Leita í fréttum mbl.is

IMF - hvað er Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn ?

IMF? (Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn)

  • Hvað er IMF? Það veit enginn lengur
  • Hvert er þeirra umboð? Það veit enginn lengur
  • Hvaðan koma fjármunir þeirra? Veit það einhver?
  • Geta þeir prentað peninga? Nei
  • Vita þeir hvað fljótandi gengi er? Nei varla, þeir vinna ennþá í anda gamallra hugmynda

Núna er hávertíð fyrir IMF - þeir eru nefnilega að sækjast eftir nýju hlutverki sem alþjóðlegur vakthundur efnahagsmála. Hmm, allra landa? Þegar það rignir þá reynir maður auðvitað að selja regnhlífar á háu verði, ekki satt? IMF er saga ein (history)

Sjá myndskeið CNN Money um IMF frá 1. þessa mánaðar: (aðvörun: það bregður fyrir þekktu andlit af vissum manni frá Evrópusambandinu, manni sem ekkert hefur heyrst frá nýlega, wonder why) IMF agenda for U.S. economy?

Meira um starfslið þessa andlits frá Evrópusambandinu: (aðvörun: það bregður aftur fyrir þekktu andlit af vissum manni frá Evrópusambandinu, manni sem ekkert hefur heyrst frá nýlega) 

Nigel Farage on who's who in the EU commission 

Eftirmáli:

And where was the European Commission?
The former German finance minister, Hans Eichel, has a comment in Frankfurter Allgemeine, in which he accuses the European Commission of inaction. He said the ECB, the eurogroup, all participated, but the Commission remained silent, which is odd given that this crisis has huge implications for competition policy, and the future of banking supervision. Eichel also said that the original Dutch proposal of a euro-level stabilisation fund is a good idea, and should be revived. A pure national approach is not going to work.
 
Writing in the FT, John Thornhill also asks the same question. While European governments acted, the European Commission was very notable in its silence (our view is that Barroso has been 100% occupied with his own reelection for the last couple of years, and he did not want to upset any leaders, least of all Angela Merkel) 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Marinó G. Njálsson

Ég verð að viðurkenna, að eftir því sem ég les mér meira til um IMF, þá lýst mér verr á þá lausn.  Sagan dæmir í reynd sjóðinn sem varðhund bandarískra hagsmuna og einkareksturs sem orðið hefur til þess að ný tegund þrælahalds hefur myndast.  En málið er að við erum hvort eð orðin þrælar skulda íslensku bankanna og hvort er betra?

Ég vil að raunverulegu glæpamennirnir í þessu öllu, þ.e. bandarískir bankamenn og matsfyrirtæki, borgi brúsann.  Það voru þeir með ófyrirleitni sinni og svikráðum komu þessu af stað.  Þeir eru eiturlyfjbarónarnir meðan íslensku bankarnir eru eins og frekar smáir drefingaraðilar fíkniefna í litlu landi.  Ég vil að farið verði eftir barónunum með fullum þunga og stjórnvöld í þeirra heimalandi verði gerði ábyrg.  En eins og gengur og gerist með eiturlyfja baróna, þá eru þeir vel varðir af einkaherjum sínum og jafnvel stjórnvöldum.  Þeim hefur því tekist að mata krókinn og stinga stórum fjárhæðum undan meðan við verðum sett í skuldafangelsi.

Marinó G. Njálsson, 16.10.2008 kl. 13:26

2 Smámynd: Bjarni Kjartansson

HVað eru þeir á sem eru að dásama ESB núna??

Eru þeir að bjóða fljótt fix??

Dópmangarinn geriðr það líka.

Fagin gerði það í sögu Dikkens.

Gætu verið fleirri Faginar í IMF?

Eiga þeir hugsanlega heima í þessum greiningadeildum, sem seldu verðbréfa,,vöndlana" til Evrópu???

Það er jafnfurðulegt, að frændur hans Fagins eru nú að koma hingað í flugvélaförmum til að kaupa á bráða-brunaútsölum eigur fyrirtækja, sem voru fyir TVEIMUR MÁNUÐUM metin ,,með traustan fjárhag og efnahagsreikning".

Hverra manna er Green (gæti jafnt heitið Greed)?  Hverra manna eru eigendur þessara vulture sjóða frá BAN???

Bara spyr.

Spyrjið Vilhjálm í danaveldi, hann hefur bannað mér að komentera hjá sér, sem ég skil afar vel en því get ég ekki spurt hann beint.

Ekkert persónulegt bara að spyrja.

Miðbæjaríhaldið

Bjarni Kjartansson, 16.10.2008 kl. 13:39

3 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Sæll Marinó og takk fyrir innlitið

Mér sýnist nú að Bandaríkjamönnum lítist enn verr á IMF en þér.

Annars held ég að þú sért svolítið að hengja bakara fyrir smið. Bandarískar fjármálastofnanir (og víðar) voru þvingaðar með lögum að veita lán til allra sem höfðu ekki efni á að kaupa sér húsnæði undir fána "jafnaðar og samhyggju". Þú ættir að hringja í Herra Bill Clinton eftir nánari útskýringum. Nú er þetta samhryggð og jöfnun okkar allra við jörðu. Þetta er ekki hrun góðra og gamalla gilda og hefða í heimi fjármála, nei, þetta er fall "móralistanna".

Nú eru ríkisstjórnir um alla Evrópu að umbreyta "credit risk" yfir í "national solvency risk".

Sænska ríkið for út í það að "bjarga" sænska bankageiranum árið 1992. Sænska ríkið er ennþá á kafi í bankarekstri, ríkið er ekki ennþá farið út úr bönkunum. Það er mjög erfitt að horfa uppá þessa hálfgerðu kommúnistavæðingu hagkerfanna - hreint aumkunarvert! Og svo liggur við að menn fái Nóbelsverðlaunin fyrir þetta.

Bankar meiga ekki veða það stórir að það sé ekki hægt að láta þá bara á hausinn í friði.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 16.10.2008 kl. 14:28

4 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Sæll Bjarni og kærar þakkir fyrir innlitið


Ég skil þig vel og lái þér ekki reiðina yfir þessu öllu!

Baráttukveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 16.10.2008 kl. 14:30

5 Smámynd: Marinó G. Njálsson

Gunnar, ég er ekki að hengja bakara fyrir smið.  Samkvæmt upplýsingum sem komu fram í 60 minutes sem sýndur var hér á landi í vikunni, hafa aðeins 6% allra húsnæðislána í Banadríkjunum farið í þannig vanskil að það kalli á aðgerðir.  6%!  Það hleypur vissulega á einhverjum háum upphæðum, en er ekki í neinu samræmi við þau töp sem eru að eiga sér stað í fjármálageiranum.

Vandamálið er heldur ekki að afleiður, CDO eða skuldatryggingaálag sé til.  Eða að vogunarsjóðir séu til.  Vandamálið er fólkið sem stjórnar öllum þessum gjörningum og hefur sniðgengið allt sem heitir almennt siðgæði og heilbrigða viðskiptahætti.  Græðgisvæðingin er allt lifandi að drepa og við urðum fyrsta fórnarlambið (nema einhver annar hafi orðið á undan og við tókum ekki eftir því í okkar eigin græðgi).  Það eru "snillingar" fjármálakerfisins sem eru að setja allt á hausinn af því að þeir voru eingöngu að hugsa um stundargróðann.  Að ná inn pening núna, vegna þess að þeir fengu bónus.

Ég er sammála þér í því að bankar megi ekki varða það stórir að ekki sé hægt að láta þá rúlla.  Raunar ætti ekkert fyrirtæki að fá að verða það stórt að það geti ekki farið á hausinn.

Þarf að rjúka.  Er að fari í próf!

Marinó G. Njálsson, 16.10.2008 kl. 16:47

6 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Mortgage-backed security (MBS) eru stóra málið Marinó. Þegar húsnæðisverið byrjar að falla og fellur á endanum um 45% vegna þess að "jafnaðar og samhyggjubólan" sprengdi húsnæðisverð upp í ytra gufuhvolfið þá fara að gerast mjög athyglisverðir hlutir í myglusafninu hjá fjármálastofnunum um allan heim.

Já það eru ennþá 35% heimila skuldlaus í BNA og ekki allt í vanskilum hjá hinum en upphæðirnar eru samt hrikalega stórar. En núna fáum við sennilega verstu recession í 40 ár ofaní þetta og hún mun verða athyglisverð fyrir ríkisstjórna-klúbbinn sem er búinn að gangast í ábyrgð fyrir allar skuldbindingar banka um alla Evrópu og víðar. En húsnæðisskuldir heimila í BNA eru einungis barnaleikur miðað við þessar skuldir heimilanna í ESB.

Það standa núna 1 milljón tómar íbúðir á Spáni og Portugal. 320.000 á Írlandi, 60.000 í Danmörku og hver veit hvað annarsstaðar. Evrópskt húsnæðisverð á EFTIR að falla um ca 40-50% segja sumar hugveitur hér í ESB. Þetta fall ásamt ruslapappírunum frá BNA munu reynast mögum ríkisstjórnum hér þungur baggi á næstu árum.

Það verður því gott að eiga ekki einn eyri í áhættu í rekstri fjármálastofnana. Þetta verður hola fyrir þessi fyrirtæki næstu mörg ár. Til mikillar gleði fyrir skattgreiðendur, eða hitt þó heldur.

Ætli það verði ekki bara gott að vera á Íslandi næstu árin miðað við þetta? Bólan horfin. Hver veit. Ég vona það allra okkar vegna.

Gunnar Rögnvaldsson, 16.10.2008 kl. 18:56

7 Smámynd: Heimir Eyvindarson

Af því að þú ert alltaf að benda á gríðarlega óánægju Íra með aðild sína að ESB langar mig að benda þér á þessa frétt. http://www.mbl.is/mm/frettir/erlent/2008/10/16/esb_bjargadi_okkur_segir_cowen/

Eflaust þekkir þú þetta samt betur en forsætisráherrann , af því að þú býrð sjálfur í ESB

Heimir Eyvindarson, 16.10.2008 kl. 19:10

8 Smámynd: Marinó G. Njálsson

Ég ætla svo sem ekki að fara að deila við þig um þetta, Gunnar.  Stóra málið eru Collateralised Debt Obligation (CDO) sem eru byggð upp sem öfugur pýramídi ofan á MBS og ýmis önnur verðbréf (svo við kennum ekki húsnæðislánum um þetta alfarið).  Þessi CDO pýramídi er núna orðinn að $516.000 milljarða eftirlitlausu fjármálakerfi af alls konar vafningum sem enginn (eða a.m.k. fáir) hafa skilning á.  Síðan bætist við Credit Default Swap (CDS) sem er $56.000 milljarða eftirlaus fjármálamarkaður.  Það er ekki sjens að þessir tveir markaðir haldi.  Áþreifanleg verðmæti í heiminum eru ekki nema brot af þessu.  Árleg verg heimsframleiðsla er innan við 10% af fyrri upphæðinni.  Menn óttast að þó svo eingöngu 2-3% af þessari upphæð lendi sem tap á bankakerfinu, þá verður það nóg til að ýta því fram af hengifluginu.

Ég er ekki að spá því að þetta gerist, en óttast það.  Ég hef raunar heyrt fólk fullyrða að breska bankakerfið falli fljótlega og það þýska fylgi fljótlega á eftir.  Vandinn sé orðinn það alvarlegur að ekkert stoppi þessa þróun.  Auðvitað stoppar þetta einhvers staðar.  Spurningin er hvar og hvenær.

Marinó G. Njálsson, 16.10.2008 kl. 19:55

9 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Heimir

Írski forsætisráðherrann verður jú að friða Íra með einverju, því núna þarf hann að fá Írska kjósendur til að éta hið nýja fjárlagafrumvarp sitt sem inniheldur skattahækkanir á laun, hækkun á virðisaukaskatti, hækkun á bifreiðaskatti, og niðurskurð hins opinbera af ýmsu tagi.

En fjármálakreppan er einungis að hefjast í ESB og því á eftir að velta ríkisábyrgð Írska ríksins yfir á skattgreiðendur þegar afskriftir og dauði banka lenda á írska ríkinu. Að hafa getið fengið lausafé hjá ECB er gott en það hjálpar ekki uppá komandi afskriftir og komandi stórtöp á eignum fjármálastofnana. Þetta verða allar þjóðir í ESB að borga hver fyrir sig.

Betra hefði verið að passa að bankar getir ekki orðið svo stórir að þeir megi ekki falla nema á skattgreiðendur. Þeir þurfa nefnilega að geta farið á hausinn. Þarna hefur ESB og samkeppnislöggjöf ESB og EES algerlega brugðist öllum.

Gunnar Rögnvaldsson, 16.10.2008 kl. 21:00

10 Smámynd: Heimir Eyvindarson

Auðvitað þekkir þú þetta betur en Cowen

Heimir Eyvindarson, 17.10.2008 kl. 00:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband