Leita í fréttum mbl.is

Fullveldið komið í eignastýringu

Fullveldi Póllands fór í eignastýringu hjá Evrópusambandinu um leið og landið gekk í það. Ný söluskipun hefur nú borist frá Brussel (sjá frétt)

Rétt eins og að það hefur aldrei verið hægt að halda hinu fyrrverandi Sovétríki saman nema með terror, þá er heldur ekki hægt að halda Evrópusambandinu saman nema með terror. Rússland er fyrrverandi Sovétríki

Þegar fullveldi og sjálfstæði ríkja verður óverjanlegt (e. indefensible) þá er mikil hætta á að þessi tilvistarlega tvenna úr hinum Heilögu Ritningum Vesturlanda, breytist smám saman í nokkurs konar pólitískan söluvarning. Að fullveldið og sjálfstæðið breytist í pólitíska "skiptimynt" og sogist inn á kauphallargólf hinnar pólitísku elítugræðgi hins pólitíska hagkerfis, sem orðið er tröllrisavaxið í höndum misvitra stjórnmálamanna af sósíalistískum ættum

"Ég skal svíkja þjóð mína ef þú, ESB, firrir mig ábyrgð gagnvart kjósendum mínum í staðinn. Þá mun ég geta setið fastar í sessi og án ábyrgðar ofan á kjósendum mínum. Þegar ég hef smám saman selt og gefið burt fullveldi þjóðarinnar, þá mun ég geta sagt við kjósendur mína; sorry, sem þjóðkjörinn fulltrúi ykkar neyðist ég til að segja við ykkur að þetta er því miður ekki hægt, því þetta er ekki lengur á okkar höndum"

Þetta "þetta" er komið yfir til Brusselveldisins og þeir ráða þessu um "þetta"." Þannig get ég sem liðleskja, stjórnmálalegur undirförull fölsungur og dagsdaglegur hug- og getuleysingi, setið áfram og enn fastar sem klístruð klessa á háum opinberum launum ofan á kjósendum". Sem þá eru orðnir eins konar einkaþrælar valdaelítu sem enga ábyrgð ber gagnvart kjósendum. Er elítan þar með orðin eins konar sósíaldemókratískt nomen-klessu-klattúru-fílter á milli einræðisformsins og gervilýðræðis

Það er svona sem elítu- og fræðimannavætt Evrópusambandið hefur risið upp til raunverulegra valda með svörtum og hvítum lygum og falsi stjórnmálastéttarinnar í ESB. Og já, kommissarar ESB eru stjórnmálamen, en algerlega ókjörnir. Evrópusambandið er í engu sambandi við fólkið. Það er einungis vel launuð stóðelíta á leið til hins erfðafræðilega einræðis valdastrúktúrs meginlands Evrópu

Evrópa er búin að gleyma Auschwitz. Það dugði henni aðeins í 50 ár, eftir það fór Gyðingahatrið í sinn erfðafræðilega farveg eftir vissar stökkbreytingar sem Evrópusambandið hefur staðið fyrir. Stendur álfan nú aftur á barmi borgarastyrjaldar. Þökk sé tilvist Evrópusambandsins, sem enginn kjósandi bað nokkru sinni um

Bandaríki Norður-Ameríku varðveittu friðinn í Evrópu. En þau eru farin heim því þjóðríki fara alltaf heim. Þjóðríki geta eðli þeirra samkvæmt, ekki haft stækkunarstjóra. Bandaríki Norður-Ameríku sjá vel hvað er að gerast í Evrópu. Þau hafa afskrifað hana, því Bandaríkjamenn vita að ekki er lengur mögulegt að bjarga henni, - né hvað þá heldur að reiða sig á hana. Hún er einfaldlega OFF: glötuð

Hafið er stórt. Það er okkar vörn

Fyrri færsla

"Fræðimanninn" á Bessastaði?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband