Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2017
Fimmtudagur, 30. nóvember 2017
Til hamingju ný ríkisstjórn
Engar skammbyssur notaðar. Engin kúgun. Samt tókst þetta. Og án þess að Tími neins sérstaks ofsóknara krefðist þess að vera kominn
Katrín Jakobsdóttir vann fyrir sínu og var treyst
Bjarna Benediktssyni var treyst vel og vann hann verkið með sóma
Sigurður Ingi gerði sitt
Þetta hlýtur að geta virkað
Til hamingju með þetta Ísland! Ég óska þessari ríkisstjórn velfarnaðar
Sögulegt er að "gömlu kommarnir" landi forsætisráðherra Íslands. Ég gleðst þeirra vegna. Þetta er sögulegur atburður og markar vonandi viss tímamót
Þingið fær Steingrím J. sem forseta. Hlýtur að virka
Eins máls krataflokkurinn Samfylking hefur líklega runnið sitt eina og stutta skeið
Áfram Ísland!
Ég hlakka til 100 ára fullveldisafmælis íslenksu þjóðarinnar á næsta ári
Fyrri færsla
Ímyndaða "iðnbyltingin" eyðileggur framleiðni Vesturlanda
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Miðvikudagur, 29. nóvember 2017
Ímyndaða "iðnbyltingin" eyðileggur framleiðni Vesturlanda
Grein FT: Productivity and the crisis of attention
Þessu varpar Dan Nixon fram á vef stefnudeildar breska seðlabankans. Reyndar heitir bankinn Englandsbanki eða Bank of England. Hann gefur líka út sterlingspund
Uppfært: (bein krækja á færsluna hjá BoE: Bank Underground blog)
Bein tengsl eru líklega á milli fallandi framleiðni í þróuðum hafkerfum og innleiðingu stafrænnar tækni, sérstaklega snjallsíma, segir í skrifum seðlabankamannsins
Þetta er ansi áhugaverð tilgáta hjá Nixon. Ég hef alltaf sagt að það ætti að banna tölvur í grunnskólum (og snjallsíma, þeir eru tölvur)
Og ég hef líka alltaf sagt að forðast ætti fyrir alla muni galopin skrifstofurými. En það verður náttúrlega ekki gert fyrr en að fyrirtækin fara á hausinn. Það er ekki hægt að hugsa í þannig umhverfi. Enda hugsaði enginn neitt og hrunið skall bara á sérfræðingum sameinuðu opnu skrifstofuveldanna. Eitt púff og allt var farið
Og svo kórónar Nixon getverk sitt með því að vera mér sammála um að "Big Data" sé líklega algerlega útúr-tilgangslaus heilaspuni og bara enn ein kenningin veidd upp úr salerni, eða búin til hjá sérfræðingum í opnum skrifstofurýmum, nema hvað. Músasmellirnir og önnur notendaviðbrögð eru mest suð frá taugaveiklun og skorti á einbeitingu. Það er það sem "big data" er. Betra hefði verið að taka snjókorn upp á disk og kalla þau "big data" - stór-gögnin miklu
Þannig var það með "nýja hagkerfið", sem um tíma seldist vel. Síðasti söludagur þess reynist þó vera 1. janúar árið 2000. Þá sprakk það
Mamma mamma!, allir eru að iðnbylta sér, má ég ekki líka. Jáh, allir eru..
Fyrri færsla
Taparar virðast ætla að snúa bökum saman
Stjórnmál og samfélag | Breytt 30.11.2017 kl. 00:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Þriðjudagur, 28. nóvember 2017
Taparar virðast ætla að snúa bökum saman
Vestur-Þýskalandi: fyrir tíma Evrópusambandsins - 1986
****
Verður Angela Merkel áfram leiðtogi taparanna ?
Nú berast þær fréttir frá Þýskalandi að íhaldsmenn og sósíaldemókratar hyggist halda tapsferðinni áfram í nýrri samsteypustjórn
Stjórnarmyndunarvandræði í Þýskalandi eru til komin vegna þess að kjósendur sáu ekki lengur mun á flokkunum tveimur sem ríkt hafa sem ein samsteypa yfir Þýskalandi í 12 ár. Þess vegna flúðu þeir þessa flokka. Og stjórnarflokkarnir tveir töpuðu því kosningunum
Tap CDU/CSU íhaldsflokks Angelu Merkels varð það versta í sögunni eftir síðasta stríð. Tap SPD sósíaldemókrataflokks sósíalista varð líka það versta í sögunni eftir stríð. Hrun þessara tveggja flokka varð vegna samvinnu þeirra
Samvinna flokkanna varð að samsæri gegn kjósendum. Og kjósendur brugðust við, vegna þess að hægri og vinstri mega aldrei vera sammála um allt það mikilvægasta. Það er stranglega bannað, því það er samsæri gegn kjósendum. Kjósendur fyrirlíta því tapsflokkana fyrir að þora ekki að halda skoðunum sínum á lofti
Og nú eru kjósendur þessara tapara farnir. Þeir sögðu bless. Og tapsflokkarnir tveir reyna að axlayppa þá staðreynd burt með því að snúa bökum saman um að þeir kjósendur sem flúðu einmitt þá, komist hvergi annarsstaðar í aðstöðu til að hafa áhrif á landsstjórnina. Þetta er ávísun á enn frekari harkfarir. Þetta er líka heilabilun
Tapararnir sigra. Sigurvegararnir tapa. Og sigurvegararnir komu flestir úr tapsflokki Angelu Merkels:
FDP eða Frjálsir demókratar fengu 2,2 milljón nýja kjósendur og töpuðu 40 þúsund af sínum gömlu yfir til AfD. Af þessum 2,2 milljónum nýju kjósendum komu 1,36 milljónir úr flokki Merkels og 0,45 milljónir komu frá sósíaldemókrötum
AfD eða Valkostur fyrir Þýskaland, fékk 2,27 milljón nýja kjósendur og komu tæplega milljón þeirra úr flokki Merkels. Hálf milljón kom frá sósíaldemókrötum og tæplega önnur hálf milljón kom frá Die Linke eða Vinstri. AfD fékk einnig 0,7 milljón nýja kjósendur sem ekki höfðu kosið síðast, eða voru nýir kjósendur
AfD er nú þriðji stærsti stjórnmálaflokkurinn í Þýskalandi. Næst verður hann orðinn næst stærsti flokkurinn og FDP sá þriðji stærsti, því miðvinstrið virðist búið að vera. Það er orðið svo ESB-klesst
Þýskaland þarfnast stjórnmálaflokka sem eru ósammála um þá framtíð sem bíður landsins og sem byggja á lærdóm um það slæma sem kom landinu í þessa aðstöðu; og hið slæma er einmitt sjálft Evrópusambandið, sem svo gerði. Það samband, sem í litlu sem engu sambandi er við neina kjósendur í Evrópu, er hægt en örugglega að rústa þýskum stjórnmálum
Kjósendur fyrirlíta meginflokkana fyrir að vera aular og eru þeir flokkar því óðum að breytast í flokkasprænur á meðan hinir byggja sig upp og taka við sem nýir meginflokkar. Þýskaland er byrjað að ramba og vambast. Það sullast til í 1949-sökklinum. Landið er ekki að hrynja, að minnsta kosti ekki enn sem komið er. En það mun ekki leiða neitt nema tap ofan á tap, ramb, vamb og sull næstu árin
Og næst þegar kosið verður, er eins líklegt að þá hefjist formleg endalok Evrópusambandsins, sem -eins og David Cameron orðaði það- hefur eitrað stjórnmálin, áratug eftir áratug eftir áratug
Unga fólkið í Þýskalandi þarf ekki lengur á samviskubitvopnum að halda. Það hefur ekkert með þau að gera. Íhaldsmenn geta eðli málsins samkvæmt ekki endalaust verið í stjórn með úniversalistum, án þess að rústa sjálfum sér í leiðinni. Íhaldssamt Þýskaland veit vel hvað slíkt þýðir
Hvað gerist næst í Þýskalandi? Það er nýja spurningin á meginlandi taparanna. Sú spurning þótti óhugsandi fyrir bara 9 árum síðan. Hvað gerist næst!
Fyrri færsla
Konungur Bandaríkjadalur ríkir enn og fastara
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Mánudagur, 27. nóvember 2017
Konungur Bandaríkjadalur ríkir enn og fastara
Myndskeið: Bandaríkjadölum hent niður
Þrátt fyrir 40 ára samfelldar hrakspár um að konungsríki Bandaríkjadals sé að gufa upp, á ekkert slíkt sér stað í veruleikanum. Þar sannast að lítið er að marka það sem fólk segir og ættu menn frekar að fylgjast með því sem þeir og markaðir gera. Samkvæmt neytendakönnun sagðist til dæmis næstum enginn hafa keypt hljómplötu með Heino í Þýskalandi, en samt hafði hann selt meira en 50 milljón eintök í landinu. Og í Svíþjóð seldu Vikingarna fleiri plötur en Abba, þó svo að aðeins fáir segðust eiga þær. Líklegt er að Geimundur Valtýsson, BG og Ingibjörg lúti sömu lögmálum hér heima og við skulum ekki minnast á sjálfan Donald J. Trump sem enginn segist hafa kosið, því það þykir ekki nógu fínt til opinberrar frásagnar
Sem sagt, nú er Bandaríkjadalur með stærri hlutdeild í skuldbindingasafni evrópskra viðskiptabanka en evran er með. Það þýðir að öryggi er talið betra og stærra ef Bandaríkjadalur er notaður sem mynt þegar markaðsaðilar veita lán og þeir taka á sig skuldbindingar. Þá er það Bandaríkjadalur sem er myntin sem tekið er mark á frekar en allt annað í myntsafni veraldar. Einn vegur og Eitt belti Kína er nú byrjað að snúa upp á sig og mun enda sem óteljandi snærisspottar til að hengja upp skreið á turnspírur kínverska hagkerfisins sem falla mun saman í einn lágvaxinn hjall, sannið þið til - og lesið varir mínar; hjall
Hvað varðar seðlabanka veraldar þá eru þeir að auka hlutfall Bandaríkjadals í forðum sínum. Engum líkar kínversk gjaldeyrishöft til bjargar miðstýrðri gengisbindingu, pólitískar peningaskammtanir evrusvæðis og sú sívaxandi pólitíska áhætta sem orðin er krónískt vaxandi innbyggður veikleiki í myntir eins og evru og kaldri kommamynt Kína
Enginn getur hreyft litla fingur í veraldarhagkerfunum án þess að rekast á einn eða annan hátt á bandaríska hagkerfið, sem er svo yfirgnæfandi stórt og voldugt að allt sem þar gerist eða gerist ekki, hefur áhrif á alla
Ný stýrivaxtahækkun bandaríska seðlabankans mun líklega koma fyrir áramót og skattakerfisbreytingar Trumps forseta hafa getuna til að auka enn skort á dölum erlendis, því stór hluti bandarískra fyrirtækja mun þá taka hagnað sinn heim og telja hann fram þar. Samtímis er bandaríski seðlabankinn að sjúga inn það fé sem hann sleppti lausu sem fljótandi fúkkalyfi á síðustu kreppu. Hann lítur svo á að sjúklingurinn þurfi ekki lengur á lyfjagjöf að halda
Á sama tíma óttast Þjóðverjar manngerða verðbólgu úr turnspírum ECB-seðlabankans. Þeir vita sem er, að sá banki sprengdi Suður-Evrópu alla í loft upp með neikvæðum raunstýrivöxtum og þýskum peningum og óttast nú að þýska hagkerfið sé næst á sprengilista þess glataða seðlabanka heimilislausrar myntar
Í nótt hrundi Suður-Kóreanska Samsung um rúmlega fimm prósent á mörkuðum vegna lægri einkunnar frá Morgan Stanley, sem sagði að Suður-Kórea og stór hluti Asíu sé kominn of djúpt á kaf í hálfleiðara. Sá bisness er að mínu mati orðinn hálfleiðinlegur og hálfglataður, því stór hluti alls tölvunarbransa veraldar er kominn á síðasta snúning og stórkostleg töp bíða þeirra sem ráða ekki algerlega sjálfir yfir sínum platformi öllum, frá a til ö. Þ.e. bæði yfir vél- og hugbúnaði og þar með talinni hönnun og framleiðslu örgjörva. Og það gerir Samsung bara alls ekki. Fullt stopp..
Krækja, WSJ: King Dollar
Fyrri færsla
Gamaldags katalógar sendir í póstkassa fólksins á ný
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 26. nóvember 2017
Gamaldags katalógar sendir í póstkassa fólksins á ný
Bandarískar póstversalnir eru byrjaðar að senda prentaða katalóga út í póstkassa fólksins á ný. Í fyrsta skiptið síðan 2011 hefur Sears sent jólapöntunarlistann sinn á prentuðu formi út í póstkassa fólksins. Ástæðan er sú að þar standa listarnir skínandi upp úr öllu öðru, því allir hinir eru komnir með allt sitt á netið, þar sem ekkert stendur lengur uppúr, nema kostnaðurinn, svik, prettir og svínarí og núll lifandi persónuleg þjónusta. Á netinu kafnar allt því þangað eru allir komnir og kostnaðurinn við netið er ekkert smáræði og oftast stórkostlega vanmetinn. Sérstaklega vanmetinn er tæknilegi kostnaðurinn við ónýt tölvukerfi með ónýtum stýrikerfum -bæði hjá seljanda og kaupanda- og lélegum hugbúnaði sem ekkert getur og sem samkvæmt eðli þessarar úreltu tækni, getur ekki vitað hvort að hann er að keyra vírusa, þjónusta glæpagengi, eða ekki. Kallast hann því snjall og er helsta verkfæri hettuklæddra aumingja
Allt þetta dót er nú svo vonlaust ónýtt að engin leið er að bæta þessa tækni. Hún var svo hroðalega gölluð frá byrjun, að hún svarar til hestvagns sem settur var framan á eldflaug. Og nú er bara að bíða þess að greiðslukortum og upplýsingum um alla viðskiptavini og birga Amazons verði stolið. Það getur varla verið lengra í það en að tölvuvæddum ríkisstjórnkerfum landa verði algerlega rústað
Og þegar það rennur upp fyrir svokölluðum "fjárfestum" að arðsemi netverslana á borð við Amazon er og verður jafn hlægilega hversdagsleg og arðsemi lágvöruverslana með matvæli, þá mun fjögur hundraðfalt verð hlutabréfs í þannig fyrirtæki miðað við hagnað þess, virka jafn hlægilega og túlípanageggjun fyrri tíma virkar á menn í dag. Svipað og stafrænar myntir virka á þá sem standa einn slæman dag með bara núllið í stað eins í miðjunni á einu stóru slíku núlli úr tvíundarkerfi. Falsaður Picasso eftir fimm ára barn mun þá verða eftirsóttara verk miðað við slíkar raf- og stafrænulausar heilastöppur nútímans
Tölvunarbransinn er nú staddur á þeim aldri sem bílaiðnaðurinn var á í kringum 1970. Ekkert merkilegt nýtt hefur fæðst í tölvunarbransanum síðustu áratugina nema þá helst nýir vírusar, ný göt, nýir gallar og uppfærslur til að laga gapandi og ólæknandi fæðingargalla þessa drasls, sem nú er búið að klæða í hið fárnalega hugtak "snjalltæki" í stað réttnefnisins "taugahrúgald". Og svo uppfærslur á fæðingargalla þeirra uppfærslna, og svo koll af kolli. Ef fólk vill varðveita gögn þá mega þau helst ekki koma nálægt stafrænni tækni. Íslendingar ættu engin handrit í dag ef þau hefðu verið búin til með tölvutækni. Þá ættu þeir ekki neitt
Stærsta hefðbundna póstverslun sem ég hef heimsótt og skoðað var Littlewoods í Stóra-Bretlandi, þar sem met fyrirtækisins var að senda út 17 milljón vörur á einni viku. Tíu þúsund manns unnu þá hjá Littlewoods. Alla katalóga fyrirtækisins frá upphafi er enn hægt að skoða og lesa. Alvöru póstverslanir urðu alltaf að leitast við að veita betri þjónustu en hefðbundnar versalnir, ef þær áttu að lifa af. En netið hefur nú komið flestum þessara fyrirtækja fyrir kattarnef, eða þau verið seld í bútum. Tímarnir breytast og fólkið með. En þó samt ekki
Póstþjónustan á Íslandi er nú komin meira en 100 ár aftur í tímann og í Danmörku svarar póstþjónustan þar til þeirrar þjónustu sem veitt var um 1780. Apar stýra för í báðum löndum
Á níunda áratug síðustu aldar fór konunglega breska póstþjónustan í pakkaverkfall og allar helstu póstverslanir landsins brugðust við með því að setja á laggirnar eigin dreifingarkerfi. Það þarf að bregðast við núna. Greinilega
Fyrri færsla
Staðan í Evrópu og víðar 10 árum síðar
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Laugardagur, 25. nóvember 2017
Staðan í Evrópu og víðar 10 árum síðar
Miðað við hið langa ár í vörslu svo kallaðra "sérfræðinga" frá 1945 til 2007, hefur eftirfarandi gerst í Evrópu og heiminum öllum. Sérstaklega á útópíuárunum miklu frá 1990 til 2008:
Hagfræðikenningar sýndu sig sem verandi aðeins þunnur glær glassúr á veröldinni allri. Þær kenningar komu hvorki heiminum úr sporunum né stöðvuðu hann, nokkru sinni. Þær skipta svo litlu máli í samanburði við það sem mestu máli skiptir, og það er þetta: (1) Þjóðir. (2) Þjóðríki. (3) Geopólitík (þ.e. landfræðilega knúnir grundvallarhagsmunir þjóða). Þetta þrennt stjórnar heiminum en ekki hagfræði né pólitísk hugmyndafræði. Veröldin í dag er gerilsneydd af hugsjónum og pólitískri hugmyndafræði. Það sem stýrir henni eru þjóðir, þjóðríki, trú þeirra og geopólitískir hagsmunir þeirra. Öll skurðgoðin gömlu eru nú dauð og Guð einn lifir óháð öllum og öllu. Hagsmunir allra þjóða munu þó ekki ná fram að ganga og illa mun fara fyrir sumum
Hagkerfi þjóðanna eru að komast að því að þau hafa ekki lengur efni á kenningariðnaði sem framleiðir blaður, tonn-blaðsíður eftir tonn-blaðsíður. Endalaust tonna-magn af blaðri, bæði í hinum opinbera geira og einkageiranum. Og þjóðþingin munu komast að hinu sama. Þau geta ekki lengur lifað á blaðri. Og það getur hjálpariðnaður góða fólksins ekki heldur. Sumir háskólar munu loka, því þeir eru komnir út í rugl og framleiða tonn af rugli
Alþjóðastofnanir hafa runnið sitt blómaskeið vegna þess að þær eru orðnar meira til óþurftar en gagns. Þær lifa aðeins svo lengi sem þjóðirnar leyfa þeim að lifa, því allt vald er hjá þjóðunum en ekki hjá hinum alþjóðlegu stofnunum. Þegar þessar stofnanir hætta að þjóna þeim sem knýja þær og fjármagna, þá deyja alþjóðastofnanirnar sínum stofnanadauða eins og alltaf. Nýjar verða svo ef til vill til í kjölfar næstu stóru kasta
Evrópusambandið er lifandi dautt og í dauðteygjum. Þjóðirnar hafa fengið nóg af því, nema þær þjóðir sem nota það til að kúga aðrar þjóðir. Sambandið er að brotna og þorna upp í fjögur þurr á manninn brotabrot:
1. Intermarium-svæðið sem að öllu leyti er mikilvægasta svæðið í álfunni (stöðvunarlínan upp að Rússlandi og Úkraínu). Þetta er hin gamla Intermarium-hugmynd Józef Pilsudski sem er að fæðast í dag og hefur verið í fæðingu í nokkur ár. Grunnurinn er kominn
2. Miðjarðarhafsklúbbinn sem Frakkland mun ganga í að fullu aftur, ef ekki á að koma til uppreisnar meðal Frakka
3. Þýskalandsliðið, með nokkur keimlík lönd á sporbraut umhverfis sig, þ.e. ef Þýskaland kemst ekki austur
4. Sæfaraþjóðirnar í Skandinavíu og Stóra-Bretland
Athugið: Nýtt Tyrkjaveldi er í smíðum, sem svo mun éta sig uppeftir eins langt og það kemst, eins og síðast
Ísland mun þurfa að stórefla skipa- og loftrýmiskost Landhelgisgæslunnar og taka sig á í NATO. Sjóherir allra flotaþjóðanna standa frammi fyrir stóraukinni uppbyggingu í flotastyrk. Tröllaukinni uppbyggingu, því hann er ekki svipur hjá sjón miðað við áður
Nokkuð frjálsir kapítalmarkaðir verða áfram, þrátt fyrir dauðadá flestra hagfræðikenninga, nema að því leyti að öllum þjóðum veraldar verður ekki lengur leyft að henda öllum umframsparnaði hins opinbera og einkageirans í hausinn á galopnum kapítalmörkuðum Bandaríkjanna, nema með tröllslegri hækkun á Bandaríkjadal, sem þá lætur Bandaríkin kaupa heiminn upp, ef menn halda áfram að ætlast til að Bandaríkin taki við sparnaði veraldar sem enga vinnu kemst í heima hjá sér, eins og til dæmis er staðan í Þýskalandi
Pólitískan stöðugleika verður aðeins að finna í Bandaríkjum Norður-Ameríku alla þessa öld og næstu aldir. Restin af veröld okkar verður ófrýnileg ásýndar, nema aðstoðar Bandaríkjanna njóti við. En þau geta þó ekki verið allstaðar samtímis
Engin svo kölluð "fjórða iðnbylting" verður. Allir tölvunarinnviðir veraldar eru á síðasta snúning og sá iðnaður er búinn að vera nema að algerlega nýtt verði til. Og það er alls óvíst að það verði stafrænt
Enginn veit hvaðan næsti leggur iðnbyltingar mun koma, en hann mun þó ekki byggja á neinu sem þekkt er í dag og allra síst byggja á neinu sem tengist örgjörvum og stafrænni tækni, því það koncept allt saman, er ónýtt, eins og allir sjá, en vilja samt ekki horfast í augu við. Sú tækni er ekki komin til að vera, öfugt við iðnbyltingartækni eins og pípulagnir með rennandi vatni og salernum á hverju heimili. Hvað tekur við af þekktri tölvunartækni veit enginn opinberlega enn. En tími þekktrar tölvunartækni er að renna út
Fyrri færsla
Goðsögnin um "þýskan stöðugleika"
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Miðvikudagur, 22. nóvember 2017
Goðsögnin um "þýskan stöðugleika"
Mynd: Bókin "Germany 1866-1945". Kafli: The Institutional Structure of the Empire - Gordon A. Craig, blaðsíða 38-39. Craig sat 24. mars-fundinn 1990 með frú Margaret Thatcher (FT). Lítið vissi Ulysses S. Grant forseti Bandaríkjanna um hversu mikið yrði hlegið að heillaóskaskeyti hans til nýs og sameinaðs Þýskalands og hugmyndum hans um lýðræðisþróun þar. Prins Bismarck hefur velst um af hlátri
****
Maður fer að verða ansi þreyttur á þýskt slefandi Germany-fetistum um það sem þeir kalla "þýskan stöðugleika"
Þetta land, ef land skyldi kalla, var stofnað 1871 og næstum því ekkert gott hefur komið út úr því síðan þá. Heilar tvær andskotans heimsstyrjaldir! Heil fjögur ríkisgjaldþrot, tvö fyrir og tvö eftir stofnun sameinaðs Þýskalands!
Krónískt kengruglaður seðlabanki sem fláði þjóðina inn að beini á altari forheimskandi kenninga um peningamál. Stofnanavætt kukl og meira kukl er það sem einkennir ríkið. Pervertar hugmyndir um efnahagsmál
Enginn í Þýskalandi kann hagfræði. Enginn! Landinu er stjórnað af utanþings þríhyrndum aðli og mafíu
Sitjandi kanslari er algerlega tóm tunna og allir kanslarar frá og með 1945 hafa verið ofverndaðir. Sá síðasti er vangefið fífl
Helstu bankar og ríkisstofnanir landsins hafa tekið þátt í öllum verstu svindl og svikaprettum sem til eru í heiminum
Hefði landið haft kjarnorkuvopn þá væri það búið að nota þau á Evrópu, mörgum sinnum, því það er svo stöðugt til vandræða með sig sjálft og nágranna sína. Landið hefur aldrei getað staðið sjálft. Aldrei
Enginn stöðugleiki hefur verið í landinu nokkru sinni. Frá stofnun þess 1871 og fram til 1945 klúðraði það lífi sínu verst allra landa í mannkynssögunni
Frá og með 1945 og til 1990 var það Washington sem skaffaði landinu líf og stöðugleika, verndaði vinnumarkað, fyrirtæki og peningakerfi landsins frá því að tortímast í nýju þýsku rugli
Frá og með 1993 og til 2017 hefur endursameinað Þýskaland stútað meginlandi Evrópu á ný og sundrað því. Einu sinni enn. Já, einu sinni enn!
Hvað eru menn að tala um? Þetta ríki er misheppnað. Flestar verstu og sótsvörtustu kenningar á sviði stjórnmála var ungað út í þessu landi. Allt saman alger þvæla frá upphafi til enda. Er ekki kominn tími til að leggja gömlu blautu draumunum og hætta fiktinu við gamla delluverkið?
Evrópa er nú að renna inn í nýtt upplausnarferli sem endað getur alveg hroðalega illa. Alveg hroðalega illa. Meginlandið er búið að vera. Það er orðið hættulega misheppnað fyrirbæri. Hættulega misheppnað
Bandamenn hefðu aldrei átt að samþykkja endursameiningu Þýskalands, en hún er verstu geopólitísku mistök álfunnar á síðari tímum
Mynd: Perspektíf Þýskalands á nágrenni sitt - utanríkismálalegt útkíkk landsins
Fyrri færsla
Þýskaland: Stjórnarmyndun í strand ?
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 07:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Laugardagur, 18. nóvember 2017
Þýskaland: Stjórnarmyndun í strand ?
Myndband: Donald J. Trump forseti Bandaríkja Norður-Ameríku gerir grein fyrir tólf daga ferð sinni til Asíulanda. Lengstu för Bandaríkjaforseta í aldarfjórðung. Allt skal reynt til að leysa Norður-Kóreu-málin á friðsaman hátt. Svo kallaðir blaðamenn náðu þessu með þurran munn, en ekki hinu. Skattakerfisbreytingar Trumps voru samþykktar í fulltrúadeild bandaríska þingsins í gær, en ekki í reykfylltu bakherbergi
****
Í gær hnutu stjórnarmyndunarviðræður í Þýskalandi um þann tímafrest sem stjórnarmyndunar-flokkarnir höfðu sett sér. Engin stjórn er enn mynduð eftir átta vikna óformlegar viðræður og landið þokast lítið í neina ákveðna átt, nema í átt til þess smitandi stjórnleysis sem evran og myntbandalag hennar hefur grafið sem óendanlega djúpa gröf handa öllum ríkisstjórnum evrusvæðis. Verstu þrætumálin tengjast meðal annars þeim pening og alls þess sem hann hefur eyðilagt í Evrópu. Formlegar stjórnarmyndunarviðræður eru ekki einu sinni hafnar enn. Kosið var 24. september
68 prósent þýskra kjósenda vilja nýjar kosningar í hvelli, ef þessi ákveðna stjórnarmyndun fer út um þúfur. Og þær kosningar myndu fara enn verr með flokk Angelu Merkels og sósíaldemókrata, ef marka má ZDF. Angela Merkel er nú leiðtogi hins stjórnlausa heims evruríkja og ný bankakreppa bankar á dyrastafi Ítalíu, eftir að evran sparkaði útidyrahurð ítölsku þjóðarinnar varanlega af hjörum - og við skulum ekki minnast hér á tifandi Spán og öll hin evrubrunalöndin í sárum
Gerhard Schröder fyrrverandi kanslari og formaður þeirra þýsku sósíaldemókrata sem enn eru eftir, segir að ef þessi ákveðna stjórnarmyndun CDU/CSU+FDP+græningja takist, sem hann telur ólíklegt, að þá muni sú stjórn ekki halda nema í tæpt ár, því CSU muni tapa kosningunum í Bæjaralandi næsta haust - og að SPD-flokkur sósíaldemókrata verði því að gera sig kláran fyrir kosningar frá og með nú, því þær verði ekki seinna en í ársbyrjun 2019, eftir rúmt ár
Sex til tuttugu prósent af öllum stórum fyrirtækjum á evrusvæðinu eru nú gangandi gjaldþrota og fara fjármunir bankakerfanna í að lána þeim áfram fyrir taprekstri svo þau taki ekki bankana með sér í fallinu. Bankarnir sækja sér þetta fé til ECB-seðlabankans og kveikja svo í því. Þess vegna geta þeir ekki lánað þeim fyrirtækjum fé sem enn eru heilbrigð. Fjármálakerfi evrunnar er orðið að múmíusafni í takt við steingervingamyndun fyrirtækjanna í evrum. Í Suður-Evrópu eru fyrirtækin svo illa farin að þau geta ekki einu sinni nýtt sér ferskt fjármagn; því þau eru einfaldlega orðin varanlega örkumla í evrum og verður ekki bjargað (krækjur WSJ | OECD)
Við erum að upplifa síðustu daga Þýskalans eins og við höfum þekkt landið frá styrjaldarlokum. Það stefnir líklega austur, því ESB er að verða þurrausið sem verndarkragi landsins (e. buffer zone) og komið inn í óafturkallanlegt upplausnarferli. Í fyrsta sinn síðan 1945 hefur þýska ríkisstjórnin látið herstjórn landsins framkvæma strategískt mat á stöðu Þýskalands, sem aldrei í sögunni hefur getað staðið sjálft. Sex sviðsmyndir voru dregnar upp í skýrslu sem heitir (e.) Strategic Perspective 2040. Í aðeins tvennum af sex sviðsmyndum varnarmálaráðuneytisins, inn í framtíðina, lifir Evrópusambandið sjálft sig af. Og þó var skýrslunni skilað árið 2014, þegar aðeins sást í efstu tinda borgarísjakanna. Þýskaland er því byrjað að búa sig undir það sem mörgum er að verða nokkuð ljóst; þ.e. hið versta. Það mun vopnast á ný og þar með talin verða líklega eigin kjarnorkuvopn, nema að þau falli Þýskalandi til úr austri, velji landið þá leið inn í óvissa þýska framtíð
Óvissa hefur einkennt Þýskaland frá stofnun þess 1871. Enginn í Evrópu veit með vissu hvert Þýskaland stefnir þá og þá stundina, því landið veit það ekki sjálft; það er óútreiknanlegt miðflóttaafl á meginlandi Evrópu og mun ávallt sundra því, frekar en allt annað. Það er ófært um hvíla í sjálfu sér
ESB-vandamálin í Evrópu hrannast óstöðvandi og stjórnlaust upp og þau koma einnig fram í NATO - þar sem Þýskaland krefst þess að NATO sé helst bara "pólitískt bandalag" en ekki fyrst og fremst hernaðarlegt, svo það loki ekki á leið þess sjálfs austur. En Bandaríkjaher hefur nú rennt í hlaðið í Póllandi og örvænting Þýskalans eykst. Mun það lokast inni á ný?
Myndband: Bandaríkjaher -óháð NATO- rann í Intermarium-hlaðið í Póllandi í janúar. Landleið Þýskalands austur fer að verða grjóti stráð. Þýskaland með ESB í rassvasanum ofsækir því Pólland og Ungverjaland allt hvað það getur. Það á ekki sameiginlegra hagsmuna að gæta með Intermarium-löndum Austur-Evrópu. Þau lönd búa ekki á sömu plánetu og Þýskaland og Frakkland
****
Fyrri færsla
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 04:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Þriðjudagur, 14. nóvember 2017
Stuttar en merkilegar fréttir
Þegar Barack Obama heimsótti Kína neyddist sá forseti til að skríða út um afturendann á Air-Force-One flugvélinni og berjast í gegnum múr af Kínverjum sem undirstrikuðu að hann væri á þeirra flugvelli og ætti eiginlega ekkert að vera þar. Og að fylgdarlið hans væri bara helst að flækjast fyrir
Þegar hins vegar Donald J. Trump lenti í Kína í síðustu viku var öllu tjaldað til og þvílíkur vörður staðinn honum til heiðurs. Rauðir dreglar í endalausum bunum voru lagðir fram - fyrir hann. Hann var nefnilega nýbúinn að segja Kínverjum að fara til fjandans og éta það sem í maga þeirra mun frjósa hagi þeir sér ekki vel. Á meðan á ferð Trumps stóð lágu þrjú kjaftstoppandi drekkhlaðin flugmóðurskip af umþjótandi ísenkrami undan Suður-Kína og Kóreuskaga, - svona til öryggis
1. USS Ronald Reagan (CVN-76)
2. USS Theodore Roosevelt (CVN-71)
3. USS Nimitz (CVN-68)
Donald J. Trump er orðinn vinsælasti forseti Bandaríkjanna meðal Asíubúa og kínversks almennings, sem svo ofboðslega þreyttur er orðinn á pólitískum rétttrúnaði. Þegar sá almúgi sér ekta-vöruna með gult hár koma fljúgandi til landsins, þá halda honum fáir múrar og síst af öllu ritskoðandi eldveggir ríkisstjórnarfjandans
Vinsældir Trumps sem Hitlers í skeinipappírum dagblaða og geislabunum svo kallaðra ljósmyrkursmiðla, eru að dala hressilega hratt. Hann nýtur nú meiri stuðnings en þegar hann var kjörinn (Washington Post). Og þegar draga þarf hið hroðalega ár sömu fjölmiðla saman um áramót (höfundur Dilberts og einn sá fyrsti til að sjá kosningasigur Trumps fyrir) -í hinum sömu vonlausu miðlum- þá vandast málið fyrir afturendapappíra veraldar (Gingrich), því allt sem Trump sagðist ætla að gera hefur hann gert eða er að gera
Þetta var sennilega síðasta diplómataskip Trumps til Asíu, áður en hann slær til gegn kjarnorkuvopnabrölti Norður-Kóreu. En fyrst fór hann til Sádí og keyrði kartöflustapparann í kok þess batterís og eru þarlendar konur nú allt í einu á leið undir stýri, sem er heimsendafrétt fyrir marga. Ef þið stoppið ekki fjármögnun ykkar á ömurleikaliðinu um allan heim, þá er úti um ykkur, sagði hann
Fyrri færsla
Á xD að verða pólitísk þreskivél fyrir VG?
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Mánudagur, 13. nóvember 2017
Á xD að verða pólitísk þreskivél fyrir VG?
Því er ekki hægt að neita að mögulegir samstarfsflokkar í ríkisstjórn eru allir mannanna verk og sumir þeirra jafnvel orðnir pólitískir óverknaðir
Fari Sjálfstæðisflokkurinn í ríkisstjórn með Vinstri grænum þá myndi hann virka sem pólitísk þreskivél fyrir VG, þar sem VG myndi uppskera vegna rekstraröryggis Sjálfstæðisflokksins
Þetta myndi hins vegar slíta hinni pólitísku vél Sjálfstæðisflokksins og bitna á honum í næstu kosningum, þar sem VG mætti til leiks með fangið fullt af afurðum sem xD hefur komið heim í hlöðu með burðarþoli og þrauki. xD myndi fá skammirnar og uppserka lítið
Níska er leiðinleg en öræti er skemmtilegt. En enginn ætti hins vegar að láta troða á sér og nudda sig niður bara af því að hann heldur að eina vandamál lífsins séu naglar. Þannig hugsa hamrar allt sitt einfalda líf. Stundum ættu naglar að fá að standa svo aðrir geti rifið sig á þeim. Ég óttast að ríkisstjórn xD með VG myndi slíta og nudda xD niður
Það sem ég skil ekki er þetta: Af hverju snýst stjórnarmyndun um Vinstri græna? Þeir eru enn sama ruslahrúgan og hundi niður úr kosningasvikum og innvortis geggjun árið 2013
Ef ekki tekst að mynda ríkisstjórn núna, þá þarf að kjósa aftur. Vonandi myndi pólitískum óverknuðum þá fækka enn frekar
Fyrri færsla
Hvað ráðleggur stjórnmálastéttin Sjálfstæðisflokknum núna?
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Nýjustu færslur
- Lánshæfnismat Frakklands lækkað. Heil 25-35 ár af hergagnafra...
- Frakkland gæti gengið í Evrópusambandið og tekið upp evru
- Samfylkingin fékk 3,4 prósentum meira en Vinstri grænir
- "Stórgögn" og "gervigreind" hafa lítið fært okkur
- Ísrael er búið að vinna stríðið í Líbanon
- Natópóleon beinapartur
- Rússland nú fjórða stærsta hagkerfi veraldar. Lánshæfnismat F...
- Ég óska Bjarna Ben til hamingju og velfarnaðar
- Víkingar unnu ekki. Þeir "þáðu ekki störf"
- Engir rafbílar segir Apple
- Grafa upp gamlar sprengjur og senda áleiðis til Úkraínu
- Geðsýki ræður NATÓ-för
- "Að sögn" háttsettra í loftbelg
- Skuldir Bandaríkjanna smámunir miðað við allt hitt
- Forsetinn og meiri-hluta-þvættingurinn
Bloggvinir
- Heimssýn
- Samtök Fullveldissinna
- ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE
- Guðmundur Jónas Kristjánsson
- Ragnhildur Kolka
- Hannes Hólmsteinn Gissurarson
- Haraldur Hansson
- Haraldur Baldursson
- Páll Vilhjálmsson
- Halldór Jónsson
- Valan
- Samstaða þjóðar
- Frjálshyggjufélagið
- Sigríður Laufey Einarsdóttir
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Jón Valur Jensson
- Samtök um rannsóknir á ESB ...
- Kolbrún Stefánsdóttir
- Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
- Jón Baldur Lorange
- Guðjón E. Hreinberg
- Jón Ríkharðsson
- Anna Björg Hjartardóttir
- Loftur Altice Þorsteinsson
- Valdimar Samúelsson
- Fannar frá Rifi
- Bjarni Jónsson
- Sigurður Þorsteinsson
- Gunnar Ásgeir Gunnarsson
- Haraldur Haraldsson
- Örvar Már Marteinsson
- Kristin stjórnmálasamtök
- Gestur Guðjónsson
- Ingvar Valgeirsson
- Predikarinn - Cacoethes scribendi
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Guðmundur Helgi Þorsteinsson
- Lísa Björk Ingólfsdóttir
- Bjarni Kjartansson
- Bjarni Harðarson
- Guðrún Sæmundsdóttir
- Sveinn Atli Gunnarsson
- gudni.is
- Gústaf Adolf Skúlason
- Tryggvi Hjaltason
- ESB
- Marinó G. Njálsson
- Baldvin Jónsson
- Elle_
- Sigurbjörn Svavarsson
- Emil Örn Kristjánsson
- Johnny Bravo
- Jón Finnbogason
- Rýnir
- Þórarinn Baldursson
- P.Valdimar Guðjónsson
- Már Wolfgang Mixa
- Ívar Pálsson
- Júlíus Björnsson
- Guðjón Baldursson
- Baldur Fjölnisson
- Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
- Einar Ólafsson
- Sigríður Jósefsdóttir
- Vilhjálmur Árnason
- gummih
- Sveinn Tryggvason
- Helga Kristjánsdóttir
- Jóhann Elíasson
- Baldur Hermannsson
- Kristinn D Gissurarson
- Magnús Jónsson
- Ketill Sigurjónsson
- Birgitta Jónsdóttir
- Axel Jóhann Axelsson
- Þorsteinn Helgi Steinarsson
- Aðalsteinn Bjarnason
- Magnús Þór Hafsteinsson
- Erla Margrét Gunnarsdóttir
- Sigurður Sigurðsson
- Þorsteinn H. Gunnarsson
- Haraldur Pálsson
- Sveinbjörn Kristinn Þorkelsson
- Bjarni Benedikt Gunnarsson
- Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
- Ægir Óskar Hallgrímsson
- Helgi Kr. Sigmundsson
- Óskar Sigurðsson
- Tómas Ibsen Halldórsson
- Axel Þór Kolbeinsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Hörður Valdimarsson
- Adda Þorbjörg Sigurjónsdóttir
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Margrét Elín Arnarsdóttir
- Ásta Hafberg S.
- Erla J. Steingrímsdóttir
- Helena Leifsdóttir
- Agný
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Jón Árni Bragason
- Jón Lárusson
- Högni Snær Hauksson
- Kristján P. Gudmundsson
- Kristinn Snævar Jónsson
- Sigurður Ingólfsson
- Rakel Sigurgeirsdóttir
- Sigurður Þórðarson
- S. Einar Sigurðsson
- Pétur Steinn Sigurðsson
- Vaktin
- Sigurjón Sveinsson
- Dóra litla
- Arnar Guðmundsson
- Jörundur Þórðarson
- Rafn Gíslason
- Hjalti Sigurðarson
- Kalikles
- Vésteinn Valgarðsson
- Bjarni Kristjánsson
- Egill Helgi Lárusson
- Gunnar Skúli Ármannsson
- Halldóra Hjaltadóttir
- Jón Pétur Líndal
- Guðmundur Ásgeirsson
- Reputo
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Sigurður Sigurðsson
- Ólafur Als
- Friðrik Már
- Gísli Sigurðsson
- Sigurður Einarsson
- Rauða Ljónið
- Sumarliði Einar Daðason
- Gísli Kristbjörn Björnsson
- Kári Harðarson
- Sigurður Antonsson
- Valdimar H Jóhannesson
- Rósa Aðalsteinsdóttir
- Dagný
- Guðmundur Pálsson
- Jakob Þór Haraldsson
- Birgir Viðar Halldórsson
- Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
- Tíkin
- Jón Þórhallsson
- Íslenska þjóðfylkingin
- Erla Magna Alexandersdóttir
- Óskar Kristinsson
- Dominus Sanctus.
- Ingólfur Sigurðsson
- Jón Þórhallsson
Tenglar
Hraðleiðir
- www.tilveraniesb.net www.tilveraniesb.net Vefsetur Gunnars Rögnvaldssonar
- www.mbl.is
- Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir
- Bréf frá Jerúsalem - Yoram Hazony Yoram Hazony er einn fremsti stjórnmálaheimspekingur Vesturlanda í dag
- NatCon Þjóðaríhaldsstefnan
- Victor Davis Hanson bóndi og sagnfræðingur Victor Davis Hanson er einn fremsti sagnfræðingur Vesturlanda í klassískri sögu og hernaði
- Bruce Thornton sagnfræðingur Bruce Thornton er sagnfræðingur - klassísk fræði
- Geopolitical Futures - geopólitík Vefsetur George Friedmans sem áður hafi stofnað og stjórnað Stratfor
- Strategika Geopólitík
- TASS
- Atlanta Fed EUR credit & CDS spreads
- N.Y. Fed EUR charts
- St. Louis Fed USD Index Federal Reserve Bank of St. Louis - Trade Weighted U.S. Dollar Index: Major Currencies
- Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983 Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983
Þekkir þú ESB?
Greinar
Lestu mig
Lestu mig
• 99,8% af öllum fyrirtækjum í ESB eru lítil, minni og millistór fyrirtæki (SME)
• Þau standa fyrir 81,6% af allri atvinnusköpun í ESB
• Aðeins 8% af þessum fyrirtækjum hafa viðskipti á milli innri landamæra ESB
• Aðeins 12% af aðföngum þeirra eru innflutt og aðeins 5% af þessum fyrirtækjum hafa viðskiptasambönd í öðru ESB-landi
• Heimildir »» EuroChambers og University of LublianaSciCenter - Benchmarking EU
Bækur
Á náttborðunum
-
: EU - Europas fjende (ISBN: 9788788606416)
Evrópusambandið ESB er ein versta ógn sem að Evrópu hefur steðjað. -
: World Order (ISBN: 978-1594206146)
There has never been a true world order, Kissinger observes. For most of history, civilizations defined their own concepts of order. -
: Íslenskir kommúnistar (ISBN: ISBN 978-9935-426-19-2)
Almenna bókafélagið gefur út. -
Velstandens kilder:
Um uppsprettu velmegunar Evrópu
: - Paris 1919 :
- Reagan :
- Stalin - Diktaturets anatomi :
-
Penge
Ungverjinn segir frá 70 ára kauphallarreynslu sinni
: -
: Gulag og glemsel
Um sorgleik Rússlands og minnistap vesturlanda - Benjamín H. J. Eiríksson :
- : Opal
- : Blár
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.12.): 13
- Sl. sólarhring: 72
- Sl. viku: 429
- Frá upphafi: 1389049
Annað
- Innlit í dag: 7
- Innlit sl. viku: 245
- Gestir í dag: 7
- IP-tölur í dag: 7
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- September 2024
- Júní 2024
- Apríl 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Júlí 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008