Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2017

Hvað ráðleggur stjórnmálastéttin Sjálfstæðisflokknum núna?

Fyrst þetta: Enn eru formlegar stjórnarmyndunarviðræður milli flokka ekki hafnar í Þýskalandi. Kosið var fyrir tæpum sjö vikum, eða þann 24. september. Þær viðræður sem hafa verið milli CDU/CSU, FDP og græningja, voru og eru allar óformlegar. Þær hafa gengið út á það hvort að flokkarnir geti náð saman um einn stjórnarsáttmála og byggt á honum ríkisstjórn sem þolir veruleikann

Enn er óvíst hvort þessir flokkar geti myndað ríkisstjórn. FDP ætlar að selja sig það dýrt að flokkur Merkels fer að nálgast þurrar fjörur sem endað geta pólitískan feril Merkels á enn svartari nótum en þær eru nú þegar. FDP segjast tilbúnir í nýjar kosningar ef stjórnarmyndun fer út um þúfur. Þeir segjast myndu græða á kosningum, en CDU-flokkur Merkels tapa stórt á þeim

Hvað myndi stjórnmálastéttin ég ráðleggja Sjálfstæðisflokknum núna? Það erum jú við kjósendur sem erum stjórnmálastéttin hér á Íslandi. Og sú stétt kýs sér leiðtoga og fulltrúa. Minn leiðtogi og fulltrúi er Sjálfstæðisflokkurinn undir öruggri forystu Bjarna Benediktssonar framfaramanns

Hvað nú Bjarni. Jú, selja ofboðslega dýrt og ekki hræðast nýjar kosningar. Engu er hér að tapa, en allt að vinna. Rauða blóðið flýtur allt um kring, en við erum stólpinn með allt á þurru. Vitleysingjarnir þeir báðu um þetta

Selja dýrt og ekki hræðast nýjar kosningar. Vera fúll og þver. Brosa bara alls ekki - twist the spikes!

Skorradal pr. 8. nóvember 2017

Með hjartans kveðjum
Þinn kjósandi
Stjórnmálastéttin Gunnar

Fyrri færsla

100 ár þjáninga: Líktu kommúnismanum við íslam


100 ár þjáninga: Líktu kommúnismanum við íslam

Vinstri grænir - leshringur um marx-lenínisma 22 mars 2012

Mynd: Ísland, mars 2012: Vinstri grænir boðuðu til leshrings um Marx-Lenínisma. Er þetta lið stjórntækt? Þarna var það það ekki

****

Bent Jensen sagnfræðingur í Danmörku hefur í tilefni 100 ára afmælis rússnesku byltingarinnar, gefið út bók sem ber titilinn: Ruslands Undergang - Revolutioner og sammenbrud 1917-1921 (Síðustu dagar Rússlands - byltingar og sundurliðun)

Bent segir að samtímamenn komu fljótlega auga á hversu margt var líkt með kommúnismanum sem þá komst til valda, og íslam. Eins og íslam var kommúnismanum ekki ætlað að vera bara ríkisstjórn í einu landi, heldur átti hann að gleypa allan heiminn og skapa nýja veröld. Breski heimspekingurinn og stærðfræðingurinn Bertrand Russell sagði á þessum tíma að "kommúnisminn er ekki bara pólitísk sannfæring, hann er líka trú með trúarsetningar og heilagar ritningar". Karl Marx var spámaður þessarar trúar og í ritningum hans var hinn opinberandi og óumbreytanlegi sannleikur, sem hvorki mátti ræða né efast um. Leiðtogar kommúnistaflokksins héldu öll árin því fram að þeir og aðeins þeir, héldu á vísindalega sönnuðum sannleika sem engum leyfðist að efast um. Bentu athugulir samtímamenn þannig á hversu kommúnisminn líktist íslam, þarna í byrjun tuttugustu aldar

Gáfumenn á Vesturlöndum krupu í háskólum sínum, menntastofnunum og hreyfingum á kné fyrir kommúnismanum og tilbáðu hann úr fjarlægð og jafnvel í návígi. Háskólar vorra daga eru jafnvel enn stútfullir af stækum kommúnisma og hroka gáfumennasamfélags. Þeir klæða sig jafnvel samkvæmt kommúnistatrú og þeir búa oft samkvæmt trúnni. Og blaðamenn ríkisfjölmiðla, samkvæmt rannsóknum, eru mannaðir vofurauðum blaðamönnum í hlutfallinu 8 af hverjum 10. Ríkisútvarpið er sennilega sterkasta og best fjármagnaða sundrungaraflið sem til er á Íslandi í dag

Danskir sósíalistar, til dæmis Socialistisk Folkeparti (SF) sem er systurflokkur Vinstri grænna á Íslandi, tilbáðu því sem næst kommúnismann úr verndaðri fjarlægð og sagði formaður flokksins, Gert Petersen, svo seint sem á níunda áratug síðustu aldar, að "við gætum lært margt af Lenín". En Holger K. Nielsen sem tók við af Gert Pedersen 1991 og var formaður flokksins fram til 2005, segir hins vegar í blaðagrein í Weekendavisen 8. september 2017, þ.e. núna um daginn, að: "rússneska byltingin var harmleikur og stærsti og versti hryllingur 20. aldarinnar. Afleiðingar hennar voru milljónir manna drepnir og risavaxið kerfi fangabúða [...] kommúnisminn hafði sögulega stærri afleiðingar en nasisminn [...] Og maður verður að segja það algerlega hrein út, að það hefði verið betra ef bylting kommúnista fyrir hundrað árum hefði mistekist. Þarna gerir Holger hreint fyrir sínum dyrum, svo um munar. En sem sitjandi formmaður hefði hann varla getað skúrað hreint í bara einu horni SF. Sumt er nefnilega algerlega ólæknandi

En Rússland er ekki það sama og Sovétríkin, bendir Bent Jensen réttilega á

100 ár – 100 milljónir (HHG)

Fyrri færsla

Spánn er smækkuð mynd af ástandinu í Evrópusambandinu


Spánn er smækkuð mynd af ástandinu í Evrópusambandinu

Francisco Franco reyndi í 40 ár að negla Spán saman sem eina þjóð. Mun hann snúa aftur?

Katalónía hefur aldrei litið á sig sem hluta af Spáni. Landið hefur alltaf litið á sig sem aðeins verandi lausan hluta af spænska heimsveldinu. Spánn er ekki til sem eitt land og Spánn er ekki til sem ein þjóð, nema á vissum undantekningatímabilum sögunnar. Gull frá Suður-Ameríku myndaði Spán sem heimsveldi og gullið var um tíma eldsneytið sem knúði það veldi til að leggja til atlögu við alla Evrópu. Svo varð spænska heimsveldið bensínlaust

Katalónía er land og Katalónía er þjóð, sem er meira en hægt er að segja um Spán. Spánn er hrúga af þjóðum inn á milli fjallgarða og árfarvega sem ávallt munu koma í veg fyrir að Spánn verði eitt land og ein þjóð

Katalónía neitar nú því sem næst að halda ímynduðu Spáni uppi umfram aðra. Madrídstjórnin sefur hjá París, Berlín, Brussel og Róm og sólundar auði Katalóníu. Aðeins harðræði hefur verið í pakkanum frá Brussel, þó svo að Spánn hafi gert allt sem Brussel bað um, bæði fyrir og eftir hrun. Gerræðislegt ástand hefur samt ríkt í landinu frá hruni 2009. Ekkert sem ESB sagði að myndi virka, virkaði

Evrópusambandið er að reyna það sama og Spánn, en með alla Evrópu undir. Þau lönd sem gegnu í sambandið héldu að þau væru að ganga í tollabandalag og peningalega vatnsveitu, þar sem seðlar kæmu úr krönunum. Löndin munu öll fara sömu leið og Katalónía, því ekkert var í ESB-krönunum, nema 30 ára kreppa, massíft atvinnuleysi, fjárkúgun, peningaskömmtun og allsherjar refsingar

Límið er þó meira á Spáni. En það er ekkert; nada, zero, núll í túbunni frá Brussel. Ófriðurinn blasir því við Evrópu. Bretland má teljast heppið að komast út, þökk sé herveldi þess, kjarnorkuvopnum og bandamanni í vestri. Og Evrópusambandið er nógu vitlaust og veruleikafirrt til að reyna að reyna að búa til nýjan Franco yfir því öllu. Þetta samband mun ekki enda vel og það sést nú þegar, langa vegu að

Norður-Kórea Reykjavíkurborgarveldisins þarf "pretty much" að fara að passa sig

Fyrri færsla

Við missum af heimsókn Trumps


mbl.is Puigdemont gaf sig fram við lögreglu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Við missum af heimsókn Trumps

Konungurinn sjálfur 1973

Lítill vafi umlykur þá heilbrigðu náttúrulegu og grænu réttlátu vistvænu sjálfbæru og lýðræðislega opnu ályktun, að við erum greinilega að renna inn í þann farveg að frávikum frá settum markmiðum um gagnsæi og heiðarleika sem bera okkur með straumnum í rafmagnsstólana að þeirri staðreynd, að við missum af heimsókn Donalds Trumps til Asíu; því svo einkennilega vill til að Ísland er ekki enn orðið Norður-Kórea, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir. Værum við það, þá hefði Trump getað lent í Borgarfirðinum og björgunarsveitin sú ekið honum að herlausa svæðinu við Skagann, þar sem hann með eigin augum hefði getað horft yfir til Norður-Kóreu við sundin blá: Kommabælið sjálft

Trump (Hitler) er því á Hawaii núna - þaðan sem Elvis sagði aloha til 40 landa árið 1973; í beinni. Þaðan leggur hann svo í þá

Fyrri færsla

Klukku-ríkisstjórn eða gaukshreiður?


Klukku-ríkisstjórn eða gaukshreiður?

Þar sem Forseti Íslands hefur skipt um sokk þá hlýtur að vera komið að því að við fáum loksins klukkuríkisstjórn sem bjargað getur Íslandi frá ótímadauða GMT mínus einn. Stjórn sem skipt getur um tíma hér á landi, þannig að við fáum nýja tíma. Og kannski í leiðinni loksins stillt ártalið alveg á núll. Það yrði nú byltíng maður

Mikilhæfasti stjórnmálamaður landsins, Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins, sagði á kosningafundi um daginn að erfitt væri að starfa með örveiruflokkum, því efst á málefnalista þeirra hlypu um pólitískar bakteríur eins og til dæmis krónískar klukkubreytingar, sem yllu þeim þvílíkum sótthita að erfitt væri að nálgast pólitískan sjúkling á svo háu sótthitastigi sýndarveruleikans í geggjunarbúðum slíkra flokka

En nú er þetta leyst því Finnland krefst þess að klukkubreytingum sé hætt í fangabúðum Evrópuresta sambandsins, vegna þess skaða sem þær hafa á líf fólksins sem neyðist til að búa við þær. Kominn er tími á að þessum sovésku tímabreytingum sé hætt, segir Finnland. Þær valda svefnvandamálum (sem hert eru í sessi tvisvar á ári, öll ár), lægri framleiðni og hugsanlega alvarlegum heilsuvandamálum (ný og eftirsótt verkefni fyrir heilbrigðis "kerfin"). Rússland og Tyrkland hafa nú þegar drepið þessa pólitísku bakteríu, enda bæði Sovét- og Kambódíuveldin fallin um sig sjálf og eru Bandaríkjamenn komnir á sömu þanka. Það verður fróðlegt að heyra hvað klukkustjórnin í Brussel segir við þessari ofboðslegu uppreisn ofan úr Finnlandi. Hún er sennilega það eina sem landið getur gert sér til bjargar í myntfangabúðum Evrópuresta sambandsins

Á Íslandi hefur hinn gamli sokkur Forseta Íslands (þeir eru tveir: Mjanmar og Norður-Kórea) nú lagt blessun sína yfir að Vinstri rauðir, Framsóknarflokkur, Píratar og Sundurfylking afmyndi nýja ríkisstjórn yfir Íslandi. En í ljósi klukkubreytingafalls Finnlands er sú tilraun væntanlega dæmd til að mistakast. Finnska leiðin er einfaldlega að lokast. Stefnan verður því tekin á hina Nýju-Kambódíu Reykjavíkurborgar, þéttingu skatta og að ný pólitísk dellumál verði tekin upp. Hvor gamli súri sokkurinn skyldi það verða?

Fyrri færsla

Andsamfélagsmiðlar hafa það gott


mbl.is Atkvæðagreiðsla um ESB ekki skilyrði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Andsamfélagsmiðlar hafa það gott

Screen Shot 2017-11-02 Financial Times - Not my President

Mynd: Financial Times í dag: Rússneskar auglýsingar náðu til 150 milljón notenda Facebook í Bandaríkjunum. Boðað til mótmæla; 17 þúsund Facebook notendur hafa tilkynnt um þátttöku og 33 þúsund segjast hafa áhuga

****

Eftir því sem rannsóknarnefnd bandaríska þingsins nær lengra í rannsókn sinni á þætti rússneskra ríkisins í forsetakosningunum í Bandaríkjunum, þá er ljóst að þar hafa samfélagsmiðlar á borð við Facebook í vösum rússneskra eininga á vegum ríkisins, fallið enn dýpra ofan í þá gröf sem þeir eru að að grafa vestrænar þjóðir í. Enn sem komið er lítur út fyrir að rússneskar einingar hafi með svo kölluðum samfélagsmiðlum náð til 150 milljón manns í Bandaríkjunum í löngum aðdraganda forsetakosninganna. Og svo fljótt sem þremur dögum eftir að úrslit kosninganna lágu fyrir, hófu sömu rússnesku einingar að boða til mótæla til dæmis í New York undir slagorðinu "ekki minn forseti" gegn þeim réttkjörna. Og mótmæli sem enginn innanlands hafði skipulagt eru sögð hafa farið fram víðar í Bandaríkjunum. Ógildingarherferð rússnesku eininganna á úrslitum forsetakosninganna endaði ekki fyrr en í september

Tilgangurinn með þessum aðgerðum Rússa er sá hinn sami og áður. Að kljúfa þjóðir og þjóðríki, skapa innbyrðis deilur, valda sundrung og veikja ríkisstjórnir og ríki, skapa úflúð innan bandalaga og veikja siðferðilegt þrek þjóða. Gagnagrunnur Rússlands er stór í þessum efnum. Þar er margt að finna um marga. Þessi herferð núna á hins vegar rætur að rekja til þess hversu veikt Rússland stendur sem ríki. Olíuverð er of lágt til að fjármagna þá hernaðaruppbygginu sem átti nú þegar að hafa farið fram í jöðrum Rússlands. Það var einnig lágt olíuverð sem stuðlaði að falli Sovétríkjanna. Tímasetning hneykslismála um kynferðislega áreitni á Vesturlöndum ætti að minnsta kosti að grandskoða í þessu ljósi. Hvort að kosningar á Íslandi hafi einnig verið skotmark, er alls ekki ólíklegt. Meiri líkur eru á því en minni

Þetta er ekki nýtt af nálinni þar sem sovésk yfirvöld stunduðu þetta einnig í Kalda stríðinu. Til dæmis með því að skipuleggja svo kallaðar friðarhreyfingar á Vesturlöndum og sjá þeim fyrir andlegu sem og efnislegu eldsneyti. Þannig var reynt að veikja þann þrýsting sem NATO-ríkin gátu munstrað gegn Sovétríkjunum með því að reyna að hafa áhrif á kjósendur og stjórnmálamenn

Í dag er Rússland að reyna að veikja þann þrýsting sem hingað til hefur haldið Rússlandi frá því að herða tökin við þá víglínu sem myndast hefur við jaðar Austur-Evrópu og er að myndast við Kákasus og Mið-Asíu, þar sem Tyrkland er rísandi veldi í túnfæti Rússlands og lykilríkið inn í Svartahaf og þar með einnig út í Miðjarðarhaf

Það er áríðandi að fjölmiðlar sem vilja ekki láta draga sig niður með andsamfélagsmiðlum klippi á öll tengsl við þessi fyrirtæki og stofni sín eigin auglýsinganet þar sem hagsmunir auglýsenda og fjölmiðlanna fara saman. Í dag vinna auglýsinganet leita- og samfélagsmiðla gegn hefðbundnum fjölmiðlum. Og þeim hefur ekki enn tekist að finna andsvar við þeirri tortímingarherferð sem þeir eru beittir. Að borga ráðgjöfum árum saman fyrir sína eigin útför er óskiljanlegt

Almenningsgarðar Internetsins (e. the commons) sem í dag eru sérhannaðir fyrir hettuklætt fólk, eiga varla langt eftir. Internetið drepst eins og það leggur sig ef ekkert er aðhafst

Heiðskýr en ekki skýjuð fyrirtæki eru framtíðin

Fyrri færsla

Benedikt kleif ekki fjallið og var kosinn burt


Benedikt kleif ekki fjallið og var kosinn burt

Í forstofunni að fundarstjórnarherbergi Facebookforsetans, heilum 42 síðum aftarlega í Morgunblaðinu í dag, segir Benedikt Jóhannesson fram sem höfundur og fyrrverandi formaður Viðreisnar:

"Face­book er ekki góður ráðgjafi", segir Benedikt.

"Eng­in ákvörðun er svo mik­il­væg að hún batni ekki við að sofa á henni eina nótt", segir Benedikt líka

Og hann heldur áfram: "Ótrú­lega oft virðist þeim sem á kvöld­in fara yfir sam­fé­lags­miðlana að heim­ur­inn sé hrein­lega að hrynja. Einu sinni heyrði ég í fé­laga mín­um sem sagði að „allt væri að verða vit­laust“ vegna yf­ir­lýs­ing­ar ráðherra um eitt­hvert mál. Það var ekki enn komið há­degi, ég hafði ekki heyrt þessa yf­ir­lýs­ingu og leitaði að henni á fréttamiðlun­um. Setn­ing­una fann ég inni í viðtali, en sá eng­in viðbrögð. Mín­ir Face­book-vin­ir virt­ust líka vera í jafn­vægi. Þá varð mér ljóst að við erum hvert um sig í gler­kúlu fólks sem er með svipuð viðhorf. „All­ir“ sem ég tala við eða fylg­ist með á net­inu eru ekki sömu „all­ir“ og þeir sem þetta lesa hafa um­hverf­is sig" - segir Benedikt

Datt mér þá í hug bókin eina, er síðar varð að þjóðríkjum Vesturlanda og stjórnarskrám þeirra, meðal annars fyrir tilstilli brautryðjanda Íhaldsmanna á borð við John Selden (Hazony/Haivry) sem varði stjórnarskrárbundið þingræði Bretlands gegn einveldi evrukónga og byggði upp bolverkið gegn sósíalistískum úniversalisma John Locke, sem rústað hefur fram til þessa fimmtán stjórnarskrám og fimm lýðveldum Frakklands. Selden var lögfræðingurinn sem kunni lög hins forna Ísraelsríkis ákaflega vel. En þar sagði fyrir nokkur þúsund árum síðan að lög mannanna væri þau lög sem giltu í ríkinu og að valdið skyldi vera aðskilið, konungurinn kjörinn og að landamæri ríkja væru sett og yrði að virða, því þau kæmu í veg fyrir að ríki flæddu út fyrir þau og gleyptu alla veröld manna með því að gera sig að heimsveldum á borð við Evrópusambandið og gamla Sovétríkið þar á undan, svo nefnd séu tvö síðustu misfótur úníversalisma Locke

Benedikt hefði átt að vita þetta með spámennina í speglasal Facebook, sem sumir segja að sé "samfélagsmiðill" þar sem haldnir eru miðilsfundir á kvöldin

****

"Hlýðið ekki á orð spámannanna, sem spá yður; þeir draga yður á tálar. Þeir boða vitranir, sem þeir sjálfir hafa spunnið upp, en ekki fengið frá Drottni. Sífelldlega segja þeir við þá, er hafa hafnað orði Drottins: "Yður mun heill hlotnast!" Og við alla sem fara eftir þverúð hjarta síns, segja þeir: "Engin ógæfa mun yfir yður koma!""

****

Þarna er speglasalur Facebook sagður fram. Dýpt orðanna er meiri en tveir millimetrar fallins evrupenings á borði. Þau rúmast því ekki þar, heldur fljóta yfir eins og evran, engum til gagns

Þetta er sagan um steintöflurnar og fjallið. Klífa þarf fjallið til að öðlast sanna sýn. Ekki er nóg að hlusta á fjöldaspámenn sem "stela orðum mínum hver frá öðrum"

****

"Ég hefi ekki sent spámennina, og þó hlupu þeir. Ég hefi eigi talað til þeirra, og þó spáðu þeir. Hefðu þeir staðið í mínu ráði, þá mundu þeir kunngjöra þjóð minni mín orð og snúa þeim frá þeirra vonda vegi og frá þeirra vondu verkum"

[..] "Sjá, þess vegna skal ég finna spámennina - segir Drottinn - sem stela orðum mínum hver frá öðrum. Ég skal finna spámennina - segir Drottinn - sem taka til sinnar eigin tungu til þess að umla guðmæli. Ég skal finna spámennina, sem kunngjöra lygadrauma - segir Drottinn - og segja frá þeim og leiða þjóð mína afvega með lygum sínum og gorti, og þó hefi ég ekki sent þá og ekkert umboð gefið þeim, og þeir gjöra þessari þjóð alls ekkert gagn - segir Drottinn"

****

Fann hann svo Benedikt Jóhannesson og lét kjósa hann burt, því hann hafði ekki klifið fjallið, heldur hlustað á fjöldaspámennina, sem vissu ekki neitt

Mér datt þetta svona í hug, ekki af því að ég sé lærður, en ég reyni samt. Til dæmis með því að lesa þetta hér (Hazony og ekki í ESB)

"The false understanding is shattered and true understanding is set ablaze in the mind of the individual. Nothing of this kind happens when one hears words and simply repeats them. The words themselves may be true, but their meaning is dead to the prophet who repeats them. In the literal sense, he has no idea what he is talking about"

Illa er fyrir okkur komið, því þetta er mörgum sinnum verra en ég hélt að væri yfir höfuð mögulegt, árið 2017 e.Kr. Ekkert hefur breyst. Og flest sem ESB-menn kynna fyrir þjóð vorri um það misfóstur nútímans, er úr einmitt þessari einu og sömu skúffu þvaðurs og endalauss þjóðríkislega tortímandi blaðurs

Fyrri færsla

Traust til stjórnmálamanna (spámanna) ekki lítið


« Fyrri síða

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband