Leita í fréttum mbl.is

Hagnaður evrópskra fyrirtækja örverpi miðað við Bandaríkin

Grand Slam hola Barnes Wallis

Mynd; Breti kíkir ofan í ESB-1. Barnes Wallis hjá Vickers stóð fyrir opnuninni

****

Samanlagður hagnaður 500-stærstu fyrirtækja Evrópu var á pari við hagnað Apple. Það kostar að skerða fullveldi og afnema sjálfstæði þjóða

Þetta gerist þegar lönd láta yfirríkislegan klúbb eins konar esb/ees-frímúrarareglu múra sig inni í kastala með næstum engar aðrar útgönguleiðir en upp í gegnum skorsteinana. Þýska Handelsblatt birti fyrir viku þá frétt eða öllu heldur þann sérreiða þýska ættbálkadálk hinnar þýsku erfðareiði –sem á áttatíu ára fresti skekur meginland Evrópu niður í sviðna rót– að samanlagður hagnaður 500 stærstu fyrirtækja Evrópu á fyrsta fjórðungi ársins var á pari við hagnað hins bandaríska Apple á umræddum fjórðungi, eða 11 milljarðir dala

Ég get því miður ekki séð svipinn á lesendum þegar þeir lesa þetta. Þegar þeir lesa að 500 stærstu fyrirtæki Evrópu skiluðu ekki meiri samanlögðum hagnaði en eitt bandarískt fyrirtæki, og að með hverri krísunni sem líður þá skarar bandaríska hagkerfið meira og meira framúr, á meðan hin evrópsku sökkva dýpra og dýpra inn í esb-múrinn

Í fyrra féll samanlagður árshagnaður þessara evrópsku fyrirtækja átta prósentur, eða niður í 505 milljarða evra, og var hann því heilum 50 prósentum minni en í Bandaríkjunum þar sem hann var 750 milljarðar evra 2019. En hagnaðurinn í Evrópu reyndist sem sagt aðeins vera 11 milljarðar evra á fyrsta fjórðungi þessa árs, eða fullkomin martröð! Hagnaður Apple var 11 milljarðar dala á sama tíma og fyrirtækið náði meira að segja að kynna nýja vöru á þessu Wuhan-veirutímabili. Meira að segja General Motors tókst að kreista hagnað út úr heimsfaraldri á umræddum fjórðungi með því að vera með réttu vörurnar með réttu vélarnar fyrir rétta fólkið. Þetta er hvorki meira né minna en dramatískt fall í Evrópu. Allt hið svo kallaða evrópska hagkerfi er orðið nokkurs konar glingurmiðstöð ritvélaframleiðslugeira þar sem 27 bókstafstrúarstafir hins sérevrópska esb-stafrófs eru búnir til og framleiddir. Einn í hverju esb-landi á skallanum fyrir sig, sem síðan lemst á sértrúarbókstafinn og prentar skilaboð til hinna um að koma með peningana sem enginn býr til

Næst á evrópska prógramminu er því sakamálaleikritið þar sem löndin byrja að ganga í skrokk á hvort öðru og kenna hvort öðru um, eða enn betra; þau kenna auðvitað Bandaríkjunum um og sekta þau í sívaxandi mæli. Þýskaland er snillingur í þeim leik, eins og sést á greininni í Handelsblatt

Allar tekjur hins opinbera koma frá atvinnurekstri fyrirtækja - engar aðrar tekjur eru til

Lesendur ættu hér að íhuga að evrópsk fyrirtæki fjármagna sig nær eingöngu í gegnum bankana, á meðan hin amerísku fjármagna sig í gegnum kapítalmarkaðina; þ.e. skulda- og hlutabréfamarkaðina. Þau nota helst ekki bankana. En þannig er þetta ekki í Evrópusambandinu því það hefur svo gott sem engan kapítalmarkað, því það hefur næstum enga kapítalista. Karl Marx fór aldrei burt og ekkert uppgjör við hann og félaga hans hefur því farið fram í Evrópu. Þvert á móti, því nú reisa Vestur-Þjóðverjar styttu af Lenín á sama tíma og Pútín er að hreinsa Stalín og endurreisa hann, aðeins austar. Hvað verður því um bankana í ESB þegar tekjustaðan þar er svona?; þ.e. örverpi

Ég er alls ekki að setja út á frímúrararegluna, hún er fín, en hún skiptir bara ekki neinu sérstöku máli lengur því hún er klúbbur manna sem tala innbyrðis. Saumaklúbbar hafa sennilega jafnmikil áhrif. Íslensku kvenfélögin skipta mun meira jákvæðara máli en samanlögð regla esb- og eeshólista. Neikvæðu áhrif esb-reglunnar eru hins vegar augljós. Þau sjást á þeirri steinöld sem meginland Evrópu er komin á. Og á þokumekkinum sem slæðst hefur hingað og er að kæfa okkur og sprengja

Nú er staðan því sú að markaðsvirði fyrirtækja í bandarísku Nasdaq-kauphöllinni er meira en markaðsvirði allra fyrirtækja í öllum kauphöllum veraldar, utan Bandaríkjanna. Og þeir sem fylgst hafa með Wirecard svindlmáli Þýskalands sjá að í stað þess að lögsækja hið þýska svikamyllufyrirtæki fyrir svindl (aðeins eitt af ótalmörgum slíkum þýskum málum) þá ákvað þýska "fjármálaeftirlitið" að lögsækja blaðamenn FT í Bretlandi fyrir að segja sannleikann. Og svo kemur rúsínan í esbendanum: "eftirlitið" bannaði fjárfestum að skort-selja bréfin í Wirecard

Fyrri færsla

St Louis Fed: Bandaríska hagkerfið keyrði á 90 prósent afköstum


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll Gunnar

Ekki andmæli ég þér varðandi styrk og mátt USA.

En hverju breytir það fyrir okkur Íslendinga?

Hverju breytir það fyrir okkur að ESB klofni

og eða sundrist?

Gerir það líf okkar Íslendinga betra, mun það auka almenna hagsæld okkar sem þjóðar?

Það finnst mér einu máli skipta, sem þjóðlegum íhaldsmanni.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 1.7.2020 kl. 12:13

2 identicon

Eins vil ég spyrja þig:

Hvað finnst þér svona glæsilegt við ofurgróða 

þeirra bandarísku stórfyrirtækja sem fluttu verksmiðjur sínar frá USA og plöntuðu þeim niður í Kína?  

Er það ekki hinn versti nýfrjálshyggju glóbalismi sem þar ræður för?

Sé svo, ertu þá allt í einu orðinn talsmaður hans?

En ekki þjóðlegur íhaldsmaður?

Fyrirgefðu Gunnar minn, en stundum undrast ég skrif þín, þó blessunarlega dáist ég oftar að þeim og þá helst þegar ég skynja sterkast að þar skrifi sannur sjálfstæðis og þjóðlegur íhaldsmaður, sem hugsar fyrst og fremst um blómlegt atvinnulíf í eigin landi og almenna hagsæld fyrir þjóð sína alla. 

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 1.7.2020 kl. 12:29

3 identicon

Og er það ekki svo að þegar rætt er um

að gera Bandaríkin mikil aftur (MAGA)

þá felst í því að koma aftur á heilbrigðum framleiðslukapítalisma þar innanlands,

í stað spilavítis fjármagnskapítalisma með hnöttinn allan undir sem legg og skel, og án nokkurrar ábyrgðarkenndar, hvað þá virðingar, gagnvart þjóð sinni, hvað þá öðrum þjóðum?

Um hvað snýst glóbalisminn? 

Græðgisvæðingu braskaranna, fariseanna og tollheimtumannanna með hnöttinn allan sem sinn leikvöll og sem saurga enn og aftur musteri drottins?

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 1.7.2020 kl. 13:49

4 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Sæll Símon Pétur.

Það skiptir máli fyrir Ísland að vera á aðeins 76 árum sem liðin eru frá 1944, komið með manngerðan naflastreng saumaðan á sig inn í hálf-sovéskt fúlegg, þar sem inn flæðir yfirríkis nýlendueitur fyrir þjóð okkar og land, en út flæðir nýfengið fullveldi og sjálfstæði þjóðarinnar, sem nú er kastað á borð fyrir svín. Það skiptir miklu máli og getur reyndar kostað okkur allt. Þú sérð á skrifum mínum frá veruleikanum að þetta fyrirbæri hefur þegar kostað lönd Evrópusambandsins framtíð þeirra. Þau tapa og tapa.

Og eins og þú sérð þá er það alls ekki nauðsynlegt fyrir lönd að klæðast sáttmálabundnum handjárnum til að eiga viðskipti við önnur ríki. Það sést til dæmis á því að þýsk fyrirtæki eru stór hluti af hagkerfi Rússlands (nýja sovétið), þar sem hjónaband er næst á dagskrá, takist Þýskalandi, með ESB í rassvasanum, sögulegt ætlunarverk sitt.

Ekkert ríki hefur þurft að láta fullveldi né sjálfstæði sitt af hendi til að geta átt viðskipti við Bandaríki Norður-Ameríku. Þau muna sjálf enn hvernig það var að vera nýlenda. Þannig að Stóra-Bretland mun ekki þurfa að láta gramm af nýfengnu fullveldi sínu af hendi né skerða eitt hár á sjálfstæði landsins til að geta átt viðskipti við Bandaríkin.

Evrópa er ekki hluti af hinu nýja stafræna hagkerfi veraldar og verður það sennilega aldrei, ekki frekar en Sovétríkin gátu það, og þess vegna er hagnaður evrópskra fyrirtækja kominn í það horf sem hann er í. Vöðvabúnt heilans krefst nefnilega frelsis, fullveldis og sjálfstæðis til að geta lyft fjöllum og rutt brautina inn í framtíðina. Því frelsi hafa lönd Evrópusambandsins og EES-landa kastað fyrir róða. Kína mun ekkert hafa upp á að bjóða í þessum efnum, nema það sem kommúnistastjórnin hefur stolið frá Vesturlöndum og það úreldist afar hratt, eða jafnvel enn hraðar en þegar rússneska Sovétríkið var að reyna að halda sér á floti með því að að stela bandarískri tækni á Kaldastríðsárunum, með Pútín núverandi Rússlandsforseta sem KGB-yfirmann yfir Robotron í Dresden.

"Nýfrjálshyggja" á Íslandi er rangnefni á því frelsi og minnkandi kommúnisma sem Eimreiðarmenn börðust fyrir hér. Aðeins var um að ræða baráttu fyrir minni afskiptum ríkis, og nú ofríkis ESS-samningsins, sem þróast hefur jafn illa og tengsl Bandaríkjanna við Kína hafa þróast.

Þarna sannast ágætlega að það er ekki hægt að reformera kölska.

Að aðhyllast og hyggja að frelsi er mun betra en hitt. Það er alltaf miklu betra en hitt. Það er grundvallarlögmál okkar íhaldsmanna. Frelsi, en ekki jöfnuður,  og allra síst mannjöfnuður (piparinn í rassi útrásarvíkinga).

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 1.7.2020 kl. 15:24

5 identicon

Sæll Gunnar

Get tekið undir margt það sem í svari þínu kemur fram, en finn þar ekkert svar varðandi glóbal gróða bandarískra stórfyrirtækja.  Og alls ekkert um það hvernig sá gróði gagnist íslenskum hagsmunum.  Nema þá einstaklinga sem gambla í spilavítum helstu kauphalla hér á jörð. 

Mér er og verður heilbrigður innanlands framleiðslukapítalismi ætíð miklu geðþekkari en glóbal braskið, sem nær alltaf til viðskiptastríðs og gjaldmiðlastríðs sem endar með blóðugu stríði, þar sem mannslífin eru einskis metin.  Kannski er það minni kristilegu barnatrú um að kenna að mér finnst frelsi á kostnað annarra ekkert geðþekkt.

Með kveðju

Símon Pétur frá Hákoti

Kristilegur þjóðar íhaldsmaður.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 1.7.2020 kl. 17:21

6 identicon

En

rétt eins og þú forakta ég ekkert eins mikið og gjörspillta búrkrata platóistana, forsjárhyggjuvesalingana sem setja okkur paragröffin og reglugerðirnar ættuðu undan spenum brusselvaldsins.  Innlendu leppa þeirra, s.s. alla þingmenn Engeyjarflokksins, vesalinga og afætna.  Þar er engan að finna sem sýnir snefil af sjálfstæðum manndómi.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 1.7.2020 kl. 17:46

7 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Símon Pétur.

Bandaríkin flytja út 13 prósentur landsframleiðslu sinnar og helmingur þess fer til Kanada og Mexíkó. 

Þýskaland flytur út helming landsframleiðslu þess (45-50 prósentur) og er með stærsta viðskiptahagnað nokkurs ríkis í heiminum, meira að segja í dölum talið, og er hann tilkominn á kostnað annarra ríkja því að um ESB-væddan merkantílisma og gengisfölsun er þar að ræða.

Bandaríkin veittu Kína aðgang að innanríkismarkaði sínum í þeirri von að koma mætti Kína til manns og vits en ekki til kommúnistísks vesalings sem borar önnur lönd út að innan, rekur gúlagfangabúðakerfi og stundar mafíustjórnmál. Þau vildu eðlilega fá eitthvað fyrir þann snúð í staðinn.

En sú varð ekki raunin. Kína varð ekki að nýju Japan, Suður-Kóreu eða Vestur-Þýskalandi. Bandaríkin byggðu Vestur-Þýskaland upp með því að veita því verndaðan aðgang að mörkuðum Bandaríkjanna. Þannig urðu Mercedes, Honda og Kia til. Reyna átti að koma Kína til manns á sama hátt, en það mistókst heldur betur herfilega.

Þegar þú ert að tala um stórkapítal þá skaltu muna að bankakerfi Evrópusambandslanda er í dag þrefalt stærra en bankakerfi Bandaríkjanna. Það sem hins vegar skiptir öllu máli er hver er eigandi þess. Í tilfelli ESB eru það hinar gömlu og úrkynja elítur meginlandsins sem eiga bankana og þess vegna þrífst frjáls kapítalmarkaður illa þar, því einnig fyrirtækin eru í eigu elíta. Almenningur mál helst ekki eignast þau um of.

Í Bandaríkjunum er kapítal fjármálamarkaðanna að mestu í eigu heimila og lífeyrissjóða landsins ásamt þeim ótal mörgu mönnum veraldar sem treysta engu heima hjá sér, og henda því umframsparnaði sínum í hausinn á kapítalmörkuðum Bandaríkjanna, því þar er eini frjálsi kapítalmakaður veraldar til húsa.

Gunnar Rögnvaldsson, 1.7.2020 kl. 17:57

8 identicon

Takk fyrir efnismikið svar þitt Gunnar.

Það bætir við grunnstef pistils þíns

og er það vel.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 1.7.2020 kl. 19:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband