Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2018

Landgönguher í Japan endurreistur. Gengisfall ríal. Suðan í Sýrlands-pottinum. Þokubakkar

JGSDF Marines taka til starfa í Sasebo 7. apríl 2018

Mynd Reuters: Frá vígsluathöfn landgönguliðs Japans í Sasebo þann 7. apríl 2018. Heimahöfn USS Wasp er einnig í Sasebo

****

Japanska ríkið, sem telur 6852 eyjar, þar sem búið er á 430 þeirra, hefur nú endurreist landgöngulið sitt. Þetta er í fyrsta sinn sem Japan starfrækir slíkt herlið frá lokum Síðari heimsstyrjaldar. Vígslan fór fram við hátíðlega athöfn í Sasebo á Kyushueyju, sem er þriðja stærsta eyja landsins. Sasebo er í Nagasakisýslu, ef svo umsýslulega má að orði komast

Stofnstærð landgönguliðsins er um 2100 hermenn og er einungis um byrjun að ræða. Byrjunarhlutverk japanska landgönguliðsins er að verja fjarlægar eyjar suðvestur af meginlandinu, miðja vegu á milli Japans og Taívan. Í kjölfar Tohoku-jarðskjálftans 2011 kom fram mikil gagnrýni á stjórnvöld vegna vanbúnaðar í björgunarstarfi og hefur hún átt sinn þátt í endurreisn landgönguliðsins. En meginástæðan er auðvitað blöðruhálsbólgnun einræðisherradæmis Kína og þróunin á Kóreuskaga

Mynt Írans fellur hratt

Íranski íslams-ríalinn er nú fallinn um 25 prósent gagnvart Bandaríkjadal frá því í janúar. Síðustu daga hefur því sem næst öngþveiti ríkt á gjaldeyrismarkaði landsins. Seðlabankastjóri Írans kennir Sádi-Arabíu og Sameinuðu arabísku furstadæmunum um að hafa fingur með í gengisfallinu

Ný mótmæli, nú vegna yfirvofandi vatnsskorts, eru komin af stað í Íran og ekki hjálpar gengisfallið við innflutning á matvælum, sem koma til með að vanta ef vatn til ræktunar er of lítið. Borgarstjóri Teheran, sem talinn var "umbótasinnaður", hefur sagt af sér í annað sinn og uppsögn hans samþykkt

Íslamska byltingarherlið Írans hefur nú komið sér fyrir með fastar herstöðvar í Sýrlandi og þar með lagt íranska landbrú frá Íran til Miðjarðarhafs. Um þá brú flæða hergögn til árása á Ísrael með aðstoð liðsafla sem Íran hefur í vösum sínum í Sýrlandi, Líbanon og á Gazasvæðinu. Sjía-útlendingahersveitir Írans hafa þjálfað um 200 þúsund manna herlið í Sýrlandi, Írak, Líbanon og Yemen

Ánægja almennings í Íran með gang mála í landi sínu, er ekki beinlínis í takt við fjáraustur Írans í nýtt persneskt heimsveldi - í sívaxandi kapphlaupi við stofnun nýs Tyrkjaveldis, undir Súnní-íslam. En íslam er lárétt þokubakka-stjórnmálatrúarhreyfing sem virðir ekki lóðrétt landamæri ríkja sem viðhafa lóðrétt stjórnskipulag, og þar með lýð-ræði þjóðríkjanna upp úr Biblíu Vesturlanda

Lækningin við þokubökkum ólögmætra heimsvelda

Ekkert annað rit heimsins en Biblían innihélt uppskriftina að þjóð-ríkinu og stjórnarfari sem haldið er fyrir sig, innan lóðréttra landamæra þjóðríkis, þar sem konungurinn má bara vera konungur yfir sinni eigin þjóð, en ekki öðrum þjóðum. Í Biblíunni er þjóðin grundvöllur samfélags manna og heitir hann þjóðfélag

Þau, þjóðfélögin, bera uppi allt sem í dag er kallað "samfélag", og sem að mestu snýst um sósíalisma og nýmarxisma. Þessi svo kölluðu "samfélög" vil ég helst losna við að þurfa að halda uppi. Fyrir mig er þjóðfélag fínt og nóg. Þjóðfélagið er besta og göfugasta félag mannkynssögunnar. Þjóðfélagið er það eina sem virkar þegar Marx-Lenín-salernissetan brennur og fer í þrot með sitt andskotans "samfélag". Fánar samfélaga eru ávallt með hamar og sigð, rauða stjörnu eða hakakross. Til fjandans með þá. Einu félögin sem ég er í er þjóðfélag Íslendinga, þjóðkirkja þess og Sjálfstæðisflokkurinn. Aldrei geng ég í "samfélag"

Rússar, Tyrkir, Írarnir og Sýrland

Samsæti þessa þriggja fasa hersetuliðs, þrátt fyrir innbyrðis hatur þeirra á hvor öðrum í rústum Sýrlands, er nú haldið saman með sameiginlegri fyrirlitningu þeirra á Bandaríkjum Norður-Ameríku, en sem Kúrdar líta á sem mögulegan bjargvætt. Þessir þrír aðilar hafa svo gott sem enga sameiginlega hagsmuni. Tyrkir þola ekki Rússa og vilja þá burt upp fyrir Svartahaf. Rússar þola ekki Tyrki því þeir geta lokað Svartahafi og híft sig upp Balkanskaga, þar sem Rússar þykjast þurfa tilvistarleg ítök. Tyrkir þola ekki Írani af öllum mögulegum og ómögulegum ástæðum og það sama gildir um Írani, sem þola heldur ekki Rússland vegna til dæmis hernáms Rússa á norðurhluta Írans í Síðari heimsstyrjöldinni. Og Rússland veit hvaða stærð Íran er í túnfæti þess og öfugt. Þarna sitja þessir þrír aðilar saman í potti og brugga hvor öðrum launráð. Og innan skamms mun brugg þeirra sjóða upp úr pottinum sem þeir sitja naktir í

Fyrri færsla

Alþjóðleg fyrirtæki byrjuð að leka (þó ekki rússnesku hlátursgasi) [u]


Alþjóðleg fyrirtæki byrjuð að leka (þó ekki rússnesku hlátursgasi) [u]

Hlutabréfaverð í alþjóðlegum fyrirtækjum hefur skyndilega tekið upp á því að hanga aftaní á markaði á mörkuðum, miðað við þau fyrirtæki sem starfa ekki alþjóðlega. Hin alþjóðlegu teika nú heima-klettana og varla það. Þetta eru sennilega nýjar bollur í súpunni sem Trump er að sjóða þar vestra. Er þetta ný þróun, eða bara stundarfyrirbæri?

Hlátursgaslögn Rússlands upp í heilabú Vesturlendinga er byrjuð að skila afli. Í dag er það Guðni Ágústsson sem í Morgunblaðinu ber fram þokubakka dagsins fullan af rússneskum hlátri. Um þokubakka Guðna halda traustir hálfmarxískir armar Framsóknarmanna, sem aldrei hafa kunnað sér sitt vinstra afl, þegar rússnesku hlátursgasi er hleypt á Framsókn. Nostalgían eftir gömlu dögunum er slík að flokknum er varla stætt í nútímanum. Flokkurinn veit því ekki lengur hvar hann á heima í flestum málum, og þarf því að taka allar kosningar með aðstoð nýrra uppfinninga. Það er sennilega það sem gerir flokkinn svona framsækinn að hann getur hvenær sem er breyst í Ofsóknarflokkinn, þar sem flokkurinn ofsækir sitt gamla sjálf. Steinar í frosti eru sennilega framsæknari

Jú, hér er þetta: Thersea May eitraði með banvænu rússnesku taugaeitri fyrir Rússa í Bretlandi. Svo illa tókst henni til að Rússarnir drápust ekki, heldur gekk frú May með allt sitt lækna- og sjúkrahúsalið í það að bjarga Rússunum frá sjálfri sér svo að þeir mættu lifa morðtilraun hennar af... (klikk) ..andartak... andartak... hmmm... ha ha ha ha ha ha ha (gasið)... haha ha ha ha ha ha (gasið)... hah ha ha ha ha ha ha... þetta er jú Upplýsingin... haha ha haa ha hah... Upplýsingin sem Dostojevskíj sá strax að myndi skila Lenín, Stalín og svo Pútín til valda í Rússlandi. Þvílík armaða af drasli!

--------------

Uppfært kl. 22:20,- eftir lokun markaða

Hlutabréf í Rusal féllu um 50,4 prósent í dag. Þessi rússneski álframleiðandi er sá stærsti í heiminum. Samhliða því féllu hlutabréf í fyrirtæki eins aðaleiganda Rusal, En+ Group PLC -sem skráð er á markað í Lundúnum- um 42 prósent. En+ Group PLC, sem er í meirihlutaeigu Oleg Deripaska á einmitt 48 prósent hlut í Rusal. Og rússneska rúblan féll einnig í dag, um 4 prósent, og helsta hlutabréfavísitala landsins, MICEX, féll um rúmlega 8 prósent. Oleg Deripaska var settur á svartan lista í Bandaríkjunum á föstudagskvöld. Þetta er dagurinn eftir þann föstudag

Fyrri færsla

Uppruni rússneska eitursins að koma í ljós


Uppruni rússneska eitursins að koma í ljós

USS Carl Vinson kemur til Danang 5 mars 2018

Mynd; Auðlegð þjóðanna kom til Víetnam um daginn

****

Þær fregnir berast nú frá Bretlandi, að rannsóknir MI6 á því rússneskt uppfundna eiturefni sem notað var í eiturvopnaárás á Salisbury -sem tilheyrir Wiltskíri í Englandi- sé að skila niðurstöðum um framleiðslustað efnisins

Rannsóknarstofur hafa nú með miklu -en þó ekki fullkomnu- öryggi staðsett hvar og í hvaða eiturefnastofum efnið er framleitt. Enn vantar þó búta í niðurstöðurnar. Rannsóknin er flókin því greina þarf uppruna allra efnanna, einnig mengunar- og aðskotaefna, og svo einnig þess burðarefnis sem ber eitrið í gegnum húðina og inn í líkama fórnarlambanna. Ljóst er, segja sömu fréttir, að rússnesk yfirvöld létu rannsaka hvort að Novichok-efnið væri nothæft sem efni til banatilræða. Bæði rannsóknarstofur á staðnum og leyniþjónustur Bretlands úti í mörkinni vinna saman að því að þrengja hringinn sem nálin með ör á endanum mun falla, og þar með benda á

Athygli vekur að Kína og Íran styðja Rússland í þessu máli. Kínverski varnarmálaráðherrann, Wei Fenghe, fundaði með rússneska kollega sínum Sergei Shoigu í Moskvu í fyrradag. Þar lagði Fenghe mikla áherslu á að Bandaríki Norður-Ameríku ættu að taka sérstaklega eftir aukinni strategískri samvinnu Kína og Rússlands í hermálum

Margir fjölmiðlar heimsins hafa í kjölfar Salisbury-árásarinnar lagt mikið upp úr því að túlka það sem er að gerast í heimunum núna, sem upptakt til einhverskonar endurtekins kalds-stríðs. Það álit er þó firra. Kalda-stríðið snérist um hugsjónir. Þar stóð þungvopnað alræði kommúnista og ógnaði veröldinni með heimsbyltingu. Andspænis honum stóðu frjálsir menn Vesturlanda með Biblíuna í höndum og boðuðu allt annað líf en helvíti kommúnismans gerði. Hugsjón var á móti hugsjón. Bilbíla Vesturlanda sigaði, auðvitað

Í dag hefur hins vegar enginn hugsjónir, þó svo að menn leiti eftir þeim á til dæmis samfélagsmiðlum og í alþjóðlegum fjóshaugum multilateral guðleysis. Meira að segja Páfinn virðist ekki vera með Helvíti á hreinu lengur. Velskilgreint helvíti vantar í jöfnuna, þó svo að í þykkum þokubökkunum sjáist annað veifið glitta í útlínur hins næsta helvítis á jörð manna

Lykilorðið hér er ekki nýtt-kalt-stríð, heldur Fyrri heimsstyrjöldin, sem skall svo gott sem fyrirvaralaust á. Hún snérist um 1. hagsmuni, 2. bandalög, 3. sökkvandi og hins vegar rísandi veldi. Sem sagt; hvaða ríki eru sökkvandi og rísandi í dag. Hvern vilja menn helst senda til helvítis, vegna öfundar og eigin veiklunar, innvortis sem útvortis. Það er spurningin. Og hún er stór, en þó ekki svo stór að svar við henni sé of erfitt að finna

Fyrri færsla

Með kveðju frá Rússlandi


Með kveðju frá Rússlandi

Olíuverð og rússnesk stjórnmál

Mynd: tímaritið Economist. "Olíuverð og sovésk/rússnesk stjórnmál". Nánar hér

****

Það er greinilegt að fyrir dyrum í Rússlandi standa stórir og alvarlegir hlutir. Rússland skildi nafnspjald sitt eftir í Salisbury í Bretlandi um daginn, til að tryggja hamrandi fréttaflutning og aðgerðir sér í útvortis óhag, en innvortis í hag. Á rússneska nafnspjaldinu stóð: svona fer fyrir þeim Rússum og fjölskyldum þeirra sem svíkjast undan merkjum á næstu mikilvægu árum. Við erum að skrifa reglubókina upp á nýtt, þar sem gömlum óskrifuðum reglum er hent út. Það er að okkar mati nauðsynlegt því svo mikið og stórt stendur fyrir dyrum á næstu árum. Á komandi árum berst Rússland fyrir tilvist sinni í núverandi mynd. Við stöndum afar illa. Okkur hefur mistekist að umbylta hagkerfinu, við erum enn að mestu í vösum afla sem við sjálfir ráðum engu um; þ.e. heimsmarkaðsverði á olíu, sem Bandaríkjamenn hafa rústað með enn einni af sinni nýju fjandans tækni. Almenningur er í sívaxandi mæli að missa þolinmæðina og trú hans á framtíð landsins er orðin mjög slöpp, miðað við bóluárin þegar olíuverð fór hækkandi í samfellt 15 ár. Undanfarið höfum við einungis haft efni á lyklaborðsaðgerðum í utanríkismálum og einni lágvöru-hersýningu í Sýrlandi. Ef olíuverð hefði ekki tekið upp á því að byrja að hrynja í september 2013 og fara fram af brúninni sumarið 2014, þá hefðum við haft efni á meiru. Við hefðum þá haft meiri peninga á milli handanna til að senda út í jaðra sambandsríkisins (stuðpúðana) og við hefðum þá sennilega nú þegar haft efni á Úkraínu, undir okkar formerkjum. Tveir þriðju hlutar ríkisfjárlaga okkar komu frá orkugeiranum

US Exports of Crude Oil - Thousand Barrels per Day - October 2017

Mynd: Olíuútflutningur Bandaríkjanna, þúsundir tunna á dag: Banabiti OPEC og félaga. Um leið og olíuverð hækkar koma bandarískir olíubrunnar on-line og þrýsta því niður á ný. Og break-even kostnaðarmark þeirra fer sífellt lækkandi

****

Allir menn vita að um leið og Vladímír Pútín komst til valda árið 2000, þá breyttist Rússland og varð nokkuð samt við sitt gamla á ný. Það varð á ný hart og stjórnmálin urðu harðneskjuleg. Á komandi árum verða tónarnir sem frá Rússlandi koma, mjög svo harðir. Mikið liggur við og þeir sem svíkja það stóra prógramm sem við erum við það að gangsetja, já, svona fer fyrir þeim. Þetta tilkynnist hér með öllum. Rússland er og verður alltaf harðbýlt land og ríki, haldið saman af KGB-stofnunum

Og nú er loftið líka að fara úr Kína. Það mun hjaðna eins og Japan hjaðnaði frá því að vera 17 prósent af heimshagkerfinu 1989 og niður í sex prósentin sem það er í dag. En Japan stendur þó betur að vígi en Kína, því það hefur ekki þúsund milljón fátæklinga hagandi um háls stjórnvalda, sem ofaní kaupið byggja allt sitt á einræðisvaldi

Rússland et. al. eru þrjú misheppnuð ríki sem komin eru með eilífan forseta sem er sonur sólarinnar: Rússland, Kína og Norður-Kórea. Þvílík þrenna maður

Fyrri færsla

Pólland kaupir bandarískt Patriot-eldflaugavarnarkerfi


« Fyrri síða

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband