Leita í fréttum mbl.is

Þúsund blaðamenn í blóma vasa?

Fortune 4 apríl 2016 um stuðning George Soros

Mynd: Fortune 4. apríl 2016

Skrif fyrrum sendiherra Bretlands í Uzbekistan og áður rektors háskólans í Dundee, Craig Murray, eru til umfjöllunar á vef Fortune

Þar segir að ástæðan fyrir því að fjölmiðlaveldi og ýmis önnur veldi hinna ríkustu Vesturlanda séu ekki á hinum svokallaða "lekna lista" yfir lögaðila í lágskattalöndum- og héruðum, sé nokkuð augljós. Þeim gögnum var haldið til baka og haga. Og aðeins þeim matreiddu gögnum sem þjóna ákveðnum tilgangi var "lekið" - þau voru birt, en sem engir hafa þó séð í heild

Listinn er ekki tekinn og lekinn, heldur var brotist inn í gagnageymslur til að stela honum. Farið var yfir hann og hann skrúbbaður og lagaður til áður en honum var raðað upp og sérhönnuðu aðgangssniði (data-view) að honum komið fyrir í höndum blaðamanna, sem meðal annarra eru óbeint tengdir launalista eins fremsta uber-peninga-tanks veraldar, herra Geroge Soros spákaupmanns. Manns sem frægur varð fyrir að gera skipulega atlögu að breska seðlabankanum árið 1992. Sú atlaga hans til að græða risavaxnar summur af peningum á óförum breskrar þjóðar, sprengdi allt EMS gengisbindingar-fyrirkomulag ERM-landa í tætlur árið 1992. Kerfið var þegar undir fyrirsjáanlegu uppbroti eins og evran er núna, en Geroge Soros veðjaði hrikalega stórum lánssummum því til höfuðs, og tókst að örenda seðlabanka Bretlands það mikið að sá seðlabanki peningakerfis breska fólksins komst í svigrúmsþrot

Að skrúbba mörg terabyte af texta og tölulegum upplýsingum sem flestar eru innbyrðis en ósýnilega tengdar í örlitlar gagnaeyjar, og sem innihalda aðeins kennitölulaus nöfn og sem eru því án sameiginlegs auðkennis, krefst mikils mannafla í mörg ár. Ekki hers fréttablaðamanna heldur hámenntaðs fólks úr hinum alþjóðlega fjármálaheimi á háum launum með mikið fé til umráða. Því hér er alls ekki um einfalt "data-dump" að ræða eins og Wikileaks, heldur fullhannaða, fullbúna og þaulskipulagða gagnabyggingu úr óteljandi form- og litlausum legó-kubbum. Kubbum sem án gífurlegra auðæfa og innri sérþekkingar myndu alls ekki líta út sem heilt hús sem hægt er að sitja makindalega inni í og skrifa níð um persónur sér til ánægju út um glugga hennar, með aðstoð risavaxins fjármagns risavaxins styrktaraðila sem Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra Íslands hefur sparkað til og móðgað gróflega fyrir hönd íslensku þjóðarinnar. En Sigmundur Davíð hefur verið sá sem sparkað hefur hve harðast til þess heims sem hér heldur uppi heilum her frétta- og blaðamanna sem settir hafa verið honum en þó allra mest öllum öðrum og mun mikilvægari til höfuðs. Nafn forsætisráðherrans var bara hin kærkomna og tilviljanakennda brauðmylsna á skorpuna sem féll af borðinu er skúbbað var úr vör

Það er alls ekki bannað að hugsa. Að minnsta kosti ekki enn sem svo illa komið er. Ég ráðlegg mönnum að hugsa með höfðinu og að fylla það ekki með hálm til að setja í heilastað

Þessi skrif mín eru aðeins mitt uppkast að veruleikanum og ber að líta á þau þannig og aðeins þannig. En það er að minnsta kosti jafn gott uppkast og sá sýndarveruleiki sem fjölmiðlar og svo kallaðir "blaðamenn" eru að bera á borð fyrir almenning þessa dagana - og árin hin mörgu áður, er þeir unnu svo innilega markvisst og hart að því að auka trúverðugleika þess fjármálageira sem Sigmundur Davíð Gunnlaugsson hefur sparkað til af fullu afli fyrir hönd íslensku þjóðarinnar hin síðustu ár

Fífl!

Fyrri færsla

Pólitísk fjárkúgun, er það rétta orðið?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jónas Gunnlaugsson

Forvitnileg og góð samantekt.

http://jonasg-egi.blog.is/blog/jonasg-egi/entry/2164995/

Egilsstaðir, 05.04.2016  Jónas Gunnlaugsson

Jónas Gunnlaugsson, 5.4.2016 kl. 13:46

2 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér Jónas

Hvernig var það aftur - var ekki sérstök nefnd eða ráð starfandi í sósíalista ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri grænna með aðstoð DDRÚV sem hafði það verkefni á höndum að greiða götur kínverskra fjárfesta í skattaskjólum er stolið höfðu peningum alþýðunnar í Kína og flutt þá ólöglega úr landi svo að hægt væri fyrir þeirra tilstuðlan að selja þeim til eignar hluta af þjóðríki Íslendinga á stærð við fylkið Maine? Þarna á ég við Grímsstaði á Fjöllum.

Er þetta rétt munað hjá mér?

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 5.4.2016 kl. 20:40

3 Smámynd: Elle_

Jú það var þannig. Nokkurn veginn. Enda landsölufólk að verki. Hvar voru æsifréttamennirnir þá? Var það í náð RUV?

Elle_, 5.4.2016 kl. 21:38

4 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þetta er flott, komin 56 likes. Kærar þakkir.

Nú erum við þjóðin! 

Gunnar Rögnvaldsson, 6.4.2016 kl. 16:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband