Leita í fréttum mbl.is

Eftir þriðja orkupakka heimsveldis í smíðum

Það er ansi merkilegt að ríkisstjórn og Alþingi Íslendinga -nema Miðflokkurinn- með Sjálfstæðisflokkinn í fararbroddi, hafi ákveðið að taka lög imperíal-heimsveldis fram yfir lög íslenska þjóðríkisins, og meira að segja ákveðið að setja þau ofar íslenskum lögum. Þetta er ekkert minna en gerræði þegar um ofboðslega mikilvæg mál er að ræða. Og sama má reyndar segja um flest önnur mál, þegar nánar er skoðað

Íslenska þjóðin varð fullvalda til þess að hún gæti stjórnað ríki sínu sjálf; þjóð-ríki hennar. Hún varð ekki fullvalda til þess að láta erlent og í óþokkabót algjörlega umboðslaust vald skipa sér fyrir í sínu eigin þjóðríki

Íslenska þjóðin er fullvalda. Það er ríkisstjórnin hins vegar ekki, og það er Alþingi heldur ekki. Fullveldið er á höndum þjóðarinnar. Það er ekki á höndum Alþingis né heldur ríkisstjórnarinnar, sem eiga að vera á höndum þjóðarinnar. Þjóðin ein getur sparkað þinginu, ríkisstjórn og forseta. Enginn getur hins vegar sparkað þjóðinni. Samt er það það sem ríkisstjórnin, þingið og forsetinn eru að gera. Þau eru að sparka þjóðinni og í hana

Öldum saman var íslenska þjóðin ekki fullvalda. Hún gat því ekki haft sína eigin ríkisstjórn. Þing þjóðarinnar var lokað. Það mátti ekki setja þau lög sem þjóðin vildi að sett væru, í hennar þágu. Þjóðin var í vösum erlendra yfirdrottnara, sárfátæk, kúguð og þjáð. Með því að hefja það gamla ferli til heljar á ný, hefur Sjálfstæðisflokkurinn í höndum fáráðlinga gert sig brottnuminn af þeim vettvangi sem hann dregur nafn sitt af. Það verða flokksmenn að gera sér klárt. Sjálfstæðisflokkurinn hefur verið þræddur upp á aðra lyklakippu

Harðir tímar eru framundan. En sem betur fer veit íslenska þjóðin, og reyndar margar aðrar þjóðir Vesturlanda líka, hver viðfangsefnin framundan eru: Þau eru að gera upp sakirnar milli þjóðríkjanna og hinna ýmsu heimsvelda sem þola þau ekki á ný. Sagan hefur því miður endurtekið sig og Vesturlönd þurfa að bretta upp ermar sínar á ný. Tungumál fólksins er sem betur fer að verða skýrt í þessum efnum. Fólkið er því vakna upp við vondan draum. Það er farið að gera sér grein fyrir því hvað er að gerast; Það er að segja, að mætt eru á vettvang hin gömlu skrímsli til að taka frelsið frá fólkinu; þjóðfrelsið

Evrópusambandið er imperíal-heimsveldi. Alþjóðaelítan er imperíal-heimsveldi. Glóbalisminn er imperíal-heimsveldi. "Alþjóðasamfélagið" er imperíal-heimsveldi. Sameinuðu þjóðirnar eru því miður að taka á sig þá mynd líka. Ómynd sem þeim var bara alls ekki ætluð. Sú stofnun hefur að miklu leyti verið grafin út innan frá af nýjum imperíal-heimsvaldasinnum

Það eina sem dugar á þetta er hin fróma Þjóðarstefna gegn imperíal-heimsveldum (e. nationalism vs. imperialism) sem gerði okkur á sínum tíma frjáls í okkar eigin landi, og sem önnur lönd tóku upp líka og urðu frjáls. Kirkjuklukkur þá hljómuðu og þjóðir skáluðu

Aðeins fullvalda þjóðríki geta boðið upp á lýðræði og aðeins þjóðríki geta boðið borgurunum upp á takmarkað ríkisvald. Heimsveldi geta hvorugt. Þau bjóða aðeins upp á það sama og síðast: kúgun, ótakmarkað ríkisvald -eins og sést til dæmis á erlendum orkupökkum- og endalausa harðstjórn og ánauð. Þeim verða þjóðirnar að fá að vera frjálsar frá. Bandamenn háðu Heimsstyrjöldina síðari og stuttu síðar Kalda stríðið til að kveða svona imperíal-heimsveldi niður. En þau eru komin til baka, hálfklædd og þegar byrjuð að þjarma að þjóðunum. Þau eru að þræða þjóðirnar upp á lyklakippur sínar

Látum hart mæta hörðu. Söfnum ofurefli. Því fyrr, því betra

Fyrri færsla

Kosningar á næsta leyti við næsta leiti


Kosningar á næsta leyti við næsta leiti

Það er að segja í Bretlandi. Þó svo að atburðir síðustu daga þar sem 21 þingmenn voru reknir úr Íhaldsflokknum fyrir að neita að fylgja flokknum hverra merkjum þeir buðu sig fram undir sem meðlimir einnar samfelldrar pólitískrar heildar, og sem komið verður í veg fyrir að geti boðið sig fram undir merkjum þess flokks á ný, þá lítur út fyrir að stjórnarandstaðan geti ekki komið í veg fyrir nýjar kosningar með því að nota það að tveir þriðju hlutar þingsins verði að samþykkja að boðað sé til þeirra. Boris Johnson getur til dæmis lýst yfir vantrausti á sjálfum sér og þar með ríkisstjórn sinni og þannig kallað fram nýjar kosningar með einföldum meirihluta. Hann hefur einnig fleiri ráð

Breskir dálkahöfundar segja að atburðir síðustu daga á breska þinginu og í Íhaldsflokknum hafi fyrir löngu síðan verið fyrirséðir og ákveðnir af ríkisstjórn Johnsons. Allt gangi því samkvæmt áætlun þó svo að menn standi á öndinni, sem er önd

Ef að Valhöll hefði sýnt bara hálft prósent af svona baráttuþreki og hugrekki til varnar fullveldi og sjálfstæði Íslands vegna yfirríkis Evrópusambandsins í orkumálum, sem algjörlega og gersamlega ónauðsynlegt var að undirgangast, þá væri Sjálfstæðisflokkurinn ekki sú klessta mýfluga á vegg sem hann er í dag. Aldrei hefur þessi ömurlega flugnahöfðingja-pokahöll plebbanna sem sitja þar núna staðið með íslensku þjóðinni síðastliðin 10 ár

Aðeins einn þingmaður Sjálfstæðisflokksins fylgdi stjórnarfarslegum stofntilgangi flokksins. Það var Ásmundur Friðriksson. Hann er það eina sem eftir er af flokknum. Restin er landsölumenn á borð við þá sem Jón Sigurðsson slóst við hvern einasta dag ársins, áratugum saman. Leiðari Morgunblaðsins fimmtudaginn 15. júní 1944, Sjálfstæðir menn, var afar skýr um þetta mál

Fyrri færsla

Boris Johnson hefur styrkt stöðu sína [u]


Boris Johnson hefur styrkt stöðu sína [u]

ÞAÐ VIRKAÐI

Austan Atlantsála hefur Boris Johnson nú styrkt stöðu sína. Formlegur meirihluti flokks hans á þingi hvarf þegar undir vesalingatímabili Theresu May gúmmídúkku-ESB við völd í Westminster, og sem var á borð við núverandi ESB-gúmmídúkkuna Bjarna Ben og kó-plebba hans í Valhöll

Boris hefur tekist að kalla fram gúmmídúkku-verksmiðju ESB í flokki sínum, stilla öllum afurðum hennar út í búðarglugga ESB, einangra hana, og bomba þær síðan í klessur og sparka þeim út. Fjöldi þeirra var 21-dúkka alls

Fossandi reiðin staðfestir nákvæmnisverk Borisar. Kenneth Clarke féll saman undan ESB-spiki sínu án þess að jafnvel ekkert yrði eftir á gólfinu þar sem hann hafði staðið með kalt blóð í æðum. Svo flattur var hann út að enginn fótur manna með rautt og heitt blóð í æðum gat flatt hann þynnri

Næsti leikur er líklega kosningar, stórsigur Borisar, og þar með út úr ESB, og inn í frelsið. Það er lagalegur ógjörningur að taka útgöngu án samnings af borðinu, lögin sjá fyrir því, og flokkur Borisar stendur nú loksins sameinaður. Reyni ESB-gúmmídúkkur þingsins að koma í veg fyrir kosningar, þá geta þær gert það í vissan tíma, en í leiðinni grafið algjörlega undan sjálfum sér og framtíð sinni að eilífu í breskum stjórnmálum. Það kemur sem sagt dagur eftir þennan dag, DDRÚV-ríkinu í ríkinu til mikils ama

Þar með eru tvö helstu stjórnmálaöfl hins frjálsa heims að verða frjáls og fullvalda á ný. Trump hreinsaði flokk sinn út í vestri, einhentur, og Boris er að hreinsa fimmtu herdeildina út í austri

Þessu geta sjálfstæðir menn Íslands fagnað vel. Það er því gott að við fegnum Mike Pence varaforseta Bandaríkjanna til landsins í dag. Þökk sé kjöri og flokksuppreisn Trumps í vestri!

Kannski kemur Boris Johnson hingað næstur

uppfært kl. 23:22

STALDRAÐ VIÐ

Hér ættu menn að staldra aðeins við og skoða viðhorf ESB-manna og Evrópusambandsins til kosninga yfir höfuð. Það er nefnilega mjög svipað og viðhorf Kremlar var til kosninga í löndum Austur-Evrópu á meðan þau voru læst og lokuð á bak við járntjald alræðis Sovétríkjanna, sem hið íslenska vinstri dýrkaði. Kæmi ekki rétt svar upp úr kjörkössunum þá var þeim hent á öskuhaugana og nýrra krafist, eða þá að þeir voru bara framleiddir og fyrirfram fylltir með réttum krossum á bak við tjöldin. Viðhorf Evrópusambandsins til kosninga og þjóðaratkvæðis er mjög svo svipað. Og það versta er að plebbar Valhallar hafa hálft í hvoru hoppað með á þann vagn, eins og sást svo gjörla á orkupakkamálinu og undirskriftasöfnun Sjálfstæðismanna

HIÐ AUGLJÓSA VONDA

Fjölmiðlar staglast á því að öryggisgæsla vegna komu Mike Pence varaforseta Bandaríkjanna sé meiri en áður hafi sést. Svarið við því er auðvitað það, að vegna aðhildarleiks Íslands að Schengen-blöffinu verður hún að vera svona mikil og þung, því engin Schengen-lönd hafa stjórn á neinu sem í þeim löndum eru. Þau vita nánast ekkert. Þau eru öll orðin full af hryðjuverka- og glæpalýð upp í kok. "Fjölbreytnin" er orðin svona mikil á ættarvakt Sjálfstæðisflokksins. Þess vegna flaggar til dæmis hið ónýta Advania-fyrirtæki vírus-fánanum í samræmi við hugbúnað sinn, sem fullur er orðinn af hinni ótrúlegustu fjölbreytni

Hugtakið "fjölbreytni" kemur úr latínu og þýðir veiking efnis (diverso). Dæmi: sjó blandað í steinsteypu, sem elur af sér alkalívirkni og eyðileggingu. Annað dæmi: Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands er til dæmis ekki fjölbreyttur. Væri hann það, þá myndi hægrimennska eyðileggja vinstrimennsku hans. Hann er því bara vinstri-mennta-maður og verður aldrei neitt annað, sama hvað blóðugar staðreyndir alræðissögunnar tauta og raula

Enginn vinstriflokkur hefur nokkru sinni þolað fjölbreytni. Þeir byggja allir á einhverskonar alræði. Í dag nota þeir hugtakið fjölbreytni til að villa á sér heimildir til þess að ná völdum. Hugtakið er því orðið pólitískt valdatæki vinstrisins og eins konar troll til að fanga veiklunda kjána vinstrisins í nýjustu net alræðisins á ný

Fyrri færsla

Ert þú meðlimur í nýja sovéska kommúnistaflokknum?


Ert þú meðlimur í nýja sovéska kommúnistaflokknum?

NÝJA FLOKKSSKÍRTEINIР

Að vera umhverfissinni og hlýnunarsinni er eins og að vera meðlimur í sovéska kommúnistaflokknum. Þú segir þessi tvö orð og þá opnast dyr inn í ríkisbubbafélag vinstrisins. Þú gætir jafnvel fengið vinnu á sjálfsfróunarmiðstöð vinstrimanna: DDRÚV. Þessi tvö orð eru á við flokksskírteinið gamla sem gerir þig að betri borgara í sovétríki. Gerir þig að góðu fólki

Eins og til dæmis að Páfa, sem ætlar að hætta með vopnaða verði af tillitssemi við almúgann sem hann segir að eigi ekki að eiga byssur. Nei Páfinn hættir sko ekki með þungvopnaða verði sem gæta hans. En líf hans er jú mörgum sinnum meira virði en líf almúgans, ekki satt? Hann er eins og Katrín kommi, langt því frá hættur að fljúga á verkalýðsfundi, þar sem lýðurinn er ekki, því hann er hjá Trump

Þegar Bjarni Benediktsson sagði töfraorðið bráðnandi-ísjaki er hann kynnti aðhal Sjálfstæðisflokks að núverandi ríkisstjórn komma, þá var hann að sækja um inngöngu í hinn sovéska kommúnistaflokk nútímans. Segðu bráðnandi-ísjaki og þú ert inni. Þessi maður leiðir ekki flokk. Hann lætur leiða sig til heljar. Og það er einmitt í forstofunni þar, sem flokkur hans er staddur núna

MIÐFLOKKURINN VINNUR Á

Gallup - mæling ágúst 2019 xD xM

Mynd: Munurinn á fylgi Sjálfstæðisflokks og Miðflokks. Gallup 2. september 2019

Gallup kom í gær með nýja mælingu á fylgi flokka. Miðflokkurinn bætir þar við sig 1,2 prósentu og mælist með 13,4 prósentu fylgi. Hann hefur bætt við sig tæpri prósentu á mánuði síðustu átta mánuðina. Sjálfstæðisflokkur mælist hins vegar með næstum því sama fylgi og síðast, eða 21,7 prósentur í stað 21,6, og er því með mun minna fylgi en hann fékk í janúar. Munurinn á fylgi þessara tveggja flokka hefur aldrei mæst minni hjá Gallup en nú: Hann minnkaði úr 9,5 prósentusigum í 8,3 í ágúst. Það styttist í krossfestingu hins bráðnandi Sjálfstæðisflokks. Plebbahöll Bjarna Ben kann þetta

- Gunnar (ég) er Þjóðremba 

Fyrri færsla

Ekki heimsstyrjöld fyrr en 1941


Ekki heimsstyrjöld fyrr en 1941

Fram á sumarið 1941 var síðari heimsstyrjöldin álitin eins konar framhald af þeirri fyrri, sem kölluð var Stríðið mikla. Fram til þess, eða frá og með 1939, var stríðið í Evrópu álitið landamæraerjur og staðbundin átök. Það var ekki fyrr en með innrás Þýskalands í Rússland sumarið 1941, árás Japana á Bandaríkin í desember og vanvita stríðsyfirlýsingu Þýskalands á hendur Bandaríkjunum nokkrum dögum síðar, að um heimsstyrjöld var að ræða. Fékk Stríðið mikla þar með nafnið Fyrri heimsstyrjöldin og átökin á síðari hluta ársins 1941 fóru almennt að heita sú Síðari

Japan hafði verið í gangi með herjun á Kína frá og með 1937 og Bandaríkin höfðu þegar verið þar á fullu í nokkur ár að reyna að hefta útbreiðslustefnu japönsku herstjórnarinnar í Asíu

Engum í Washington datt í hug að valdajafnvægið í Evrópu myndi hrynja til grunna á sex vikum. En það gerði það, vegna þess að Bretland og Frakkland höfðu ekki hirt um viðhald fælnimáttarvopna sinna, stundað niðurlægjandi friðþægingu og látið undan síbyljuáróðri og sírenusöng Þjóðverja og áhangenda þeirra um að Versalasamningurinn hefði verið "óréttlátur". En það var hann alls ekki miðað við stund og stað. Hann var ekkert miðað við það sem Þýskaland gerði við Rússland með Brest-Litovsk-samningum. Sömuleiðis var hann ekkert miðað við það sem Þýskaland ætlaði sér að gera við Frakkland með Septemberprógramminu, hefði Þýskalandi tekist áform sín með Fyrri heimsstyrjöldinni, þ.e. Stríðinu mikla

Frá byrjun kusu Bretland og Frakkland að bera ekki byrðarnar. Frakkland gafst upp og Bretland víggirti sig um tíma heima og varðist vel. Ef að Bandaríkin hefðu verið í bandalagi með þessum tveimur á þessum tíma, hefði öll byrðin lent á þeim. Það er staðreynd sem flestir gleyma. Uppgjöf Frakklands sýnir það, og víggirðing og vörn Bretlands heima, í byrjun, gerir það líka. En hafa verður í huga að Frakkland og Bretland voru á þessum tíma enn þungt haldin á sál og líkama eftir Stríðið mikla

Þarna var Bandaríkjaher ekki nema um 125 þúsund hermenn og foringjalið þess var um 12 þúsund manns og útgjöld Bandaríkjanna til varnarmála voru aðeins 300 milljón dalir. Þessi tala átti hins vegar eftir að hækka hratt og ná hámarki með 11,5 milljón manna her 1944. Bandaríkin höfðu nefnilega afvopnast frá og með 1919. Þau mistök kom ekki til greina að gera aftur. Sem betur fer fyrir okkur hér á Íslandi

Engum datt þarna í hug að afleiðingar þess sem stuttu síðar fékk nafnið Síðari heimsstyrjöldin, myndu verða þær að Bandaríki Norður-Ameríku sæju sig tilneydd til að veita óvinum sínum ótakmarkaðan aðgang fyrir útflutning að Bandaríkjamarkaði. En fyrir þann markað var opnað til þess að reisa heiminn úr rústum Síðari heimsstyrjaldarinnar, svo að fyrrum óvinir Bandaríkjanna gætu staðið vaktina gegn kommúnismanum með þeim

Þarna voru flestir núlifandi íslenskir efnahagsfræðimenn og áhugamenn okkar á því sviði að fæðast, og þeir fæddust inn í heim sem þeir héldu að gæti ávallt gengið út á það að fyrrum óvinir Bandaríkjanna hefðu skýlausan rétt á því að éta þau út að innan. Enginn heimspekileg kenning er til um "frjáls viðskipti" og verður aldrei til án þess að vera hin fullkomna þvæla úr heimsveldi Útópíunnar, sem er stórt í dag. Það sama gildir um þjóðarstefnuna. Hún er ekki kenning heldur erfðafræðileg staðreynd eins og móðurástin, þ.e. ástin á sínum nánustu; Hún er

Bandaríska verkalýðshreyfingin var mjög óhress með þetta og barátta hennar náði hámarki þegar innflutningur þýskra og japanskra bifreiða tókst á loft á sjöunda áratug 20. aldarinnar. Donald Trump er foringi hennar núna

Stóra-Bretland sem valdi leið sósíalisma og þjóðnýtinga frá og með ríkisstjórn Verkamannaflokksins 1945, varð ófært um að taka þátt nýrri uppsetningu heimsins og þeim kapítalisma sem Bandaríkin sömdu reglur og regluverk yfir, en sem nú hafa verið eyðilagðar af þeim sem nutu þeirra hve mest og ýtrast. Það var ekki fyrr en að Margrét Thatcher komst til valda að Bretland fór að ná sér á strik á ný. En Bretar voru eina þjóðin sem barðist frá fyrsta degi til síðasta dags Síðari heimsstyrjaldarinnar. Og þeir framleiddu meira magn af vopnum og hertækjum en Þýskaland undir heimsvaldaríkisstjórn Hitlers náði að framleiða með allt það landsvæði undir sér sem er Evrópusambandið í dag. Tími Stóra-Bretlands er sennilega að koma aftur núna, frá og með brexit

Heimurinn er kominn í nýjan uppsetningarfasa, einu sinni enn. Og á um það bil 80 ára fresti hefst nýtt rassakastatímabil Þýskalands í Evrópu. Það er því hafið á ný, eins og sést. Ekki þarf annað en að hella tveimur bjórum ofan í þýskan til að fá út hvað honum finnst í raun og veru, 80 árum síðar. Honum finnst að Þýskaland hefði átt að sigra. Öll samviska Þýskalands vegna þess sem gerðist fyrir 80 árum er gufuð upp. Ný samvika er kominn í staðinn og hún er þessi; "Við áttum skilið að sigra". Þessi þvæla hefur líka tekið sér bólfestu í hugum margra þeirra sem tilheyra íslenskri stjórnmála- og gáfumennastétt í dag. Þýskaland er því nú þegar komið í slagsmál við Pólland, hvers þjóðar það drap um fimmtung af, Austur-Evrópu, Suður-Evrópu og Bretland á ný. Þýsku rassaköstin í Evrópu eru hafin

Og hvað raðbilaða forystu Sjálfstæðisflokksins varðar í dag, þá er klisjan um "fríverslun" á þessu 80 ára tímabili orðin að heilabilun hjá henni, eins og hjá öðrum Samfylkingarflokkum af verstu sort. Forystan er þungt haldin af fávísi og hættulegri heimsku í þeim efnum, því hún hyggst leiða Ísland inn í nýtt tímabil viðskiptaánauðar. Mikið skal sá flokkur fá í afturendann fyrir ferðina

Fríverslun síðustu 70 ára var einungis barn síns tíma. Hún var tímabundin viðbrögð við geópólitískum staðreyndum. Nýjar stefnur eru að taka við, byggðar á nýjum afleiðingum geópólitískra staðreynda. Það sama gildir um EES-samninginn. Honum verður því að segja upp hið fyrsta, svo að hægt sé að gera pláss fyrir farsæla för lýðveldis Íslendinga inn í framtíð nýrra staðreynda. Gamli gullfóturinn kemur ekki aftur. Honum skyldi enginn fórna sér fyrir. Ísland er á Vesturhveli jarðar. Við tilheyrum Nýja heiminum

Fyrri færsla 

Úrbeinaðir smáfuglar Valhallar komnir í trekt


mbl.is Bað Pólverja fyrirgefningar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Úrbeinaðir smáfuglar Valhallar komnir í trekt

ÖRORKUPAKKI XD NÚMER ÞRJÚ

Sjálfstæðisflokkurinn er orðinn ófær um að stunda þjóðlega samvinnu, þ.e. að vinna með sinni eigin þjóð og fyrir hana. Hann hefur því fundið sér nýja þjóð, eða réttara sagt brot úr öðrum brotnum þjóðum til að vinna fyrir, og kallar það "al-þjóðlega samvinnu". Svona fer ávallt fyrir þeim sem misst hafa getuna á heimavelli. Þeir leita sér að stuðningshópum sem afkomu sína eiga undir því sem valdið hefur klofningi annarra þjóða

Þetta er gamla sagan: Alþjóðastefna (Internationalism) gegn Þjóðarstefnu (Nationalism)

En þetta mun rífa restina af flokknum á hol, því með Orkubandalagi Evrópusambandsins mun orkuverð margfaldast á Íslandi, eins og nótt fylgir degi, og búa til risavaxna fallöxi almennings sem tekur flokkinn endanlega af lífi. Þá verður ekki aftur snúið, nema enn dýpra niður í líkkistu flokksins

Forystan skynjar ekki þær vitsmunalegu pólitísku breytingar sem geopólitískar staðreyndir á jörðu niðri eru að valda, með fullum og óstöðvandi skriðþunga nauðsynjar

Hagsmunir Íslands, íslensku þjóðarinnar og hins vegar forystu Sjálfstæðisflokksins, fara ekki lengur saman

Í Valhöll sitja núna eins konar úrbeinaðir smáfuglar í trekt ofan á hakkavél sem halda vilja fast í gulfótinn gamla, og jafnvel fórna sér fyrir hann. En hann er farinn og kemur ekki aftur. Staðreynd mun svo koma þjótandi hjá og ýta á hnappinn. Eins er það með þær utanríkisstefnur sem urðu til í kjölfar þeirra nauðsynja sem útkoman úr Síðari heimsstyrjöldinni kallaði fram

Þær aðstæður eru ekki lengur fyrir hendi og heimurinn er því kominn í nýjan enduruppsetningar-fasa. Staðreyndir nauðsynja sjá fyrir því (e. imperatives). Þeim verða allar þjóðir að hlýða því annars farast þær og ríki þeirra hætta að vera til

Fyrri færsla

Hringurinn þrengist um Orkupakkamenn


Hringurinn þrengist um Orkupakkamenn

Björn Bjarnason virðist hafa orðið "sérfóður" um samsæriskenningaheiminn allan undir leiðsögn Roberts Mueller saksóknara Demókrata. Þar staglaðist Björn sífellt á "hringurinn þrengist um Trump" og álíka fjölmiðlaþvælu, sökum inngróinnar meðvirkni með krötum, umboðslausum embættismönnum og að því er virðist andúðar á sjálfstæðum mönnum. Í dag er Björn aftur kominn á vettvang með allsherjar visku sína um heim samsæriskenninga. Að þessu sinni eru það þeir sem vara við Orkusambandi ESB sem eru að sverja sig saman gegn skoðunum Björns og áttavilltum frænda hans Bjarna Benediktssyni. Og ég sem lengi vel hélt að eitthvað verulegt væri að marka það sem Björn lætur frá sér fara:

Þvæla: Mueller hreinsar pyttinn (hann er pytturinn)
Þvæla: Lygavefurinn gliðnar hjá Trump
Þvæla: Rússa-rannsóknin í Washington er komin á nýtt stig
Spuni: Rússnesk nettröll gegn Hillary
Þvæla: Rússa-tengslin í innsta hring Trumps
Þvæla: Trump sigri hrósandi - skýrendur á öðru máli
Lygi: Trump flokksvæðir öryggisvottun
Þvæla: Trump og endalok diplómatíunnar
Þvæla: Trump afvegaleiðir álitsgjafa

Fyrst að Björn trúði þessu, þá trúir hann hverju sem er, eins og Bjarni og Benedikt frændi. En auðvitað var hér bara um áróður að ræða, eins og þann sem Björn viðhefur um yfirríkislöggjöf Orkusambands ESB í dag

Þetta minnir einna helst á ritstjórn hins þýska Der Spiegel, sem birti í blaði sínu endalausar og hreinar lygasögur blaðamanns þess í Bandaríkjunum, um núverandi forseta Bandaríkjanna, kjör hans, um landið sjálft og bandarísku þjóðina. Er upp komst var blaðamaðurinn rekinn úr starfi með skömm. En eftir sat ritstjórn blaðsins, sem gagnrýnislaust hafði birt lygasögur blaðamanns síns, vegna þess að þær féllu hundrað prósent að bandaríkjahatri ritstjórnarinnar sjálfrar. Þar kom því allt heim og saman í einni allsherjar klámútgáfu blaðsins um Bandaríkin í vestri. Bandaríkjahatur mælist einna mest í Þýskalandi og hefur gert svo áratugum saman

Máflutningur Björns er farinn að minna á málflutning íslenskra ESB-sinna sem sögðu (1) að ekkert mál væri að ganga í Evrópusambandið, því líkaði Íslendingum ekki vistin, gætu þeir bara hætt í ESB. Hið sama (2) var sagt um evruna. Henni væri bara hægt að skila. Enginn þessara manna tekur því eftir að peningaskömmtun ríkir enn á evrusvæðinu í Grikklandi í dag, heilum tíu árum! eftir hrun. Þar er grísku þjóðinni skammtaðir peningar í sinni eigin mynt. Og það sama (3) var sagt um eðli Evrópusambandsins. Jafnvel sambandinu sjálfu og eðli þess væri hægt að afneita og hafna er inn væri komið, sögðu menn. Svipað (5) og reynt er að halda því fram að hægt sé að hafna og afneita eðli Orkusambands ESB í dag. Sagt var líka (4) að hægt væri að "semja" við Brussel um inngönguna. En einmitt inngangan er það sem Gamla testamentið varar þjóðir jarðar við, með því að leggja ógnarþunga á sjálfa útgönguna. Hún er svo erfið að henni er líkt við verstu plágur jarðar. Þar er ekki um ýkjur að ræða

Síðustu daga hef ég ferðast um Norðurland, en hvergi hitt einn einasta mann sem bölvar ekki landráðalegum áformum ríkisstjórnar Íslands, vegna Orkusambands Evrópusambandsins. Reiðiský var yfir Skagafirði, vegna ríkisstjórnarinnar. Sama ský virðist einnig hanga yfir tapstöðvum xD í Garðabæ, Keflavík og Selfossi

Þessi ríkisstjórn er ekki ríkisstjórn Íslands. Meina þyrfti henni aðgang að Alþingi Íslendinga, svo komið verði í veg fyrir óbætanlegan skaða á lýðveldi okkar. Hún er algjörlega umboðslaus í þessu máli. Bukner-stemming ræður för ríkisstjórnarinnar

Fyrri færsla

Skólastúlkan Mette Absurdsen og hin súra skólamjólk Trumps


Skólastúlkan Mette Absurdsen og hin súra skólamjólk Trumps

SAMSTÖÐUFUNDIR Á VEGUM MIÐFLOKKSINS: SELFOSS Í GÆRKVÖLDI

Nú eru tæplega fimm þúsundir Íslendinga búnir að horfa á samstöðufund Orkunnar Okkar gegn orkupakka-3 á vegum Miðflokksins í Keflavík í fyrrakvöld, og um 2500 manns hafa nú þegar horft á fundinn á Selfossi í gærkvöldi. Troðfull hús voru á báðum þessum stöðum

Hér má horfa á fundinn á Selfossi og hér er Keflavík (opnast í nýjum glugga). Hattur ofan fyrir þessu fólki

METTE ABSURDSEN NÝLENDUHERRA

Allt í einu þykjast Danir skilja tvö prósent tungumáls Trumps og eru komnir í draumóraseríu númer 205 um Grænland -í Berlingske- og segjast hafa "sofið í tímunum"

"Varnargeta danska hersins á Grænlandi er nánast bara landhelgisgæslan (d. kystvagt). Við erum með nákvæmlega enga loftvarnargetu í landinu, núll þar, og við erum með engan landher á Grænlandi," bendir Peter Viggó lektor í akademíu danska hersins á:

"Forsvarets kapacitet i Grønland er nærmest kun en kystvagt. Der er ikke noget luftforsvar overhovedet. Det er ikke noget landmilitær," påpeger lektor Peter Viggo Jakobsen fra Forsvarsakademiet."| Berlingske í gær

Og svo kemur rúsínan í pylsuendanum: "Við vitum ekki hvað er að gerast á Grænlandi og við eigum ekki einu sinni til landakort af því," eins og Martin Lidegaard fyrrum utanríkisráðherra Dana (og þar með Grænlendinga líka) bendir á:

"Vi har i årevis kæmpet for flere penge til kortlægning af Grønland. Hvis vi kan gøre det med satellit og et civilt formål, vil det samtidig have et sikkerhedsmæssigt formål, uden at det ansporer Rusland til yderligere oprustning," siger Martin Lidegaard. | Berlingske í gær

JA HÉRNA

Þetta er farið að minna óþyrmilega á nýlendustöðu Íslands hér fyrr á tímum, og sem sótsvört og bölvuð ríkisstjórn Íslands hyggst á ný kalla yfir þjóð okkar og land með orkubandalagslöggjöf Evrópusambandsins. Dýr er fiskurinn okkar að verða fyrir þá sem þangað ætluðu að selja hann tollfrjálst, en sem sætir tollum þar enn. Hvar, hvar í ósköpunum kaupir forysta Sjálfstæðisflokksins og ríkisstjórnin kvalarlostaefnin sín. Hvar? Það væri fróðlegt að vita. Þau fást að minnsta kosti ekki í Hönnubúð. Eru þau nokkuð úr kjallaranum í Brussel þar sem Grikkland var krossfest?

Já, kannski er danska og gjörtapaða staðan á Grænlandi eins og í Belgíu, þar sem ég held (þ.e. ég er ekki viss) að 85 prósent af útgjöldum til varnarmála fari í lífeyrisgreiðslur. Restin af NATO-löndum meginlands Evrópu, fyrir utan þrjár undantekningar, er í flestum tilfellum kvöldverðir í Brussel, og er íslenski föndurklúbburinn á sérsviði Heklunála þá talinn með. Hið raunverulega NATO á meginlandi Evrópu í dag eru Bandaríkin og Pólland, þar sem Bandaríkin eru í viðbragðstöðu - og vel á minnst - bæði við austur og vestur landamæri þess, því Þjóðverjar hafa jú tilkynnt Pólverjum að þeir geti þolað Rússland upp að landamærum þeirra, en gleymdu að segja hvoru megin sú samþykkt gildir. Bandaríski herinn gætir því landamæra Póllands, Rúmeníu og Búlgaríu í austri en Trump gætir pólsku landamæranna á Twitter í vestri. Tíst nægir þar í bili, eins og sést

Merkel mús og Mette skolepige gætu bjargað þessu með því að smíða 12 stykki flugmóðurskip sem knúin væru vindmyllum með endalaust úthald þar sem vindurinn blæs hve hvassast úr afturenda ESB. Danir myndu ekki þora að reisa svo mikið sem einn snúrustaur á Grænlandi af ótta við Rússa á Eystrasalti

Talandi um sæstreng, þá er hvert nýlegt bandarískt flugmóðurskip með tvær Kárahnjúkavirkjanir um borð. Að vísu eru þau ekki skemmtiferðaskip á borð við Queen Mary 2, en þau framleiða hvert fyrir sig 17 sinnum meiri orku en til dæmis það fallega skip sem sótti Ísland heim í júlí. Eitt þannig flugmóðurskip er með 22-falda núverandi vatnsafls-raforkuframleiðslugetu Grænlands og 11-falda allsherjar raforkuframleiðslu Grænlands, sem að helmingi til er framleidd með bruna. Þetta nægir ekki til neins sem Bandaríkin þurfa á að halda til að verja Grænland. Þeir sem eru með sæstreng á heilanum hér á landi, ættu frekar að beina sjónum sínum norður en niður, til að svala snúru-fetisma sínum þar. Það er nefnilega ekki svo langt til Grænlands. Eða bara aðstoða þá við að byggja sitt eigið. Við eigum meira sameiginlegt með Grænlendingum, Bandaríkjunum, Kanada og Nýfundalendingum en úrkynjuðu kóngapakki ESB-veldisins á hausnum

GÚRKUSNEIÐIN CARL BILDT

Það var ansi merkilegt að lesa hér hjá Styrmi Gunnarssyni, sem berst kröftuglega gegn því að ríkisstjórn okkar selji fullveldi Íslands í orkumálum og öllum málum til Brussel, að ESB-Svíinn Carl Bildt sem var forsætisráðherra Svíþjóðar, sem á sínum tíma seldi sig til Hitlers, og sem Carl Bildt seldi síðan í hendur Brussels, skuli þykjast hafa eitthvað að segja um Grænland, Svalbarða og Ísland. Hvað er þessi maður að tala á okkar vegum. Hvað er þessi esb-gúrkusneið að ybba gogg um okkar land. Honum koma okkar málefni ekkert við

Þetta er hið merkilegasta mál fyrir þær sakir að það eru aðeins Bandaríkin sem tryggja að Grænland sé á höndum Dana. Annars væri það á höndum annarra. Og ef Bandaríkin slaka á þar, þá rennur Grænland með sinni grænlensku þjóð á hendur þið vitið hverra

Þegar svo forseti Bandaríkjanna imprar á því að þetta sé ekki nógu gott og talar mál sitt á þann hátt sem hann alltaf hefur gert sem byggingarmeistarinn frá Manhattan, er glímt hefur alla sína ævi við gerspillta embættismenn, verkalýðsfélög og hvatt steypugengi og iðnaðarmenn sína áfram, en sem er ekki nógu fínt mál fyrir Snobbhill-úrkynjaðan herra Carl Bildt ESB-Gúrkusneið von sænskri Klessu, að þá eru menn ekki einu sinni tilbúnir til að ræða málið og kalla það bara absúrd

Forsetinn talar það mál sem hann hefur alltaf talað og sem bandaríska þjóðin skilur, og sem í stuttu máli er það, að þetta er "A BAD DEAL", sem þýðir hættið að níðast á okkur, baktala okkur og notfæra ykkur velvild Bandaríkjanna sem bera hagkerfi, varnarmál og þjóðaröryggi ykkar uppi

Við erum á fullu á Grænlandi og þurfum að vaða í gegnum reglu- og lagafrumskóg fullkominna vesalinga í Kaupmannahöfn, sem ekkert geta og ekkert vita hvað þarna er að gerast, á meðan þið rífið fullveldið af þjóðum Evrópu og hendið þeim í gasvasa Rússa og yfirþýsks-ESB sem þið síðan heimtið að við verjum ykkur fyrir fyrir ekki neitt

Það eru 70 ár liðin frá því að við fórnuðum okkur fyrir ykkur og það í þrígang - og þið eruð aumingjar enn. Okkur langar ekkert til að þurfa að koma aftur til að bjarga vesalingunum ykkur úr úr því nýja helvíti sem þið eruð með í ESB-smíðum núna

Fyrri færsla

Svarandi til sex prósenta kjósenda Sjálfstæðisflokks eru búnir að horfa á fundinn í gærkvöldi


Svarandi til sex prósenta kjósenda Sjálfstæðisflokks eru búnir að horfa á fundinn í gærkvöldi

Miðflokkurinn var í beinni frá Keflavík 21 ágúst 2019

FUNDURINN Í KEFLAVÍK

Í gærkvöldi var Miðflokkurinn með opinn fund um orkupakka 3 í Duushúsinu í Keflavík. Salur hússins fylltist og frummælendum var ákaft fagnað. Færri komust að með spurningar á eftir en vildu

Frummælendur voru þessir:

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins
Frosti Sigurjónsson fv. þingmaður Framsóknarflokksins
Styrmir Gunnarsson fv. ritstjóri Morgunblaðsins
Ingibjörg Sverrisdóttir ferðamálafrömuður
Ögmundur Jónasson fv. innanríkisráðherra og formaður BSRB

Ég var einn þeirra sem kveikti á útsendingunni í miðjum fundi. Er honum var lokið tók ég mér pásu og kom aftur nokkru síðar og horfði á útsendinguna frá byrjun. Þá voru um það bil þúsund manns að gera það sama og ég; að horfa á fundinn. En núna í morgunsárið er áhorfendafjöldinn kominn í rúmlega þrjú þúsund manns. Það finnst mér mikið. Væru áhorfendur allir úr þeim hópi 49.543 manna sem kusu Sjálfstæðisflokkinn síðast, þá væru um sex prósent þeirra að ræða. Ég er að minnsta kosti einn þeirra og ég veit að áhorfendur koma flestir úr sömu átt: þeir eru annað hvort kjósendur Miðflokksins, Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokks, að miklu leyti: þorri þjóðar, núna og áratugum saman

Þegar hlustað er á málflutning Frosta Sigurjónssonar rann loks upp fyrir mér í hverju neytendaverndarmálflutningur þingmanna Sjálfstæðisflokksins er fólginn: Hann er fólginn í því að koma í veg fyrir að visst fólk noti rafmagn. Að vernda til dæmis kjósendur sína gegn eldavél og þurrkara, með því að þeir sem eru efnaðir, til dæmis læknarnir sem Bjarni samdi við og eru þeir hæst launuðu í heimi, hafi einir efni á að elda sér mat á matmálstímum. Þeir sem vinna hins vegar hjá ekki-hinu-æðra-opinbera og eru á meðallaunum, þeim skal forðað frá notkun rafmangs, á meðan þeir sem efnaðir eru, elda sinn mat og þvo sinn þvott eins og uppréttum mönnum sæmir. Þarna hefur þingmönnum Sjálfstæðisflokksins tekist að gæta hagsmuna Þýskalands mjög og best í Orkusambandi Evrópusambandsins, þannig að helst Þjóðverjar einir geti notað rafmagn eins og það var notað áður en Bjarni Benediktsson og félagar komust með klærnar í Sjálfstæðisflokkinn. Svona er að ganga í Orkusamband Evrópusambandsins. Það kemur í veg fyrir að ríki geti gætt sinna eigin hagsmuna. Til þess var það stofnað

HORFA HÉR

En sjón er sögu ríkari svo ég ráðlegg mönnum að horfa á allan fundinn hér (opnast í nýjum glugga)

Ég segi þetta og hef sagt þetta vegna þess að ég stundaði beina markaðsfærslu á tískufatnaði í eigin fyrirtæki í Skandinavíu árum saman, þar sem auglýsingaverð var himinhátt og prent- og sendingarkostnaður var langsamlega stærsti kostnaðurinn. Ein lítil mistök í markaðsfræðslunni gátu kostað okkur tugi milljóna króna

Þegar ég hugsa um stöðu Sjálfstæðisflokksins í dag, sé ég að Valhöll hefur í 10 ár sent kaldan póst til allra með mynd af Erich Honecker og Walter Ulbricht í sokkabuxum á forsíðunni, þar sem efst trónir búmerki Sjálfstæðisflokksins í rauðum lit. Baksíðuna prýða svo Jóhanna Sigurðardóttir og Herman Van Rompuy. Og þegar innihaldinu er flett, blasir búmerki Evrópusambandsins við á hverri einustu síðu, sem reglugerðarnúmer í stað blaðsíðunúmers. Sem sagt; kjósið mig ekki. Kjósið mig aldrei. Þetta er katalógurinn úr Valhöll

Þetta er það sem mér dettur í hug eftir að hafa fylgst með núverandi Valhallarliði Sjálfstæðisflokksins í 10 ár. Um hreint skemmdarverk er að ræða. Það er staðreynd. Það eina sem ég veit ekki, er hvort að skemmdarverkið er vísvitandi gert eða ekki, eða hvort að það sé bara heimska og plebbaháttur, þar sem bruðlað er með fjöregg flokksins [pabbi borgar] og þar með Íslands líka. Verri frammistöðu með efniviðinn Íslenska Þjóðin er ekki hægt að finna nema hjá Samfylkingu

GRÆNLAND: NÝLENDAN Í NÆSTA NÁGRENNI OKKAR

Danmörk sem fer með utanríkismál Grænlands og varnarmál þess, hefur afvísað tilboði forseta Bandaríkjanna um að kaupa Grænland út úr danska konungsdæminu. Þetta gerði Danmörk án þess að ráðfæra sig við grænlensku þjóðina. Danmörk þykist eiga Grænland á meðan Evrópusambandið og sérstaklega Þýskaland er með stóran hluta fullveldis Danmerkur undir sér. Danmörk, sem alls ófær er um að verja Grænland, getur heldur ekki varið sjálfa sig. Fárveik staða Danmerkur í höndum Evrópusambandsins kemur í veg fyrir sjálfstæði grænlensku þjóðarinnar. Enginn myndi viðurkenna sjálfstæði Grænlands undir gersamlega vanhæfri varnargetu Danmerkur, sem hvergi nándar nærri uppfyllir sáttmálaskuldbindingar sínar við NATO. Danmörk hefur ekki minnstu hugmynd um hvað er að gerast á Grænlandi eða ekki, og hún hefur ekki efni á að vita það. Og ef hún vissi það þá hefur hún enn síður getu og efni á að gera neitt í því. Danska ríkisstjórnin starir því á póstkort af drottningunni á Grænlandi til komast hjá því að horfast í augu við landakortið. Bandaríkjunum myndi aldrei detta í hug að neita Grænlandi um sjálfstæði. Þau myndu beinlínis hvetja það til þess og taka síðan að sér vernd þess með yfirþyrmandi varnargetu. Sameiginlegir hagsmunir landanna, sem rynnu algerlega saman, myndu sjá fyrir því. Kína yrði sparkað þaðan út. Þetta mál er á byrjunarstigi og hefur gríðarlegar geópólitískar afleiðingar. Búast má við því að þjóðþing Dana fari nú í niðurbráðnun og öngþveiti vegna óðagots danska forsætisráðherrans. Hún á ekki Grænland og Danmörk á ekki Grænland, sem Vilhjálmur Eyþórsson bendir á að sé hluti af Norður-Ameríku. Morgunblaðið var með einkar fróðlega grein um Grænlandsmálið í gær

Hobbý-snobb nýlendutímabil 20. og 21. aldar er á enda runnið. Hið sama gildir um allt getulaust Evrópusambandið og nýlendur þess líka. Og þó svo að Bandaríkin reki sig óvart í Eiffelturninn á flugleið þeirra yfir Danmörku til austurvígstöðva Póllands, þá verður bara að hafa það. Hvorki Danmörk né Frakkland myndu hreyfa legg né lið réðist Rússland inn á veikasta hlekk Austur-Evrópu. Þau myndu bara horfa á hana brenna og Grænland líka. Þannig er eðli Evrópusambands nýlenduherra. Sjá febrúar-pistil minn um Grænland hér - og hlustið fyrir alla muni ekki á glórulausan utanríkisráðherra okkar um nokkuð sem helst, og allra síst um veðrið (á heila forsætisráðherrans). Ekkert af því sem hér er að gerast hefur hið minnsta með veðurfar að gera

Lars Seier Christensen vandar ekki danska nýlendu-hobbý-snobb klapphatta-félaginu um Grænland kveðjur sínar, hvers "skólastúlkan" Mette stendur skráð sem forsætisráðherra fyrir:

"Så Trump udskyder sit besøg til Danmark. Egentlig kan jeg godt forstå ham - vores politikere opfører sig som en flok provinsielle klaphatte ved at afvise alt uden fjerneste overvejelse, omtanke eller blot viden, om hvad der egentlig bliver foreslået. Et land, hvor der istedet tales i en uendelighed om det storslåede initiativ at leje en infantil ballon i London eller latterlige stråmænd om at sælge Lolland, sin bedstemor eller byde ind på Manhattan.

Ingen respekt for hvorfor det lige er, at USA - der er vores eneste reelle beskytter i en stor og farlig verden og de facto i vidt omfang betaler for vores sikkerhed - er bekymrede over Grønland, som Danmark slet, slet ikke har styrke til at forsvare i en krisesituation. Det gad jeg sgu nok heller ikke stille op til, hvis jeg var ham.

Og se disse reaktioner - det er som at se en flok skolepiger, der ikke er blevet budt op til afdansningsballet. “Vi har også travlt med alt mulig andet, æv-bæv...”.

Jeg græmmes.... men du skal være velkommen en anden gang, Mr President."

Nú er bara að bíða eftir því að Asger Aamund komi og hlaði fleiri perlum á hálsfesti skólastúlkna danska konungsdæmisins, - og så er den hjemme

Fyrri færsla

SDG: Hvers vegna við eigum ekki að samþykkja orkupakka 3


SDG: Hvers vegna við eigum ekki að samþykkja orkupakka 3

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins og fyrrverandi forsætisráðherra, ræðir við Bylgjuna þann 20. ágúst 2019, um þriðja löggjafarpakka Orkubandalags Evrópusambandsins, sem er yfirríkislöggjöf sambandsins yfir nýtingu auðlinda í orkulandhelgi þess

****

Orkubandalag Evrópusambandsins, eins og myntbandalag þess, er fyrst og fremst pólitískt bandalag sem ætlað er að dæla til sín fullveldi ríkja í orkumálum. Um er að ræða enn eina umboðslausu yfirríkis-ryksuguna ofan í þjóðareigur annarra landa. Ofan í auðæfi annarra landa sem kjósendum annarra og óviðkomandi landa hefur ekki enn verið heimilað að kjósa til sín. En það kemur líka. Og alls staðar þar sem kjósendum landa er gefinn kostur á að kjósa til sín auðæfi annarra þjóða, þá gera þeir einmitt það

YFIRRÍKISLÖGGJÖF

Um yfirríkislöggjöf sem hafin er yfir íslensk lög er hér að ræða. Löggjöf sem tekur yfir orkuinnviði landa og býr til úr þeim enn sterkari rimla sem lönd sambandsins eru sett á bak við, svo að þau séu ekki að gæta hagsmuna sinna og komi þannig í veg fyrir samruna. Orkubandalagið er skrúfað þannig saman að ekki er hægt að losna úr því aftur. Í tilfelli Íslands yrði ekki hægt að losna við það aftur nema með því að segja öllum EES samningunum upp, eins og hann leggur sig. En þar sætir Ísland enn tollum á fiskafurðum, 30 árum eftir að ESS samningurinn var samþykktur til þess að flytja einmitt út og selja fisk tollfrjálst inn á lögsögu Evrópusambandsins. Orkubandalagið tekur fullveldið þ.e. sjálfsákvörðunarréttinn í orkumálum frá þjóðum, eins og EMU-myntbandalag sambandsins tekur sjálfsákvörðunarréttinn í peningamálaum og ríkisfjármálum frá þeim löndum sem þar létu handjárna sig föst inni um aldur og ævi. Það er þetta sem er í orkupakka 3. Hann er allt önnur skepna en orkupakkar 1 og 2. Hann er yfirríkispakki sem setur Ísland í stöðu nýlendu

EKKERT UMBOÐ

Samþykki þjóðkjörnir Alþingismenn þjóðarinnar þessa yfirríkislöggjöf hins erlenda yfirvalds, er verið að taka úr sambandi stóran hluta þess sem samþykkt var með 99,5 og 98,5 prósentu samþykki þjóðarinnar í maí og sem viðtekið var á Þingvöllum þann 17. júní 1944, tæpum mánuði síðar. Þar setti íslenska þjóðin heimsmet í kosningaþátttöku, sem var 98,6 prósent. Til þessara voðaverka hefur enginn þingmanna þjóðarinnar hlotið kosningu, né fengið snefil af umboði fyrir. Enginn þeirra. Þeir væru að ræna þjóðina

Samþykki Alþingi þriðju orkubandalagslöggjöf Evrópusambandsins, sem er æðri íslenskum lögum, verður Ísland mergsogið og tæmt eins og að um nýlendu sé að ræða. Allt það sem þjóðin hefur fjárfesti í framtíð sinni og tilvist á þessu frumtilvistarsviði sem velmegandi þjóð í eigin landi, verður frá henni tekið og flutt úr landi. Það mun gerast í skrefum eins og alltaf, því annars væri um skyndiáhlaup og eins konar hernám að ræða og þjóðin myndi skynja slíkt samstundis. En þarna mun hún skynja það of seint. Orkupakki þrjú er því eins og þriðji og síðasti fasi EMU-myntbandalags Evrópusambandsins, þ.e. lýðskrums-evran, óafturkræfur gjörningur um aldur og ævi og partur af stjórnarskrá Evrópusambandsins. Það voru orkulöggjafarpakkar eitt og tvö ekki, því þeir voru slæmt innanríkismál, mjög slæmt, sem skaðaði Ísland. Pakki þrjú er hins vegar einnig utanríkis og milliríkjamál eins og evran (þ.e. ERM-III) er þvers á landamæri þjóða, og efnahagslegt misfóstur af næstum verstu sort sem hugsast getur

ORKULANDHELGI ESB

Þetta jafngildir því að í landhelgi Íslands væru næstum aðeins erlend skip með erlendum áhöfnum að veiðum og sókn og aflamarki stjórnað frá Brussel, þar sem Hafrannsóknarstofnun að yrði skúffa í skrifborði í Brussels. Skipin kæmu aldrei hingað í land og myndu alfarið landa afla sínum erlendis, þar sem vinnuafl er ódýrara, löggjöf rotin og mafíur eru til aðstoðar ryðhrúgudallaútgerðum á matvælasviðinu, sem að stórum hluta til er í höndum og undir vernd mafía. Þannig væri Ísland sprengt aftur á nýlendustig og auðlindum þess stjórnað erlendis frá og allur afrakstur þeirra fluttur úr landi. Fáeinir þjóðsvikakaupmenn myndu samkvæmt gamalli venju fá hér sporslur, en sem þeir einnig myndu flytja úr landi og helst ekki lenda hér, nema til að mjólka landann. Er þetta það sem þjóðin vill? Nei þetta er ekki það sem hún vill. Engan veginn. Það er verið að svíkja hana

MMR 19 ágúst 2019 xD xM
Mynd: Dauðastríð Sjálfstæðisflokksins. Aðeins 6,1 prósenta skilja að fylgi Sjálfstæðisflokks og Miðflokks. Heimild: MMR

DAUÐASTRÍÐ

Þetta er það sem raðbiluð og forhert forysta Sjálfstæðisflokksins stendur fyrir núna, þvert á vilja okkar flokksmanna og það sama gildir um forystu Framsóknarflokksins og að mestu um Vinstri græna. Þrjár raðbilaðar forystur ofnar inn í innbyrðis vandamál hvor annarrar; sem er hörmuleg frammistaða þeirra gagnvart kjósendum. Þessar forystur eru orðnar samskonar FL-grúppuflón og sturtuðu hér bönkunum á hausinn. Það er enginn munur á því liði og þessu liði núna. Núverandi forysta Sjálfstæðisflokksins er búin að kippa flokknum úr sambandi við sjálfan stofntilgang hans og stinga hann í bakið með rýtingi í samfellt 10 ár. Aðförin sést hér á mynd að ofan. Líklegt er að flokkurinn sé búinn að vera um aldur og ævi. Flokkar fæðast og flokkar deyja

ANDSPYRNA

Aðeins Miðflokkurinn hefur veitt andspyrnu. Restin af stjórnarandstöðu-flokkunum á alþingi er með Evrópusambandið á heilanum og gera ekkert sem unnið getur landi okkar gagn og gjörvileika sem fullvalda ríki til frambúðar. Engin forysta þeirra flokka hefur bjarta framtíð fullvalda Íslands að sínu leiðarljósi, þó svo að margir flokksmanna þeirra hafi fengið meira en nóg, - sennilega meira en þriðjungur í tilfelli Samfylkingar, og allt að helmingur Pírata. En flokkarnir eru í höndum nýlendusinna, sem yfirleitt eru nytsamir kjánar, illa að sér í flestu og þekkja ekki muninn á réttu og röngu. Í höndum fólks sem hefur ekki tíma til neins annars en að láta kjósa sig á sem lágkúrulegastan hátt á ný. Þetta er því miður stjórnmálastéttin okkar í dag, og sem þess utan, að miklu leyti er í höndum embættismanna sem fyrst og fremst hugsa einungis um eigin hag og orðin er eins konar ósýnileg valdamafía

Allir sáu hvers konar þjóðsvikamenn voru innanborðs í vinstristjórninni vondu. Lítið betra er innanborðs í þeirri ríkisstjórn sem hyggst varpa fullveldi þjóðarinnar í orkumálum fyrir róða núna. Þessu fólki þarf að refsa af ýtrasta þoli og úthaldsgrimmd, þar til það hefur iðrast, beðist fyrirgefningar og sagt af sér

Alþingi Íslendinga var ekki endurreist til að það yrði gert að aumingjadómi. Sama gildir um mikilvægustu stofnanir lýðveldis okkar Íslendinga. Ræsa þarf því út embættismannamýrina svo að um muni. Þetta gengur ekki lengur. Samsæri embættis,- stjórnmálamanna,- og alþingis gegn íslensku þjóðinni verður að hætta

Orkupakkar 1 og 2 eru tvö síðustu skrefin sem tekin eru fyrir hrap. Það þekkja þeir sem hafa hrapað og mölvast. Síðasta skrefið sem tekið er fyrir hrap, er ávallt það síðasta. Sjálft hrapið er hins vegar óafturkallanlegt. Það er ekki hægt að taka til baka, því þá eru menn þegar hrapaðir

Uppfært kl. 09:25 og 23:30

NÝLENDAN Í OKKAR NÆSTA NÁGRENNI: GRÆNLNAD

Danmörk sem fer með utanríkismál Grænlands og varnarmál þess, hefur afvísað tilboði forseta Bandaríkjanna um að kaupa Grænland út úr danska konungsdæminu. Þetta gerði Danmörk án þess að ráðfæra sig við grænlensku þjóðina. Danmörk þykist eiga Grænland á meðan Evrópusambandið og sérstaklega Þýskaland er með stóran hluta fullveldis Danmerkur undir sér. Danmörk, sem alls ófær er um að verja Grænland, getur heldur ekki varið sjálfa sig. Fárveik staða Danmerkur í höndum Evrópusambandsins kemur í veg fyrir sjálfstæði grænlensku þjóðarinnar. Enginn myndi viðurkenna sjálfstæði Grænlands undir gersamlega vanhæfri varnargetu Danmerkur sem hvergi nándar nærri uppfyllir sáttmálaskuldbindingar sínar við NATO. Danmörk hefur ekki minnstu hugmynd um hvað er að gerast á Grænlandi eða ekki, og hún hefur ekki efni á að vita það. Og ef hún vissi það þá hefur hún enn síður getu og efni á að gera neitt í því. Danska ríkisstjórnin starir því á póstkort af drottningunni á Grænlandi til komast hjá því að horfast í augu við landakortið. Bandaríkjunum myndi aldrei detta í hug að neita Grænlandi um sjálfstæði. Þau myndu beinlínis hvetja það til þess og taka síðan að sér vernd þess með yfirþyrmandi getu til þess. Sameiginlegir hagsmunir landanna, sem rynnu algerlega saman, myndu sjá fyrir því. Kína yrði sparkað þaðan út. Þetta mál er á byrjunarstigi og hefur gríðarlegar geópólitískar afleiðingar. Búast má við því að þjóðþing Dana fari nú í niðurbráðnun og öngþveiti vegna óðagots danska forsætisráðherrans. Hún á ekki Grænland og Danmörk á ekki Grænland, sem Vilhjálmur Eyþórsson bendir á að sé hluti af Norður-Ameríku. Morgunblaðið var með einkar fróðlega grein um Grænlandsmálið í gær

Hobbý-snobb nýlendutímabil 20. og 21. aldar er á enda runnið. Hið sama gildir um allt getulaust Evrópusambandið og nýlendur þess líka. Og þó svo að Bandaríkin reki sig óvart í Eiffelturninn á flugleið þeirra yfir Danmörku til austurvígstöðva Póllands, þá verður bara að hafa það. Hvorki Danmörk né Frakkland myndu hreyfa legg né lið réðist Rússland inn á veikasta hlekk Austur-Evrópu. Þau myndu bara horfa á hana brenna og Grænland líka. Þannig er eðli Evrópusambands nýlenduherra. Sjá febrúar-pistil minn um Grænland hér - og hlustið fyrir alla muni ekki á glórulausan utanríkisráðherra okkar um nokkuð sem helst, og allra síst um veðrið (á heila forsætisráðherrans). Ekkert af því sem hér er að gerast hefur hið minnsta með veðurfar að gera

Uppfært kl 23:30

Lars Seier Christensen vandar ekki danska nýlendu-hobbý-snobb klapphatta-félaginu um Grænland kveðjur sínar, hvers "skólastúlkan" Mette stendur skráð  sem forsætisráðherra fyrir:

"Så Trump udskyder sit besøg til Danmark. Egentlig kan jeg godt forstå ham - vores politikere opfører sig som en flok provinsielle klaphatte ved at afvise alt uden fjerneste overvejelse, omtanke eller blot viden, om hvad der egentlig bliver foreslået. Et land, hvor der istedet tales i en uendelighed om det storslåede initiativ at leje en infantil ballon i London eller latterlige stråmænd om at sælge Lolland, sin bedstemor eller byde ind på Manhattan.

Ingen respekt for hvorfor det lige er, at USA - der er vores eneste reelle beskytter i en stor og farlig verden og de facto i vidt omfang betaler for vores sikkerhed - er bekymrede over Grønland, som Danmark slet, slet ikke har styrke til at forsvare i en krisesituation. Det gad jeg sgu nok heller ikke stille op til, hvis jeg var ham.

Og se disse reaktioner - det er som at se en flok skolepiger, der ikke er blevet budt op til afdansningsballet. “Vi har også travlt med alt mulig andet, æv-bæv...”.

Jeg græmmes.... men du skal være velkommen en anden gang, Mr President."

Nú er bara að bíða eftir því að Asger Aamund komi og hlaði fleiri perlum upp á hálsfesti skólastúlknanna

Fyrri færsla

Svikráðasveitin á Alþingi


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband