Leita í fréttum mbl.is

Stjórnlaust Þýskaland. "Þeirra" guð sagður stærstur

Sumir muna kannski enn eftir loftslags,- umhverfis,- og jarðarkenningunni sem kennd er við heitið Gaia. Kenningin ruddi sér til rúms upp úr 1970 og hún sagði að jörðin væri eins konar lifandi organismi sem stýrir sér sjálfur. Já eins konar sjálfkeyrandi pláneta, en þó án þess að fara skyndilega sem sturtuklefi á sporbraut um Mars. En það var hins vegar ekki nógu mikill peningur í þessari kenningu, því hún hræddi og bræddi svo fáa að hún varð ekki að massífri hysteríu með afleiddri, þ.e.a.s. afvegaleiddri peningamaskínu

Til dæmis veit ég meira en hysterískir hlýnunarmenn jarðar vita í dag. Ég veit að líkamshiti minn er algerlega óbreyttur þrátt fyrir það að mér sé kalt á tánum. Ég er ekki að farast þó tánum sé kalt eða heitt. En það halda menn um leið og einn ísjaki yfirgefur mömmu sína, jökulinn. En undir jöklinum er samt hlýtt

Ef fólk setur frosinn kjúkling undir hatt á höfði sér, þá fær það aðsvif. En líkamshiti þess er þó ekki neitt lakari þrátt fyrir það. Þetta gerði ein norsk kona í þarlendri verslun og reyndi að ganga þannig út, en fram hjá búðarkassanum. En hún komst ekki nógu langt, því það leið yfir hana og upp komst um kólnun jarðar

En hvað gerist þá næst? Jú hún þurfti að borga fyrir kjúklinginn, en til viðbótar gerist það í dag á okkar dögum að Bogi Bráðjökull DDRÚVson kemur á skjáinn og græn málning frussast yfir allt -kjarnorkuvopnin líka- og fólk setur próteininnkaupapokana yfir höfuð sér og kafnar. Við það opnast gáttir ríkissjóðs og peningarnir verða að svifryki yfir höfuðplastpokaborginni Reykjavík í nýlenduvöru-verslun IKEA og Hennes martröð. Og svona heldur þetta áfram frá fjölmiðli til fjölmiðils, þar til miðilsfundir þeirra verða að me Too. Og glösin glamra. Nýr leiðtogi jarðar er fæddur

En þetta fór víst ekki alveg þannig, því þessi umræddi nýi leiðtogi "hins frjálsa heims", sjálf Angela Merkel, húkir nú ein heima í stjórnlausu Þýskalandi og hefur hvorki stjórn á barnlausri sjálfri sér, flokk sínum, landinu né neinu. Hún er algerlega komin í þrot. Bara alveg. Flokkurinn hennar þolir hana ekki, hún er svo hroðalegur hugleysingi að það er henni að kenna, segja flokksmenn, að Þýskaland er varnarlaust land og án nokkurrar getu til að verja sig né hvað þá NATO-bandamennina sem landið hefur skuldbundið til að koma til varnar, en getur ekki, vegna hugleysis hennar í samvinnu við sósíaldemókrata. Þetta sagði Norbert Röttgen flokksbróðir hennar og formaður utanríkismálanefndar þýska þingsins í síðustu viku. Hann segir að pólitík Angelu Merkel sé skandall fyrir Þýskaland og grafi undan trausti boraranna á landi sínu. Enda hefur flokkurinn nú í fyrsta skiptið í sögunni mælst með undir 30 prósent fylgi í virtri skoðanakönnun. Og þar eru þýskir sósíaldemókratar komnir niður í 16 prósentur. Aðeins 1,5 prósent skilur nú á milli fylgis þeirra og AfD

Einu vinirnir sem Merkel á eftir, eru þeir sem sköffuðu forvera hennar í kanslarastarfinu þá gulu bót sem sá lét sauma fasta á Gyðinga í Evrópu. En það gerðu múslímar fyrstir og bönnuðu Gyðingum að biðjast upphátt fyrir, ríða hestum og sinna opinberum störfum í sínu eigin landi Ísraels, um það leyti sem múslímar undir Ómar lögðu hald á það í kringum árið 600. Þá var Gyðingum gert skylt að bera gula bót til að aðgreina sig frá þeim sem tóku land þeirra yfir, eftir að Rómaverjar höfðu tekið það, rústað helgistað þeirra, réðu öllu í landi þeirra í langan tíma og gerðu Gyðinga útlæga úr höfuðborg sinni, Jerúsalem. Skömmu eftir fæðingu Krists og aftöku hans, drepa úniversal imperíal Rómverjar hálfa milljón Gyðinga í þjóðríki þeirra, brenna þúsund þorp og bæi þeirra niður og skíra Jerúsalem öðru nafni, Aelia Capatolina, og gefa Júdeu nafnið Palaestina til að reyna að afmá öll bönd Gyðinga við land þeirra Ísrael

Þeir sem tóku við úniversal imperíal kyndli Rómverja heita Líberalistar í dag. Þeir ætla eins og Rómverjar að koma einu únversal regluverki yfir allt mannkyn. En það bannar Biblía Vesturlanda alveg stranglega. Hún harðbannar það því það það er af hinu ógurlega illa og vonda að reyna að ráða þannig yfir öllum heiminum. Það má enginn gera. Maðurinn er ekki skapaður til að vera eitthvað eitt samkvæmt einni reglu þannig úníversal imperíalisma. Gamla testamentið kom því með landamærin og þjóð-ríkið til okkar til að koma í veg fyrir að þjóðir flæddu út fyrir þau til að gleypa heiminn. Þess vegna var hið forna Ísrael svona einstakt í mannkynssögunni. Það varð hornsteinn Vesturlanda

Eina áþreifanlega sönnunargagnið um tilvist Pontísuar Pílatusar fannst árið 1963 í rústum Caesarea, sem múslímar urðu að taka yfir þarna seint á sjöttu öld til að geta hrifsað til sín allt landið, og saumað gula merkimiðann fastan á Gyðinga í þeirra eigin landi. Yfir innganginum hafði nefnilega skilti með áletruninni TIVS PILATUS hangið. Það er fundið. Skilti og opið leikhús fékk hann, og Jesú Krist upp á kross, en gulan merkimiða fengu Gyðingar, þá og einnig löngu síðar, ásamt íslömsku vígahreiðri klaskað beint ofan á þeirra helgasta helgistað. Og sem hafði verið sá helgi staður þeirra frá því þúsund árum fyrir Krist. Þar stendur hið niðurklaskaða vígahreiður íslamista enn og safnar í sig púðri

Já, gula bót til að aðgreina þá frá herraþjóðinni, sem Angela Merkel bauð nýlega velkomna í sitt land til að drekkja sinni þjóð. Þetta er að verða fyrsta boðorðið í hjálparstarfi nútímans; ávallt að drekkja sjálfum sér fyrst, áður en öðrum er svo "bjargað" með engu, því allt er farið. Þetta er hin nýja Gaia-kenning Líberalista. Gamla hryllings-bandalagið er þetta sterkt, enn þann dag í dag. Enda voru múslímar miklir bandamenn Hitlers

Svo klöskuðu múslímar, sjö hundruð árum eftir Krist, stórmosku yfir sjálfan helgasta helgistað Gyðinga í Jerúsalem, þá tæplega tvö þúsund ára gamlan, eins og þeir -ef svona vel viðrar fyrir þá áfram í geldri Evrópu- munu reisa yfir tómarúm Angelu Merkels. Enda er verið að byggja þannig musteri út um allt í Þýskalandi. Þar er nú kallað til bæna og í gjallarhornin öskrað "okkar guð er stærstur"

Einn þýskur maður hefur þó kært hátalarakerfið og er sú kæra nú í athugun í steingeldu Þýskalandi. En það er hún einungis vegna þess að hornið gellur því út yfir allt og alla, að guð annarra sé stærri en þeirra þýski eigin (sem er næstum enginn) og sem Mekrel hefur gert svo kyrfilega lítið úr, að hann er næstum því ekkert orðinn. Skiljanlega er ekki er von á annars konar gjallandi horni úr hörðustu humátt sem gellur ekki hærra en áunnið heyrnarleysi hennar og annarra steingeldra sekúlarista mögulega getur numið. Sagt er að kanslaraínan kunni þó enn að lesa og kannski að skrifa, en alls ekki að skrifta, enda alin og forhert upp í DDR, þar sem hún var í guðlausri ungliðahreyfingu kommúnistanna sem drápu landið sitt svo innanfrá að það hefur aldrei beðið þess bætur. Hún neitar því forhert enn og án afláts að viðurkenna mistök sín, sama hversu grafalvarleg og slæm þau eru fyrir Þýskaland og allt meginland Evrópu. Pólland fær hún þó aldrei

Sem sagt: "leiðtogi hins frjálsa heims" er greinilega nýfæddur. Þýskaland myndi verða gjaldþrota á fimm sekúndum við það eitt að verja sig sjálft. En þar telur bara enginn að neitt sé til, sem vert sé að verja - og gildir það álit Þýskalands einnig um allt meginland Evrópu. Í því felst leiðtog Þýskalands, eins og ávallt áður; Að stúta því öllu - líka á undanhaldinu

Fyrri færsla

Ætlar Framsóknarflokkurinn ekki að banna fóstureyðingar líka?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Enn einn smellurinn hjá þér Gunnar sem verðskuldar sömu viðbrögð og sá seinasti.Þú heldur manni sko "lifandi" drengur minn á meðan elítan kveinkar sér  undan líeyris greiðslum gamalmenna sem týmdu þó á sínum tíma að eignast börn.

 Höfum lifað af þó nokkrar heimsendis kenningar,látum ekki hræða okkur lengur Mb.Kv.
 

Helga Kristjánsdóttir, 18.2.2018 kl. 21:02

2 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér Helga og ég tek undir þetta með þér. Við erum til vegna þeirra sem nenntu að eiga okkur. Þeim er ég því afar þakklátur. Og þeim sem á undan þeim voru.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 19.2.2018 kl. 01:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband