Leita í fréttum mbl.is

Þýskaland íhugar að þjóðnýta hluta bankakerfis landsins, þrátt fyrir evruaðild

Samkvæmt dagblaðinu Sueedeutsche Zeitung gerir þýska ríkisstjórnin sér nú grein fyrir að núverandi björgunarpakkar til handa þýskum bönkum munu ekki bjarga þýska bankakerfinu. Nánar um þetta á tilveraniesb.net => Þýskaland íhugar að þjóðnýta hluta bankakerfis Þýskalands, þrátt fyrir evruaðild

Fyrri færsla


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Finnur Bárðarson

Er það hugsanlegt að ekki er mögulegt að hafa banka í einkaeign yfir höfuð ? Bara pæling.

Finnur Bárðarson, 20.7.2009 kl. 14:53

2 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Sæll Finnur og takk fyrir innlitið

Að hafa bara banka í ríkiseign? Þetta var reynt í Sovétríkjunum með hörmulegum afleiðingum. Þetta var líka reynt á Íslandi með hörmulegum afleiðingum. Sparifé Íslendinga var brennt til ösku í höndum ríkisstarfsmanna.

Ég myndi frekar segja að það ætti að banna það að ríkið sé að pilla við bönkum og blanda sér í bankarekstur. Þetta er ein mest regúleraða atvinnustarfsemi vesturlanda og ekki virðist það hjálpað mikið. Fjármálaeftirlitið undir viðskiptaráðherranum átti að fylgjast með þessu. Þetta eftirlit brást algerlega í höndum hins opinbera.

En eins og ég gat um þá er komin lánsfjárkreppa í Þýskalandi þrátt fyrir Evruaðild Þýskalands. Seðlabanki Þýskalands hefur hótað (í gengum seðlabanka ESB) að valta yfir þýska banka og hefja lánveitingar beint til fyrirtækja í Þýskalandi. En það væri sennilega það versta sem hægt væri að gera í núverandi ástandi. Ástæðan fyrir því að þýskir bankar vilja einmitt ekki lána þýskum fyrirtækjum peninga eru einmitt rétt viðbrögð bankanna við kreppunni; þeir vilja jú ekki lána út til fyrirtækja sem ekki eru lánshæf og það eru þau einmitt ekki vegna þess að það er kreppa. Afkoma fyrirtækjanna er afar slæm vegna hruninnar eftirspurnar frá sérstaklega löndum evrusvæðisins og Bandaríkjunum

Ef fyrirtæki eru ekki lánshæf þá eiga þau ekki að fá lán. Það sama gildir um einstaklinga. Það var m.a. brot á þessum hugsunarhætti sem olli kreppunni. Skattgreiðendur eiga ekki að halda uppi nýjum "bæjarútgerðum" út um allt.

Menn verða að muna að kreppan er lækning þó óþægileg hún sé fyrir okkur öll. Lækningin er fólgin í því að greiða upp skuldir og leyfa illa reknum fyrirtækjum (og bönkum) að fara á hausinn. Skuldirnar voru orðnar alltof miklar og það er bönkunum mikið að kenna. Ef hið svo kallaða bankaeftirlit hefði virkað þá værum við öll betur stödd núna. En enginn vildi hlusta á varnarorð þeirra sem vöruðu við. Það var ekki nógu cool að vera svona svartsýnn á meðan dansinn í kringum gullkálfinn dunaði.

Það sem okkur vantar aftur er góð og gamaldags íhaldssöm bankastarfssemi sem geymir og passar sparifé okkar vel, lánar svo út peninga til lánshæfra manna og fyrirtækja og sem er ekki innblönduð í allt mögulegt annað eins og t.d. tryggingar, fasteignir og þvílíku. Pure old fashioned banking.

Gunnar Rögnvaldsson, 20.7.2009 kl. 15:32

3 Smámynd: Guðbjörn Guðbjörnsson

Gunnar:

Þjóðnýttu óskalandið Bandaríkin ekki íbúðalánasjóði og banka, eða misminnir mig eitthvað, og það þrátt fyrir hinn frábæra bandaríska dollar.

Guðbjörn Guðbjörnsson, 20.7.2009 kl. 16:30

4 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Jú það er rétt Guðbörn.

Sambandsríkisstjón Bandaríkjanna, The Federal Government, veitti AIG+FM+FM ríkisábyrgð svo bankakerfi myntbandalags Evrópusambandsins yðru ekki gjaldþrota því þau voru og eru enn yfir-skuldsett 50 falt í sumum tilfellum og voru skuldatryggt í Bandaríkjunum. Þetta er einmitt hlutur sem ESB getur ekki gert því engin hefur það fjárlögin í því efnahagslega öryrkjabandalagi evru. Því þurfti hjálpin að koma að Vestan.

Það sem Bandaríkin gerðu fyrst af öllu var að tryggja að enginn erlendur aðili tapaði sem mikið sem centi á því að eiga viðskipti við stofnanir sem voru þar kerfislega mikilvægar eða í eigu ríkisins eða hugsanlega yrðu túlkaðar sem verandi undir vernd ríkisins.

Innlegg þín eru farin að minna óþægilega mikið á innleggin frá Jóni Frímann. Bæði barnaleg og fávís

Gunnar Rögnvaldsson, 20.7.2009 kl. 17:20

5 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

"Ef þessar fréttir reynast réttar"

Þau eru nú mörg efin í honum heiminum.

Ættir frekar að upplýsa  fáfróða innbyggjara skersins hvað blöðin í þýskalandi segja um málið í dag.

Ómar Bjarki Kristjánsson, 20.7.2009 kl. 17:25

6 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Já það er víst einmitt það sem þau gerðu OBK. Það er bara að smella rólega með vinstri músahnapp á Sueedeutsche Zeitung fréttina (sem er dagblað í Þýskalandi og sem er í Evrópu)

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 20.7.2009 kl. 17:49

7 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

Það ert þú sem ert að flagga þessu hérna "Þýskaland fyrirhugar etc"

Nú,  það má búast við að einhver umfjöllun hafi verið um málið i dag.  Framhaldsumfjöllun.

Hlýtur að vera lítið mál fyrir þig að finna það út.

Ómar Bjarki Kristjánsson, 20.7.2009 kl. 20:09

8 Smámynd: Magnús Jónsson

Gunnar: er ekki þarna á ferðinni það sem hefur verið bögglast fyrir þeim í ESB undanfarinn ár, Ítalir, Frakkar og Spánverjar hafa verið að viðra þær hugmyndir að taka upp sína gömlu gjaldmiðla, til að geta keppt við austantjaldslöndin sem flæða inn í sambandið, rökin hafa verið að ríkin geti ekki keppt á markaði vegna þess hve laun eru lág í fátækari ríkjunum, Þýskaland hefur eitt staðið á móti, og nú er svo komið að Þýskaland sem er mótorinn í ESB er að komast í þrot, og þá harðnar í ári hjá ESB því það er enginn annar bakhjarl.   

Magnús Jónsson, 20.7.2009 kl. 20:47

9 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Sæll Magnús og takk fyrir innlitið

Bankakerfi Þýskalands er ennþá fullt af rotnandi matarleifum frá þeim tíma er sameining Þýskalands fór fram. Gott dæmi um það er Hypo Real Estate sem er einn af hornsteinum þýska fjármálakerfisins. Þýska ríkið hefur verið í miklum vandræðum með Hypo undanfarna 10 mánuði því ofan á úldnar leifar spákaupmennsku á fasteignamarkaði sameiningaráranna þá kemur þessi nýja fjármálakreppa með öllum þeim áföllum sem henni fylgir.

Ofaní þetta kemur svo hið nú ónýta Landesbanka kerfi Þýskalands sem ESB eyðilagði fyrir Þjóðverjum (fylkisbankarnir) sem vinnur á heildsölumarkaði fyrir peninga í Þýskalandi og sem er í ríkiseigu en sem hefur verið í það minnsta jafn illa rekið og illilega áhættusækið eins og bankar í einkaeigu.

Deutsche Bank sem hefur í fórum sínum skuldbindingar sem nema 80% af þjóðarframleiðslu Þýskalands (og sem hafði skuldsetningarhlutfall upp á 52 sinnum eignir árið 2007) hefði farið í þrot ef BNA hefði ekki gengist í ábyrgð fyrr skuldbindingar BNA-tryggingafélagsins AIG, sem tryggði skuldbindingar þýskra banka.

En það versta er svo það að 50% af hagkerfi Þýskalands byggir á útflutningi sem í raun þýðir að 50% af hagkerfi Þýskalands er háð innfluttri eftirspurn frá útlandinu (aðallega evrusvæði og BNA). Svona hafa Þjóðverjar innréttað samfélagið sitt því þeir sjálfir megna ekki að búa til þá eftirspurn hjá sér innanlands vegna þess að það fæðast og hafa fæðst svo fá börn í Þýskalandi áratugum saman. Þýskaland er því orðið elliheimili því í kosningunum í haust verða 50% kjósenda orðnir 60 ára eða eldri. Þessvegna er Þýskaland núna í miklum vandræðum vegna þess að þeir eru algerlega komnir uppá náð og miskunn eftirspurnar frá útlandinu.

En vandamálið er einnig það að öll Austur Evrópa er ennþá meira elliheimili en Þýskaland og ofaní það kemur svo Ítalía, Spánn og Portúgal ásamt öllum Eystrasaltsríkjunum. Þýskaland er búið að gera evrusvæði að sínum einka-útflutningsmarkaði (wholy grail) með því að halda niðri launum í Þýskalandi með harðri hendi síðstu 10 ár. Þýskir launþegar hafa ekki fengið launahækkun í 10 ár. Þeir hafa gírað niður kostnaðargrunn sinn langt undir það sem hinar þjóðirnar á svæðinu hafa getað gert. Þetta gat Þýskaland gert vegna þess að það er elliheimili. Svo núna sitja þeir fastir á kamrinum með ónýtt þjóðfélag og útbrunninn bakgarð og bíða eftir að Bandaríkin togi þá í gang eina ferðina enn. En það getur orðið bið á því því Bandaríkin munu neyðast til að verða því sem næst nettó-útflutningsland vegna ástandsins þar í landi. Ofan í þetta kemur svo sú mikla hamingja að Þýskaland og allt evrusvæðið er með ónýta mynt sem vinnur gegn öllum hagvexti og framförmum á svæðinu því hún er mesti og stærsti leiksoppur spákaupmanna gjaldeyrismarkaða heimsins og því núna mest ofmetna mynt í heiminum í dag, einmitt þegar það kemur sér sem verst fyrir evrulöndin.

Þýskaland náði ekki einu sinni að nýta sér hina stóru efnahagslegu möguleika sem sameining Þýskalands bauð uppá. Því var öllu gloprað út úr höndum Þýskalands vegna heilagra grænna karlkerlinga með hálm í heila stað.

Svona er þetta í þessu efnahagslega örorkubandalagi Evrópu sem nefnist myntbandalag Evrópusambandsins; lélegasta hagvaxtarsvæði heimsins og sem er að fara á hausinn.

Gunnar Rögnvaldsson, 20.7.2009 kl. 21:41

10 Smámynd: Helgi Viðar Hilmarsson

Sæll Gunnar,

Ég er búinn að lesa pistilinn á tilveran og greinina í SZ á þýsku svo ekkert fari á milli mála. Ekkert er minnst á Evru eða aðra gjaldmiðla í grein SZ né að björgunarpakkar þýska ríkisins hafi verið ókeypis. Þrátt fyrir björgunarpakkana óttast stjórnvöld að til alvarlegrar lánsfjárkreppu komi með haustinu, þar sem bankarnir komi ekki til með að geta veitt fyrirtækjum nauðsynlega fyrirgreiðslu. Fyrir þessu eru nefndar þrjár ástæður.

1. Í uppgjörum bankanna er enn að finna mikið af lélegum pappírum.

2. Í kjölfar kreppunar eiga fyrirtæki sífellt erfiðara með að standa í skilum með lán sín.

3. Nýjar alþjóðlegar uppgjörsreglur sem krefjast hærra eiginfjárhlutfalls á móti útlánum.

Hvergi er minnst á að DM hefði komið sér betur við að leysa þennan vanda né að EUR sé hluti hans. Á hinn bóginn get ég líka sagt að íslensku bankarnir fór á hausinn þrátt fyrir að hafa ISK sem þeir gátu fellt um 20% til að bæta stöðu sína.

Helgi Viðar Hilmarsson, 21.7.2009 kl. 09:44

11 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Sæll Helgi

Ég vildi óska að þú gerðir sömu kröfu til ESB-Morgunblaðsins, ESB-Ríkisútvarpsins, ESB-Fréttablaðsins, ESB-Samfylkingarinnar og ESB-sjálfs þíns og þú gerir til færslu minnar. Það er orðið svo að allt sem kemur þar á blaði og í lofti þarf að aldrei að bakka upp með tölum né staðreyndum um eitt né neitt ef það bara kemur úr munni og maga þessara aðila.

Ef bæði Moody's og SZ og FTD segja að:

------------------------

Germany’s bad bank scheme, which is essentially cost-free, stands no chance of increasing credit flows, the report says, so Germany is increasingly looking at the US and the UK of ways to make banks increase credit. The banks would receive new capital, whether they want it or not, in return for a government stake in those banks, which would allow the governments to influence banking policy

------------------------

. plús allt það sem allir sem vita eitthvað smávegs um málið segja, þá hefðir þú ekki þurft að skrifa þessa athugasemd hérna

Auðvitað segir enginn evruaðdáandi að evran og myntbandalagið hafi ekki hjálpað neinu landi hið minsta. Það væri jú algert brot á hinum viðtekna sannleika sem núna er orðinn svo jafn ömurlega beyglaður og hann var á meðan Sovétríkin útvörpuðu kostum sjálfra síns í gegnum Tazz og áttvilltra fáráðlinga vesturlanda. Haltu bara áfram að lesa ESB-Moggann þinn og hlusta á ESB-RÚVið þitt Helgi minn. Þá þarftu ekki að fara á mis við neitt.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 21.7.2009 kl. 10:12

12 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

En nú skora ég á þig Helgi minn að sýna okkur loksins fram á hvernig myntbandalagið hefur hjálpað Þjóðverjum

(athugaðu að flestum Þjóðverjum er illa við evru og kenna henni um margt slæmt)

Gunnar Rögnvaldsson, 21.7.2009 kl. 10:17

13 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Já Helgi íslensku bankarnir fóru einmitt á hausinn ínni í Evrópusambandinu. Það var jú það sem þeir gerðu svo vel og hratt. Rústuðu landinu í leiðinni.

Gunnar Rögnvaldsson, 21.7.2009 kl. 10:21

14 Smámynd: Helgi Viðar Hilmarsson

Eftir því sem ég best veit er hinn þýski Bad Bank ekki orðinn að raunveruleika þó hann hafi verið í umræðunni í töluverðan tíma. Angela Merkel og Peer Steinbrück hafa hingað til ekki ljáð máls á því að fara engilsaxnesku leiðina út úr kreppunni þrátt fyrir þrýsting frá bandaríkjastjórn og nóbelsverðlaunhöfum í hagfræði. Þau telja þá leið einfaldlega of kostnaðarsama fyrir ríkissjóð og ekki vænlegri til árangurs en þeirra leið nema síður sé. Enfremur kemur fram í greininni að engar sannanir séu fyrir því að engilsaxneska leiðin hafi örvað útlánastarfsemina þar í löndum. Auk þessu þurfi að breyta lögum í Þýskalandi til þess að hægt sé að þjóðnýta bankana.

Annars reiði ég mig á þýska fjölmiðla þegar þýsk efnahagsmál eru annars vegar. Ég les almennt ekki íslensk dagblöð jafnvel þó sum þeirra séu ókeypis. Hef ekki gefið mig út fyrir að vera evrópusambandssinna eða evruaðdáenda né er ég skráður í Samfylkinguna. Fannst rétt að þetta kæmi fram þar sem þú virðist vera býsna fjótur að draga ályktanir.

Helgi Viðar Hilmarsson, 21.7.2009 kl. 11:13

15 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Já Helgi.

Það er alveg rétt að hinn þýski bankapakki hefur verið í umræðunni hjá ríkisstjórninni frá því fyrir síðustu áramót. En þó að hann sé ekki enn kominn alveg í gegn um þingið (var þó samþykktur í "efri deild" þingsins þann 10 júlí (Special Purpose Vehicle (SPV)) þá hefur hann, eins og annarsstaðar, verið túlkaður sem björgunarpakki eða í það minnsta sem bakstuðningur frá ríkinu. "Signaling value". En eins og við báðir vitum þá er þjóðnýting banka bönnuð samkvæmt stjórnarskrá Þýskalands, en þessu vilja sósíaldemókratar auðvitað breyta því þeir trúa jú svo mikið á mátt ríkisins

En þessi bankapakki er af markaðinum nú metinn sem einskis virði því þetta kostar ríkið ekki neitt og bankar geta valið um hvort þeir taka þátt eða ekki. Það kemur í ljóst hvort sumum verið að vilja sínum um þjóðnýtingu. En sjálfur efast ég stórlega um það því allt Landesbankakerifð er einnig í stórkostlegum vandræðum - og það í umsjá ríkisins.

Málið er Helgi að það er ekki hægt að bíða eftir sönnunum fyrir því að anglo-sax björgunaraðgerðir virki eða ekki, því þá er orðið of seint að reyna að gera eitthvað í málinu. Þá mmun þessi kreppa núna upplifast sem picknik skógarferð á sunnudagi. En ég skil Þjóðverja vel að vilja ekki fara þessa leið, vonandi tekst þeim það. En það verður bara allt á kostnað annarra sem þó gerðu eitthvað í sínum málum. Þýskaland verður að taka sig á og reyna að standa á eigin fólum og hætta að láta alla aðra um það að halda alþjóðahagkerfinu gangandi. Þeir eiga nefnilega allt sitt komið undir alþjóðahagkerfinu. Án þess er Þýskaland history

En eitt er alveg víst Helgi: evran, sem menn á Íslandi hafa sagt að komi í veg fyrir lánsfjárkreppu, hefur EKKERT hjálpað Þýskalandi. Bankarnir þar hafa verið að moða úr fjármagni ECB og sem undir öllum kringumstæðum hefði verið miklu betra, miklu meira og miklu hraðvirkara undir gamla Þýska Markinu í umsjá Deutsche Bundesbank. Það er alveg 100% öruggt.

Ég við þig afsökunar ef ég hef dregið ranga ályktun um þínar persónulegu skoðanir.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 21.7.2009 kl. 11:56

16 Smámynd: Arnar Guðmundsson

DATT ÞAÐ Í HUG

Arnar Guðmundsson, 21.7.2009 kl. 15:03

17 Smámynd: Helgi Viðar Hilmarsson

Alles Gute.

Helgi Viðar Hilmarsson, 21.7.2009 kl. 21:26

18 Smámynd: Páll Blöndal

Ofdekraðir ESB andstæðingar á moggablogginu
http://pallblondal.blog.is/blog/pallblondal/entry/918743/

Páll Blöndal, 23.7.2009 kl. 01:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband