Leita í fréttum mbl.is

Kosningarnar: Græna myglan búin að vera

Ekið með 70 tonn yfir brú í Ástralíu á 16-gíra Kenworth-trukki knúnum V8-strokka 18-lítra Caterpillar dísilvél. Heyrið þið V8-tónlistina? Þeir sem hafa ekki séð 150 km þráðbeinan "vegarspotta" geta séð hann hér á þessari upptöku eigandans. Stundum eru 450 km á milli bensínstöðva á þessari tröllvöxnu eyju sem heitir Ástralía. Stóra-Bretland, Bandaríkin, Ástralía, Kanada og Nýja Sjáland eru öll eyríki. Þau eru Fimm Augu veraldar með risavaxna sameiginlega flotahagsmuni. Flotar eru því framtíðin, en ekki landlæstir hagsmunir

****

ALÞINGISKOSNINGARNAR

Um þessar kosningar er það að segja að til dæmis ég kaus taktískt og kaus flokkinn minn xD en ekki Miðflokkinn eins og ég hafði velt fyrir mér. Það sem gerðist var að nokkrum vikum fyrir kosningar leysti SDG upp perlufestu flokksins og stráði henni á borð fyrir stétt froðu-myglunga. Tók hann sjálfan sig næstum með í fallinu. Kosið var því taktískt hér hjá mér og mínum

Minn flokkur, Sjálfstæðisflokkurinn, tapaði á samstarfinu við Vinstri græna. Hann spólaði af sér einu prósentinu enn, og sem næstum urðu tvö, væri það ekki fyrir hið tæpa eina prósent sem kom í hús korter eftir uppgjafarlokun DDRÚV klukkan 05:XX-get-ekki-neitt. Þar á bæ fær fólk jú eina og hálfa til tvær á mánuði fyrir að geta ekki neitt. Svipað gildir um flest það sem er á framfærslu hins opinbera

Minn flokkur, Sjálfstæðisflokkurinn, fékk næstverstu kosningu í sögu flokksins. Slík var frammistaða flokksforystunnar. Hún var hreint út sagt hörmuleg. Bara 2009 var verra fyrir flokkinn

Minn flokkur, Sjálfstæðisflokkurinn, varð því að eins konar smábæjarflokki á kjörtímabilinu því hann er ekki lengur stærstur úti á hinu stóra Íslandi. Reykjavíkursvæðið er jú bara smábær á nokkur hundruð hekturum af vafasamri svifryksjörð er hvenær sem er sokkið getur alfarið í froðusæ. Svæðið er orðið að eins konar Evrópulíkkistu á borð við a-tómstöð. Gervihnöttur á sporbraut um nýtt en hrynjandi sovét

Minn flokkur, Sjálfstæðisflokkurinn, hrundi niður í annað sætið vegna hamborgararáðherranns í Norðvesturkjördæmi, sem er mitt. Og í Norðausturkjördæmi trónir Framsókn nú svoleiðis að þar sést xD varla, nema þá sem ombyttnar heyrúllur á útibleikri brókarstöðu. Og í Suðri er staða xD hreinlega til að hlægja að. Framsókn og hann eru næstum jafnir þar. Já. Minn flokkur, Sjálfstæðisflokkurinn, er orðinn smábæjarflokkur

Ég verð að játa að ég hef aldrei skilið Framsókn. Sá flokkur er mér alltaf sem lokuð bók eins konar dulspekifélags. En hann er samt sigurvegari kosninganna, þegar litið er til síðasta kjörtímabils

Aldrei hafði ég trú á að Sósíalistaflokkurinn næði inn á þing. Enda gerði hann það ekki

GRÆNA HELIÐ

Vinstri grænir urðu helgrænir á kjörtímabiluninni og er hin græna mygla þeirra um þessar mundir að keyra á vegg um alla jörð. Bera má "græna tímabilið" í dag saman við geggjunartímabil kynbótastefnumanna í byrjun síðustu aldar (e. eugenics). Þar ætluðu vísindamenn sér að bæta mannkynið með því að eyða hinum og þessum hópum þess og þar með búa til "fyrirmyndar-mannkyn"

Vísindamenn hafa alltaf verið hálfbrjálaður hópur menntamanna haldnir guðastælum. En sem betur fer stoppuðu stjórnmálamenn þetta fólk af, þarna á síðustu öld. Það þurfti sem sagt stjórnmálamenn til að stöðva vísindageðbilun þeirra daga, því vísindamenn sjálfir stoppa sig aldrei af. Og þannig er það líka í dag. Guða-komplexgræn vísindaþvæla þeirra verður stöðvuð af á sama hátt núna. Kjósendur munu stöðva geðbilunarboðskap þeirra

Þegar litið er til mannkynssögunnar hafa vísindamenn lítið lagt af mörkum. Þeir fundu ekki upp hjólið. Þeir fundu ekki upp vatnssalernið og ei heldur pípulagnir og skólpræstingar. Það gerði hins vegar einkaframtakið með nýrri tækni. Það fann upp og framkvæmdi líka iðnbyltinguna. Vísindamenn komu þar hvergi nálægt, enda ævinlega hálfklikkaður hópur manna og sennilega mun meira klikkaður en hvaða annar hópur manna sem er

Vinstri grænir munu sem sagt upplifa endalok sín á þessu nýja kjörtímabili og þar með virka eins og tifandi svifrykssprengja þegar komið verður fram á árið 2023 - í hvaða ríkisstjórn sem er

Á sunnudaginn frussaðist bæjarloftið úr þýsku græningjunum í kosningunum þar. Þeir eru náttúrlega smábæjarfyrirbæri þar eins og hér, eða eins konar svifryksnökkvar nýburgeisa er svífa um innan borgarmúranna. Og ef það væri ekki fyrir snilligáfu einkaframtaksins þá myndu þeir þurfa að vara skít og drullu upp í háls - eða ganga um á stultum

Sem betur fer er ég ekki Bjarni Ben, því þá myndi ég hafa sagt af mér. En mín ráð til hans eru þau að hringja í Viðreisn og segja við þá: "Ef þið skerið af ykkur Evrópuútlimina og látið skera úr ykkur evrubotnlangann, þá megið þið koma heim og sitja í stjórn með mér og Framsókn, sem er í framsókn. Ef ekki, þá endilega haldið áfram að brjóta í ykkur tennurnar á stálfátæktarevrunni þar til tannlausir þið sannarlega verðið og betlið mjúka fæðu. Þið eigið eina tönn eftir"

STÓRA-BRETLAND OG LITLA-EVRÓPA

Á meðan græna myglan hefur verið að strá sporum sínum um allt í Valhöll á síðasta kjörtímabili hefur hið íslensk-ameríska fyrirtæki Alcoa áttafaldast í markaðsvirði á síðustu 17 mánuðum. Þar hefði ég átt að geta þénað tonn af peningum. En ég hef bara ekki sérþekkingu á hrávörumarkaði eins og ég hef á tæknimarkaðnum, þannig að þetta fór í súginn, enda ekki hægt að vera góður í meiru en bestu hugmynd sjálfs síns. Enginn getur haft tvær bestu hugmyndir

Svo vill til að stærsta álver Alcoa í heiminum er á Reyðarfirði og sem er á Stóra-Íslandi en ekki í smábænum Reykjavík. Mikið er að gerast á hrávörumörkuðum heimsins, því á þessu sama kjörtímabili hefur hinni kínversku millistétt Guðlaugs Þórs verið breytt í 1400 milljón manna biðröð inn í þjóðargjaldþrot og varnarbandalagið AUKUS verið sett á laggirnar; sem þýðir það að Fimm Augu eru eina bandalagið í heiminum sem hægt er að stóla á

Og ekki nóg með það; Fimm Augu sem er hið óformlega bandalag Stóra-Bretlands, Bandaríkjanna, Kanada, Ástralíu og Nýja Sjálands, já það bandalag er eldra en NATO sem nú liggur í öndunarvél bíðandi eftir að Evrópa gangi í það. En það mun bara ekki gerast, því Evrópa er gengin til grunna og komin að hálfu leyti upp í afturendana á Kína og Rússlandi. Þess vegna kom Frakkland ekki til greina sem aðili að AUKUS, sem er hið nýja varnarbandalag Stóra-Bretlands með fyrrverandi nýlendum þess; Bandaríkjum Norður-Ameríku og Ástralíu. AUKUS er varnarbandalag 427 milljón manna sem standa fyrir rúmlega þriðjungi heimsframleiðslunnar - og standa sennilega fyrir meiru þegar froðunni Kína hefur verið fleytt af. Sú fleyting er nú þegar hafin og má því búast við flestu illu þaðan

AUKUS og Ísland og Grænland ríma hins vegar saman, því við erum nátengd þessum löndum. Þeir sem hugsa um Alcoa og ál, verða samtímis einnig að hugsa um Ástralíu. Hvernig er viðskiptajöfnuður okkar við Ástralíu?, sem er land tækifæranna og komandi stórveldi með tilkomu AUKUS

HEFUR BORIS MISST GLÓRUNA?

Munið þið eftir því að Stóra-Bretlands-Boris sagði að þegar hömlum og lokunum vegna Wuhanveirunnar verður loksins aflétt að "þá munu þær aldrei verða settar á aftur". Munið þið það?

Já ég man það, og mér líst svoleiðis á stjórnmálin í Stóra-Bretlandi að græna myglan sem Boris er sagður hafa sem eins konar pólitískt-heilaæxli sé ekki meira æxli en svo að þar verði hið sama látið gilda: Að almenningur verði því miður látinn finna það mikið til græna myglutesins að Boris geti komið og sagt það sama þar; "Nú sjáið þið hvert þessi græna mygla hefur leitt okkur og þegar ég aflétti þessari geðbilun vísindamanna af herðum ykkar, já þá mun hún aldrei aldrei aftur verða sett á herðar ykkar á ný. Hún mun ekki eiga afturkvæmt - og það verður aldrei aftur snúið við. Aldrei." Ég held að það sé þetta sem Boris er að hugsa. Hef ég rétt fyrir mér?

KOSNINGAÞÁTTTAKAN

Voru það ekki frekar margir sem skiluðu auðu í kosningunum hér heima á laugardaginn? Er 1,8 prósent ekki frekar mikið? En kosningaþátttakan var léleg, svo mikið er víst. Því verður ekki afneitað. Hún er sú næstlélegasta síðan 1933

Fyrri færsla

Sennilega langt í ný sýklalyf. Skemmtilegar veðurfréttir [u]


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ingólfur Sigurðsson

Góður pistill. Þessar kosningar marka ákveðin þáttaskil að lækkað hefur eitthvað rostinn í vinstriflokkunum í bili. 

 

Jón Valur Jensson hefði átt að komast inná alþingi á meðan hann lifði til að setja mark sitt á þjóðfélagið. Það hefur verið mesta ógæfusporið að taka æsku og kjánaskap fram yfir reynslu, hæfni og þekkingu. 

 

Þú kemur inn á mörg atriði í þessum pistli, en gleymir þeirri gleðilegu frétt sem var í DV nýlega að Trump sagðist tilbúinn að taka við stjórn landsins hvenær sem væri, og bara ef hann missti heilsuna yrði því aftrað. 

 

Held ég að Joe Biden sé farinn að virka ótraustvekjandi jafnvel á fleiri. Sá ágæti maður Jóhannes Björn, sem skrifaði "Falið vald", segir að kreppa sé í uppsiglingu í Bandaríkjunum, ekki bara í Kína, vegna óstjórnar Biden-stjórnarinnar. Það eru kannski stærstu fréttirnar.

 

Sjálfstæðisflokkurinn er í lægð, rétt er það. Bjarni Benediktsson hefur samt sýnt að hann er býsna hæfur sem fjármálaráðherra. Aðrir formenn Sjálfstæðisflokksins hefðu þó fyrr barið í borðið og haft meiri stjórn á skipi sínu, ríkisstjórnunum eftir hrun.

 

En staða Kína og staða Evrópu er það atriði sem væri áhugavert að vita hvernig þú fjallar nánar um. 

 

Þessar nýju kosningar í Þýzkalandi geta breytt einhverju. Hógværir eru Þjóðverjar nútímans, en varla önnur Evrópuþjóð áhrifameiri, nema auðvitað Bretar. Er Evrópusambandið endanlega að gliðna í sundur, eða hvað?

 

Ástandið í Kína er sennilega miklu verra en fréttir gefa til kynna. Þaðan berast takmarkaðar fréttir eins og úr Sovétríkjunum sálugu áður fyrr.

Ingólfur Sigurðsson, 28.9.2021 kl. 14:48

2 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér fyrir góðar kveðjur og athugasemd Ingólfur.

Bandaríkjaforseti þarf ekki að virka neitt sérstaklega vel, því Bandaríkin eru sem betur fer hófstillt blanda af Spörtu, Aþenu og Róm, þannig að stofnanir þeirra virka ágætlega þó svo að útópískt Aþenuástand ríki meðal fárra útvaldra á mýrarhúsahæðum Washingtonborgar. Sagan skapar forsetann þar en ekki öfugt. Hann mótar því ekki söguna svo mikið. Sagan mótar hann meira.

Merki þess sjást glögglega á því að þó svo að hinir útvöldu og ruslfjölmiðlar þeirra séu á sífelldu frétta- og hugmyndahvolfi þessi árin, þá kemur samt góð og mjög svo viturlega-strategísk grunnhugsun út úr til dæmis Pentagon. AUKUS sannar það. En já víða er allt á hvolfi. Enda varla við öðru að búast á hágeðbilunartímum grænfroðu-myglunga.

Kína er frá og með nú búið að vera sem það ríki sem menn víða á Vesturlöndum héldu að það væri. Það land er nú að hefja japönsku sjóferðina sem hófst 1987 og sem varð þess valdandi að það land hefur ekki náð sér enn.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 28.9.2021 kl. 15:11

3 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Hafði ekki tíma til að svara sumum spurningum þínum Ingólfur, þannig að hér kemur smá framhald:

Bandaríkin eru ekki laus eða fáanleg fyrir Trump, sama hversu vel manni líst á hann. Joe Biden er forseti Bandaríkjanna fram að næstu kosningum, sama hvað manni kann að finnast um það. En stundum er það þannig að þó svo að allt virðist á hvolfi innvortis í Bandaríkjunum, að þá virka þau. Þau eru sett þannig upp.

Kemst Trump að á ný í næstu kosningum? Já það er alveg mögulegt en samt of snemmt að segja til um. Bandaríkin bíða að minnsta kosti eftir nýjum Reagan núna.

Það er segjandi fyrir stöðuna í Þýskalandi að Angela Merkel þóttist ekki hafa tíma til að tala við Joe Biden þegar hann settist á forsetastól og hringdi sitt fyrsta símtal út fyrir landssteinana, því Biden hafði gert sér (fáránlegar) hugmyndir um að hægt sé að "bæta sambandið" við DDR-ESB-Evrópu - þ.e. yfir Atlantsála. En nei. Angela Merkel sagðist ekki hafa tíma til að tala við hann því hún þurfti að huga að grænmetisgarði sínum þá helgina.

Merkel og öll þýska valdastéttin er orðin andsnúin Bandaríkjunum. Merkel hóf ferill sinn sem aðdáandi Bandaríkjanna en snérist 180 gráður á sínum 16 valdaárum og er í staðinn orðinn mesti aðdáandi Kína á Vesturlöndum. Ekkert land heimsótti hún eins oft og Kína. Hún fór þrettán sinnum þangað í heimsókn á kanslaraferli sínum. Sennilega mun oftar en danski DDR-forsætisráðherrann Anker Jørgensen fór sér til andlegrar hressingar til Norður-Kóreu.

Merkel er staðan í Evrópu í hnotskurn: Hún sjálf skilur við allt í rúst. Flokkinn sinn og sambandið við Bandaríkin og Bretland í kaldakoli - og sjálf er hún snúin á braut til nýs DDR. Hún dáir einræðistilburðina í Kína og "skipulags-hagkerfið". Hún álítur heim engilsaxa  þ.e. Anglosphere(ið) vera óreglubundið hagkerfi allsherjarklúðurs (disorder, disorderly, keine ordnung) þar sem einstaklingar séu allt of frjálsir til að leita efnda eina loforðsins sem til dæmis bandaríska stjórnarskráin lofar mönnum: að allir hafi jafnan rétt til að leita hamingjunnar.

Svipuð staða er uppi í Frakklandi. Þar eins og í Þýskalandi drógu menn þá röngu ályktun af Suez-hrakförum Breta og Frakka 1956 að Bandaríkjunum sé ekki treystandi. En þáverandi forseti Bandaríkjanna, Eisenhower hershöfðingi, iðraðist mistaka sinna í því máli til dauðadags. Árið eftir var Rómarsáttmálinn því samþykktur sem hefnd gegn Bandaríkjunum. Það eina sem í honum stendur er að "við ætlum hér með að hefna okkar" með því að stofna nýtt ríkjagúlag til að nota sem vogarstangarafl gegn ykkur þarna í áhrifaveldi Engilsaxa.

Bretar drógu hins vegar ekki þessa ályktun af Suez-hrakförunum, því þeir sjálfir eru Anglo-Saxon og vita manna best að eina leiðin til framfara er að leyfa hlutunum að fara (já disorderly) á hausinn í óreglubundnu allherjar fíaskói inn á milli. Að það sé eina leiðin til að rétta skútuna við, svo að hún verði ekki sovéskt/kínverskt draugaskip eins og Evrópusambandið er náttúrlega orðið.

Þannig að ekki kom til minnstu greina að hleypa Frakklandi né neinu meginlandsríki hins nýja ESB-DDR með inn í hið nýja AUKUS-bandalag. Þannig DDR-fólki er hreinlega ekki trúandi fyrir ríkisleyndarmálum né neinu mikilvægu, því þannig fólk þolir ekki áföll án þess að breytast í ESB-DDR. Þolir ekki Lehmanshrun, þolir ekki íslenskt bankahrun án þess að breytast í DDR. Og það má með miklu sanni segja að Þýskaland sé eins konar kína Evrópu. Þýskaland ER kína Evrópu.

Góðar kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 29.9.2021 kl. 07:27

4 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Kann betur við Border Reiver. https://youtu.be/dzqNSAbE7Fo

Jón Steinar Ragnarsson, 29.9.2021 kl. 09:16

5 Smámynd: Ingólfur Sigurðsson

Ég þakka þér greinargóð svör, Gunnar. Það er nefnilega svo að ef maður hlustar á "spekingana" á RÚV vellur uppúr þeim mærðarvitleysa um ESB. 

Túlkun þín á Merkel og þýzku þjóðinni finnst mér nákvæm. Það er þessi dýrkun Þjóðverja á skipulagi sem gerir þá skylda Kína.

Þannig að hættan er sú að ESB þróist í valdstjórnarríki kommúnískt ef það er ekki orðið þannig nú þegar?

Hnignun Evrópu heldur áfram. Það eru undarleg mistök af Merkel að taka grænmetisgarðinn sinn fram yfir Biden, því Þjóðverjar höfðu gefið þau skilaboð að þeim líkaði betur við hann en Trump.

Það er mjög eftirtektarvert að fréttamenn á RÚV finna allt neikvætt á Breta þessa dagana eftir að hafa sagt skilið við Evrópusambandið. Vandræðin með vörubílstjórana og meintan vöruskort eru daglegar fréttir jafnvel þótt brezk stjórnvöld telji að þetta muni leysast auðveldlega.

Það er eins og RÚV telji það skyldu sína að hræða Íslendinga frá þeirri stefnu sem Bretar hafa tekið.

Þrátt fyrir allt er ég þokkalega ánægður með Joe Biden núna. Hann er ekki eins og verstu hrakspár sögðu fyrir um.

Þökk fyrir góð svör og áhugaverð.

Ingólfur Sigurðsson, 1.10.2021 kl. 14:20

6 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Amen - og þakka þér fyrir feikigóða athugasemd Ingólfur.

Kveðja

Gunnar Rögnvaldsson, 1.10.2021 kl. 14:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband