Leita í fréttum mbl.is

Í dag ætla ég að kjósa Davíð í fyrsta skiptið

Hann ætla ég að kjósa fyrir forseta í dag

Það er mér sannur heiður að fá að kjósa Davíð fyrir forseta Íslands. Ég fyrir mína parta ætla algerlega að kjósa þennan mann því að Davíð Oddsson er einn mesti Íslendingur sem uppi hefur verið

Ég er þakklátur fyrir að fá þetta tækifæri til að kjósa Davíð að minnsta kosti einu sinni á æfi minni. Illu heilli var ég fjarverandi frá landi mínu í samfleytt 25 ár. En ég horfði ávallt með öfundaraugum upp til fósturjarðarinnar á meðan Evrópa hélt áfram að hrynja allt í kringum mig öll árin eftir að Evrópusambandið tók völdin af þjóðríkjunum frá og með 1986, með aðstoð nytsamra vesalinga. En hér heima fól þjóðin Davíð umboðið hvað eftir annað. Hann fór afskaplega vel með það umboð. Enda sást það langt að, um víða veröld, svo leitun var að öðru eins og hér vannst á þeim tíma

En Davíð kom aldrei til að kollvarpa neinu. Hann kom til að uppfylla. Og hann uppfyllti og sveik ekki. Enda kosinn aftur og aftur. Vinstri vængur stjórnmála í leit að málstað þoldi þetta náttúrlega ekki og þolir ekki enn, því að sá vængur virðist einungis hafa áhuga á því að kollvarpa, ef til vill eðli sínu samkvæmt

Það er alveg sama hverjir eru "ráðandi" þessa stundina, alltaf skal klisja vinstrimanna kollvarpsvængsins vera sú að kollvarpa verði "ráðandi öflum". Séu þeir sjálfir "ráðandi aflið", þá kollvarpa þeir sjálfum sér. Sé jafnvel Lenín þeirra við stjórn, þá þarf að kollvarpa honum til að kollvarpi þeirra verði ekki kollvarpað af honum, og fari á hausinn, því án kollvarps þessa geta þeir ekki verið

Kröfugöngur þessara kollvarpara eru gengnar á gullskóm með rauða fána við gylltan hún í Dior-drögtum í dag. Ný krafa sem ekki er hægt að uppfylla er sett fram, til að kollvarpa því sem enn stendur uppi. Öll framboð DDRÚV hafa gengið út á að kollvarpa. Og ég hef horft upp á heil tvö framboð DDRÚV til forseta á örskömmum tíma. Það er alveg hreint ótrúlegt að þetta kollvarp DDRÚV skuli vera svona. Og að það skuli yfirhöfuð vera til, sem kollvarp

Ég get ekki annað séð en að talsmenn hins mölbrotna vinstri vængs þjóðarinnar séu algerlega án málstaðar í dag, og grilli kollvörpur bæði í vinnunni og á kvöldin. Og þetta þarf maður að borga fyrir þó svo að ég nánast neiti að láta pynta mig með kollvarpi þeirra lengur

Ég ætla auðvitað ekki að kjósa þetta kollvarps-framboð DDRÚV. Ég ætla að kjósa Davíð Oddsson, ektamanninn hennar Ástríðar hjúkku. Það ætla ég, því ég veit hvað hann stendur fyrir. Hann stendur fyrir þann væng sem enn flýgur

Takk Davíð fyrir að gefa kost á þér. Hattur ofan

Fyrri færsla

Bretland sparkaði Evrópusambandinu út - og úr landhelginni


Bretland sparkaði Evrópusambandinu út - og úr landhelginni

Bretinn Anthony Eden

Mynd: Anthony (EFTA) Eden

Föstudagur, 24. júní 2016 kl. 06:07

Sultartangarsókn Evrópuhræðslusambandsins mistókst í Bretlandi. Öll atkvæði eru nú talin. Og vinsamlegast athugið, atkvæðin eru ekki teygjanleg. Ef við skoðum niðurstöðurnar eins og þær eru núna kl 06:07 þegar öll atkvæði í öllum kjördæmum hafa verið talin, þá eru þær svona:

England:
========
Förum út úr ESB sögðu: 53,4 prósent
Brennum áfram inni í ESB sögðu: 46,6 prósent
Kjörsókn: 73,0 prósent (28,45 miljón greiddu atkvæði)

Norður-Írland:
==============
Förum út úr ESB sögðu: 44,2 prósent
Brennum áfram inni í ESB sögðu: 55,8 prósent
Kjörsókn: 62,9 prósent (789 þúsund greiddu atkvæði)

Skotland:
=========
Förum út úr ESB sögðu: 38 prósent
Brennum áfram inni í ESB sögðu: 62 prósent
Kjörsókn: 67,2 prósent (2,679 milljón greiddu atkvæði)

Wales:
======
Förum út úr ESB sögðu: 52,5 prósent
Brennum áfram inni í ESB sögðu: 47,5 prósent
Kjörsókn: 71,7 prósent (1,626 miljón greiddu atkvæði)

Allt Stóra Bretland:
====================
Förum út úr ESB sögðu: 51,9 prósent
Brennum áfram inni í ESB sögðu: 48,1 prósent

 

Bless ESB

Fyrri færsla

Forsetaframboðs-unnendur tyggjó-sjálfstæðis kenna Kúrdum allt


Forsetaframboðs-unnendur tyggjó-sjálfstæðis kenna Kúrdum allt

Forsetaframbjóðandinn Guðni Th. gæti kennt Kúrdum að lifa lífinu svakalega vel undir tyggjó-sjálfstæði Kúrda í tyggjó-ríki sem býr við tyggjó-landamæri

Guðni Th. er frambjóðandinn sem segir að sjálfstæði og fullveldi okkar sé bara "teygjanlegt hugtak". Þetta þyrfti hann endilega að kenna Kúrdum. Kenna þeim allt um kosti tyggjómennsku, og það, að þeim sé mun "betur borgið" sem tyggjóklessa meðal þjóða

Guðni Th. forsetaframbjóðandi er að reyna að sannfæra þjóðina um að miklu betra sé að taka reynsluleysi sitt út á heilli þjóð fyrst, þ.e. öllum almenningi, frekar en á sjálfum sér. Hann telur það til einhverskonar mannkosta að hafa ekki verið "viðloðinn" neinar, nix nada, "stjórnmálahreyfingar" -þ.e. æðstu málefni æðstu stofnana sjálfstæðra þjóða; þ.e. þjóðþingin sem fara með þjóðmálin- og hefur hann engar skoðanir sem hann þorir að standa við. Það telur hann til mannkosta forseta á kostnað almennings. Hann segist ennfremur ekki hafa sagt og gert það sem hann hefur sagt og gert. Hleypur frá sjálfum sér á harða kani

Einu sinni þótti það góð latína að taka reynsluleysi sitt út á sjálfum sér fyrst. Geta og gera eitthvað sem máli skiptir og jafnvel að taka ábyrgð á þeim gjörðum sínum undir sínu eigin flaggi, áður en lagt er til atlögu við að bjóða sig fram sem þjónn og talsmaður almennings. Jafnvel að hafa verið rekinn eða farið á hausinn fyrir eigin vélarafli fyrst. Gert mistök og lært af þeim

En Guðni Th. er því miður bara nýprentaður víxlill úr prentsmiðju Samfylkingarflokka. Þegar í embættið hann er sestur, þá fylla munu þeir þennan víxil sinn út. Alveg út

Á meðan vinnur landslið Íslands í knattspyrnu þá sigra sem aðeins er hægt að vinna með hart sótt og stálhert fullveldi og sjálfstæði þjóðarinnar meitlað fast inn í toppstykkið. Frelsið er nefnilega vöðvabúnt heilans; þjóðfrelsið sem fæðir og klæðir einstaklingsfrelsið, það er vöðvabúnt heilans. En í hjartanu það býr

Kýs ég því Davíð

Fyrri færsla

Norski olíusjóðurinn býr sig undir pólitíska upplausn og styrjöld  


mbl.is Guðni enn efstur en fylgið minnkar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Norski olíusjóðurinn býr sig undir pólitíska upplausn og styrjöld

Í byrjun vikunnar birti Financial Times frétt þess efnis að auðlegðarsjóður Norðmanna, sem í daglegu tali nefndur er "norski olíusjóðurinn", sé að ljúka við að undirbúa sjóðinn undir styrjöld í kjölfar: pólitískrar upplausnar, innrásar, borgarastyrjaldar eða valdaráns

Það er norski seðlabankinn sem ber ábyrgð á þeim þjóðarauð Norðmanna sem í þessum sjóði er. Í honum hafa safnast tekjur sem fullveldi og sjálfstæði Noregs ól af sér

Þegar síðasta sameiningarafl Evrópu fór um álfuna með samruna sinn, þá var það nánast reglan að sú sameining Evrópu hæfist á því að tæma seðlabanka landanna og senda fjármuni og gullforða þjóðanna í sameiginlegan sjóð í Berlín, til að fjármagna sigurför sameinarans um álfuna og útrýmingu þjóðríkjanna

Það er mikilvægt fyrir norsku þjóðina og kjörna fulltrúa hennar að hún hafi möguleika á að nálgast fjármuni sína þegar friðurinn í Evrópu er orðinn það mikill undir Evrópusambandinu, að stjórnmálin séu loks að fullu uppleyst. En þangað stefnir Evrópa. Öll stjórnmál í Evrópusambandinu hafa þegar verið þjóðnýtt í þágu eins málstaðar: samrunans

Fyrri færsla

Er Guðni Th. brunagildra?

Krækja

Norwegian oil fund draws up contingency plans for war (fyrirsögn FT var síðar breytt)


Er Guðni Th. brunagildra?

Persónan Guðni Th. er frambjóðandi. Hann er að bjóða fram sjálfan sig sem forseta í forsetaembættið. Kjósendur eiga rétt á að vita hvað frambjóðandinn hefur af skoðunum sem móta munu þjónustu hans við ættjörðina

Sjálft forsetaembættið er nýtt. En ættjörð þjóðarinnar er það hins vegar ekki. Það tók íslensku þjóðina 700 ár að koma sér og ættjörðinni undan erlendu yfirvaldi. Og þegar það gerðist, að við urðum frjáls þjóð, þá gat íslenska þjóðin reist upp forsetaembætti sem Guðni sækist eftir, sem kórónu á fullveldi og sjálfstæði ættjarðar og þjóðar. Svo frjáls varð hún, þjóðin á ættjörð sinni, að ákveðið gat hún þetta sjálf. Að reisa embættið

Guðni Th. forsetaframbjóðandi hefur þá skoðun fram að færa, að sé boðið nógu mikið og hátt, að þá áliti hann, að ættjörðin og þjóðin skuli renna á ný undir erlent vald, með því að ganga í Evrópusambandið. Hann vill leiða þjóðina burt frá sigrum og frelsi og aftur undir erlent vald. Og ættjörð hennar líka. Og landhelgina líka

Það er ekki gaman að skrifa þetta, aðeins 72 árum eftir 1944. Og það er ekki gaman að hlusta á þennan málflutning frambjóðandans. Hann er ekki boðlegur íslenskri þjóð

Hann vill líka kollvarpa stjórnarskrá Íslands, af því að, segir hann, hér varð hrun og að "einhverju þurfi að breyta". Bara sí svona. "Einhverju þarf að breyta", segir hann. En stjórnarskrá er ekki "eitthvað". Af hverju breytti Guðni Th. ekki bara sjálfum sér og stóð með landi sínu og rétti þjóðar á meðan hann gat það sem frjáls maður. Sem frjáls maður standandi á því frelsi sem forfeður okkar sköffuðu honum. Af hverju var það ekki hægt Guðni Th. forsetaframjóðandi?

Nú er vinsælt, eins og stendur, að segja að Evrópusambandið sé eins og "brennandi hús". Þetta er sérstaklega ámótleg og átakanleg lýsing frá því fólki sem barist hefur hart fyrir einmitt því að við værum nú þegar lokuð sem þjóð og ættjörð inni í þessu brennandi húsi. Hefði það fólk ráðið, þá værum við einmitt þar: lokuð inni í brennandi húsi

Þetta fólk segir líka, að núna sé ekki rétti tíminn, "eins og sakir standa núna" - þ.e.a.s að núna sé ekki rétti tíminn til að láta brenna þjóðina og ættjörð hennar. Það segir Guðni Th.. Hann segir "eins og sakir standa núna"

Mín spurning er því þessi: Er Guðni Th. brunagildra?

Evrópusambandið hefur að minnsta kosti alltaf verið brunagildra, frá upphafi

Fyrri færsla

Fásisminn - er það Austurvöllur?


Fásisminn - er það Austurvöllur?

Davíð Oddsson bein krækja.

Ég kýs Davíð.

Páll Vilhjálmsson klórar sér eðlilega í höfðinu vegna skrifa heimspekings (hér)

Tja, hvað á maður að segja.. pípan.. púff.. harðfiskur.. kaffi.. lýsi.. og mja..; Heimspekingurinn gæti hugsanlega átt við Austurvellinga sem iðka það sem kalla mætti fárra-isma og sem vel hugsanlega er hægt að klambra saman í fásisma. Getur þetta verið rétt hjá mér? Kannski er hægt að bæta svo kölluðum "aðgerðarsinnum" við, til að gera myndina af fásisma skýrari

En hvað um það, herra Adolf Hitler var sósíalisti, en ekki fasisti. Hann lét helst skjóta aðalinn. Og flokkur hans hét Nationalsozialistische Deutsche Arbeiterpartei og stefna hans var nasismi, þ. Nationalsozialismus

Stalín var líka sósíalisti

Hefði sósíalismi Adolfs Hitlers sigrað, þá hefði allt Þýskaland orðið eins og Austur-Þýskaland varð undir sósíalisma Stalíns og handlangara hans, eftir stríð

Og öll Evrópa líka, eins og hún er smám saman að verða undir Evrópusambandinu, þar sem verið er að koma á her-lýðræði (d. militant demokrati). Ég skrifaði um stjórnarskrár þessara tveggja stórríkja í fyrradag, í færslunni Her-lýðræði Evrópusambandsins. Um stjórnarskrár Stalíns og ESB, sem enginn kaus

Allir verða að ganga í takt í Evrópusambandinu, Guðni Th. forsetaframbjóðandi líka, en þangað vill hann inn. Til að ganga í takt. Hann vildi ganga í takt í Icesave málinu. Ganga í takt með ESB

Tengt

21. mars 2012

Konan mín sagði mér frá því að það hefði komið heimspekingur í danska sjónvarpið. Hann var þá að gefa út bók. Þetta var rétt eftir hrun. Hann sagði að Adolf Hitler hefði orðið mjög ánægður með samfélagið í dag. Hvað meinarðu?, spurði fréttamaðurinn vandræðalega. Jú hann vildi að við gengjum öll í takt. Lýðræðið væri sett til hliðar sagði heimspekingurinn Søren Gosvig Olesen. Í dag hlýða menn og gera eins og þeim er sagt. Til dæmis fer öll þjóðin eftir því sem heilbrigðisyfirvöld segja. Spuna meistarar stjórnvalda gegna hlutverki áróðursráðuneytis...

Að ganga ekki í takt

Fyrri færsla

Her-lýðræði Evrópusambandsins


Her-lýðræði Evrópusambandsins

Í dag er þjóðhátíðardagur Danmerkur, "Grundlovsdag". Í tilefni dagsins segja landsins sérfræðingar í stjórnarskrárrétti, að ástandið sé orðið þannig að í Danmörku sé verið að koma á "her-lýðræði" (militant demokrati). Að landið sé á leið burt frá lýðræði í nafni frelsis

"Ógn við öryggi ríkisins" hefur nú lifnað við í Evrópusambandinu. Áður fyrr var það bara stjórnarskrá Sovétríkjanna sem gerði mönnum kleift að myrða samborgara sína á stóriðnaðarskala, samkvæmt stjórnarskrá. Þegar ekki var hægt að finna neitt refsivert á andstæðinga sína með tilvísun í refsilöggjöf, þá var gripið til ákvæðisins um "ógn við öryggi ríkisins" í sovésku stjórnaskránni. Milljónir og tugir milljónir borgara týndu lífinu sem "ógn við öryggi ríkisins" í Sovétríkjum sósíalista. Fæstir voru jarðsettir í því blóðbaðshafi sósíalisma vantrúar og trúleysis. Fólkinu var bara hent eins og hræjum. Fjarvera hinna heilögu ritninga sem ólu af sér Vesturlönd, var alger

En bíddu aðeins. Nú er það hins vegar stjórnaskrá Evrópusambandsins sem stolt veifar ákvæðinu um "öryggi ríkisins". Þessi gamla stjórnaskrár-klásúla Stalíns hefur nú verið uppfærð til notkunar í stjórnarskrá Evrópusambandsins. Þar heitir hún "brot gegn grunngildum Evrópusambandsins" sem enginn nokkru sinni kaus

Hefðu nýafstaðnar forsetakosningar í Austurríki skilað ESB-andstæðingi í forsetastól, þá var "forseti" framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins klár með refsiaðgerðir gegn Austurríki sem hefðu sett landið í einangrunarbúðir sambandsins (í skjól). Forsetinn Juncker er yfirlýstur lygari. Þetta ákvæði hinnar nýju stjórnarskrár Evrópusambandsins, sem enginn kaus, stóð klappað og klárt til notkunar gegn landinu nú um daginn

Víða í Austur-Evrópu þar sem menn muna enn síðustu sósíalista her-lýðræðisins, er verið að beita þessu Stalínistíska vopni á þær þjóðir sem neita að láta drekkja sér með annarri þjóð

En hefðu kosningaúrslitin í Austurríki hins vegar orðið þau að ESB-andstæðingur hefði unnið, þá hefði miðstjórn fræðimanna sósíalismans í Brussel, umsvifalaust krafist þess að kosið yrði aftur. Örmjótt var á mununum í þessum kosningum. Upp úr kjörkössum nokkurra kjörsvæða, eins og í Sovétríkjunum, sem næstum öll, ásamt gerspilltum embættismönnum þeirra, gengin eru í ESB, töldu menn 140 prósent kosningaþátttöku, ógildir kjörseðlar urðu hreint ótrúlegur fjöldi og utankjörstaðatkvæði skyndilega stjarnfræðilega mörg, 700 þúsund. "Kerfið" er nú að rannsaka sig sjálft

Það er afar passandi að Sjómannadagurinn skuli verða nýjum sósíalistaformanni Samfylkingarinnar að slíku gangi að hún tilkynnti landsmönnum að inn á þennan sorphaug sannleikans skuli flokkur hennar áfram sækja til atkvæðaveiða og baktjaldamakks. Til aðstoðar hefur flokkurinn nú forsetaframbjóðandann Guðna Th. sem er yfirlýstur ESB-sinni og sem enn fremur lýgur eins og þaulæfður Juncker, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins. Líkir sækja líka heim

Fyrsta tækifæri forsetaframbjóðandans til að tala við íslensku þjóðina, notaði hann til að segja henni ósatt, eins og formaður Samfylkingarinnar, Oddný Harðardóttir, gerir á sínum fyrsta degi sem formaður sem fer með lygarnar um EES-samninginn og "70-80 prósent" uppspunann. Það vantar bara á hennar fyrsta degi sem fræðaformaður Samfylkingarflokka sósíalismans, að segja að við séum fávís lýður. Dómgreindarskortur beggja er alger

Í Sovétríkjunum var kommúnismi eini löglegi lífsmátinn undir stjórnarskrá þeirra. Í Evrópusambandinu er þar hins vega samruninn sem er eini löglegi lífsmátinn undir stjórnarskrá þeirra - og dómstóli!

Öll stjórnmál í löndum Evrópusambandsins hafa því verið þjóðnýtt í þágu samrunans. Svona uppskrift að einræðinu sást síðast í Vestur-Evrópu undir herra Adolf Hitler: hann þjóðýtti fólkið í þágu sameiningar Evrópu. Öll önnur stjórnmál voru bönnuð

Evrópusambandinu allt, Íslandi ekkert, er slagorð ESBismans

Fyrri færsla

Forsetaframbjóðandinn veit ekki að Evrópusambandið er sjálfstætt ríki


Forsetaframbjóðandinn veit ekki að Evrópusambandið er sjálfstætt ríki

Forsetaframbjóðanda vafið um fingur sér eins og tyggjói

Bein krækja

Þann 1. nóvember 1993 varð Evrópusambandið sjálfstætt ríki í smíðum. Sjálfstætt, en ekki fullvalda

En stanslaust er verið að dæla fullveldinu hægt og rólega úr aðildarríkjunum yfir í yfirríki Evrópusambandsins, sem þá verður bæði fullvalda og sjálfstætt ríki þegar dælingu er lokið. Þá er búið að tæma aðildarríkin. Þetta veit forsetaframbjóðandinn Guðni Th. vel. En Guðni Th. forsetaframjóðandi viðrist vera "teygjanlegt hugtak" og kýs því aðlögun að sannleikanum

Sjálfstæðið er ekki teygjanlegt hugtak. Þegar það er farið, þá er það farið. Sjálfstæði og fullveldi þjóða getur bara verið á einum stað í einu. Þess vegna er einmitt verið dæla því úr aðildarríkjunum og yfir til Evrópusambandsins. Flytja það allt á einn stað. Það getur ekki verið á tveim stöðum í einu, eins og Guðni

Í fyrradag kom forsetaframbjóðandinn Guðni Th. fram á Stöð2 og sagði ósatt og afneitaði sjálfum sér. Einni dögun síðar fór hann í aðlögunarviðræður við sannleikann á Vísi og sagðist vera úr öðrum heimi

Nú vill hann selja sjálfstæði Íslands, sé tilboðið nógu hátt. Það tók Ísland 700 ár að komast undan erlendu valdi

Engum hefði dottið það í hug þann 17. júní 1944, að aðeins 72 árum síðar, stæði hér maður í framboði til hins nýja forsetaembættis Íslendinga, sem framselja vildi sjálfstæði þjóðarinnar aftur undir erlent vald. Enginn hefði trúað því þá. Enginn! Hér er hið ýtrasta alvörumál á ferð

Forsetafambjóðandinn Guðni Th. veit vel að það fara engar samningaviðræður fram þegar ríki sækja um aðild að Evrópusambandinu. Hann veit það vel. En hann tekur þátt í þeim ljóta blekkingarleik sem Samfylkingin og Vinstri grænir hófu upp á sitt einsdæmi til að nauðga íslenskri þjóð inn í sambandið, með lygum, blekkingum og kosningasvikum

"Eitthvað hafa nú embættismennirnir verið bardúsa" sagði hann í sjónvarpi þegar Davíð Oddsson minnti hann á þessa staðreynd. Hann valdi að hafa það sem rangt er, til handa íslenskri þjóð. En staðreynd er þrjóskasta fyrirbæri sem til er. Staðreynd er ekki teygjanlegt hugtak

Forsetaembættið er ekki öflugt embætti. Í því situr einn maður. Aðeins einn maður og hann er einn á vaktinni. Það er þessi maður sem þarf að vera öflugur

Guðni Th. forsetaframbjóðandi sagði einnig í fyrirlestri á ESB-Bifröst að það "nálgast rasisma" að halda því fram að Íslendingar hefðu haft þau áhrif sem þeir telja að þeir hafi haft á hafréttarmál, með því að halda fram okkar sjónarmiðum varðandi landhelgina. Við erum því "næstum rasistar". Skoðun Guðna var af sama toga í Icesave málinu. Þar var hann íslenskri þjóð algerlega gagnslaus og vann því miður á móti henni. Hótaði henni með Norður-Kóreu ástandi

Bara örfárra daga skoðun hefur leitt þetta í ljós:

  • Fávís lýður
  • Ekki satt, alveg ósatt, sagði það aldrei (sagði það samt)
  • Ómenntuð sveitakona
  • Íslendingar nálgast að vera rasistar
  • Sjálfstæði og fullveldi íslensku þjóðarinnar söluvara
  • Sjálfstæði íslenskrar þjóðar tyggjó

Mér líst afar illa á þetta. Mér hugnast þetta ekki. Ég óttast þennan mann

Fyrri færsla

Fullveldið komið í eignastýringu


Fullveldið komið í eignastýringu

Fullveldi Póllands fór í eignastýringu hjá Evrópusambandinu um leið og landið gekk í það. Ný söluskipun hefur nú borist frá Brussel (sjá frétt)

Rétt eins og að það hefur aldrei verið hægt að halda hinu fyrrverandi Sovétríki saman nema með terror, þá er heldur ekki hægt að halda Evrópusambandinu saman nema með terror. Rússland er fyrrverandi Sovétríki

Þegar fullveldi og sjálfstæði ríkja verður óverjanlegt (e. indefensible) þá er mikil hætta á að þessi tilvistarlega tvenna úr hinum Heilögu Ritningum Vesturlanda, breytist smám saman í nokkurs konar pólitískan söluvarning. Að fullveldið og sjálfstæðið breytist í pólitíska "skiptimynt" og sogist inn á kauphallargólf hinnar pólitísku elítugræðgi hins pólitíska hagkerfis, sem orðið er tröllrisavaxið í höndum misvitra stjórnmálamanna af sósíalistískum ættum

"Ég skal svíkja þjóð mína ef þú, ESB, firrir mig ábyrgð gagnvart kjósendum mínum í staðinn. Þá mun ég geta setið fastar í sessi og án ábyrgðar ofan á kjósendum mínum. Þegar ég hef smám saman selt og gefið burt fullveldi þjóðarinnar, þá mun ég geta sagt við kjósendur mína; sorry, sem þjóðkjörinn fulltrúi ykkar neyðist ég til að segja við ykkur að þetta er því miður ekki hægt, því þetta er ekki lengur á okkar höndum"

Þetta "þetta" er komið yfir til Brusselveldisins og þeir ráða þessu um "þetta"." Þannig get ég sem liðleskja, stjórnmálalegur undirförull fölsungur og dagsdaglegur hug- og getuleysingi, setið áfram og enn fastar sem klístruð klessa á háum opinberum launum ofan á kjósendum". Sem þá eru orðnir eins konar einkaþrælar valdaelítu sem enga ábyrgð ber gagnvart kjósendum. Er elítan þar með orðin eins konar sósíaldemókratískt nomen-klessu-klattúru-fílter á milli einræðisformsins og gervilýðræðis

Það er svona sem elítu- og fræðimannavætt Evrópusambandið hefur risið upp til raunverulegra valda með svörtum og hvítum lygum og falsi stjórnmálastéttarinnar í ESB. Og já, kommissarar ESB eru stjórnmálamen, en algerlega ókjörnir. Evrópusambandið er í engu sambandi við fólkið. Það er einungis vel launuð stóðelíta á leið til hins erfðafræðilega einræðis valdastrúktúrs meginlands Evrópu

Evrópa er búin að gleyma Auschwitz. Það dugði henni aðeins í 50 ár, eftir það fór Gyðingahatrið í sinn erfðafræðilega farveg eftir vissar stökkbreytingar sem Evrópusambandið hefur staðið fyrir. Stendur álfan nú aftur á barmi borgarastyrjaldar. Þökk sé tilvist Evrópusambandsins, sem enginn kjósandi bað nokkru sinni um

Bandaríki Norður-Ameríku varðveittu friðinn í Evrópu. En þau eru farin heim því þjóðríki fara alltaf heim. Þjóðríki geta eðli þeirra samkvæmt, ekki haft stækkunarstjóra. Bandaríki Norður-Ameríku sjá vel hvað er að gerast í Evrópu. Þau hafa afskrifað hana, því Bandaríkjamenn vita að ekki er lengur mögulegt að bjarga henni, - né hvað þá heldur að reiða sig á hana. Hún er einfaldlega OFF: glötuð

Hafið er stórt. Það er okkar vörn

Fyrri færsla

"Fræðimanninn" á Bessastaði?


"Fræðimanninn" á Bessastaði?

Aðlögunarviðræður fræðimannsins við sannleikann

Stór hluti íslensku háskóla- fjölmiðla- og hagsmunaelítunnar hefur fyrirgert næstum öllum sanngjörnum rétti á að vera tekin alvarlega. Rekstrartap hennar er mikið og hefur það laskað samfélag okkar

Elítunni mistókst við banka- og fjármálabóluna sem varð að hruni. Hún varð virk strengjabrúða í því máli. Henni mistókst að koma auga á eðli myntbandalags Evrópusambandsins, sem af fullum ásetningi rústað hefur Evrópu. Hún varð virk strengjabrúða í því máli líka

Og hún varð virk strengjabrúða í Icesave málinu, því það er svo nátengt ESB-málinu sem er óskabarn elítunnar. Þrjú stór tækifæri til að koma auga á hið rétta í flóknum málum leiddu hana öll til rangrar niðurstöðu. Elítu háskóla- og hagsmunasamsteypunnar ætti því íslenskur almenningur ekki að taka alvarlega. Hún er strengjabrúða, að stórum hluta til

Þetta segir ég, "fávís lýðurinn". Ég kaus á móti Icesave. Ég kaus Ólaf Ragnar fyrir forseta og ég kaus J-lista kjarkmannsins Jóns Bjarnasonar og Bjarna Harðarsonar harðari til Alþingis 2013, því Jón hrökk ekki í brauðið, heldur stóð dyggur Íslandi, fast í báðar fætur. Og ég ætla skothelt að kjósa Davíð Oddsson fyrir forseta núna, því hann mun heldur ekki hrökkva í neitt brauð. Það veit ég, því Davíð er klettur

En þið verðið að muna að ég er "fávís lýður" - og bý í sveit. Í þorskastríðinu skrifaði fávís lýðurinn ég fiðlunema systur minni í London eins og í Icesave, til að upplýsa hana um framgang mála. Að við værum ekki svona vond eins og henni var sagt í Bretlandi. Ég skrifaði ekki mörg bréf þau árin, enda bara fávís múraralærlingur sem kastaði tómri steypu á veggi fólksins

Aðlögunarviðræður Guðna Th. við sannleikann halda áfram á Vísi í dag. Forsetaframbjóðandinn Guðni sagði í sjónvarpinu að fræðimaðurinn Guðni hafi aldrei sagt það sem hann sagði. Þetta þarf því að aðlaga í viðræðum hans við sjálfan sig

Það er óhætt að segja að fræðimaðurinn Guðni þoldi ekki "sviðsljósið" sem allur almenningur þarf að lifa í þegar sótt er um starf. Guðni forsetaframbjóðandi sagði í síðustu viku að "maður þarf kannski að hugsa öðruvísi og þarf að íhuga að það sem maður sagði í einum heimi hljómar kannski öðruvísi í öðrum". Flott jobbviðtal hans við þjóðina það!

Var það ekki einmitt svona eldsneyti sem dælt var endalaust á hrunbálköstinn: Þvaðrinu. Heilum vegg af þvaðri

Fyrri færsla

Guðna Th. "betur borgið" með annan lýð


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband