Föstudagur, 15. júní 2018
Þýska ríkisstjórnin gæti fallið á næstu dögum
Úr vakúmvélarrúmi ESB
Horst Seehofer er bæverski maðurinn sem varð innanríkisráðherra Þýskalands í mars, eftir næstum hálfsárs raunir Angelu Merkels við að mynda eina þýska ríkisstjórn uppi í vélarrúmi í vakúmrúmi ESB, þar sem Merkel sefur. Hann er leiðtogi CSU-flokksins í Bæjaralandi, sem er í bandalagi með CDU-flokki Merkels. CSU í Bæjaralandi hefur sérstöðu sem CDU getur ekki keppt við. Sumir muna kannski eftir því að Franz-Josef Strauss leiðtogi CSU í Bæjaralandi kippti næstum dreglinum undan CDU/CSU flokksbandalaginu árið 1976, sem Helmut Kohl leiddi (1976-1982)
Horst Seehofer neitar nú að hlýða Merkel í innflytjendamálum og það eru októberkosningar í Bæjaralandi í haust. Hann neitar að gefa Merkel 14 daga til að komast að vakúm-samkomulagi uppi í vakúm-vélarrúmi ESB, því þar hefur hún alið loft-manninn sinn á lofti í þessu máli í þrjú ár. Fjórtán dagar í viðbót munu engu breyta í þeim efnum og ætlar Seehofer því að beita framkvæmdavaldi sínu og vísa þeim frá við landamærin sem ekkert þýskt-löglegt erindi eiga inn í Þýskaland frá öðrum ESB-löndum/lendum. Merkel bað um 14 daga og fékk þá ekki
Hún getur því valið um að reka manninn og enda flokksbandalag CSU og CDU, eða leggjast upp í loftrúmið sitt og leggja enn frekari stund á vakúmstjórnmál með sjálfri sér, því enginn í hennar flokki styður hvorki þetta vandamál sem hún sjálf bjó til handa álfunni, Þýskalandi, ríkisstjórn, flokki hennar og annars, sem í dag heitir Horst Seehofer. Hún nýtur aðeins stuðnings í sínum eigin flokki sökum skammar, en ekki vegna málefnisins né framgöngu hennar í málinu. Hún hefur misnotað flokkinn sinn og annarra, þingið, Þýskaland, Evrópusambandið og lýðræðið til að afla sér persónulegra vinsælda án þess sjálf að hafa til nokkurs unnið, því hún er fæla og í mesta lagi fuglahræða, ófær um að leysa mál og koma í veg fyrir að þau taki allt með sér niður þegar að málalokum kemur. Markus Söder (mögulega) nýtt leiðtogaefni CSU heimtar Trump-lausn á erfiðum málum með því að kalla eftir endalokum gagnslauss fjölþjóðaisma
Allt sem tengist Evrópusambandinu er nú orðið jafn banvænt geislavirkt fyrir hinn pólitíska geira Evrópu og kjarnakljúfur Tjernobyl var fyrir líkamlega heilsu manna. Eina ráðið er að halda sig sem lengst burtu frá dómsdagsvél Evrópusambandsins. Annars er það dauðinn sem bíður
Nú hetir það: "Donald J. Trump, forseti Bandaríkja Norður-Ameríku"
Að fundi loknum: Götumynd frá Norður-Kóreu. Hvað skyldi fólkið geta lesið á milli línanna?
Donlad J. Trump er nú á forsíðum allra dagblaða sem fá að koma út í Norður-Kóreu. Þar er hann ekki sagður vera "gangandi liðið lík, ruslapoki, kjarnorkuvopnabrjálæðingur" og þar fram eftir götublöðum, sem sýndu hann þannig svo seint sem í apríl. Hann er nú kallaður Donald J. Trump, forseti Bandaríkja Norður-Ameríku í blöðunum í Norðri, en það er titill sem enginn fyrirrennara hans hefur nokkru sinni notið í málgögnum einræðisins í NK, segir bandarísk norðurkóreumála-rannsóknarstofnun í Suður-Kóreu í WSJ
Ljóst er því að fundur Trumps og Kim hefur komið því til leiðar að nú er hægt að eiga samskipti við stjórnvöld í Norður-Kóreu, því sambandi hefur verið komi á. Stjórnarerindrekar beggja landa hafa því heimild til að tala saman, vinna saman og leysa kannski úr einhverju máli saman, því ef leysa á mál þá þarf tvo til að búa til lausn sem er ekki stríð. Hvorugur leiðtoganna hefur tíma til að sinna þeim málum sem stjórnarerindrekar og embættismenn eiga að sinna í þessu máli; þ.e. skrúfum, blotum og bréfaklemmum málsins. Þetta útaf fyrir sig er góður árangur af einum fjörugga tíma fundi, sem Trump sagði að hefði ekkert kostað sig, annað en 24 tíma vöku á einum sólarhring
Stríðsástand ríkir á milli Norður-Kóreu og Bandaríkjanna og hefur gert svo í 68 ár, en með vonahléi frá og með 1953. Kannski eitthvað fari að gerast sem leysir fólkið í norðri undan okinu. Það hefur að minnsta kosti ekki tapað á þessum fundi, og heldur ekki fólkið í Bandaríkjunum. Japan, Suður-Kórea og Kína hugsa sitt, sem ég (og þau og enginn) veit ekki enn hvað er. Sovétfræðingar nútímans segja leiðtogafundinn hins vegar vera fíaskó
DXY
DXY-gengisvísitala Bandaríkjadals hækkaði um 1,6 prósent í gær, það mesta sem ég hef séð í mínu minni á einum degi. Evarn hrundi samsvarandi gegn dal sama dag. Góðar stjórnmála- og hagtölur streyma inn í Bandaríkjunum, alveg öfugt við flest sem er að gerast á Austurhveli jarðar, þ.e. í Gamla heiminum
Fyrri færsla
Nefndar-landamæri Evrópu virka ekki, allt í steik
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 14. júní 2018
Nefndar-landamæri Evrópu virka ekki, allt í steik
Í Bláhryggjafjöllum
Afkomendur vesturfaranna, og kjósendur, sem björguðu gamla heiminum, tvisvar. Evrópa hvað... Allt kannski ónýtt hjá ykkur aftur, eina ferðina enn? Svo er það Bill í næstu sýslu og dagurinn þegar Churchill dó
****
Henni var brugðið henni Angelu Merkel. Á fundi í flokki sínum á þriðjudag var henni svo gott sem afneitað. Aðeins enginn af 13 þingmönnum á fundinum studdu hana, því tveir sátu hjá. Sögðu þýsk blöð að hún hefði komið eins og liðið lík út af þessum fundi (mitt orðalag), svo brugðið var henni (þeirra orðalag). Fundurinn snérist um innri sem ytri landamæri Evrópusambandsins. En þau eru ein stór klessa út í gegn. Ekkert virkar og landamæra-teppasprengjubúr ESB-ríkjanna stækkar bara og stækkar, þar til stóri hvellur hleypir lagernum út. Sprengjubúrið bókstaflega tifar
Um er að ræða innflytjendamála-óskapnaðinn sem Angela Merkel kallaði yfir lönd Evrópusambandsins, er hún veifaði milljónum óskoðaðra ófriðardúfna inn í sambandið, sem Þýskaland þykist nú ráða yfir. Innanríkisráðherra hennar heimtar að ólöglegu fólki sé nú vísað frá við landamæri Þýskalands og snúið aftur til þess lands sem það kom fyrst til. Málið tengist aðgerðum nýkjörinna ítalskra stjórnvalda sem snéru skipi með hælisleitendum frá, og tístu "sigur" þegar Spánn neyddist til að taka við því. Sama og Frakkland gerði þegar samskonar fólk ætlaði inn í Frakkland frá Ítalíu, en sem franski forsetinn fordæmir hins vegar Ítalíu fyrir að gera núna. Tvöfaldur skítamórall er sérgrein Evrópusambandsins, sem lærist um leið og maður gengur í það
Þýski innanríkisráðherrann, hennar maður, neitar að taka við fleira fólki og vill fara leið þeirra sem Merkel hefur fordæmt svo hart; snúa fólki við og láta aðra um um að sitja uppi með þau vandamál sem Merkel bjó til handa þeim. Um er að ræða tíu þúsund manna áhlaup á sambandið á mánuði núna. Er því annað hvort um afsögn þýska innanríkisráðherrans að ræða, eða friðþægingu. Og þar sem meiri hluti þýsku ríkisstjórnarinnar er svo afar lítill, þá er staðan krítísk. Þýska stjórnleysið blasir við öllum og í haust eru kosningar í Bæjaralandi. Þeir sem vilja fremja meira pólitískt harakíri, þeir standa með Merkel, sem sennilega er fallin, og deyja. Það styttist í vantraust á hana, bæði í flokk hennar og á þingi. Þegar hún fer frá, þá mun hún að sögn AfD og öryggis síns vegna, neyðast til að nota gömlu flóttaleið nasista til Suður-Ameríku, því hún hefur eyðilagt Þýskaland, segja þeir. "Hún er það versta sem Þýskaland hefur hýst síðan Adolf Hitler átti hér heima", segja þeir, froðufellandi af bræði
Fyrir dyrum Evrópusambandsins standa nú tvö tröll með tvær sleggjur í hönd. Upp Ítalíu koma tollar Trumps á þýska bíla með forstjóra á leið fangelsi, á meðan sautján-pundara 76mm Sherman-hlaup hins breska Firefly yfir Ermasund, stútar restinni af Evrópusambandinu, sem virðist skrúfað saman eins og þýskur Tiger II, sem þurfti tíu tíma viðhald til að geta gengið eina klukkustund. Að skipta við Stóra-Bretland á venjulegum tollasáttmálum, er stærð sem fær bílatolla Trumps til að líkjast engu. Þetta mun sambandið ekki þola, samtímis. Hvorki innvortis á milli ESB-ríkjanna sjálfra, né útvortis við heim Engilsaxa, sem er stór og stærstur. Þetta var stutt frétt úr "friðarsambandinu"
Góðar fréttir úr landi krónu og dals
Í gær horfði ég á seðlabanka Bandaríkjadals og Íslandskrónu segja frá stýrivaxtaákvörðunum sínum. Vestanhafs eru allar fréttir svo góðar að seðlastjórinn gat notað mannamál við frásögnina: stutt og laggott, allt er bara að verða great again
Og á krónusvæðinu gengur allt svo vel að enginn mætti í Seðlabankann til að spyrja neins, nema tveir, eða þrír. Restin sat köfnuð í þéttri byggð. Einn góður og annar sem virtist, fyrir slysni, hafa keypt þvaður um húsnæðisliðagikt vísitölu. En honum tókst sennilega að skila tölunni til baka í hnappagatið á þeirri upplognu skyrtu sem hún var úr, því allt fór vel
Allt er vel hjá dal og krónu, enda ekta gjaldmiðlar báðir, sem leysast ekki upp
Fyrri færsla
"Heimurinn mun sjá breytingar" sagði Kim [u]
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Þriðjudagur, 12. júní 2018
"Heimurinn mun sjá breytingar" sagði Kim [u]
Sérfræðingaveldið: EKKI MÖGULEGT H/F
Ekki hægt. Óhugsandi. Breytingar þýða breytingar. Ekki hægt. Ekki mögulegt, segja þeir sem þola ekki breytingar sem þýða breytingar. Hat tip; Victor Davis Hanson í nótt
****
Og hver mun þá hafa breytt heiminum? Jú, sá sem krafðist breytinga. Og hver gerði það. Jú, Donald J. Trump
Þeir sem þola ekki breytingar sem þýða breytingar, þeir þola ekki Trump og kjósendur hans. Þannig er nú það
Hann er eini maðurinn sem Kim hefur hingað til treyst til að hlusta á sig og semja við sig um einmitt breytingar sem þýða breytingar. Það er vitað að Kim batt einmitt vonir sínar við Trump, af því að Trump er ekki venjulegur. Enginn annar forseti hefði gert þetta sem Trump gerði í dag
Og hvað sagði Kim? Jú hann sagði, "mig langar að lýsa yfir þakklæti mínu til Donalds J. Trump fyrir að hafa gert þennan fund mögulegan". Það sagði hann þegar samkomulag fundarins var undirritað. Tveir þjóðhöfðingjar hafa undirritað samkomulag, sem af "sérfræðingum" þótti óhugsandi fyrir aðeins sex mánuðum síðan. Engum datt það í hug, nema náttúrlega Trump. Ekki hægt, ekki mögulegt
Svo fór Kim og er á leið heim, á meðan Donald J. Trump forseti Bandaríkjanna gekk inn í ljónagryfjuna til að svara spurningum "blaðamanna", um hvers vegna sólin væri enn á lofti og fólkið í Norður-Kóreu enn að bíta gras - þrátt fyrir fjögurra tíma fund hans á einum sólarhring af öllum óteljandi hinum, þar sem hún settist án þess að nokkuð væri að gert
Einn dagur er liðinn og enginn dauður enn. Skelfileg vonbrigði fyrir alla þá sem óska Trump allt illt. Margt á þó enn eftir að koma í ljós, sérstaklega varðandi áframhaldið
Og viðskiptahallanum mun hann ná niður líka. Óhugsandi segja sérfræðingar. Algerlega óhugsandi, segja þeir í einum alþjóðlegum kór. En bíðið og sjáið. Viðskiptahallinn verður tættur burt. Skelfilegar breytingar segja þeir sem eru með hagnaðinn. Skelfilegar breytingar bíða okkar, og nú vantar AfD aðeins eitt prósent upp á að mælast næst stærsti flokkur í því landi sem óttast hallamál Trumps mest: Þýskaland. En það er landið þar sem forstjóri Audi sætir nú glæparannsókn í dísilsvindli þýska iðnaðarins, á meðan Ítalía er komin í primavera og Finnland á góðri leið með að skulda sig í hel í þýsku magabelti úr evrustáli, sem það kemst ekki úr
Þeir sömu "skýrendur" sem "skýrðu" heiminum frá því hvers vegna Donald Trump gæti ekki sigrað í forsetakosningunum í nóvember 2016, skýra nú heiminum frá því af hverju fundur Trumps og Kims var árangurslaus. Þeir sem vilja láta skýrast á ný, þeir um það
****
Einn dagur.. ein sleggja.. og ísinn brotinn ..vonandi
Og hér er blaðamannafundurinn, þar sem forsetinn svarar spurningum að fundi loknum
Uppfært kl 21:32. Krækjunni á YouTube-setur Hvíta hússins hafði verið breytt og myndbandið féll því út um tíma, en hér er það á ný
Fyrri færsla
Tollabandalagið ESB vildi að sjálfsögðu ekki frjáls viðskipti
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Mánudagur, 11. júní 2018
Tollabandalagið ESB vildi að sjálfsögðu ekki frjáls viðskipti
G-núll ríkin kipptust heldur betur við þegar G1 bauð þeim enga tolla, engar hindranir og engan ríkisstuðning á G7 fundinum í landinu Kanada, sem uppgötvaði "sérstakan frátekinn stað í helvíti" fyrir forsætisráðherra sinn. Auðvitað kom slíkt aldrei til greina af þeirra hálfu, og verður aldrei, því þá myndu Bandaríkin keppa þau í kaf. En þetta var samt skemmtilegt í þær nokkrar sekúndur sem tilboðið tók af síðasta fundinum sem haldinn verður í G7, því það Gé er búið, að vera
Þetta fjölþjóðafyrirbæri þoldi ekki forsetakosningar í Bandaríkjunum. Svo flott og traust er þetta fyrirbæri sem kallast "alþjóðasamfélagið", en sem í tilfelli G7 var alltaf bara alþjóðasamsærið gegn sjálfstæði þjóða og hagkerfum þeirra. Hér endar það fyrirbæri sem bjó til Louvre og Plaza samsærin gegn sjálfstæði hagkerfa á níunda og tíunda áratug síðustu aldar
Þetta mun þá væntanlega heita rek eða divergence á fínu máli hagfræðinga, frá og með bráðum nú, og stútar það rek væntanlega um leið þörfinni á þessum enda-enda-endalausu umbótum eða structural reforms, sem í reynd þýða að allir eiga skilyrðislaust að verða eins og ég ég ég
Þetta er nú heldur betur nýtt dýnamít ofan í Nóbels-friðarverðlaunahafann ESB, sem er á fullu að reyna að gera Evrópu þýska, eins og mig; Þýskaland. Sjáið mig. Sjáið mig!
Heldur ekki fjölþjóða Evrópusambandið þolir fleiri þingkosningar. Hverjar nýjar kosningar eiga nú á hættu að leysa það upp. Ekki bara evruna, því hún er í upplausn, heldur Evrópusambandið líka
Tvær góðviðrisstofnanir "alþjóðasamfélagsins" reyndust ekki vera neitt "samfélag", heldur bara tilraun til að snúna út úr þjóðfélaginu
Og nú fer elítan í þessu alþjóðafargani að missa vinnuna, sem betur fer
Skál fyrir Donald J. Trump! Lengi lifi þjóð-ríkið og þjóðfélag þeirra
Fyrri færsla
Orðið hagkerfi Trumps, líka [u]
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Sunnudagur, 10. júní 2018
Orðið hagkerfi Trumps, líka [u]
Hinn sænskættaði Bandaríkjamaður Victor Davis Hanson, sagnfræðingur og bóndi, útskýrir kosningasigur Donalds J. Trump, stefnu hans, og klaustur hugans sem vinstri-geggjunarstefna nútímans hefur byggt. Þetta er bráðskemmtilegt og alls ekki nein klausturgerð
****
Í fyrradag skrifaði ég um að Repúblikanaflokkurinn væri nú orðinn flokkur Trumps og að það fjarar undan Demókrötum í komandi mið-kosningum (hér)
Í dag er það hins vegar Bandaríska hagkerfið sem ég fjalla um, þ.e líf allra og í öllum flokkum í Bandaríkjunum
Donald J. Trump hefur nú tekist að berja peningavitinu aftur í bandaríska hagkerfið á þann hátt sem vinstrimönnum gat ekki dreymt um vegna -að því er virðist- sjálfstortímingaráráttu eða jafnvel þess sem er enn verra, allsherjar uppgjafar. Trump er eini maðurinn með peningavit og reynslu í peningamálum sem Fed-seðlabankinn hefur séð settan af þjóð í stól forseta. Og nú er það hagkerfið líka, sem orðið er hans. Hvar sem leitað er, finnst varla hagvísir á annað en jákvæðan árangur. Obama afrekaði lélegasta 7-ára efnahagsbata frá því í Keppunni miklu, sem hófst 1929 og lauk aldrei vegna Demókrata við stjórnvölinn. Það þurfti stríð til að fá þjóðina til að þora að líta upp aftur. Og þannig var það undir Obama sem rak stefnu sem hét ónýtu þið og hinn snjalli ég - og Hillary, sem erfði því ónýtan flokk og þar með ekkert
Hagvöxtur er sterkur á bilinu þrjú til fjögur prósent. Atvinnuleysi er lágt og komið undir fjögur prósent. Meira en eitt starf er laust á hvern þann sem leitar að vinnu. Atvinnuþáttraka eykst. Atvinnuleysi blökkumanna er það lægsta síðan mælingar hófust. Laun hækka. Verðbólgan er að ná sér upp í eðlilegan hita, og vextir fara hækkandi, sem þýðir að peningar fá nauðsynlegt afl. Og Bandaríkin verða þess utan stærsti olíuframleiðandi heims á næsta ári, plús gas líka. Skattar hafa verið lækkaðir og kæfandi regluverk brennt til ösku og stendur sú aðgerð yfir enn. Og viðskiptahalli fer nú minnkandi, eins og er, og ólöglegum innflytjendum fækkar, en þar er stór slagur framundan ásamt áframhaldandi útrýmingu viðskiphalla, sem barinn verður niður og sendur úr landi til þeirra sem svo lengi hafa hagnast á kostnað Bandaríkjanna
Mynd Sovétríkin: Dóu úr menntun með náttúruauðæfi upp í háls - "ég vinn fyrir fólkið" segir skiltið (OMG!). Svona er Ísland að verða og landsframleiðslan á hvern mann haggast varla lengur - og ríkið ræðst með fullum sovétisma á undirstöðuatvinnuvegina
****
Donald Trump hefur á 16 mánuðum snúið af öllum efnahagsstefnum Obama, eða lagt þær niður, og ógilt öll lög og reglur Obama, sem hann löglega gat, og þetta er árangurinn. Stolt, áræði, þor og trú voru vopnin sem Trump notaði. Og hann neitar að skammast sín fyrir að vera ríkur forseti sem berst fyrir litla manninn
Afl Trump-stefnunnar er slíkt að hagkerfið opnast eins og kampavínsflaska og gýs, segir í grein WSJ: Its Trumps Economy Now
Aldrei áður hefur neinn framkvæmt annað eins á svo stuttum tíma. Og Trump rekur teymi sitt miskunnarlaust áfram. Ef menn standa sig ekki og sýna forsetaembættinu ekki þá hollustu sem stjórnarskráin gerir ráð fyrir, þá er þeim sparkað út, öfugum. Allir forsetans menn eiga að vera forsetaembættinu túrir, en ekki þinginu né neinu öðru, nema lögunum. Það negldi Ulysses S. Grant fast, með sjö tommu saumi
Mánuð fyrir kosningar var forsíða Washington Post (sósíal-aðallinn) þakin af frétt þess efnis að ef Trump yrði forseti "gæti hann lagt efnahag heimsins í rúst" ("A President Trump Could Destroy the World Economy"). Og Paul Krugman sagði að "kjör Trumps myndi sennilega þýða heimskreppu án enda" ("We are very probably looking at a global recession, with no end in sight")
Það er nú það. Og enn er dag hvern beðið eftir nýjum Hitler - og sem á að hafa "fasíska framkomu". Öll pressa Vesturlanda og sem næstum öll er vinstrisinnuð, prentar og útsendir daglega skilaboð til þeirra sem þola ekki Trump, og kallar sig ekki neitt minna en Andspyrnuhreyfingin gegn Trump. Já þið lásuð rétt. Kallar sig ekki stjórnarandstöðu, heldur andspyrnuhreyfingu! Já vinstrið er gersamlega kolklikkað á okkar dögum og hefur algjörlega misst hið litla vit sem það hafði. Já alveg. Þar er bara allt galtómt núna og valdarán helst efst á lista þess
Holur hljómur sósíalismans í hverskyns litum og hasstöggum, breiðir úr sér yfir heimsbyggðina á Austurhveli jarðar. Sífellt færri hlusta á þá tómu tunnu lengur, enda bara tómt rugl í boði hins sama gamla gjaldþrota sósíal-aðals gáfumenna og síðast. Nú er rétti tíminn til að loka sveppahatta-háskólum Vesturlanda og opna bílskúrana, því þeir háskólar hafa sannað sig sem alþjóðleg plága á skattgreiðendum. Annars deyja lönd kvalarfullum dauða úr menntun, eins og Sovétríkin gerðu
Uppfært kl 20:52
G-7 fundinum lauk rétt í þessu og hér er blaðamannafundur með Donald J. Trump rétt áður en hann stakk af í Air-Force-One til að tala við rocketman Kim
****
"There is a special place in hell"..
Uppfært 22:23 og 23:43: En eftir að Trump var þotinn af stað til fundar við eldflaugmanninn Kim, áður en fundi var formlega slitið og sameiginleg yfirlýsing gefin út, skilst mér að kanadíski forsætisráðherrann hafi notað tækifærið til að baktala -og haft í hótunum við Bandaríkin- það sem forseti Bandaríkjanna og hópurinn hafði sæst á sem niðurstöðu, og sem varð þess valdandi að forsetinn neitaði að skrifa undir lokayfirlýsingu G7-fundarins
Wall Street Journal segir að Peter Navarro yfirmaður Hvíta hússins í framleiðslu- og viðskiptamálum Bandaríkjanna hafi þá sagt fréttamönnum að: "það er sérstakur staður frátekinn í helvíti fyrir þá erlendu leiðtoga sem með illgjarnri diplómasíu stinga Donald J. Trump í bakið á leið hans út um dyrnar". "Þetta eru verst útreiknuðu pólitísku mistök leiðtoga Kanada í nýrri tíma sögu"... því að... "það var eingöngu af tillitssemi við Kanada að Trump hafði ákveðið að skrifa undir sósíalistíska yfirlýsingu fundarins", bætti Navarro við (WSJ hefur nú strokað síðustu tilvitnunina í PN út, sjá AP). Stuttu síðar kom svo fax frá Air-Force-One: tikk tikk tikk... skrifa ekki undir... bless DJT
Fyrri færsla
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Föstudagur, 8. júní 2018
R orðinn flokkur Trumps
Mynd WSJ: Líkurnar fjara undan fótum sprengju-sjokkeraðra Demókrata - í kosningunum til þings og öldungadeildar þetta árið
****
Sennilega er það rétt hjá Pat Buchanan að Repúblikanaflokkurinn sé nú orðinn flokkur Trumps. Hann var það ekki þegar Trump kom að honum og byrjaði að taka til. Út um glugga flokksins komu kreddurnar um "frjáls viðskipti" fljúgandi (sem aldrei eru frjáls viðskipti), ásamt "opnum landamærum" og þar á eftir kom kenningin um að viðskiptahalli við útlönd, sem þá hagnast, væri bara allt í lagi til lengri tíma litið, en hann er það ekki. Svo kom gjafabúðin NATO og friðþægingin fljúgandi út um gluggana sem Trump opnaði. Þar næst kom massainnflutningur á vonlausu fólki fljúgandi, og vinstrið varð að finna sér nýja skjólstæðinga til að monta góðsemi sína á kostnað annarra með. Og loks var fjölþjóðaisminn settur í hakkavélina (e. multilateralism), París pakkað saman, og þær elítur sem hafa lofslags-tekjur af honum eru nú að kafna úr hneykslun í miðju hakki
Þeir sem halda að þessi málefni snúi sér aftur til tímans fyrir Trump, eru í djúpsvæfingu loftslags sem stjórnmálaflokkar drepast úr
Hvaða lærdóm geta Íslendingar dregið af þessu í "friðsælasta landi heims" sem Bandaríkin halda einmitt friðinn fyrir. Hvar er okkar framlag til NATO. Hvar eru 2-3 prósent landsframleiðslu Íslendinga stödd í NATO? Við montum okkur af friðsemi sem ekki er okkar verk. Og þeir sem í þannig aðstöðu fastir eru í "afvopnun", eru hræsnarar á hæsta stigi. Friður á Íslandi er Bandaríkjunum að þakka, og hann kostar peninga. Mikla peninga
Fyrri færsla
Íslenski sósíalaðallinn að hrynja
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
Fimmtudagur, 7. júní 2018
Íslenski sósíalaðallinn að hrynja
Íslendingum líður núna eins og Rússum leið árin áður en Sovétríki sósíal-aðalsins hrundu. Ekkert samhengi er nú á milli þess veruleika sem Íslendingar búa í, og hins upplogna veruleika sem fjölmiðlar sósíal-aðalsins kynna og bera á borð fyrir almenning í landinu. Rauða græn-mylgan sést betur og betur í andlitum þeirra sem þykjast berjast hvern dag fyrir "réttlæti" sem byggist á misnotkun á þjóðríki Íslendinga og stofnunum þess. Persónulega æli ég innra með mér í hvert sinn sem ég sé glitta í fjölmiðil sem boðar útópíu hvern einasta dag ársins á minn kostnað, þ.e. ríkisfjölmiðilinn
Flokkar sem eru svo veruleikafirrtir að kenna sig við rautt blóð, græna myglu, þjófnað og öskur-grenjur inn á þing, eru nú að renna sitt síðasta skeið. Ekkert er eftir í kökudósinni sem sósíal-stríðsmenn þessara flokka geta lifað á, annað en öskur um hagi einstaklinga sem engan varðar um, nema þá sjálfa, og svo hatur á öllum þeim sem halda þeim uppi og skapa auðlegð þjóðar. Ég fyrirlít þetta pakk svo innilega að ef ekki væru lög í landinu, þá væri mér og flestum öðrum Íslendingum fyrir löngu að mæta. Já við Íslendingar förum að lögum. En á meðan níðir sósíal-aðallinn niður þjóðríkið og þær stofnanir og hefðir sem lögin hvíla á. Þessi sósíal-aðals skríll er vanvirða við allt gott í okkar landi. Tökum af honum launin og gratís-uppihaldið. Nóg er komið!
Fyrri færsla
Bandaríkin henda ESB út úr Íran: Ítalía mundar skiptilykilinn
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Miðvikudagur, 6. júní 2018
Bandaríkin henda ESB út úr Íran: Ítalía mundar skiptilykilinn
Myndskeið: Í Búkarest var Bandaríkjunum og Intermarium fagnað fyrir stuttu
****
Þetta tók ekki langan tíma. Svo kölluð samstaða ESB-ríkja um að standa uppi hinu hættulega gula hári Donalds Trump, er orðin að sam.. sam.. sam.. já hérna kemur það.. þegjandi samkomulagi um að hlýða einmitt Doanld Trump. Það sýnir sendibréf ESB-ríkja til Washington, þess efnis að ákvörðun Bandaríkjamanna um að rífa Íran-samkomulagið í tætlur gerir ESB ókleift að stunda þar viðskipti. Þetta mátti reyndar strax á fyrsta degi lesa út úr yfirlýsingum A.P. Møller, sem de facto er Danmörk, og það med rettidig omhu. Þeir voru ekki í neinum vafa um hvort yrði fyrir valinu; 1) Íran eða 2) Bandaríkin. ESB-skottið hentist því á milli fóta ESB-margfætlunnar og upp í munn Merkels, þar sem það líkist yfirvaraskeggi
Ítalía
Ítalía mundar nú skiptilykilinn á Schengen og mun sennilega skrúfa það í sundur og taka niður, á meðan ný samhliða mynt er í smíðum, til að bola evrunni út með. "Evran er mynt Ítalíu" sagði ríkisstjórnin, en bætti svo við: "eins og er"
Mynd: Trump-Amerykanski fundaði með akkerisfestum Intermarium í Póllandi í fyrra. Fór ekki til Berlínar
Intermarium
Smíði Intermarium gengur vel. Viðskiptahverfi Varsjár í Wola, sem frægt varð fyrir uppreisn í Síðari heimsstyrjöldinni, er að fyllast af bandarískum fyrirtækjum; JPM, Citi, Goldman og endalaus röð bandarískra fyrirtækja streyma að, því Intermarium er að steypast upp. Það verður sennilega ný japönsk-kóreönsk endurreisn með bandarískum herstöðvum og munu Intermarium ríkin þá losa sig við leifarnar af ESB. Varnarsamkomulög eru að myndast á milli Intermarium-ríkjanna. Það verður æ erfiðara fyrir Pútín að sannfæra Hvíta-Rússland um að sitja áfram í kökuboði Kremlar. Annað hvort verður Pútín að bjóða betur, eða Hvíta-Rússland fer af stað og þá er fjandinn laus. En þar sem Intermarium er í smíðum þá kemst hann varla langt, nema að slegið sé til sem fyrst
Fyrri færsla
Pasta komið, tómatsósa á leiðinni
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Þriðjudagur, 5. júní 2018
Pasta komið, tómatsósa á leiðinni
Mynd: Forsíða Der Spiegel 2. júní 2018
5. júní 1931
Bræðralagsmenn í Evrópusambandinu nálgast nú níunda rúgbrauðs-óðinn til friðarins sem Bandaríkjamenn héldu fyrir þá. Eitthvað svo kallað fréttatímarit er kallar sig Der Spiegel, kom á laugardaginn út með hefðbundna kveðju að norðan, til þeirra sem viss Alpafjöll vernda fyrir sunnan. Kveðjan kom ekki úr afturenda fíls á leið upp og yfir-um, heldur birtist hún sem táknmynd hengingarólar evrunnar
Illskuleg skrif þessa pappírs, sem kennir sig við "æðri blaðamennsku", eru enn verri en myndin af hegningaról evrunnar, sem ku halda friðinn í pólitískum kirkjugörðum evrusvæðis. Réttast er, segir snepilinn, að senda ECB-aukaseðlabanka Þýskalands, ásamt öðrum stofnunum í vösum þríhyrndra elíta, suður á Ítalíu til að yfirtaka fjármálaráðuneytið í Róm. Og taka þar restar allra fjárráða af þeirri þjóð sem enn heitir Ítalir, því hún kaus vitlaust
Það Ítalíuland, ásamt Þýskalandi, varð á fyrrihluta 20. aldar frægt fyrir að vera eins konar Kína nútímans, þ.e. Ítalía var með "miklu betri" lestarsamgöngur en villimenn Ameríku nutu, og Þýskaland var með allar þessar fínu hraðbrautir. Bæði voru löndin sögð hafa "miklu betri innviði" en ruslið sem Bandaríkjamenn höfðu heima hjá sér. Já fréttaveiturnar breytast lítið og er Der Spiegel þar engin undantekning, þó svo að sá miðill hafi fyrst komið út undir verndarvæng Bandaríkjanna, er frelsið gægðist loksins fram í janúar 1947
Eins og lesendur sjá og heyra þessa rúgbrauðssinfóníu í dag, þá er hún nákvæmlega sú sama og síðast; þokulúðrasveitin mikla
En nú hefur Trump skipað nýjan Patton sem sendiherra Bandaríkjanna hvern einasta "helvítis" dag í Berlín, eftir að hafa látið þá stöðu liggja tóma í heilt ár. Sá diplómat heitir Richard Grenell og ku valda usla
Fyrri færsla
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 3. júní 2018
ESB og NATO ekki nóg
SUNNUDAGUR
Hvers vegna Síðari heimsstyrjöldin skiptir máli í dag: Victor Davis Hanson er einn virtasti sagnfræðingur í sögu hernaðar í heiminum og bóndi. Hér útskýrir hann Síðari heimsstyrjöldina og segir frá því hvað kom henni af stað og hvað í nútímanum getur verið skapa svipuð skilyrði fyrir nýjar hörmungar. Hvers vegna Síðari heimsstyrjöldin skiptir máli í dag, er mikilvægt að vita
****
Ismay lávarður útskýrði hlutvert NATO mjög vel: Það var stofnað til að halda Rússlandi úti, Bandaríkjunum inni og Þýskalandi niðri. Staðan á meginlandi Evrópu er hins vegar orðin sú að Rússland er inni, Þýskaland er efst og Bandaríkin að mestu komin út, því þau eru með aðeins 35 þúsund hermenn í Þýskalandi í dag, miðað við 250 þúsund árið 1985. Það voru Bandaríkjamenn sem héldu friðinn á meginlandi Evrópu, en sem Evrópusambandið er nú að rífa í tætlur
Pólland finnur vel fyrir þessari stöðu, því í síðustu viku komst pólska fréttastöðin Onet yfir þá pappíra sem pólska varnarmálaráðuneytið hefur lagt fyrir bandaríska varnarmálaráðuneytið, þess efnis að Pólland greiði allt að tvo milljarða Bandaríkjadala til uppbyggingar á nýrri bandarískri herstöð í Póllandi
Þar sem Þýskaland neitar að uppfylla skuldbindingar sínar við NATO og reynir þannig að veikja varnarbandalagið eins og það getur, þá hefur Pólland snúið sér beint til Bandaríkjanna, því Pólverjar vita að tími fjölþjóðafyrirbæra á meginlandi Evrópu er liðinn, og að þau fyrirbæri eru einnig getulaus og hafa alltaf verið. ESB virkar ekki og NATO virkar ekki, því Þýskaland er þar um borð, og Tyrkland er ekki lengur NATO-ríki nema að nafninu til. Það eina sem dugar í dag er beint samstarf á milli fullvalda ríkja
Pólland er einu sinni enn komið í klemmu á milli Þýskalands og Rússlands. Og Bandaríkin vita það. Ríkisstjórnir Póllands og Rúmeníu funduðu því beint sín á milli í síðustu viku, í fyrsta skipti, um varnarsamkomulag, sem virðist vera í burðarliðnum. Í fyrra gerðu Bretland og Pólland, beint sín á milli, samning um varnarmál. Takið eftir að ekki er um fjölþjóðasamvinnu að ræða, heldur er unnið saman beint. ESB og NATO er ekki nóg
Ég leyfi mér að benda lesendum á tvær nýlegar greinar frá Victor Davis Hanson. Þær eru:
Fyrri færsla
Fed setur Deutsche Bank í ruslflokk [u]
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Nýjustu færslur
- Eitthvað sem ekki passar hér [u]
- Kristrún stígur ekki í vitið, svo mikið er nú víst
- Þorgerður mín
- Kína komið til "ósubbulegs" sálfræðings
- ESB og Kína þekkja ekki bandaríska miðvestrið
- Bóndinn og prófessorinn í Selma um tolla Trumps. Grænland
- Evrópa er á leiðinni á nauðungaruppboð: Kaninn unir ekki að G...
- Svo lengi sem Grænland er viðriðið Danmörku mun heimurinn ekk...
- Landsölupakkhús Þorgerðar fúlt út í JD Vance
- Kannski hægt að byrja á farsímavef Veðurstofunnar - strax í d...
- Hamast við moksturinn í Reykjavík
- Grunnvextir hækka á evrusvæðinu - varanlega
- Fallbyssur Trumps í tollamálum
- Bandaríkin eru tilbúin að fjárfesta milljörðum dala í Grænlan...
- Já, Pólverjar verða að vakta landamærin upp að Þýskalandi. Þa...
Bloggvinir
-
Heimssýn
-
Samtök Fullveldissinna
-
ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE
-
Guðmundur Jónas Kristjánsson
-
Ragnhildur Kolka
-
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
-
Haraldur Hansson
-
Haraldur Baldursson
-
Páll Vilhjálmsson
-
Halldór Jónsson
-
Valan
-
Samstaða þjóðar
-
Frjálshyggjufélagið
-
Sigríður Laufey Einarsdóttir
-
Eyþór Laxdal Arnalds
-
Jón Valur Jensson
-
Samtök um rannsóknir á ESB ...
-
Kolbrún Stefánsdóttir
-
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
-
Jón Baldur Lorange
-
Guðjón E. Hreinberg
-
Jón Ríkharðsson
-
Anna Björg Hjartardóttir
-
Loftur Altice Þorsteinsson
-
Valdimar Samúelsson
-
Fannar frá Rifi
-
Bjarni Jónsson
-
Sigurður Þorsteinsson
-
Gunnar Ásgeir Gunnarsson
-
Haraldur Haraldsson
-
Örvar Már Marteinsson
-
Kristin stjórnmálasamtök
-
Gestur Guðjónsson
-
Ingvar Valgeirsson
-
Predikarinn - Cacoethes scribendi
-
Guðsteinn Haukur Barkarson
-
Guðmundur Helgi Þorsteinsson
-
Lísa Björk Ingólfsdóttir
-
Bjarni Kjartansson
-
Bjarni Harðarson
-
Guðrún Sæmundsdóttir
-
Sveinn Atli Gunnarsson
-
gudni.is
-
Gústaf Adolf Skúlason
-
Tryggvi Hjaltason
-
ESB
-
Marinó G. Njálsson
-
Baldvin Jónsson
-
Elle_
-
Sigurbjörn Svavarsson
-
Emil Örn Kristjánsson
-
Johnny Bravo
-
Jón Finnbogason
-
Rýnir
-
Þórarinn Baldursson
-
P.Valdimar Guðjónsson
-
Már Wolfgang Mixa
-
Ívar Pálsson
-
Júlíus Björnsson
-
Guðjón Baldursson
-
Baldur Fjölnisson
-
Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
-
Einar Ólafsson
-
Sigríður Jósefsdóttir
-
Vilhjálmur Árnason
-
gummih
-
Sveinn Tryggvason
-
Helga Kristjánsdóttir
-
Jóhann Elíasson
-
Baldur Hermannsson
-
Kristinn D Gissurarson
-
Magnús Jónsson
-
Ketill Sigurjónsson
-
Birgitta Jónsdóttir
-
Axel Jóhann Axelsson
-
Þorsteinn Helgi Steinarsson
-
Aðalsteinn Bjarnason
-
Magnús Þór Hafsteinsson
-
Erla Margrét Gunnarsdóttir
-
Sigurður Sigurðsson
-
Þorsteinn H. Gunnarsson
-
Haraldur Pálsson
-
Sveinbjörn Kristinn Þorkelsson
-
Bjarni Benedikt Gunnarsson
-
Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
-
Ægir Óskar Hallgrímsson
-
Helgi Kr. Sigmundsson
-
Óskar Sigurðsson
-
Tómas Ibsen Halldórsson
-
Axel Þór Kolbeinsson
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Hörður Valdimarsson
-
Adda Þorbjörg Sigurjónsdóttir
-
Þorsteinn Valur Baldvinsson
-
Margrét Elín Arnarsdóttir
-
Ásta Hafberg S.
-
Erla J. Steingrímsdóttir
-
Helena Leifsdóttir
-
Agný
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
Jón Árni Bragason
-
Jón Lárusson
-
Högni Snær Hauksson
-
Kristján P. Gudmundsson
-
Kristinn Snævar Jónsson
-
Sigurður Ingólfsson
-
Rakel Sigurgeirsdóttir
-
Sigurður Þórðarson
-
S. Einar Sigurðsson
-
Pétur Steinn Sigurðsson
-
Vaktin
-
Sigurjón Sveinsson
-
Dóra litla
-
Arnar Guðmundsson
-
Jörundur Þórðarson
-
Rafn Gíslason
-
Hjalti Sigurðarson
-
Kalikles
-
Vésteinn Valgarðsson
-
Bjarni Kristjánsson
-
Egill Helgi Lárusson
-
Gunnar Skúli Ármannsson
-
Halldóra Hjaltadóttir
-
Jón Pétur Líndal
-
Guðmundur Ásgeirsson
-
Reputo
-
Gunnar Helgi Eysteinsson
-
Sigurður Sigurðsson
-
Ólafur Als
-
Friðrik Már
-
Gísli Sigurðsson
-
Sigurður Einarsson
-
Rauða Ljónið
-
Sumarliði Einar Daðason
-
Gísli Kristbjörn Björnsson
-
Kári Harðarson
-
Sigurður Antonsson
-
Valdimar H Jóhannesson
-
Rósa Aðalsteinsdóttir
-
Dagný
-
Guðmundur Pálsson
-
Jakob Þór Haraldsson
-
Birgir Viðar Halldórsson
-
Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
-
Tíkin
-
Jón Þórhallsson
-
Íslenska þjóðfylkingin
-
Erla Magna Alexandersdóttir
-
Óskar Kristinsson
-
Dominus Sanctus.
-
Ingólfur Sigurðsson
-
Jón Þórhallsson
Tenglar
Hraðleiðir
- www.tilveraniesb.net www.tilveraniesb.net Vefsetur Gunnars Rögnvaldssonar
- www.mbl.is
- Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir
- Bréf frá Jerúsalem - Yoram Hazony Yoram Hazony er einn fremsti stjórnmálaheimspekingur Vesturlanda í dag
- NatCon Þjóðaríhaldsstefnan
- Victor Davis Hanson bóndi og sagnfræðingur Victor Davis Hanson er einn fremsti sagnfræðingur Vesturlanda í klassískri sögu og hernaði
- Bruce Thornton sagnfræðingur Bruce Thornton er sagnfræðingur - klassísk fræði
- Geopolitical Futures - geopólitík Vefsetur George Friedmans sem áður hafi stofnað og stjórnað Stratfor
- Strategika Geopólitík
- TASS
- Atlanta Fed EUR credit & CDS spreads
- N.Y. Fed EUR charts
- St. Louis Fed USD Index Federal Reserve Bank of St. Louis - Trade Weighted U.S. Dollar Index: Major Currencies
- Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983 Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983
Þekkir þú ESB?
Greinar
Lestu mig
Lestu mig
• 99,8% af öllum fyrirtækjum í ESB eru lítil, minni og millistór fyrirtæki (SME)
• Þau standa fyrir 81,6% af allri atvinnusköpun í ESB
• Aðeins 8% af þessum fyrirtækjum hafa viðskipti á milli innri landamæra ESB
• Aðeins 12% af aðföngum þeirra eru innflutt og aðeins 5% af þessum fyrirtækjum hafa viðskiptasambönd í öðru ESB-landi
• Heimildir »» EuroChambers og University of LublianaSciCenter - Benchmarking EU
Bækur
Á náttborðunum
-
: EU - Europas fjende (ISBN: 9788788606416)
Evrópusambandið ESB er ein versta ógn sem að Evrópu hefur steðjað. -
: World Order (ISBN: 978-1594206146)
There has never been a true world order, Kissinger observes. For most of history, civilizations defined their own concepts of order. -
: Íslenskir kommúnistar (ISBN: ISBN 978-9935-426-19-2)
Almenna bókafélagið gefur út. -
Velstandens kilder:
Um uppsprettu velmegunar Evrópu
: - Paris 1919 :
- Reagan :
- Stalin - Diktaturets anatomi :
-
Penge
Ungverjinn segir frá 70 ára kauphallarreynslu sinni
: -
: Gulag og glemsel
Um sorgleik Rússlands og minnistap vesturlanda - Benjamín H. J. Eiríksson :
- : Opal
- : Blár
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.6.): 31
- Sl. sólarhring: 68
- Sl. viku: 782
- Frá upphafi: 1404547
Annað
- Innlit í dag: 10
- Innlit sl. viku: 497
- Gestir í dag: 8
- IP-tölur í dag: 6
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Júní 2025
- Apríl 2025
- Mars 2025
- Febrúar 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- September 2024
- Júní 2024
- Apríl 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Júlí 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008