Leita í fréttum mbl.is

Frakkar loka á heilbrigðisþjónustu fyrir hælisleitendur; "Post-truth" endar [u]

HERTAR REGLUR Í FRAKKLANDI

"We want to take back control of our migration policy," - sagði Edouard Philippe forsætisráðherra

Ríkisstjórn Emmanuels Macrons forseta Frakklands kynnir í dag nýja lagasmíði á sviði innflytjendamála. Númer eitt er að það erlenda fólk utan ESB sem Frakkland spyr ekki eftir og getur ekki notað, fær ekki landvistarleyfi. Frakkland mun gefa út lista yfir það löglega og lærða erlenda vinnuafl sem landinu vantar, í hvaða landshluta og í hvaða starfsgrein. Þetta er kvótakerfi á löglega innflytjendur frá löndum utan ESB, sem eru næstum allur heimurinn. Númer tvö er að loka á grunnheilbrigðisþjónustu til handa hælisleitendum fyrstu þrjá mánuðina. Númer þrjú er að reyna með þessu að stinga upp í frönsku Þjóðfylkinguna. En hún segir að þetta sé einungis heitt loft og gagnist ekki nema fyrir frönsku elítuna. Ekki skal ég segja um það. En sem sagt, engin heilbrigðisþjónusta fyrir albanska hælisleitendur fyrstu þrjá mánuðina

Hvað segirðu Gunnar.. skyldu þeir þá nokkuð hætta að koma? Já, ef þetta er auglýst nógu vel í albönskum fjölmiðlum - plús hættu á fósturdrápum, sé um Ísland að ræða (svo ég minnist nú ekki á óskalista íslenska forsætisráðherrans í þeim efnum)

PENINGARNIR BÚNIR Á SPÁNI

Lífeyrissjóður spænska ríkisins er næstum tómur og að verða búinn með peningana. Hann er því á barmi gjaldþrots. Spánn er með eina lægstu fæðingartíðni í heiminum. Ekki mun því takast að skrapa inn nýja peninga í lífeyrissjóði ríkisins og vandamálin vegna geldingar þjóðarinnar eru því óðum að byrja hrannast upp í spænska óðaöldrunarhagkerfinu. Þar er atvinnuleysi 14,2 prósent núna og 32,8 prósent hjá ungu fólki

Þetta er jú Evrópusambandið. Hvað.. já en þeir eru með evru! Já þeir eru með evru og það er einmitt vandamálið. Hvað skyldi sjálfsmorðssveit Benedikts evrusvitabola og frumuklasa-Loga segja við þessu. Á ekki að skella sér í ofninn?

Evran => þýsk handjárn við þýskt elliheimili => massíft langtíma atvinnuleysi => eyðilegging vinnumarkaðs => skuldum gjaldþrota banka hent á ríkissjóð því annars hrynur evran => enn meira atvinnuleysi => enn hærri skattar => vonlaust að stofna fjölskyldu => gelding þjóðar => enn hærri skattar => þjóðargjaldþrot

- Uppfært að morgni fimmtudags:

post-truth

HVAÐ SEGIR ORÐABÓKIN

Sé Oxford-enska orðabókin skoðuð þá er deginum ljósara hvert við erum komin í útafkeyrslunni sem hófst 1989. Orðið "post-truth" (nú,- eða ný-sannleikur) var kosið orð ársins 2016 (kannski vegna fáránleika þess). Það þýðir þetta hér; dæmi um "post-truth" og "post-modernity":

Að Kommúnistaflokkur sé ekki kommúnistaflokkur
Að lofthitasinnar séu ekki kommúnistar að reyna að ná völdum
Að nytsamir kjánar séu eitthvað annað en nytsamir kjánar og því notaðir sem nytsamir kjánar
Að barn í móðurkviði sé ekki barn í móðurkviði
Að mislingar séu hollir
Að Sjálfstæðisflokkur geti verið ósjálfstæðisflokkur
Að krati sé ekki sósíalisti
Að mjúkt-vald sé vald
Að bráðnun jökla sé óeðlileg
Að myndun jökla sé óeðlileg
Að rafbíll sé eitthvað annað en brennandi farsími á hjólum
Að ESB sé eitthvað annað en Egyptaland hið forna
Að Vesturlönd geti staðist án Kristni
Að Vesturlönd séu ekki Gamla testamentið
Að Mótmælandi sé ekki mótmælandi alþjóðaisma
Að Hitler hafi verið þjóðarsinni en ekki alþjóðasinni
Að Nallinn sé ekki haturssöngur komma um þjóðríkið
Að sameiginleg mynt án þjóðríkis geti staðist
Að peningapóltík sé eitthvað annað en pólitík
Að ESB sé eitthvað annað en óþjóðleg stórpólitík
Að til sé eitthvað sem heitir "hlutlaust borgaralegt ríki" á borð við "óháða seðlabanka", sem ekki heldur eru til frekar en "óháðir" fjölmiðlar
Að ríki geti staðist án þjóðkirkju
Að þjóð geti þolað aðrar þjóðir innan í sér
Að "fimmta iðnbyltingin" sé bylting
Að frosinn skítakamar+iPhone úti í 10 stiga frosti sé betra en pípulagnir, vatnsalerni og rennandi vatn innandyra
Að TCP/IP og http-portið sé betra en að sleppa við vatnsburð og hafa vatnsþrýsting

postmodernism

Að allir séu góðir
Að enginn njósni
Að enginn sé vondur
Að stríð sé ekki hið eðlilega ástand mála
Að friður sé ekki innansviga ástand mála, eins og Platon sagði
Að brosgretta á andliti sé merki góðs
Að náttúran sé ekki vond
Að náttúran sé ekki hörð
Að náttúran sé að verða uppseld
Að bólur springi ekki
Að náttúrubólan springi ekki
Að ferðamannabólan búi ekki í náttúrubólunni
Að allar menningar séu jafngóðar
Að öll trúarbrögð séu jafngóð
Að nýlendutímabil hafi verið óeðlilegt og óæskilegt
Að Rússland geti verið eitthvað annað en Rússland
Að Kína geti verið eitthvað annað en misfótur
Að sjálfstætt Skotland verði sjálfstætt
Að einræðisherra sé eitthvað annað en einræðisherra
Að AIIB sé eitthvað annað er kommúnistaflokkurinn
Að hafa ætlað að opna útibú Harward í Moskvu 1994
Að kjósa komma og búast við öðru en kommúnisma

Allt þetta er að byrja að enda líf sitt núna. Þvælan sem hófst með hruni Sovétríkjanna og stofnun Evrópusambandsins er að enda. Hinn eilífi friður Kants var þvæla. Háskólar þeirra líka (heiðnikirkjuveldið). "Þinn guð er minn guð, þitt fólk er mitt fólk" mun standa áfram eins og Rutarbókin boðar. Engir fólksflutningar geta staðist án þessa. Að öðrum kosti er það öngþveitið og upplausnin sem ná mun völdum, og allir vita hvernig það endar. Velkominn til baka, gamli sannleikur

Tengt

An Era of Unparalleled Espionage Risk Is Upon Us (Stratfor)

Fyrri færsla

Af hverju vill forysta Sjálfstæðisflokksins aðskilja íslensku þjóðina frá ríki hennar?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Valur Jensson

Ólíkt hafast menn að í þessum málum, Frakkarnir á grunni sinnar reynslu og gapuxarnir á Alþingi Íslendinga!

Jón Valur Jensson, 7.11.2019 kl. 06:14

2 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Já er þetta ekki magnað Jón Valur. "Post-truth" þvælan bara að enda.

Svona mun fara fyrir Schengen og ESB líka.

Engisprettufaraldur fólks sem flýr sitt eigið uppétna ríki, eða "ekki nógu góð kjör hér", til að leggja önnur ríki í rúst, mynda á endanum ávallt eina heildstæða allsherjarrúst allra ríkja.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 7.11.2019 kl. 07:42

3 identicon

No borders

samtök styrkt af milljarðamæringnum Soros

eiga sér slagorðið

No borders No nations

og þar með engin þjóðríki.

DDRÚV og ESB fjölmiðlarnir mbl.is, visir.is, frettabladid og stundin.is virðast hafa það slagorð sem sína helstu ritstjórnastefnu.

Með því að rústa einu þjóðríki er hugmyndin að næsta og þarnæsta o.s.frv. falli eins og dóminókubbar. 

Gegn þessu berjumst við þjóðlegir íhaldsmenn og það til varnar þjóðríki okkar, menningararfi, sið okkar, móðurmáli og föðurlandi. 

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 7.11.2019 kl. 09:01

4 identicon

Kærar þakkir Gunnar fyrir þennan snilldarpistil.

Já, velkominn tilbaka gamli sannleikur, 

hvar m.a. stendur skrifað að við skulum hafa einn Guð og ekki aðra guði hafa (hvað þá mannlega idjóta á DDRÚV og ESB miðilsrásum)

og heiðra skal hver og einn móður sína og föður.

Það er að virða það sem okkur sem þjóð þykir vænst um og þar með sjálfstæði og fullveldi lands okkar og þjóðar.  Og að vera því trúr, og svíkja aldrei.

Það ætti engum siðuðum manni að vera ofraun, þó DDRÚV og ESB miðlar boði spaugilega trú á sjálfa sig og Soros.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 7.11.2019 kl. 09:50

5 identicon

Albaníu Agnes er orðin að athlægi allra.

Hún er hvorki heit né köld, hún er moðvolg.

Hún hoppar bara í hringi, því hún hefur ekki bjarg undir fótum.  Mér er það svo sem ekki neitt í neinu, en hún er á ríkmannlegu framfæri okkar sem byskubba og því má gera til hennar kröfu:

Hún ætti að lesa Opinberanir Jóhannesar,

þá vissi sú byskubba hvert álit manna er á þeim sem eru uppfullir af moðvolgri hálfvelgjunni, sem einmitt hún er illilega haldin.  

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 7.11.2019 kl. 11:16

6 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér Símon Pétur.

Já, þessir blessaðir fjölmiðlar Símon. Menn héldu um stund, eða frá og með 1945, að fjölmiðlar væru eins konar fag sem hægt væri að kenna við eitthvað í átt við sérfræði og jafnvel gera það að "háskólanámi", þannig að "blaðamennska" fengi viðurkenningarstimpil frá heiðnikirkjuveldi háskólanna. Og þann stimpil fékk stéttin, eins og seðlabankar fengu svo kallað sjálfstæði sitt. En hvorugt er til. Blaðamennska er ekki fag, ekki sérfærði og alls ekki verðug skattfé frá borgurunum á borð við pípulagnir sem er gott dæmi um sérfræði sem virkar.

Fjölmiðlar sem þykjast vera hlutlausir eru ekki til. Þeir þurfa alltaf að meta það sem telst verandi mikilvægt eða ekki mikilvægt sem er að gerast í heiminum og í landinu á hverjum einasta degi. Það eitt útilokar það að fjölmiðlar geti verið hlutlausir, því þeir þurfa að taka afstöðu til þess hvað á að birta og hvað á ekki að birta. Og það er eingöngu heimsýn og heims-útkíkk manna sem stjórnar því hvað þeir telji mikilvægt í heiminum eða ekki. Þarna sturtast hlutleysisþvaðrið strax niður í salernið og hættir að vera til i reynd.

Engum fannst til dæmis mikilvægt að Gyðingar skyldu vera að koma saman í 60 ár áður en nýju Ísraelsríki sló fyrirvaralaust niður í veruleika manna eins og eldingu af himnum ofan, og kom öllum fjölmiðlum algerlega á óvart. Í þeim er ekkert um aðdraganda hins nýja ríkis. Þeir –blaðamenn– höfðu engan áhuga á Dreyfus-málinu frá 1894 og afleiðingum þess og skildu það heldur ekki. En enginn getur sagt að stofnun Ísraelsríkis hafi ekki verið mikilvægur atburður í mannkynssögunni. Radrar fjölmiðla kom ekki auga á það sem ofboðslega var mikilvægt. Það sama gilti um hrun Sovétríkjanna. Það kom fjölmiðlum algerlega í opna skjöldu. Þeir höfðu EKKERT vit á því sem þeir voru að skrifa um Sovétríkin alveg frá byrjun þess. Ekkert vit.

En nú vandast málið að mörgu leyti enn frekar fyrir þessa svokölluðu fjölmiðla, því plássið (pixel-space) er orðið óendanlega stórt, og það er því fyllt með ýtrasta þvættingi daginn út og nóttina inn í endalausu magni, af því að það kostar ekki neitt.

Ef eitthvað stendur "on-line", þá sendur það ekki lengur en í tvo tíma og þá tekur næsta þvæla við. Þetta er ekki svona á prentmiðlunum, því þeir þurfa þrátt fyrir allt að huga að pappírsinnkaupum og offset-rotation prentvélin er ekki beint ókeypis og þyngd blaðsins skiptir miklu máli. Þar eru menn þó í ramma sem skapar gæði sem borið getur uppi gott vörumerki í langan tíma, sé haldið vel á spöðunum og gagnast þjóðinni afskaplega vel.

Allir eru því blaðamenn í dag. Þarna (on-line) er Stalín fallinn og það er bara gott. En í reynd myndi ein fréttaklukkusund á dag sýna lesendum, hlustendum og áhorfendum heiminn í mun skýrara ljósi en hann er sýndur núna með 24/7 fréttaþvælu. Svo ég tali nú ekki um hamingjuna sem sjóvarpslaus fimmtudagur skapaði án þess að þjóðina kosta neitt.

Góða skemmtun með fjölmiðlana sem eru ekki fjölmiðlar nema að litlu leyti Símon. En varist þó áróðurinn.

Það er óafsakanlegt að nota skattfé borgana í þvælu eins og DDRÚV. Slíkt er bara hreinn Stalín.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 7.11.2019 kl. 11:31

7 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Agnes og Kirkjan á allt það inni hjá ríkinu sem hún er að fá og mörgum sinnum það. Mörgum sinnum það.

Agnes er í "transition-mode". Hún getur ekki gert annað en þetta, því annars stendur hún ekki. Að hoppa og snúast í hringi er þó betra en að standa bara alls ekki.

Eins og Lincoln sagði: það er núna núna núna, ef maður ætlar að komast á norðurpólinn. En þangað kemst maður ekki liggjandi fastur í kaldri keldu.

Hoppa þú því áfram Agnes! Og snúast. Svo kemur þetta.

Þetta eru skrautlegir og varasamir tíma Símon.

Gunnar Rögnvaldsson, 7.11.2019 kl. 11:43

8 identicon

Hún, sem höfuð þjóðkirkjunnar, verður að taka sig á, eigi hún ekki að sökkva niður í kelduna.

Það er tími til kominn að hún tali tungu hreinni.

Það ber höfði þjóðkirkjunnar að gera, því annars molnar og sekkur allt undan henni.

Þrumur skulu frá traustu bjargi koma, svo á sé hlustað.  Þeim fylgja eldingar sem ljósta tungur manna svo þeir fyllast andagift heilags anda og hins þríeina Guðs.  Svo einfalt er það.

Ef höfuð þjóðkirkjunnar í dag þekkir ekki þá köllun er henni betra að segja sig frá kjóli og kalli og eftirláta öðrum það sem hefur guðlegan innblástur fram að færa innan þjóðkirkjunnar.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 7.11.2019 kl. 12:40

9 Smámynd: Jón Valur Jensson

Þakkir enn og aftur, Gunnar, og fyrir viðauka þína. Og kjarnyrtur er Símon Pétur hér!

Jón Valur Jensson, 7.11.2019 kl. 13:25

10 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Heh. Já það er þannig Símon Pétur.

Hún lendir, vonandi. Hún þarf aðeins að kíkja í það Gamla, og þá kemur þetta. Hlýtur bara að vera.

Ekki er staðan betri í Róm þessi árin. Hann þarf líka að kíkja í það Gamla.

En svona eru transition-tímar. Eins konar tímabelti húmsins.

Gunnar Rögnvaldsson, 7.11.2019 kl. 16:19

11 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Ég þakka og bukta Jón Valur

- og sendi þér kveðju um hæl

Gunnar Rögnvaldsson, 7.11.2019 kl. 16:20

12 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Smá meira um fjölmiðla á stafrænu formi.

Ég get til dæmis geymt prentaðan Mogga í hundruð ára og lesið hann aftur og aftur.

Það er ekki hægt á starfærnu formi, nema að því tilskyldu að tölvan + stýrikerfið + lesarinn sem hún notar komist að nýju samkomulagi við eigendur einkaleyfa, sem þá endurnýja signatur/underwriting sinn og gerir tækinu kleyft að halda áfram að virka, sé það uppfært. Ef samkomulag tekst ekki þá hættir allt draslið að virka að því leytinu, að það er ekki hægt að viðhalda því með nauðsynlegum uppfærslum. Þannig getur til dæmis bifreið sem notar mikinn hugbúnað hætt að virka ef samningar takast ekki eigendur einkaleyfa um að bæði sé hægt að nota bílinn til ýmislegs annars en samið var um, og að uppfærslur fáist þannig settar inn og geti farið fram, sem tryggja öryggi ökutækisins og að það fái þannig skoðun hjá löggjafanum. Ef þú sem eigandi (reyndar leigjandi) vilt ekki samþykkja nýja skilmála/aula fyrir hugbúnaðinn í tölvunni, eða í bíl sem er notar mikið af hugbúnaði , þá er ekki víst að tækið/bíllinn sé lengur öruggt í notkun og að bíllinn standist skoðun, eða haldi áfram að virka.

Stafræn tækni á ekki framtíðina fyrir sér eins og hún er núna. Bara alls ekki. Enda er hún komin á síðasta snúning "konceptuelt". Bæði til dæmis efnisleg þróun örgjörva (nano-þykkt á milli atóma) og öllu sem til þarf til að tæknin geti haldið áfram að virka, og þar á meðal lyf og læknaliðið (security) sem þarf til, svo að það snúist ekki gegn þér í þínum eigin höndum. Flest stafræn tæki renna út og það er til dæmis ekki hægt að setja inn (installera) þann hugbúnað sem kom með þeim þegar þau voru keypt, eftir vissan tíma. Það þarf þá að ná í nýtt compile eða útgáfu af gamla hugbúnaðinum, sé hann yfir höfuð til, því aðeins ný útgáfa af gamla hugbúnaðinum inniheldur endurnýjað samþykki einkaleyfishafa.

Pípulögn og prentað mál er ekki svona. Sú tækni virkar alltaf alveg sama hvernig vatnið er og alveg sama í hvaða tilgangi hún er notuð og alveg óháð tíma og stað. Að því leytinu er stafræn tækni einnota fornaldar-rusl sem engan vegin stenst lágmarkskröfur. Enda er 50 ára hagsveifla hennar búin. Þar er bara undanrennan eftir og þess vegna er verið að reyna að troða henni inn í næstum hvað sem er.

Gunnar Rögnvaldsson, 7.11.2019 kl. 17:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband