Leita í fréttum mbl.is

Þess vegna gengur Ólafur

“No good decision was ever made in a swivel chair”

"Engin góð ákvörðun hefur nokkru sinni orðið til í skrifborðsstól"

- George S. Patton

Stjórnmálamenn taka lýðveldis-ákvarðanir og starfa undir vængjum Íslenska Lýðveldisins. Ólafur Forseti tekur hins vegar ákvarðanir sem í eðli sínu snúast um Lýðveldið. Þarna er stór munur á. Mjög stór. Og til að vita þetta, þá þarf maður að ganga all mikið

Þetta veit Ólafur forseti vel og það er jú þess vegna að hann er Forsetinn. Ólafur gengur nefnilega. Hann gengur göngur sínar fyrir utan kassann. Á göngum sínum funderar hann og virðir fyrir sér kassann utanfrá. Horfir yfir til ostaklukkunnar þar sem skattaskjólið fyrir Eignarhaldsfélag Skríls yfir Austurvelli hefur skattalegt lögheimili sitt og varnarþing. Hann sér líka, úr fjarlægð eins og ég, ófriðarsúluna er lýsir höfuðborginni sem táknrænn og nútímalega fáfróður óviti hennar

Það er að mestu leyti gott að Ólafur Ragnar hefur gert þjóðinni það alveg ljóst að ekki er lengur sama hver býður sig fram til forsetakjörs. Hann hefur hækkað þröskuldinn upp í embættið. Og það var nauðsynlegt, því tímar eru tvennir. Og það er rétt sem hann segir, að flug gullinna vængja hins unga Lýðveldis Íslendinga, á flugi þess um öruggan himinn algerrar þjóðarsáttar um flest mikilvægt, hefur breyst mjög til hins verra og óstöðugra. Þökk sé meðal annars ófriðarsúludansi

Íslenska þjóðin stendur nú á þeim stökkpalli inn í góða framtíð sem forfeður okkar byggðu upp og sköffuðu henni. En sjá, skyndilega er komið fullt af ofdekruðu og blindu fólki upp á stökkpallinn, en sem því miður, vinnur þar dag og nótt við að skjóta göt á gyllta vængina, sprengja til skrokkinn og rífa pallinn, til þess eins að eyðileggja dýrgripinn okkar, Íslenska Lýðveldið

Fyrir mig yrði Ólafur góður forseti. Hann gengur og er utan kassans. Hann er ekki fullkominn, en samt mjög góður. Við þurfum svona góðan og reyndan mann. Við þurfum ekki fullkominn mann, því þannig maður getur ekki batnað

Fyrri færsla

Blaðamanna-bananastéttin og markaðurinn


Blaðamanna-bananastéttin og markaðurinn

Komdu fram sem engill en gerðu eins og Björk í Evrópusambandi

Blaðamannastéttin hefur nú í brátt 22 ár misst stóra markaðshluta, viðskiptavelvild, peninga og traust eftir að Veraldarvefurinn lokaði á de facto birtingar- og fákeppnisaðstöðu þessa geira (útgáfustarfsemi)

Ekki er því að undra að þeir álíti það afar sterkt tromp að sitja á svona þýfi eins og þessum stolnu skjölum til að einoka það sem úr þeim má sjóða saman í sull, til svo að nota sullið sem pólitískt kúgunarvopn. Og til að setja þá þar með í aðstöðu þar sem þeir sjálfir sitja og ákveða í sínum oft á tíðum perverta pólitíska klikkunarheimi, hver sé "saklaus" og hver sé "sekur" í þeim stolnu hrá-gögnum sem stolið var handa þeim. Og hafa þeir þó ekki neina beina gagna- og þekkingarlínu hjá Ríkisskattstjóra til að bera neitt saman við raunveruleikann

Ég geri sjálfkrafa ráð fyrir því að þeir sem fjármagna og blinda blaðamennina, færi þeim einnig dóma-listann yfir þá "seku" og haldi áfram að aðstoða þá við að vinna markaðshlutdeild til baka, frá þeim sem ei hafa miljarðamæringa í Bandaríkjadölum sem fjárhagslegan bakhjall og sem að mestu starfar sem ósýnilegur neðanjarðar stórþátttakandi í alþjóðlegum stjórn- og fjármálaum veraldar

Móralskur réttur minn til að hafa fullt og óhindrað aðgengi að öllu því sama og blaðamenn hafa í sambandi við þessi stolnu skjöl, er að minnsta kosti jafn hár, mikill og jafnvel enn hærri, en "réttur" þessara blaðamanna er, gefi maður sér á annað borð sjálfur þær forsendur að vilja umgangast og meðhöndla þýfi, sem ég geri ekki og vil alls ekki. Þessi gögn eru með réttu alls ekki mín. Bara alls ekki, engan vegin og verða það aldrei

Pólitísk ítök miðils eins og DDRÚV urðu fyrir áhlaupi þegar veraldarvefurinn opnaðist, þó svo að mikið sé nú reynt til að loka honum aftur með til dæmis því að fá fólk, einnig miðla og stjórnmálamenn, til að loka sig af inni á innra-neti fyrirtækja á borð við Facebook Inc. Hinn innri vefur þess er lokuð blindgata til að safna röddum saman sem lengst inn í botnlanga samsteypunnar, þar sem hægt er að græða á þeim. Þar er samkundan ekki samkunda, heldur einungis fólk sem talar við sjálft sig og í mesta lagi við hvort annað, er introvert í öllu, og lítið í beinu sambandi við neitt, nema conceptual botnlagnabólgur fyrirkomulagsins, sem er lokuð gildra. Stokkhólmsheilkenni aflokaðra meðlima tryggir síðan núll "likes" þegar illa er talað um gíslatökuna, eins og ég geri hér. Þetta er rosalega flott einræðisumhverfi fyrir "opnu umræðuna"

Bahamas var það heillin - því "skattar eru svo háir" í Bretlandi. Bókarinn minn saggði það. Saggði það. Saggði það ...

Það er skrítið að ekki skuli hafa verið brotist inn í eitt einasta mikilvægt skattaskjól Evrópusambandsins, eftir að það sannaðist að yfir þúsund stjórnmála- og embættismenn þess leyndu þar lífeyrissjóðum sínum í 20 ár, og þáðu þaðan faldar og skattfrjálsar ofurgreiðslur, á meðan þeir samtímis voru á framfærslu hjá skattgreiðendum í heimalöndum sínum. Lífeyrisgreiðslu-útflæðið úr þessum sjóðum stjórnmála- og embættismanna ESB í Lúx var svo gengdarlaust að sjóðirnir voru reknir með krónísku tapi er nam miljörðum króna árið 2009

Og svo eru öll þessi skattaskjól fyrir ríkisstjórnir Evrópusambands-landa sem notuð voru og eru enn til að fela framfærslubyrði ríkissjóða og til að punta upp á þjóðhagsreikninga landanna er þau smygluðu sér framhjá og upp í Maastricht-helvíti ESB. En auðvitað gerist það ekki, þar sem aðalfjármagnari Panamadæmisins er krónískur ESB-sjúklingur og forsætisráðherra Lúxemborgarskjóls Samfylkingar og Vinstri grænna er Forseti Framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins

Fráfarandi og þjóðkjörinn forsætisráðherra og drengur góður hefur greinilega ekkert, frekar en blessuð Björk, vit haft á "skattaskjólum" þeim sem allir þykjast allt í einu vita allt um þessa dagana, en sem eru alls ekki ólögleg. Þar eru skattar bara lágir. Hefði hann haft það og ekki látið banka ráða fé, sem maður ætti aldrei aldrei nokkru sinni í lífi sínu að gera, en það gerðu því miður herra og frú Allir fyrir hrun, þá bendi ég á að Danmörk er númer 42 á lista yfir frábær "skattaskjól" (betra en Botswana í Afríku) þar sem erlendir eigendur eignarhaldsfélaga í Danmörku þurfa ekki að greiða neinn skatt af arði ef hann situr á meira en 10 prósent hluta þess og fær arðinn sendan til "útlanda". Annað hvort í ESB eða til landa sem hafa tvísköttunarsamninga við þetta skattpíndasta land veraldar

Auðvitað vill Danmörk ekki missa af neinu, ekki frekar en öll önnur ríki veraldar. Ekki frekar en til dæmis ríkið Ísland undir kommúnistaríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri grænna sem setti á fót starfshóp eða nefnd til að greiða með aðstoð DDRÚV götur kínverskra fjárfesta í skattaskjólum, er stolið höfðu peningum alþýðunnar í Kína, og flutt þá ólöglega úr landi, svo að hægt væri fyrir þeirra tilstuðlan að selja þeim til eignar hluta af þjóðríki Íslendinga - á stærð við fylkið Maine! Þarna á ég við Grímsstaði á Fjöllum. Þetta fólk stendur svo allt í einu öskrandi með sérleyfi Eignarhaldsfélags Skríls yfir Austurvelli í höndunum

Hvað ætlar Allsherjar Rannsóknarráð Ríkisins og skattfjárskýlisrekstur blaðurmanna DDRÚV að gera í þessu? Rannsaka sig kannski í hel. Ekkert var rannsakað, engum sannleika var leitað eftir, heldur var bara skúbbað úr vör til að skaða pólitískan en þjóðkjörinn andstæðing sem mest, og friðhelgi Alþingis Íslendinga ötuð út og dregin niður í drulluna, eina ferðina enn, með útvarparði aðstoð Eignarhaldsfélags Skríls yfir Austurvelli. Maður ælir!

Fjármálaráðuneyti Brasilíu setti Danmörku á listann yfir "skattaskjól" árið 2010. Og hinar Bresku Jómfrúareyjar eru hluti af Stóra-Bretlandi. Ja hérna. Þarf ekki brátt að byggja nýjan Berlínarmúr, til að auka nú miðflóttaaflið eins og í sovétparadís vinstrisins forðum, þar til að allar eigur allra eru loksins komnar alveg út úr lögsögunni. Hej Svergie

Og þegar evruknúnir bankarisar ESB hrundu í fangið á skattgreiðendum evrusvæðis, þá skilgreindi kanslaraína Þýskalands allt stórhertogadæmið Lúxemborg sem eitt stykki "skattaskjól". Hljóp þá forsætisráðshéri þess dæmis í fýlu en sem löguð var til með pólitískum hrossakaupum í reykfylltum stromp-herbergjum og embættisveitingu á móti

Stutt er síðan að íslenskir blaðamenn fóru í boðsferð til báknsins í Brusselbanana. Á undan þeim hafa evrópskir blaðamenn verið þar í þúsundum áratugum saman til að drekka þar í sig ríkidæmi sambandsins, sem er á hausnum og á barmi borgarastyrjaldar samtímis, meðal annars þeirra vegna, því að af aurum sambandsins urðu þeir apar og hafa verið þannig í samfellt 58 ár

Fyrri færslur

 Þúsund blaðamenn í blóma vasa?

 Kreml: Breytingar á ríkisskjalasafni Rússlands fyrirskipaðar

 Traust Svía á sænskum fjölmiðlum nálgast Tyrkland

 Pólitísk fjárkúgun, er það rétta orðið?

 Þýskaland felur skuldbindingar ríkissjóðs í skattaskjólum 


Traust Svía á sænskum fjölmiðlum nálgast Tyrkland

Traust á fjölmiðlum í Svíþjóð og Tyrklandi vor 2016

Rannsókn Edelman

Tyrkir eru eina þjóðin af 28 sem ber minna traust til fjölmiðla en Svíar bera til sinna fjölmiðla í Svíþjóð. Sænska þjóðin hefur misst nær allt traust á fjölmiðlum landsins. Svo slæmt er ástandið að aðeins fjölmiðlar Tyrklands njóta minna trausts og eru þeir þó starfandi innan í einræðisríki í byggingu

Rannsóknin nær til blaða, útvarps og sjónvarps sem mest er ríkisrekið og rautt-DDR í Svíþjóð

Í Tyrklandi er fjölmiðlafólk handtekið fyrir að móðga ríkisstjórnina. Í Svíþjóð eru fjölmiðlar hins vegar svo rétttrúandi að það þarf ekki að handtaka þá. Þeir eru trúarstofnanir marxista og lúta trúleysistrúnni, sem yfirleitt er Salin, en þegar á þarf að halda, Stalín

Öll stjórnmál í Svíþjóð eru ein og sama sérhannaða sænska batikmussan fyrir lítið annað en hreinan kúltúrmarxisma. Sovétsjónvarpið var skemmtilegt miðað við sænsku stekpanne-polisen hjá sérstaklega DDR-SVT

Í Svíþjóð getur því aldrei orðið stríð. Enginn mun berjast

Fyrri færsla

Kreml: Breytingar á ríkisskjalasafni Rússlands fyrirskipaðar


Kreml: Breytingar á ríkisskjalasafni Rússlands fyrirskipaðar

Executive orders on the Federal Archive Agency

Kreml 4. apríl 2016

Breytingar á stjórnskipan, aðgengi, umsjá og yfirstjórn ríkisskjalasafns Rússlands voru fyrirskipaðar þann 4. apríl 2016. Veittur er þriggja mánaða frestur til að framkvæma breytingarnar. Ríkisskjalasafnið færist hér með aftur yfir á hendur Forsetaembættis Rússneska Sambandsríkisins. Forseti þess er Vladímír Pútín

Ástæðan fyrir því að ríkisskjalasafnið verður einnig fært undir forsetaembættið, er sögð vera sú, að safnið allt inniheldur 500 milljón mál og mörg þeirra eru af "verulegu alþjóðlegu mikilvægi"

Smáfuglar hafa við þetta flogið upp og þyrlað allt að 1930 til 1989 rykkornum -og jafnvel enn fleirum- upp í lævi blandin háloftin. Þau munu öll falla vistvænt grænt á rétta og þurra staði. En hægt verður við hratt blikkandi vinstri stefnuljós að skoða fall þeirra með berum augum á Íslandi. Vasar Soros fullir af pent röðuðum jómfrúarskjölum sem nýheilagir réttlætis-skenkjandi "rannsóknarblaðamenn" dingla í, munu að líkum fara grynnkandi, í takt við niðurfallið og vaxandi bænahald

Fyrri færsla

Þúsund blaðamenn í blóma vasa?


Þúsund blaðamenn í blóma vasa?

Fortune 4 apríl 2016 um stuðning George Soros

Mynd: Fortune 4. apríl 2016

Skrif fyrrum sendiherra Bretlands í Uzbekistan og áður rektors háskólans í Dundee, Craig Murray, eru til umfjöllunar á vef Fortune

Þar segir að ástæðan fyrir því að fjölmiðlaveldi og ýmis önnur veldi hinna ríkustu Vesturlanda séu ekki á hinum svokallaða "lekna lista" yfir lögaðila í lágskattalöndum- og héruðum, sé nokkuð augljós. Þeim gögnum var haldið til baka og haga. Og aðeins þeim matreiddu gögnum sem þjóna ákveðnum tilgangi var "lekið" - þau voru birt, en sem engir hafa þó séð í heild

Listinn er ekki tekinn og lekinn, heldur var brotist inn í gagnageymslur til að stela honum. Farið var yfir hann og hann skrúbbaður og lagaður til áður en honum var raðað upp og sérhönnuðu aðgangssniði (data-view) að honum komið fyrir í höndum blaðamanna, sem meðal annarra eru óbeint tengdir launalista eins fremsta uber-peninga-tanks veraldar, herra Geroge Soros spákaupmanns. Manns sem frægur varð fyrir að gera skipulega atlögu að breska seðlabankanum árið 1992. Sú atlaga hans til að græða risavaxnar summur af peningum á óförum breskrar þjóðar, sprengdi allt EMS gengisbindingar-fyrirkomulag ERM-landa í tætlur árið 1992. Kerfið var þegar undir fyrirsjáanlegu uppbroti eins og evran er núna, en Geroge Soros veðjaði hrikalega stórum lánssummum því til höfuðs, og tókst að örenda seðlabanka Bretlands það mikið að sá seðlabanki peningakerfis breska fólksins komst í svigrúmsþrot

Að skrúbba mörg terabyte af texta og tölulegum upplýsingum sem flestar eru innbyrðis en ósýnilega tengdar í örlitlar gagnaeyjar, og sem innihalda aðeins kennitölulaus nöfn og sem eru því án sameiginlegs auðkennis, krefst mikils mannafla í mörg ár. Ekki hers fréttablaðamanna heldur hámenntaðs fólks úr hinum alþjóðlega fjármálaheimi á háum launum með mikið fé til umráða. Því hér er alls ekki um einfalt "data-dump" að ræða eins og Wikileaks, heldur fullhannaða, fullbúna og þaulskipulagða gagnabyggingu úr óteljandi form- og litlausum legó-kubbum. Kubbum sem án gífurlegra auðæfa og innri sérþekkingar myndu alls ekki líta út sem heilt hús sem hægt er að sitja makindalega inni í og skrifa níð um persónur sér til ánægju út um glugga hennar, með aðstoð risavaxins fjármagns risavaxins styrktaraðila sem Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra Íslands hefur sparkað til og móðgað gróflega fyrir hönd íslensku þjóðarinnar. En Sigmundur Davíð hefur verið sá sem sparkað hefur hve harðast til þess heims sem hér heldur uppi heilum her frétta- og blaðamanna sem settir hafa verið honum en þó allra mest öllum öðrum og mun mikilvægari til höfuðs. Nafn forsætisráðherrans var bara hin kærkomna og tilviljanakennda brauðmylsna á skorpuna sem féll af borðinu er skúbbað var úr vör

Það er alls ekki bannað að hugsa. Að minnsta kosti ekki enn sem svo illa komið er. Ég ráðlegg mönnum að hugsa með höfðinu og að fylla það ekki með hálm til að setja í heilastað

Þessi skrif mín eru aðeins mitt uppkast að veruleikanum og ber að líta á þau þannig og aðeins þannig. En það er að minnsta kosti jafn gott uppkast og sá sýndarveruleiki sem fjölmiðlar og svo kallaðir "blaðamenn" eru að bera á borð fyrir almenning þessa dagana - og árin hin mörgu áður, er þeir unnu svo innilega markvisst og hart að því að auka trúverðugleika þess fjármálageira sem Sigmundur Davíð Gunnlaugsson hefur sparkað til af fullu afli fyrir hönd íslensku þjóðarinnar hin síðustu ár

Fífl!

Fyrri færsla

Pólitísk fjárkúgun, er það rétta orðið?


Pólitísk fjárkúgun, er það rétta orðið?

Ég hef séð hannað viðtal við þjóðkjörinn forsætisráðherra Íslands, Sigmund Davíð Gunnlaugsson. Viðtalið var tekið með því að veita honum fyrirsát

Eftir að hafa horft á það kemst ég ekki hjá þeirri ömurlegu tilfinningu að DDRÚV stundi pólitíska fjárkúgun sem skattafjármagnaður fjölmiðill vinstrimanna á Íslandi. Takið eftir að ég skrifa ekki að þeir stundi pólitíska fjárkúgun. Ég skrifa hins vegar að það er sú tilfinning sem ég fæ. Það óbragð sem ég fæ í munninn

Og óbragðið fæ ég vegna þess að þeir sem taka viðtalið gera það á fölskum forsendum. Þeir sitja með þýfi og nota þýfið á pólitíska andstæðinga sína. Þeir græða líka peninga á þýfinu. Dönsk skattayfirvöld hafa til dæmis af prinsipp-ástæðum neitað að kaupa þetta þýfi og segja að það sé vegna þess að þýfið sé þýfi og að réttaröryggið vegi þyngra

Við vitum öll hvernig þessi fréttastofa er innréttuð og þeir voru ekki í leit að neinum sannleika um neitt þegar þeir birta þetta gamla viðtal með því að klippa það inn í hannaða atburðarrás sem þeir hafa unnið að með annarlegum ásetningi. Fyrir mér lítur ásetningur þeirra þannig út: þ.e. sem annarlegur

Þeir einir vita hvað er í þýfinu, sem framvegis verður líklega talið fram sem óefnisleg eign (goodwill) í eigna-uppgjöri einkahlutafélagsins Reykjavik Media ehf. Tilgangur hlutafélagsins er framleiðsla á kvikmyndum, myndböndum og sjónvarpsefni. Þýfið gæti þannig aukið virði félagsins ef það verður selt áfram

Viðtalið er í mínum augum eins og sérhönnuð pöntunarvinna fyrir pólitískan viðskiptavin. Taka þýfi, vinna úr því með leynd og nota það sem pólitíska ógn. Ekkert nýtt kemur fram nema þetta viðtal, skilst mér

Gögnum er stolið og þýfið er selt. Kaupandinn gerir sér mat úr þeim og notar þau til að þéna á þeim og til að nota þau sem pólitíska ógn með aðstoð erlendra aðila, sem vinna með þeim við að byggja upp pólitíska ógn. Það er það óbragð sem ég fæ í munninn eftir að hafa séð viðtalið. Óheiðarleg vinnubrögð sem minna á mafíuaðferðir er bragðtegundin sem ég fæ í munninn

Allir sem hugsa, vita að pólitísk græðgi er mörgum sinnum verri og hættulegri en fjárhagsleg. Sú græðgi virðist mér vera hér að verki. Pólitísk græðgi og lítið annað

Mikið skil ég vel eftir þetta, að forsætisráðherrann skuli ekki vilja tala við DDRÚV.

Enginn reynir að draga pólitískan heiðarleika forsætisráðherrans í efa. Enda er það ekki hægt

Fyrri færsla

Forsætirsáðherra vill auðvitað ekki tala við DDRÚV ríkisskattaskjól Vinstirmanna


Forsætirsáðherra vill auðvitað ekki tala við DDRÚV ríkisskattaskjól Vinstirmanna

Ekki skal mig undra að forsætisráðherrann vilji ekki tala við sorpsjónvarpið DDRÚV. Sérstaklega ekki eftir að hafa lesið skrif hans á heimasíðu sinni: Stóra myndin. Aðförin að honum núna minnir okkur á svínslæti DDRÚV gangvart Davíð Oddssyni er stofnunin elti seðlabankastjórann sem hún var með á heilanum og saup hveljur af því að hann vildi ekki tala við sorpsjónvarpið þeirra, sem þá reið landinu og stóð fyrir aðför að fólki og hvatti til óeirða, upplausnar og villimennsku þegar þjóðin átti bágt

Upp með fánann þjóðkjörinn Sigmundur Davíð. Niður með DDRÚV. Og út með það. DDRÚV er ömurlegt sundrungarafl vinstrimanna og þjóðinni hættulegt. Pólitísk uppeldishreyfing vinstrimanna með ekkert lögmæti. Ekkert!

Forsendurnar fyrir kjöri vinstrimanna á Íslandi eru vilhallt DRRVÚ í vasa þeirra, bankahrun, ófarir, hrakfarir og niðurrifsstarfssemi. Þeir komast nær aldrei til valda með eðlilegum hætti og á eigin forsendum, því þjóðin vill þá ekki. Vill þá bara alls ekki. Séu framfarir í landinu og velmegun þá verða vinstrimenn að hanna og koma af stað stríði, eyðileggja störf þjóðkjörinna fulltrúa á Alþingi og stunda niðurrif. Það er eina von þeirra til að vinna kosningar. Eina von þeirra, því þeir hafa ekkert nema grjót og rauðgrænan ríkismarxisma fram að færa

Þess vegna eru þessi læti núna, en ekki þá, þegar þeir sátu við illa fengin og kosningasvikin völd, með dyggri aðstoð DDRÚV. Þetta er sjálf kosningabarátta vinstrimanna sem við sjáum nú og ekkert annað

Hmpf

Fyrri færsla

Evrópusambandið er ógn við þjóðaröryggi


mbl.is „Óásættanleg hegðun forsætisráðherra“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Evrópusambandið er ógn við þjóðaröryggi

Hver sagði þetta? Jú fyrrum yfirmaður bandarísku öryggis- og leyniþjónustunna CIA og NSA, Michael Hayden hershöfðingi

Evrópusambandið er ekki, frá mannlegri náttúru séð, mögulegt framlag til þjóðaröryggis aðildarríkjanna. Sambandið grefur undan þjóðaröryggi með því að vera fyrir og hindra. Þetta sagði hann við breska ríkisútvarpið

Sem sagt: eðlislæg náttúra fyrirbæris eins og Evrópusambandsins er sú að það getur ekki, samkvæmt mannlegu eðli, aukið, stuðlað að né varðveitt þjóðaröryggi landa, því að sambandið er fjandsamlegt hinni náttúrlegu skipan sambýlis manna hér á plánetunni. Skipan sem aðeins Biblían hefur fært til bókar og bókunar um sambúð fólks í veröldinni: þ.e. þjóð-ríkið sem stofnun. En það, þjóðríkið, er í fremstu röð manngæskuberandi stofnana mannkyns nokkru sinni

Það er hinum heilögu ritningum að þakka að Vesturlönd (the West) eru meistarar "modernity" og eru einmitt af öðrum hötuð fyrir að vera það. Hötuð af meistara-töpurum modernity fyrir að hafa náð svona langt eins við höfum gert - með dyggri aðstoð ritninganna

Það sem Michael Hayden segir um þjóðaröryggi landa í Evrópusambandinu gildir einnig um peninga- og fjárhagslegt öryggi esb-landa og einnig um fullveldisöryggi þeirra. En fullveldi og sjálfsákvörðunarréttur þjóða er einnig framlag hinna heilögu ritninga til mannkynsins. Gjöf til mannkynsins ásamt landamærum þeirra sem meðal annar eiga að hindra að fyrirbæri eins og Evrópusambandið þurrki þau út með útþenslu til að reyna að drottna yfir allri veröldinni

Þeir sem þola ekki hinar heilögu ritningar Biblíunnar þola heldur ekki Vesturlönd því að þau eru byggð upp með og á þessum ritningum. Og Vesturlönd eru uppreisnin mikla og útgangan; Exodus - með sjálfan hornstein Vesturlanda í Jórsölum

Þeir sem vilja ekki verja Kirkju sína, vilja heldur ekki verja Vesturlönd og áttavita þeirra. Áttavita sem Evrópusambandið hafnaði sem tilvistar- og sáttmálalegum hornsteini. Því án hinna heilögu ritninga Biblíunnar geta Vesturlönd ekki haldið áfram að vera til sem Vesturlönd: sköpunarverk uppreinsnar og útgöngu: sjálfur Exodus með fjörutíu ára eyðimerkurgöngu til þrautavarna

Evrópusambandið þarf því að stöðva og leggja niður. Það er ógn við frið og áframhaldandi tilvist Vesturlanda og framfarir í veröldinni

Mér finnst lífið gott. Og hið góða líf mitt undir himni Vesturlanda vil ég verja - helst með kjafti en jafnvel klóm

Krækja

Former CIA Director: "EU is a Threat to Security" 

Fyrri færsla

Í dag gerðist þetta


Í dag gerðist þetta

Ung stúlka datt ekki af hestbaki. Almenningur þurfti ekki að borga

Fjórir eða jafnvel fimm menn vélsleðuðu ekki fram af hengiflugi við frístundaiðkun. Ekki þurfti að eyða milljónum af fé almennings í að bjarga þeim frá sjálfum sér

Nokkrar bifreiðar komust á höfuðborgarsvæðinu klakklaust í gegnum þrjár götur. Ekki þurfti að afskrifa eitt ár á einum degi af líftíma þessara bifreiða. Innflutningur minnkar því og gjaldeyri sem sjávarútvegurinn aflar þurfti ekki að ausa úr varasjóðum þjóðarbúsins sem handbærir voru og verða áfram er bankar bráðna og allir ferðamenn gufa upp innan fimm ára, þegar Ísland hefur verðlagt sig út úr veröldinni

Í dag var ekki byggt hótel og tvær fasteignir seldust ekki. Umferð tókst ekki að þyngjast og fjórhjól valt skilyrðislaust

Þetta voru fréttir dagsins. Allt er vel

Fyrri færsla

Aðvörun: Ríkisstjórn Bandaríkjanna varar bandaríska ríkisborgara við að ferðast til og um heimsálfuna Evrópu

 


Aðvörun: Ríkisstjórn Bandaríkjanna varar bandaríska ríkisborgara við að ferðast til og um heimsálfuna Evrópu

 

Lenín í gömlu Sovétríkjunum

Mynd: Evrópa 1918

-------------------------

Ríkisstjórn Bandaríkja Norður-Ameríku, þann 22. mars 2016 e.Kr

Bandarísk yfirvöld vara Bandaríska ríkisborgara við "að taka sér ferð á hendur til heimsálfunnar Evrópu og vara einnig við því að ferðast innan hennar, í kjölfar fjölda hryðjuverkaárása í löndum álfunnar, þar með talinni árás á borgina Brussel í Belgíu hinn 22. mars 2016 sem ISIL, þ.e. "ríki Íslams í Írak og á svæðum í löndum fyrir botni Miðjarðarhafs" (Levant), hafa lýst ábyrgð á. Hryðjuverkahópar halda áfram að skipuleggja árásir um gjörvalla Evrópu og eru skotmörkin meðal annars íþróttaviðburðir, ferðamannastaðir, veitingastaðir, samgöngur og vöruflutningar. Þessi aðvörun gildir til 20. júní 2016.

Bandarískir ríkisborgarar ættu að viðhafa aukna árvekni í opinberu rými og þegar þeir nota fjöldasamgöngur. Verið árvökul gagnvart umhverfinu á hverri stundu og forðist mannfjölda. Viðhafið sérstaklega varúð undir trúarhátíðum, fjöldahátíðum og atburðum", segir tilkynningin.

Íslensk yfirvöld hljóta einnig að vara Íslendinga og íslensk fyrirtæki við á sama hátt. Og vara þar með útlendinga við að koma til Íslands, þar sem öryggismál eru EES-beintengd inn í ESB-svarthol og á leikskólastigi. Og þar sem allt er píp-opið á alla kanta og gjörvallt landið opið fyrir hverju og hverjum sem er, hvenær sem er

Það hlýtur einnig að vera ábyrðarhlutur að hýsa erlenda gesti undir þannig vandlega barnalega sérhæfðum óviðbúnaði undir stjórnarfari ráðaleysis og óskhyggju um ekkert öryggi. Stefnu sem felst helst í hátt greiddu blaðri á kostnað skattgreiðenda, holum í strætum og vegum og varnar- og mannlausum landshlutum fremstu öryggis- og varnarmálanískupúka veraldar

Fregnir herma að belgísk ESB-lömuð yfirvöld reyni að hylma yfir eða þagga niður morð á öryggisverði í kjarnorkuveri landsins, sem öryggisskilríkjum- og tækni hafði verið rænt frá. Öryggisþjónustur Bandaríkja Norður-Ameríku hafa tilkynnt Evrópu að árásir á kjarnorkuver í Evrópu séu á hernaðaráætlun ISIL, sem ræður yfir jafnvel tugum þúsunda hermanna innfluttum af ESB-yfirvöldum sjálfum inn í Evrópu, áratugum saman. Í Frakklandi opinberuðust yfirvöldum einnig fyrirhugaðar árásir þessa innvortis hryðjuverkahers á fæðingardeildir í París í kjölfar árása þar sem hátt í 200 borgurum var slátrað í borginni á einum og sama degi í nóvember 2015.

Í október 2014 féll tæknimaður öryggisdeildar belgísks kjarnorkuvers sem íslamisti í bardögum í Sýrlandi. Belgíska ríkisstjórnin reyndi að þagga málið niður og tveim mánuðum eftir árásirnar í París í nóvember síðastliðinn, settu belgísk yfirvöld eftirfarandi áróðursmyndband í umferð: Heimsækið Brussel. Þessi tæknimaður innstu öryggismála kjarnorkuversins í ESB-Belgíu hafði staðist öll öryggispróf og uppflettingar, en féll svo sem vígamaður ISIL í Sýrlandi. Slík vanræksla og fúsk í svo mikilvægum öryggismálum er yfirþyrmandi áfall fyrir hundurðir milljóna Evrópubúa. Sama mun koma í ljós um allt í Evrópu, bankar og fjármálastofnanir eru þar meðtaldar, því ekkert virkar í Evrópu. Ekkert. Heimsálfan er ónýt

Árið 2007 fór síðasta landhreinsun Ísraelshers fram í Sýrlandi þegar lofther Ísraelsríkis sprengdi kjarnorkuvopna-framleiðslustað ríkisstjórnar Sýrlands, Norður-Kóreu og Írans í tætlur í Sýrlandi, með Operation Orchard. Þar áður hafði Ísraelsher þurrkað kjarnorkugetu Íraks undir uppbyggingu út árið 1981. Í Sýrlandi hafði ríkisstjórnin verið heil fimm ár gangi með kjarnorkuvopnagetu-framleiðslu- og smíði með aðstoð ríkisstjórna Norður-Kóreu og Írans, án þess að nokkur nema ríkisstjórn Ísraels uppgötvaði það í tæka tíð og tæki til sinna ráða, sem hún og gerði. Annars væri staðan önnur og mörgum sinnum verri en hún er í dag

Óska ég öllum góðra Páska

 

Kirkjugarður gyðinga í Evrópu 2015

Mynd: Evrópa 2015

-----------------------

E: Europe Travel Alert

The State Department alerts U.S. citizens to potential risks of travel to and throughout Europe following several terrorist attacks, including the March 22 attacks in Brussels claimed by ISIL. Terrorist groups continue to plan near-term attacks throughout Europe, targeting sporting events, tourist sites, restaurants, and transportation. This Travel Alert expires on June 20, 2016.

U.S. citizens should exercise vigilance when in public places or using mass transportation. Be aware of immediate surroundings and avoid crowded places. Exercise particular caution during religious holidays and at large festivals or events.

Nánar:U.S. Department of State: Europe Travel Alert

Fyrri færsla

Ófriðarbatterí ESB komið heim til hleðslu í Brussel


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband