Leita í fréttum mbl.is

Trump hafði rétt fyrir sér, seðlabankinn rangt

Study - Chinese Investment in US Has Fallen 88 Percent Since Trump Took Office

Það tókst: "Made in Bigger Hong Kong" er ekki strategía til framtíðar. Bandaríkin eru að kafna í eigin fjármagni. Þau eru eini frjálsi kapítalmarkaður veraldar. Ekkert borgar sig lengur heima í Kína, peningarnir flýja því landið og við viljum bara alls ekki sjá þá

****

Fyrir ári síðan sagði Donald J. Trump forseti Bandaríkjanna –sem er eini maðurinn með peningapólitískt vit sem gegnt hefur því embætti– að bandaríski seðlabankinn væri bilaður og að stjórn hans væri komin úr böndunum vegna stýrivaxtahækkana sem formaður seðlabanastjórnarinnar kallaði normalíseringu í tæpt ár. Og fjölmiðlarnir sem flestir virtust ófæddir í þágær, sögðu að það væri algerlega óheyrt að forsetinn setti sig svona upp á móti embættismönnum sem segjast vera "sérfræðingar". Það reyndist rugl því Ronald Reagan gerði það líka. Sérfræðingaliðið sem stór-ófædda dagblaðið Washington Post framkvæmdi könnun á, sagði einnig í yfirþyrmandi magni að seðlabankinn væri að gera rétt þegar hann hækkaði og hækkaði stýrivextina, en var þá að gera rangt

En nú hefur bandaríski seðlabankinn stútfullur af sérfræðingum dregið hækkanir sínar til baka og Trump forseti sigrað í málinu. Síðasta og þriðja stýrivaxtalækkunin á þessu ári kom því í gær. Ákvarðanir seðlabankans voru ekki byggðar á peningaviti, heldur sennilega frekar á pólitískri skemmdarverkafýsn ókjörinna embættismanna. Kannski vildu þeir koma forsetanum frá með því að leggja hagkerfið á ís svo að hann myndi ekki skyggja á munkaklaustur þeirra

Vextir eru lágir vegna þess að það er offramboð af peningum af því það er ekki hægt að fjárfesta þeim í neinu sem er nýtt. Tími örgjörvans og tölvunar er liðinn og er sá geiri ekki lengur "high tech" eða hátækni. Fimmtíu ára sveifla þeirrar tækni í öllum sínum birtingarmyndum er búin og sá geiri því verðlagður eins og Cheerios-framleiðandi, þar sem fyrirbæri eins og Facebook er orðið álíka spennandi og gamla símaskráin

Hvað tekur við, veit enginn. Nema að það sé kannski bara helgrænn Bjarni Ben á sovéskum ísjaka. En hér á landi eru þó enn til "nýsköpunar ráðamenn" á opinberri framfærslu sem segja að allir eigi að læra forritun. Þeir menn eru greinilega komnir úr böndunum líka, ef þeir þá nokkru sinni voru í þeim

Hvað segir fimmti iðnbyltingarráðherra Kommahallar Sjálfstæðisflokksins við þessu? Þetta er jú hin fimmta Cheerios-iðnbylting hennar

Fyrri færsla

Kosið var í Weimar um helgina


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Halldór Jónsson

Alltaf of lítið of seint er það hjá þessum hagfræðingum.

Lagging indicators bjarga engu frá þvi sem er að gerast frekar en í currency trading. Í heimskreppunni hefði verið hægt að afstýra með því að fara fram fyrir vandamálið í stað þess að elta það bara.

Halldór Jónsson, 31.10.2019 kl. 22:20

2 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

TJA OG MJA

Þakka þér kærlega fyrir Halldór.

Mja, ég get alveg tekið að mér að verja hagfræðina, þó svo að það sé stundum erfitt. En sú vörn verður þá að byggjast á því að þjóðhagfræðingar byrji á því að gera sér grein fyrir því hvað ÞJÓÐ er. Auðlegð þjóðanna var ekki bók um auðlegð al-þjóðanna. Hún var bók sem krefst þjóðar og þjóðríkis => Nation-State en ekki Imperial-State => þ.e Nationalism en ekki Inter-Nationalism.

Hagfræðingar finna ekki upp neitt. Þeir telja hins vegar saman það sem aðrir hafa fundið upp og komið af stað og sem bjó til það sem þeir telja og taka saman sem uppgjör þjóðhagsreikninga í bakherbergjum sínum. Svo labba þeir fram og leggja skýrslur sínar um uppgerða fortíðina á borð stjórnmálamanna, sem vita ekki neitt, og geta ekki vitað neitt, því þeir hafa ekki tíma til að vita neitt,  nema til að reyna að finna út úr því hvernig þeir geta lært að láta fólk kjósa sig aftur.

a. Rafmagnið kom og var 50 ára hagsveifla

b. Bíllinn kom og var 50 ára hagsveifla

c. Tölvun með "microchips" (örgjörvum) kom og var 50 ára hagsveifla. Þeirri sveiflu er að ljúka núna.

Ef þú hofrir á Dow Jones Industrial Average vísitöluna frá til dæmis 1965 til 1989 þá sérðu eftirfarandi:

1. Hún fer inn í tímabilið á 1000 stigum og hún kemur út úr tímabilinu frá 1965-1982 á 1000 stigum.

2. Ergo: Dow haggast ekki í heil 17 ár, nema í innri geðsveiflum. Engin leitni (trend) er uppávið í heil 17 ár. Þarna er síðasta 50-ára hagsveifla að enda lífið: þ.e. Bílaiðnaðurinn, sem hófst fyrir alvöru með verksmiðjum Henry Ford.

3. Það er ekki fyrr en að IBM, Apple og Microsoft plús ýmsir aðrir koma með tölvunartækni fyrir almenna neytendur, að Dow yfirgefur 17 ára steinöld og tvöfaldast á næstu fjórum árum, og nær 2000 stigum árið 1986.

Þetta er búið í bili Halldór, og nú bíður tortíming þess auðs sem síðasta sveifla skapaði.

Heimurinn er að kafna úr peningum og þess vegna eru vextir svona lágir. Engin eftirspurn er eftir peningum. Ekki eini sinni olíuverð er hátt, þrátt fyrir geopólitískan óstöðugleika á öllum landmassa EvrAsíu. Í venjulegu árferði veldur geopólitískur óstöðugleiki alltaf ofboðslegum verðhækkunum á olíu.

HVAÐ NÆST?

Hvað kemur næst og gerir okkur rík á ný Halldór, já það veit enginn enn. En það verður að minnsta kosti ekki byggt á steinaldartækni örgjörvans og hugbúnaðar (Microchip + Software). Sú tækni er að steingerast núna á meðan við ræðum hér saman Halldór. Hún er að breytast í múmíu á safni.

Sumir kjánar héldu að þeir gætu hermt eftir Steve Jobs þegar hann tók tölvun og gerði hana aðgengilega fyrir hinn almenna borgara og tróð síðan tölvun inn í hið gamla tæki sem hét sími. Öll þessi tölvun kom þess utan úr rannsóknarstofum bandaríska hersins. Öll sú tækni kom úr WWII og Kalda-stríðinu. Öll tæknin í iPhone var upphaflega fundinn upp til að drepa.

Kjánar héldu að þeir gætu apað þetta eftir og troðið tölvun inn í gamla bílinn hans Henry Ford, eins og Steve Jobs gerði við símann.

En bíll er ekki sími og verður aldrei neitt annað en bíll. Þetta síðasta öskur IT-bransans er því að koma út sem farsi. Bíll er ekki sími. Hann er bíll.

Brenna mun auður glatt, næstu mörg árin, og heldur betur hitna í kolunum innvortis um allt. Aðeins þeir sem skilja hvað þjóð er, munu komast sæmilega frá þessu.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 31.10.2019 kl. 23:31

3 Smámynd: Óskar Kristinsson

Blessaður Gunnar og þakka þér fyrir þessa frábæru framsetningu á málunum.

Mikið vildi eg sjá þig á ALÞINGI okkar Íslendinga Gunnar.

Það er eitt sem eg skil alls ekki, forsætisráðherra svokallaður er með frítt spil í sínu loftslagsbulli,ekkert annað kemst að í hennar haus.

Og Ekkert virðist þar inni sem mætti kalla þjóðþrifamál.

Kv af Suðurlandi

Óskar Kristinsson, 1.11.2019 kl. 10:31

4 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Hér er Dow vísitalan frá 1965 til 1986. Steinöld ríkir frá 1965 til 1982 eða í 17 ár. Og árangurinn er enn skelfilegri ef tillit er tekið til verðbólgu á tímabilinu.

Sumarið 1967 þurfti 82. fallhlífaherdeild bandaríska hersins og þjóðvarðlið, um það bil 6000 hermenn með skriðdreka, að koma stjórn á Detroit sem þá var byrjuð að falla saman. Margir héldu að einungis væri um "kynþáttaóreiðir" að ræða, en svo var ekki. Borgin hrundi svo úr meira en tveimur milljónum íbúum og niður í langt undir milljón manns í takt við endalok 50-ára hátekju-hagsveiflu bílaiðnaðarins. Detroit var einungis toppurinn á því sem gerðist.

Þetta gæti gerst í Kaliforníu og er reyndar þegar byrjað að gerast. Þar hrundi hlutabréfaverðið í raforkufyrirtækinu PGogE um 24 prósent á einum degi fyrir nokkrum dögum síðan, þegar að í ljós kom að skógareldar sem þar hafa geisað eru vegna dreifikerfis þess.

Kalifornía er með aðeins nokkra fáa risastóra skattgreiðendur (fyrirtæki) sem standa fyrir of stórum hluta tekna ríkisins og sem Demókratar sóa í þvælu. Mikið af velþénandi fólki fylkisins er flutt á brott til annarra fylkja eins og til dæmis Texas. Ólöglegir innflytjendur eru orðnir plága á fylkinu. Í Detroit voru það á sínum tíma meðal annars innflutt fólk frá Puerto Rico sem varð til vandræða.

Dow Jones Industrial Average - sögulegar tölur áranna 1965 til 1986

Þeir sem koma frá Siglufirði þekkja svona tímalok hagsveiflna.

Gunnar Rögnvaldsson, 1.11.2019 kl. 10:36

5 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér góðar kveðjur Óskar.

Ef ég væri á Alþingi þá hefði ég engan tíma til að hugsa. Engan tíma til að fundera og ekkert málfrelsi. Ég væri eins og allir hinir: á kafi í pappírum og bundinn flokksaga. Kjaftstopp. Þar eru það ekki nema örfáir hugaðir menn sem standa uppúr og þora. SDG er til dæmis einn þeirra. Bjarni Ben er hins vegar ekki einn þeirra eins og sést á vísitölu hans.

Af hverju forsætisráðherrann er haldin útópískri þvælu? Svar: Henni hefur vinstrið allaf verið haldið og það er hlutverk vinstrisins, að vera vinstri. Að vera þvæla.

En taktu eftir örvæningartóninum sem kominn er í sambandi við loftslagshlandið. Það er komið upp í hjarta vinstrisins og þaðan mun það pumpast upp í heilann og drepa á honum. Svipað og Sovétríkið þeirra, sem bara bonk, dong og dokk, datt útaf og dó. Fyrirvaralaust!

Svona þvæla  tekur alltaf sinn tíma. En þetta kemur, og er reyndar þegar byrjað að slá fæturna undan því. 

Það er hins vegar verra með xD. Hann er í stórkostlegri hættu. Enginn veit fyrir hvað hann stendur lengur og allra síst vita þingmenn það sjálfir. Þeir eru eins og Dow-mennirnir sem fengu Detroit í hausinn og skildu ekki hvað "software"-fyrirtæki var.  Annars væru þeir moldríkir í dag því Microsoft hækkaði frá 1982 til 2000 um 52 þúsund prósent. En ekki hafði ég sjálfur dómgreind til að skilja hvað "hugbúnaðarhús" var árið 1982. Sahh dét..

Kveðja

Gunnar Rögnvaldsson, 1.11.2019 kl. 11:01

6 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Nýjustu fréttir frá Kaliforníu Demókrataflokksins:

North Korea publishes satellite image of California at night

Ja hérna.

Gunnar Rögnvaldsson, 1.11.2019 kl. 21:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband