Leita í fréttum mbl.is

Hringurinn þrengist um Orkupakkamenn

Björn Bjarnason virðist hafa orðið "sérfóður" um samsæriskenningaheiminn allan undir leiðsögn Roberts Mueller saksóknara Demókrata. Þar staglaðist Björn sífellt á "hringurinn þrengist um Trump" og álíka fjölmiðlaþvælu, sökum inngróinnar meðvirkni með krötum, umboðslausum embættismönnum og að því er virðist andúðar á sjálfstæðum mönnum. Í dag er Björn aftur kominn á vettvang með allsherjar visku sína um heim samsæriskenninga. Að þessu sinni eru það þeir sem vara við Orkusambandi ESB sem eru að sverja sig saman gegn skoðunum Björns og áttavilltum frænda hans Bjarna Benediktssyni. Og ég sem lengi vel hélt að eitthvað verulegt væri að marka það sem Björn lætur frá sér fara:

Þvæla: Mueller hreinsar pyttinn (hann er pytturinn)
Þvæla: Lygavefurinn gliðnar hjá Trump
Þvæla: Rússa-rannsóknin í Washington er komin á nýtt stig
Spuni: Rússnesk nettröll gegn Hillary
Þvæla: Rússa-tengslin í innsta hring Trumps
Þvæla: Trump sigri hrósandi - skýrendur á öðru máli
Lygi: Trump flokksvæðir öryggisvottun
Þvæla: Trump og endalok diplómatíunnar
Þvæla: Trump afvegaleiðir álitsgjafa

Fyrst að Björn trúði þessu, þá trúir hann hverju sem er, eins og Bjarni og Benedikt frændi. En auðvitað var hér bara um áróður að ræða, eins og þann sem Björn viðhefur um yfirríkislöggjöf Orkusambands ESB í dag

Þetta minnir einna helst á ritstjórn hins þýska Der Spiegel, sem birti í blaði sínu endalausar og hreinar lygasögur blaðamanns þess í Bandaríkjunum, um núverandi forseta Bandaríkjanna, kjör hans, um landið sjálft og bandarísku þjóðina. Er upp komst var blaðamaðurinn rekinn úr starfi með skömm. En eftir sat ritstjórn blaðsins, sem gagnrýnislaust hafði birt lygasögur blaðamanns síns, vegna þess að þær féllu hundrað prósent að bandaríkjahatri ritstjórnarinnar sjálfrar. Þar kom því allt heim og saman í einni allsherjar klámútgáfu blaðsins um Bandaríkin í vestri. Bandaríkjahatur mælist einna mest í Þýskalandi og hefur gert svo áratugum saman

Máflutningur Björns er farinn að minna á málflutning íslenskra ESB-sinna sem sögðu (1) að ekkert mál væri að ganga í Evrópusambandið, því líkaði Íslendingum ekki vistin, gætu þeir bara hætt í ESB. Hið sama (2) var sagt um evruna. Henni væri bara hægt að skila. Enginn þessara manna tekur því eftir að peningaskömmtun ríkir enn á evrusvæðinu í Grikklandi í dag, heilum tíu árum! eftir hrun. Þar er grísku þjóðinni skammtaðir peningar í sinni eigin mynt. Og það sama (3) var sagt um eðli Evrópusambandsins. Jafnvel sambandinu sjálfu og eðli þess væri hægt að afneita og hafna er inn væri komið, sögðu menn. Svipað (5) og reynt er að halda því fram að hægt sé að hafna og afneita eðli Orkusambands ESB í dag. Sagt var líka (4) að hægt væri að "semja" við Brussel um inngönguna. En einmitt inngangan er það sem Gamla testamentið varar þjóðir jarðar við, með því að leggja ógnarþunga á sjálfa útgönguna. Hún er svo erfið að henni er líkt við verstu plágur jarðar. Þar er ekki um ýkjur að ræða

Síðustu daga hef ég ferðast um Norðurland, en hvergi hitt einn einasta mann sem bölvar ekki landráðalegum áformum ríkisstjórnar Íslands, vegna Orkusambands Evrópusambandsins. Reiðiský var yfir Skagafirði, vegna ríkisstjórnarinnar. Sama ský virðist einnig hanga yfir tapstöðvum xD í Garðabæ, Keflavík og Selfossi

Þessi ríkisstjórn er ekki ríkisstjórn Íslands. Meina þyrfti henni aðgang að Alþingi Íslendinga, svo komið verði í veg fyrir óbætanlegan skaða á lýðveldi okkar. Hún er algjörlega umboðslaus í þessu máli. Bukner-stemming ræður för ríkisstjórnarinnar

Fyrri færsla

Skólastúlkan Mette Absurdsen og hin súra skólamjólk Trumps


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Elíasson

Mér finnst það alveg stórmerkilegt að enginn skuli hafa haft orð á þessu fyrr.  Í stjórnarskrá landsins er hvergi nokkurs staðar minnst á "þingsályktunartillögu" enda get ég ekki betur séð en að þarna sé um að ræða nokkuð sem er alveg kolólöglegt.  Fyrir það fyrsta gengur þingsályktunartillaga ÞVERT Á ÞRÍSKIPTINGU VALDSINS,sem stjórnarskrá landsins byggir á.  SAMKVÆMT STJÓRNARSKRÁNNI Á EKKERT EITT VALD AÐ GETA TEKIÐ ÁKVARÐANIR FYRIR ÞJÓÐINA, ÞESS VEGNA HÖFUM VIÐ ÞRÍSKIPTINGU VALDSINS.  ÞAÐ ÆTTI LÖGFRÆÐINGUR AÐ FARA YFIR ÞESSI MÁL.  Svo er nokkuð merkilegt að fara yfir það að ÞINGSÁLYKTUNARTILLÖGUM hefur alltaf verið beitt þegar á að "keyra" mál í gegnum þingið, sem vitað er að eru umdeild og reiknað með að meirihluti þjóðarinnar er andvígur en einhverra hluta vegna, er með meirihluta í þinginu samanber umsóknina í ESB á sínum tíma og orkupakka þrjú núna....

Jóhann Elíasson, 28.8.2019 kl. 11:05

2 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Takk Jóhann fyrir að minna á skiptingu valds, sem komið er úr Gamla testamentinu, og sem Sir John Fortescue (1394 - 1479) kynnti inn í lög stjórnarskrárbundins þingræðis Bretlands í smíðum, sótt beint úr stjórnarskrá Ísraelsríkis hins forna, er kennt er við "Móses-stjórnarskránna". Sjá; Hvað er Íhaldsstefna.

Ekki þarf að lesa langt í Konungabók Gamla testamentisins til þess að sjá hvar í sögunni við erum stödd á eftir Davíð. Viðurstyggð umrótsmanna blasir við augum allra er hafa þau opin og skilja.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 28.8.2019 kl. 12:35

3 identicon

Rétt er þetta allt saman hjá ykkur. En takið eftir því líka, að nú er makríllinn kominn inn í dæmið líka. Eða hvers vegna haldið þið, að þessar ásakanir um makrílkvóta, ofveiði á makríl og viðskiptin við Rússana skuli vera komið upp á borðið allt í einu núna? Haldið þið, að það sé einhver tilviljun? Ónei, segi ég. ESB fylgist vel með, hvað er að gerast hér á landi varðandi orkupakkana, frændur okkar á Norðurlöndum líka, og vita, að hér er allt á suðupunkti og í uppnámi varðandi O3, og notfæra sér það. Frænur okkar, Norðmenn, vita, að ekkert er okkur mikilvægara en fiskveiðar og sala fiskafurða, og þeir leyfa sér að vera með ESB í að herða tökin á okkur, og hóta öllu hinu versta. Í hvaða tilgangi gera þeir það og það á þessum tíma? Þetta lítur svo sem sakleysislega út á yfirborðinu, en í rauninni eru þeir með þessu að senda okkur skilaboð með hótunum út af makrílkvóta og -veiðum, ef við hunskumst ekki til þess að samþykkja orkupakkana og láta þá fá það, sem þeir vilja, í þeim efnum. Og hananú! Þið höfum verra af, eru þeir í rauninni að segja við okkur, ef þjóðin lætur sig ekki hafa það að kokgleypa orkupakkana einn af öðrum, og látum þá fá það, sem þeir vilja. Það eru við, sem ráðum, þið skuluð bara verða að beygja ykkur og bukta fyrir okkur, sitja og standa eins og við segjum og viljum. Hafiði það!! - Þeir halda sumsé, að þjóð, sem er komin af norrænum víkingum séu ekki skapmeiri en þetta og vilji hlíta þessu, og allt út af þeim gungum inná þingi, sem þora ekki annað en samþykkja og skrifa undir hvert einasta plagg, sem frá þeim kemur, og eru jafnvel reiðubúnir að selja þeim ömmu sína, værði beðið um það. Hvað eru Norðmenn eiginlega líka að skipta sér af innanríkismálum hér á landi með því að taka þátt í svona aðför að okkur eins og varðandi makrílinn? Þeir virðast vera búnir að steingleyma því, að við erum komin út af þeim norsku víkingum, sem flúðu frekju og yfirgang Haraldar hárfagra, og vildu heldur vera frjálsir bændur hér uppá Íslandi. - En svo vantar okkur sárlega Ólaf Ragnar núna á Bessastaði, því að hann hefði, - eins og Hjörleifur Guttormsson sagði við mig um daginn, þegar ég hitti hann og talaði við, - verið búin að gera eitthvað til að stöðva þennan ógerning og taka slaginn við þingið um orkupakkann, líkt og Icesave forðum tíð sælla minninga, og síðan látið þetta tafarlaust í þjóðaratkvæði. Ég treysti ekki þessum strák á Bessastöðum fyrir túkall í þeim efnum. Hann er bara eins og hver önnur puntudúkka þar, finnst mér. Ég kaus hann heldur ekki, því að ég hafði enga trú á honum í forsetaembættið, eða hann myndi nokkuð beita sér eins og Ólafur Ragnar gerði. Svo einfalt sem það er nú. Þetta orkupakkamál verður Alþingi til háborinnar skammar og háðungar alla tíð. Ég segi ekki annað.

Guðbjörg Snót Jónsdóttir (IP-tala skráð) 28.8.2019 kl. 14:58

4 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér fyrir Guðbjörg Snót.

Já já. Þetta er að gerast vegna þess að Útlendingar hafa frétt að hjér uppi sitji við völd þrír flokkar mismunandi sósíalista og hvers umrótsþingmaður eins þeirra (Sjálfstæðisflokks) hélt því fram í miðri málstofu Alþingis Íslendinga, að aðgreining og skipting valds komi úr heilabúi sósíalistans Montesquieu, sem upp reis 300 árum á eftir Sir John Fortescue.

Með því að vísa til einvers sem "almennt er þekkt" vísa þingmenn þriggja umrótsflokka ríkisstjórnar sósíalista á Alþingi á tímabilið stóra þar sem "almennt var þekkt og viðurkennt" að jörðin væri flöt.

Enginn þingmanna Sjálfstæðisflokksins virðist lengur vita í hvaða flokki hann er. Raðbilunin er slíkt að þar er jörðin alveg flöt.

Plebbatímar ríkja.

Kveðja

Gunnar Rögnvaldsson, 28.8.2019 kl. 15:42

5 Smámynd: Jón Valur Jensson

Þetta er rétt athugað hjá Jóhanni um þingsályktanir. En þótt þær séu ekki nefndar í stjórnarskrá, falla þær, í meiri háttar málum eins og þeim, sem hann efndi, undir hugtökin "mikilvægar stjórnarráðstafanir", "mikilvæg stjórnarmálefni" og "stjórnarerindi" sem er að finna í 16.-19. gr. stjórnarskrárinnar. Slík "mikilvæg stjórnarmálefni" BER að leggja fyrir forseta Íslands á ríkisráðsfundi, og þau öðlast EKKI gildi, nema hann undirriti þau. Nú er þetta einmitt einn helzti úrkostur forsetans, sem við blasir í málinu.

Jón Valur Jensson, 28.8.2019 kl. 19:03

6 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér fyrir Jón Valur. 

Já þetta er sama sagan og í Icesave. Samsæri þingmanna gegn þjóðinni. Fámenn og umboðslaus valdaklíka hunsar íslensku þjóðina einu sinni enn og gefur skít í fullveldi hennar.

Það var fróun í því að sjá Sigmund Davíð Gunnlaugsson formann Miðflokksins búa til enn þynnri ESB-gúrkusneið úr Guðlaugi Þór smástrámanni Sjálfstæðisflokksins í Kastljósi áðan. Ekki þorir Bjarni Benediktsson formaður að láta þjóðina sjá sig aftur eftir þetta hér. Hann heldur sig því áfram í felum inni í ættarskápnum með snuð og bleyju. Þvílíkt og annað eins!

Segja má að Valhöll geri nú alla útgerð sína út á hrygningarstöðvar Sjálfstæðismana, eins og sést svo fordæmisgefandi vel á línuriti um hrun Norsk-Íslenska síldarstofnsins á Síldarminjasafninu á Siglufirði, eftir að græðgin bar Norðmenn ofurliði þeirra megin líka, þar sem hrygningarstöðvar síldarinnar eru. 

Það styttist í að reist verður minjasafn um Sjálfstæðisflokkinn í frystihúsakynnum Valhallar. En það verður þá líklega að gerast með sósíalistískum styrk frá hinu opinbera, því varla mun neinn Sjálfstæðismaður vilja minnast þeirra plebba sem þar sitja núna og eyðilögðu flokkinn með því að éta hann út á sósíalistískan gaddinn að innan.

Eftirmælin verða líklega á þessa leið: Plebbar í pilsfaldi gerðu útaf við flokkinn á humar- og metoo-bólutímabili nýnýlendutíma Sjálfstæðisflokksins, í höndum kjána.

Farið hefur betra fé, úr þessu.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 28.8.2019 kl. 20:16

7 identicon

Sjálfstæðisflokkurinn er dauður.

Orðinn að ESB hrunflokki.

Að viðurkenna það er fyrsta skrefið

að endurheimta sjálfstæði lands og þjóðar.

Þannig er staðan.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 28.8.2019 kl. 21:25

8 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Já Símon Pétur.

Sjálfstæðisflokkurinn er orðinn ófær um að stunda þjóðlega samvinnu (vinna með sinni eigin þjóð og fyrir hana). Hann hefur því fundið sér nýja þjóð, eða réttara sagt brot úr öðrum brotnum þjóðum til að vinna fyrir, og kallar það "al-þjóðlega samvinnu". Svona fer ávallt fyrir þeim sem misst hafa getuna á heimavelli. Þeir leita sér að stuðningshópum sem afkomu sína eiga undir því sem valdið hefur klofningi annarra þjóða.

Þetta er gamla sagan: Alþjóðastefna (Internationalism) gegn Þjóðarstefnu (Nationalism).

En þetta mun svo rífa restina af flokknum á hol, því með Orkubandalagi Evrópusambandsins mun orkuverð margfaldast á Íslandi, eins og nótt fylgir degi, og búa til risavaxna fallöxi almennings sem tekur flokkinn endanlega af lífi. Þá verður ekki aftur snúið, nema enn lengra niður í líkkistu flokksins.

Forystan skynjar ekki þær vitsmunalegu pólitísku breytingar sem geopólitískar staðreyndir á jörðu niðri eru að valda, með fullum og óstöðvandi skriðþunga nauðsynjar.

Hagsmunir Íslands, íslensku þjóðarinnar og hins vegar forystu Sjálfstæðisflokksins, fara ekki lengur saman.

Kveðja

Gunnar Rögnvaldsson, 28.8.2019 kl. 23:04

9 Smámynd: Lárus Ingi Guðmundsson

Island lagði inn umsokn i ESB og varð gjaldþrota um þ bil 6 srum seinna !!

Heldur folk ap þ hafi verið tilviljun ?

Með þyskabanka inn a gafli jja isl þjoðinni !

Stora planið v að taka isl sem gjaldþrota þjoð inn i ESB og lata i frsmh af þvi greipar sopa.

Nu er Angela Merkel buin að koma i heimsokn eins ig ENGILL dem nafnið hwnbar bendir til.

TAKIÐ EFTIR .... hvað skwður i kjolfarið ?????

Það er mikilvægt að fylgjast með þvi !!

Esb er vatikanið .. 

Nato er lika vatikanið.

Angela  er nefnil lika vatikanið og hefur gengið vel að leyna þvi en Island er MOTMÆLENDA ÞJOÐ..!

Angela buin að troða ser i raðir MOTMÆLENDA eins ig sja ma a seinustu frettum hvað varðar norðurlanda rað  sem eru ju MOTMÆLENDA RIKI.!

Bjorn Bjarnason gerir aldrei rað fyrir þci að strið geti brotist ut a meðal NATO tikjanna sjalfra.

Yrði sjalfsagt fljotur að kenna oðrum en þeim um ef og ÞEGAR evropa byrjar að loga.

Kv

Lig 

Lárus Ingi Guðmundsson, 28.8.2019 kl. 23:19

10 Smámynd: Lárus Ingi Guðmundsson

Eg gleymdi .. afram Maduro.

Lárus Ingi Guðmundsson, 28.8.2019 kl. 23:20

11 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Takk fyrir innlit Lárus.

Meira..:

Í Valhöll sitja núna eins konar úrbeinaðir smáfuglar í trekt ofan á hakkavél sem halda vilja fast í gulfótinn gamla, og jafnvel fórna sér fyrir hann. En hann er farinn og kemur ekki aftur. Staðreynd mun svo koma þjótandi hjá og ýta á hnappinn. Eins er það með þær utanríkisstefnur sem urðu til í kjölfar þeirra nauðsynja sem útkoman úr Síðari heimsstyrjöldinni kallaði fram. Þær aðstæður eru ekki lengur fyrir hendi og heimurinn er því kominn í nýjan enduruppsetningar-fasa. Staðreyndir nauðsynja sjá fyrir því (e. imperatives). Þeim verða allar þjóðir að hlýða því annars farast þær og ríki þeirra hætta að vera til.

Kveðja

Gunnar Rögnvaldsson, 28.8.2019 kl. 23:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband