Leita í fréttum mbl.is

Forsætirsáðherra vill auðvitað ekki tala við DDRÚV ríkisskattaskjól Vinstirmanna

Ekki skal mig undra að forsætisráðherrann vilji ekki tala við sorpsjónvarpið DDRÚV. Sérstaklega ekki eftir að hafa lesið skrif hans á heimasíðu sinni: Stóra myndin. Aðförin að honum núna minnir okkur á svínslæti DDRÚV gangvart Davíð Oddssyni er stofnunin elti seðlabankastjórann sem hún var með á heilanum og saup hveljur af því að hann vildi ekki tala við sorpsjónvarpið þeirra, sem þá reið landinu og stóð fyrir aðför að fólki og hvatti til óeirða, upplausnar og villimennsku þegar þjóðin átti bágt

Upp með fánann þjóðkjörinn Sigmundur Davíð. Niður með DDRÚV. Og út með það. DDRÚV er ömurlegt sundrungarafl vinstrimanna og þjóðinni hættulegt. Pólitísk uppeldishreyfing vinstrimanna með ekkert lögmæti. Ekkert!

Forsendurnar fyrir kjöri vinstrimanna á Íslandi eru vilhallt DRRVÚ í vasa þeirra, bankahrun, ófarir, hrakfarir og niðurrifsstarfssemi. Þeir komast nær aldrei til valda með eðlilegum hætti og á eigin forsendum, því þjóðin vill þá ekki. Vill þá bara alls ekki. Séu framfarir í landinu og velmegun þá verða vinstrimenn að hanna og koma af stað stríði, eyðileggja störf þjóðkjörinna fulltrúa á Alþingi og stunda niðurrif. Það er eina von þeirra til að vinna kosningar. Eina von þeirra, því þeir hafa ekkert nema grjót og rauðgrænan ríkismarxisma fram að færa

Þess vegna eru þessi læti núna, en ekki þá, þegar þeir sátu við illa fengin og kosningasvikin völd, með dyggri aðstoð DDRÚV. Þetta er sjálf kosningabarátta vinstrimanna sem við sjáum nú og ekkert annað

Hmpf

Fyrri færsla

Evrópusambandið er ógn við þjóðaröryggi


mbl.is „Óásættanleg hegðun forsætisráðherra“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Og samsærið nær bara um öll norðulönd cool

Sbr

https://www.facebook.com/granskning/videos/10154141284184883/

Magnús Helgi Björgvinsson, 3.4.2016 kl. 13:03

2 identicon

Satt segirðu. Hins vegar er það aðeins Fréttastofa þessa miðils, sem er gjörsamlega glötuð með öllu. Þetta svokallaða Ríkisútvarp væri ekkert slæmt út af fyrir sig, ef ekki væri þarna þessi gjörspiilta fréttastofa, sem er svo gegnsósa af vinstripólitík, að fólk er búið að fá nóg upp í kok og vel það af ósköpunum. Er nokkur furða þótt vinstri flokkarnir séu í fjálsu falli í hverri skoðanakönnunninni af annarri, þegar þessi Sovétfréttastofa RÚV dælir linnulausum vinstri áróðri yfir okkur dag út og dag inn allan ársins hring, óstjórnin á borginni er líka eins og hún er, og framkoma vinstra liðsins á Alþingi er eins og það er? Þetta er orðið gjörsamlega óþolandi ástand með öllu, enda ekki hlustandi á þetta lið lengur, hvorki á Alþingi, í borginni eða á Fréttastofu Rúv. Ég hef líka verið að velta því fyrir mér, hvernig Margréti Indriðadóttur líði, þegar hún hlustar á fréttir frá sinni gömlu fréttastofu, sem hún þrátt fyrir að vera vinstrisinnuð, stjórnaði svo ágætlega á sinni tíð, þar sem hlutleysið var virt í hvívetna, þó að meira en helmingur fréttamanna og þula voru vinstra fólk, eins og Jón Múli, Henrik Ottóson, Stefán Jónsson, og Pétur Pétursson, sem var krati. Þessir menn snúa sér áreiðanlega við í gröfinni, ef þeir vissu, hvernig ástandið væri þarna á bæ um þessar mundir. Mál er meira að linni að fara að loka þessarri Sovétfrétastofu Rúv ellegar þá henda stærsta hluta fréttamanna þaðan út og gera eina allsherjar rassíu í þeim efnum og ráða þar inn nýtt fólk, jafnvel með ferskar hugmyndir, sem veit, hvað orðið hlutleysi i fjölmiðlum merkir og tekur mark á því. Við verðum að fara að gera kröfur til þess, að breyting verði á þessu, ef við eigum að geta hlustað á þennan miðil í almannaeigu áfram. Þetta gengur ekki lengur.

Guðbjörg Snót Jónsdóttir (IP-tala skráð) 3.4.2016 kl. 13:16

3 Smámynd: Halldór Björgvin Jóhannsson

Við ættum að drífa í því að leggja RÚV niður, það er ömurlegt að vera tilneyddur til að borga fyrir þessa áróðursmaskínu.

Halldór Björgvin Jóhannsson, 3.4.2016 kl. 13:29

4 Smámynd: Kristbjörn Árnason

Áramótaskaupið sem sýnt var í sjónvarpinu í gær var auðvitað mjög alvarleg að för að Sigmundi Davíð. Það sama má auðvitað segja um þessa norsku vitleysu. 

Þetta er ekki nógu gott.

Kristbjörn Árnason, 3.4.2016 kl. 13:38

5 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka ykkur. Og Guðbjörgu Snót færi ég sérstakar þakkir fyrir skrif hennar hér sem annarsstaðar. 

Ég er ekki á Facebook Magnús, hef aldrei verið það og kæri mig alls ekki um það. Ég trúi litlu sem engu sem þaðan kemur og allra síst tek ég mark á DDRDK, DDRSVT og svo framveigs á Norðurlöndum. Þær stofnanir eru mjúka útgáfan af DDRÚV í Austurberlín Reykjavíkurborgar og hvöttu landsmenn sína ákaft í að skuldsetja sig í hel undir bankabólum Norðurlanda og brostinni útrás bankageira þeirra landa

Massífur linnulaus áróður DDR.DK og DDR.SVT fyrir ofurskuldsetningu almennings og stalínistískri trú þeirra á glataða fjármálasnillinga Danmerkur og Svíþjóðar. Pissuðu bókstaflega í buxurnar þegar gulldrengir bankanna mættu til viðtals hjá þeim á Egilssófann á DDR-fréttaveitum þeirra. Báru þá inn á heimili fólks í gegnum skjáinn árum saman og keyrðu quis-þætti um peninga, fasteignir og lán til að keyra upp samkeppni blásaklauss fólks við nágranna sína. Svo slæmt var þetta að maður grunaði þá um að vera á umboðslaunum hjá bönkum og fjármálafyrirtækjum. En þarna bjó ég í 25 ár og hlustaði á skattpíndan og skattafjármagnaðan þvættin þeirra.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 3.4.2016 kl. 13:49

6 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Auðvita nennir Sigmundur Davíð ekki á spjall við Ríkisútvarpið Samfylking og lái ég honum það ekki.

En hvenær fáum við stjórnvöld sem hafa þá réttlætiskennd og dug , eða æru til að losa okkur við þá áþján sem það er að fita afætur.

Hrólfur Þ Hraundal, 3.4.2016 kl. 15:00

7 Smámynd: Jónas Ómar Snorrason

Sem sagt, höfundur vill helst fá að velja þær fréttir sem birtast landsmönnum, flott. Svokallaðar sérhagsmuna fréttir skal það vera, frábært. Vill sennilega banna Kastljós þáttin sem byrjar kl. 18,00. Alþjóðlegan spillinga þátt, sem sýndur er samtímis á öllum helstu miðlum heims. Mikið getur fólk lagt sig lágt.

Jónas Ómar Snorrason, 3.4.2016 kl. 16:47

8 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér Hrólfur.

Það er ég sem borga Jónas, algerlega nauðugur og algerlega óviljugur, laun þessa fólks á DDRÚV. Það borgar laun sín ekki sjálft og engin vinna þess sjálfs borgar og skaffar þeim laun sín. Laun þeirra koma bara í hverjum mánuði frá mér og þér og öllum öðrum þó svo að allt annað sé jafnvel að hrynja í kringum þetta það.

Og stofnunin sendir út og ver 1/4 hluta af sendingartíma sínum til að reka síendurtekinn froðuáróður og sírenukynningu á sjálfri sér, þó svo að aðeins brota-brot af þeim sem halda henni uppi hlusti og horfi á það sem þaðan kemur. Og ofaní kaupið rekur þetta ríkisbatterí vefútgáfu. Til hvers?

Svo já, af hverju ætti ég ekki að fá að ráða því hvernig þessi bansetta stofnun og vígahreiður vinstrimanna fer með fé mitt? Þetta er því ágætis point hjá þér Jónas.

Ég hefði til dæmis bannað Kastljósi að reyna að eyðileggja útgerðafélagið Samherja á Akureyri með útsendingum sínum sem voru svartljós. Og bannað þeim að gera margt annað sem sem þeir hafa gert og betur látið ógert. Hefði lagt bann við þeim ljóta áróðri og dylgjum.

Krónískt pólitískt hatur DDRÚV á stórum hluta lýðveldis okkar Íslendinga og veraldarinnar allrar, getur og má ekki fá að halda áfram á kostnað skattgreiðanda. Og frjáls samkeppni við þetta fyrirbæri er næstum ómögulegt. Svo út með DDRÚV.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 3.4.2016 kl. 17:18

9 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

    • UMSÁTUR DDRÚV UM SEÐLABANKANN

    • (búsáhalda?) BYLTINGARÁRÓÐUR DDRÚV

    • KOSNINGAVAKA DDRÚV GEGN LÝÐRÆÐINU

    • ICESAVE DDRÚV I + II + III GEGN ÞJÓÐINNI

    • SAMHERJUN DDRÚV á SJÁVARÚTVEG

    • PLATESTÍNA DDRÚV

    • HATUR DDRÚV Á BANDARÍKJUNUM OG REPÚBLIKÖNUM

    • EVRÓPUSAMBANDSÁRÓÐUR DDRÚV

    • FINNSKA LEIÐ DDRÚV OG JÓHÖNNU

    • ESB-STYRKJASUKKSÁRÓÐUR DDRÚV

    • DDRÚV MÁLPÍPA VINSTRISTJÓRNAR

    • FÍASKÓ-GREINING DDRÚV Á FJÁRMÁLABÓLUNNI

    • FÍASKÓ-GREINING DDRÚV Á MYNTBANDALAGINU (EMU)

    • FÍASKÓ-GREINING DDRÚV Á EVRÓPUSAMBANDINU

    • KOSNINGAANDVAKA DDRÚV GEGN FORSETA

    • STJÓRNARSKRÁRMÁL DDRÚV GEGN ÞJÓÐINNI

    Gunnar Rögnvaldsson, 3.4.2016 kl. 17:36

    10 Smámynd: Jónas Ómar Snorrason

    Þú borgar líka, og hlutfarslega margfallt hærri laun skúrka Gunnar. Eins og t.d. SDG, BB og ÓN. Ekki virðist þú sjá eftir þeim peningum, en ég geri það, svo sannanlega. Koma svo, opna lokuðu augun! 

    Jónas Ómar Snorrason, 3.4.2016 kl. 19:40

    11 Smámynd: Jónas Ómar Snorrason

    Hvert er álit þitt eftir Kastljós þáttinn Gunnar? Mín skoðun er sú, að ríkisstjórnin verði að víkja!

    Jónas Ómar Snorrason, 3.4.2016 kl. 19:49

    12 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

    Þakka þér Jónas

    Heldur þú að ég hafi lagst svo lágt að láta DDRÚV trufla mig mig við matseld á soðnu ýsu minni með kartöflum úr garðinum, hamsatólg og þrumara. 

    Ég mun fyrst lesa og hlusta á þá sem mér finnst trúverðugir, úr ýmsum áttum. Ef eitthvað annað en venjuleg sorpvinna DDRÚV er álitin hafa verið þarna borin á borð fyrir þjóðina, þá mun ég kynna mér efni þáttarins. En ekki fyrr. Traust mitt á DDRÚV er ekkert. Ekkert

    Kveðjur

    Gunnar Rögnvaldsson, 3.4.2016 kl. 20:07

    13 identicon

    Komið þið sæl - Gunnar síðuhafi, og aðrir gestir, þínir !

    Gunnar minn !

    Á daginn er komið: sem ég hugði reyndar fyrir, að EKKI átti Ríkisútvarpið íslenzka - hið allra minsta frumkvæði, að þessarri þörfu vinnu Jóhannesar Kr. Kristjánssonar, og félaga hans, ytra.

    Sigmundar Davíðs HÖRMUNGAR klíkan: ÖLL, verður að fara frá, og Ólafur Ragnar Grímsson er SKYLDUGUR til, að skipa Utanþingsstjórn STRAX:: í fyrramálið,hafi hann rænu á, því ekki getum við treyst vinstri vitleysingunum og skrumurunm fyrir næsta húshorn / hvað þá: hið þarnæsta, eins og árin 2009 - 2013 sýndu okkur, hvað gleggzt, síðuhafi góður - og þið önnur gesta, hér: hjá Gunnari.

    Fjarri því - gott fólk.

    Með beztu kveðjum: sem endranær - af Suðurlandi /   

    Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 3.4.2016 kl. 20:38

    14 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

    Ég endurbirti hér birtingu þína Óskar með venjulegu letri til að taka upphrópið úr henni og til að geta lesið hana. Og þá mun ég svara henni.

    =======================

    Komið þið sæl - Gunnar síðuhafi, og aðrir gestir, þínir !

    Gunnar minn !

    Á daginn er komið: sem ég hugði reyndar fyrir, að EKKI átti Ríkisútvarpið íslenzka - hið allra minsta frumkvæði, að þessarri þörfu vinnu Jóhannesar Kr. Kristjánssonar, og félaga hans, ytra.

    Sigmundar Davíðs HÖRMUNGAR klíkan: ÖLL, verður að fara frá, og Ólafur Ragnar Grímsson er SKYLDUGUR til, að skipa Utanþingsstjórn STRAX:: í fyrramálið,hafi hann rænu á, því ekki getum við treyst vinstri vitleysingunum og skrumurunm fyrir næsta húshorn / hvað þá: hið þarnæsta, eins og árin 2009 - 2013 sýndu okkur, hvað gleggzt, síðuhafi góður - og þið önnur gesta, hér: hjá Gunnari.

    Fjarri því - gott fólk.

    Með beztu kveðjum: sem endranær - af Suðurlandi /

    Óskar Helgi Helgason

    =======================

    Gunnar Rögnvaldsson, 3.4.2016 kl. 21:08

    15 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

    Ekki get ég tekið undir málafræslu þína varðandi þjóðkjörna ríkisstjórn Íslands gegn stjórnarandstöðuteymi DDRÚV Óskar. Ríkisstjórnin starfar með ágætum og er með sterkan meirihluta.

    Hér eru kosningar á 4 ára fresti Óskar. Við hvað ertu hræddur?

    Kveðjur

    Gunnar Rögnvaldsson, 3.4.2016 kl. 21:13

    16 identicon

    Komið þið sæl - á ný !

    Gunnar !

    Skiptir svo sem: ekki neinum sköpum fyrir mig, þó þú hafir kippt út hástöfunum, síðuhafi mæti.

    Já Gunnar.

    Ég er hræddur mjög: við áframhald þjófnaða Bankanna og Íbúðalánsjóðs á eignum borgara og fyrirtækja þessa lands, í skjóli Sigmundar og Bjarna / sem framkvæmt er af villimannlegum Sýslumanna ófétunum og Tollheimtu stjóranum suður í Rekjavík, Gunnar minn.

    Ekkert lát - er þar á, þó við hefðum losnað við svika gerpin Jóhönnu og Steingrím J., á sínum tíma.

    Þanngig að - Ríkisstjórnar ónefnan / baksar við það, að homa 2rum hvejum manni í landinu á grafarbakkann, að óbreyttu.

    Teljir þú: vinnubrögð fólks, sem starfar á lægra plani, en suður í Zimbabwe jafnvel og víðar góða stjórnarhætti, þyrftirðu að leita þér aðstoðar Gunnar minn. við þeim ankannalegu grillum þínum.

    Vona - að þú áttir þig, á minni frásögu. Ég veit um dæmi, þar sem Landsbankinn (nýi), reyndi / og tókst með hjálp eins Sýslumanna landsins, að stela eign af heiðvirðu fólki, undir kennitölu sinni (hafði verið lántaka Bankans, á hans gömlu kennitölu, forðum), án nokkurrar leiðréttingar, auk fullrar verðtryggingar, sem þeir Sigmundur og Bjarni, hafa ekki haft rænu á, að afnema enn.

    Þannig að: þú getur sparað þér lofrullurnar, í garð þessarra drengja héðan í frá, Gunnar minn.

    Með sömu kveðjum; sem áður - nokkurrrar undrunar gætandi samt, til viðhorfa Gunnars síðuhafa, til þessa, a.m.k. /    

    Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 3.4.2016 kl. 21:32

    17 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

    Þakka þér Óskar

    Tja, þú gætir reynt að hafa samband við umboðsmenn (ombudsmen) vinstri afla á Íslandi hjá DDRÚV og fengið þá til að gera Kastljósþátt um málin þín. Þeir geta svo klipp inn í atburðarrás þáttarins gamlar bloggathugasemdir þínar frá síðasta kjörtímabili. Hver veit hvað þeir gætu soðið saman úr þessu. Þetta gæti svo kollvarpað sýslumönnum, nýjum landsböknum og vinnubrögðum fólks sem starfar á lágum plönum og skaffað þér óverðtryggt stjórnarfar á borð við það sem er í Zimbabwe.

    Þetta gæti tekist, sýnist mér.

    Kveðjur úr innsveitum að vestan

    Gunnar Rögnvaldsson, 3.4.2016 kl. 22:14

    18 Smámynd: Jónas Ómar Snorrason

    Djö. ertu leiðinlegur Gunnar, eins og mig langar akkúrat í þessa samsettu veislu:) hér lengst suð-austur í Evrópu:) Þú bara pælir í þessu næstu daga, og gefur okkur síðan upp þitt endanlega álit Gunnar. En bara ekki skjóta sendiboðann(RÚV) það hefur alltaf þótt lítiðmannlegt, verði þér að góðu.

    Jónas Ómar Snorrason, 3.4.2016 kl. 22:22

    19 identicon

    Mér finnst að fólk þurfi að passa sig að dæma ekki menn fyrirfram, þetta var gert áður með svipuðum látum og ofboðslegum æsingi gegn Davíð og hans félögum. Þegar moldviðrið gekk niður, kom í ljós að Davíð var kannski sá eini sem var að reyna að halda þjóðarskútunni á floti. Vonandi að menn læri að spyrja fyrst og skjóta svo en ekki í hina áttina. Það er rétt hjá Gunnari að menn geta ekki fellt dóma eftir einn þátt á sunnudegi.

    gunnar (IP-tala skráð) 3.4.2016 kl. 23:28

    20 identicon

    Komið þið sæl - sem fyrr !

    Gunnar !

    Viðvíkjandi Banka hneykslinu / Íbúðarlánssjóðs: sem ég gat um hér fyrr í kvöld, snýr ekki að mér persónulega, heldur góðu vinafólki mínu, sem ég met mikils - og hafa reynzt mér og mínu fólki tryggða Tröll: alla tíð.

    Því nöturlegri - finnst mér kaldranaleg sneiðin Gunnar minn, og bjóst ég sízt við því af þér:: gamalgrónum vopna bróður, gegn EES/ESB kjaptæðinu, fyrir lok síðasta áratugar, og eftir byrjun þess nú líðandi.

    En: stundum geta Kross tré brugðist, ekkert síður en þeim hinum, þó í hlut eigi vænstu drengir sem þú, að reyna að verja: raunar, óverjandi málstað, sem þessarra illræðis Skúma, sem nú fara með völdin í landinu, að óverðugu.

    Með beztu kveðjum á ný: fremur þyngri þó, til Gunnars síðuhafa, að þessu sinni, a.m.k. / 

    Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 3.4.2016 kl. 23:28

    21 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

    Skrif Hans Haraldssonar finnast mér passa vel við það viðtal við forsætisráðherrann sem ég hef séð. Það var ekkert annað en setup eða fyrirsát og er samrýmist algerlega forkastanlegum vinnubrögðum Ríkisútvarpsins svo sem oft hafa hneykslað mig.

    DDRÚV hefur drepið hið pólitíska viðtal við stjórnmálamenn fólksins í landinu í þeim eina tilgangi að bana pólitískum andstæðingum þessarar pólitísku hreyfingar sem stofnunin er orðin, til þess eins  hefja liðsmenn sína í stjórnmálum á loft upp. Enginn með fullu viti mun fara í viðtal við þennan fjandsamlega fjölmiðil án svakalegra fyrirvara og aldrei í beinni útsendingu. Hans skrifar: Fyrirsát

    Gunnar Rögnvaldsson, 4.4.2016 kl. 00:07

    22 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

    SIGUR RUV.002

    Lýðræðisást DDRÚV á kosningavöku 2009. Dulbúið fólk skipar dagskrá þessa skrílsvarps

    Gunnar Rögnvaldsson, 4.4.2016 kl. 00:11

    23 Smámynd: Jónas Ómar Snorrason

    Gunnar, ég held að það sé ekki verið að dæma fólk, hvorki fyrirfram, né of hart. Núna er annar tími, upplýsingar berast hraðar ofl. Ef þú átt við tíma DO sem seðlabankastjóra, þá var sá tími algert flopp, DO var Íslandi dýr. Þetta var svo sem engin venjulegur sunnudagsþáttur. Þarna komu beinlínis fram allar upplýsingar, sem máli skipta, og ekkert hægt að túlka nema á einn veg. Samanber, ef þú skrifar undir eithvað, þá túlkast það ekkert öðruvísi en svo, að þú hafir skrifað undir, svo einfallt er það. SDG fór vísvitandi á svig við lög, lagatæknilega braut hann ekki lög, en braut siðferðið. Um það sníst málið!

    Jónas Ómar Snorrason, 4.4.2016 kl. 00:12

    24 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

    Fyrirsát finnst mér vera rétta orðið um það viðtal sem ég hef séð. Svona er einungis hægt að koma fram af hreinum og skærum illvilja.

    Hinar Bresku Jómfrúareyjar eru breskt land. Þær eru ekki annað ríki og þau hjónin bjuggu á Bretlandseyjum þegar kona hans erfði foreldra sína.

    Hefði kona hans flutt eignir þessar heim eftir Hrun þá hefðu hjónin verið ásökuð um að notfæra sér gengisfall krónunnar og fengið DDRÚV yfir sig í sama annarlega tilgangi og herferð þess gegn forsætisráðherranum mótast af í dag.

    Hér heima búsetur fólk sig oft eftir því hvar skattar eru lægstir. Í sveitafélögum með lægsta útsvarið. Vel má líta má á ráðstafanir þeirra hjóna í Bretlandi sem slíka. Enginn vill borga hærri skatta en nauðsynlegt er.

    En vilji stjórnmálamanna til að skattpína fólkið í landinu virðist hins vegar ótakmakaður á vinstri væng stjórnmála, meðal annars til að fjármagna þeirra DDRÚV

    En kannski hefur þú mikla reynslu í efnum er varða aflandsfélög Jónas?

    Kveðjur

    Gunnar Rögnvaldsson, 4.4.2016 kl. 00:51

    25 Smámynd: Jónas Ómar Snorrason

    Nei Gunnar, hef enga reynslu af aflandsfélögum. 2010-2011 var ég reyndar staddur á Sheyshell eyjum yfir áramót, og get svarið, ætlaði að stofna þar félag, algerlega úti á þekju varðandi skattaskjól, enda ekki sú hugsun til hjá mér sökum fjárleysis, möo, hafði ekkert að gera með slíkt félag á endanum, kannski bölvuð vitleyswa í mér:) SDG er loddari, segji þetta vegna þess að hann er forsætisráðherra, BB er loddari, segji það vegna þess að hann er fjármálaráðherra. Ef þú veist það ekki, þá væri í öllum löndum sem við berum okkur saman við, búið að henda þessum skrattakollum út á hafsauga, og án vafa ættu þeir aldrei neina endurkomu í stjórnmál að nýju. Hvað þín siðferðis vitund segjir þér varðandi þessa gutta er, verður þú að gera upp við sjálfan þig

    Jónas Ómar Snorrason, 4.4.2016 kl. 01:14

    Bæta við athugasemd

    Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

    Höfundur

    Gunnar Rögnvaldsson
    Gunnar Rögnvaldsson

    Búseta: Ísland.
    Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
    tilveraniesb hjá mac.com

    Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

    Bloggvinir

    Innskráning

    Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

    Hafðu samband