heiminn minn eins og hann er. Meira að segja afgreiðslufólk í verslunum heldur að um LED-galdralýsingar sé að ræða þegar talað er við það um ljósið í heiminum. En þar sem ég er íhaldsmaður, þá sé ég muninn. Íhaldsmenn hafa nefnilega alltaf viljað sjá manninn eins og hann er, og heim hans líka. Um það snýst íhaldsstefnan
Meira að segja mánaskin og belgmyrkur er flottara en LED. Já, það er enn hin gamla glóð í minni peru. En hvað með þína?
Við skulum enn sem komið er halda ísnála-jólaskreytingum LEDismans fyrir utan málið, því það er þess eðlis að jólin lýsa sér sjálf - hafa alltaf gert og gera alltaf
Gunnarsdottir Dogg Silja komin í New York Times
Hefur ekki umboð, segja "þeir"
Nú er Ísland að birtast á síðum fjölmiðla heimsins, vegna Framsóknaryfirumsjónarmanns barna og marxískra bandalagsmanna þeirra á Alþingi Íslendinga. Gunnarsdottir sem var ekki spurð að því hvar hún vildi fæðast, fær ekki þær glóballar-undirtektir sem hún sennilega hafði vonast til, því varla getur verið um mikið annað að ræða, þar sem svo örfá umskurðartilfelli eru "skráð" í kennitölu-stasi-musteri Íslands
New York Times er að taka við sér og er byrjað að fjalla um málið. Vinsældir Íslands koma svo væntanlega fram á bankareikningi þeirra sem jafnvel ekkert hafa lagt inn, heldur bara tekið út og fjárfest því í framtíð Íslands. Lítil er hrifningin í grein blaðsins á hetjustöðutöku Gunnarsdottir án áhættu. Þetta er bara byrjunin
Annar sjálfstæður miðill spyr hvar Gunnarsdottir hafi fengið umboð til að tala fyrir hönd barna sem geta ekki talað. Hvar hefur hún fengið það umboð
Annar spyr hvort það sama eigi ekki líka að gilda um Kaþólsku, því það sé barna-níð að láta börn alast upp í Kaþólsku. Sá maður heitir víst Richard Dawkins og er sagður einn heittrúaðasti heiðingi heims
Annar segir að með þessu sé verið að höfða til tilfinninga fólks en ekki skynsemi þess. Engin heilsufarsleg rök er hægt að finna sem styðja hetjuskap Gunnarsdottir (fornaldarlegar beygingar og sértrúartákn stafasetta bönnuð)
Skírnin verður svo væntanlega tekin fyrir næst, barnaskólar bannaðir, því ekkert má kenna án samráðs við framtíðina, sem er ekki runnin upp
Bólusetningar ungbarna að þeim forspurðum verða svo væntanlega lagðar niður líka og nýjar miðaldir hefjast, því þrátt fyrir allt er hin heilsufarslega áhætta við þær líklega betur skjalfest en í umskurðarmáli Gunnarsdottir. Sagt er líka að Gyðingar fái bara alls ekki krabbamein í penis. Það las ég í læknablaðinu. Foreldrar hafa samt sem betur fer viljað taka áhættuna við bólusetningar, því annað gengur varla upp, heldur niður. En jafnvel það mál er að taka á sig nýja Framsóknarmynd. Kannski fangelsun verði líka látin gilda um þær þegar fram líður í framfaraheimi númennskunnar
Eina leiðin til að koma í veg fyrir nýjar miðaldir verður væntanlega sú að láta ÖLL BÖRN (ekkert barn má sleppa því Gunnarsdottir Silja Dogg segir í New York Times að bara eitt tilfelli sé einu tilfelli of mikið) alast upp í geimstöð á sporbraut um sólu án nokkurrar trúar- og menningamengunar frá foreldrum sínum né neinum öðrum. En það má auðvitað bara vera eitt barn í hverri geimstöð, því annars gætu þau haft áhrif á hvort annað og jafnvel myndað tengsl og einhver í hópnum gæti tekið upp á því að verða flugnahöfðingi yfir hinum. Einöngrum því börnin frá öllu mannlegu og látum Framsóknargeimstöðina um restina
En Gunnarsdottir veit þetta allt, því hún er réttargæslumaður Framsóknar yfir öllum börnum allra foreldra Íslands og á endanum víðar. Hún höfðar nefnilega til úniversal-sósíalisma John Locke, því á honum byggja mannréttinda-stjórnmálin pólitík sína. Og þegar þau úniversal lög voru innleidd fyrst, þá fengu þeir franskmenn sem vildu ei samþykkja þau, ekki að vera með í hinni nýju frönsku þjóð, heldur var höfuð þeirra með fallöxi höggvið af og út úr nýju þjóð úniversalismans. Ekki umskornir, heldur niðursneiddir. Líberalistinn John Locke skaffaði þarna hinu nýja Frakklandi skilgreininguna á því hverjir máttu að vera í þjóðinni og hverjir ekki. "Allir í heiminum" áttu að hafa sömu "réttindi" í fyrstu grein frönsku stjórnarskrárinnar eftir byltinguna, en strax í þriðju grein hennar kemur mótsögnin og algera þversögnin við úníversalisma Locke í fyrstu grein, sem rústað hefur 15 stjórnarskrám og fimm lýðveldum Frakklands, síðan þá. Þetta er sjálfur grundvöllur mannréttinda-stjórnmálanna í dag. Fúinn, lúinn og fullkomið fíaskó frá fyrsta degi
Líklega er eina leiðin til að komast sæmilega frá þessu sú, að fjölga fóstureyðingum upp í 100 prósent eða láta meðgönguna standa yfir í 18 ár
Það bragð er að læðast í munn manns að viðbendlun Framsóknarflokksins við fasisma hafi verið rétt en ekki röng. Hvað eruð þið að gera með svona í ykkar hjörð Framsóknarmenn? Þetta er ekki forystukind, heldur eitthvað annað, en sem ég get ekki séð hvað er. Draugur?
En hvað með bændur. Eruð þið alveg búnir að gefast upp á þeim? Fjárhirðunum Abraham, Jakob, Móses og Davíð. Allir sauðfjárbændur sem halda hjörð sinni saman, en sundra henni ekki. Sama hvaða baráttu það kostar. Þrjú þúsund ár takk
Meira kaffi?
Fyrri færsla
Mun ESB loksins skaffa Evrópu nýjan Hitler?
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 28. febrúar 2018
Mun ESB loksins skaffa Evrópu nýjan Hitler?
Wolfgang Munchau spurði athyglisverðrar spurningar í gær:
Er (CDU) Kristilegi Demókrataflokkur Angelu Merkel íhaldsmannaflokkur?
Hann segir að öndvert við bæði Bandaríkin og Bretland, sé aðeins einn íhaldsmaður til í gjörvallri þýsku pressunni og að sá maður sé Jasper von Altenbockum á FAZ (Frankfurter Allgemeine Zeitung). Það sem gerir hann athygliverðan í okkar augum, segir Munchau, er það að hann sér flokksátökin innan CDU með skarpari augum en allir aðrir sem við höfum fylgst með
CDU leikur aðalhlutverkið í þýskum stjórnmálum eins og er, segir Munchau. En það er fyrst og fremst vegna þess að þýskir sósíaldemókratar liggja nú þegar dauðir á gólfinu. CDU er ennþá frekar stór flokkur, hann mælist enn með rúmlega 30 prósent fylgi, en sem er á hraðri niðurleið. Altenbockum, segir Munchau, spyr hvers vegna CDU bregðist með svo miklu ofnæmi við því áliti að flokkurinn sé, eða ætti minnsta kosti að vera, flokkur íhaldsmanna
Altenbockum segir að í þröngum skilningi séu allir stjórnmálaflokkar Þýskalands íhaldsflokkar. Þeir vilja allir halda fast í það sem skiptir þá máli; markaðshagkerfið, velferðarkerfið og gott heilbrigði skóga landsins. Viðhorf þeirra eru með öðrum orðum hin dæmigerðu viðbrögð flestra við frönsku byltingunni 1798, og í þeim þrönga skilningi er CDU íhaldsflokkur
En CDU er ekki íhaldsmannaflokkur í hinum djúpa og breiða skilningi sem bandarískir Repúblikanar eru, né heldur í þeim breiða og altumfaðmandi Ensk-Ameríska-arfleiðar skilningi sem Breski íhaldsmanaflokkurinn er. Þeir flokkar þekja bæði í dýpt og breidd allt hið pólitíska litróf hægri vængsins (og hugmyndafræði þeirra er massíf og ritningalega klassísk, GR)
Og skörp augu Altenbockum sjá þetta; AfD-flokkurinn (Valkostur fyrir Þýskaland) hefur ekki bara fyllt þetta pólitíska tómarúm CDU-flokksins upp með sinni stefnu, heldur hefur AfD einnig þrýst CDU enn frekar inn á hina pólitísku miðju stjórnmála (þar sem þýskir sósíaldemókratar liggja nú í valnum, GR). Altenbockum endar röntgenlýsingu sína á Þýskalandi með þessum orðum: Hið pólitíska lykilmál í Þýskalandi í dag er ekki efnahagsmál, heldur innflytjendamálið, þar sem Þjóðverjum finnst þeir vera orðnir útlendingar í sínu eigin landi
*****
Það er nefnilega það. Og þar sem síðasti Hitler Evrópu var sósíalisti og jafnvel sósíaldemókrati og sem þjóðnýtti stjórnmálin í landinu (þau máttu aðeins snúast um einn málstað; útþenslustefnu sem var sú að gleypa helst allan heiminn og hreinsa Gyðinga og annað "óæskilegt" úr honum), þá er vert að minnast þess að í dag hefur Evrópusambandið einnig þjóðnýtt næstum öll stjórnmál álfunnar, því þau mega aðeins snúast um einn málstað; sameiningu Evrópu. Öll önnur stjórnmál eru því sem næst bönnuð. Það sést ágætlega á þrotlausum bardaga Bretlands við hin nýju alræðisöfl ESB yfir Evrópu, þessi árin, og sem eru að reyna að búa svo tryggilega um ESB-rimlana, að enginn annar reyni nokkru sinni við þá aftur
Angela Merkel er nú á fullu við að útnefna "eftirmann" sinn í CDU-flokknum, sem er á leið í hrúguna á gólfinu. Og sennilega vegna þess að hún er alin upp í kommúnistaríki, þá lítur hún svo á að flokkurinn sé hennar eign. Að hún en ekki flokksmenn viti hvað flokknum er fyrir bestu varðandi næsta mann í brúnni. Þessu hafa sumir núið Davíð Oddssyni um nasir, sem aldrei virðast nógu stórar fyrir allt vont úr beinlausu nefi svo margra. Að hann gerði ekki eins og keisari Merkel gerir, heldur lét flokksmenn ráða í sínum flokk
Við vitum vel að með Angelu Merkel við einræðisstjórn í hvaða flokki sem er, hefði Donald Trump aldrei komist á blað sem "eftir-maður" eins né neins. Því fer fjarri. En mannkynssagan sjálf er hins vegar að skrifast sú, að það er einmitt þess vegna að tímatalið mun ekki bara segja fyrir og eftir Krist, heldur einnig fyrir og eftir Donald Trump og Brexit á nýöld manna - sem svo margir menn virðast bara alls ekki ráða við
Og það virðist Sjálfstæðiflokkurinn bara alls ekki gera. Hann er því á leið í hrúguna, nema að ég sé sá sem ekkert sér. Leiðir Íhaldsmanna og Líberalista eru að skilja. Þeir eru ekki lengur ein og sama skepnan og voru það aldrei
Þeir sem vilja vita hvað hin Ensk-Ameríska hefð Íhaldsmana er og um hvað hún snýst, ættu að lesa þá merku sögu frá og með brautryðjendum hennar, sem eru Sir John Fortescue (dæmi: Praise of the Laws of England) 1394-1479 og John Selden (dæmi: no taxation without representation) 1584-1654, og fram til dagsins í dag; sem er Donald J. Trump og Brexit. Sú merkilega saga er eftir Ofir Haivry og Yoram Hazony, og hún er hér: Hvað er Íhaldsstefna?. Þetta verða sem flestir Sjálfstæðismenn að vita ef þeir ætla að lifa af. Annars geta þeir ekki með góðum árangri glímt við neitt mál sem miklu skiptir á nýöld okkar manna í dag. Án þessa skilnings enda Sjálfstæðismenn ekki á söguloftinu mikla, heldur í kústinum á sögugólfinu stóra
Fyrri fræsla
Loftið byrjað að síga úr Gorgeir Íslandus
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Þriðjudagur, 27. febrúar 2018
Loftið byrjað að síga úr Gorgeir Íslandus
Baldur Arnarson blaðamaður Morgunblaðsins fjallar um efnahagsmál á blaðsíðu 6 í dag
Greinin byggir undir það álit sem ég hef haft á þessum málum frá Hruni og miklu fyrr
Tvær bólur eru nú að byrja að falla saman yfir Ísland
1. Náttúrubóla heimsins; hún er byrjuð að falla saman. Hún var að mestu tengd útbreiddu guð- og andleysi á Vesturlöndum og víðar. Hún var að miklu leyti leit að nýjum guð. Hann fannst að sjálfsögðu ekki og er bólan því byrjuð að síga saman. Og leitinni að nýjum guð er smám saman aflýst. Í þeirri bólu eru loftslagsbólumálin líka. Það málefni er nú að kafna úr sjálfu sér. Fólk nennir ekki að bíða mikið lengur eftir þeim messías sem sú bóla átti að skila af sér, hann kemur aldrei. Og fólk gerir sér í vaxandi mæli grein fyrir því að hann var ekki til. Um falskan spámann var að ræða, uppfundinn af vísindalegum og pólitískum spákaupmönnum, sem vinna saman. Allir vilja gott umhverfi, enginn ágreiningur er um það. En eins og menn muna, þá hefur leiðin til boðaðs himnaríkis verið aflátsbréfum og ýmsum öðrum afleiddum gjörningum stráð. Þannig er náttúru- og loftslagskirkjan orðin í dag og pílagrímsferðum mun fækka. Stjarna Moustiers-Sainte-Marie gæti orðið samkeppnishæfari á ný, hver veit
2. Ferðamannabólan á Íslandi; Hún er bein afleiða náttúrubólu heimsins og svo gengisfalls krónunnar vegna bankahruns, sem auðveldaði uppblástur hennar í byrjun
Loftið er að byrjað að síga úr báðum þessum bólum. Eitt leiðir af öðru. En ef stofnað yrði til dæmis til andófs gegn Íslandi í þeim löndum þar sem hefð er að umskera drengi þjóðarinnar og ýmislegt annað -eins og til dæmis í Bandaríkjunum þar sem 80 ef hverjum 100 karlmönnum eru umskornir- þá gæti þannig herferð haft jafnvel víðtæk áhrif hér á landi, eins og stendur. Hún gæti flýtt óþarflega fyrir hjöðnun ferðamannabólunnar og rutt norður- og niður flugbrautina til harðrar magalendingar. Ferðaþjónustan er viðkvæmust allra greina. Þar á eftir eru það matvælin (fiskur og landbúnaðarafurðir) sem þolað hafa ýmislegt og staðið það af sér, því allir þurfa að borða en enginn þarf að fljúga. Maðurinn fæddist því ekki með vængi, en munnur hans er enn fastur á sínum stað. Refsiaðgerðir af því tagi sem þingmenn eru að upp-byggja í skjóli úníversal regluverks nýs heimsveldis í smíðum, eru í besta falli ein af þráðbeinum afleiðingum Gorgeirus Íslandus, sem verður til í því pólitíska bólufargani sem fylgir efnahagslegum loftbelgjum. Þeim fylgir svo niðurgangur, síðan auðmýkt og loks iðrun, þ.e. þeirra sem kunna slíkt. Restin verður áfram forhert
Mótaðgerðir gegn Hitler götunnar
Við stofnuðum Íslensku Þjóðkirkjuna til að fá að túlka Ritningarnar samkvæmt íslenskum hefðum og áliti. Og eins og sæmilega fróðir ættu að vita, þá heita þær hinar Heilögu ritningar og innihalda allt sem ER frá fyrstu síðu til enda þeirra, þó svo að fyrri helmingur Ritninganna hafi valdið mjög mörgum stórkostlegum vandræðum, er þeir voru að gera í buxur sínar í síðari hlutanum. Það var ætlunin. Til þess er fyrri hlutinn. Eins og Debet gefur ekki meiningu án Kredit
Hið sama gerðu önnur ríki sem hafa sínar þjóð-kirkjur. Og í leiðinni er hægt að nefna það hér að þegar sjálf Bandaríkin voru stofnuð, áttu þau einnig að fá sína þjóð-kirkju, en vegna vissra innvortis árekstra við það sem í heilögum Ritningum Vesturlanda stendur, þá var þeirri ákvörðun varpað yfir á herðar fylkjanna. Þau eru enn að melta málið, því það tekur alltaf tíma að melta slíkt
Við erum ekki Homo Sameinuðu þjóðanna Sapiens, þó svo að sumir vilji gera okkur að einmitt því. Okkur var gefinn frjáls vilji og hugsun. Við fæddumst frjáls og þurfum ekki á frelsun spilltra embættismanna Sameinuðu þjóðanna að halda. Allir vita hvernig það helvíti endar. Alltaf eins. Alltaf
Við vildum sem sagt ekki lúta úníversal yfirvaldi eða einhverskonar yfir-símaskiptiborði á milli Íslendinga og guðs þeirra, um hvað Ritningarnar eru og eru ekki. Sömu augum ættu menn að líta á hið sívaxandi veldi Sameinuðu þjóðanna, úr þessu. Þær eru ekki okkar skiptiborð, því þær munu á endanum tortíma þeim þjóðum sem þær áttu að þjóna og kveikja ófrið í heiminum, sem enginn er þá eftir til að slökkva, því þá er allt orðið eitt
Þegar hingað er komið í umræðinni um hina tæknilegu hlið sambands Þjóðar við Guð, þá minni ég á þá umræðu og deilur sem standa um Stjórnarskrá Íslands, sem síst er minni og endar að sjálfsögðu aldrei. Menn líta á og túlka hana ekki allir eins. Enda er það ekki hægt. Það sama gildir um lögin. Ritningarnar boða að enginn geti gerst konungur yfir annarri þjóð en sinni eigin. Framsóknarmaður og Marxisma-bandalagsmenn eiga því ekki að skáka í nafni lagasúpu annarra þjóða. Slíkt er gorgeir úniversalismans og grefur undan fullveldi Íslands og tortímir því að lokum. Þetta stendur í hinum heilögu Ritningum Vesturlanda og aðeins þar, og hvergi annar staðar í heiminum. Þess vegna eru Vesturlönd Vesturlönd, en restin af veröldinni eins og hún er
Biskupinn yfir Íslandi, okkar maður við símann, hefur talað í þessu máli og hún er að tala okkar máli núna. Hún er í móvægisaðgerðum. Og hún hefur mótmælt. Við erum Mótmælendur símaskiptiborða þeirra sem þykjast hafa einka-úníversal-símasamband við Guð. Við þolum ekki neitt Póstur og Sími mónópól eða ATT í þeim efnum. Okkar Guð hverfur aldrei, því hann býr ekki í bólugröfnum hagkerfum veraldar. Það er því alltaf hægt að ná í hann og tala út um málin
Þegar verið var að smíða þá pólitísku lagaheimspeki sem lögð var til grundvallar lýðræðislegri en samt konunglegri ríkisstjórn á Englandi á 15. og 16. öld og sem stendur enn þann dag í dag, þá var pólitíska lagaheimspekin sótt í Gamla Testamentið þar sem stjórnarskrá Ísraelsríkis hins forna er að finna
Ekkert annað skjal hefur hér á jörðu niðri (já við búum þar) reynst Vesturlöndum eins vel og það skjal. Enda hefur það ávallt sést á muninum á Anglo-Ameríkan-hefðum og hins vegar þeim evrópsku, sem drukku prins Rómar í sig of hráan og gáfu oftar en ekki skít í það sem Ritningarnar segja sem ein heild. Þar urðu því til Marxismi, Hitlerismi og annað pólitískt baneitrað þvaður, en ekki í Anglo-Ameríkan heiminum. Ekki þar
Þess vegna er ég Íhaldsmaður. Það ættu fleiri að mínu mati að gerast. Sú stefna er góð fyrir þjóðir en kemur sjér hins vegar afar illa fyrir heimsveldi, eins og til var ætlast í hinum Heilögu ritningum Vesturlanda. Til fjandans með þau. Þangað mun stofnun Sameinuðu þjóðanna fara. Hún samræmist ekki því sem dugað hefur best og tók Sovétríkin og imperíal Hitler í nefið; þjóð-ríki Gamla testamentisins
Agnes, haltu endilega áfram að tala!
Málfundur í Jerúsalem með Yoram Hazony
Hann er þessi árin að sýna sig sem einn fremsti pólitíski hugsuður og heimspekingur Vesturlanda, ásamt á öðrum sviðum eins og til dæmis Ritningunum. Hann er forseti Herzl stofnunarinnar í dag og er hún að verða ein besta æðri menntastofnun þar í landi
Mæli ég því með því að horft sé á 2010-myndbandið frá Jerúsalem hér fyrir neðan, því það segir svo margt um það sem er að gerast á okkar tímum, en fáir koma auga á
Israel, Europe, and the Place of Ideas in History from Yoram Hazony on Vimeo.
Fyrri færsla
Kona komin til "vits og ára" - Homo S.þ.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Mánudagur, 26. febrúar 2018
Kona komin til "vits og ára" - Homo S.þ.
Mynd: Rifin Bein
Hitler götunnar er að farast vegna sálarhluta forhúðar drengs sem enginn sálfræðingur getur gætt eins vel og Gyðingar hafa gert í nokkur þúsund ár. Þeir eru því enn þjóð. En hér er hún: Homo sameinuðu komma-þjóðar Zapiens
Nei hún er sannarlega ekkert "ómálga barn", hún komst aldrei á það þroskastig. Hún er full-orðin. Kannski fær hún vinnu hjá barnasáttmálastamsteypu Sameinuðu geldu þjóðanna, hver veit. En málið versnar þegar S.þ. bannar plastið líka. Hvað gera læknar þá. Nota grjót? Steinöld aftur? Þegar hún svo dettur í sundur þá taka skattgreiðendur við henni, er það ekki öruggt, góða fólk. Sjá, lét-fjarlægja-fjögur-rifbein-frétt Morgunblaðsins hér fyrir neðan (beltið)
****
Bandaríkin flýta flutningi sendiráðsins til Jerúsalem
Forseti Bandaríkjanna, Donald Trump, hefur tilkynnt að flutningi sendiráðs Bandaríkja Norður-Ameríku frá Tel Aviv til Jerúsalem, verði flýtt þannig að bandarískt sendiráð opni í Jerúsalem í tæka tíð fyrir 70. sjálfstæðisdag Ísraels, þann 14. maí. Er búist við að Trump forseti verði viðstaddur hátíðarhöldin
Bygging sendiráðsins mun að sögn taka níu ár og kosta 7,2 milljarða króna. Þar af kosta öryggisráðstafanir helming þeirrar upphæðar
Já Jerúsalem ekki hvaða borg sem er. Hér er fyrir neðan fröken Rifin Bein, er einn fundur úr þeirri borg, um stað hugmynda í sögunni og hinn mikró-pólitíska poppkorns-heim svo kallaðra fjölmiðla - og Hitlera götunnar. Sennilega hefur staða þeirra, fjölmiðla, aldrei verið eins vandasöm og hún er í dag. Þeir eru að drukkna í upplýsingum og menntun, en sjá ekki það sem er að gerast. Það þarf röntgen-augu til að sjá lengra en bara í næsta popp í skálinni. Þeir þurfa að koma auga á hvaðan poppin í skálinni koma
Israel, Europe, and the Place of Ideas in History from Yoram Hazony on Vimeo.
Fyrri færsla
Verður bandarískum hermönnum þá bannað að gæta öryggis Íslendinga?
![]() |
Lét fjarlægja fjögur rifbein |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 24. febrúar 2018
Verður bandarískum hermönnum þá bannað að gæta öryggis Íslendinga?
Fyrst að glæpavæða á umskurð drengja en leyfa áfram fósturdráp sem launaða atvinnu í landi stútfullu af getnaðarvörnum, þá get ég varla ímyndað mér að umskornum bandarískum hermönnum sé lengur stætt á að stíga til jarðar hér á landi, til að gæta þjóðaröryggis okkar Íslendinga. Ég sé ekki fyrir mér að slíkt geti gengið upp, þar sem við ætlum frá og með nú að gæta öryggis þeirra sjálfra
Bara niðurlægingin og áhættan við að lenda í læknisskoðun hjá þeim sem eru látnir sjá um íslensku fóstrin, útskýrir sig sjálf. Sex ára fangelsun og fyrirlitning. Um það bil 80 prósent bandarískra karlmanna eru umskornir og sveinbörn þeirra líka. Og ef herstöð varnarliðsins væri starfrækt hér enn, þá yrði væntanlega umsvifalaust að loka henni, til að stöðva umskurð sveinbarna Bandaríkjamanna á Miðnesheiði
Uppsagnar varnarsamnings Bandaríkjanna og Íslands getur varla verið langt að bíða af hálfu okkar Íslendinga, þar sem um þaulskipulagða glæpamenn er þá að ræða, sem þess utan einhliða taka alla áhættuna við að verja okkur. Því það eina sem við sjálf höfum til að verja líf okkar með, eru getnaðarvarnir, sem virka greinilega ekki, því enn er líf í landinu og full atvinna hjá læknum við þúsund fóstur á ári -betra en loðnuvertíð- þó svo að þróttur þess lífs sé þverrandi, samkvæmt ógnvekjandi hratt fallandi tölum Hagstofunnar yfir frjósemi íslenskra kvenna
Já, Íslendingar eru hættir að fjölga sér, þeir fækka sér. Uppskeruna þarf varla að umskera lengur, því hún er svo lítil að sjálft útsæðið er nú étið. Veislan í hinu gjafmilda boði afa og ömmu er búin. Lögin, ef þau verða, koma of seint. Síðasti maður slökkvi ljósin. Líberalisminn virkaði. Þið eruð loksins frjáls
En það góða er náttúrlega það að þeim löndum sem koma til greina sem fæðingarland þeirra barna sem sumir Íslendingar hafa ættleitt heim til sín, fækkar svo um munar og auðveldar Íslendingum ganginn í gegnum nálarauga Framsóknarmanna, sem því miður er víst ekki alveg nýtt í þeirri nál. Valkvíðinn verður með lagafrumvarpi þeirra læknaður
Hvernig stóð á því að Framsóknarmenn leyfðu umskornum flugmönnum björgunarþyrla bandaríska varnarliðsins að bjarga íslenskum sjómönnum frá dauða. Hvernig gat það gerst. Umskornir flugmenn eru hættulegir menn, samkvæmt komandi lögum. Og þeir gætu jú líka átt börn sjálfir, sem þeir hafa umskorið
Úrsagnar Íslands úr Sameinuðu þjóðunum getur varla verið langt að bíða heldur. Reyndar myndi ég fagna þeim degi ákaft, úr þessu
Það er greinilegt að hið nýja "mannkerfi" er á leið inn í "nýtt skipulag". En höfum við ekki nú þegar séð allt sem sjá þarf í þeim efnum. Ég spyr
En hvernig stendur á því að fóstrunum er ekki bætt inn í lagafrumvarp Framsóknarmanna og flokksbandalagsmanna þeirra í hinu nýja mannskipulagi jarðar. Hvernig skyldi standa á því, svo við höldum Gyðingunum fyrir utan skotmark ykkar í þessari færslu, þó svo að þeir séu stundum bandarískir hermenn
Þeir eru nefnilega ekki einir í heiminum eins og þingmaður Framsóknarflokksins hélt að hún sjálf væri. Það hélt hún, því þegar hnífur hennar sat skyndilega fastur í kúnni, þá sagði hún að það hefði komið sér algerlega á óvart - og að hún hefði alls ekki gert sér og lagagrein sinni grein fyrir því að hún væri afsöguð og ein í lausu lofti. Því hún væri greinilega fallandi og föst á lagagrein sinni og þeirra. En svo kæmi lending og það kæmi henni líka á óvart
- Framsóknarmenn
- Píratar
- Vinstri grænir
- Flokkur hreina fólksins
Er þetta nokkuð nýtt flokksbandalag góða fólksins á leið inn í hið nýja skipulag mannkerfis - og úrkynjunar?
Fyrri færsla
Geta það orðið mannréttindi að Ísland sé ekki Ísland?
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
Föstudagur, 23. febrúar 2018
Geta það orðið mannréttindi að Ísland sé ekki Ísland?
Hvað er Ísland?
Til að byrja með, er með vissu hægt að segja að um eyju er að ræða. Það er öruggt, því það er áþreifanleg staðreynd. En hvað landið heitir er hins vegar óáþreifanlegur hlutur, því aðeins er um hugmynd að ræða. Nafnið Ísland er aðeins til uppi í höfðinu á þeim sem samþykkja að eyjan heiti Ísland. Fyrir utan það að vera til í höfðum manna, er nafnið Ísland líka til á vissum pappírum í heiminum. En þá er hægt að brenna, og þá er eru þeir ekki lengur til
Er Ísland ríki? Já, en bara uppi í höfðinu á þeim sem vilja að það sé ríki, og svo í höfðum þeirra í heiminum sem samþykkt hafa að Ísland sé ríki. Ef fólkið í ríkinu missir til dæmis áhugann á að Ísland sé ríki, þá er það ekki ríki lengur. Það gæti til dæmis gerst ef Alþingi missir stuðning og virðingu þess fólks sem sú stofnun á allt sitt undir og öfugt. Ef það gerist, þá er byggingin sem hýsir þingið, einungis bygging og ekkert annað. Hún verður þá eins og hver önnur bygging og hefur enga sérstaka merkingu. Þegar Sovétríkin hættu skyndilega að vera til, þá gerðist það vegna þess að fólkið sem bjó í ríkinu hætti að styðja hugmyndina um að landmassinn sem það bjó á væri Sovétríki. Og það sama gildir um landamærin. Þau eru ekki til sem áþreifanlegur hlutur. Þau eru einungis til uppi í höfðinu á fólki. Ef annað fólk segir að landamæri Íslands séu ekki til, þá er ekki lengur með öryggi hægt að segja til um hvar þau liggja. Og ef fólkið sem býr innan þeirra segir það sama, þá eru landamærin ekki til. Þetta er ekki hægt að gera við fjall eða eyju. Sama hversu heitt þú óskar þess að fjallið Esjan sé ekki til, þá hefur sú hugsun enga þýðingu, því fjallið er það og þar sem það er, óháð þínum óskum. Meira að segja fjölmiðlar samþykkja slíkar staðreyndir næstum alltaf. Það sama gildir um þyngdarlögmálið. Fólk ræður engu um það. Það er
Summa: Ísland er einungis pólitísk hugmynd. Og ef hún fellur, þá breytist það í eyju með fjöllum en engri Esju, sem verður þá bara fjall við flóa. Það eina sem fær eyjuna til að vera Ísland og íslenskt ríki, er fólkið sem ákveður það, og svo þeir aðrir í heiminum sem samþykkja pólitísku hugmyndina um að Ísland sé Ísland og ríki. Og ef Íslendingar segjast vera Íslendingar og aðrir samþykkja það, já þá eru Íslendingar Íslendingar. Annars eru þeir bara tegund
Hvað er mannréttindi?
Mannréttindi eru líka pólitísk hugmynd. Þau eru stjórnmál. Ef einhver ákveður að setja pólitísk lög yfir, landmassa, fjall, tegund, fólk eða þjóðir, þá er það hægt. Og ef einhver samþykkir þá pólitík og lofar að virða þá hana, þá er um pólitískt samkomulag að ræða. Þó hafa eyjan og fjallið ekki samþykkt neitt
Þeir sem standa að slíkum pólitískum samkomulögum um mannréttindi og samþykkja þau, geta haft ýmsar ástæður. Sumar geta verið góðar, aðrar eru slæmar og vissulega eru til mjög illgjarnar ástæður fyrir þannig samkomulögum. Ef nógu mörgum er illa við suma, þá er hægt að brennimerkja þá sem þeim er illa við, með því að beita þá mannréttindapólitískum ofsóknum. Og það er gert. Að því grundvallarmikilvæga leyti eru mannréttindastjórnmál stórhættuleg stjórnmál, því það er ekki hægt að verjast þeim, sama hversu góð rök og sannanir komið er með gegn þeim. Og þar sem ekki er um fjall að ræða, þá eru engin lögmál til fyrir því hvað eru mannréttindi eða ekki. Sú ákvörðun er einungis pólitískt mat og hagsmunir, því allir lifandi hlutir hafa hagsmuni. Fjöll hafa hins vegar ekki hagsmuni og eyjur ekki heldur
Ef heimurinn kemst einhvern tíma að þeirri pólitísku niðurstöðu að Ísland sé ekki Ísland af því að hann hefur pólitískt ákveðið að það séu mannréttindi að Ísland sé ekki Ísland. Já, þá er ekkert Ísland til. Mannréttinda-til-dæmis-dómstóll framtíðar gæti komist að því að það séu mannréttindi að ekkert fólk hafi minna eða meira en X-fjölda af fermetrum landsvæðis til umráða á mann, og fyrirskipa að fólki sé dreift jafnt um jörðina undir mannréttindasáttmála Sameinuðu þjóðanna um lífsrými, samkvæmt því. Já, þá er Ísland ekki lengur Ísland, vegna þess að þeir sem þar með myndu búa þar, deila ekki þeirri pólitísku skoðun Íslendinga að Ísland sé Ísland, sem þar með væru orðnir yfirþyrmandi örsmár minnihluti þeirra sem þar eru búsettir fyrir
En þessa leið myndu Sameinuðu þjóðirnar ekki velja gegn þjóðunum eins og er, þó svo að hún verði ef til vill valin síðar, þegar hugarfars- og valdahlutföllin í stofnuninni hafa breyst nógu mikið Íslendingum í óhag. Hinir ókjörnu mannréttindastjórnmálmenn stofnunarinnar myndu hins vegar í dag velja hægfara pólitíska nauðgun á Íslandi. Taka pólitísku hugmyndina um Ísland og líf Íslendinga í landinu fyrir á þann hátt að um eins konar hægfara eyðni yrði að ræða. Sneiða smám saman úr þjóðinni þá orku sem hún notar í að vera sú þjóð sem stofnuninni er ekki þóknanleg lengur. Litlir hlutir yrðu teknir fyrir fyrst. Hlutir sem hægt er að fá almenning í öðrum löndum til að líta illum augum, eftir að fjölmiðlaherferð er fyrst látin um að sá fræjum fyrir pólitískar ofsóknir, með vísan í pólitískt-ákveðin mannréttindi, sem þá stundina er hægt að nota til að fá fólk sem víðast í heiminum upp á móti Íslendingum. Pólitískar hugmyndir um mannréttindi eru háðar pólitískum aðstæðum á hverjum tíma og svo þeim heimshluta sem fer með eignarréttinn á pólitískum hugmyndum um mannréttindi þá og þá stundina, og hvaða ofsóknir hægt er að keyra með vísan í lífsmáta, siði, trúmál, venjur, lífsheimspeki og illa þóknanleg raunvísindi og lækningar á hverjum tíma. Og smám saman myndi heimurinn breytast í nýtt helvíti á jörðum mjög margra. Og röðin mun koma að þér, fyrr eða síðar. Segja má að mannréttindastjórnmál séu nýtt pólitískt trúarofstæki og kúgunarsérfræði sem næstum ógerningur er að verjast og sem svipar til hins pólitíska trúarofstækis veraldarhyggjumanna sem eru að byggja sér hið nakta opinbera sovéska torg, sem aftökustaði fyrir alla þá sem eru ekki sömu skoðunar og þeir
Dæmi um mannréttindapólitískar ofsóknir
Ég gæti á morgun ákveðið að gerast Gyðingur. Það tekur ekki langan tíma. Ég þarf aðeins að fá kennslu og uppfræðslu í Gyðingdómi, samþykkja hann, verða samþykktur, og láta umskera mig. Þá er ég orðinn Gyðingur. Um leið og ég verð Gyðingur þá byrjar ókunnugt fólk að ofsækja og hata mig, vegna þess að ég er Gyðingur. Framsóknarflokkurinn, Píratar, Flokkur fólksins og Vinstri grænir, sem sett hafa fram lagafrumvarp gegn mér, líta mig skyndilega allt öðrum augum og byrja ef til vill að hata mig, fyrirlíta og ofsækja, án þess að segja það beint við mig. Þeir byrja kannski allt í einu að setja fram óbeinar kröfur um að ég sé á einhvern hátt stöðvaður við að murka lífið úr öllu og öllum og að sé að græða peninga og ógni heiminum með því að vera Gyðingur, sem eru 0,2 prósent mannkyns. Þeir deila ekki með sér hugmyndum Gyðinga um Gyðingdóm. Til að gera mér erfitt fyrir, þá nota þeir Sameinuðu þjóðirnar sem réttlætingu fyrir pólitískum ofsóknum og nota sérstaka deild innan þeirrar stofnunar sem í reynd heitir mannrétttinda-ofsóknardeild Sameinuðu þjóðanna. Ekki er um kynþáttaofsóknir að ræða, þar sem Gyðingar eru hvorki sérstakur kynflokkur né kynþáttur, heldur aðeins þjóð, þjóðartrú, siðir og hefðir, eða næstum því það sama og gerir Íslending að Íslendingi, en samt aðeins meira, nema að Íslendingar skyldu taka upp á því að lesa Íslendingasögurnar og Snorra á ný, sem þeir ættu að gera í stað standandi nektarsýninga á hinu opinbera nakta torgi. Gyðingar eru hins vegar ofsóttasta þjóð í heimi en Íslendingar ekki. Engin önnur þjóð hefur mátt sæta eins miklum ofsóknum og Gyðingar. Aldrei nokkru sinni. Gyðingdómur er pólitísk hugmynd. Mjög gömul pólitísk hugmynd og mikilvæg fyrir heiminn, því án pólitískra hugmynda Gyðinga væru Vesturlönd ekki til sem Vesturlönd, því þau eru aðeins pólitísk hugmynd sem byggir að grunni til á grundvallarpólitískum hugmyndum Gyðinga um gott líf manna
Áminning
Það eru einnig margir hér á Íslandi sem deila ekki með sér hugmynd marga Íslendinga um að vera Íslendingur. Íslendingar eru ekki kynflokkur. Að vera Íslendingur er nefnilega einungis pólitísk hugmynd. Það fólk sem deilir ekki þeirri hugmynd með Íslendingum, er því ekki Íslendingar, þó svo að það vilji njóta þeirra réttinda sem Íslendingar hafa sjálfir barist fyrir að fá að hafa sem Íslendingar. Það fólk segist kannski og kannski ekki hafa þessa sömu hugmynd, en það framkvæmir hana oft ekki, eða bara alls ekki og vinnur jafnvel gegn henni. Hvort að Framsóknarmenn deili enn þessari pólitísku hugmynd um Íslending með Íslendingum, geta þeir einir sannað. Píratar þurfa ekkert að gera, því þeir hafa þegar sannað sig sem pólitískur Kleppur. Flokkur fólksins sem grenjaði og öskraði sig inn á þing með fyrst og fremst heimtufrekju, er ekki hægt að fjalla um án þess að vorkenna því fólki fyrir að hafa álpast til að ganga í gildrur þeirrar hugmyndar, því hún er svo smá að hún sést varla, fer minnkandi og fellur, því hún var pólitískur þvættingur. Vinstri græna þarf víst ekki að kynna frekar sem sovéskt þrotaútibú fyrstu kynslóðar komma, sem urðu hvellgrænir af öfund út í hina nýju Sameinuðu þjóð komma eftir fall Sovétríkjanna
Niðurstaða: Sameinuðu þjóðirnar eru ekki sameinaðar þjóðir um neitt nema að tala saman, eða þannig átti það að vera. Og um pólitíska stofnun er aðeins að ræða, en sem smám saman er að reyna breyta sér í ríki yfir ríkjum jarðar. Þeir sem tilbiðja stofnunina eins og hún er orðin núna, eru yfirleitt verstu kjána-eintök allra landa og sem deila með sér pólitísku hugmyndinni um nýtt Sovétríki, en oft án þess að gera sér að fullu grein fyrir því, eins og þegar fyrstu Sovétríkin voru í smíðum með aðstoð nytsamra bjána. Um þetta snúast mannréttindastjórnmálin og ekkert annað. Þau snúast um að fá að drottna yfir heiminum án þess að þurfa að láta kjósa sig. Þeir sem fylgja þessari stofnun í blindni eru mest mannleg pólitísk fyrirbæri af aðeins einni tegund; þ.e. kommar í öllum útgáfum þeirrar slæmu pólitísku hugmyndar. Já, mikið rétt hjá þér; allar pólitískar hugmyndir eru ekki jafngóðar og hafa aldrei verið. Um það snúast stjórnmál. Þetta eru sömu nytsömu bjánarnir og studdu Sovétríkin sálugu og sakna þeirra mikið. Enda eru dagar stofnunarinnar eins og hún er orðin brátt taldir. Ólíklegt er að henni verði bjargað, því rotnun hennar er orðin svo áberandi slæm, að innan
Þeir sem ætla að samþykkja nýmóðins Nuremberglög á Gyðinga á Alþingi okkar Íslendinga, með vísan og í skjóli mannréttindastjórnmála, eru fyrir mitt leyti ekki Íslendingar. Ef lögin verða að veruleika, þá er einu stóru skrefi styttra í að hin pólitíska hugmynd um Ísland falli. Munið: það getur gerst. Og það byrjar með því að pólitíska hugmyndin um Alþingi Íslendinga fellur í hugum fólksins. Og þá fellur Alþingi. Það hefur gerst, vegna þess að hin nýja pólitíska hugmynd um sjálft Ísland stóð þá veikum fótum. Já mikið rétt, hugmyndir koma og þær fara. En eitt er víst. Hin pólitíska hugmynd um Framasóknarflokk er fallin, verði nýmóðins Nuremberg lagaþvaður flokksins að lögum. Hér er ekki hægt að fela sig á bak við umboðslaus mannréttindastjórnmál
Hvað mig sjálfan varðar: Ég er fyrst og fremst Íslendingur, eiginmaður og faðir. Ég verð aldrei Evrópubúi, því í mínum huga tilheyri ég Nýja heiminum. Og svo er ég Kristinn og svo er ég Gyðingur og svo er ég Sjálfstæðismaður. Fyrir mitt leyti mun ég aldrei fella hina pólitísku hugmynd um Ísland. Og ég mæli með að aðrir Íslendingar standi þá vakt líka. En fyrst verða kjörnir fulltrúar hinnar póltísku hugmyndar um Íslendinga á Alþingi Íslands, að taka sig saman og vísa veginn
Fyrri færsla
Mannréttinga-umskurður á þjóðum: Til þeirra sem eru áttavilltir
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
Fimmtudagur, 22. febrúar 2018
Mannréttinga-umskurður á þjóðum: Til þeirra sem eru áttavilltir
Ekki vissi ég að þú værir úníversal krati, minn kæri vinur. Og síðan hvenær hafa úníversal-lög samin af úníversal-krötum haft æðra gildi en lög, siðir og gildi þjóðar og Guðs?
Síðan hvenær hefur úníversal hvað-sem-er, gert annað en að skapa ný Sovétríki. Þeir sem í marxismanum vildu ekki hlýða úníversal-lögum kommúnismans, já þeir voru kallaðir "de reaktionære", þ.e. þeir sem vildu ekki meðtaka úníversal-ríki kommúnismans undir þeirra úníversal marxisma. Það voru þeir sem hverfa vildu aftur til þess sem þeir voru skapaðir til að vera
****
Þegar Móses kom með lögin af fjallinu, voru fjórar konur í þjóðinni Ísrael sem sögðu að þau væru óréttlát fyrir sig. Þær neituðu að samþykkja. Móses fór þá aftur upp og fimm blaðsíðna rifrildi hans við Guð hófst í Gamla testamentinu. Því lauk með þeim góðu lögum sem við höfum síðan alltaf haft, því þau voru rétt, en ekki röng. Guð leiddi síðan þjóð sína inn í ríki hennar, og aðeins hennar ríki, en ekki annarra. Þjóð-ríkið
Heimsveldi tala aldrei við Guð. Þau þykjast ekki þurfa þess. Þau klífa því ekki fjallið og sjá aldrei neitt. Sönnunargögnin fyrir því í okkar heimshluta í dag eru þessi; 1) Evrópusambandið og 2) Sameinuðu þjóðirnar. Þau semja lög sem eru eins og hryðjuverkandi klessuverk á þjóðum veraldar en þó alveg hroðalega sérstaklega á smá-þjóðum - eins og til dæmis Íslendingum og Ísraelsmönnum
**
Þeir sem eru að reyna að setja úníversal lög um hvað maðurinn er, og hvað hann má og má ekki vera og gera, já það eru þeir sem ætla sér að drottna yfir allri veröld manna, með sínum úníversal-lögum og reglum. Þeir munu a sjálfsögðu skapa helvíti á jörð. Það er hundrað prósent öruggt, því þetta hefur margsinnis verið reynt áður
Enginn má hafa slíkt vald. Biblían bannar það. En það er einmitt hennar vegna sem við erum Vesturlönd en ekki Sovétríki, Kína eða það úníversal þrælaríki Egyptalands, sem Ísraelar gengu burt af og lögðu með Útgöngunni sjálfan hornsteininn að Vesturlöndum
Hvað er að þér? Hefur þú misst vitið. Ætlar þú að styðja uppskurð umboðslauss embættismannaveldis Sameinuðu þjóðanna á þjóðum jarðar. Ertu nokkuð kominn með kalt og litlaust blóð í æðar. Slím!
Enginn getur sagt Gyðingum að hypja sig með sína siði, því þeir áttu hvergi heima vegna gereyðingar úníversalisma guðlauss imperíal-Rómarríkis og imperíal Babýlóníu. Svo kom guðlaust Þriðja ríkið og það átti að sjálfsögðu að verða úníversal-ríki líka og það var algerlega imperíal-ríkishönnun frá a til ö, eins og guðlaus Sovétríkin voru, með sitt hámenntaða læknalið sem beinlínis handplokkaði sálirnar úr fólkinu með alviturleika marxismans. Allir með snefil af þekkingu vita hvað stór hluti læknaliðs Þriðja ríkisins stóð fyrir. Og ESB stefnir sömu leið sérfræðinganna og guðlausar Sameinuðu þjóðirnar gera, og sem geta ekki einu sinni læknað kvef. Platon sagði að ekki væri hægt að kalla lækni sem getur ekki læknað sjúkling sinn fyrir sérfræðing. Og nú er orðið til eitthvað viðrini sem kallað er "heilbrigðisyfirvöld" - sem hljómar eins og nýtt ríki hálf-nasista þar sem allir eru skyldugir að ganga í takt. Það yfirvald hefur þó ekki fasta stjórn á neinu, hvorki sjálfu sér, pilluglösum, rekstri sjúkrahúsa né neinu. Og það erum við sem borgum of há laun þess. Það erum því við sem erum yfirvaldið - og heilbrigðið er nú bara sí svona. Rétt svona la la. Halda mætti af fjolsaðri nafngiftinni að þið "heilbrigðis-yfir-valdið" ætlið að taka okkur föst fyrir að vera óheilbrigð. Eða er það kannski öfugt. Hver eru ykkar "völd"? Þetta eru engir sérfræðingar, enda klessti það lið hinum vestræna heimi árið 2008, eftir að hafa haft allt of mikil völd frá lokum Síðari heimsstyrjaldar. Sérfræðingarnir sem sögðust vera sérfræðingar reyndust bara ekki vera neinir sérfræðingar. Þeir klesstu heiminum þá svo hroðalega að hann ætlar bara aldrei að rétta úr sér á ný. Og kostnaðurinn er gerræðislegur. Stjarnfræðilegur
En sem betur fer hafa Gyðingar nú endurheimt þjóðarheimili sitt, lögheimilið, og það stútar Ísraelum því enginn lengur. Og þeir eiga umskorinn vin. Mikinn, stóran og voldugan umskorinn vin, sem er öflugasta þjóð-ríki allrar sögu allra manna allra tíma. Þau heita Bandaríki Norður-Ameríku og eru "the last best hope of earth" eins og Lincoln sagði 1862. Og þau vill hið vaxandi embættismannaveldi Sameinuðu þjóðanna helst feig. Það sést alltaf hverjir eru bestir í sínum bransa á því hverjum illfyglin vilja allra helst granda. Einu sinni var það hið forna Ísrael, í dag eru það Bandaríki Norður-Ameríku
Hvorki úníversal-kratar né alheimsríki þeirra í smíðum er fært um að stúta Gyðingum, því gamli Ísrael og Jerúsalem mun aldrei gefast upp á því að vera sú þjóð sem gaf okkur það sem heitir Vesturlönd í dag
Það er afar hughreystandi að Agnes biskup yfir Íslandi hefur ekki misst vitið eins og sumir, og að hún veit enn um hvað Vesturlönd snúast. Þau snúast um Biblíuna en ekki sáttmála guðlausra Sameinuðu þjóðanna gegn einmitt Guði. HÚN HEFUR MÓTMÆLT!
Vér mótmælum. Og vér mótmælum enn. Vér mótmælum úníversal ríki andskotans. Þess vegna erum það við Mótmælendurnir sem bjarga munu þjóðum jarðar í vanda, þegar á þarf að halda. Það gerðum við síðast sem frjálst bandalag fullvalda og sjálfstæðra ríkja þjóða. Það bandalag tók alræðisöflin í nefið og sömu leið mun ofríki Sameinuðu þjóðanna fara, passi það ekki sitt, sem verandi aðeins samkomu-staður fullvalda og sjálfstæðra þjóðríkja jarðar. Það er einmitt þessa vegna sem við höfum ÞJÓÐ-KIRKJUR Vesturlanda. Líf manna er gott og frjálst í dag vegna þeirra, því þær mótmæltu
Sumt er ekki gott í veröld okkar manna eins og flestir hafa tekið eftir. Þannig hefur það alltaf verið og verður alltaf. En sumt er gott, eða miklu betra en annað. Og sumt er hroðalega vont. Virkilega vont og illt. Eitt af því sem er að verða verra í heiminum, er sjálf stofnunin Sameinuðu þjóðirnar. Þeir sem hafa lesið fyrsta paragraf stofnsáttmála hennar, vita að stofnunin er fyrir löngu komin út af sporinu sem henni var markað. Þannig fer ávallt fyrir umboðslausum fyrirbærum. Þau fara alltaf að fikta við úníversalismann og hrifsa til sín völd sem þeim ber ekki að hafa. Þær öðlast sitt eigið líf sem gengur út á aðeins það, að viðhalda því lífi. Þau verða veldi
Om igen vinur minn. Om igen! Ég er ekki að biðja þig um að hlýða, því það orð var ekki til í hebresku og þar með ekki í Gamla testamentinu, heldur bið ég þig að hlusta. Orðið "hlýða" þurftu Gyðingar að lána úr arameísku þegar hebreska var endurlífguð sem lifandi tungumál þeirra eftir tvö þúsund ára dvala. Það orð, að hlusta, notaði því guð Gamla testamentisins sem gaf okkur landamærin, svo að þjóðir jarðar flæddu ekki út fyrir þau, til að gleypa heiminn í sig og verða að veldi Sameinuðu þjóðanna. Slíkt er alveg stranglega bannað. Við eigum að hlusta á það sem Gyðingar hafa að segja, því þeir hafa mikið að segja á meðan aðrir þegja of mikið og húka. Við erum þeim stórskuldug
Skaparinn gaf okkur því þjóðir sem -þegar þær geta- mynda þjóðríki með landamærum. Þeim má ekki stúta og þeim getur enginn stútað. Þjóðir munu verða til enda tímans, vegna þess að Guð skapaði þær sem þjóðir
Landamæri þjóða þurfa þvert á móti að rísa núna til að stöðva hin landamæralausu heimsveldi í smíðum. Landamærin eru hinir upprunalegu björgunarbátar þjóða, sem alltaf er gripið til, þegar fjandinn er laus. Og hann gengur greinilega laus núna. Það sést
Ég vil engin nýmóðins imperíal Nurenberg-lög í mínu landi. Stöðvið vinsamlegast vitleysuna því fjandinn sjálfur er hingað kominn í formi mannréttinga. Lokið vinsamlegast því verkstæði ömurleikans, helst strax í dag
Og allir ættu nú að sjá, svo ekki verður um villst, að þéttari bönd Ríkis og Þjóðkirkju okkar vantar. Þau bönd verða að þéttast og styrkjast, því ríkisstjórn okkar manna í okkar eigin landi er ávallt farsælast að ríkja samkvæmt biblíulegum hefðum og staðfastri trú á Guð hinna heilögu Ritninga Vesturlanda. Sjálfur sjálfsákvörðunar-réttur þjóða er frá þeim kominn; og mest frá gamla Ísrael. Biblía Vesturlanda er eini staðurinn í veröldinni sem inniheldur uppskriftina að þjóðríkinu. Restin af tímatalinu frá upphafi alda er fyrst og fremst úníversal-imperíal barbaríal misfóstur eða fáránlegt gutl með borgríki sem eru óverjanleg (e. indefensible); mannlega, þjóðfélagslega, pólitískt, hernaðarlega og stjórnarfarslega séð og hafa enga strategíska dýpt
Það síðasta sem afi minn sagði við mig áður en hann háaldraður dó, er þetta: "Gunnar minn, og mundu nú eftir að fara með bænirnar þínar". Ungur og fávís brosti ég innra með mér að honum, fiskimanninum af áttæringnum á Ísafjarðardjúpi. En það geri ég ekki lengur. Þetta er hún, bænin mín
Og ef ég kynni kommablótið hans Gústa Guðsmanns utanað enn, þá gæti ég farið með það fyrir ykkur líka. Hann gaf mér þó Orðið, Jesúmyndir og kommablótið sem sú úníversal-imperíal skepna sýndi sig síðar að eiga fullkomlega skilið. Og það vissi hann, þó svo að margir en sérstaklega hámenntaðir höfðu trúað blint á hana, eins og þeir trúa á Sameinuðu þjóða stofnunina og ESB núna. En hvað gefið þið börnunum í dag. Grjót?
Nokkuð merkilegt gerðist í gær. Hér er það:
=> Sameinuðu þjóðirnar og ESB tengd peningaþvætti fyrir Norður-Kóreu
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Nýjustu færslur
- Eitthvað sem ekki passar hér [u]
- Kristrún stígur ekki í vitið, svo mikið er nú víst
- Þorgerður mín
- Kína komið til "ósubbulegs" sálfræðings
- ESB og Kína þekkja ekki bandaríska miðvestrið
- Bóndinn og prófessorinn í Selma um tolla Trumps. Grænland
- Evrópa er á leiðinni á nauðungaruppboð: Kaninn unir ekki að G...
- Svo lengi sem Grænland er viðriðið Danmörku mun heimurinn ekk...
- Landsölupakkhús Þorgerðar fúlt út í JD Vance
- Kannski hægt að byrja á farsímavef Veðurstofunnar - strax í d...
- Hamast við moksturinn í Reykjavík
- Grunnvextir hækka á evrusvæðinu - varanlega
- Fallbyssur Trumps í tollamálum
- Bandaríkin eru tilbúin að fjárfesta milljörðum dala í Grænlan...
- Já, Pólverjar verða að vakta landamærin upp að Þýskalandi. Þa...
Bloggvinir
-
Heimssýn
-
Samtök Fullveldissinna
-
ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE
-
Guðmundur Jónas Kristjánsson
-
Ragnhildur Kolka
-
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
-
Haraldur Hansson
-
Haraldur Baldursson
-
Páll Vilhjálmsson
-
Halldór Jónsson
-
Valan
-
Samstaða þjóðar
-
Frjálshyggjufélagið
-
Sigríður Laufey Einarsdóttir
-
Eyþór Laxdal Arnalds
-
Jón Valur Jensson
-
Samtök um rannsóknir á ESB ...
-
Kolbrún Stefánsdóttir
-
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
-
Jón Baldur Lorange
-
Guðjón E. Hreinberg
-
Jón Ríkharðsson
-
Anna Björg Hjartardóttir
-
Loftur Altice Þorsteinsson
-
Valdimar Samúelsson
-
Fannar frá Rifi
-
Bjarni Jónsson
-
Sigurður Þorsteinsson
-
Gunnar Ásgeir Gunnarsson
-
Haraldur Haraldsson
-
Örvar Már Marteinsson
-
Kristin stjórnmálasamtök
-
Gestur Guðjónsson
-
Ingvar Valgeirsson
-
Predikarinn - Cacoethes scribendi
-
Guðsteinn Haukur Barkarson
-
Guðmundur Helgi Þorsteinsson
-
Lísa Björk Ingólfsdóttir
-
Bjarni Kjartansson
-
Bjarni Harðarson
-
Guðrún Sæmundsdóttir
-
Sveinn Atli Gunnarsson
-
gudni.is
-
Gústaf Adolf Skúlason
-
Tryggvi Hjaltason
-
ESB
-
Marinó G. Njálsson
-
Baldvin Jónsson
-
Elle_
-
Sigurbjörn Svavarsson
-
Emil Örn Kristjánsson
-
Johnny Bravo
-
Jón Finnbogason
-
Rýnir
-
Þórarinn Baldursson
-
P.Valdimar Guðjónsson
-
Már Wolfgang Mixa
-
Ívar Pálsson
-
Júlíus Björnsson
-
Guðjón Baldursson
-
Baldur Fjölnisson
-
Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
-
Einar Ólafsson
-
Sigríður Jósefsdóttir
-
Vilhjálmur Árnason
-
gummih
-
Sveinn Tryggvason
-
Helga Kristjánsdóttir
-
Jóhann Elíasson
-
Baldur Hermannsson
-
Kristinn D Gissurarson
-
Magnús Jónsson
-
Ketill Sigurjónsson
-
Birgitta Jónsdóttir
-
Axel Jóhann Axelsson
-
Þorsteinn Helgi Steinarsson
-
Aðalsteinn Bjarnason
-
Magnús Þór Hafsteinsson
-
Erla Margrét Gunnarsdóttir
-
Sigurður Sigurðsson
-
Þorsteinn H. Gunnarsson
-
Haraldur Pálsson
-
Sveinbjörn Kristinn Þorkelsson
-
Bjarni Benedikt Gunnarsson
-
Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
-
Ægir Óskar Hallgrímsson
-
Helgi Kr. Sigmundsson
-
Óskar Sigurðsson
-
Tómas Ibsen Halldórsson
-
Axel Þór Kolbeinsson
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Hörður Valdimarsson
-
Adda Þorbjörg Sigurjónsdóttir
-
Þorsteinn Valur Baldvinsson
-
Margrét Elín Arnarsdóttir
-
Ásta Hafberg S.
-
Erla J. Steingrímsdóttir
-
Helena Leifsdóttir
-
Agný
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
Jón Árni Bragason
-
Jón Lárusson
-
Högni Snær Hauksson
-
Kristján P. Gudmundsson
-
Kristinn Snævar Jónsson
-
Sigurður Ingólfsson
-
Rakel Sigurgeirsdóttir
-
Sigurður Þórðarson
-
S. Einar Sigurðsson
-
Pétur Steinn Sigurðsson
-
Vaktin
-
Sigurjón Sveinsson
-
Dóra litla
-
Arnar Guðmundsson
-
Jörundur Þórðarson
-
Rafn Gíslason
-
Hjalti Sigurðarson
-
Kalikles
-
Vésteinn Valgarðsson
-
Bjarni Kristjánsson
-
Egill Helgi Lárusson
-
Gunnar Skúli Ármannsson
-
Halldóra Hjaltadóttir
-
Jón Pétur Líndal
-
Guðmundur Ásgeirsson
-
Reputo
-
Gunnar Helgi Eysteinsson
-
Sigurður Sigurðsson
-
Ólafur Als
-
Friðrik Már
-
Gísli Sigurðsson
-
Sigurður Einarsson
-
Rauða Ljónið
-
Sumarliði Einar Daðason
-
Gísli Kristbjörn Björnsson
-
Kári Harðarson
-
Sigurður Antonsson
-
Valdimar H Jóhannesson
-
Rósa Aðalsteinsdóttir
-
Dagný
-
Guðmundur Pálsson
-
Jakob Þór Haraldsson
-
Birgir Viðar Halldórsson
-
Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
-
Tíkin
-
Jón Þórhallsson
-
Íslenska þjóðfylkingin
-
Erla Magna Alexandersdóttir
-
Óskar Kristinsson
-
Dominus Sanctus.
-
Ingólfur Sigurðsson
-
Jón Þórhallsson
Tenglar
Hraðleiðir
- www.tilveraniesb.net www.tilveraniesb.net Vefsetur Gunnars Rögnvaldssonar
- www.mbl.is
- Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir
- Bréf frá Jerúsalem - Yoram Hazony Yoram Hazony er einn fremsti stjórnmálaheimspekingur Vesturlanda í dag
- NatCon Þjóðaríhaldsstefnan
- Victor Davis Hanson bóndi og sagnfræðingur Victor Davis Hanson er einn fremsti sagnfræðingur Vesturlanda í klassískri sögu og hernaði
- Bruce Thornton sagnfræðingur Bruce Thornton er sagnfræðingur - klassísk fræði
- Geopolitical Futures - geopólitík Vefsetur George Friedmans sem áður hafi stofnað og stjórnað Stratfor
- Strategika Geopólitík
- TASS
- Atlanta Fed EUR credit & CDS spreads
- N.Y. Fed EUR charts
- St. Louis Fed USD Index Federal Reserve Bank of St. Louis - Trade Weighted U.S. Dollar Index: Major Currencies
- Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983 Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983
Þekkir þú ESB?
Greinar
Lestu mig
Lestu mig
• 99,8% af öllum fyrirtækjum í ESB eru lítil, minni og millistór fyrirtæki (SME)
• Þau standa fyrir 81,6% af allri atvinnusköpun í ESB
• Aðeins 8% af þessum fyrirtækjum hafa viðskipti á milli innri landamæra ESB
• Aðeins 12% af aðföngum þeirra eru innflutt og aðeins 5% af þessum fyrirtækjum hafa viðskiptasambönd í öðru ESB-landi
• Heimildir »» EuroChambers og University of LublianaSciCenter - Benchmarking EU
Bækur
Á náttborðunum
-
: EU - Europas fjende (ISBN: 9788788606416)
Evrópusambandið ESB er ein versta ógn sem að Evrópu hefur steðjað. -
: World Order (ISBN: 978-1594206146)
There has never been a true world order, Kissinger observes. For most of history, civilizations defined their own concepts of order. -
: Íslenskir kommúnistar (ISBN: ISBN 978-9935-426-19-2)
Almenna bókafélagið gefur út. -
Velstandens kilder:
Um uppsprettu velmegunar Evrópu
: - Paris 1919 :
- Reagan :
- Stalin - Diktaturets anatomi :
-
Penge
Ungverjinn segir frá 70 ára kauphallarreynslu sinni
: -
: Gulag og glemsel
Um sorgleik Rússlands og minnistap vesturlanda - Benjamín H. J. Eiríksson :
- : Opal
- : Blár
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.6.): 6
- Sl. sólarhring: 62
- Sl. viku: 829
- Frá upphafi: 1404609
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 521
- Gestir í dag: 4
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Júní 2025
- Apríl 2025
- Mars 2025
- Febrúar 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- September 2024
- Júní 2024
- Apríl 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Júlí 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008