Leita í fréttum mbl.is

Á xD að verða pólitísk þreskivél fyrir VG?

Því er ekki hægt að neita að mögulegir samstarfsflokkar í ríkisstjórn eru allir mannanna verk og sumir þeirra jafnvel orðnir pólitískir óverknaðir

Fari Sjálfstæðisflokkurinn í ríkisstjórn með Vinstri grænum þá myndi hann virka sem pólitísk þreskivél fyrir VG, þar sem VG myndi uppskera vegna rekstraröryggis Sjálfstæðisflokksins

Þetta myndi hins vegar slíta hinni pólitísku vél Sjálfstæðisflokksins og bitna á honum í næstu kosningum, þar sem VG mætti til leiks með fangið fullt af afurðum sem xD hefur komið heim í hlöðu með burðarþoli og þrauki. xD myndi fá skammirnar og uppserka lítið

Níska er leiðinleg en öræti er skemmtilegt. En enginn ætti hins vegar að láta troða á sér og nudda sig niður bara af því að hann heldur að eina vandamál lífsins séu naglar. Þannig hugsa hamrar allt sitt einfalda líf. Stundum ættu naglar að fá að standa svo aðrir geti rifið sig á þeim. Ég óttast að ríkisstjórn xD með VG myndi slíta og nudda xD niður

Það sem ég skil ekki er þetta: Af hverju snýst stjórnarmyndun um Vinstri græna? Þeir eru enn sama ruslahrúgan og hundi niður úr kosningasvikum og innvortis geggjun árið 2013

Ef ekki tekst að mynda ríkisstjórn núna, þá þarf að kjósa aftur. Vonandi myndi pólitískum óverknuðum þá fækka enn frekar

Fyrri færsla

Hvað ráðleggur stjórnmálastéttin Sjálfstæðisflokknum núna?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Til hvers eiginlega alltaf að kjósa, ef vilji okkar kjósenda er sífellt hunsaður, og ekkert tekið mark á okkur eða farið eftir því, sem við viljum? Ég sé lítið vit í því. Hins vegar er það Sovétfréttastofa Rúv, sem mér finnst mesta vandamálið í þessu efni, því að ef hún gæti einhvern tíma séð stjórnmálaforingjana í friði og væri ekki sífellt að sletta sér fram í það, sem henni kemur ekki við, og er ekki sífellt að stjórna stjórnmálunum hérna, þá væri kannske hægt að mynda einhverja ríkisstjórn af viti, en meðan þessi fréttastofa er eins og hún er og eiginlega að verða ríki í ríkinu, sem öllu vill ráða, og allir skulu sitja og standa eftir, þá er ekki von á góðu. Þetta fréttamannalið getur bara hætt þarna í Efstaleitinu og farið í framboð, fyrst þeir vilja endilega vera í stjórnmálum, en ekki vera að blanda þessu saman við vinnuna, sem þeir eiga að vera að sinna, en gera ekki á þann hátt, sem ætlast er til. Þetta vandamál verður að leysa hið fyrsta, svo að eitthvað vit komist í stjórnmálin hérna á landinu. Stjórnmálaforingjarnir eru alveg einfærir um að mynda ríkisstjórnir og þurfa ekkert á hjálp misvitra fréttamanna að halda til þess. Svei mér þá, sem fréttamennirnir á Stöð2 eru ekki orðnir skárri en þeir á Rúv. Mér finnst þeir ekki skipta sér eins mikið af hlutunum á Alþingi eins og slettirekurnar í Rúv. Nú, ef ekki tekst að mynda stjórn núna, þá held ég að best væri að mynda utanþingsstjórn. Hún yrði varla verri en þetta fólk, sem er á Alþingi. Hins vegar má ekki gleyma því, að forveri VG, Alþýðubandalagið, var nokkrum sinnum í stjórn með Sjálfstæðisflokknum, bæði á stríðsárunum, og svo má ekki gleyma stjórn Gunnars Thoroddsens. Talandi um hann, sem þá var varaformaður Sjálfstæðisflokksins, þá dettur mér í hug Framsókn í dag, þar sem Sigurður Ingi og óvild þeirra Sigmundar þvælist fyrir því, að Sjálfstæðisflokkurinn, Framsókn, Miðflokkurinn og Flokkur fólksins geti myndað ríkisstjórn þá, sem margir líta til og finnst, að hefði lánast vel fyrir þjóðina, þá líta mjög margir til Lilju, og finnst, að hún ætti að fara að taka við flokknum, enda mannasættir virðist vera, enda held ég, að margir innan Framsóknarflokksins, jafnt sem kjósendur hans, séu farnir að verða nokkuð þreyttir á Sigurði Inga, enda mætti hann fara að hugsa sinn gang, ef hann á ekki að missa stólinn undan sér í flokknum. En sífelldar kosningar held ég, að sé ekki af hinu góða, ef útkoman verður sífellt á sama veg, líka meðan Sovétfréttastofa Rúv er svona valdamikil og hún virðist orðin vera og þetta ríki í ríkinu og alvaldur á landinu, sem hún er á leiðinni með að verða. Það verður fyrst að loka henni,áður en hægt verður að stunda einhverja pólitík af viti hér á landinu. Svo verðum við að vona það besta, og að eitthvað komi út úr þessu af viti á endanum.

Guðbjörg Snót Jónsdóttir (IP-tala skráð) 13.11.2017 kl. 10:58

2 identicon

Sæll Gunnar

Ég get rétt ímyndað mér að það sé þungt að fá rauðan október í fangið, miðað við hvernig skrif hér hafa verið. Blár október mun ná saman um að sitja á stólum í 4 ár, umræðuefnið verður um hvort að eigi að standa upp.

Þegar upp verður staðið mun þeir bláu tapa, rauðu líka. Líklega mun það styrkja samstygginguna.

Sigþór Hrafnsson (IP-tala skráð) 13.11.2017 kl. 11:17

3 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Niðurstaða síðustu kosninga var ónýt vegna þess að ekki var hægt að setja saman vitræna stjórn úr komunísku brota rusli. Í raun var það aðeins Sjálfstæðisflokkurinn sem stóð fyrir utan þá ruslakistu þar sem hann hafði þá blessunarlega losnað við óhellinda fólk sem þóttist vera sjálfstæðisfólk, en var og er raunveru lega andlýðræðislegt og þar með á móti sjálfstæði okkar Íslendinga.

Það var því ekki viturlegt að grauta saman stjórn með því óhellindafólki og ekkert gagn varð að flokksbrotinu úr samfylkingunni þrátt fyrir tískudrósina og hippann, enda hafa komunístar aldrei látið sér annt um æru, hvorki sína né annarra.

Nú er sama staða uppi, ónýt niðurstaða kosninga af sömu ástæðu og síðast og þó að mögulega séu hægri flokkarnir tveir núna, þá er ekki góð reynsla af að notast við koma sem skástífu og verði gagn að þeirri stjórn þá sér RUV um að heiðurinn verður skástífunnar.  Svo er það með þreskivélina sem þú nefnir Gunnar.  Sjálfstæðisflokknum hafa ekki borist svo fallegar kveðjur frá þessu liði að það sé stæða til að hann sé að rækta garðanna fyrir það.   

Of  margir flokkar, of margir verkstjórar (smákóngar )er ávísun á vandræði.

Hrólfur Þ Hraundal, 13.11.2017 kl. 16:11

4 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka ykkur öllum fyrir innlit og skrif. 

Þeir sem trúa því að VG-menn verði ekki komnir í stjórnarandstöðu við sjálfa sig áður en þeir sjálfir vita af því, í hugsanlegri stjórn með xD, já þeir rétti upp hönd.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 13.11.2017 kl. 18:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband