Leita í fréttum mbl.is

Af hverju tala menn um "uppljóstrara"?

Var þá sviksamur starfsmaður Seðlabankans "uppljóstrari"? Nei það var hún ekki. Allt bendir til þess að hún hafi bara verið ósköp venjulegur og sviksamur starfsmaður á of háum launum og fríðindum hjá skattgreiðendum. Starfsmaður sem ætlaði að auðga kommaveldi landsins með sinni eigin útgáfu af réttlæti. Þetta fólk er kallað félagslegir stríðsmenn í dag, og það á ekki rétt á sér á opinberum launum

Þegar maður les viðtengda frétt Morgunblaðsins af hamfarafréttastofu DDRÚV í Austur-Berlín Reykjavíkurborgar, þá kemur þar glögglega í ljós hin undirliggjandi alræðisdagskrá austur-þýskalands þess, sem það sjálft kallar RÚV; sem er sú að ríki borgaranna skuli vera algerlega aftengt þjóðinni. Enginn sem hefur verið eitthvað –nema á DDRÚV– má koma nálægt stjórnmálum án þessa að fá stöðu hins grunaða, – en sem hins vegar ávallt og ætíð er sú staða sem ríkið á að hafa og þar með talið DDRÚV. Enginn sem unnið hefur þjóðinni gagn má koma nálægt stjórnmálum, nema ef hann kemur frá DDRÚV. Og enginn sem þekkir neinn, nema þá helst á vinstrihreiðrinu DDRÚV, má koma nálægt pólitík

Sviksamir starfsmenn eru bara sviksamir starfsmenn. Þeir eru ekki "uppljóstrarar" frekar en sumir ofsóknarbrjálæðingar, sem halda svo oft að þeir viti sannleikann um aðra og séu handhafar réttlætis fyrir alla, sbr. Seðlabankinn plús DDRÚV, gegn einkaframtaki Samherja. Fólk sem heldur að það viti allt, fyrst það veit tíu prósent

Allir vita að DDRÚV er ekki hlutlaus fréttastofa, því hlutlausir fjölmiðlar eru ekki til. Ríkisfréttastofur geta aldrei orðið annað en venjulegt pólitískt stjórnmálaafl

CNN segir til dæmis hreint út að það hati Donald J. Trump forseta Bandaríkjanna og starfi samkvæmt því. CNN er ekki að fela hatur sitt. Áhorfendur og auglýsendur eru því varaðir við. DDRÚV þarf að segja það hreint út að það hati hægrimenn (og alveg sérstaklega Sigmund Davíð Gunnlaugsson og krónískt Davíð Oddsson), fullvalda Ísland og einkaframtakið (sérstaklega Samherja H/F); svo að þvingaðir kúnnar þess og auglýsendur geti varast það og þurfi þar með ekki að borga fyrir það. Og þeir sem samt vilja borga, vita þá hvað þeir eru að borga fyrir

Það er kominn tími til að stinga á þjóðarmeininu DDRÚV á opinberum launum. Þetta gengur ekki svona lengur

Fyrri færsla

ESB-umsóknin er þegar dregin til baka [u]


mbl.is „Láttu ekki svona, Einar“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Það sem ég tel líklegt að hafi gerst er þetta:

1. Eftir að hatursaðför DDRÚV að Samherja í samvinnu við Maóistaveldi hins illa tilkomna seðlabankastjóra Jóhönnustjórnarinnar fór út um þúfur, og lá afvelta og hjálparlaust spriklandi úti í þeirri keldu sem hugsuð hafði verið upp til handa Samherja sjálfum, þá kunnu siðlausir DDRÚV-menn ekki að skammast sín og tóku enn meira fé skattgreiðenda frjálsri ríkisbubba hendi til að halda aðförinni að Samherja áfram, vegna þess að DDRÚV er orðið ríki í ríkinu, með svo gott sem óendanlega stóran kvóta

2. Á meðan fullt af mikilvægum málum eru að gerast í heiminum, þá beinir haturslið DDRÚV efnum og starfsorku sinni að þeim málum sem aðeins hjákátlega litla þýðingu hafa fyrir íslensku þjóðina, sem stofnunin var sett á laggirnar til að þjóna. Árum saman eftir hrunið, sem DDRÚV hafði lítinn skilning á, nema þann að það var allt Davíð Oddssyni að kenna, þá er heimurinn kynntur þjóðinni á hverjum einasta degi sem verandi að stútast vegna 0,024 prósentuhluta gufuhvolfsins sem skiptir engu máli miðað við 99,98 prósentur þess, sem hafa það fínt og skipta alla öllu máli. DDRÚV-stöðin er þarna gerð að eins konar heiðnikirkjuveldi, þar sem æðstu prestar þess messa á hverjum degi það sem þeir tengja saman við trú sína: DDRÚV verður hindurvitnastöðin með stórum staf.

3. Enginn hefur áhuga á þróunaraðstoð við hinn svo kallaða "vanþróaða" hluta heimsins lengur, því allir vita hvernig hún er. Það sama gildir um mörg góðgerðarfélög sem safna inn peningum sem renna allt að 90 prósent í vasa þeirra sem standa að því að safna peningunum inn. Hjálparbransinn er ekki hjálparbransi, nema að litlu leyti.

4. Þannig að fréttamat eða réttara sagt fréttaheimsskítsmát DDRÚV um "þróunar aðstoð" við fyrrum nýlendu Þýskalands, hvers keisari er sagður hafa framið þjóðarmorð í (ekki mín hugmynd; heldur lögsókn Namibíu á hendur þýska ríkinu), hefur enga fréttamatsþýðingu aðra en þá að reyna með öllum ráðum að ná, hvað sem það kostar, til Samherja svo finna megi bara eitthvað á fyrirtækið. Og á öll fyrirtæki má alltaf finna eitthvað sem betur mætti fara því þau öll eru aðeins mannanna verk. Nema náttúrlega sjálft DDRÚV sem virðist hafa náð stöðu eins konar yfirríkis í ríki okkar manna. Hatursleiðangur DDRÚV í Namibíu gagnast ekki beint stjórnvöldum þess lands vel í málssókn þeirra á hendur Þýskalandi.

Þarna sannar DDRÚV sig sem verandi sá rammgerði hlutdrægi hefndarverka-fjölmiðill sem það að mínu mati er. Fréttamat og heimssýn þess er lítið annað en þetta; að ná sér niðri á pólitískum andstæðum vinstrimennsku þess; þ.e. hinnar pólitísku hefndarverkastöðvar vinstrimanna með kveik sem logar af hatri.

Þetta er mín kenning og hún byggir á mínu eigin einkarekna og persónulega fréttamati. Og reynslan segir að þetta fréttamat mitt sé í megindráttum rétt. Þess vegna hata ég DDRÚV og ég hata að þurfa að borga fyrir þetta fyrirbæri og þar með að halda því á lífi. Látum þá sjálfa sem endilega vilja hafa DDRÚV borga fyrir það, en losum okkur hina úr DDRÚV-ánauðinni.

Gunnar Rögnvaldsson, 14.11.2019 kl. 12:10

2 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Nokkrar fréttir frá Nambibíu (ekki DDRÚV)

-------------------------

New Era útgáfan í Namibíu segir eftirfarandi að morgni 14. nóvember 2019

In a media statement, Esau confirmed his resignation, saying the allegations of corruption were part of a political witch-hunt by those who wish to use it as a (election) campaign matter. 

"No one has presented me with any evidence of monies or favours that Esau received from anyone in exchange for duties as a minister," he said.

Ministers quit over massive kickback scandal | Krækja 

Tengt | Special voting proceeds smoothly

-------------------------

Windhoek Observer útgáfan í Namibíu er með eftirfarandi frétt þann 1. nóvember 2019 í tilefni af fyrirstandandi kosningum í Namibíu.

"Take their bribes..but vote for NDP" - LukatoKrækja

-------------------------

Namibian Sun er með eftirfarandi frétt 14. nóvember 2019.

Bribes linked to fishing job lossesKrækja

-------------------------

Windhoek Observer útgáfan í Namibíu var með eftirfarandi frétt þann 28. júní 2019 um að Þýskaland útiloki að greiða skaðabætur vegna meðferðar þeirra á namibísku þjóðinni í byrjun 20. aldar.

German rules out financial reparationsKrækja

Gunnar Rögnvaldsson, 14.11.2019 kl. 18:06

3 Smámynd: Lárus Ingi Guðmundsson

þetta gekk ekki upp í fyrstu. 

Hægt að fara á Google og  stimpa eftirfarandi. 

Fyndin mexikani segir frá Íslandi. 

KV

lig

Lárus Ingi Guðmundsson, 14.11.2019 kl. 21:26

4 identicon

Sæll Gunnar.

Framkvæmdavaldið seilist æ meir
inná lendur dómsýslunnar og hefur
ef til vill þegar gengið of langt
og ætti að staldra við áður en lengra er haldið
á þeirri braut.
Annars er hætt við að stórslys hljótist af.
Að skjóta fyrst og spyrja svo kann ekki góðri lukku
að stýra.

Umræðan síðustu daga hefur verið með miklum ólíkindum.

Líkurnar á að nokkurt það mannsbarn fyrirfinnist
sem veit ekki að viðskipti við öll helstu ríki
Afríku ganga ekki fyrir sig nema að liðkað sé til
fyrir þeim eru harla litlar.

Í góðri sögu segir svo að sá sem leitar hefnda er
yfirleitt jafnframt sá sem meðtekur snoppungana!

Þetta virtist eiga við þegar Seðlabankinn og
tiltekið útgerðarfélag elduðu grátt silfur saman
fyrir skemmstu. Fór ekki á milli mála hvor deiluaðila
fór með sigur af hólmi í þeirri viðureign.

Fyrirtæki hafa gjarna látið fjármuni af hendi rakna
til samfélagsins í einu og öðru formi og eitt
er það að stjórnmálaflokkar, - sennilega oftast
fjórflokkurinn, - hafa tekið við styrkjum sem
væntanlega er þá til að hvetja þá ennfrekar til
dáða og þarfra verka til gagns fyrir land og lýð.

Greiðslur þessar a.m.k. að hluta eru ekkert leyndarmál
og með því að útgerðarfélagið sem hvað mest hefur verið talað um hefur einmitt styrkt fjórflokkinn hlýtur að vakna
sú spurning hvort hann skili þá ekki inn til þessa félags
stuðningi fyrir síðustu 20 árin svo þeir geti nú verið
alveg vissir um að allt fari að settum reglum
en síðast en ekki sízt samkvæmir sjálfum sér.

Skila peningunum til baka þó ekki væri nema til
að gera þenna skrípaleik ögn trúverðugri og trúðssýningin
geti heppnast sem best!

Pílatus þó hendur sínar, - öðrum er það tæpast vandara, -
er það?

Húsari. (IP-tala skráð) 14.11.2019 kl. 23:44

5 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér fyrir þetta Húsari.

Það versta er að ég vissi ekki að DDRÚV hefði verið stofnað til að vera allsherjarsaksóknari vinstrimanna og að sitja sem algjör vinstriklessa á herðum þjóðarinnar. Manni verður illt af að vera gert skylt að fjármagna þetta misfóstur. 

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 15.11.2019 kl. 21:03

6 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér innlitið Lárus

Kveðja

Gunnar Rögnvaldsson, 15.11.2019 kl. 21:17

7 identicon

Sæll Gunnar.

Þakka svarið.

Þér má nú ekki yfirsjást þau gífurlegu
sóknarfæri sem liggja í spillingunni.

RÚVega (sbr. Omega) hefur lagt allt undir
rétt einusinni og skýrist nú vitanlega af hverju
vikivakar og þjóðdansar fylla sjónvarpsdagskrána
allan ársins hring og nú er vetrardagskráin nýlega komin út
og á útvarpshluta RÚVega, Rás 1 og 2 er aðeins
einn þáttur í útsendingu allan sólarhringinn
næstu þrjá mánuðina en það er fyrsta hljóðupptakan,
Mary had a Little Lamb e. Thomas Alva Edison.

Á útmánuðum verða svo rokkóperurnar Litli Svarti Samfó,
Grenjað á gresjunni og í Efstaleiti, 10 litlir negrastrákar
og Negrarnir 63 í Þistilfirði.

Menn verða að sýna skilning á því þegar sökkva skal þjóðarskútunni að ekki er hægt að sóa endalaust í rándýrt
útvarpsefni.

Meiningin er síðan að kjafta einhvern tíl svo að
unnt verði að ráða útvarpsstjóra í sérverkefni í hjáverkum
m.a. í því að koma helstu útgerðum á hausinn og helst sjálfum sér líka, - engar kröfur verða gerðar um menntun 
nema að viðkomandi eigi óútrunnið og óbrunnið flokksskírteini.

Yfir til þín!

Húsari. (IP-tala skráð) 15.11.2019 kl. 22:40

8 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þetta þakka ég þér einlæglega og ákaft fyrir Húsari. Mikið er þetta nú afskaplega gott.

Já Húsari, þetta verður svona:

1 þýðir dauði yfir kapítalisma

2 þýðir allir verði jafnir

3 þýðir horfið í austur

4 þýðir múrinn mun falla vestur (hefur þegar ræst)

5 þýðir niður með útgerðina (f.o.m. Kveldúlfi)

6 þýðir niður með fullveldið

7 þýðir upp með Nallann (alþjóðina, hnefi á loft)

8 þýðir álverin arðræna

9 þýðir allt gott er vont

0 þýðir bylting

Sjálfum líkaði mér hins vegar alltaf betur við þetta hér

Ja hérna

Gunnar Rögnvaldsson, 15.11.2019 kl. 23:26

9 identicon

Sæll Gunnar.

Leyfist mér að nota
eina síðu af óskráðu síðuhaldi
þínu til að lofa Mennta- og menningarmálaráðherra,
ríkisstjórnina alla, fyrir að veita Jóni G. Friðjónssyni verðlaun Jónasar Hallgrímssonar á degi íslenskrar tungu,
16. nóvember 2019.

Munu margir það mæla að af mörgum völdum hafi útvalning
að þessu sinni sjaldnast tekist betur.

Jón G. Friðjónsson er af hjarta hógvær en
einarður stuðningsmaður og einlægur fræðimaður
á sviði íslenskrar tungu.

Á þessum tímum þegar brest­ur í hverju tré og málmi,
þjóðarskútan hrekst fyrir norðanvindum og kalda,
þá er fátt uppbyggilegra en að minnast bókar Jóns
sem út kom árið 1997 og nefndist Rætur málsins.

Bókin hefur að geyma þær ótöldu rætur málsins
sem rekja má til kristni og kristinna áhrifa
öld af öld.

Fám mönnum ef nokkrum hefur tekist betur upp og
vísast er verk þetta sá kyndill kristni sem skærast
mun lýsa og hæst mun bera á ljósastikunni inn í
21. öldina; fágætt og einstætt listaverk
hins lærða meistara orðsins og fræðimanns.

Mála sannast er að allur bókmenntaheimur um
Evrópu þvera og endilanga og án takmarkana að
öðru leyti er algerlega lokuð bók hverjum manni
sem ekki tileinkar sér það helsta á þessu sviði
og menningarkima aðra eins og goðafræði, gríska
og rómverska.

Í rótleysi samtímans er rétt að menn gæti þess
að hrekja ekki brottu með bægslagangi sínum og spuna
engla þá sem á öxlum kunna að sitja; að þeim
farist ekki svo að dætur heimskunnar, þær dul og rangvirðing,leiki sér svo oft að þeim, að þeir
viti eigi lengur hverjir þeir eru.

Húsari. (IP-tala skráð) 17.11.2019 kl. 12:50

10 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Velkominn með þetta - og þakka þér fyrir Húsari.

Já ekki veitir af.

Ekkert rótleysi er að finna þegar maður les í Biblíunni. Á mynd á netinu má því sjá hana á skrifborði Jóns G., enda ekki skrýtið þar sem íslenskan í þeirri bók er svo falleg að unun er. 

Gott mál. Þarf greinilega að lesa Jón. G.

Ég er þó einn þeirra sem óttast ekki um íslenskuna. Það styttist í næstu sveiflu þar sem henni verður gert hæst undir höfði, og þar sem þeir sem tala og skrifa hana ekki vel, verða undir í samkeppninni.

Það háir mér samt enn að hafa búið og starfað í 30 ár í öðru tungumáli.

Hef sterklega á tilfinningunni að tími hins ritaða máls sé að renna upp á ný. Flest annað er farið að þjóta inn og út um hitt, eins og lofttegund - og nóg er af henni.

Gunnar Rögnvaldsson, 17.11.2019 kl. 21:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband