Leita í fréttum mbl.is

Gervigreind að floppa eins og vefur Veðurstofunnar [u]

Veður-http-flopp

Mynd: Frá "já, nei, omg, æði, geggjað" orðaforðabúri veraldarvefsins um rafeindasuð

****

AI eða "artificial intelligence" á ensku og "gervigreind" á íslensku, er að floppa á mörgum sviðum og vonbrigðin eru mikil. IBM er því sennilega að selja Watson heilbrigðis-gagna-greiningar-kerfið núna og PWRDWNSYS (IMMED). En kona Ginni Rometti er loksins hætt sem forstjóri IBM, eftir að hafa næstum helmingað hlutabréfaverðið á IBM á síðustu tíu árum (já kona)

"It is hard to build AI technology that tells somebody what cancer treatment they should get, "because if you’re wrong, they’re going to die"." - skrifar WSJ um söluna á Watson og floppið í AI. (Ísleifur Sérhólm vissi auðvitað betur)

Það er reyndar ekki skrítið að gervigreind í tölvun floppi, þegar menn vita ekki einu sinni hvað greind er. Hvernig ættu þeir þá að vita hvað gervigreind er?

Næsta "still running" eða enn keyrandi flopp eru heiladauðar "rafmyntir" plús "fjártækni" - en einkum "loftslagslíkön" sem sýna sig að vera bara ný pólitísk líkön vinstrimanna. Flestir tölvunördar á vísindasviðinu eru krónískir vinstrimenn

Ekki þarf gervigreind til að sjá að húsin á Íslandi eru mun betur byggð en það sem Veðurstofan notar til að upplýsingaverja þjóðina gegn jarðhræringum: þ.e. vefsvæði Veðurstofunnar. Enda eru byggingariðnaðarmenn sú stétt sem sannarlega og með réttu getur kallað sig sérfræðinga. Slíkt er ekki hægt að segja um hinn pólitíska trúarsöfnuð lofthitakirkjunnar

Það er því mjög gott að hús á Íslandi eru ekki byggð eins og hrun-vefur Veðurstofunnar

Á næstu fáum árum mun 50-ára hagsveifla örgjörvans taka enda. Það eina sem enn er í gangi þar, er markaðsfærsla og litaval, þ.e. að leggja rafmagn í fjárhúsin líka. Síðan er það klessukeyrslan á múrinn og kolanámurekstur geirans inn í framtíðina, sem enginn mun vilja vinna við, sé komist hjá því

Uppfært kl. 20:00

Dow Jones Industrial Average - sögulegar tölur áranna 1965 til 1986

Sögulegar tölur bandarísku Dow Jones hlutabréfavísitölunnar næstu 20 árin eftir að 50-ára hagsveiflu bílaiðnaðarins lauk. Sé verðbólga tekin með í reikninginn er þróun vísitölunnar mjög svo neikvæð allt tímabilið. En frá og með árinu 1984 fer 50-ára hagsveifla örgjörvans að bæra á sér á hlutabréfamörkuðum. Fjárfestingar hefjast þá fyrir alvöru. Á undan 50-ára hagsveiflu bílaiðnaðarins réði hins vegar 50-ára hagsveifla rafvæðingar ríkjum á mörkuðum. En einnig sú sveifla nýrrar tækni entist ekki nema í 50 ár

Detroit 1967 Morgunblaðið

Mynd: Morgunblaðið 26. júlí 1967. Fjárfestingar, atvinna og tekjur hríðfalla í bílakísildalnum og víðar, frá og með 1959

****

Í dag eru vextir lágir vegna þess að það er ekki hægt að fjárfesta í neinu nýju, því ekkert nýtt er til. Þegar slíkt gerðist síðast, þá þurfti að kalla fallhlífarherdeildir Bandaríkjahers á vettvang í Detroit árið 1967. En raunverulegu ástæðurnar fyrir því skildu menn ekki fyrr en löngu síðar. Í dag er high-tech örgjörvasveiflunnar orðið að old-tech - og jafnvel að low-tech. Rafhlaða á hjólum er ekki ný tækni. Hún er gömul tækni. Það heyrist smá fruss í henni á mörkuðum eins og þegar lofti er hleypt úr gömlum hjólbarða

Fyrri færsla

Aðskilnað ríkis og þjóðar í raforkumálum þarf að afnema líka


Aðskilnað ríkis og þjóðar í raforkumálum þarf að afnema líka

Þarna sjá menn hversu galið það var að skilja peningakerfið og eftirlitskerfið að. Dilla var flutt inn frá útlöndum og blýklossinn sá seldur sem björgunarhringur

En það er einmitt það sem menn hafa gert í raforkumálum þjóðarinnar. Þar hafa stjórnmálamenn skilið að og drekkt áður mjög svo góðu og skilvirku raforkukerfi þjóðarinnar, samkvæmt innfluttum trúarkenningum imperíal-heimsveldis hins umboðslausa sértrúarsafnaðar Evrópusambandsins. Þar hafa menn látið erlent og ókjörið nýlenduvald ESB skipa sér fyrir í einum brýnustu tilvistar- og hagsmunamálum þjóðarinnar

Nú er þess vegna svo komið, að íslenskir stjórnmálamenn allra flokka nema eins verða að ána sér eins og maðkar og laumufarþegar um landið í aðdraganda komandi kosninga, þar sem þeim verður refsað grimmt fyrir fullveldisafsal og aumingjadóm í þeim málum

Sundraðir og búrhænsnatættir af erlendu og ókjörnu valdi, skírða þeir vænglausir um landið og reyna að láta sem ekkert sé

Að ESB-komminn er kominn út úr Seðlabankanum hefur gefst vel. Þá sértrúaranda þarf einnig að særa út úr stjórnmálamönnum okkar. Út með ESB-hjátrúna og inn með Íslandssöguna

Fyrri færsla

Kanslari og forseti rógburðar


mbl.is Traust á Seðlabanka eykst mikið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kanslari og forseti rógburðar

STÓRA BÓLAN ESB

Evrópusambandið er komið með nýtt bóluefnisvandamál. En þar eru slík vandamál framleidd á þeim færiböndum sem mjaka meginlandi álfunnar enn dýpra inn í hlutverk taparanna og ánauð

Rógburðarherferð Angelu Merkel og Emmanuels Macron út í breska bóluefnið af Oxford/Spitfiregerð, framleitt af AstraZeneca, er þegar byrjuð að skila miklum árangri í því að auka mótvilja gegn bólusetningum við kínversku Wuhanveirunni í löndum Rógburðarsambandsins. En þeim löndum sögðu kanslarinn og forsetinn að fylgja ekki vísindum, heldur rógburði þeirra sjálfra og persónulega pólitískum hefndarþorsta hinnar krónísku elítugræðgi er logið hefur upp heilu húsi fjötra yfir þjóðir menginlandsins. En þar hýrast þjóðirnar núna í fremstu skuldafangelsismynt jarðar, og fá þau skilaboð að bóluefni og bólusetningar virki ekki, vegna þess að Evrópusambandið gat ekki skaffað neitt slíkt sjálft

Þannig berast þær fréttir frá Norðurrín-Vestfalíu sem er fjölmennasta sambandsríki Þýskalands, að fólk neiti að láta bólusetja sig með bóluefninu frá AstraZeneca. En Þýskaland er eitt þeirra óvísindalegu landa sem segja að fyrst að lyfið hafi ekki verið prófað samkvæmt magn-óskum þess á ákveðnum aldurshópi, sé það sönnun þess að það sé slæmt fyrir þann hóp. Þetta er ekki ósvipað því að segja að jörðin sé að farast fyrst það er ekki að kólna akkúrat núna. Þetta, mínar dömur og herrar, eru "vísindin" sem koma úr slorbandalögum um lítið nema þvælu. Eurointelligence skrifaði því í gær:

"But this is misleading information. Not enough tests were conducted in that age group, but the real-world data from the actual vaccination programme in the UK shows that this vaccine has been very effective in reducing hospitalisation and fatality rates. As so often, people confuse absence of evidence with evidence of absence. The problem with a smear campaign against a vaccine is that this affects not only the use of this particular vaccine but vaccines in general."

EKKI Í FYRSTA SINN

Þetta minnir okkur á það aumingja sovéska fólk sem hlaut þau örlög að fá vinnu hjá fréttastofum Ráðstjórnarríkjanna. Þar var hlutverk blaðamanna að taka fréttir úr hinum frjálsu löndum jarðar og snúa þeim gegn þeim í sovéskum blöðum. Dekkjaframleiðandi sem auglýsti til dæmis að viðskiptavinir fengju ókeypis hjólbarða ef þeir sem hann hafði keypt hjá honum skyldu bila, varð að frétt um að hjólbarðar á Vesturlöndum væru svo ónýtir að ekki væri hægt að taka greiðslu fyrir þá

Sovésku blaðamennirnir vissu nær samstundis að geðbilunin ein biði þeirra við þennan starfa

Það er þarna sem ESB-flokkarnir á Íslandi starfa núna. Í slorinu - en af fúsum og frjálsum vilja

STAÐAN

Staða stóru-leikanna á meginlandi Evrópu er nú orðin þessi: Rússland er komið með fastan forseta sem sagði árið 2000 að fall Sovétríkjanna væri verstu geópólitísku mistök síðustu þúsund ára. Og eina kosningaloforðið sem hann gaf Rússum þá, var að snúa þeim mistökum við. Í Stór-Þýskalandi og á hinum föstu gervihnöttum á sporbraut um það, er staðan þannig að sú samsteypa er hætt að skammast sín fyrir Síðari heimsstyrjöldina og Helförina. Þar skammast menn sín nú fyrir að hafa tapað henni. Þetta kemur: Evrópusambandið sér fyrir því...

Guði sé lof fyrir að Stóra-Bretland er komið út

Fyrri færsla

Vindverkur og sólstunga sendir Texas á kné


Vindverkur og sólstunga sendir Texas á kné

Pólitísk vopnvæðing veðurfars

Afísing vindmylla

Mynd; sem segir sennilega meira en þúsund orð. Sumir segja hana sænska og frá 2014. En ekki batnar hún við það, því nú flytja Svíar inn kolaorku frá Þýskalandi - og bannað er að ryksuga

****

Þetta átti að vera svo ofboðslega gott, þetta með vind- og sólarorku í Texas. En það varð það bara ekki

Eins og líka gildir um sóttvarnir og aðgerðir gegn kínversku Wuhanveirunni, þá þurfti ekki, og þarf enn ekki, annað en mann með Iðnskólapróf til að segja svokölluðum yfirvöldum hvað ætti að gera og hvað ætti ekki að gera til að komast hjá vandræðum vegna orkuskorts og heimsfaraldurs

Vind- og sólarorkuver Texas afrekuðu það að detta niður um 98 prósent í raforkuframleiðslugetu er Kári Kuldi skall þar á. Sólfangarar virka ekki við svo lágt hitastig og alls ekki undir snjó. Og fastfrosnar eða illa virkandi vindmyllur gera það ekki heldur. Þess vegna eru milljónir manna án rafmagns í Texas

Á meðan er næg og hrein orka þar í iðrum jarðar. Svínaríið við að framleiða eina illa virkandi og einnota vindmyllu sér fyrir því að sú orka er og verður alltaf hreinni en þessi hreina þvæla þarna, sem síðan kostar milljarða að losna við - fyrir utan það að virka ekki

Gjörið svo vel skattgreiðendur. Hér er reikningurinn úr Heiðnikirkjuveldi háskólanna. Hvorugt þessa reyndist vera vísindi. Þetta var og er bara hjátrú

Veiran, hins vegar, virðir landamæri séu þau viðhöfð og þeirra gætt. Annað var einungis þvæla sem hvaða maður sem er með Iðnskólapróf vissi allan þann tíma sem "sérfræðingarnir" voru að leika sér. Þannig virka menntabólur. Þær skila næstum engu, nema vonsviknum menntamönnum

Hér mótmæla 500 þeirra því að Evrópusambandið haldi því fram að brennsla trjáa í stað kola til framleiðslu á raforku sé hið besta og "CO2-hlutlausa" mál

Reyndar gera vonsviknir menntamenn beggja megin Atlantsála í sívaxandi mæli lítið annað en að stunda mótmæli. En það gera þeir vegna þess að það sem þeim var kennt, reyndist vera þvæla og þvættingur án eftirspurnar og framfærslugetu

Og enn bólar ekki á bóluefnum úr bænaskjalasafni ESB-taglhnýtinga við Lækjartorg

Fyrri færsla

Slæm vika fyrir Demókrataflokkinn


mbl.is 21 látinn vegna vetrarveðurs í Bandaríkjunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Slæm vika fyrir Demókrataflokkinn

Upptaka: Lögfræðingur Trumps forseta bendir á tilraun Demókrata til að falsa sönnunargögn, með aðstoð meðvirkra fjölmiðla landsins

****

Síðasta vika var einn samfelldur hryllingur fyrir Demókrataflokkinn í Bandaríkjunum. En sá flokkur er nú þegar á nálum yfir því að upp komist um þau kerfislegu kosningavik sem skoluðu fjarframbjóðanda hans á valdastól Hvíta hússins. Þingmeirihluti flokksins varð hins vegar næstum að engu í þeim kosningum og er það í öskrandi mótsögn við hálfopinber úrslit kosninganna. Hefur flokkurinn sem sífellt tönnlast á vísindum neitað að taka til greina þau sönnunargögn og staðreyndir sem halda áfram að hrannast upp í því máli. Sönnunum er einfaldlega afneitað. En í síðustu viku keyrði þó um þverbak þegar í ljós kom að Demókrataflokkurinn hafði reynt að falsa sönnunargögnin sem leiða áttu til þess að þeim sem líklega vann kosningarnar yrði meinað að aðhafast neitt frekar í stjórnmálum landsins. En hann, þ.e. Donald J. Trump, óttast flokkurinn meira en allt annað

1. Tilraunin til að fá Trump forseta dæmdan af þeim dómstóli þingsins sem hæstiréttur landsins þvertók fyrir að koma nálægt –en það átti hann að gera samkvæmt stjórnarskrá landsins– rann algjörlega út í sandinn og gott betur en það. Gerði Demókrataflokkurinn sig þar að eins konar enn forhertari þorski á þurru landi, en nú á leið í hjallana

2. Tilraun þeirra manna innan Repúblikanaflokksins sem þola ekki Trump sprakk einnig í loft upp, með því að svo kallað Lincoln Project þeirra varð að ruslahrúgu undir ásökunum um valdníðslu og kynferðislega áreitni. Þar fór sú von Demókrata um vaxandi fjölda nytsamra kjána á borð við Mitt Romeny í röðum Repúblikana

3. Næst á matseðli vikunnar var svo ríkisstjóri Demókrata í Kaliforníu. Þar náðu kjósendur nægilegum fjölda undirskrifta sem þarf til að hægt sér að krefjast kosninga til að fjarlægja þann óhæfa mann úr embætti. En það segja of margir kjósendur Kaliforníu að demókratinn Gavin Newsom ríkisstjóri sé. Þúsundir fyrirtækja flýja nú frá ríkinu, stórfyrirtækin líka

4. Síðan sprakk lygaherferð Demókrata og sífalsandi fjölmiðlasamsteypu þeirra um óeirðirnar í Charlottesville 2017. En þar laug flokkurinn og fjölmiðlar hans því að Trump hefði sagt að óeirðarseggir og nýnasistar væru "fine people" þ.e. "gott fólk". En öll sú lygi þerra var jöfnuð við jörðu á Bandaríkjaþingi í síðustu viku, því þar voru ummæli Trumps ekki klipp í búta og gerð óþekkjanleg í meðförum lygapressu landsins (ber þar að nefna CNN sérstaklega og hæst). Sjá hér

5. Síðan er það ríkisstjóri New Yorkríkis, demókratinn Andrew Cuomo. En í vikunni brast þöggunarstíflan sem hann og stjórn hans hafði reynt að byggja utan um Wuhanveiru-dauða 15 þúsund eldri borgara ríkisins í þeim tilgangi að leyna mistökum sem gera hann ábyrgan fyrir dauða 11 þúsund þeirra. En allan tímann sem ríkisstjórn Demókrata þar vissi betur, hafði stjórn þeirra reynt að klína því máli á Trump forseta. Virðist nú sem samstaða sé nú að myndast í báðum flokkum ríkisins um að Andrew Cuomo beri ábyrgð á því máli. En hæg eru heimatökin hjá honum, því bróðir hans, Chris Cuomo, er einn helsti ofstækismaðurinn og skjátröllið á falsfréttastöðinni CNN

Þetta voru fimm virkir dagar í lífi vísindaflokksins mikla, og ekki voru þeir neitt betri í elítusamsæri Evrópusambandsins gegn fólkinu hinumegin Atlantsála, enda áttu Sovétríkin ofgnótt vísindamanna og dóu úr menntun

Fyrri færsla

23 stiga frost í Bretlandi í nótt


23 stiga frost í Bretlandi í nótt

Screen Shot 2021-02-11

Mynd: Spákort fyrir klukkan fimm að morgni 19. febrúar 2021

****

Hún er köld spáin fyrir Evrópu. Það var 23 stiga frost í Aberdeenshire í Bretlandi í nótt, það kaldasta í 26 ár. Og veðmálin eru að febrúar verði sá kaldasti í Bretlandi frá því að mælingar hófust, segir í Telegraph. Janúarmánuður var sá kaldasti hér á Íslandi í 26 ár, ef ég man rétt

Ef spáin gengur upp þá verður erfitt að finna stað með meiri hita en næstum engum í Suður-Evrópu og víða í Sahara og Miðausturlöndum líka. Búið er að vera kalt í Norður-Evrópu um tíma og kvartað er um öngþveiti og að ekkert virki á þýskum vegum. Og nóg er af snjó víða í Bretlandi og vestanhafs í Kaliforníu

Skyldi Skandínavíujökull nokkuð hafa myndast fyrst á síðustu ísöld. Vita menn það?

Þetta kallar maður nú kólnandi helvítis hamfarir fyrir kuldaafneitarana. Sérstaklega nú þegar komið er í ljós að jöklar bráðna vegna tilflutninga hins glóandi massa ekki svo langt undir jarðskorpunni, segja þeir við jarðfræðistofnun Tohokuháskólans í Japan. Jöklar bráðna einfaldlega neðan frá - til dæmis á Grænlandi og Íslandi

Jæja...

Fyrri færsla

Bóluefnismál þjóðar sett í hendur gangster-elementa stjórnmála


Bóluefnismál þjóðar sett í hendur gangster-elementa stjórnmála

Nú verður ríkisstjórnin, einkum Svandís-sovét og Katrín ásamt ESB-flokkunum, látin steikjast við hægan hita alla daga fram að kosningum, fyrir að hafa ákveðið að láta Evrópusambandið –þ.e. gangster-element stjórnmála– um bóluefnakaup fullvalda Íslands. Og 27 aðrar ríkisstjórnir verða líka á pönnunni

Feitin er þegar orðin 70 gráðu heit. Kannski fær þetta ESB-kartel rússneskt Novichok-4 bóluefni úr hjónabandi Merkels og Pútín. Hvílíkt klúður og ábyrgðarleysi!

Nú bjargar það Bretum að vera ekki í Evrópusambandinu, svo að segja strax á fyrsta degi hinnar nýju Brexitaldar. Oxford/Spitfire æða þar um og hafa nú þegar bólusett 18-20 prósent þjóðarinnar. Þetta er að mínu mati næg ástæða til að segja EES-samningum við ESB-svartholið upp. Flest vont er að hafast upp úr því illkynja fyrirbæri

Hundruð þúsunda íbúa meginlands Evrópu munu láta lífið af völdum hugmyndafræðilegar þvælu, svipað og í Sovétríkjunum

Nálgast nú Brusselberg-réttarhöldin í tímarúmi Evrópu. Þar mun ákæruskjalið hljóða á eins konar glæpi gegn skynsemi manna og beinast að þeim hluta mannkynsins sem lagði trú sína við gangster-element stjórnmála meginlands Evrópu

Og sjá; öskuhagar Þjóðarbandalags opnast, og ESB-verður að skrifstofu í litlu húsi við Genfarvatn

Þannig fer með réttu fyrir þeim sem hella vatni á bensíntanka björgunarsveita þjóða

Fyrri færsla

Mýtan um Evrópusambandið


mbl.is Ekkert verður af rannsóknarverkefninu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mýtan um Evrópusambandið

Hlaðvarp Spiked um ESB-útópíuna og bóluefnismálið. "Hvernig heimsfaraldurinn afhjúpaði ESB gersamlega" má síðan lesa hér

****

Ekki þýðir annað en að birta hér á útlensku um það málefni sem hver fjölmiðill með virðingu fyrir sjálfum sér ætti að birta hér heima en gerir ekki, nema Morgunblaðið. Og hér er alveg sérstök ástæða til að benda á lokaðan ríkisfjölmiðilinn DDRÚV. En hann hefur á hinum síðustu árum loksins fundið gluggatjöldin sem Halldór Laxness sagði að væri það eina sem Sovétríkjunum vantaði, því ekkert um ástandið í Vesturlöndum-nær sleppur út úr DDRÚV. Sérstaklega ekki um ESB-gjaldþrotasambandið. Aðeins þær fréttir sem passa við stefnuskrá DDRÚV sleppa út

Nú segir Ursula von der Leyen forseti framkvæmdastjórnar ESB að sambandið sé framar Afríku í bólusetningum gegn kínversku Wuhanveirunni. Er þetta ekki stórkostlegt. Meginlandsfyrirbærið ESB er að breytast í eins konar Norður-Afríku

En þá ber að geta þess að sá/sú stjóri/ína er sérstakur útsendari Angelu Merkels, sem aðstoðarritstjóri breska Telegraph segir að sé ofmetnasti stjórnmálamaður sinnar kynslóðar á meginlandi Evrópu. Hvorki meira né minna. Allt sem hún kemur nálægt leggur hún í rúst

Merkel og forseti Frakklands hafa nú breyst í eins konar bólusetningar-afneitara sökum þess hversu vel nýfengið fullveldi og sjálfstæði Bretlands virkar fyrir það þegar að lífsmikilvægum málum eins að verja þjóðina í og gegn heimsfaraldri kemur. Þar æða Oxford/Spitfire um Stóra-Bretland og hafa nú þegar bólusett 17 prósent þjóðarinnar á meðan, sem sagt, Evrópusambandið miðar sig við Afríku

Ekki gleyma að minnast hér á þriðja flokks orkupakka Evrópusambandsins Gunnar, því nú er svo kalt í veðri í turni ESBhrópsins að Svíar mega helst ekki ryksuga heima hjá sér vegna ESB-hugmyndafræðilegs orkuskorts og pappírsverksmiðjur landsins neyðast til að loka niður, því þá er rafmagnið svo dýrt. Þarna er draumur rafbílasovétsins sannarlega að rætast; bara má keyra á sunnudögum? Hjarðónæmi meðal forystu Sjálfstæðisflokksins gegn kjósendum hans hefur hins vegar verið náð. Það er þó eitthvað

Og hugsa sér. Nú er ástandið á Ítalíu svo "rosalega gott", eina ferðina enn, að ókjörinn Mario Draghi fyrrum ECB-seðlabankastjóri er að setjast þar við stjórnartaumana, einungis vegna þess að hann þekkir fólk um borð í seðlabanka evrunnar. Kjósendur koma hvergi nærri. Hvert skyldi nú aftur ítalska skútan vera á leiðinni? Tvær aðrar samsteypuríkisstjórnir riða nú til falls á meginlandi Evrópu: í Hollandi og Austurríki

Það besta sem gerst gæti fyrir Ísland er að viðurkenna að við Íslendingar eins og Bretland, getum ekki búið við meginland Evrópu því við erum ekki í Evrópu, og að við leggjum því aftur aðaláherslur okkar í utanríkisviðskiptum á Stóra-Bretland og Norður-Ameríku og nágranna þess í norðri, því ein og sér eru Bandaríkin stærri, öruggari og mun betri og þróaðri viðskiptamarkaður en allt meginland Evrópu. Á því meginlandi er nefnilega flest viðstöðulaust á leið til nýrrar heljar

Segja þarf EES-samningum upp og forða Íslandi út af lögsögu Evrópusambandsins áður en hún dregur okkur lengra niður í meginlandssvað hins þriðja farrýmis hagkerfa. En þar hefur Þýskaland nú náð því nýja en samt gamla þróunarstigi á ný, að það myndi endurframleiða næstum hvað sem er til aftöku á hverju sem er hvar sem er, græddi það túkall á því. Þar býr gömul púðurtunna sig undir nýjar hæðir, einu sinni enn

Bara þetta árið munu hundruð þúsunda manna missa lífið á meginlandi Evrópu vegna pólitískar hugmyndafærði elíta þess um ESB. Sovétríkin voru líka þannig. Þannig hugmyndir kosta nefnilega mannslíf, því þær eru drápsmaskínur

Fyrri færsla

Pútín hinn almáttugi? eða hvað


Pútín hinn almáttugi? eða hvað

Það er eitthvað sem ekki passar við þá sögu sem sögð er af Rússamáli númer 1.323.568 á vesturlöndum: Navalnýmálinu

Ef Pútín er svona mikill einræðisherra og svona vondur maður, af hverju er þá þessi Navalný enn á lífi? Af hverju er þessi maður enn að flækjast fyrir hinum almáttuga og einráða Pútín? Það skil ég ekki

Navalný er búinn að vera veltast um í rússneska réttarkerfinu að minnsta kosti síðan 2009. Ekki bara í einu máli þar sem hann hefur legið undir grun um ólöglegheit sem erfitt hefur verið að sanna og afsanna, heldur í mörgum málum

En samt er hann enn á lífi, en sem hann ætti ekki að vera samkvæmt furðufréttum um Rússland, þar sem blaðamenn Vesturlanda viðra kornabarnalegar hugmyndi sínar um Rússland á prenti. En þær hugmyndir eiga það sameiginelg með uníversal kommahugmynd fjölmiðla Vesturlanda um Vesturlönd; að séu þau ekki fullkomin að þá eru þau ónýt. Hamfaraheimska ræður því ríkjum þar núna

Rússland verður aldrei annað er harðstjórnarríki. Ekki vegna þess að fólkið þar sé vont, verra eða betra en annarstaðar í heiminum, heldur vegna þess að bæði þjóð, stjórnvöld hennar og hefðir mótast af landfræðilegri legu landsins og veðurfari. Rússland hefur svo gott sem engin náttúruleg landamæri sér til varnar og að halda því saman sem ríki og verjast innrásum krefst annars konar stjórnvalda og stjórnarfars en viðhaft er í Wisconsinríki Bandaríkjanna

Það er eitthvað gruggugt við þetta Navalnýmál. Hvernig gagnast maðurinn Pútín? Það er stóra spurningin sem ég bíð svara við. En hann er Rússlandsstjórn greinilega gagnlegri á lífi en látinn

Hvar er rökhyggja snjallsímandi vesturlenskra manna núna?

Þetta er ekki Íkea. Hvað býr undir?

- Gunnar er þjóðaríhaldsmaður

PS: Því erfiðara sem það er að halda þjóð saman því meira ríkisvaldi þarf að beita. Takmarkað ríkisvald getur því aðeins orðið stjórnarfar meðal þjóða sem ekki þarf að negla saman með valdi, þ.e. í þjóðríkjum þar sem þjóðin ræður málum sínum sjálf, og þjóðernið heldur henni saman. Þess vegna er ESB nýtt sovétríki í smíðum. Þar mun hið ótakmarkaða ríkisvald verða eina mögulega stjórnarfarið. Vagga frjálshyggju er því sterkt þjóðríki, þjóðtrú og öflugt efnahagslíf. Engin "þriðja hönd" er til, nema i bænum

Fyrri færsla

Bóluefnaskorts-lest Evrópusambandsins og EES brunar fram af brúninni


Bóluefnaskorts-lest Evrópusambandsins og EES brunar fram af brúninni

Það nýjasta sem gerst hefur í bóluefnaskorts-apparati Evrópusambandsins síðan á sunnudag, er að forseti framkvæmdaleysisstjórnar þess, Ursula von der Lygar, reynir nú að kenna undirmönnum sínum um og hendir þeim hverjum á fætur öðrum undir járnbrautarlest veruleikans sem nú brunar bóluefnislaus fram á egyptalandsteinum Evrópusambandsins, á meðan fólkið fellur, og stefnir þráðbeint í gerræðislegt allsherjar slys sem taka mun allt þetta ár og næsta að hrúgast upp með ærandi hávaða – til að byrja með. Síðan mun stund sannleikans taka við og taka ruslahrúgur Evrópusambandsins yfir og snúa það niður. Vonandi, því frá og með nú nú er því algjörlega sjálfhætt. Það sjá allir

Þarna átti að hefja Evrópusambandið á loft og sýna heiminum hversu máttvana sjálfstæð og fullvalda ríki jarðar væru með því að láta umboðslaust fjölþjóðaapparat en ekki ríkin sjálf um að bjarga sér úr verstu áföllum sem dunið hafa á Evrópu síðan 1945

En það fór heldur betur ekki þannig, því nú skín Stóra-Bretland –ásamt öðrum vestrænum ríkjum utan sambandsins– sem fullvalda, sjálfstæð og fögur borg á hæstu hæð í þessu máli öllu

En við sem hins vegar lutum svo örkumlandi bænaskjals lágt að láta EES-samninginn koma okkur þarna á kaldan og bóluefnislausan klaka Evrópusambandsins, erum varnalaus og munum heldur betur þurfa að éta skít þegar að bata og framförum í efnahagsmálum okkar kemur þetta árið og það næsta, og svo koll af krónískum ESB-kolli eftir það, einungis vegna EES-tengingar okkar við svarthol Evrópusambandsins. Út með þetta lamandi ees-ekkert!

Úr leiðara Morgunblaðsins í dag þriðjudaginn 2. febrúar 2021: Bóluefnastríð ESB

"Eft­ir á að hyggja hefði sjálfsagt ekki veitt af sam­keppni, því Evr­ópu­sam­bandið hef­ur full­kom­lega brugðist á hverju ein­asta stigi bólu­efnisáætl­un­ar sinn­ar. Fyr­ir vikið má heita ómögu­legt að það ná­ist að bólu­setja Evr­ópu­búa að því marki á þessu ári að ein­hver vörn sé í. Það er hörmu­legt fyr­ir al­menn­ing í Evr­ópu, þar með talið á Íslandi, en ís­lensk stjórn­völd ákváðu af ein­hverj­um enn ótil­greind­um ástæðum að binda trúss sitt við þessa ólán­legu áætl­un Evr­ópu­sam­bands­ins. Af því súp­um við nú seyðið og rík­is­stjórn Íslands þarf að gera hreint fyr­ir sín­um dyr­um um það." [krækja]

Mætti ég spyrja af hverju heilbrigðismálaráðherra okkar er enn með stól þess almennings sem hún hafði að háði og spotti í þessu máli undir sér? Hvers vegna er hún enn þá í því embætti? Hér ríkir gerræðislegur bóluefnisskortur einungis vegna EES-tengingar okkar við svarthol – á meðan ný Oxford/Spitfire æðir um og þekur Stóra Bretland og verndar þjóð þess með bóluefni, til dæmis með 600 þúsund skotum á laugardag

Er ekki komið nóg af engu? Ísland hefur mátt éta skít í bráðum fimmtán ár vegna EES-tengingar við svarthol þjóða

****

Hér eru tvær upplýsandi greinar um málið úr Spiegel, að vísu nokkurra daga gamlar og sem ritaðar voru dagana fyrir árás Evrópusambandsins á landamæri Írlands og Bretlands á föstudag: 1) Europe’s Vaccine Disaster: Ursula von der Leyen Seeking to Duck Responsibility og 2) Wie die EU bei der Impfstoff-Beschaffung versagte

Fyrri færsla

Evrópusambandið setur Írlandi landamæri að því forspurðu til að koma höggi á Breta [u]


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband