Leita í fréttum mbl.is

Hlýnun kommúnismans

Við menn höfum verið að burðast með meira en 250 meiriháttar heimsenda-kenningar síðustu tvö þúsund árin. Síðast var það uppgufað ózon-lag gufuhvolfsins sem átti að hafa steikt okkur út nú þegar. En í dag, tuttugu og fimm árum síðar, eftir að ekkert gerðist, er það græn fátækt, lífsstíls-gaddasvipur, sjálfspyntingar, helst í frosti, og ströng andleg stegla sem á að bjarga heiminum frá þeirri síðustu: hlýnun kommúnismans

Og eftir að Veraldarvefurinn kom, þá er fólk byrjað að halda að heimurinn sé svo lítill, smár og viðkvæmur að ekkert megi útaf bera neins staðar, án þess að veröld þess endi í rauntíma, on-line. Í hvert skipti sem dómsdags-klukka vefsins gellur, þá titrar sá efnaði hluti mannkyns sem náð hefur því sósíal-nirvana fjölbreytnileikna stigi að vera með stálhring í nefi og sjálfspyntingar-implant úr bambuskofa í neðri-vör, og skelfur eins og að við byggjum öll í einum og sama köngulóarvefnum. Hann nötrar, skelfur og fólk fær áfall-x þegar hinn snjalli sími þess gellur. Erum við að farast núna? Núna í beinni? Svo sest það við imbann og lætur 251. kenningalið hins næsta dómsdags mata sig á meiri pyntingum, týndum mörgæsum og skjaldböku sem bættist í hópinn í síðustu viku, án þess að láta nokkurn mann vita af sér

En ef að fólk myndi líta upp úr sínum snjalla síma og horfa til himins, þá myndi það sjá dómsdagsvélina sem öllu stýrir og máli skiptir í lífi þess og dauða: sólina

En þar sem öll DDRÚV og BBCCCP á framfærslu skattgreiðenda eru ekki með hin hálsblásandi blaðursbú sín þar, þ.e. á sólinni, þá veit fólk ekki af þessu og horfir á fréttadalla imbans sökkva heimi þess í beinni, og heldur áfram að skjálfa. Þó ekki allir, en of margir. Nógu margir til að könguló veraldarvefsins hlær, og þið skjálfið. Heilabú fólks er orðið víbrator sem hristir sál þess í sundur. Það er orðið snjallt, en mest hrætt, og vaxandi nýheimskuveldi sem ræktar nýja heimsku, meðal annars á skjálfandi vef sem heitir Wikipedia, sem hristist sundur og saman í takt við alternative facts tölvuvinstrisins

Hlýnun kommúnismans er staðreynd og vá sem mæta þarf af fullri hörku. Að vera grænn í þeim efnum er hættulegt. Annars breytist stiknandi rauður sorphaugur þess síðasta, í græna landfyllingu úr myglu

Fyrri færsla

Heilbrigð skynsemi er oft veik skynsemi


Heilbrigð skynsemi er oft veik skynsemi

Nixon í glímu við gangster-element stjórnmála, svipað og Trump er í dag. Fjölmiðlar þessa mikla lands drógu svo bandarísku þjóðina á tálar í því sem þá var kallað Watergate-hneykslið, og hröktu úr embætti réttkjörinn forseta landsins sem aldrei í sögunni hafði sigrað eins stórt í kosningum, og sem gerði það vegna dugnaðar og hugrekkis. Því hefur þjóðin ekki gleymt. Hún var dregin á tálar og fjölmiðlar landsins sviku hana. Það þurfti því ekki mikið til að bandaríska þjóðin sæi í gegnum svikavef fjölmiðla þegar að síðustu forsetakosningum kom, þar sem Trump var kjörinn þrátt fyrir að vera með næstum allt fjölmiðlahyskið, bankana, Wall Street, tæknirisana, Hollywood, heiðnikirkjuveldi háskólanna, gáfumennin og hugveiturnar á móti sér. Bandaríska þjóðin mundi enn

****

GREININGARDEILDIN OG MORGUNKORNIÐ

Þeir sem halda að íslenska verkalýðshreyfingin sé eitthvað annað en pólitískt undirróðursafl þessi árin, og jafnvel að hluta til gangster-element, hljóta að eiga við veruleg ofheilbrigðisvandamál að stríða í skynsemissálu sinni, eða eru bara fyrsta farrýmisflón á leið í rútugrút nýmarxismans til Venesúela

Þegar þú fékkst vinnu í greiningardeild skynseminnar í Evrópu árið 1900, þá manstu núna að þú sendir út morgunkorn þín undir fyrirsögninni: Sterk, rík, friðsamleg og voldug Evrópa liggur í kortunum, - því það sagði hin "heilbrigða skynsemi" þér. Svona myndi þetta verða um aldur og ævi

Nú jæja. Klukkan er fimm að morgni sumardagsins fyrsta, fjórtán árum síðar (1914), og Evrópa logar stafnanna á milli og er á leið í þvílíka rúst að aldrei hefur annað eins sést

Á hinum sama degi fimm árum síðar (1919), þegar rústin er brunnin til ösku og Evrópa er banvænn öskuhaugur alls, þá sendir þú út nýja greiningu til viðskiptavina þinna og sú heilbrigða bregst fiðlubogalist þinni ekki aftur, sem eitt allsherjar sarg hinnar "heilbrigðu skynsemi", sem reyndar er fársjúk. Yfirskrift þín er því svona: "Þýskaland er búið að vera fyrir fullt og allt og friður sé með yður í hinu nýja samfélagi þjóðanna"

Nú jæja. Þú ert aftur kominn á ritvélina og hamrar þessi hjér hjartaslög skynseminnar, 21 ári síðar (1940): "Þýskaland ræður allri Evrópu og yfirráð þess eru komin til að vera. Þeir sem neita að horfast í augu við þessa staðreynd eru flón"

Nú jæja. Sex árum síðar (1946) ertu enn á ný með nýtt morgunkorn handa viðskiptavinum þínum, og það hljómar svona: "Þýskaland er í rúst og 70 milljón manns eru látnir. Öllum málum Evrópu er frá og með nú stjórnað frá Washington og Moskvu. Ekkert getur haggað því." En svo hrundi auðvitað Moskva 1989 og Þýskaland rann saman á ný 1990

Í dag er því staða mála þessi: Heimsálfan Evrópa, sem hin síðustu 27 ár var með tilkomu ESB 1992 stillt upp eins og Sovétríkin stilltu sér upp með sína stuðpúða í kringum valdamiðjuna í Moskvu, er að leysast upp. Evrópa er að leysast upp. Hún hefur þegar klofnað í tvennt. Algerlega í tvo hluta:

1. Einn hlutinn flygir Bandaríkjunum að máli og sér þau sem verndara sinn

2. Hinn hlutinn fylgir Þýskalandi að málum

Þetta var skorðið út í pappa á öryggismálaráðstefnunni í Munchen um síðustu helgi. Þar kynnti Angela Merkel neyðarlausn Þýskalands, og hún er sú að til að reyna að sporna við því að Þýskaland missi stuðpúða-svæðið sitt (hinn innri markaður) í kringum sig eins og Pútín berst í því að halda stuðpúðasvæði sínu á sporbraut um sig (dæmi Úkraína, Hvítarússland, Georgía, Há-Kákasus og Moldova). Þýskaland Merekls vill því innlima Rússland inn í "evrópska kerfið", sem Þýskaland notar til að halda sér á lífi (sbr: NS2 og því að halda NATO veiku og sjúku sem kjaftaklúbbi ótal nefnda og ókeypis kvöldverða, Pútín í hag)

Hinn hlutinn sem vinnur gegn henni og með Bandaríkjunum, vill hins vegar ekki verða þýsk-rússnesk nýlenda í vösum Berlínar og Moskvu. Bara alls ekki, og síðast þegar slíkt gerðist var til dæmis Pólland þurrkað út. Þetta fatta ostpolitk-kratarnir og Þýskalands-fetistarnir í Sjálfstæðisflokknum ekki enn, enda skildu þeir Kalda stríðið varla heldur. Svo þeir eru bara úti að aka í sinni "heilbrigðu skynsemi" og fóðra djöfulinn með krataþvælu sinn áfram

Til fjandans með íslenska verkalýðshreyfingu sem dulbúinn marxískan stjórnmálaflokk, sé hún það, þó ekki væri nema að hluta til. Til fjandans með þannig hreyfingu, hún á ekki rétt á sér. Vakna þú vesalingaveldi hægrimanna með heilabú kratismans sem implant. Látið höfuð ykkar ekki morgunkornast. Slíkt getur verið banvænt

Þeir sem ætla einu sinni enn að beita heilbrigðri skynsemi við að greina hvernig meginland Evrópu og þar með Evrópusambandið muni þróast á næstu árum, verða fyrir sárum vonbrigðum með greiningar sínar

Stefna Bandaríkjanna gagnvart Evrópu er því einu sinni enn komin á genetískan auto-pilot. Að hindra það að engin ein eining geti ráðið yfir meginlandi Evrópu. Stuðla að því að valdajafnvægi sé engri einni stórri valdaeiningu í hag og að koma í veg fyrir að hún geti myndast. Bonk; Brussel er bambuskofi; Pompeo lenti hér, en ekki þar; og sjálfstæði Grænlands liggur því í loftinu. Línurnar skerpast og skýrast:

Turning and turning in the widening gyre
The falcon cannot hear the falconer;
Things fall apart; the centre cannot hold;
Mere anarchy is loosed upon the world,
The blood-dimmed tide is loosed, and everywhere
The ceremony of innocence is drowned;
The best lack all conviction, while the worst
Are full of passionate intensity.

Fyrri færsla

Hatursiðnaður góða fólksins


Hatursiðnaður góða fólksins

Græna hagkerfið að "arðráns-störfum": Fimm þúsund tonna græna baneitraða batteríið sést ekki á þessari mynd með CAT D11. Vondur kjósandi tók myndina. Sennilega hvítur karlmaður, sem jafnvel á trukkinn sinn sjálfur. Skelfilegt!

****

Heilög krossferð verkalýðshreyfingarinnar er eins og svo margt annað í dag, byggð á hatri. Hluti þess fólks sem búið hefur sér til starfsferil úr hatri sínu á kapítalisma og á þeim sem eiga og þéna meira en það hefur sjálft, lifir hátt núna. Þetta sjáum við ágætlega á hatursiðnaðarhverfum góða fólksins í dag, sem vaxið hafa á svæsinn hátt undanfarin mörg ár. Þar er það einkaframtak hatursins sem á öll einkaleyfin fyrir hatri á öðrum

Allir vita að launafólk hefur aldrei haft það eins gott og í dag. En samt ræðir þetta fólk um verkföll á bestu efnahagslegu dögum íslenska lýðveldisins. Beðið er um harmageddón vinstrisins: fullkomnunina. Afleiðing fullkomnunar er hins vegar ávallt útópíuknúið ekkert. Tómið eitt, því að það sem er nógu gott, er í eðli sínu gott, og getur aldrei orðið fullkomið án þess að allt það góða sé brennt niður, jafnað við jörðu og banvænni útópíunni rúllað út. Ísland þarf ekki að vera fullkomið. Það er nógu gott eins og það er og miklu meira en það. Það sama gildir um Vesturlönd sem þetta sama fólk hatar líka

Að mörgu leyti má segja að vinstrihreyfingin sé almennt orðin að haturshreyfingu. Ár eftir ár finnur vinstrið upp nýjar hatursgreinar til að búa sér til starfsferil úr, með vísan í lögverndaða einkaleyfisstöðu þess sem fórnarlamba-framleiðandi. Sem háskólavottaður framleiðandi endalausra fórnarlambahópa svo það stappar við allsherjar geggjun, þá halda peningarnir áfram að koma rúllandi frá þeim sem fjárveitingavaldið hafa. Það er enginn peningur í því að segjast standa uppréttur og vera í lagi

Græna haturshreyfingin á kapítalismanum er ágætis dæmi um það. Og hún virkar til dæmis þannig að háborgir græningja eru sóðalegustu borgir jarðar -fyrir utan ríki kommúnismans- þar sem allt flýtur í óhreinindum, subbuskap, endurlífguðum sjúkdómum eins og berklum, mænusótt, barnaveiki, rauðum hundum og mislingum. Holdsveiki er á næsta leyti. Sóðaskapur og bakteríuhernaður frá rotnandi matarleyfum og stinknadi æluspýja úr aumingjaafurðum vinstrisins og sprautur dópista liggja í sandkössum barnanna, sem þetta fólk vill helst ekki eiga, vegna haturs á karlmönnum. Þetta eru háborgir græningja um allan heim. Græna fólkið heimtar meiri náttúru í sínu eigin náttúruleysi, en svo bankar gamla harða náttúran upp á í lífi þess sem sjúkdómar, fallandi lífslíkur og græn fátækt. Þeir íslensku bændur sem segjast til dæmis vera græningjar í dag, voru það allt sitt líf í þúsund ár, en bara án þess að vita af því. Þeir vita hvað náttúran er grimm, duttlungafull, hörð og órómantísk í návígi. Eina ástæðan fyrir grænku þeirra í dag er bara gamla vinstrið. Rauða gamla vinstrið. Allt hitt er þvaður plús fjárlög

Þegar þetta vinstralið verður uppiskroppa með til dæmis rasista, því þeir eru varla til nema í höfðum þessa fólks sem hefur einkaleyfi á að hata hvíta karlmenn, þá er fasisma-stimplinum dengt yfir þá sem eiga ekki eignarlóð í hatursiðnaðarhverfum vinstrisins, sem fann sér grænan málstað um leið og sá rauði kláraðist síðast. Konur og karlar úr aumingja-iðnaðarhverfum kvenrembu-femínisma, útvarpa nýjum og nýjum viðfangsefnum til að hata, úr hatursuppfinninga-deildum háskólanna, þar sem það hefur búið sér til starfsgreinar byggðar á hatri

Það ömurlega við þann stóra hóp fólks sem hefur atvinnu af því að hata aðra og hefur byggt upp heilan starfsferil sem byggir á hatri, er það, að um leið og hann verður uppiskroppa með fórnarlömb til að hata, að þá finnur hann bara upp nýjar hatursgreinar: þær síðustu eru ófædd börn í móðurkviði, metoo-stappan, sem er eins og nýnasistahreyfing góða fólksins, og svo er það Donald Trump, eftir að næstum ómögulegt var að hata Davíð Oddsson meira. Menn sem geta eitthvað skulu hataðir í hel. Þannig er þetta orðið. En það fólk sem heldur þessu liði upp með landsframleiðslu í hörðum krónum, er hins vegar byrjað að verða reitt. Ekki reitt á eyðieggjandi hátt, heldur reitt í kjörklefanum, því að um sómakært fólk er að ræða. Það sættir sig ekki lengur við að þeir sem geta eitthvað séu hataðir í hel. Það kýs jarðýtur sem brotna ekki í spón við hvaða fyrirstöðu sem er

Framhald: Victor Davis Hanson bóndi og sagnfræðingur kann betur að koma orðum að þessu en ég í grein sinni: The Strange Paradoxes of Our Age

Fyrri færsla

Aldrei aftur!


Aldrei aftur!

Lenín í gömlu Sovétríkjunum

FJÉLAGAR, TAKIÐ EFTIR!

Það er hægt að laga þetta allt saman (launamálin) með því að taka upp rúblu. Og svo með því að launþegar séu á að minnsta kosti jafn háum launum og verkalýðsforystan hefur sjálf. Allir fá þá vinnu við verkalýðshreyfinguna, því það er þar sem hin raunverulegu verðmæti og samkeppnishæfni þeirra verða til.

Þá stöðvast loksins allar þessar utanlandsferðir og hlýnun jarðar hættir, eins og kom fram í frumukassa DDRÚV. Konur fá þá aftur forræði yfir líkama sínum og geta ekki lengur gert það með hverjum sem er hvenær sem er, án afleiðinga, og Þjóðviljinn byrjar að koma út aftur

Hvaðan peningarnir eiga að koma skiptir ekki máli, því þá höfum við rúblur. Og svo verða fyrirtækin fljótlega komin í vinnu hjá launþegum. Þau vinna þá við að borga þeim laun og við höldum launum fyrirtækjanna niðri svo þau geti aldrei aftur tekið upp á því að borga ein hæstu laun í heiminum. Aldrei aftur!

Svo þegar búið er að jafna laun bankastjóra, helst við jörðu, þá má enginn nokkru sinni komast að því að heimilin eru stærsti lánveitandinn í hagkerfinu. Þeir sem taka sig af fé heimilanna verða skilyrðislaust að vera... tja.. það er víst óþarfi að segja nákvæmlega frá því hér.. jáh, svipað og þær réttdræpu afætur sem vinna hjá lífeyrissjóðum landsins sem eru í eigu heimilanna og sem ávaxtað hafa fé almennings svo hrikalega hátt að heimilin eiga alla landsframleiðsluna 1,7 sinnum, og heimilin "eiga því bókstaflega allt" í landinu.. nei bíddu.. bíddu hægur.. þetta átti ekki að vera svona.. nei það getur varla verið.. andartak.. andartak..

..HLÉ VEGNA BILANA

FJÉLAGAR! EN HVERNIG VIRKAR LÁGLAUNASTEFNA?

Dæmi: Þýska Hartz-láglaunastefnan í Þýskalandi virkaði svo vel að sá sparnaður sem gat orðið til í þýska hagkerfinu, varð allur til hjá útflutningsfyrirtækjum landsins. Og þegar sparnaður verður til hjá fyrirtækjum, en ekki heimilum, þá heitir hann hagnaður

Hlutur Þjóðverja í neyslu landsframleiðslunnar, sem fyrirtækin framleiða, varð svo lítill að flytja þarf helming landsframleiðslunnar út

Við þetta hvarf einnig útlánamarkaðurinn fyrir þá peninga sem þýskum fyrirtækjum gæddist vegna láglaunastefnunnar. Þýsk heimili gátu ekki tekið við sparnaði (hagnaði) fyrirtækjanna í formi útlána í gegnum bankakerfið, til neyslu. Og ekki nóg með það, þýsk heimili hættu að vera lánshæf, vegna lágra launa

Þessu fé sem þannig hafði verið "rænt" frá þýskum heimilum (með blessun verkalýðshreyfinga esb-sossa) með því að gera hlutdeild þeirra í neyslu landsframleiðslunnar svona lítinn og þannig koma í veg fyrir að hagnaður gæti orðið til hjá heimilunum, já honum var svo skipað út og þrýstidælt inn á evrulöndin í suðri, undir útlánastöðlum sem bannaðir vori heima í Þýskalandi

Í suðri voru raunstýrivextir evrunnar neikvæðir og þýsku fé dælt þar inn á nafnvöxtum sem þau gátu ekki fengið heima í Þýskalandi. En vextirnir voru samt falskir og staðbundið-neikvæðir og útlánin brunnu niður. Þeir hefðu átt að vera hærri og þar með hindrað suðræn heimili í að brenna hagkerfi sín niður og þar með komið í veg fyrir svona ósvinnu. En þar sem ECB-seðlabanki evru er miðaður við þarfir Þýskalands aðeins, þá voru vextir hans í suðri ásamt þýska þrælaríkinu í norðri, eldsspýtan sem kveikti í evrusvæðinu. Þetta er sennilega eitt stærsta útflæði á illa fengnu fé undir beltisstað í sögu mannkyns. Í sumum löndum Suður-Evrópu nam þýska innflæðið 30 prósentum af landsframleiðslu

Þannig var því sem með réttu átti að vera sparnaður í eigu þýskra heimila, dælt inn á evrulöndin í suðri svo að þau hefðu fé til að kaupa útflutninginn af þýskum fyrirtækjum, sem gengu fyrir þrælum á lágum launum í norðri

Og þegar að evrulöndin í suðri sprungu vegna þessara undirboða alls í þýskt stjórnuðu ESB og svo vegna fjármálakreppunnar sem Þýskaland átti stóran þátt í að skapa, þá var það ákveðið í hallarsölum ESB, sem eru í vösum Þýskalands, að það væru löndin í suðri sem myndu verða gerð upp, í stað þess að láta þýsku bankana, sem lánuðu peningana út, rúlla. Það kom bara diktat um það frá Berlín og París

Messustjórinn yfir þessu öllu voru tveir kanslarar Þýskalans úr sömu stór-samsteypunni, Schröder og Merkel, sem er eilífðar samsæri þýska elíta gegn þjóðinni, sem á ekkert, en er hlýðnir þrælar

Og þar sem löndin í suðri eru í föstu og handjárnuðu gengisfyrirkomulagi við Þýskaland með evru, þá voru þau varnarlaus með öllu. Það eina sem land eins og Þýskaland skilur er fyrirvaralaus gengisfelling beint í andlit þess

Fyrri fræsla

Kjarabarátta breytist í kommabaráttu?


Kjarabarátta breytist í kommabaráttu?

Verkalýðshreyfing í leit að málstað

****

Það er hér með staðfest að verkalýðshreyfingin er ekki í kjarabaráttu. Hún er í pólitískri krossferð sem gengur út á að ná sér niðri á þeim sem þurfa lítið sem ekkert á henni að halda, þ.e. þeim sem grenja ekki. Og þar sem langsamlega stærsti hluti launafólks á Íslandi býr við ein bestu kjör í heimi, þá er spilið búið fyrir verkalýðshreyfinguna sem verkalýðshreyfingu. Hún er því orðin svipað pólitískt viðrini og ESB-kratar eru orðnir alls staðar í Evrópu; sem krakkeleruð Corbyn-stytta og sótsvartur talsmaður alræðis burtfloginna öreiga. Rústa þarf öllu til að skapa henni nýjan grundvöll. Það er það sem stefna verkalýðshreyfingarinnar án verkalýðs er í dag. Þetta er hún. Hún er ein eftir í lýðnum. Þess vegna sjáum við helstu lýðskrumara landsins koma grátandi út af fundum, fyrst að HICP-vísitölu- og lífeyrissjóðabullið brást. Eiginlega er hreyfingunni vorkunn, yfir því að vera orðin svona mikill einstæðingur og pólitískt viðrini

Fyrri færsla

"Banda­rísk ríki í mál við Trump" er varla fréttnæmt


mbl.is Viðbrögð verkalýðsfélaganna koma á óvart
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Banda­rísk ríki í mál við Trump" er varla fréttnæmt

The Corbyn crack-up - The Spectator

Mynd: "The Corbyn crack-up". Spectator 16. febrúar. Verkamannaflokkur að leysast upp vegna kommúnisma-skríls. Kakkalakka-hreyfing komma á Vesturlöndum skreið upp á borðið við síðustu skjálfta. Nú hefur hún borað vinstrið út og allt er að molna. Svo detta þeir niður aftur, og bíða næstu skjálfta. Þá skríða þeir upp á ný og bora

****

BANDARÍKI NORÐUR-AMERÍKU

Auðvitað er höfðað mál. Auðvitað er reynt að hafa hátt. Og auðvitað er þetta ekki nein sérstök frétt. Það er aldrei frétt að til dæmis dómari á Hawaiieyjum eða í Seattle þykist geta stjórnað öllum inn- og útgönguleiðum Bandaríkjanna, frá einni samfóholu í sinni borg. Engum nema fréttamanni dettur slíkt í hug. Slíkt er ekki frétt, heldur fésbókfærsla

Slíkt væri jafn fáránlegt og að valda- og fégráðug verkalýðshreyfing myndi stjórna heilu landi, eða að hundaeigandi sem kann ekki að ala upp hund, láti hundinn fara með sig hvert sem er og verði þannig eigandi í bandi hunds. Ekkert slíkt stendur í neinum handbókum fyrir eigendur. Hvergi, og heldur ekki í neinum samningi um EES, sem er að verða örorkupakki-3 fyrir aumingja og embættismenn

Og hvorki samfógöngubraut í New York né hjólastígur í Kaliforníu, sem þiggur þriðjung allra félagsmálaútgjalda Bandaríkjanna -vegna einmitt ólöglegra innflytjenda á vegum sossa- munu ráða því hvað Bandaríkin sem ein ósundrandi heild gera. Það er vitað og er ekki frétt

Það er hins vegar frétt að Trump mun byggja múr sem ver öll Bandaríkin gegn því að verða eitt fylki bagga. Og það verður sannarlega frétt hvernig hann mun gera það. Því allt sem hann segist ætla að gera, gerir hann, með rettidig omhu. Þetta verður skemmtilegt, mjög. Sossaveiturnar munu ýlfra og gagga, en svo þagna með öllu um það mál og missa atkvæði kjósenda. Í bunkum

Sprett úr spori: Jón Leifs gengur í Sjálfstæðisflokkinn

Fyrri færsla

Viðskiptaráðuneyti Bandaríkjanna hefur sent bíla-skýrslu til Trumps


mbl.is Bandarísk ríki í mál við Trump
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Viðskiptaráðuneyti Bandaríkjanna hefur sent bíla-skýrslu til Trumps

Angela Merkel sagði á öryggisráðstefnunni í München að henni fyndist að NATO ætti ekki bara að vera hernaðarbandalag, heldur ætti það að vera "samfélag" --ha ha ha og hristist-- um "sameiginleg gildi" --sem hún er ekki tilbúin að verja, heldur bara neyta-- ha ha ha og hrekk af stólnum

Viðhorf hennar til viðskiptajöfnuður Þýskalands við umheiminn, sérstaklega Bandaríkjanna, innihalda engar slíkar óskir um að deila með Bandaríkjunum viðskiptahagnaði þeim sem hún hefur komist yfir með því að aðrir sitji uppi með viðskiptahalla. Þar gilda allt önnur viðhorf. Viðskiptahagnaður Þýskalands er á stærsti í heiminum og hann er illa til kominn

Það var aldrei meiningin með endurreisn Bandaríkjanna á Þýskalandi, að það land þyrftu Bandaríkin að fóðra á eftirspurn um aldur og ævi. Og sérstaklega ekki þar sem Þýskaland felur sig með reglugerða-síkisfljóti ESB umhverfis sig og þykist ekki geta gert neina samninga við neinn, en er svo sá aðili sem er sjálfur kastalinn sem síkinu er ætlað að verja. Trump hefur séð í gegnum trix Þjóðverja, gengisfölsun þess með evru, og kúgun þeirra á þeim löndum sem eru handjárnuð við það með föstu gengisfyrirkomulagi evru. Eftirspurn er verðmætasti hlutur jarðar í dag og í þeim efnum er Þýskaland svarthol. Það sogar til sín eftirspurn annarra landa, en skapar sjálft enga

Og þar sem það er ekki hægt að ná til Þýskalands, hvorki í gegnum ESB né WTO, þá er það nú þannig að fjölþjóðaisminn sem sprengdi heiminn í loft upp anno 2008, er að deyja. Í stað hans er komin gagnkvæmnisstefna í viðskiptum og pólitískri samvinnu og líka á sviði öryggismála. Ef þú hótar mér þá hóta ég þér, og mitt prik er stærra en þitt og það virkar. Það er ekki eins og að þú og þitt loftprik virki til neins í samvinnu með neinum, Angela, og sem þú áttir fyrir langa lögnu að hafa gert að fullgildu priki meðal þjóðanna, í stað þess að níðast á þeim eins og krónískur betlari

Frumforsenda fjölþjóðaismans var að viðskiptajöfnuður á milli landanna væri í jafnvægi. Þetta er reyndar sjálf frumforsenda alþjóðlegra viðskipta. Þessu nauðgaði Þýskaland í spað, og sérstaklega eftir að það fékk evruna sem dulbúning. Landið hefur tröllriðið alþjóðlegum viðskiptum. Það hefur Kína líka gert, ásamt Asíulöndum, en Þýskaland er verst í þessum efnum

Viðskiptaráðuneyti Bandaríkjanna hefur nú lokið við skýrslu um bílaútflutning Evrópusambandslanda til Bandaríkjanna. Hún segir í niðurstöðum að hann sé ógn við öryggi Bandaríkjanna. Donald Trump hefur nú 90 daga til að melta skýrsluna og gera eitthvað í málinu. Þetta er pólitísk aðgerð, því það er hvorki hægt að ná til Þýskaland í gegnum viðskiptasamninga við ESB né með því að nota regluverk Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar WTO. Þýskaland hefur vísvitandi gert sig að torgreinanlegum Stealth-gengisfalsara og það uppfyllir öll þau fjögur skilyrði sem liggja að baki skilgreiningu Baracks Obama á gengisfalsara, og sem bandaríska þingið er með á tandurhreinu

Nú fer Trump í tankeboks með skýrsluna, hlæjandi að kaldastríðsrústum öryggisráðstefnunnar í Munchen, þar sem hárkollusafni Merkels var stillt fram á kústsköftum þýska hersins, sem er ekki til, og öðrum ESB-löndum boðið að máta þær á niðurbrenndan skalla sinn í evrum. Rettidig omhu er mottó Trumps. Þar er allt byggt og afhent á réttum tíma, betra en var lofað, og á betri kjörum en var samið um. Þetta verður spennandi

Þýskir eru hættir að vera leiðir yfir því sem þeir gerðu saman með Hitler. Sá leiði hefur nú breyst í leiða yfir því að hafa tapað stríðinu. Ísrael er jafnvel komið sem endurprentað skrímsli á gömul sossa-plaköt og hvergi mælist andúð á Bandaríkjunum meiri í Evrópu en í Þýskalandi. Þannig virkar Þýskaland. Það er frekar misheppnað ríki að stjórnarfarslegu leyti. Næsta syrpa Evrópu er því í smíðum sökum þess að stærsta og öflugasta ríki álfunnar afneitaði veruleikanum. Það hefur bara tvo takka; mikilmennskubrjálæði eða sjálfsmorð, on eða off

Það er bara ein leið út; og hún er sú að flytja verksmiðjurnar fyrir bílana sem Bandaríkjamenn eiga að kaupa af þýskum, til Bandaríkjanna, lækka verðið, og auka framleiðnina, því annars étur GM hinn þýska verndaða bílaiðnað lifandi með sína 44 bíla á ári á hvern starfsmann, á meðan þýskir geta aðeins framleitt 20

Fyrri færsla

Heimsókn Pompeo: Íslandi sett nýtt hlutverk og mikilvægi


Heimsókn Pompeo: Íslandi sett nýtt hlutverk og mikilvægi

Er virkilega enginn nema ég sem kem auga á hvaða grundvallarbreyting er að verða á mikilvægi Íslands í gagnkvæmu bandalagi okkar og Bandaríkjanna. Af hverju kom utanríkisráðherra Bandaríkjanna til Íslands?

Jú staðan er þannig að mörg rauð ljós vegna Norður-Atlantshafs og Íshafsins hafa í nokkur ár blikkað í mælaborði Hvíta hússins. Trump forseti sópaði gáfumannaskýrslunum ofan af þeim þegar hann kom inn, og hófst handa. Rauð ljós eru rauð ljós og þau á að taka alvarlega

Þau eru, ásamt öðrum, þessi: Grænland er á höndum ríkis sem ræður ekki við það sem geópólitíska einingu í veraldarhafinu. Það er á höndum Danmerkur, og Danmörk er í ESB og ræður ekki miklu um sín mál. Grænland er einnig á höndum Danmerkur sem verandi barn þess. Þessu barni getur Danmörk ekki sinnt því hún hefur hvorki pólitískan vilja til þess, né þau auðæfi sem þarf til að vernda það gegn slæmum ölfum í heiminum, né að skaffa því örugga og farsæla framtíð. Það geta einungis Grænlendingar gert sjálfir. En til þess þurfa mikilvægar breytingar að eiga sér stað fyrst:

Mike Pompeo kom til Íslands til að hefja það verk í samvinnu með Íslandi að leiða Grænland til sjálfstæðis sem fullvalda ríki. Við eigum að taka á okkur aðstoðarhlutverk í svipuðu ferli og við sjálf fórum í þegar að Bandaríkin studdu okkur til þess að verða sjálfstætt ríki

Bandaríkin eru byggð á Biblíunni og hún segir að enginn megi vera konungur/forseti yfir öðrum þjóðum. Bara sinni eigin þjóð. Þetta er frumregla sem enginn ætti að hunsa að ástæðulausu. Á því græddum við 1944. Og nú er það hlutverk Íslands að endurgjalda Bandaríkjunum þann greiða, með því að aðstoða þau við að frelsa Grænland úr festum við danska konungsríkið, svo að Bandaríkin geti í samvinnu með Íslendingum veitt Grænlandi sömu aðstoð og þau veittu okkur á leið okkar til sjálfstæðis og á fyrstu áratugum þess þar á eftir

Þess vegna sendi Donald Trump sinn æðsta diplómat til Íslands til að hefja þetta ferli

Við getum ekki sagt nei og við ættum ekki að segja nei. Við getum þetta og við erum siðferðilega skyldug til að segja já. Erum við klár? Já, saman með dýpsta bandamanni okkar: Bandaríkjum Norður-Ameríku

Bandaríkin þola ekki lengur kæruleysislegan umgang Danmerkur með Grænland. Lönd á ekki að láta reka ábyrgðarlaust um veraldarhafið. Þrír flugvellir sem næstum því komust á kínverskar hendur í Grænlandi var mjög svo ergilegt símtal sem varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, vegna kæruleysis danskra stjórnvalda, var þvingaður til að hringja (Sjá grein WSJ 10. febrúar 2019). Of seint er að koma kínversku málmasamsteypunni Shenghe Resources Holding út úr Grænlandi, en margt annað er sennilega hægt að stöðva

Og þar sem til dæmis fyrrverandi Frankfurt-Hahn herflugvöllur Bandaríkjanna í Þýskalandi er með samþykki þýskra stjórnvalda kominn í 82,5 prósent eigu hins kínverska HNA Airport Group, þá er vel vitað hversu hörmulega ábyrgðarlaus yfirvöld landa Evrópusambandsins eru þegar að þjóðaröryggi kemur, þar sem Þýskaland ríður ávallt á vaðið sem kærulaus leiðtogi útópíu á framfærslu Bandaríkjanna í öryggismálum, sem það misnotar á hinn grófasta hátt. Og löndin sem eru á ESB-sporbraut umhverfis Þýskaland, fylgja sjálfkrafa slæmri fyrirmynd þess

Grænland er í túnfæti Bandaríkjanna og Kanada. Það verður tekið á málunum. Innganginum inn í Norður-Ameríku verður lokað, hvað sem það kostar og hvernig sem hann hugsanlega gæti orðið. Þjóðaröryggisstefna byggir alltaf á því versta sem getur gerst. Annars væri hún þjóðaróöryggisefna

Kannski sástu þetta fyrst hér

Fyrri færsla

Nei. Við ætlum okkur ekki að brenna inni í ESB og EES


Nei. Við ætlum okkur ekki að brenna inni í ESB og EES

Þú ert að yfirgefa bandaríska aflið - þróun iðnaðarfamleiðslu á evrusvæðinu

Mynd: Síðustu 12 mánaða þróun iðnaðarframleiðslu helstu iðnaðarlanda á evrusvæði Evrópusambandsins, sem nú hefur náð föstum viðskilnaðarhraða við bæði borgarana í löndum þess og Bandaríki Norður-Ameríku

****

Stofnun Evrópusambandsins gekk að miklu leyti út á að ná sér niðri á Bandaríkjunum og engilsaxneskri stjórnarskrárbundinni ríkisstjórnun með lýðræði og réttindum fyrir borgarana. ESB-öflunum þótti skandall að Bandaríkjunum í vestri hefði tekist að verða það ríki frjálsra manna, sem lifað hefur lengst í allri sögu mannkyns sem frjálst land, frjálsra manna, sem stjórna sér sjálfir án kónga, keisara og einræðisherra. Bandaríkin eru eina landið í mannkynssögunni sem bæði er frjálst og öruggt samtímis. Þau eru eina ríkið í mannkynssögunni sem státað getur af slíkum árangri

Svona skuggalegum og subbulegum árangri í þágu fólksins (horrör aðalsins), hefur Evrópusambandinu að miklu leyti tekist að berja niður í fæðingu í Evrópu, með því að Evrópusambandið hefur þjóðnýtt sjálf stjórnmálin í öllum löndum sambandsins. Þau mega ekki snúast um annað en samruna. Sjálfstæðið er þegar horfið og fullveldið er komið í tætarana í Brussel

Ísland verður skilyrðislaust að höggva á EES-togvírana niður til Evrópu, ef við eigum ekki að sökkva með henni. Þessi heimsálfa er orðinn geldur steinn til eilífðar. Hún er að verða lífshættulega steindauð blindgata fyrir Ísland. Við verðum að horfa í vestur og taka okkar á eins og Guðlaugur Þór

Samanlagt hagkerfi evrusvæðisins árið 2017, var ennþá minna en það var árið 2009, segir í grein Walter Russell Mead á WSJ. Hugsið ykkur pyntingarnar á fólkinu sem býr þarna og hversu bágborinn neytendamarkaður svæðisins er. Á sama tíma óx bandaríska hagkerfið um 34 prósent. Það þarf ekki að leggja menn í lömunarstóla EES-samningsins til að skilja svona tölur. Þetta er versta efnahagssvæði heimsins. Hvorki meira né minna

Ekki aðeins hefur íslenska verkalýðhreyfingin reynt að troða Íslandi inn í hið brennandi hús Evrópusambandsins, og þess vegna samþykkt rústun á íslenskum vinnumarkaði með innfluttum þrælum, heldur heimtar hún nú að brennandi hús Evrópusambandsins séu með ESB- og EES rétttrúnaði flutt inn til Íslands til að brenna landið okkar niður innanfrá

Þetta verkalýðshreyfinga-lið, sem allt of lengi hefur fyrst og fremst verið lítt dulbúin pólitískt vinstrihreyfing, leitaði sér alltaf andlegs og pólitísks fóðurs í Sovétríkjum. En hún en snéri sér svo til Evrópusambandsins, eftir að hennar líkar höfðu brennt Rússland niður til grunna, og borgara þess með. Það er kominn tími til að þessi hreyfing sé handtekin til ríkisendurskoðunar. Ég kaus þetta lið ekki. Og það gerði heldur enginn annar

Fyrri færsla

Innflutt verkalýðsforysta betri kostur [u]


Innflutt verkalýðsforysta betri kostur [u]

Já, sammála Drífu ASÍ með sín ofurlaun á mánuði. Það þarf að ná verðinu á verkalýðshreyfingunni niður, ég er sammála því. Ég legg því til að hún verði flutt inn, helst frá láglaunalöndum, eða allra helst send inn í tölvupósti, eða Xeroxuð inn, því þá sleppum við við að þurfa að láta hana fara í tollafgreiðslu, og pappírsvinnan sparast. Og þá þarf heldur ekki að byggja undir hana né þrífa undan henni. Mér finnst að fólk eigi að fá að greiða atkvæði um það

En reyndar hefur fólk þegar greitt atkvæði um það erlendis því sósíaldemókratar sem hreyfing (alias ASÍ) er að verða útdauð, nánast alls staðar. Og það er þessari hreyfingu að kenna að sósíal-dumping* er að sprengja Evrópu í loft upp, því það var hún sem stóð fyrir hórfrelsinu fjórfrelsinu

Uppfært: Þetta svo kallaða fjórfrelsi er vernduð útópía embættismannastéttanna í ESB, því annars værum við með ódýrari erlendar verkalýðshreyfingar frá til dæmis Rúmeníu eða Kína, skatta- og lögfræðiþjónustu, vöruflutninga og fleiri þjónustugreinar, sem samtals eru um 70 prósent af hagkerfum landanna, en eru hins vegar einungis 22 prósent af viðskiptum á milli ESB-landa

Þannig að stærsti hluti hinna betri stétta í ESB hafa verndað sig, en látið alla þá sem beita þurfa vöðvaafli við vinnu sína, um að standa eina og berskjaldaða gegn undirboðum frá svæsnum láglaunalöndum á leið í ESB-þrot. Allt sem hefur með líkamlega vinnu að gera er sent úr landi eða þrælar fluttir inn til að grafa undan til dæmis byggingabransanum hér heima og þeim sem þar unnu á góðum launum

Árangurinn er svo sá að þeir sem annars hefðu farið í iðnnám neyðast til að leggjast upp á háskólakerfið, sem að of miklum hluta til er að þrotum-komið kommabæli sem karlmenn hafa almennt ekki áhuga á og með afar svartar framtíðarhorfur. Eða þá að flytja sig yfir í þær greinar sem eru ekki í hinum tradable-geira, sem ESB-veldið ákvað að mætti fórna

Þetta hefur einnig þýtt það að frjósemishlutfall Íslendinga hefur fallið, því að launapressan niðurá við í mikilvægum grunnhluta hagkerfisins hefur dregið úr trú fólks á framtíðina. Íslenski draumurinn dofnar

Svona meðferð á því sem tók svo langan tíma að byggja upp, hefur ávallt þær afleiðingar að "natal-energy" eða hið þjóðbernska afl þjóðarinnar minnkar. Og hér er íslenska verkalýðshreyfingin algerlega gjaldþrota. Hún brást

Frá og með fullveldi hugsaði Íslendingur sig aldrei um þegar að barnseignum kom. Hann henti sér út í þær því hann vissi að allt yrði í lagi. Hann stólaði á Ísland, og það með réttu

EES-samningurinn hefur hins vegar gelt landið að óþörfu og grafið undan trú Íslendinga á framtíðina. Hann er tortímingarafl og verkalýðshreyfingin er hér stórkostlega samsek. Hún er fíllinn í stofunni, enda af sósíaldemókrataætt, og ESB er ættaróðal hennar

Þið eruð gjaldþrota-hreyfingin núna. Það eru ekki bankarnir

* félagsleg undirboð

Fyrri færsla

Kommagengið gjörir kunnugt


mbl.is Erlendu húsin betri kostur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband