Miðvikudagur, 20. nóvember 2019
Tvenn lagakerfi glóbalista keppa um völdin
SAMEINUÐU- OG SJARÍALÖGIN
Þessi árin fer fram barátta tveggja kerfa glóbalista um völdin
Fyrra kerfið samanstendur af allskyns vinstribúllum vestrænna úníversalista, með helstu bækistöðvar í kálgörðum Brussels, byggingum Sameinuðu þjóðanna og í Valhöll. Þar á búllum kyngja menn til dæmis erlendum lögum um raforkumál af ótta við refsingar að utan (heyrðu raddir að ofan). Og þar á bæ hyggjast menn jafnvel aðskilja ríkið frá þjóðinni, bara sí svona, eins og þeim datt á sínum tíma í hug að skilja frámálaeftirlitið að frá Seðlabankanum. Sú hugmynd var firrt tískuhugmynd firrtra tíma. Ekkert hafa menn þó lært í þeirri höll. Þess vegna segi ég að Valhöll sé orðin raðbilað eða raðfirrt fyrirbæri og komin í varanlega kryppu (sem er annað og betra nafn á kreppu)
Enginn stjórnmálaflokkur er með eins stóra kryppu og Sjálfstæðisflokkurinn því hann er orðinn samheitalyfjaflokkur fyrir KRATISMA. Og allir þeir flokkar eru ein stór kryppa á næstum öllum vesturlöndum vegna glóbalisma þeirra. Þeir eru umboðsmenn engra og fyrirlíta þá sem þeir sækjast eftir að láta kjósa sig. Kratar á öllum Vesturlöndum hata verkalýðinn sem þess vegna er hættur að kjósa þá
Hið síðara kerfi samanstendur hins vegar af íslamistum sem vilja að sjaríalög gildi alls staðar fyrir allt mannkyn. Hvar sem þeir setjast að í nægilega miklum mæli, innleiða þeir sjaríalög og reyna að afnema ríkið sem þeir komu til (e. deterritorialize)
Þessi tvö kerfi keppa um yfirráð yfir vígvellinum sem að mestu samanstendur af vesturlöndum í samviskubitskryppu með Karl Marxhor úníversalismans lekandi niður um sig næstum öll. Og ef fer sem horfir, þá munu íslamistar taka þessar vinstribúllu-kryppur í nefið og snýta þeim síðan úr sér, sem því sem þær eru
Þeir sem fyrirlíta bæði þessi kerfi eins og til dæmis ég vilja að leið Íhaldsmanna verði farin og að það sé Alþingi sem setji lögin sem gilda eiga fyrir alla á Íslandi og í ALLRI lögsögu þjóðarinnar. Þetta er leið Íhaldsmanna og þar með leið Jóns Sigurðssonar. Annars er úti um lýðræðið, og þrælaríki nýs Egyptalands bíður; imperíal-glóbal-heimsveldið, sem Bretland er að að brjótast úr núna, áður en það er of seint
Íslenska Þjóðkirkjan er ekki glóbalisti. Hún er þjóðkirkja. Hendum frekar stjórnmálaflokkum af fjárlögum þjóðarinnar en henni. Flestir þeirra kunna hvort sem er ekki þjóðlega samvinnu lengur, heldur bara alþjóðlega, þ.e. eru of mikið glóbalistar. Vér, hins vegar, erum Mótmælendur og vér mótmælum því enn imperíal-glóbal-heimsveldinu sem þessir flokkar allir (þó ekki Miðflokkurinn) starfa of mikið fyrir. Þeir hlusta á raddir sem þeir halda að komi að ofan. Jafnvel eitt hvísl frá Brussel er nóg til að berja þá í kútinn, því þeir halda að það komi að ofan. Aðskilnaður íslensks ríkis og Brussels er því það sem menn eiga að berjast fyrir
Fyrri færsla
"Millistétt" Guðlaugs Þórs í Kína reyndist gangstétt
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Föstudagur, 15. nóvember 2019
"Millistétt" Guðlaugs Þórs í Kína reyndist gangstétt
Ekki nóg með það að raðbilun formanns Sjálfstæðisflokksins og gangstéttar-gengis hans í Valhöll hafi dælt Bjarna Ben formanni flokksins í AIIB-bankaformennskufaðm Kínverska kommúnistaflokksins, þá er einnig ljóst að hin margumtalaða kínverska millistétt Guðlaugs Þórs utanríkisráðherra, reyndist aðeins vera sandburður á borð við þann sem lifir lífi sínu undir gangstétt; sem til dæmis bandaríska millistéttin gengur aðeins á í neyð, eða þegar átta strokka tryllitæki hennar er of stórt til að skjótast inn á eina ríkisrekna kontórinn sem til er þar vestra fyrir alla: þ.e. kontórinn fyrir númeraplötur ökutækis
Ekki nóg með það að bankakerfi Kínverska kommúnistaflokksins sé að hrynja og sé búið að vera hrynjandi síðan að það var opnað, þá hefur millistétt Guðlaugs Þórs sett enn eitt heimsmetið í fátækt. Síðustu tvo áratugina hefur hlutur kínversku þjóðarinnar í tekjum lands síns verið sá minnsti í gjörvallri sögu mannkyns á síðari tímum. Hvorki meira né minna. Það land sem kemst næst þessu misfóstri kommúnistaflokksins, er Þýskaland frá og með aldarbyrjun, eða frá og með Hartz vinnumarkaðs "umbótum" þýska sósíaldemókrataflokksins, hvers formaður nú sængar hjá Vladímír Pútín, einræðisherra hins rússneska sambandsríkis, sem enginn fær að yfirgefa eins og sást svo glöggt á tvennum stríðum um Tjéténíu, sem er Tíbet Kremlar
Kína er því að springa í loft upp, og næst þar á eftir er það Þýskaland. Gerræðislegur fjármagnsflótti af ólöglegu fé er nú frá Kína. Gerræðislegur! Bankakerfið hristist og skelfur eins og bleikur Royalbúðingur, og Hong Kong er komið í hakkavélina, þar sem kosningar er verið að banna
Aðeins þrír til fjórir pappírar halda heiminum saman núna og Bandaríkin bera þá alla uppi. Njáll minnist hér pappírsins frá 1839 og tveggja hinna:
1. NATO-sáttmálinn frá 4. apríl 1949
2. Taívan-samskipta sáttmálinn við Bandaríkin frá 10. apríl 1979
3. Varnarsamningur Japans og Bandaríkjanna
4. Vopnahléssamningur á Kóreuskaga
Forseti Tyrklands var í heimsókn hjá Donald Trump í Washington. En bandaríski forsetinn hefur lagt mikið á sig og hætt miklu til að reyna að halda NATO-saman með því að þola bandamann á borð við Tyrkland. Þar ættu menn ekki að láta glepjast, því öll ríkisyfirhöfuð Tyrklands hafa verið af einræðisherraætt frá og með 1919. Erdogan er bara annað nafn á herstjórnarlegu einræði Kemalista, eins og Pútín er annað nafn á Brjésnjéff, og Merkel annað nafn á Brüning. Tyrkland verður aldrei vestrænt. Aldrei. Og það verður Rússland heldur ekki, og því síður Kína. Endursameinað Þýskaland verður það ekki neitt sérlega mikið og hefur heldur aldrei verið það. Vestur-Þýskaland var innan-sviga fyrirbæri í sögunni. Þýskir hafa alltaf litið á sig sem sérfyrirbæri í Evrópu og æðri þeim sem lentu í Rómarveldi. Þetta verða menn að horfast í augu við og loka Ríkisútvarpinu í DDRÚV
Og svo er það Intermarium-heimshlutinn austur í Evrópu og inn í Asíu, sem aðeins fáir hér heima og enginn í Brussel veita athygli né sýna skilning á, nema Bandaríkin. Lokið því í guðanna bænum Ríkisútvarpinu, því þá fá menn bæði augu og eyru, alveg gratís
Við skulum því minnast hverjir það voru sem gerðu sjálfstæði Íslands mögulegt og verja fullveldi okkar. Minnast, en ekki gleyma. Guðlaugur Þór, þetta þarft þú að muna og minnast, og hætta ding-dong bulli á gangstétt. Miðflokkurinn er með þetta á hreinu... ég segi ekki meira... í bili...
Fyrri færsla
Af hverju tala menn um "uppljóstrara"?
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 13. nóvember 2019
Af hverju tala menn um "uppljóstrara"?
Var þá sviksamur starfsmaður Seðlabankans "uppljóstrari"? Nei það var hún ekki. Allt bendir til þess að hún hafi bara verið ósköp venjulegur og sviksamur starfsmaður á of háum launum og fríðindum hjá skattgreiðendum. Starfsmaður sem ætlaði að auðga kommaveldi landsins með sinni eigin útgáfu af réttlæti. Þetta fólk er kallað félagslegir stríðsmenn í dag, og það á ekki rétt á sér á opinberum launum
Þegar maður les viðtengda frétt Morgunblaðsins af hamfarafréttastofu DDRÚV í Austur-Berlín Reykjavíkurborgar, þá kemur þar glögglega í ljós hin undirliggjandi alræðisdagskrá austur-þýskalands þess, sem það sjálft kallar RÚV; sem er sú að ríki borgaranna skuli vera algerlega aftengt þjóðinni. Enginn sem hefur verið eitthvað nema á DDRÚV má koma nálægt stjórnmálum án þessa að fá stöðu hins grunaða, en sem hins vegar ávallt og ætíð er sú staða sem ríkið á að hafa og þar með talið DDRÚV. Enginn sem unnið hefur þjóðinni gagn má koma nálægt stjórnmálum, nema ef hann kemur frá DDRÚV. Og enginn sem þekkir neinn, nema þá helst á vinstrihreiðrinu DDRÚV, má koma nálægt pólitík
Sviksamir starfsmenn eru bara sviksamir starfsmenn. Þeir eru ekki "uppljóstrarar" frekar en sumir ofsóknarbrjálæðingar, sem halda svo oft að þeir viti sannleikann um aðra og séu handhafar réttlætis fyrir alla, sbr. Seðlabankinn plús DDRÚV, gegn einkaframtaki Samherja. Fólk sem heldur að það viti allt, fyrst það veit tíu prósent
Allir vita að DDRÚV er ekki hlutlaus fréttastofa, því hlutlausir fjölmiðlar eru ekki til. Ríkisfréttastofur geta aldrei orðið annað en venjulegt pólitískt stjórnmálaafl
CNN segir til dæmis hreint út að það hati Donald J. Trump forseta Bandaríkjanna og starfi samkvæmt því. CNN er ekki að fela hatur sitt. Áhorfendur og auglýsendur eru því varaðir við. DDRÚV þarf að segja það hreint út að það hati hægrimenn (og alveg sérstaklega Sigmund Davíð Gunnlaugsson og krónískt Davíð Oddsson), fullvalda Ísland og einkaframtakið (sérstaklega Samherja H/F); svo að þvingaðir kúnnar þess og auglýsendur geti varast það og þurfi þar með ekki að borga fyrir það. Og þeir sem samt vilja borga, vita þá hvað þeir eru að borga fyrir
Það er kominn tími til að stinga á þjóðarmeininu DDRÚV á opinberum launum. Þetta gengur ekki svona lengur
Fyrri færsla
ESB-umsóknin er þegar dregin til baka [u]
![]() |
Láttu ekki svona, Einar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
Mánudagur, 11. nóvember 2019
ESB-umsóknin er þegar dregin til baka [u]
Að mínu mati gat Alþingi ekki sótt um aðild að Evrópusambandinu, vegna þess að sambandið má aðeins semja og eiga við pólitísk höfuð ríkja (e. heads of states)
Þess vegna var það ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri grænna sem sótti um. Össur Skarphéðinsson var þá æðsti diplómat Íslands gagnvart útlöndum. Illa fengið samþykki Alþingis var aðeins til heimabrúks og sjónhverfingar einar
Og já Evrópusambandið er sjálfstætt ríki, þ.e. yfirríki (e. supra-national), en það er þó ekki fullvalda enn. Hins vegar er verið að dæla fullveldi aðildar-ríkjanna yfir í það á skrifandi stund, og í sumar naut ESB-yfirríkið til dæmis aðstoðar Sjálfstæðisflokksins til þess. Sá flokkur dældi þá fremstur í flokki fullveldi Íslands í orkumálum yfir í sambandið. Aðeins Miðflokkurinn stóð vaktina og barðist gegn því framsali. Þeir sem vita hvernig loðnu og síld er dælt úr skipum í bræðslur, vita hvernig fullveldisbræðsla á borð við ESB virkar
Og það sem meira er, Evrópusambandið myndi hafa tekið á móti og samþykkt umsókn frá ríkisstjórn Íslands þó svo að Alþingi hefði ekki lagt blessun sína yfir hana. Samþykki Alþingis er innanríkismál Íslendinga, segir sambandið í þessu sem öðrum tilfellum
Það er ekki okkar mál ef þið svíkið kjósendur ykkar eða brjótið eigin stjórnarskrá, segir sambandið ávallt. Þið megið bara ekki brjóta okkar eigin stjórnarskrá. Svo passið ykkur á því hvað þið eruð að skrifa undir, er þið til dæmis samþykkið orkupakka sem og aðra löggjöf okkar. Hvort þið gerið ykkur að fíflum og blekkið kjósendur eins og gert var þá og í kosningunum 2009, er ekki okkar mál
Þannig hefði sjálft Alþingi ekki getað dregið umsóknina til baka. Það getur ríkisstjórn Íslands aðeins gert. Og það hefur hún gert. Gunnar Bragi Sveinsson (takk!) var þá æðsti diplómat Íslands gagnvart útlöndum og ríkisstjórn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar (takk!) var pólitískt yfirhöfuð landsins. Alþingi hefði getað mótmælt eða fellt ríkisstjórn hans það kemur ESB ekkert við en það gerði þingið ekki og veitti þar með samþykki sitt. Þess vegna heitir ríkis-stjórn ríkisstjórn
Alþingi er ekki pólitískt höfuð Íslands. Það er hins vegar ríkisstjórnin, og hún fer með utanríkismál Íslands. Og hún dró sem kunnugt er umsóknina til baka í mars 2015
- uppfært; mánudagur 11. nóvember 2019 kl. 19:26:57
Og eins og sjá má hér á heimasíðu sjálfrar fullveldisbræðslu Evrópusambandsins í Brussel, þá er Lýðveldið Ísland þann 7. ágúst 2019 hvorki með stöðu umsóknarríkis (e. Candidate Country), NÉ með stöðu hugsanlegs umsóknaríkis (e. Potential Candidates) - þökk sé Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni og Gunnari Braga Sveinssyni!
Svo, hvert er málið?
Fyrri færsla
Hvað gerðist í síðasta heiladauða Evrópu? Svar hefur borist að handan. ESB-svindl og NYT [u]
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (20)
Föstudagur, 8. nóvember 2019
Hvað gerðist í síðasta heiladauða Evrópu? Svar hefur borist að handan. ESB-svindl og NYT [u]
Jú það sem engum datt í hug að gæti gerst; valdajafnvægið á meginlandi Evrópu hrundi á aðeins sex vikum. Þá voru Frakkland og Bretland stórveldi og Bandaríkin þóttu kúrekar og hálfgerðir bjánar. Viðurstyggð myndaðist í varamáli manna er þjónninn með stjarft andlit birtist og sagði ráðamönnum að borist hefði símskeyti frá "a place called Washington", sem hann rétti að þeim á silfurbakka með flísatöng, svo þeir gætu "pikkað" það upp og flissað. Bæði stórveldin stunduðu friðþægingu og skriðu um á jörðinni af ótta við að búðingurinn myndi hristast á borði herr Hitlers. Sama hegðun er stunduð í dag gagnvart Rússlandskeisaranum, sem er að endurreisa sovétið sitt
Fyrir Bandaríkin er NATO að verða gildra. Aðeins þau eru klár í slaginn. Aðeins þau eru með græjurnar og aðeins þau eru með mannskap og getu til að beina valdi hvert sem er, hvenær sem er, alla daga ársins. Það eru því Bandaríkin sem hendast af stað þegar kallið kemur. Ekki valdalaus og getulaus Macron né gufugleypirinn Merkel á kústskafti þýska hersins (hann á bara eitt, og því stjórnar 27 manna nefnd)
Eitt það versta sem fyrir Bandaríkin getur komið er að kallið komi, en vegna 30 manna nefndar með 90 fyrirvörum, þá tapast tími og bandarískum mannslífum er fórnað í þvælu með því að láta stöðuna brjótast úr böndum, en sem hægt hefði verið að hafa fulla stjórn á ef brugðist væri við með það sama: immed. Þess vegna eru Bandaríkin á "stand by". Þau hendast af stað þegar kallið kemur. Það tekur sig ekki að bíða eftir hinum, þeir flækja bara málin og eru hælbítar
Nefndarmaðurinn Macron og gufugleypan Merkel eru því víðs fjarri á þeim stöðum sem harðast verður sótt að til að komast sem lengst inn í Evrópu með skyndárás. En þar eru Bandaríkin NÚNA, en ekki þau
Það er martröð fyrir Bandaríkin að þurfa að búa við þetta. Þau bíða því eftir að meginland Evrópu gangi nú loksins í NATO og geri sitt; en sem löndin þar geta náttúrlega ekki og munu aldrei geta, því þetta er jú meginland taparanna
NATO er hernaðarbandalag og þannig bandalag þarf her. Annars verst það engum. Hvað ert þú með mikið af eignum í loftinu? Á sjó, undir sjó og á landi? Hvar er kjarnorkuvopnafælnimáttur þinn? Hvar eru græjurnar ykkar á sporbraut um jörðu? Hvernig ætlið þið að blinda óvininn og granda græjum hans á sporbraut? Af hverju er nánast allt tíðnisvið ljósvakans hjá ykkur selt og gefið burt til fyrirtækja og Kínverska kommúnistaflokksins. Hvernig ætlið þið að tala saman án þess að allir séu að hlusta, og á hvaða tungumáli. Esperantó kannski, eða latínu?
Það er svo sem skiljanlegt að Macron vilji vígbúast fyrst, eða að minnsta kosti áður en Merkel kemst í sokkana. Eða eigum við kannski að leyfa henni að vera á undan? Allir eru jú svo góðir í þessum 27 manna klúbbi getuleysingja, þannig að við leyfum Þjóðverjum að vera fyrstir. Er það ekki. Macron skellir bara níundu rúgbrauðssinfóníunni á fóninn á meðan - tralla a lalla la la - hún er löng - og kvalarfull
Já það er erfitt að brjótast úr vöggu og læra að skríða. En það mun hins vegar ekki gerast. Tottið því bara snuðin og babblið áfram
..uppfært: föstudagur, 8. nóvember 2019 kl. 21:06:26 IST
MEINTUM HEILADAUÐA SVARAÐ
Það tók ekki langan tíma þar til að svar barst að handan. Annegret Kramp-Karrenbauer varnarmálaráðherra Þýskalands hefur brugðist við umræddum NATO-heiladauða Emmanuel Macrons á þann veg að:
1. Þýskaland auki útgjöld sín til varnarmála þannig að þau verði komin upp í tvö prósent af VLF árið 2031
2. Að Þýskaland stofni þýskt þjóðaröryggisráð
3. Að Þýskaland muni í auknum mæli nota aukinn herafla sinn til að gæta hagsmuna Þýskalands
Þetta passar upp á hár. Þegar evran springur í loft upp þá mun Þýskaland geta notað nýjan Luftwaffe sem innheimtustofnun til að rukka evrulöndin um þúsund milljarða evra sem TARGET2 greiðslukerfi evrunnar milli seðlabanka er í mínus um
...fullt stopp. Yfir til þín Emmanuel..
AUKABITAR FRÁ ESB OG RÚSSLANDI
Segið svo að "post-truth" sé ekki að gefa undan
Spánn hyggst ekki fara eftir né fylgja refsiaðgerðum Bandaríkjanna gegn Kúbu (Helms-Burton Act). En á Kúbu er stjórnstöð sósíalismans við að koma Venesúela aftur á steinöld. Spænska ríkisstjórnin segir að hún muni ekki beygja sig vegna 16 spænskra fyrirtækja sem starfa á Kúbu. Spánn ætlar sér að nota ESB sem skjöld í málinu. Á Spáni dúsa nú þjóðfrelsismenn Katalóníu í dýflissum, næstum án dóms og laga
Bíddu var það ekki þetta sem glóbalistarnir voru að reyna að koma á koppinn síðustu 30 árin. En svo þegar hann (isminn) bitnar á þeim sjálfum þá á bara ekki að fara eftir neinu. Merkilegt
Rússland er í svipuðum "vandamálum", eins og Íslendingar vita einna landa best. Þar ætlar Komma Zar Pútín að leysa málin með því að stærstu rússnesku fyrirtækin sem verða fyrir barðinu á refsiaðgerðum Bandaríkjanna vegna innlimunar þeirra (anschluss) á Krímskaga í Rússland sleppi við að opinbera ársreikninga sína. Hvílík paradís fyrir þið vitið hvað. Jú, fyrir Komma Zar Pútín
Evrópusambandið ætlar að styrkja Tyrkland með 50 milljónum fjárkúgunar-evra sem eiga að fara í að "styrkja" tyrknesku landhelgisgæsluna og "bæta" aðstæður "flóttamanna" í Tyrklandi, sem sambandið með milljörðum evra hefur borgað Erdogan fyrir að halda til baka (látið hann fjárkúga sig)
Mikið er veldi Evrópusambandsins. Hvernig skyldi annars ganga með ítölsku mafíuna í ESB. Fær hún kannski líka greiðslur, til dæmis við matvælaeftirlit fyrir Brussel
Á blaðamannafundinum sumarið 2008, er OLAF-ársskýrslan fyrir árið 2007 um fjársvindl í stofnunum Evrópusambandsins var kynnt, þá gerðist það merkilega að hvorki málaflokksábyrgur Siim Kallas kommissar frá Eistlandi, né heldur hinn þýski Franz-Hermann Brüner yfirmaður sjálfrar OLAF-rannsóknarskrifstofunnar um ESB-svindl, voru til staðar. Þar kom nefnilega í ljós að í 60 prósentum af þeim málum sem embættinu hafði tekist að rannsaka og upplýsa, voru það aðeins fimm lönd sem stóðu fyrir 400 af 666 tilfellunum. Það voru löndin Þýskaland, Ítalía, Rúmenía, Búlgaría og Belgía. Um var að ræða svindl upp á rúmlega átta milljarða evra, sem var þó langt í frá það svindl sem um var að ræða, því aðeins það sem komst upp um var með í OLAF-skýrslu ársins. Þessu greindi Jótlands Pósturinn frá þann 22. júlí 2008
Aldrei hefur þurft að leita á náðir New York Times um fréttir af svindli og spillingu í stofnunum Evrópusambandsins. Íslendingar hafa bara aldrei vitað neitt um hvað er að gerast í Evrópusambandinu, né heldur um hvað það snýst. Þetta hlustaði ég á og las um í dönskum fréttum í tæplega 30 ár. Þetta er sjálft erfðaefni sambandsins; þ.e. svik, spilling og prettir. Eina ástæðan fyrir þessum fréttum í NYT núna er sú að líberalistunum þar er illa við þá sem eru helstu tilvistarlegu bandamenn Bandaríkjanna í Evrópu; þ.e. Intermarium-löndin í austri. Þeim á NYT er illa við þá sem stóla á Trump, svipað og Washington Post hataði Nixon út af lífinu. Engri Watergeit er þó sigað á ESB og heldur ekki á neina kanslara né forseta þar. Þetta heldur bara áfram, frá og með fyrsta túkalli sem innheimtur var í tóma kassa sambandsins, plús falda og skattfrjálsa lífeyrissjóði 1100 stjórnmála- og embættismanna Evrópusambandsins í skattaskjólum Lúxemborgar, sem komst ekki upp um nema fyrir þær sakir að hann varð gjaldþrota, því græðgi þeirra var svo mikil að þeir höfðu tæmt sjóðinn og skilið hann tóman eftir í skuld sem lenti á skattgreiðendum. Á sama tíma lágu margir þeirra sem bótaþegar á skattgreiðendum heimalanda sinna, án þess að gefa neitt upp um sjóðina í Lúx. Þetta mál grasseraði árin í aðdraganda evruskuldakreppunnar 2009 og purfti ekki "popúlista" til, því líberalistar og ESB-alkar höfðu þá ekki enn fundið upp það nýja, bilaða- og heiladauða heiti á hugmyndafræðilega andstæðinga sína. Mesti "popúlisti" allra tíma er sennilega sjálft Evrópusambandið, en þó sérstaklega evra þess
Hlustum í 25 mínútur á Conrad Black lávarð af Crossharbour segja frá Watergeitinni sem bandarískir fjölmiðlar siguðu á Nixon, og svo hins vegar það sem hann segir um minni þjóðarinnar. Hann skrifaði nefnilega ævisögu um líf og störf Richards Nixons. Bandaríska þjóðin er á mjög svo verði. Hún treystir ekki fjölmiðlum landsins frá og með þá, enda ástæðulaust
Fyrri færsla
Frakkar loka á heilbrigðisþjónustu fyrir hælisleitendur; "Post-truth" endar [u]
![]() |
Macron: Nató samstarfið upplifir heiladauða |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 11.11.2019 kl. 01:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Miðvikudagur, 6. nóvember 2019
Frakkar loka á heilbrigðisþjónustu fyrir hælisleitendur; "Post-truth" endar [u]
HERTAR REGLUR Í FRAKKLANDI
"We want to take back control of our migration policy," - sagði Edouard Philippe forsætisráðherra
Ríkisstjórn Emmanuels Macrons forseta Frakklands kynnir í dag nýja lagasmíði á sviði innflytjendamála. Númer eitt er að það erlenda fólk utan ESB sem Frakkland spyr ekki eftir og getur ekki notað, fær ekki landvistarleyfi. Frakkland mun gefa út lista yfir það löglega og lærða erlenda vinnuafl sem landinu vantar, í hvaða landshluta og í hvaða starfsgrein. Þetta er kvótakerfi á löglega innflytjendur frá löndum utan ESB, sem eru næstum allur heimurinn. Númer tvö er að loka á grunnheilbrigðisþjónustu til handa hælisleitendum fyrstu þrjá mánuðina. Númer þrjú er að reyna með þessu að stinga upp í frönsku Þjóðfylkinguna. En hún segir að þetta sé einungis heitt loft og gagnist ekki nema fyrir frönsku elítuna. Ekki skal ég segja um það. En sem sagt, engin heilbrigðisþjónusta fyrir albanska hælisleitendur fyrstu þrjá mánuðina
Hvað segirðu Gunnar.. skyldu þeir þá nokkuð hætta að koma? Já, ef þetta er auglýst nógu vel í albönskum fjölmiðlum - plús hættu á fósturdrápum, sé um Ísland að ræða (svo ég minnist nú ekki á óskalista íslenska forsætisráðherrans í þeim efnum)
PENINGARNIR BÚNIR Á SPÁNI
Lífeyrissjóður spænska ríkisins er næstum tómur og að verða búinn með peningana. Hann er því á barmi gjaldþrots. Spánn er með eina lægstu fæðingartíðni í heiminum. Ekki mun því takast að skrapa inn nýja peninga í lífeyrissjóði ríkisins og vandamálin vegna geldingar þjóðarinnar eru því óðum að byrja hrannast upp í spænska óðaöldrunarhagkerfinu. Þar er atvinnuleysi 14,2 prósent núna og 32,8 prósent hjá ungu fólki
Þetta er jú Evrópusambandið. Hvað.. já en þeir eru með evru! Já þeir eru með evru og það er einmitt vandamálið. Hvað skyldi sjálfsmorðssveit Benedikts evrusvitabola og frumuklasa-Loga segja við þessu. Á ekki að skella sér í ofninn?
Evran => þýsk handjárn við þýskt elliheimili => massíft langtíma atvinnuleysi => eyðilegging vinnumarkaðs => skuldum gjaldþrota banka hent á ríkissjóð því annars hrynur evran => enn meira atvinnuleysi => enn hærri skattar => vonlaust að stofna fjölskyldu => gelding þjóðar => enn hærri skattar => þjóðargjaldþrot
- Uppfært að morgni fimmtudags:
HVAÐ SEGIR ORÐABÓKIN
Sé Oxford-enska orðabókin skoðuð þá er deginum ljósara hvert við erum komin í útafkeyrslunni sem hófst 1989. Orðið "post-truth" (nú,- eða ný-sannleikur) var kosið orð ársins 2016 (kannski vegna fáránleika þess). Það þýðir þetta hér; dæmi um "post-truth" og "post-modernity":
Að Kommúnistaflokkur sé ekki kommúnistaflokkur
Að lofthitasinnar séu ekki kommúnistar að reyna að ná völdum
Að nytsamir kjánar séu eitthvað annað en nytsamir kjánar og því notaðir sem nytsamir kjánar
Að barn í móðurkviði sé ekki barn í móðurkviði
Að mislingar séu hollir
Að Sjálfstæðisflokkur geti verið ósjálfstæðisflokkur
Að krati sé ekki sósíalisti
Að mjúkt-vald sé vald
Að bráðnun jökla sé óeðlileg
Að myndun jökla sé óeðlileg
Að rafbíll sé eitthvað annað en brennandi farsími á hjólum
Að ESB sé eitthvað annað en Egyptaland hið forna
Að Vesturlönd geti staðist án Kristni
Að Vesturlönd séu ekki Gamla testamentið
Að Mótmælandi sé ekki mótmælandi alþjóðaisma
Að Hitler hafi verið þjóðarsinni en ekki alþjóðasinni
Að Nallinn sé ekki haturssöngur komma um þjóðríkið
Að sameiginleg mynt án þjóðríkis geti staðist
Að peningapóltík sé eitthvað annað en pólitík
Að ESB sé eitthvað annað en óþjóðleg stórpólitík
Að til sé eitthvað sem heitir "hlutlaust borgaralegt ríki" á borð við "óháða seðlabanka", sem ekki heldur eru til frekar en "óháðir" fjölmiðlar
Að ríki geti staðist án þjóðkirkju
Að þjóð geti þolað aðrar þjóðir innan í sér
Að "fimmta iðnbyltingin" sé bylting
Að frosinn skítakamar+iPhone úti í 10 stiga frosti sé betra en pípulagnir, vatnsalerni og rennandi vatn innandyra
Að TCP/IP og http-portið sé betra en að sleppa við vatnsburð og hafa vatnsþrýsting
Að allir séu góðir
Að enginn njósni
Að enginn sé vondur
Að stríð sé ekki hið eðlilega ástand mála
Að friður sé ekki innansviga ástand mála, eins og Platon sagði
Að brosgretta á andliti sé merki góðs
Að náttúran sé ekki vond
Að náttúran sé ekki hörð
Að náttúran sé að verða uppseld
Að bólur springi ekki
Að náttúrubólan springi ekki
Að ferðamannabólan búi ekki í náttúrubólunni
Að allar menningar séu jafngóðar
Að öll trúarbrögð séu jafngóð
Að nýlendutímabil hafi verið óeðlilegt og óæskilegt
Að Rússland geti verið eitthvað annað en Rússland
Að Kína geti verið eitthvað annað en misfótur
Að sjálfstætt Skotland verði sjálfstætt
Að einræðisherra sé eitthvað annað en einræðisherra
Að AIIB sé eitthvað annað er kommúnistaflokkurinn
Að hafa ætlað að opna útibú Harward í Moskvu 1994
Að kjósa komma og búast við öðru en kommúnisma
Allt þetta er að byrja að enda líf sitt núna. Þvælan sem hófst með hruni Sovétríkjanna og stofnun Evrópusambandsins er að enda. Hinn eilífi friður Kants var þvæla. Háskólar þeirra líka (heiðnikirkjuveldið). "Þinn guð er minn guð, þitt fólk er mitt fólk" mun standa áfram eins og Rutarbókin boðar. Engir fólksflutningar geta staðist án þessa. Að öðrum kosti er það öngþveitið og upplausnin sem ná mun völdum, og allir vita hvernig það endar. Velkominn til baka, gamli sannleikur
Tengt
An Era of Unparalleled Espionage Risk Is Upon Us (Stratfor)
Fyrri færsla
Af hverju vill forysta Sjálfstæðisflokksins aðskilja íslensku þjóðina frá ríki hennar?
Stjórnmál og samfélag | Breytt 7.11.2019 kl. 08:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
Þriðjudagur, 5. nóvember 2019
Af hverju vill forysta Sjálfstæðisflokksins aðskilja íslensku þjóðina frá ríki hennar?
VARÚÐ
Sá æskilegi aðskilnaður ríkis og kirkju sem Gamla testamentið boðaði með því að segja að það væru lög mannanna en ekki lög Guðs sem réðu landinu í Ísraelsríki hinu forna, hefur þegar farið fram. Íslenska þjóðkirkjan er ekki með löggjafarvald á Alþingi. En það virðist hins vegar enn vera spurning hvort að Heiðnikirkjuveldið sé með löggjafarvaldið þar ennþá. Það sýnist mér á til dæmis (1) forsætis,- og (2) dómsmálaráðherrunum sem boða bæði (1) fósturdráp fram að fæðingu, þ.e. útburð Íslendinga (og innburð útlendinga) og svo (2), aðskilnað ríkis og þjóðar eins og var í Sovétríkjunum
Íslenska þjóðkirkjan á að vera lögfastur leið- og lögsöguhluti þjóðstjórnarinnar og á fjárlögum íslensku þjóðarinnar, því annars kemur Sovét-Kremlið og étur þjóðina. Þetta verður að vera þannig, því annars fer illa fyrir þjóðríki Íslendinga. Afar illa
"It yet remains a problem to be solved in human affairs, whether any free government can be permanent, where the public worship of God, and the support of religion, constitute no part of the policy or duty of the state in any assignable shape."
Joseph Story (17791845) hæstaréttardómari Bandaríkja Norður-Ameríku
"HLUTLAUST" RÍKISVALD GETUR EKKI HALDIÐ ÞJÓÐ SAMAN
Engin ríkisstjórn, ríkisvald eða ríkisstofnun neins staðar, hefur algera lögsögu yfir þjóð sinni. Fullt af ríkisborgurum íslensku þjóðarinnar og allra annarra þjóða líka eru búsettir á lögsögu erlends ríkis sem ræður yfir þeim; sem ræður hvað þeir mega, og mega ekki gera og segja í því ríki. Þannig er það einnig með þá útlendinga sem eru hér á landi. Það á að minnsta kosti að vera þannig. Þeir eru á lögsögu þjóðríkis okkar Íslendinga og verða að haga sér í samræmi við það, og fylgja og taka upp siði okkar, reglur og þar með trú, ef þeir ætla að vera hér til frambúðar, eða hljóta verra af. Sé þetta ekki gert þá hættir þjóðríki Íslendinga og allra annarra þjóða líka að vera til, og í stað þess munu erlend ríki eða alþjóðlegt sovétríki ráða yfir öllum Íslendingum hvar sem þeir finnast, og öllum öðrum þjóðum jarðar líka. Þannig að hin dauðfædda og gerræðislega hugmynd um að stofnanir, og til dæmis einnig trúarstofnanir óskyldra þjóða, séu jafn réttháar og okkar eigin kristna Þjóðkirkja er í okkar eigin landi, er jafngildi þess að segja; gjörið svo vel og traðkið þjóðríki Íslendinga í hel, brennið Íslendingasögur, Biblíu hennar og tungu á báli og að öllu því verði þannig með tíð og tíma alfarið stjórnað frá til dæmis Mekka, Róm, Kreml, Peking, IMF eða því sem enn verra er; Sameinuðu þjóðunum, sem orðið er fáránlegt nafn á nú-þegar rotinni stofnun í byggingu sem hýsir sem betur fer algerlega ósameinaðar þjóðir, og sem vonandi verða ósameinaðar um aldur og æfi, því annars brýst helvíti á jörðu út
Það sem ég er að segja er þetta: ríkisvald eitt og sér (e. secular state) býr ekki til þjóð. Og það getur heldur ekki viðhaldið þjóð né haldið henni saman, nema með ofríki og að lokum ofbeldi og þá hættir ríki þjóðarinnar að búa við takmarkað ríkisvald. Það hefur þá breyst í ofríkið. Þess vegna koma flestir Íslendingar aftur heim, eða í það minnsta langar mjög oft til að koma aftur heim. En þeir koma ekki aftur heim bara vegna þess að hér sé hver sem er annar jafn rétthár og Íslendingur í einhverskonar hlutlausu útópíuríki líberalismans. Nei þeir koma heim af því að þeir eru Íslendingar og geta aðeins verið Íslendingar hér heima í sínu eigin ríki. Og þannig er það með flestar aðrar þjóðir líka, nema þær þjóðir sem hata sovétríkið þarna heima, og yfirgefa það því fyrir fullt og allt og snúa aldrei til baka, nema að það falli. Það er aðeins í þjóðríki þess þjóðfrelsis Biblíunnar sem hún boðaði og gaf okkur, að hægt er að búa við takmarkað ríkisvald. Þetta er gjöf Biblíunnar til mannkynsins, sérstaklega til Vesturlanda. Annars er það bara ofríkið og hið ótakmarkaða ríkisvald sem bíður fólksins. Þess vegna má ekki taka Þjóðkirkjuna úr sambandi við þá sjóði, þjóðstjórn og ríki þjóðarinnar sem hún skaffaði henni. Hún verður að fá að vera meðstjórnandi og meðábyrg áfram, því annars fer ríkið útaf eins og í sovét. Þannig virka því miður stjórnmálamenn. Þeir aka útaf, svíkja þjóðir sínar og framleiða misheppnuð ríki eins og við sáum til dæmis á 20. öld. Þeim er ekki treystandi einum. Aldrei!
HAFA ÞEIR STIMPLAÐ SIG ÚT?
Klessuverk líberalismans um aðskilnað ríkis og kirkju sem virðist hafa fyllt Valhöll svo upp af plebbum að upp úr skorsteini hennar flæðir lítið annað en argasta þvaður útópískra lýðskrumara af verstu sort; er og verður aldrei neitt annað er klessuverkið um aðskilnað þjóðar og ríkis. Þið hafið siðrofið ykkur úr þjóðinni, eins og Agnes bendir réttilega á (ég hvet þig Agnes; meira af þessu!). Forysta Sjálfstæðisflokksins er gengin úr þjóðinni og sá aðskilnaður sést einkar vel á hjákátlega taparalegu fylgi meginlands hennar, sem ekki er lengur til húsa í húsi Íslensku þjóðarinnar, nema til málamynda: þ.e.a.s. ekki lengur til húsa í Bilbílunni, Íslendingasögunum, tungunni og Snorra; sem hafði séð Gamla testamentið og vissi því vel að enginn mátti vera konungur nema yfir sinni eigin þjóð. Enginn konungur mátti vera konungur yfir öðrum þjóðum; það er algerlega bannað! Þess vegna heitir Gamla testamentið Gamla testamentið, því það er gamalt og þrefalt eldra en Snorri, sem þess vegna naut góðs af því. Auðvitað gerði hann það, því það sem er gamalt er oftast gott. Sovétríkið varð því ekki gamalt og náði það því aðeins þeim míkróskópíska og hlægilega aldri að byrja og enda sem ný þvæla. Það sama gildir um ESB. Og líka um aðskilnað ríkis, kirkju og þjóðar
Labbakútar líberalismans sem dýrka hið nakta borgaralega "hlutlausa" ríki, eru að verða aleinir eftir á nöktu torgi heimsku sinnar. Þeir eru komnir út úr þjóðinni sem vill ekki lengur meðtaka hinn ýtrasta hugmyndafræðilega þvætting þeirra um íslensku þjóðina og þjóðríki hennar. Þeir eru því næstum búnir að vera og eru að steingerast núna. Þeir hafa nefnilega búið til vígvöllinn sem verður til þegar herinn er aðskilinn frá ríkinu, fjármálaeftirlitið frá seðlabankanum og seðlabankinn frá þjóðinni og þjóðkirkjan frá ríki þjóðarinnar. Trúverðugleiki þeirra er tölva, sem enginn í íslensku þjóðinni á neitt sameiginlegt með
Ég hef aldrei á ævi minni séð aðra eins tapara og hafast við í Valhöll núna. Sannarlega sé ég þar eina fremstu plebba þjóðarinnar, uppgjafarsett naívista og dagdrykkjumenn ólaga og upplausnar. Næsta skrefið er nýja sovétríkið þeirra við Austurvöll, sem verður nákvæmlega eins og það síðasta; þar sem heil rússnesk þjóð var aðskilin frá ríkinu - sem murkaði síðan úr henni lífið. Þið eru ekki með öllum mjalla, það get ég sagt ykkur
ÞJÓÐIN
Íslenska þjóðin er Biblían, hin Íslenska þjóðkirkja, Íslendingasögurnar og tungan. Þið hins vegar eruð næstum ekki neitt, eða um það bil vesæl 20 prósent og greinilega á leið í ruslið, því þið hafið skilið ykkur frá íslensku þjóðinni með því að vera hálfsovéskir ríkisplebbar. Engin þjóð sem er ekki-þjóð með ekki-þjóð-stjórn, mun halda áfram að vera þjóð, því hún getur ekki viðhaldið sér og þjóðríki sínu með ekki-þjóðstjórn á sínum eigin þjóð-málum á Þingvöllum, og með útibú í klessuverki líberalista við Austurvöll
Vigdís forseti er ekki að berjast fyrir húsi erlendrar tungu. Nei, hún er að berjast fyrir húsi íslenskrar tungu, til þess að þjóðríki okkar megi áfram vera þjóðríki Íslendinga. Hún er ekki að aðskilja. Hún er ekki að taka þjóðríki okkar í sundur. Hún er að reyna að halda því saman, eins og ávallt er fyrsta boðorð fjárhirða: að halda hjörðinni saman. Valhöll vantar lífsnauðsynlega trésmiði, fiskimenn en umfram allt fjárhirða, því Abraham, Jakob, Moses og Davíð voru sauðfjárbændur sem umfram allt kunnu að halda hjörðinni saman. Hvar er fé ykkar, þið þarna í Valhöll. Eruð þið nokkuð búin að slátra því öllu, og kannski éta það allt og byrjaðir að gefa úr víxla! Ég mun að minnsta kosti ekki kjósa ykkur aftur næst ef þið tæmið ekki hinn Alþjóðlega postulínshlandkopp sem er þarna uppi á sjálfu stofuborði ykkar núna. Takið hann vinsamlegast niður, tæmið hann og setjið feitan og bitastæðan hrút í askana og berið á borð þjóðarinnar
Hið fimmta og misheppnaða útópíska líberalistaríki Frakka, á sinni fimmtándu misheppnuðu stjórnarskrá í Frakklandi, er ekki að berja niður oksítanska tungu út af engu. Það ríki Frakka hefur neyðst til að viðurkenna að án einnar tungu verður Frakkland ekki eitt ríki lengur, heldur mörg ríki. Þó svo að þeir fengju neistann að þeirri misheppnuðu hugmynd 1789, þ.e. að skilja kirkjuna frá franska ríkinu og kveikja svo með ríkiseldspýtum í Notre Dame, vegna innbyggðs ríkiskæruleysis, þá hafa þeir neyðst til að taka upp baráttuna gegn íslam sem er að eyðileggja franska ríkið að innan, er þeir fyrir útópískan misskilning skildu kristnu kirkjuna að frá frönsku þjóðinni með þvættingnum um aðskilnað ríkis og kirkju. Með því að gera sinn eigin Guð svona lítinn, gáfu þeir eftir pláss til Mekka, sem nú ræður ríki í stórum hlutum Frakklands. Þegar maður gerir sinn eigin Guð svona lítinn þá stækkar guð annarra og nær völdum. Þetta verða menn að horfast í augu við. Annars eru þeir bara vesælir kjánar
EKKI BÚIÐ ENN
Sem betur fer er enginn texti í bandarísku stjórnarskránni sem tók tilliti til þvaðurs Jeffersons um "vegg á milli ríkis og kirkju", því hann var staddur erlendis í byltingarbrennandi Frakklandi, er íhaldsmennirnir George Washington, Alexander Hamilton og James Madison lögðu síðustu hönd á bandarísku stjórnarskránna, og létu málefni bandarísku þjóðkirkjunnar í stjórnarskránni í anda þeirrar ensku renna yfir til fylkjanna, sem enn eru að melta málin og munu taka þær upp von bráðar, og setja í lög. Engum datt þarna í hug að Bandaríkin yrðu neitt annað en kristið ríki. Engum.. engum.. engum.. datt annað í hug. Bara alls engum - nema náttúrlega plebbum! Engu landsvæði og fólki þess hefur því verið hleypt inn í þjóðríki Bandaríkjanna nema að það sé fyrst orðið: 1) kristið og 2) á enskri tungu. Engum nema kjánum dytti slíkt í hug
Jú við viljum aðskilnað valds, og það fegnum við úr Gamla testamentinu. En allra helst viljum við að þið getið ekki stjórnað of miklu, því við elskum þjóðfrelsið sem Biblían skaffaði okkur of mikið til þess að við treystum ykkur fyrir því. Við viljum því að Íslenska þjóðkirkjan hafi eftirlit checks and balances með ykkur þarna við Austurvöll! Við viljum því að það eftirlit og varnarvirki okkar sé óhagganlega fast á fjárlögum þjóðarinnar. Vér erum nefnilega Mótmælendur!
****
Ég bendi hér á frekara og betra þjóðstuðningsefni til aflestrar um Þjóðkirkjuna sem órjúfanlegan hornstein þjóðríkja Vesturlanda:
1. Biblían, þ.e. Hin heilaga ritning. Höfundar: útgönguþrælarnir af þrælaríki Egyptalands, sem var einskonar Evrópusamband þeirra daga, þ.e. Hús fjötranna. Biblían er kennslubók í óhlýðni
2. Þessa hér mikilvægu ritgerð: Hvað er Íhaldsstefna: höfundar, Ofir Haivry og Yoram Hazony
3. Heimspeki Gamla testamentisins. Höfundur: Yoram Hazony
4. Dyggð þjóðarstefnunnar. Höfundur: Yoram Hazony, heimspekingur
5. Hringur úr gaddavír. Höfundur Bernard Connolly, hagfræðingur
6. Athugasemdir mínar hér í gær
(7) Bannrit sem ekki ætti að lesa: Stjórnarskrá og lagaheimspeki Sovétríkjanna og hæstaréttar þeirra (sem ESB tók til sín og Valhöll fylgir núna). Þar sem þjóðin var aðskilin frá ríkinu. En ef þið skylduð þó lesa þann óþverra, þá sjáið þið að minnsta kosti hvaðan lagaheimspeki ESB, ECJ og þar með myntar,- og Orkubandalags þess er komin
EKKI GERA ÞAÐ!
Skiljið vinsamlegast ekki íslensku þjóðina frá ríki hennar. Hendið vinsamlegast þvælunni um hið "hlutlausa ríki" (e. civil state) í ruslið, því hún heldur ekki. Þannig ríki lifa ekki af. Þau leysast upp. Stundum er hægt að vera stoltur af því sem maður aldrei gerði. Hér býðst göfugt tækifæri til þess
Fyrri færsla
Þýska ríkisstjórnin riðar (kannski) til falls - evran ónýt
![]() |
Aðskilnaður óhjákvæmilegur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
Mánudagur, 4. nóvember 2019
Þýska ríkisstjórnin riðar (kannski) til falls - evran ónýt
Grúppan sem aldrei varð kommi (ekki þýskt). Takið eftir glæsilegri sviðslýsingu haggast ekki og djöfulshoppi Fogerty í lokin
****
Þýsk upplausn
Fréttir berast af mikilli ólgu í þýsku ríkisstjórninni. Vinstriarmur SPD-sósíaldemókrataflokksins, sem er samstarfsflokkur í ríkisstjórn með CDU/CSU-bandalagi Merkels, mælist nú með 54 prósent fylgi í SPD-flokknum, gegn 35 prósentum sem fylgja hægri arminum. Uppreisn gegn stjórnarsamstarfinu gæti skollið á innan mánaðar, telja sumir
Allt logar hins vegar í þögn innan CDU-flokksins. Þar þora menn ekki að rísa opinberlega upp gegn AKK-arftaka Merkels, heldur þegja þeir hana í hel og ætla að grípa til sinna ráða á flokksráðstefnunni í Leipzig þann 22.-23. nóvember
Ríkisstjórn Þýskalands er undir upplausn. Hún er varla starfhæf og komin í stöðu Jóhönnustjórnarinnar á síðari hluta kjörtímabils hennar: þ.e. banalegunni
Evran ónýt segir ungverski seðlabankastjórinn
Seðlabankastjóri Ungverjalands, György Matolcsy, segir að evran sé gagnslaus mynt og til mikillar óþurftar. Allar forsendur hennar vantar og öll ríkin sem tóku hana upp gengu í mynt sem engar forsendur hafði. Ekkert hefur lagast á 20 árum. Hann segir að ríkið á bak við evruna vanti og hún geti aldrei gert neitt nema ógagn
Governor Gyorgy Matolcsy said time has come for Europe to "seek a way out of the euro trap" | Reuters
Það er kominn tími til að lönd Evrópusambandsins finni leið út úr evrugildrunni, segir hann
Þá segi ég: sú leið er ekki til nema í gegnum einhvers konar styrjöld. Evran er dauðadómur
Ungverjaland er sem betur fer ekki á evrum. Áður fyrr sagði György Matolcsy að Ungverjaland myndi taka hana upp þegar efnahagurinn leyfði það. En nú er hann alveg búinn að gefa evruna upp á bátinn
Evran er sennilega orðið leiðinlegasta og glataðasta umræðuefni sem til hefur orðið í gjörvallri mannkynssögunni. Pólitísk mynt sem átti að búa til það ríki sem enginn vill búa í. Þar var svo sannarlega byrjað á öfugum endanum
Bring it on!
Fyrri færsla
ESB-barónar Berlínar innheimta og greiða síðan Erdogan verndarpeninga
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Sunnudagur, 3. nóvember 2019
ESB-barónar Berlínar innheimta og greiða síðan Erdogan verndarpeninga
ÞÝSKALAND Í DAG
Kosningafundur í Þýskalandi, hér með enskum texta, eftir stórsigur AfD-flokksins í Thüringen síðustu helgi. Alice Weidel þingflokksleiðtogi AfD tekur til máls. Það styttist óðum í örþrifaráðs-ríkisstjórnina á meginlandi taparanna (hér með þýskum texta á YouTube)
****
Til að byrja með skulum við sleppa því að líberalistinn Justin Trudeau tapaði mannfjöldakosningunum í Kanada síðustu helgi, en sigraði þær samt, og alveg án þess að vinstrikryppan í Bandaríkjunum krefðist ógildingar kosninganna og kosningalögum landsins umsvifalaust breytt - á meðan við skulum heldur ekki tala um sigurför hins tandurhreina meirihluta breska mannfjöldans sem sigraði í brexit-kosningunum 2016, en sem þremur árum síðar ekkert hefur fengið fyrir atkvæði sín. Lengi lifi Reykjavíkurlýðræðið í malbiksholunum þar, ásamt í Svíþjóð sósíaldemókrataflokksins, sem vann hve mest með herra Adolf, og getur því að sjálfsögðu ekki unnið með sænska demókrataflokknum núna. Heimsótti Winston því aldrei ofríki þeirra í Svíþjóð. Gott hjá honum
Síðan skulum við líka sleppa símtali Baracks Obama við ókjörið klerkaveldi Írans um miðja nótt, þar sem samið var um að Nóbelsverðlaunahafinn "í friði" myndi sleppa lausum peningum bandarískra skattgreiðenda sem haldið hafði verið til baka að upphæð 1,7 milljarð dala ef Íran gerði svona og svona. Og ef að klerkaveldið myndi einnig vilja vera svo vinsamlegt að sleppa úr haldi fjórum bandarískum gíslum, þá fengi það í kaupbæti sendar til sín 400 milljónir dala í ómerktum peningaseðlum, í ýmsum gjaldmiðlum, á pöllum um miðja nótt úr flugvél. Þetta myndi liðka fyrir kjarnorkuvopnasamningi Írans við friðarverðlaunahafann frá 2010 af Nóbel, en sem hinn vondi Donald J. Trump henti strax í ruslatunnuna, sem verðskuldaði og kunni strax að meta ruslið hans Obama
Allt þetta bliknar þó við hliðina á öllum þeim milljörðum evra skattgreiðenda í löndum ESB sem Angela Merkel hinn ókjörni keisari Evrópu pínir ESB-löndin til að greiða í mútur til forseta Tyrklands, fyrir það eitt að sleppa ekki enn fleiri milljónum af gíslum sem Tyrkland sleppir lausum á ESB-löndin, haldi þau ekki áfram að borga og borga. Enginn í Evrópu og ei heldur hér á EES-mannsals Íslandi kaus Merkel til þessa, og allra síst til þess að hún ein og ókjörin myndi hleypa milljónum manna frá allt öðru sólkerfi inn á skattpíndustu þjóðir veraldar, læstum inni í kofa Evrópusambandselíta á leið til heljar, brennandi líka
Það er ekki sama hvort maður heitir séra Jón eða bara Jón Trump og talar ekki rétta pólitíska froðumálið, sem enginn neins staðar á vesturlöndum nennir lengur að hlusta á. sbr. kosningafundinn með fröken Weidel hér að ofan - og hefur hún þó sjálf starfað í hinum "al-þjóðlega geira" froðusnakksins árum saman
Lestrar,- sönglaga,- og ljósritunardeildir íslenskra fjölmiðla sem vegna vanþekkingar og getuleysis lugu þjóðina fulla um Watergeitina í Bandaríkjunum á sínum tíma, þar sem réttkjörinn forseti með yfirþyrmandi meirihluta á bak við sig var fjarlægður úr embætti sökum þess að bandarískir fjölmiðlar drógu þjóðina þar á tálar, ættu að íhuga sinn gang áður en þeir halda áfram upp á útför sína niðri í veislusal seðlabanka Jóhönnustjórnarinnar
Eina raunverulega ástæðan fyrir því að fyrrverandi ráðherrar og EES-áhugamenn Íslands fjarlægðu ekki DDRÚV úr dómaraembættinu á meðan þeir gátu það, er sú að þeim þykir gott að eiga það uppi í erminni, þegar ráðist er að fullveldi íslensku þjóðarinnar og stjórnarskrá hennar, eins og gert hefur verið í samfellt hin 10 síðustu ár, og síðast nú í sumar
Gárungarnir segja hins vegar að eina ástæðan fyrir því að vinstrikryppan í Kína þurfi ekki að búa við loftslagsmótmæli, sé sú að landið sé nú þegar orðið algerlega kommúnistískt alræðisríki. Um leið og þannig ríki er komið á koppinn þá hættir söngurinn um að gufuhvolfið sé á hvolfi vegna hita. Þá hættir einfaldlega að hlýna og ísöldin skellur á. Flóknara er fyrirbærið "loftslags og umhverfismál" ekki. Það er eingöngu sami pólitíski þvættingurinn um nýtt, heilagt og vinstrivísindalegt sovétríkið og síðast
En gefum sænskri konu orðið úti á götu í Gautaborg. Hún talar mannamál sem skilst um paradís sænsku sósíaldemókratanna í ESB, sem Trump hinn vondi fékk bágt fyrir að benda á
SVÍÞJÓÐ Í DAG
Þessa upptöku með sænsku konunni á götu í Gautaborg má einnig sjá með enskum texta á vefsetrinu Gates of Vienna
Fyrri færsla
Trump hafði rétt fyrir sér, seðlabankinn rangt
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Fimmtudagur, 31. október 2019
Trump hafði rétt fyrir sér, seðlabankinn rangt
Það tókst: "Made in Bigger Hong Kong" er ekki strategía til framtíðar. Bandaríkin eru að kafna í eigin fjármagni. Þau eru eini frjálsi kapítalmarkaður veraldar. Ekkert borgar sig lengur heima í Kína, peningarnir flýja því landið og við viljum bara alls ekki sjá þá
****
Fyrir ári síðan sagði Donald J. Trump forseti Bandaríkjanna sem er eini maðurinn með peningapólitískt vit sem gegnt hefur því embætti að bandaríski seðlabankinn væri bilaður og að stjórn hans væri komin úr böndunum vegna stýrivaxtahækkana sem formaður seðlabanastjórnarinnar kallaði normalíseringu í tæpt ár. Og fjölmiðlarnir sem flestir virtust ófæddir í þágær, sögðu að það væri algerlega óheyrt að forsetinn setti sig svona upp á móti embættismönnum sem segjast vera "sérfræðingar". Það reyndist rugl því Ronald Reagan gerði það líka. Sérfræðingaliðið sem stór-ófædda dagblaðið Washington Post framkvæmdi könnun á, sagði einnig í yfirþyrmandi magni að seðlabankinn væri að gera rétt þegar hann hækkaði og hækkaði stýrivextina, en var þá að gera rangt
En nú hefur bandaríski seðlabankinn stútfullur af sérfræðingum dregið hækkanir sínar til baka og Trump forseti sigrað í málinu. Síðasta og þriðja stýrivaxtalækkunin á þessu ári kom því í gær. Ákvarðanir seðlabankans voru ekki byggðar á peningaviti, heldur sennilega frekar á pólitískri skemmdarverkafýsn ókjörinna embættismanna. Kannski vildu þeir koma forsetanum frá með því að leggja hagkerfið á ís svo að hann myndi ekki skyggja á munkaklaustur þeirra
Vextir eru lágir vegna þess að það er offramboð af peningum af því það er ekki hægt að fjárfesta þeim í neinu sem er nýtt. Tími örgjörvans og tölvunar er liðinn og er sá geiri ekki lengur "high tech" eða hátækni. Fimmtíu ára sveifla þeirrar tækni í öllum sínum birtingarmyndum er búin og sá geiri því verðlagður eins og Cheerios-framleiðandi, þar sem fyrirbæri eins og Facebook er orðið álíka spennandi og gamla símaskráin
Hvað tekur við, veit enginn. Nema að það sé kannski bara helgrænn Bjarni Ben á sovéskum ísjaka. En hér á landi eru þó enn til "nýsköpunar ráðamenn" á opinberri framfærslu sem segja að allir eigi að læra forritun. Þeir menn eru greinilega komnir úr böndunum líka, ef þeir þá nokkru sinni voru í þeim
Hvað segir fimmti iðnbyltingarráðherra Kommahallar Sjálfstæðisflokksins við þessu? Þetta er jú hin fimmta Cheerios-iðnbylting hennar
Fyrri færsla
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Nýjustu færslur
- Eitthvað sem ekki passar hér [u]
- Kristrún stígur ekki í vitið, svo mikið er nú víst
- Þorgerður mín
- Kína komið til "ósubbulegs" sálfræðings
- ESB og Kína þekkja ekki bandaríska miðvestrið
- Bóndinn og prófessorinn í Selma um tolla Trumps. Grænland
- Evrópa er á leiðinni á nauðungaruppboð: Kaninn unir ekki að G...
- Svo lengi sem Grænland er viðriðið Danmörku mun heimurinn ekk...
- Landsölupakkhús Þorgerðar fúlt út í JD Vance
- Kannski hægt að byrja á farsímavef Veðurstofunnar - strax í d...
- Hamast við moksturinn í Reykjavík
- Grunnvextir hækka á evrusvæðinu - varanlega
- Fallbyssur Trumps í tollamálum
- Bandaríkin eru tilbúin að fjárfesta milljörðum dala í Grænlan...
- Já, Pólverjar verða að vakta landamærin upp að Þýskalandi. Þa...
Bloggvinir
-
Heimssýn
-
Samtök Fullveldissinna
-
ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE
-
Guðmundur Jónas Kristjánsson
-
Ragnhildur Kolka
-
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
-
Haraldur Hansson
-
Haraldur Baldursson
-
Páll Vilhjálmsson
-
Halldór Jónsson
-
Valan
-
Samstaða þjóðar
-
Frjálshyggjufélagið
-
Sigríður Laufey Einarsdóttir
-
Eyþór Laxdal Arnalds
-
Jón Valur Jensson
-
Samtök um rannsóknir á ESB ...
-
Kolbrún Stefánsdóttir
-
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
-
Jón Baldur Lorange
-
Guðjón E. Hreinberg
-
Jón Ríkharðsson
-
Anna Björg Hjartardóttir
-
Loftur Altice Þorsteinsson
-
Valdimar Samúelsson
-
Fannar frá Rifi
-
Bjarni Jónsson
-
Sigurður Þorsteinsson
-
Gunnar Ásgeir Gunnarsson
-
Haraldur Haraldsson
-
Örvar Már Marteinsson
-
Kristin stjórnmálasamtök
-
Gestur Guðjónsson
-
Ingvar Valgeirsson
-
Predikarinn - Cacoethes scribendi
-
Guðsteinn Haukur Barkarson
-
Guðmundur Helgi Þorsteinsson
-
Lísa Björk Ingólfsdóttir
-
Bjarni Kjartansson
-
Bjarni Harðarson
-
Guðrún Sæmundsdóttir
-
Sveinn Atli Gunnarsson
-
gudni.is
-
Gústaf Adolf Skúlason
-
Tryggvi Hjaltason
-
ESB
-
Marinó G. Njálsson
-
Baldvin Jónsson
-
Elle_
-
Sigurbjörn Svavarsson
-
Emil Örn Kristjánsson
-
Johnny Bravo
-
Jón Finnbogason
-
Rýnir
-
Þórarinn Baldursson
-
P.Valdimar Guðjónsson
-
Már Wolfgang Mixa
-
Ívar Pálsson
-
Júlíus Björnsson
-
Guðjón Baldursson
-
Baldur Fjölnisson
-
Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
-
Einar Ólafsson
-
Sigríður Jósefsdóttir
-
Vilhjálmur Árnason
-
gummih
-
Sveinn Tryggvason
-
Helga Kristjánsdóttir
-
Jóhann Elíasson
-
Baldur Hermannsson
-
Kristinn D Gissurarson
-
Magnús Jónsson
-
Ketill Sigurjónsson
-
Birgitta Jónsdóttir
-
Axel Jóhann Axelsson
-
Þorsteinn Helgi Steinarsson
-
Aðalsteinn Bjarnason
-
Magnús Þór Hafsteinsson
-
Erla Margrét Gunnarsdóttir
-
Sigurður Sigurðsson
-
Þorsteinn H. Gunnarsson
-
Haraldur Pálsson
-
Sveinbjörn Kristinn Þorkelsson
-
Bjarni Benedikt Gunnarsson
-
Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
-
Ægir Óskar Hallgrímsson
-
Helgi Kr. Sigmundsson
-
Óskar Sigurðsson
-
Tómas Ibsen Halldórsson
-
Axel Þór Kolbeinsson
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Hörður Valdimarsson
-
Adda Þorbjörg Sigurjónsdóttir
-
Þorsteinn Valur Baldvinsson
-
Margrét Elín Arnarsdóttir
-
Ásta Hafberg S.
-
Erla J. Steingrímsdóttir
-
Helena Leifsdóttir
-
Agný
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
Jón Árni Bragason
-
Jón Lárusson
-
Högni Snær Hauksson
-
Kristján P. Gudmundsson
-
Kristinn Snævar Jónsson
-
Sigurður Ingólfsson
-
Rakel Sigurgeirsdóttir
-
Sigurður Þórðarson
-
S. Einar Sigurðsson
-
Pétur Steinn Sigurðsson
-
Vaktin
-
Sigurjón Sveinsson
-
Dóra litla
-
Arnar Guðmundsson
-
Jörundur Þórðarson
-
Rafn Gíslason
-
Hjalti Sigurðarson
-
Kalikles
-
Vésteinn Valgarðsson
-
Bjarni Kristjánsson
-
Egill Helgi Lárusson
-
Gunnar Skúli Ármannsson
-
Halldóra Hjaltadóttir
-
Jón Pétur Líndal
-
Guðmundur Ásgeirsson
-
Reputo
-
Gunnar Helgi Eysteinsson
-
Sigurður Sigurðsson
-
Ólafur Als
-
Friðrik Már
-
Gísli Sigurðsson
-
Sigurður Einarsson
-
Rauða Ljónið
-
Sumarliði Einar Daðason
-
Gísli Kristbjörn Björnsson
-
Kári Harðarson
-
Sigurður Antonsson
-
Valdimar H Jóhannesson
-
Rósa Aðalsteinsdóttir
-
Dagný
-
Guðmundur Pálsson
-
Jakob Þór Haraldsson
-
Birgir Viðar Halldórsson
-
Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
-
Tíkin
-
Jón Þórhallsson
-
Íslenska þjóðfylkingin
-
Erla Magna Alexandersdóttir
-
Óskar Kristinsson
-
Dominus Sanctus.
-
Ingólfur Sigurðsson
-
Jón Þórhallsson
Tenglar
Hraðleiðir
- www.tilveraniesb.net www.tilveraniesb.net Vefsetur Gunnars Rögnvaldssonar
- www.mbl.is
- Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir
- Bréf frá Jerúsalem - Yoram Hazony Yoram Hazony er einn fremsti stjórnmálaheimspekingur Vesturlanda í dag
- NatCon Þjóðaríhaldsstefnan
- Victor Davis Hanson bóndi og sagnfræðingur Victor Davis Hanson er einn fremsti sagnfræðingur Vesturlanda í klassískri sögu og hernaði
- Bruce Thornton sagnfræðingur Bruce Thornton er sagnfræðingur - klassísk fræði
- Geopolitical Futures - geopólitík Vefsetur George Friedmans sem áður hafi stofnað og stjórnað Stratfor
- Strategika Geopólitík
- TASS
- Atlanta Fed EUR credit & CDS spreads
- N.Y. Fed EUR charts
- St. Louis Fed USD Index Federal Reserve Bank of St. Louis - Trade Weighted U.S. Dollar Index: Major Currencies
- Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983 Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983
Þekkir þú ESB?
Greinar
Lestu mig
Lestu mig
• 99,8% af öllum fyrirtækjum í ESB eru lítil, minni og millistór fyrirtæki (SME)
• Þau standa fyrir 81,6% af allri atvinnusköpun í ESB
• Aðeins 8% af þessum fyrirtækjum hafa viðskipti á milli innri landamæra ESB
• Aðeins 12% af aðföngum þeirra eru innflutt og aðeins 5% af þessum fyrirtækjum hafa viðskiptasambönd í öðru ESB-landi
• Heimildir »» EuroChambers og University of LublianaSciCenter - Benchmarking EU
Bækur
Á náttborðunum
-
: EU - Europas fjende (ISBN: 9788788606416)
Evrópusambandið ESB er ein versta ógn sem að Evrópu hefur steðjað. -
: World Order (ISBN: 978-1594206146)
There has never been a true world order, Kissinger observes. For most of history, civilizations defined their own concepts of order. -
: Íslenskir kommúnistar (ISBN: ISBN 978-9935-426-19-2)
Almenna bókafélagið gefur út. -
Velstandens kilder:
Um uppsprettu velmegunar Evrópu
: - Paris 1919 :
- Reagan :
- Stalin - Diktaturets anatomi :
-
Penge
Ungverjinn segir frá 70 ára kauphallarreynslu sinni
: -
: Gulag og glemsel
Um sorgleik Rússlands og minnistap vesturlanda - Benjamín H. J. Eiríksson :
- : Opal
- : Blár
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (25.6.): 29
- Sl. sólarhring: 36
- Sl. viku: 633
- Frá upphafi: 1404675
Annað
- Innlit í dag: 23
- Innlit sl. viku: 401
- Gestir í dag: 18
- IP-tölur í dag: 16
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Júní 2025
- Apríl 2025
- Mars 2025
- Febrúar 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- September 2024
- Júní 2024
- Apríl 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Júlí 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008