Leita í fréttum mbl.is

Innflutt verkalýðsforysta betri kostur [u]

Já, sammála Drífu ASÍ með sín ofurlaun á mánuði. Það þarf að ná verðinu á verkalýðshreyfingunni niður, ég er sammála því. Ég legg því til að hún verði flutt inn, helst frá láglaunalöndum, eða allra helst send inn í tölvupósti, eða Xeroxuð inn, því þá sleppum við við að þurfa að láta hana fara í tollafgreiðslu, og pappírsvinnan sparast. Og þá þarf heldur ekki að byggja undir hana né þrífa undan henni. Mér finnst að fólk eigi að fá að greiða atkvæði um það

En reyndar hefur fólk þegar greitt atkvæði um það erlendis því sósíaldemókratar sem hreyfing (alias ASÍ) er að verða útdauð, nánast alls staðar. Og það er þessari hreyfingu að kenna að sósíal-dumping* er að sprengja Evrópu í loft upp, því það var hún sem stóð fyrir hórfrelsinu fjórfrelsinu

Uppfært: Þetta svo kallaða fjórfrelsi er vernduð útópía embættismannastéttanna í ESB, því annars værum við með ódýrari erlendar verkalýðshreyfingar frá til dæmis Rúmeníu eða Kína, skatta- og lögfræðiþjónustu, vöruflutninga og fleiri þjónustugreinar, sem samtals eru um 70 prósent af hagkerfum landanna, en eru hins vegar einungis 22 prósent af viðskiptum á milli ESB-landa

Þannig að stærsti hluti hinna betri stétta í ESB hafa verndað sig, en látið alla þá sem beita þurfa vöðvaafli við vinnu sína, um að standa eina og berskjaldaða gegn undirboðum frá svæsnum láglaunalöndum á leið í ESB-þrot. Allt sem hefur með líkamlega vinnu að gera er sent úr landi eða þrælar fluttir inn til að grafa undan til dæmis byggingabransanum hér heima og þeim sem þar unnu á góðum launum

Árangurinn er svo sá að þeir sem annars hefðu farið í iðnnám neyðast til að leggjast upp á háskólakerfið, sem að of miklum hluta til er að þrotum-komið kommabæli sem karlmenn hafa almennt ekki áhuga á og með afar svartar framtíðarhorfur. Eða þá að flytja sig yfir í þær greinar sem eru ekki í hinum tradable-geira, sem ESB-veldið ákvað að mætti fórna

Þetta hefur einnig þýtt það að frjósemishlutfall Íslendinga hefur fallið, því að launapressan niðurá við í mikilvægum grunnhluta hagkerfisins hefur dregið úr trú fólks á framtíðina. Íslenski draumurinn dofnar

Svona meðferð á því sem tók svo langan tíma að byggja upp, hefur ávallt þær afleiðingar að "natal-energy" eða hið þjóðbernska afl þjóðarinnar minnkar. Og hér er íslenska verkalýðshreyfingin algerlega gjaldþrota. Hún brást

Frá og með fullveldi hugsaði Íslendingur sig aldrei um þegar að barnseignum kom. Hann henti sér út í þær því hann vissi að allt yrði í lagi. Hann stólaði á Ísland, og það með réttu

EES-samningurinn hefur hins vegar gelt landið að óþörfu og grafið undan trú Íslendinga á framtíðina. Hann er tortímingarafl og verkalýðshreyfingin er hér stórkostlega samsek. Hún er fíllinn í stofunni, enda af sósíaldemókrataætt, og ESB er ættaróðal hennar

Þið eruð gjaldþrota-hreyfingin núna. Það eru ekki bankarnir

* félagsleg undirboð

Fyrri færsla

Kommagengið gjörir kunnugt


mbl.is Erlendu húsin betri kostur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

En þetta er náttúrlega snjöll hugmynd hjá ASÍ, að því leytinu að með þessu býr verkalýðshreyfingin sér til sitt framtíðar próletaríat (öreigastéttin langþráða loksins komin í framleiðslu hjá ASÍ).

Framtíð verkalýðshreyfingarinnar hangandi eins og steinn um háls launþega, verður þá tryggari.

Afkomugrundvöllur verðalýðsforystunnar sjálfrar yrði tryggari, því með öllu réttu ætti hún fyrir langa löngu að hafa lagt sjálfa sig niður.

Eitt helsta markmið verkalýðshreyfingarinnar er að viðhalda sjálfri sér. Og til þess þarf hún öreigastétt. Þarna eru óendanleg tækifæri fyrir sósíaldemókrata með félagsleg undirboð fyrir aðra á heilanum, en bara ekki fyrir sjálfa sig. EES hefur unnið gott starf fyrir hreyfinguna. Komið láglaunamarkaði í gang á Íslandi.

Gunnar Rögnvaldsson, 14.2.2019 kl. 14:32

2 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Það var skammarlegt að heyra að ASÍ hafi keypt innréttingar í íbúðir Bjargs frá Lettlandi, þ.s. lágmarkslaun eru 5x lægri en á Íslandi. Og svo þykjast þessi félög vera að berjast fyrir hærri launum og meiri réttindum fyrir íslenska launþega. En svo minnist maður þess að ASÍ hefur verið einn dyggasti stuðningsaðili að ESB.

Ragnhildur Kolka, 14.2.2019 kl. 18:16

3 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Já Ragnhildur.

Og það ömurlega er að ASÍ skuli vera stolt af þessu. Það sýnir firruna sem þar á heima.

Verkó er fyrir ESB (Samfylkingaflokkarnir). Hún er eins konar aðstoðarútibú ESB og gerir þess vegna allt til að láta ESB ganga í augun á  þeim sem hún á ekki að þjóna. Verkalýðshreyfingin er orðin ESB proxy-glingur þar sem ekkert  kemur út úr hverjum lítra sem hellt er á hana. Hún er dragbítur á þjóðarhag. Fer ekkert á lítranum. 

Ríki og bær er hins vegar VG, þ.e. grænir embættismenn með rautt heilabú sem hugsar ekki um neitt nema sig og sín völd yfir borgurunum.

Þannig er þetta, vinstrið.

Kveðja 

Gunnar Rögnvaldsson, 14.2.2019 kl. 18:48

4 Smámynd: Ómar Geirsson

Beittur sem fyrr Gunnar.

Það ættu allir að lesa þessa pistla þína, ekki endilega til að vera sammála öllu sem þú segir, heldur til að skilja hin undirliggjandi rök þín, og taka afstöðu til þeirra.

Það eru nefnilega margir skinheilagir þarna úti sem sjá ekki sína ábyrgð á ástandinu, en benda sífellt á aðra.

Stundum finnst mér bara að ég þurfi að endurbirta orð þín, og þetta er eitt slíkra tilfella;

"Uppfært: Þetta svo kallaða fjórfrelsi er vernduð útópía embættismannastéttanna í ESB, því annars værum við með ódýrari erlendar verkalýðshreyfingar frá til dæmis Rúmeníu eða Kína, skatta- og lögfræðiþjónustu, vöruflutninga og fleiri þjónustugreinar, sem samtals eru um 70 prósent af hagkerfum landanna, en eru hins vegar einungis 22 prósent af viðskiptum á milli ESB-landa

Þannig að stærsti hluti hinna betri stétta í ESB hafa verndað sig, en látið alla þá sem beita þurfa vöðvaafli við vinnu sína, um að standa eina og berskjaldaða gegn undirboðum frá svæsnum láglaunalöndum á leið í ESB-þrot. Allt sem hefur með líkamlega vinnu að gera er sent úr landi eða þrælar fluttir inn til að grafa undan til dæmis byggingabransanum hér heima og þeim sem þar unnu á góðum launum".

Þetta er nefnilega fjöldaframleiðsla á öreigastétt eins og þú bendir réttilega á.

Enda hvernig getur líberalisminn leitt til annars.

Eins og góður maður sagði nýlega.

Til fjandans með hann.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 15.2.2019 kl. 09:28

5 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér Ómar (og fer smá hjá mér yfir svona miklu hrósi).

Mæli með að lesendur lesi pistil Ómars í gær. Þar hittir hann naglann.

Það góða við þróun líberalistanna í dag, er það að kenningar þeirra eru sennilega að verða eins mettaðar og hægt er af þeim "fjölbreytileika" sem þetta lið hefur talað um í, tja, sennilega þrjá áratugi. Þannig að núna eru þeir eins og villimannasafnið á Breska þjóðminjasafninu, sem lifnað hefur við og berst þar um á banaspjótum hverja nótt. Einn er með hlóðapott sem implant í neðrivör. Annar er með mynd af tveggja metra spjóti úr sjálfbærum bambuskofa tattóverað á líkamann. Einn, sem líkist forföður Jeremy Corbyn, er með hryggjaliðina úr úlfalda neglda á ennið á sér. Annar hefur opnað á sér höfuðkúpuna og stráð rauðu dufti yfir heila sinn, og þorpshöfðinginn er tattóveraður undir báðum yljum með bleki úr kolkrabba. Amman hangir svo í gálga yfir sjóðandi pottinum sem börnin dansa í kringum og hlakka til.

Fjölbreytileikinn innan hreyfingarinnar er svo mikill að þar drepa brátt allir hver annan og deyja alveg sjálfbært út. Þetta er styrkurinn við "fjölbreytileika" í steinsteypu. Ekkert virkar, nema fjölbrotaleikinn að sjálfsögðu!

Kveðja

Gunnar Rögnvaldsson, 15.2.2019 kl. 11:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband