Leita í fréttum mbl.is

Kommagengið gjörir kunnugt

TAKIÐ EFTIR

Ég vinn fyrir fólkið 450

Sovésk mynd: "Ég vinn fyrir fólkið"

****

Kommaliðið Ung vinstri græn (kommar), Ungir jafnaðarmenn (kommar), Ungir Píratar (kommar), ungir meðlimir Sósíaslistaflokksins (kommar) og Uppreisn (kommar), ungliðahreyfing Viðreisnar (sófakommar), skrifa undir sameiginlegt hugmyndafræðilegt gjaldþrot, og gjöra kunnugt það sem allir vissu, að þau eru veruleikafirrtir kommar frá Vene Sú, því Che er dauður og þau kunna ekki að synda til Kúbu

Af hverju mótmælir þetta lið ekki íslenskri Barnaverndarnefnd, sem fjarlægir börn frá foreldrum sínum. Af hverju stendur það ekki fyrir utan Stjórnarráð Katrínar-grænu-fátæktar og mótmælir henni þar, og svo líka fyrir utan norska sendiráðið, en Norðmenn þurfa nú að leita hælis í öðrum löndum vegna sósíalisma norsku ríkisstjórnarinnar gagnvart börnum og foreldrum. Svo gæti þetta kommalið mótmælt því að börn þurfi að alast upp á heimilum komma, því danskir sálfræðingar segja að erfiðustu tilfellin sem þeir fá, séu börn virkra alkóhólista og kommúnista. Þið hlustið náttúrlega á sérfræðingana úr Heiðnikirkjuveldi háskóla ykkar, ekki satt

Fólk sem kemur til annars lands í leit að nýju lífi, byrjar auðvitað ekki nýtt líf á því að fremja lögbrot, því það er þá bara gamla lífið sem það lifði, en ekki nýtt líf. Þannig fólki á að henda umsvifalaust út, eftir að gengið er úr skugga um að þau börn sem þetta fólk tekur meðferðis, oft sem gísla, séu ekki börn annarra manna og á leið í mannsölu og vændi þess ömurlega liðs sem kemur yfir suðurlandamæri Bandaríkjanna sem lögbrjótar

Hvað með að mótmæla ríkisstjórn Mexíkó, fyrir að reka landið eins og útskipunarmiðstöð vandamála og glæpa til Bandaríkjanna? Og hvað mega þeir í öðrum löndum veraldar segja sem vilja flytja til Bandaríkjanna líka? Hafa Mexíkanar einkarétt á að búa í Bandaríkjunum? Ég spyr, því Bandaríkin geta ekki tekið á móti öllum, sérstaklega ekki lögbrjótum allra landa, án þess að breytast í Bandalausuríki hverra sem er, þar sem enginn myndi vilja búa. Stutt er síðan að Gallup sagði að 72 prósent af mannkyninu vildi helst búa í Bandaríkjunum. Hvað með smá heilavirkni? Nóg kostar skólagangan ykkar okkur íslenska skattgreiðendur. Er þessi yfirlýsing ykkar kannski það eina sem kemur út úr henni? Skýjastjórnmál af innri vef billjónamæringa! Þvílíkir kjánar. Það mætti halda að þið séuð græn

Hvar voruð þið og útgöngulið kommahreyfingar Samfylkingar (sem kallar sig jafnaðarmenn þegar það skammast sín yfir sósíalismanafni flokksins) þegar að síðasti kínverski komminn kom hingað á vegum Kínverska kommúnistaflokksins? Af hverju gekk komma-Vala-komm, hífarinn á bjórkrananum, ekki út þá?

Hvílíkt samansafn af útópískum flokksbrota-nöfnum komma og sófakomma sem standa að þessari yfirlýsingu, sem aldrei hafa gert annað fyrir manninn en að kúga hann, svelta hann og bjóða fram lausnir sem alltaf eru verri en lýðræðisríki Íhaldsstefnunnar á borð við Ísraelsríki hið forna, England og nú síðast Bandaríkin sem voru fyrst til að skaffa heiminum "the last best hope of earth" eins og Lincoln orðaði það. Ykkar valkostur endar hins vegar alltaf sem versti staður jarðar á borð við Sovétríki, Þriðja ríki, Kína, Kúba, Venesúela og útópískt Evrópusamband. Þið eruð alltaf hinn hættulegi valkostur kjósenda allra landa, sem býður upp á Guðlausar útópíur aðeins, sem þýðir það að fólkið er kúgað, sveltur og deyr í fátækt. En það er það sem útópíur þýða, þær grænu líka. Það eina sem þið þurfið að gera áður en þið eldist, er að bjóða heiminum upp á betri valkost en þið eruð núna - og að lesa Biblíuna, því á henni eru Vesturlönd, besti staður jaðar, byggð, og sem skaffaði mannkyninu þjóðfrelsið. Að þið kommar í brotabrotum kommajöfnunnar skulið vera að segja Bandaríkjunum fyrir verkum í svona máli, er lýsandi fyrir úníversal glóbalisma vinstrimennskunnar, þar sem exporterað skal kommaforheimsku ykkar yfir öll ríki jarðar á útópískum verkjalyfjum Upplýsingarinnar, sem er stofnfaðir Heiðnikirkjuveldis háskólanna. Hún gat aldrei endað öðruvísi en sem Guðlaust kommabæli hins úníversal Napóleonska Hillary kjaftæðis, og þar sem enn er barist á götum og strætum, rúmlega tvö hundruð árum síðar. Já barist í hinum króníska ófriði regluverks úníversal útópíu, sem ól af sér allsherjar skrímslið ESB, þar sem bardagarnir eru nú þegar hafnir á Torgi hins eilífa ófriðar kommajöfnunnar, og breiðast út

Tianasquare

Mynd: Frá Torgi hins eilífa ófriðar kommajöfnunnar

****

Mikið er nú gott að við í Sjálfstæðisflokknum erum laus við evru-stálfátæktar-kommalið Viðreisnar úr flokknum. Það er þó lukka sem hægt er að gleðjast óendanlega yfir alla daga ársins, ásamt því að margt gott hefur gerst síðan að Trump var kjörinn - og frá því að Bretar gengust í það að endurheimta þjóðfrelsi sitt. Næstu mörg árin stendur slagurinn um að verja Vesturlönd falli og að endurheimta þau úr klóm úníversalisma kommajöfnunnar, því þau eru einstök. Algerlega einstök! Hornsteinn þeirra var lagður með útgöngunni af glóbalisma þrælaríkis Egyptalands, þar sem Flokkurinn hafði sett sjálfan sig í stað Guðs, sem sá hinn sami úníversalismi Rómarríkis, Sovétríkjanna og Kína gerði líka - og næst er það ESB. Við Íhaldsmenn tökum það vonandi í nefið eins og við gerðum við Sovétríki kommajöfnunnar, með því að verða aftur skínandi borg á hæð, og þar með hið eftirsóknarverða fordæmi

Fyrri færsla

Myndi kínverska hagstofan þora ?


mbl.is Vilja að þrýst verði á Pompeo
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Þórhallsson

Sæll Gnnnar gerir þú engan greinarmun á

 yfirveguðum JAFNAÐARMANNA-FLOKKUM Á NORÐURLÖNDUNUM

og svo á ógnarstjórnum gamalla kommonistaflokka

eins og í rússlandi og kína?

Er ekki þarna ólíku saman að jafna?

Jón Þórhallsson, 13.2.2019 kl. 09:42

2 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Sæll Jón.

Þú hefur ekki séð danska sósíaldemókrata í ham kommúnismans, bæði í ríkisstjórn og í stjórnarandstöðu. Það hef ég. Þú hefur ekki séð sænska sósíaldemókrata dýrkandi þjóðarsósíalisma Hitlers og imperíalisma Sovéts í ham. Það hef ég. Þú hefur ekki séð franska kommúnista í Mitterandgervi kommúnismans. Það hef ég.

En þú hefur séð skrílinn sem kallar sig Samfylkinguna í dag. Það hefur þú. Sýnist þér sú hrúga "yfirveguð"? Hún er það að minnsta kosti ekki á uppbyggjandi hátt, því hún er tortímingarafl þjóðfrelsis Íslendinga. Hvorki meira né minna! 

Ég þekki bara til eins heiðarlegs sósíaldemókrata á Íslandi. Það er Jón nokkur Baldvin Hannibalsson sem viðurkennt hefur, skrifar og segir að Evrópusambandið sé brennandi hús í björtu báli. Þess vegna trúir DDRÚV í Austur-Berlín Reykjavíkurborgar ekki á Jón lengur. Hann sveik DDRÚVið. Kommavarp vinstrimanna.

Líberalismi leiðir nær alltaf menn í áttina að alræði. Það gerir hann. Til að einfalda þér lífið Jón þá er nytsamlegt að einfala flækjur þess sem mest, áður en til útlána (kredit) byggðum á trausti kemur. Kredit vinstrimanna á Norðurlöndum er uppurin. Þeir fá ekki fleiri lán. 

Hér er hin einföldun kommajöfnunnar:

Íhaldsstefna = frelsi (USA)

Líberalismi = jöfnuður (USSR)

Kveðja

Gunnar Rögnvaldsson, 13.2.2019 kl. 10:06

3 Smámynd: Jón Þórhallsson

Þaannig að þú myndir sætta þig við  JAFNAÐAR-MANNINN

Jón Baldvin á Bessastaði ef að hann yrði kosinn þangað

samkvæmt franska kosingakerfinu/ forsetaþingræðinu

þannig að mann myndi axla rauverulega ábyrgð á Íslensku þjóðinni?

Jón Þórhallsson, 13.2.2019 kl. 10:13

4 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Ég sætti mig alltaf við niðurstöður viðurkenndra kosninga. Ég er lýðræðissinni, en ekki Demókratískur skríll né Blairískur Brexit blöðruháls, sem reynir að ógilda kosningar. Að vísu er ég minnsti minnihluti lýðveldis vors. Bara eitt atkvæði.

Gunnar Rögnvaldsson, 13.2.2019 kl. 10:30

5 Smámynd: Ómar Geirsson

Það er nú það Gunnar.

En eftir að þú sagðir líberalismanu stríð á hendur, líkt og Trumparinn gerði þarna vestra, þá held ég að þú sért ekki bara eitt atkvæði Gunnar.

Kannski 2 eða 3, og þeim fer fjölgandi.

Vegna þess að í dag setja kjósendur Sjálfstæðisflokksins samasem merki á milli líberalismans og íhaldsstefnu.

Og skilja ekkert í að allt sé að fara til andskotans í vasa Örfárra auðmanna.

Svo fórst þú að tala mannamál sem allir íhaldsmenn skilja.

Og ég get svo svarið að þið eruð fleiri en einn, fleiri en tveir, og jafnvel fleiri en þrír.

Og þar með er til minni minnihluti en þú Gunnar.

Vildi aðeins leiðrétta þig hvað það varðar.+

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 13.2.2019 kl. 19:05

6 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Ég þakka þér Ómar og bukta.

Já margir í Sjálfstæðisflokknum, en þó samt ekki nándar nærri allir, virðast ekki enn hafa skilið það til fulls að eftir hrun Sovétríkjanna eru leiðir Líberalista og Íhaldsmanna að skilja. Þeir snéru bökum saman í baráttunni við alræðisöflin, meira að segja í bandalagi við Stalín um tíma. En nú eru leiðir okkar að skilja. Við vorum aldrei ein og sama skepnan eins sumir áttavilltir oft halda. Við erum eiðsvarnir andstæðingar frá og með 2008. Algerir andstæðingar. Framtíð Vesturlanda er í húfi. Ekkert minna er undir!

Það tók mig tíma að finna mér heimili. En eftir að Bjarni kyssti krónuna og kraup við altari fullveldisins, þá gekk ég inn. Ég er auðvitað ekki alltaf ánægður með mína menn, en þannig er það alltaf í svona breiðum flokki eins og xD og þannig verður það líklega alltaf. Ég fæ ekki allt, en þak yfir kollinn á hver maður að vera þakklátur fyrir. Trump tók til í sínu flokki með jarðýtunni sem hann sjálfur er, en ég sé ekki fram á að neinn hafi enn þann ofurstyrk í xD að bera Davíðsborgina á hæstu hæð fram á ný. En kannski gerist það, ef maður og annar standa sig og biðja nógu heitt.

Bestu

Gunnar Rögnvaldsson, 13.2.2019 kl. 20:01

7 Smámynd: Ómar Geirsson

Já Gunnar, það gerist margt ef maður og annar reynir að standa á sínu, og standa sig.

Og biðja nógu heitt.

Þú lýstir mjög vel því ferli eða aðferð sem fólk þarf að skilja ef allt á ekki að fara til andskotans.

Þó gleraugu okkar, sem við notum til að sjá og meta stjórnmál og samfélag, séu ekki sömu gerðar, þá er ég algjörlega sammála þessum orðum þínum og þeirri hugsun sem þau tjá.

We are not alone, í margbreytilegum skilningi, og það er engin von án bænar.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 13.2.2019 kl. 20:17

8 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þú kemst vel að orði Ómar.

Kannski er það vitleysa hjá mér að xD sé ennþá "breiður flokkur". Flokkurinn hefur minnkað mikið, og það sem af honum féll, féll ekki jafnt af skepnunni. Það er vitað. Kannski hefur hún við það vanskapast. Misst mjaðmabeidd og á orðið erfitt með fæðingar; þ.e. að fjölga sér. Byrjuð að líkjast stöngli (þú veist kannski við hvaða plöntu ég á).

Við hliðina á xD er því kominn nýr foli þannig að hann er ekki einn á hægri vængnum lengur.

En hvað um það. Kjördagur nálgast, einn dag í senn. Til fjandans með Líberalismann.

Gunnar Rögnvaldsson, 14.2.2019 kl. 05:24

9 Smámynd: Ómar Geirsson

Já,, til fandans með liberelismannn, enda er hann ættaður úr þeim ranni.

En ykkur íhaldsmönnum ber skylda til að standa vörð um Sjálstæðisflokkinn.

Hann er einnar messu virði.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 14.2.2019 kl. 07:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband