Leita í fréttum mbl.is

Sennilega langt í ný sýklalyf. Skemmtilegar veðurfréttir [u]

Upptaka: Vaú, heyrið þið V8-tónlistina í vélinni í þessari Scaníu. Sérfræðingaveldið er fallið. Það féll í þessum Wuhanveirufaraldri því það reyndist svo gott sem gagnslaust við að halda Vesturlöndum gangandi í faraldrinum. Laun veldisins voru allt of há og mikilvægi sérfræðinga var sjálfuppblásið, eins og nær alltaf er með hið opinbera og hið hálf-opinbera. Störf eins og þessi þarna fyrir ofan, eiga eftir að verða eftirsóttari næstu áratugina. Færri munu komast að en vilja. Háskólamenntabólan er búin að vera. Hún var bara fjármálabóla á pari við fyrstu fjármálabólu 21. aldar. En hún var þó bæði dýrari og dýrkeyptari fyrir þjóðarhag og varaði lengur. Hún var Curva extrema. PS: Svarti Kenworth trukkurinn er sá eini sem fer rétt að þessu. Þó svo að hann fari hægast í byrjun þá er hann sá eini sem hefur vit á að hefja ferðina og ljúka henni í eina, sama og rétta gírnum. Hann skiptir ekki um gír og hikar ekki. Hann kann þetta. Var búinn að reikna þetta út í höfðinu áður en hann lagði í hann. Hinir byrja að spóla eins og xD

****

ER LANGT Í NÝ SÝKLALYF?

Samkvæmt greiningu Financial Times í maí á þessu ári voru síðustu nýju uppgötvanirnar á sviði nýrra sýklalyfja gerðar á níunda áratug síðustu aldar, þ.e. frá 1980-1990. Þá voru gerðar tvær nýjar uppgötvanir. Engar nýjar hafa verið gerðar síðan. Allar mestu framfarir sögunnar á sviði nýrra sýklalyfja urðu frá 1940-1970

1900-1910 = 1 uppgötvun

1910-1920 = 0

1920-1930 = 1

1930-1940 = 1

1940-1950 = 7

1950-1960 = 9

1960-1970 = 5

1970-1980 = 5

1980-1990 = 2

1990-2000 = 0

2000-2010 = 0

2010-2020 = 0

Og nú er svo komið að nær öll sýklalyfjaframleiðsla lyfjabransans er rekin með tapi. Það er sem sagt tap yfir alla línuna á framleiðslu og þróun sýklalyfja hjá lyfjafyrirtækjum

Ríkisrekin heilbrigðiskerfi eru sennilega orsökin, því það eina sem menn kunna þar er að kenna öðrum um og pressa og pressa verðið niður og eyðileggja þannig flest það sem þau kerfi koma nálægt. Árangurinn verður að sjálfsögðu sovéskur

Ríkisreknir læknar á ofurlaunum finna ekki upp ný lyf og það gera ríkisstjórnir ekki heldur. Bæði vinna bara þarna og ferðast um loftin blá í "þotum" sem einkaframtakið fann upp. Og meira að segja fljúga þoturnar hægar núna en þær gerðu 1960. Ríkisstjórnin er því meira og meira í loftinu

Sovétjökullinn mjakast yfir Vesturlönd

En það er meira...

SKEMMTILEGAR VEÐURFRÉTTIR

Horfa og hafa gaman af. Heimurinn er ekki að farast

Nú hefur snjónum kyngt svo niður á Grænlandsjökli næstum allan þann tíma sem af er ársins að menn hafa varla séð annað eins og til dæmis þau 12 gigatonn sem komu niður á einum degi í maí (tólf milljarðar tonna). Mikil aukning hefur verið á snjómassanum þar. Og á Suðurskautinu hefur grábölvuð ísþekjan á því skauti stækkað um hálfa milljón ferkílómetra miðað við 1979-1990 meðaltalið. Fimm sinnum stærð Íslands komin undir ís miðað við þá (graf; núna er dagur 206)

Vorið og júní var kalt á norðurhveli jarðar. Apríl í Bretlandi var sá kaldasti í 99 ár og sá þriðji kaldasti síðan að mælingar hófust 1884, sagði Breska veðurstofan. Bankafrídagurinn var sá kaldasti frá upphafi. Í Þýskalandi var apríl sá kaldasti síðustu 40 árin og sá næstkaldasti frá því að mælingar hófust. Pólland fékk sinn kaldasta apríl í 24 ár og í Belgíu og Hollandi, með sitt hæsta fjall, var mánuðurinn sá kaldasti í 35 ár - og Danir sögðu auðvitað eitthvað smáfjalla-svipað. Afar kalt var í Frakklandi og þustu afkomuviðvaranir í landbúnaði og vínrækt inn eins og ajax-stormsveipir. Víða var mjög kalt í Norður-Ameríku og kuldamet voru slegin svo seint sem í þessum mánuði með frosti í Minnesota. Kornmarkaðir heimsálfunnar svitna og verðin hækka

16 júní 2021 Austurland

Mynd: Frá þjóðvegi-1 kl. 16:41 þann 16. júní 2021 á Austurlandi

Í fyrradag voru sett 19 ný kuldamet í Suður-Afríku. Í Suður-Ameríku hefur verið kalt og Ástralir og Nýsjálendingar kvarta mikið um kulda og ný kuldamet eru sett. Endalausir kuldar, nema þá helst í brunaholum fréttamanna vinstrimennskunnar. Bölvaðir séu þeir, með heiladauðann við stýrið (og Joe Biden)

LOFTHALAFLOKKURINN

Ef ég væri formaður Sjálfstæðisflokksins þá myndi ég segja mig úr þessum lofthalaflokki fréttabrunafélags-vinstrimanna og nautvísundasamfélagsins í einum grænum hvelli. En það mun hann náttúrlega ekki gera því í þeim flokki virðist allt í steik, einkum stefnan og hin markópólitíska strategía, sem hreinlega er ekki til

Núna um daginn fékk ég þau skilaboð frá Sjálfstæðisflokksmönnum í minni Borgarfjarðarsveit að ég yrði að skrá mig í flokkinn á ný! til að geta kosið hamborgararáðherrann frá Akranesi burt og Harald okkar Benediktsson inn. Og að ég yrði að gera það með rafrænum skilríkjum, því að þegar ég skráði mig í flokkinn 2016 og kaus í prófkjörinu þá, þá var inngöngu minni í flokkinn ásamt margra annarra, er mér sagt, hent fyrir róða og skráningin varð því núll, void og nix. Og ég sem hélt að ég væri í þessum flokki síðustu fimm árin og var meira að segja búinn að segja lesendum mínum að svo væri. En það var ég ekki

Heimsendir 24 júní 2021

Mynd: Hryggsúla djöfulsins: Heimsendir yfir Borgarfirði þann 24. júní 2021, kl. 22:59. Einn af mörgum

En þetta þýðir náttúrlega að ég ber enga ábyrgð á prófkjöri Þórdísar Kolbrúnar 2016 því ég hafði asnast til að krossa við hana þá, en kjörseðli mínum og annarra var greinilega bara hent út í horn. Það voru náttúrlega farnar að renna á mig tvær grímur síðustu tvö árin, því ég heyrði aldrei neitt frá flokknum. Og þetta 2016 var meira að segja önnur tilraun mín til að ganga í flokkinn, því ég reyndi það 2009 frá Danmörku á Netinu, en heyrði aldrei neitt og fékk enga staðfestingu. Bara tómið eitt

En hvað um það, ég gerði eins og ég var beðinn um, skráði mig í Sjálfstæðisflokkinn með rafrænum skilríkjum ca 10 dögum fyrir prófkjörið um daginn og kaus hann Harald okkar, en ekki núsitjandi ráðherra glórulausra hamborgaramála. Bara alls ekki. Og ég kaus skipstjórann að vestan líka. En þetta þýðir að sjálfsögðu það að nú get ég sagt mig úr flokknum og það mun ég sennilega gera, því ef það er eitthvað sem ég þoli ekki þá er það óreiða í pappírum og bókhaldi. Þarna stendur varla steinn yfir steini. Flokkurinn er allur í hers höndum hvar sem skoðað er, svo ekki sé minnst á Búðardalsfundinn í tengslum við EES-tréspírablindu flokksforystunnar í orkupakkamálinu ömurlega

Sennilega er best fyrir mann eins og mig að standa utan flokka, því ég þoli ekki lengur að horfa upp á strategískan impótens forystu Sjálfstæðisflokksins í makrópólitískum málum. Flokkurinn mun sökkva ef þessu rugli Valhallar heldur áfram - og kannski er það nú þegar raunin. Sennilega mun ég kjósa Miðflokkinn núna. Mér líst svo vel á Sigmund Davíð. Finnst hann vera mjög svo strategískur í makrópólitískum málum og hafa vit í kollinum. Hann er ekki í lofthalaflokki fréttabrunafélags vinstrimanna

****

HART BARIST UPP OG NIÐUR FLEIRI BREKKUR Í MEXÍKÓ

Upptaka 

Það er eins gott að mótorbremsan sé í lagi þarna. Hjá þeim er það hitinn, rauðglóandi bremsur og hin mikla hæð landsins yfir sjávarmáli. Hjá okkur er það kuldinn, norðrið, myrkrið, ófærð og næststærsta vegakerfi nokkurs lands veraldar á hvern skattgreiðenda. Sem betur fer var engri heiladrepandi glingurtónlist troðið inn á upptökuna. Hún er hrein. Takk fyrir það

Fyrri færsla

Kínverski kommúnistaflokkurinn fagnar 100 árum af dauða og eyðileggingu


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband