Leita í fréttum mbl.is

"Fræðimanninn" á Bessastaði?

Aðlögunarviðræður fræðimannsins við sannleikann

Stór hluti íslensku háskóla- fjölmiðla- og hagsmunaelítunnar hefur fyrirgert næstum öllum sanngjörnum rétti á að vera tekin alvarlega. Rekstrartap hennar er mikið og hefur það laskað samfélag okkar

Elítunni mistókst við banka- og fjármálabóluna sem varð að hruni. Hún varð virk strengjabrúða í því máli. Henni mistókst að koma auga á eðli myntbandalags Evrópusambandsins, sem af fullum ásetningi rústað hefur Evrópu. Hún varð virk strengjabrúða í því máli líka

Og hún varð virk strengjabrúða í Icesave málinu, því það er svo nátengt ESB-málinu sem er óskabarn elítunnar. Þrjú stór tækifæri til að koma auga á hið rétta í flóknum málum leiddu hana öll til rangrar niðurstöðu. Elítu háskóla- og hagsmunasamsteypunnar ætti því íslenskur almenningur ekki að taka alvarlega. Hún er strengjabrúða, að stórum hluta til

Þetta segir ég, "fávís lýðurinn". Ég kaus á móti Icesave. Ég kaus Ólaf Ragnar fyrir forseta og ég kaus J-lista kjarkmannsins Jóns Bjarnasonar og Bjarna Harðarsonar harðari til Alþingis 2013, því Jón hrökk ekki í brauðið, heldur stóð dyggur Íslandi, fast í báðar fætur. Og ég ætla skothelt að kjósa Davíð Oddsson fyrir forseta núna, því hann mun heldur ekki hrökkva í neitt brauð. Það veit ég, því Davíð er klettur

En þið verðið að muna að ég er "fávís lýður" - og bý í sveit. Í þorskastríðinu skrifaði fávís lýðurinn ég fiðlunema systur minni í London eins og í Icesave, til að upplýsa hana um framgang mála. Að við værum ekki svona vond eins og henni var sagt í Bretlandi. Ég skrifaði ekki mörg bréf þau árin, enda bara fávís múraralærlingur sem kastaði tómri steypu á veggi fólksins

Aðlögunarviðræður Guðna Th. við sannleikann halda áfram á Vísi í dag. Forsetaframbjóðandinn Guðni sagði í sjónvarpinu að fræðimaðurinn Guðni hafi aldrei sagt það sem hann sagði. Þetta þarf því að aðlaga í viðræðum hans við sjálfan sig

Það er óhætt að segja að fræðimaðurinn Guðni þoldi ekki "sviðsljósið" sem allur almenningur þarf að lifa í þegar sótt er um starf. Guðni forsetaframbjóðandi sagði í síðustu viku að "maður þarf kannski að hugsa öðruvísi og þarf að íhuga að það sem maður sagði í einum heimi hljómar kannski öðruvísi í öðrum". Flott jobbviðtal hans við þjóðina það!

Var það ekki einmitt svona eldsneyti sem dælt var endalaust á hrunbálköstinn: Þvaðrinu. Heilum vegg af þvaðri

Fyrri færsla

Guðna Th. "betur borgið" með annan lýð


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þú ert nú meira fíflið!!!....alveg ótrúlegur!!....algert fjall af þvaðri!! Maður veit varla hvar maður á að byrja til að leiðrétta bullið í þér! Og auðvitað kýstu Davíð, einkar viðeigandi!!

Jón Kristjánsson (IP-tala skráð) 1.6.2016 kl. 17:06

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ekki reyna það Jón, þessir menn hér eru með Guðna Th. á heilanum og geta ekki á heilum sér tekið.  Þvílík steypa sem þeir láta frá sér, en þeir hafa málfrelsi.  Málið er bara að í hvert sinn sem þeir opinbera sig um þessi mál, minnkar fylgi Davíðs og aðrir fá atkvæðin.  Fólk er nefnilega ekki illa upplýst og alls ekki fífl, og því síður fávíst eins og þessi ágæti maður heldur að við séum.  

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 1.6.2016 kl. 20:50

3 identicon

Hver er fíflskapurinn í greininni Jón og Ásthildur?

Þarna er verið að benda með málefnalegum hætti á ósannindi Guðna.  Það er semsagt ekki nóg með að menn ætla umvörpum að kjósa mann sem forseta sem stóð öfugur gegn því sem Ólafur Ragnar barðist fyrir með hvað glæsilegustum hætti, heldur er Guðni einnig ber að ósannindum um hvað hann hafi sagt um þjóðina. Þessa sömu þjóð og hann ætlast til að kjósi sig og telur sig geta orðið verðugan fulltrúa fyrir. (Segist ætla að verða forseti allrar þjóðarinnar).

Ef ég segi t.d. að spurning sé hvort Ásthildur sé farin að stela aftur, þá get ég ekki svarað því til að þetta hafi nú einungis verið spurning hjá mér þegar ég yrði ásakaður um að væna hana um þjófnað. 

Ástæðan er auðvitað sú að ég notaði orðið "aftur", í því felst sú fullyrðing að hafi stolið áður. (Vel að merkja er Ásthildur hin strangheiðarlegasta manneskja að ég best veit, og einungis notuð hér sem dæmi).

Guðni hefur semsagt lýst því opinberlega yfir að lýðurinn sé fávís og kokki upp söguskýringar sem standist ekki. 

Af hverju er fólki svona illa við sannleikann?

Bjarni Gunnlaugur (IP-tala skráð) 1.6.2016 kl. 22:12

4 identicon

Fólk er illa upplýst, og þar sagði Guðni satt.

Gunnar þrætir fyrir að EES samningurinn með samþykki Vigdísar sem sór eið að stjórnarskránni og hafi í raun verið mestu stjórnarskrábrot íslandssogunnar.

Frálst flæði fjármagns og vinnuafls í orhagkerfi var það sem gerði tilraun Davíðs Oddssonar að hrunvaldi, ekki það að hann hafi verið seðlabankastjóri.

Uppkast að nýrri stjórnarskrá og samþykkt þjóðarinnar á henni ...

Er einfaldlega samþykkt þjóðarinnar á pilsfaldar kapitalisma!

Í ábyrgð þinni Ásthildur Cesil Þórðardóttir,

L. (IP-tala skráð) 1.6.2016 kl. 23:52

5 identicon

Jú, víst munum við lifa nýja tíma innan skamms.

Sagan mun vera endurskoðuð.

Þeir sem urðu fyrir eignaupptoku munu ekki sætta sig við aðra eignaupptoku ...

að Gunnar hafi ekki fyrir longu séð að pilsfaldarkapitalismi hefur allt með kommúnisma og frænda hans fasisma að gera, sýnir mér annaðhvort að hann sé ekki skýr í kollinum. Eða þá að hann sé eiturnaðra.

L. (IP-tala skráð) 2.6.2016 kl. 00:08

6 identicon

Í núverandi ákvæði í stjórnarskrá segir að engum skuli mismunað og blablabla ...

Í tillogu um nýja stjórnarskrá og samþykkt hennar mun mismunun slá oll met ...

L. (IP-tala skráð) 2.6.2016 kl. 00:41

7 identicon

Guð komi til, Gunnar!

Ertu úr sveit, sá strax að það var eitthvað
stórathugavert og fávíst við myndina af þér!!

Þetta var heppileg atburðarás eftir að
sagnfræðingurinn fékk sína hirtingu á Stöð 2!

Út kemur könnun strax morguninn eftir af hendi
Baugsmiðils, Fréttablaðsins, þar sem sagnfræðingurinn
er í hæstum hæðum og lætur hafa eftir sér:
Ég er þá að gera eitthvað rétt!!!

Allt í góðu: Fávís lýðurinn sér ekki í gegnum þetta
fremur en nokkuð annað, - fólk er fífl, er ekki svo?!

Húsari. (IP-tala skráð) 2.6.2016 kl. 09:43

8 Smámynd: Elle_

Vil bara taka undir með Bjarna Gunnlaugi.

Elle_, 2.6.2016 kl. 11:47

9 identicon

Látið ekki svona krakkar. Dabbi er vanhæfur furðufugl sem á sko ekkert erindi á Bessastaði. Ekki frekar en glæpamennirnir Ólafur Ólafsson eða Sigurður Einarsson.

Haukur Kristinsson (IP-tala skráð) 2.6.2016 kl. 16:06

10 identicon

Haukur! Ætli það sé ekki hámark mannlegrar
niðurlægingar "að pródúsera rang­ar sam­eig­in­leg­ar
minn­ing­ar," um þá menn sem þykja liggja vel til höggsins,
sparka í meðbræður sína sem liggja við götuna sem væru
þeir hundshræ.

Óneitanlega keimlíkt haughús-minninu þar sem maður
nokkur hafði tæmt haughús sitt og hugðist gleðja sál
sína með því að kveikja sér í vindli en hvarf
á augabragði uppí heiðríkjuna ásamt og með öðrum
skítadreifurum í einhverri mestu sprengingu sögunnar og
svolgrar nú í óminni úr hverri flöskunni af annarri
mykjuskolp og kúahland en hvorttveggja kallast á
við það gullfiskaminni þegar menn kannast ekki við eigin
fræði og bjóða jafnvel sjálfum sér góðan daginn
með því að minni þeirra nær ekki til þess hverjir þeir sjálfir eru.

Húsari. (IP-tala skráð) 3.6.2016 kl. 11:20

11 identicon

Húsari. Bull og orðagjálfur. 

Haukur Kristinsson (IP-tala skráð) 3.6.2016 kl. 13:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband