Leita í fréttum mbl.is

To be, or not to be, in that sal

 
Það er þýðingarmikið, það er lífsspursmál, að slíkir menn séu til í þessum sal núna. Ef þeir finnast ekki hér, er réttast að taka undir með Sr. Sigvalda, að nú sé kominn tími til að biðja Guð að hjálpa sér.

 
To be, or not to be: that is the the question. Og hún mun verða æ áleitnari fyrir þjóðríkið
 
 
Fyrri færsla
 

Merck stöðvar afhendingu á krabbameinslyfi til grískra sjúkrahúsa

Þýska lyfjafyrirtækið Merck KGaA vill ekki lengur afhenda krabbameinslyfið Erbitux til sjúkrahúsa í opinberum rekstri í Grikklandi. Þetta segir talsmaður fyrirtækisins úr aðalstöðvum þess í Darmstadt í dag. Sjálfur yfirmaður fjármála hjá Merck KGaA, Matthias Zachert, segir enn fremur í samtali við Kauphallartíðindi Þýskalands, að sjúkrahús í opinberum rekstri í Suður-Evrópu-Evrópusambandsins séu þau sjúkrahús sem verst fara út úr evruupptöku Evrópusambandsins. Hann segir að Grikkland sé enn sem komið er eina landið í heiminum sem fyrirtækið neitar að afhenda lyfið til. Spánn sleppur enn sem komið er, en naumlega, fyrir horn forstjórnar Merck KGaA í sameinuðu Þýskalandi.

Grikkland gekk í Evrópusambandið árið 1981 —fyrir 31 ári síðan— og hefur á því tímabili þegið 97 miljarða evra af styrkjasukki frá aðalstöðvum Evrópusovétsambandsins í Brussel. Þeir áttu að byggja samfélag Grikkja upp.

Þann 1. janúar 1999 var evru-sogrörs-mynt Evrópusambandsins hleypt af stokkunum úr skipasmíðastöð ECB-aukaseðlabanka Þýskalands, eftir misheppnuðustu ríkjasameiningu veraldarsögunnar. Tilgangur myntarinnar af Þýskalands hálfu frá upphafi, var að bjarga rústuðum efnahag sameinaðs Þýskalands sem þá hét hinn sjúki maður Evrópu, á kostnað annarra ríkja heimsálfunnar.

Aðalefnafræðingur sameinaðs Þýskalands nú, er frú Angela Merkel. Hún er þess utan að upplagi og mennt stórefnafræðingur frá Austur-Þýskalandi kommúnista; DDR.

Tvær krækjur

FT: Merck halts supply of cancer drug to Greek hospitals

Der Spiegel: Wolfgang Munchau on why German unification was a historical mistake 

Fyrri færsla

Dynkur, marr, hvarf


Dynkur, marr, hvarf

Þar sem ég er ekki meðlimur í hinu lokaða intraneti dottið kom af intraneti Facebooks - og verð það aldrei - þá leyfi ég mér að gera athugasemd við pistil Frosta Sigurjónssonar hérna á því er nefnist Internetið.

Frosti skrifar;

Árið 2012 er staðan sú að seðlabanki landsmanna skapar aðeins 5% af peningamagninu en eftirlætur einkabönkum að skapa þau 95% sem á vantar. Bönkum sem eru að mestu í erlendri eigu sem þýðir að allur arður af peningaútgáfu* rennur þjóðinni úr greipum.

Æi; dynkur, marr, hvarf;

Altså minn kæri Frosti. Þjóðin getur ekki misst af neinu er varðar rekstur Seðlabanka Íslands og peningakerfisins, því hann ER þjóðin. Þannig eru ekta seðlabankar ekta ríkja með ekta mynt.

Fjármálakerfið er ekki Seðlabankinn því Seðlabankinn er þjóðin. Það er eins gott að það sé þannig áfram því þjóðin! ætlar EKKI að verða gírkassi fjármálakerfisins - þar sem 5 prósentin óku út um heiminn allan gíruð upp í áttugasta gír, eins og til dæmis Deutsche Bank gerði á sig í bókum sínum er kreppan skall á árið 2008 - og hangir því nú sem útrúlluð drepsótt um alla hálsa Evrópu. Fjármálakerfið er EKKI peningakerfið.

Síðan er þetta hér, fyrst við erum á annað borð að þessu: Stjórnmálamenn sem loka sig af inni á Facebook —sem krefst aðildar— ættu að skoða Internetið. Það er opið öllum. Fyrir allar kosningar í Lýðveldi okkar Íslendinga ætla ég ekki að skrá mig þar, því ég kem með vegabréfið mitt á kjörstað. Ég er nefnilega í Þjóðinni. Í stóra félaginu. ÞAR er ég skráður, en ekki á Facebook.

Svo ef formaður Sjálfstæðisflokksins kann á tölvu þá ætti hann fyrst og fremst að getað birst kjósendum sínum á Internetinu —og þar með öllum þeim sem í stóra félaginu eru— þar sem ALLIR geta lesið hann; án aðildar-skráningar. Nema að þetta sé lokað home-party hjá honum.

Það er hallærislegt að þurfa að segja þetta. En nú er það sagt. 

Takk

 

Var klárt í farsímum þegar árið 2007 f.h. - þ.e.a.s áður en gírkassi fjármálakerfisins bræddi úr sér

Svona

 


"Skýjatölvun"

Í enda dags alla virka daga ársins eru sendir út tölvupóstar frá fjölmiðlum og fjármálafyrirtækjum sem bera yfirskriftina "lokarinn" (The Closer). Þá er átt við lokun kauphallar-markaða. Hvað gerðist í dag. 

En hvað ef markaðir hafa ekki náð að opna. Er þá hægt að skrifa heim um lokun. Og þá um lokun hvers? Lokun lokunnar? Og ef markaðir Bandaríkjanna eru lokaðir, er þá eitthvað um að skrifa heim til fólks í heimi þessum? Nei. Ekki svo mikið, nema þá einmitt um veðrið á lokuðum mörkuðum Bandaríkjanna.

Larry Leibowitz rekstrarstjóri kauphallar New York borgar (NYSE) sendi eftirfarandi frá sér í kvöld. 

The Closer: Larry Leibowitz, NYSE Euronext's chief operating officer, warned of continued market infrastructure problems. "We are shooting hard to open tomorrow and fully expect to do so, but lots of firms are going to have either connectivity problems, or other things, so we are urging all firms to get out there and test their back-up," Leibowitz said (Reuters).

Oh dear, backups!

Skýjatölva sú sem óvart gekk yfir austurströnd Bandaríkja Norður-Ameríku er enn að fara í stígvélin sín. Alltaf skal það því vera best að drepast íklæddur stígvélum sínum. Því annars þarf maður bara að fara í þau aftur; reboot.
 
Þetta verður spennandi.
 
Fyrri færsla
 

Evrustöðugleiki: Smásala á Spáni hrunin um 10,9 prósent á 12 mánuðum

ÞINGMENN SÆKJA UMBOÐ SITT TIL KJÓSENDA 

ESB-umsókn Jóhönnu & Steingríms

Hæsta mælda atvinnuleysi í hagsögu Spánar er nú að skila sér inn í tröllvaxnar talnaraðir Eurostat hagstofu Evrópusambandsins. Alla leið frá INE-hagstofu Spánar berast eftirfarandi fréttir frá þeim starfsmönnum INE sem enn er borgað fyrir halda utanum Kúbukúlupenna stofnunarinnar, og sem eitthvað svo undarlega eru að þorna upp í takt við uppgufun skattatekna spænska ríkisins í evrum. Skrítið.

ESB-umsókn Ögmundar & Steingríms (umboðslausir)

Atvinnuleysi meðal allra íbúa Spánar mælist nú það hæsta í hagsögu landsins: 25,02 prósent. Þar kom að því að tími ESB kæmi.

ESB-umsókn Ragnheiðar Ríkharðsdóttur (umboðslaus)

Rúmlega 5,7 milljónir Spánverja eru atvinnulausir í evrum.

ESB-umsókn Árna Þórs Sigurðssonar (umboðslaus)

Atvinnuleysi hjá ungu fólki er 52,34 prósent. Kannski heimsmet og einnig í evrum.

ESB umsókn Svandísar Svavarsdóttur (umboðslaus)

Tæplega 800 þúsund Spánverjar misstu vinnuna á síðustu 12 mánuðum. Stöðugleikinn.

ESB-umsókn Ögmundar & Álfheiðar (umboðslaus)

Um 1,7 milljónir heimila á Spáni eru þannig stödd að enginn á heimilinu hefur atvinnu; eru því orðin dæmigerðar sósíaldemókratískar geimverur í eigin hagkerfi og í evrum: allir á heimilinu eru atvinnulausir. Um 300.000 heimili bættust í þennan hóp á síðustu 12 mánuðum.

ESB-umsókn Lilju Mósesdóttur (umboðslaus)

Smásala í landinu dróst saman um 10,9 prósent á síðustu 12 mánuðum. Að hugsa sér. Hvernig getur staðið á því? Samkvæmt stjórnmáli Jóhönnu & Steingríms ætti hagkerfið í evrum að geta staðið eitt og sér - eins og monolit á geimferðalagi úr öðrum heimi

ESB-umsókn Jóhönnu & Steingríms


Nýja Evrópa: Sement nú óþarft, steinaldarstigi komið á

Í evruríki Spánar í Evrópusambandi Samfylkingar Vinstri grænna, hefur þeim ánægjulega áfanga verið náð að sementsframleiðsla og eftirspurn eftir sementi í hinu og áður fjórða stærsta hagkerfi myntsvæðisins, er nú komin niður á það magn sem þurfti til að undirbúa nýja afsteypu af einum einræðisherra árið 1967. Sem sagt; tæplega hálfa öld aftur í tímann.
 
ESB-stöðugleiki; Oficemen says the industry is suffering the "worst crisis in its history."

Þetta er þá niður um einn þriðja af því sementi sem þurfti til að steypa Spán niður á bak við járntjald evrunnar árið 2011. Stöðuglekinn er svona mikill. Og árið 2011 var miðað við árin þar á undan, niður um einn fjórða af því magni sements sem ECB-seðlabanki evrunnar notaði til að steypa landinu af stóli, öll árin sem evru brjálsemisbandalags ESB var hrært út í steypuklossa þá er nú hanga fastir um hálsa Spánverja sem ein milljón óseldra nýrra íbúða, eins og evran hangir um alla hálsa Grikkja, Portúgala, Íra, Slóvaka, Kýpur und so weiter. 

Furðulegt er nú að hugsa til þess hve mikil áhersla var lögð á að aðskilja bandaríska fólkið í herstöðinni í Keflavík frá Íslendingum á sínum tíma. Greinilegt er á fréttinni hér undir að sá aðskilnaður hefur ekki borið neina ávexti inn í speglasal stjórnarráðsins í Reykjavíkurkreml. En þar er nú unnið nótt sem alla ónýta daga að greftri grafar Lýðveldisins beint niður úr forsætisstólum ríkisstjórnarinnar, undir götur borgarinnar, og upp í aðalbækistöðvar Evrópusovétsambandsins á Íslandi, sem þaðan fjármagnar baráttu ríkisstjórnarinnar gegn lýðveldi Íslendinga.
 
Hin gildandi 10-ára áætlun Evrópusovétsambandsins ber nafnið Lissabon-2020. Hún heitir í höfuðuð á Lissabon 2000 markmiðum Evrópusambandsins. Þetta kemur.
 
Fyrri færsla
 
 

mbl.is Barist um nýja og gamla Ísland
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Höfuð Stefáns Ólafssonar að tærast upp ofaní sandi ?

Háskólafræðimaðurinn Stefán Ólafsson sem mér virðist vera eins konar þáttastjórnandi top-of-the-microhagfræði-pops á milli þjóða, skrifar á heimasíðu sinni að;

Írar kusu sjálfir að bjarga bönkunum en voru ekki neyddir til þess. ESB hjálpaði þeim hins vegar að glíma við skuldavandann, gegn kröfum um eigin aðhald og niðurskurð

 

Einmitt það Stefán. Elíta Evrópusambandsmanna smíðar bát sem heitir evra. Á einum góðviðrisdegi hagsögunnar er farið út að sigla á evrubátnum. En all skyndilega er góða veðrið búið og stormur er skollinn á. Þá segir stóra gula hænan við Írland; "ef þú stingur írsku þjóðinni í gatið á bátnum þá komumst við lifandi heim". Reynt er að róa í land. En báturinn er að brotna meira og meira í spón. Portúgölum er þá boðið að "bjarga sér" með því að troða þjóðinni í gat númer tvö, svo sökkvandi Þýskaland og Frakkland komist nú einhvern tíma heim í Wunderland. En allt í einu dettur vélin niður í gegnum þurrafúinn botninn á bátnum og Spáni er boðið að "bjarga sér" með því að troða sér í það risavaxna gat. Akkeri lýðræðisins er fyrir löngu dottið í sjóinn og virkar báturinn nú eins og trollhleraður ryðdallur; eða eins og síbakkandi steypubíll sem gubbar úr öfugt hannaðri rúllunni og steypir sig sjálfur í kaf.

Sem sagt: Elíta Evrópusambandsins í Brussel setur á laggirnar hið stórpólitíska myntbandalag Evrópusambandsins (EMU) sem var og er enn svo hörmulega gallað og illilega undirförult meint frá upphafi, að það setti Írland í þá aðstöðu að annað hvort myndi markaðurinn skjóta myntbandalagið allt í kaf og öll bankakerfi þess samtímis, nema að því tilskyldu að Írland gengist í ábyrgð fyrir öllu misfóstrinu heima í sínum veika hlekk EMU-keðjunnar; og það á meðan hálaunuð hrossháruð ESB-elítan fyndi sér brotlegar leiðir yfir alla sáttmála myntbandalagsins og bryti í leiðinni niður allar þær efnahagslegu sóttvarnargirðingar sem settar höfðu verið upp; til þess að einmitt það sem gerst hefur gæti ekki gerst, því það myndi eyðileggja sjálfa tilvist ríkjanna í myntbandalaginu og þeirra landa sem þar sitja nú einmitt inni sem fangar; allt samkvæmt áætlun. Hér er atburðarásin eins og hún var á Írlandi: 

Innvortis fjármálaleg borgarastyrjöld: hvað er það? 

 ***

Evru- og ERM II svæði Evrópusambandsins; mars 2009

Þegar fjármálakreppan skall á myntsvæði evru og allt brást

- nema saklausir skattgreiðendur

- fjármálalegur störuleikur eftir Gunnar Rögnvaldsson

 

 
E. Hlutabréfamarkaðir byrjuðu að gefa sig

V. Hlutabréf banka- og fjármálastofnana urðu verst úti því hér var einmitt bankabóla að springa

R. "Fjármálamiðstöðin Írland" sem átti orðið mikið undir bankastarfsemi komið, horfði fyrst evrulanda á hlutabréfaverð banka- og fjármálastofnana nálgast fastfrosin blómabeð millibankamarkaðs evrusvæðis á ljóshraða. Sumir bankar áttu aðeins fjögur cent eftir niður í ekki neitt, eftir hafa fallið frá 21 evru hátindi og niður í það núll sem þeir eru enn þann dag í dag

U. Í örvæntingu — og af því að Írar vissu að þeir höfðu enga mynt né seðlapressu — þá ákvað ríkisstjórnin að gangast í ábyrgð fyrir öllum skuldbindingum innlendra banka í landinu. Þetta var örvænting áttavilltra manna og gert til að reyna að sporna við því að allir peningar færu á brott til útlanda úr bankakerfi landsins. Þetta er að sumu leyti sænska EMS-örvæntingar-líkanið frá því í nóvember 1992. En Svíar gátu þetta þá, af því að þeir áttu sína eigin mynt og seðlabanka — og gátu í kjölfarið fellt gengi sænsku krónunnar um 35 prósent til að koma hjólunum í gang á ný — og þannig varðveitt ytra lánstraust og greiðslugetu ríkissjóðs sem þurfti þá ekki, einnar myntar vegna, að þurrausa út í ekki neitt í atvinnuleysisbætur. Sænska ofurríkið er þó ekki, 20 árum síðar, alveg komið út úr bönkunum enn

S. Við þetta minnkaði fjármagnsflóttinn frá Írlandi nokkuð og hrun hlutabréfaverðs fjármálastofnana landsins hægði dálítið á sér

V. En við þetta hófst ofsafenginn fjármagnsflótti frá þeim evruríkjum sem gáfu ekki út auknar ábyrgðir handa sínum bönkum. Hlutabréfaverð þeirra féll hraðar og hraðar. Fjármagnsflótti úr löndum þeirra jókst og jókst  þannig að eiginfé bankanna tók að gefa eftir og nálgast lögleysu

A. Þá kom ríkisstjórn Austurríkis sem peningalegur klæðaumskiptingur út úr skápnum og gekkst í auknar ábyrgðir fyrir sínu bankakerfi
 
Ð. Þar með voru fordæmin sett á myntsvæðinu og þau ríki sem gengust ekki í auknar ábyrgðir fyrir sínum bankakerfum, gátu valið um að horfa á hlutabréfaverð fjármálastofnana sinna keyrt niður í jörðina og peningana yfirgefa landið — þ.e. flýja til þeirra evrulanda sem buðu betri ábyrgðir - eða að öðrum kosti hósta upp þeim ábyrgðum sem þeim af bjálfum í Brussel hafði verið sagt að aldrei myndu þurfa að koma til. Löndin væru jú í skjóli stærstu fljótandi peningavitleysu heimsins; þ.e. í myntbandalagi Evrópusambandsins og seðlabanka þess. Þeim hafði verið sagt að sóttvarnargirðing Maastrichtsáttmálans myndi koma í veg fyrir að áhættutöku einkageirans væri smyglað svona yfir á herðar skattgreiðenda (ríkissjóðs). En nú er Maastrichtsáttmálinn sem sagt brotinn í spón og orðinn að gjalli á 20 ára afmæli sínu.

I. Þarna geisaði eins konar innvortis fjármálaleg borgarastyrjöld á milli evruríkja. Ríkin yfirbuðu hvert annað með ábyrgðum til þess að reyna að sporna við fjármagnsflótta og hruni hlutabréfaverðs fjármálastofnana í sínu landi, hvert fyrir sig. Svona er að vera á hættusvæði

Ð. Danska ríkisstjórnin, sem síðar varð að láta undan þrýstingi, kom frekar seint út til að veita aukna bankaábyrgð. Og í þeirri fréttatilkynningu sem danska ríkisstjórinn sendi frá sér, voru nokkrir frekar óljósir punktar um það winding-up company (hluti af Finansiel Stabilitet) sem átti að taka sig af föllnum bönkum undir líkfylgd ERM-II fyrirkomulagsins. Þetta varð til þess að Danske Bank í mars 2009 var aðeins hársbreidd frá því að verða lagður í rúst með þeim 30 krónum sem eftir voru af 230 króna hlutabréfaverði bankans. Danmörk er í ERM II og því bundið á báðar fætur og hendur. Hún varð að hlýða hjörðinni til heljar, því annars væri hætta á gengishruni og þá myndi umsaminn svo kallaður gagnkvæmur "ERM-II stuðningur" frá ECB-seðlabanka Evrópusambandsins gufa upp eins hratt og hann gerði gagnvart seðlabanka Bretlands, haustið 1992. Ný fréttatilkynning var því send út í hasti til að reyna að róa markaði, hindra fullkominn fjármagnsflótta úr landinu og þurrð. Nú er svo komið að fjórum björgunarpökkum hefur verið hent til bankakerfis Danmerkur og sá fimmti er í smíðum. Því góði minn, Þýskalandið sjálft hefur nefnilega varið einum stærsta hluta landsframleiðslu allra evruríkja til bjargar sínu eigin bankakerfi. Þýskaland ræður alltaf í praxís. Og þú fylgir eftir sem ESB hundur

Þegar þarna er komið sögu er peningagólfið á myntsvæði ECB-seðlabanka evrusvæðis orðið að eggjaskurn. Það er orðið svo þunnt að hundrað þrjátíu og sex tommu snjóþrúgur þurfti að panta fyrir hættuför bankastjórnar ECB út á það. Einn maður, stuttu síðar, stóð þó af eigin sannfæringu nægilega uppréttur til að geta náð því að kasta af sér þvaginu yfir lotnar axlir kanslara Þýskalands. Hún fékk í kjölfarið hárþurrku að gjöf frá Braun. Þetta var Axel Weber seðlabankastjóri Þýskalands, sem síðan gekk út og hætti af beinum viðbjóði. En vatn hans situr þó enn á sínum stað. Framundan er því browning-burst lagning fyrir öll lönd ESB í hárþurrku kanslarans

Og þarna sitja þessar ríkisstjórnir og Brussel evrulanda nú, með makkverk sín. Heimavinnan fór aldrei fram. Af evrum urðu þær apar. Gagnslausasta mynt veraldar var svo illa upp hugsuð að Evrópa liggur nú í rústum, hennar vegna

Það var gott að á Íslandi sátu ekki svona aular í forsæti og við peningavöld haustið 2008. Það hefði orðið óbærilegt fyrir okkur öll. Fullveldi Íslands var þá notað og sjálfstæð íslensk króna gerði þeim það mögulegt. Annars værum við bust
 
Það þarf að nota vöðva frelsisins. Annars visna þeir
 
Bankakerfi flestra evrulanda komust í lausafjárþrot frá og með árinu 2008 og svo aftur um miðbik síðasta árs og eru nú enn aftur að komast í sama þrot. Þetta gerðist vegna þess lánveitingar á milli banka —interbank-lending— stöðvuðust. Þær stöðvuðust vegna þess að bankarnir vissu ekki hver af þeim á markaðinum voru að deyja. Fullkomið vantraust ríkti því bankanna á milli. Þeir treystu ekki hvor öðrum fyrir einni evru yfir nóttina

Í Bandaríkjunum kom bandaríski seðlabankinn —The Federal Resverve— í veg fyrir svona vantrausts-ástand á millibankamarkaði innan þjóðríkis Bandaríkjamanna með því að þvinga (skylda) alla banka í landinu til að taka við björgun (bail-out-money). Alveg sama hver staða þeirra var. Þar með vissu allir bankar í landinu að enginn þeirra var á leið í þrot vegna erfiðrar lausafjárstöðu. Þetta gat bandaríski seðlabankinn gert af því að Bandaríkin eru sjálfstætt fullvalda alvöru þjóðríki - og þetta virkaði. Svona er að hafa skjöld, sverð og Þórshamar. Þá ræður maður

Tvisvar sinnum síðan kreppan skall á síðsumars 2008 hefur seðlabanki Bandaríkjanna enn fremur þurft að koma öllu bankakerfi evrulanda til björgunar vegna þess að millibankamarkaður evruríkja virkaði ekki vegna viðvarandi vantrausts bankanna á milli. Þeir gátu því ekki lengur staðið við dollara-skuldbindingar sínar. Og enginn alþjóðlegur banki vildi lána þeim dollara til að borga þessar dollara-skuldbindingar. The Fed opnaði þá FX-SWAP-línur, þ.e.a.s gjaldmiðlaskiptalínur yfir til ECB-seðlabanka Evrópusambandsins upp á gátt til að bjarga heiminum frá hruni. Ef millibanka-markaður evrusvæðis hefði virkað þá hefðu evrumenn átt að geta bjargað sér sjálfir fyrir tilstilli ECB-seðlabanka Evrópusambandsins

En ECB-seðlabanki Evrópusambandsins er ekki alvöru seðlabanki. Hann er einungis seðlabankalingur, sem enga stjórn hefur á neinum peningamálum

Svona er að búa við platmynt og seðlabankaling. Það gerir Írland því miður. Þar hefur skorturinn á alvöru mynt og peningastjórn valdið neikvæðu framlagi til hagvaxtar í landinu í samfleytt 38 mánuði í röð. Evran og vanskapað peningakerfi hennar hefur dregið írska hagkerfið niður í samfleytt 38 mánuði - ofan í allt annað. En fyrst sprengdi ECB-seðlabankalingurinn Írland í loft upp með því að búa til stærstu fjármálabólu veraldnar; EMU
 
Við skulum ekki minnast á sjálft Grikkland á þessu hættulega augnabliki í sögu hinnar innvortis fjármálalegu borgarastyrjaldar sem Evrópusambandið hefur stofnað til með evrunni inni í ESB. Samúð mín með Grikkjum er djúp. Hún er miklu dýpri en samúð mín er með Steingrími J. Sigfússyni fyrir froðusnakk sitt frá greiðsluvanda yfir í heilshugarþrot. Einungis blaðurmenni haga sér svona

Myntmálið er hundrað sinnum dýpra mál en þú heldur. Þau eru um það bil sjálft framkvæmdavald fullveldisins
 
Hugsið um þetta
 
Fyrri færsla
 

Never underestimate a minority, sagði Winston

Aldrei að vanmeta né troða á minnihluta, var áður sagt.

Sá minnihluti Íslendinga sem vill breyta og útþynna stjórnarskrá Lýðveldisins, komst til orða og lét til sín heyra. Hann krefst þess að í kjölfar eina bankahruns lýðveldissögunnar verði skipt um þá stjórnarskrá sem allir Íslendingar eiga að lifa og deyja undir. Ekki er enn vitað hvers þessi freki og ósvífni minnihluti krefst við næsta bankahrun. Kannski krefst hann þess að hinn mikli meirihluti Íslendinga sem fyrirlítur aðförina að fullra-sátta-stjórnarskránni frá 1944, verði rekinn úr eigin landi.

Eins og þorri landsmanna vita er blekið á stjórnarskrá Lýðveldisins varla þornað, eftir hina löngu og ströngu baráttu Íslendinga fyrir að fá að búa við fullveldi og sjálfstæði í okkar málum í eigin landi.

Mig hryllir, býður við og skelfir sú pólitíska sturlungaöld sem sitjandi ríkisstjórn hefur verið og er stanslaust að reyna að koma af stað og tendra á ný í Lýðveldi okkar Íslendinga. Mikið er ég reiður. Mikil er fyrirlitning mín á þeim sem standa fyrir þessu máli.

Ég er minnsti minnihluti Lýðveldis Íslendinga; ein lifandi persóna. Og mér er afar illt. Ég óttast framtíð okkar ef þessu heldur svona áfram. Óttast framtíð Íslands sem frjálss og sjálfstæðs Lýðveldis. Ég er fullur af reiði og heift eftir stjórnartíð ömurlegasta forsætisráðherra Lýðveldisins, sem einnig er handhafi handjárnaðra skjálfandi handa stærsta kosningasvikara Íslandssögunnar; Steingríms J. Sigfússonar, hins huglausa formanns Vinstri grænna

Þetta endar illa.


Björn Bjarnason veit og skilur

Ég leyfi mér að benda lesendum á bloggfærslu Björns Bjarnasonar. 

Þekking Björns er mikil og skilningur hans á þessu máli er djúpur og afar mikilvægur. Hann skilur málið til fulls þegar hann segir:

Í Evrópu hefur verið reynt að gera eitthvað nýtt eftir tvennar heimsstyrjaldir, skilin við hið gamla eru þó ekki nógu skýr og verða það ekki vegna sögulegra róta sem ekki þvældust fyrir mönnum í Bandaríkjunum.

Lesið alla færslu Björns hér: Miðvikudagur 17. 10. 12. Hún er góð. 

Það er víst óþarfi að endurtaka hér skoðun mína á því hvað Evrópusambandið mun breytast í. Hana má lesa um hér í fyrri færslum


Stærsta fyrirtæki Grikklands yfirgefur landið og Evrópusambandið

Fullveldi, peningastefna og vaxtavopn þeirra evrulanda sem heita ekki Þýskaland né Frakkland
 
Coca Cola Hellenic (CCH) yfirgefur Grikkland og flýr samtímis öll sovétríki Evrópusambandsins. Það skráir sig einnig samtímis af og á brott frá hlutabréfamarkaði Grikklands og alls myntsvæðis Evrópusovétsambandsins. 

Fyrirtækið —sem var Grikklands stærsta— endurstaðsetur sig nú í Sviss og segist ekki lengur vilja búa við það óöryggi og þá fjárhags og starfrænu áhættu sem fylgir því að vera með starfsemi á evrusvæðinu í Grikklandi. Vilja ekki vera í landi sem um þessar mundir hefur verið samfellt 30 ár í Evrópusambandinu og þegið á jafn mörgum árum samtals 97 miljarða af evrumútum frá aðalstöðvum hinna nýju sovétríkja Evrópu í Brussel, og sem nær hefur lagt þjóðríki Grikkja að velli í vöggustofu hins nýja einræðis Evrópu.
 
Hér eftir mun fyrirtækið starfa í Sviss og standa skráð á hinum Engilsaxneska hlutabréfamarkaði Lundúnaborgar sem nýtur þess öryggis að starfa í skjóli hins sjálfstæða gjaldmiðils Stóra Bretlands, Sterlingspundinu; The Great British Pound; ISO kóði; GBP.
 
Það má teljast nokkuð þegjandi segjandi fyrir ástandið á evrusvæðinu að CCH skuli ekki vilja flytja starfsemi sína til Þýskalands, þar sem raunlaun þýskra launþega hafa lækkað um samtals 4 prósent á síðustu 13 árum og hagvöxtur verið sá allra lélegasti í heiminum á eftir framskriðnu öldrunarhagkerfi Japans. Leið-togari Evrópu, Þýskaland, hefur kastað nýja trollinu. Hann fékk í það sinn stimulus —á kostnað annarra— og nýtur þess.
 
 
Alþjóðlegi Rauði-Krossinn hefur verið kvaddur á vettvang í hinu evruhrjáða ríki Spánar þar sem atvinnuleysi nálgast nú hinn þriðja tug 10-ára áætlana Lissabonmarkmiða Evrópusambandsins, eins og í Grikklandi. Samtímis hefur héraðsstjórn ferðamannabræðslu Kanaríeyja lagst á evrudyraþrepin í Madríd til að biðja svo að segja gjaldþrota ríkisstjórn landsins um efnahagslega aðstoð, sem hún auðvitað getur ekki veitt án þess að kála sér enn frekar. Kanaríeyjar eru sjötta hérað Spánar sem evra Evrópusovétsambandsins hefur kalt klukkað inn á dýrðarþrep evrumyntar Spánar í Madríd.
 
Fyrri færsla
 

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband