Leita í fréttum mbl.is

Skólastúlkan Mette Absurdsen og hin súra skólamjólk Trumps

SAMSTÖÐUFUNDIR Á VEGUM MIÐFLOKKSINS: SELFOSS Í GÆRKVÖLDI

Nú eru tæplega fimm þúsundir Íslendinga búnir að horfa á samstöðufund Orkunnar Okkar gegn orkupakka-3 á vegum Miðflokksins í Keflavík í fyrrakvöld, og um 2500 manns hafa nú þegar horft á fundinn á Selfossi í gærkvöldi. Troðfull hús voru á báðum þessum stöðum

Hér má horfa á fundinn á Selfossi og hér er Keflavík (opnast í nýjum glugga). Hattur ofan fyrir þessu fólki

METTE ABSURDSEN NÝLENDUHERRA

Allt í einu þykjast Danir skilja tvö prósent tungumáls Trumps og eru komnir í draumóraseríu númer 205 um Grænland -í Berlingske- og segjast hafa "sofið í tímunum"

"Varnargeta danska hersins á Grænlandi er nánast bara landhelgisgæslan (d. kystvagt). Við erum með nákvæmlega enga loftvarnargetu í landinu, núll þar, og við erum með engan landher á Grænlandi," bendir Peter Viggó lektor í akademíu danska hersins á:

"Forsvarets kapacitet i Grønland er nærmest kun en kystvagt. Der er ikke noget luftforsvar overhovedet. Det er ikke noget landmilitær," påpeger lektor Peter Viggo Jakobsen fra Forsvarsakademiet."| Berlingske í gær

Og svo kemur rúsínan í pylsuendanum: "Við vitum ekki hvað er að gerast á Grænlandi og við eigum ekki einu sinni til landakort af því," eins og Martin Lidegaard fyrrum utanríkisráðherra Dana (og þar með Grænlendinga líka) bendir á:

"Vi har i årevis kæmpet for flere penge til kortlægning af Grønland. Hvis vi kan gøre det med satellit og et civilt formål, vil det samtidig have et sikkerhedsmæssigt formål, uden at det ansporer Rusland til yderligere oprustning," siger Martin Lidegaard. | Berlingske í gær

JA HÉRNA

Þetta er farið að minna óþyrmilega á nýlendustöðu Íslands hér fyrr á tímum, og sem sótsvört og bölvuð ríkisstjórn Íslands hyggst á ný kalla yfir þjóð okkar og land með orkubandalagslöggjöf Evrópusambandsins. Dýr er fiskurinn okkar að verða fyrir þá sem þangað ætluðu að selja hann tollfrjálst, en sem sætir tollum þar enn. Hvar, hvar í ósköpunum kaupir forysta Sjálfstæðisflokksins og ríkisstjórnin kvalarlostaefnin sín. Hvar? Það væri fróðlegt að vita. Þau fást að minnsta kosti ekki í Hönnubúð. Eru þau nokkuð úr kjallaranum í Brussel þar sem Grikkland var krossfest?

Já, kannski er danska og gjörtapaða staðan á Grænlandi eins og í Belgíu, þar sem ég held (þ.e. ég er ekki viss) að 85 prósent af útgjöldum til varnarmála fari í lífeyrisgreiðslur. Restin af NATO-löndum meginlands Evrópu, fyrir utan þrjár undantekningar, er í flestum tilfellum kvöldverðir í Brussel, og er íslenski föndurklúbburinn á sérsviði Heklunála þá talinn með. Hið raunverulega NATO á meginlandi Evrópu í dag eru Bandaríkin og Pólland, þar sem Bandaríkin eru í viðbragðstöðu - og vel á minnst - bæði við austur og vestur landamæri þess, því Þjóðverjar hafa jú tilkynnt Pólverjum að þeir geti þolað Rússland upp að landamærum þeirra, en gleymdu að segja hvoru megin sú samþykkt gildir. Bandaríski herinn gætir því landamæra Póllands, Rúmeníu og Búlgaríu í austri en Trump gætir pólsku landamæranna á Twitter í vestri. Tíst nægir þar í bili, eins og sést

Merkel mús og Mette skolepige gætu bjargað þessu með því að smíða 12 stykki flugmóðurskip sem knúin væru vindmyllum með endalaust úthald þar sem vindurinn blæs hve hvassast úr afturenda ESB. Danir myndu ekki þora að reisa svo mikið sem einn snúrustaur á Grænlandi af ótta við Rússa á Eystrasalti

Talandi um sæstreng, þá er hvert nýlegt bandarískt flugmóðurskip með tvær Kárahnjúkavirkjanir um borð. Að vísu eru þau ekki skemmtiferðaskip á borð við Queen Mary 2, en þau framleiða hvert fyrir sig 17 sinnum meiri orku en til dæmis það fallega skip sem sótti Ísland heim í júlí. Eitt þannig flugmóðurskip er með 22-falda núverandi vatnsafls-raforkuframleiðslugetu Grænlands og 11-falda allsherjar raforkuframleiðslu Grænlands, sem að helmingi til er framleidd með bruna. Þetta nægir ekki til neins sem Bandaríkin þurfa á að halda til að verja Grænland. Þeir sem eru með sæstreng á heilanum hér á landi, ættu frekar að beina sjónum sínum norður en niður, til að svala snúru-fetisma sínum þar. Það er nefnilega ekki svo langt til Grænlands. Eða bara aðstoða þá við að byggja sitt eigið. Við eigum meira sameiginlegt með Grænlendingum, Bandaríkjunum, Kanada og Nýfundalendingum en úrkynjuðu kóngapakki ESB-veldisins á hausnum

GÚRKUSNEIÐIN CARL BILDT

Það var ansi merkilegt að lesa hér hjá Styrmi Gunnarssyni, sem berst kröftuglega gegn því að ríkisstjórn okkar selji fullveldi Íslands í orkumálum og öllum málum til Brussel, að ESB-Svíinn Carl Bildt sem var forsætisráðherra Svíþjóðar, sem á sínum tíma seldi sig til Hitlers, og sem Carl Bildt seldi síðan í hendur Brussels, skuli þykjast hafa eitthvað að segja um Grænland, Svalbarða og Ísland. Hvað er þessi maður að tala á okkar vegum. Hvað er þessi esb-gúrkusneið að ybba gogg um okkar land. Honum koma okkar málefni ekkert við

Þetta er hið merkilegasta mál fyrir þær sakir að það eru aðeins Bandaríkin sem tryggja að Grænland sé á höndum Dana. Annars væri það á höndum annarra. Og ef Bandaríkin slaka á þar, þá rennur Grænland með sinni grænlensku þjóð á hendur þið vitið hverra

Þegar svo forseti Bandaríkjanna imprar á því að þetta sé ekki nógu gott og talar mál sitt á þann hátt sem hann alltaf hefur gert sem byggingarmeistarinn frá Manhattan, er glímt hefur alla sína ævi við gerspillta embættismenn, verkalýðsfélög og hvatt steypugengi og iðnaðarmenn sína áfram, en sem er ekki nógu fínt mál fyrir Snobbhill-úrkynjaðan herra Carl Bildt ESB-Gúrkusneið von sænskri Klessu, að þá eru menn ekki einu sinni tilbúnir til að ræða málið og kalla það bara absúrd

Forsetinn talar það mál sem hann hefur alltaf talað og sem bandaríska þjóðin skilur, og sem í stuttu máli er það, að þetta er "A BAD DEAL", sem þýðir hættið að níðast á okkur, baktala okkur og notfæra ykkur velvild Bandaríkjanna sem bera hagkerfi, varnarmál og þjóðaröryggi ykkar uppi

Við erum á fullu á Grænlandi og þurfum að vaða í gegnum reglu- og lagafrumskóg fullkominna vesalinga í Kaupmannahöfn, sem ekkert geta og ekkert vita hvað þarna er að gerast, á meðan þið rífið fullveldið af þjóðum Evrópu og hendið þeim í gasvasa Rússa og yfirþýsks-ESB sem þið síðan heimtið að við verjum ykkur fyrir fyrir ekki neitt

Það eru 70 ár liðin frá því að við fórnuðum okkur fyrir ykkur og það í þrígang - og þið eruð aumingjar enn. Okkur langar ekkert til að þurfa að koma aftur til að bjarga vesalingunum ykkur úr úr því nýja helvíti sem þið eruð með í ESB-smíðum núna

Fyrri færsla

Svarandi til sex prósenta kjósenda Sjálfstæðisflokks eru búnir að horfa á fundinn í gærkvöldi


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Hvar get ég mómælt brottför Mike Pence varaforseta Bandaríkjanna frá Íslandi?

Svo lengi sem hann er hérna hjá okkur, erum við laus við Katrínu Jakobsdóttur á Íslandi.

Mikið væri það nú gott.

Er einhver sem veit hvar ég get keypt kol? Ég ætla nefnilega að fá mér kolaeldavél.

Gunnar Rögnvaldsson, 23.8.2019 kl. 09:34

2 Smámynd: Óskar Kristinsson

Gunnar Góður!!!

Óskar Kristinsson, 23.8.2019 kl. 10:28

3 Smámynd: Sigurður Kristján Hjaltested

Góður Gunnar.

Hafa bara Mike nógu lengi hérna hjá okkur.

Þá þurfum við ekki að hafa áhyggjur af þessu

gluggaskrautar rusli.

Sigurður Kristján Hjaltested, 23.8.2019 kl. 13:20

4 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Já.

"Skolepiger

- eins og Lars Seier Christensen orðar það.

Og "klaphatte"!

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 23.8.2019 kl. 13:27

5 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Get sennilega pantað kolin hjá Trump.

Og látið Pence koma með þau.

Stór flugvél.

Plássið má ekki fara til spillis.

Stór og falleg kol. Jafnvel koks líka.

Fimm sinnum betri og orkumeiri en brúnkolin sem Þýskaland eldar mat ofan í 80 milljón manns á í Evrópusambandi sínu.

Bandarísk kol.

Made in USA!

Gunnar Rögnvaldsson, 23.8.2019 kl. 20:21

6 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Það kom stór og falleg skothríð í dag.

Stórkostlegt !

Kína var að tilkynna um tolla í dag til að hefna sín vegna US-tolla sem koma 1. sept. En Kína er búið að nauðga "al-þjóða-viðskiptakerfinu" áratugum saman án þess að neinn þyrði að gera neitt í því. Þetta mun halda áfram þar til þeir hætta, loka sig inni og falla saman a la Sovét. Eru þegar komnir á klósettið. Svo skammar hann seðlabankann eins og hund. Það hefur ekki sést síðan að Ronald Reagan (R) var forseti.

---------------------------------------------

As usual, the Fed did NOTHING! It is incredible that they can "speak" without knowing or asking what I am doing, which will be announced shortly. We have a very strong dollar and a very weak Fed. I will work "brilliantly" with both, and the U.S. will do great...

---------------------------------------------

...My only question is, who is our bigger enemy, Jay Powell or Chairman Xi?

---------------------------------------------

Our Country has lost, stupidly, Trillions of Dollars with China over many years. They have stolen our Intellectual Property at a rate of Hundreds of Billions of Dollars a year, and they want to continue. I wont let that happen! We don-t need China and, frankly, would be far....

--------------------------------------------- 

....better off without them. The vast amounts of money made and stolen by China from the United States, year after year, for decades, will and must STOP. Our great American companies are hereby ordered to immediately start looking for an alternative to China, including bringing..

---------------------------------------------

....your companies HOME and making your products in the USA. I will be responding to Chinas Tariffs this afternoon. This is a GREAT opportunity for the United States. Also, I am ordering all carriers, including Fed Ex, Amazon, UPS and the Post Office, to SEARCH FOR and REFUSE,....

--------------------------------------------- 

....all deliveries of Fentanyl from China (or anywhere else!). Fentanyl kills 100,000 Americans a year. President Xi said this would stop - it didnt. Our Economy, because of our gains in the last 2 1/2 years, is MUCH larger than that of China. We will keep it that way!

---------------------------------------------

The Dow is down 573 points perhaps on the news that Representative Seth Moulton, whoever that may be, has dropped out of the 2020 Presidential Race!

--------------------------------------------- 

Wall Street vesalingarnir fóru því næst í krampakast.

Og síðan gerðist það að Katrín loftbelgur forsætisráðherra sagðist ætla að lenda loftbelg sínum á Íslandi til að mæta eins og eitt stundarkorn í innivinnuna sína, og hitta Pence varaforseta Trumps. Síðan mun hún takast á alþjóðlegt loft á ný frá Oki hér í Borgarfirði.

Allt þetta á einum degi.

Segið svo að við lifum ekki á athyglisverðum tímum.

Gunnar Rögnvaldsson, 23.8.2019 kl. 21:27

7 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

OG - það er nú þegar komið svar. Trump er búinn að hreinsa hlaupið, hlaða og skjóta. Og það er SVONA!

---------------------------------------------

For many years China (and many other countries) has been taking advantage of the United States on Trade, Intellectual Property Theft, and much more. Our Country has been losing HUNDREDS OF BILLIONS OF DOLLARS a year to China, with no end in sight....

---------------------------------------------

....Sadly, past Administrations have allowed China to get so far ahead of Fair and Balanced Trade that it has become a great burden to the American Taxpayer. As President, I can no longer allow this to happen! In the spirit of achieving Fair Trade, we must Balance this very....

---------------------------------------------

...unfair Trading Relationship. China should not have put new Tariffs on 75 BILLION DOLLARS of United States product (politically motivated!). Starting on October 1st, the 250 BILLION DOLLARS of goods and products from China, currently being taxed at 25%, will be taxed at 30%...

---------------------------------------------

...Additionally, the remaining 300 BILLION DOLLARS of goods and products from China, that was being taxed from September 1st at 10%, will now be taxed at 15%. Thank you for your attention to this matter!

---------------------------------------------

Take that! Kínverski Kommúnistaflokkurinn sem Bjarni Ben er í bankaráði með.

Gunnar Rögnvaldsson, 23.8.2019 kl. 22:00

8 identicon

Það er rétt sem Mogens Glistrup sagði á sínum tíma að Danir væru ófærir um varnir landsins.  Þeim væri því skást að setja bara upp einn símsvara sem endurtæki í sífellu:  Við gefumst upp.

Allir sem eitthvað þekkja til mála í Danmörku vita vel um ótta Dana við þýska yfirganginn.  

Hvað Styrmi gengur svo til að vitna í helsta ESB trúboða svía er vægast sagt skitsófrenískt.  Er allur, gjörvallur, Sjálfstæðisflokkurinn að afhjúpa sig sem stuðningsmenn hins þýska Lebensraum?  Hvað er eiginlega í gangi í þessu Valhalla Engeyinga.  Er það einhvers konar sjamperleinískur barnaskapur um "There will be peace our time"?  Þeir sem ekkert læra af sögunni munu verða lúserar um eilífð.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 23.8.2019 kl. 23:59

9 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér Símon Pétur.

Winston var líka mjög umdeildur á sínum tíma. Mörgum var afar illa við hann. Trump hefur þann hæfileika að þegar hann segir eitthvað, þá bregðast menn við án þess að skoða það sem er að baki, og þeir koma því ekki auga á það sem hann gerir. Og Trump talar heldur ekki nógu fínt mál fyrir marga. Það gerir næstum enginn sem getur eitthvað verulega mikið annað en bara að tala. Trump talar því mál "hinna fyrirlitlegu". Hann setur þá sem kunna froðusnakk, en geta ekkert, í lélegt ljós og það þola þeir ekki. Þetta fólk myndi heldur ekki geta hlustað í hálfan tíma á Harry Truman í dag án þess að bilast.

Verkalýðsfélag kennara í Chicago hefur nýlokið ferð sinni til Venesúela. Þeir komu heim fullir aðdáunar á skólakerfi Maduro sem "engum skóla í opinberum rekstri hefur lokað" og engri "heilsugæslustöð" heldur. Þessu greindi leiðari Wall Street Journal frá í gær.

Verkalýðsfélagið, með eldrauð andlit sín, hefur hins vegar sagt að það hafi ekki fjármagnað ferð þessara fulltrúa þess, en skaðinn er þegar skeður og allir vita að þar var andi félagsins á ferð.

Kannski að Katrín Jakobsdóttir, sérfræðingur í froðu og lofttegund, hafi verið á leið í sömu al-þjóðlegu-ferð, til að koma sér hjá því að fara hina þjóðlegu-ferð, sem er algjör frumskylda hennar, og sú eina. Hún er því í dag ekki á vegum neinna sem kusu hana, alveg eins og formaður Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks. Þetta fólk þrennt er einn og sami maðurinn: Homo froða á klikkhaus: Ríkisstjórnar-félagarnir þrír sem hyggjast taka frelsið frá íslensku þjóðinni í hennar eigin landi, og varpa því í gin svona heilastöppufélags eins og þarna í Chicago. Það styttist í að ESB verði einmitt svona. Það gat aldrei orðið neitt annað en nýtt sovétríki og Venesúela. Hálfnuð ferð þess er og peningaskömmtun er því enn í Grikklandi. Þar er mynt þjóðarinnar skömmtuð henni í hennar eigin landi; af Homo froðu á klikkhausum í Brussel.

Getur þetta orðið verra? Ekki mikið lengur að minnsta kosti.

Kveðja 

Gunnar Rögnvaldsson, 24.8.2019 kl. 03:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband