Leita í fréttum mbl.is

Angela Merkel: fjölmenning algerlega misheppnað fyrirbæri. Stríð í Evrópu?

Þreytuleg

Mynd: Þreytulegur kanslari

ÞÝSKALAND ORÐIÐ MISHEPPNAÐ RÍKI?

Á ráðstefnu CDU ungliðadeildar Kristilega demókrataflokksins í Potsdam um daginn, sagði Angela Merkel kanslari að tilraun Þýskalands með fjölmenningu hafi algerlega mistekist

Innrásin, sem hún sjálf stóð fyrir, hefur ekki mæst vel fyrir meðal kjósenda, sem neita þar af leiðandi að kjósa flokkinn. Sagan um "mömmu Merkel" (Mutti Merkel) fer um þessar mundir sigurför um Afríku þar sem hún er kynnt sem mamma allra Afríkubúa –og heimsins líka– og íbúar hvattir til að fara heim til mömmu í Þýskalandi. Það er meðal annars íslam sem er að sprengja CDU flokk Merkel í loft upp og kljúfa hann niður í flokksrót

POTSDAM, Germany (Reuters) - Germany’s attempt to create a multicultural society has "utterly failed," Chancellor Angela Merkel said on Saturday, adding fuel to a debate over immigration and Islam polarizing her conservative camp.

Fréttin segir að umræðan um útlendinga hafði tekið nýja stefnu eftir að fyrrverandi háttsettur Thilo Sarrazin í þýska seðlabankanum gaf út bók sem sagði að gáfnafar manna í Þýskalandi færi lækkandi vegna múslímskra innflytjenda, sem eru orðnir fjórar milljónir manns í landinu. Kæru lesendur; athugið að ég er einungis að segja frá því sem Reuters fréttastofan er að segja í fréttinni um vélina í Evrópusambandinu, sem vætnalega er þá frétt úr vélarúmi ESB. Ég fann þetta ekki upp

ÞÝSKALAND BÝR SIG UNDIR STYRJÖLD Í EVRÓPU Á NÝ

"Í fyrsta sinn frá því að Kalda stríðinu lauk er stríð á evrópskri grund ekki lengur útilokað" segir "Bundesanstalt Technisches Hilfswerk", eða hið borgaralega hjálparvarðlið Þýskalans (THW). "Nýtt mat okkar á öryggismálunum er það, að stríð í Evrópu er ekki lengur hægt að útiloka. Þess vegna aðlögum við okkur að nýju öryggismati", segir Ingo Bruno yfirmaður THW í Hattingen. En tæki okkar eru löngu úrelt, til dæmis ökutæki. En þeir hafa ekki við að framleiða ný, segir í fréttinni. Elstu ökutækin okkar eru 36 ára gömul en líftími þeirra er 24 til 26 ár, segir Bruno

TWH var stofnað 1950 og byggði á gamla Technische Nothilfe (TN) sem stofnað var 1919 og starfaði til 1945

TYRKLAND SEM BANDAMAÐUR

Það eru ýmsar ástæður fyrir því að betra er að hafa Tyrkland sem bandamann sinn en andstæðing

  • Tyrkir heimta að hafa bandarísk kjarnorkuvopn í landinu
  • Séu þau ekki þar þá smíða þeir sín eigin
  • Ef Tyrkland er ekki bandamaður okkar þá gæti það orðið bandamaður Rússa og Írana
  • Tyrkland hefur verið í NATO frá 1952 og það barðist með Bandaríkjunum í Kóreustyrjöldinni
  • Láti Bandaríkin Tyrkland sigla sinn sjó, þá tryllist Evrópa úr hræðslu af ótta við að NATO, sem Evrópa tímir ekki að borga fyrir, sé að leysast upp. Lönd Evrópusambandsins og sérstaklega Þýskaland líta á Bandaríkin sem hjálparstofnun. En þau bera 75 prósent af kostnaðinum við varnargetu þess. Bandaríkin eru NATO

Sagnfræðingurinn og bóndinn Victor Davis Hanson nefnir enn fleiri erfiðar ástæður um Tyrkland sem bandamann í grein sinni hér

Svipað var uppi á teningum í Víetnam stríðinu. Evrópa var skelfingu lostin yfir því að Bandaríkin myndu kannski slá hendinni af Suður-Víetnam, því þá gæti það sama gerst með Vestur-Þýskaland. Þess vegna voru Bandaríkin svona lengi á kafi í Víetnam. Allt það dæmi snérist um trúverðugleika Bandaríkjanna í Evrópu og getu þeirra til að heyja stríð á mörgum vígstöðvum samtímis

Og fyrst við erum að tala um stríð þá benti ég í fyrri færslu –þessari hér– lesendum á að George Friedman segi að heimurinn sé að ganga í sjálfan sig á ný, og þar með að verða eins og hann ávallt hefur verið, þar sem stríð eru er fastur dagskrárliður samkvæmt mörg þúsund ára hefð. Þeir sem vilja sökkva með Evrópu og Kína þeir um það

Það er því ekki úr vegi að fara í tvær kennslustundir hjá Victor Davis Hanson í Hillsdale College, sem hér fyrir neðan útskýra hvernig Bandamenn unnu Heimsstyrjöldina síðari í lofti og á sjó. Sú styrjöld er eina kerfislæga styrjöldin þar sem tapararnir drápu meira en 70 prósent þeirra 70 milljóna manna sem þar féllu

****

KENNSLUSTUND 1: HVERNIG SIGUR VANNST Í LOFTI

****

KENNSLUSTUND 2: HVERNIG SIGUR VANNST Á SJÓ

****

Fyrri færsla

EES er ekki "samstarf", heldur samsæri


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Hlakka til að lesa þetta Gunnar en verð að skreppa austur í tungur til að athuga vatnsbúskapinn enda 12C° núna.

Valdimar Samúelsson, 27.10.2019 kl. 09:02

2 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Get vel skilið að þýskir séu orðnir þreyttir.  Fer árlega til Þýskalands, sem er eiginlega mitt uppáhaldsland vegna fólksins sjálfs, sem er frábært og vinveitt íslenskum ferðalöngum.  Margar samræðurnar hef ég þar átt við mér bláókunnugt fólk (er reyndar svo heppin að hafa notadrjúga þýskukunnáttu).
En betlarar á götum úti eru orðnir plága - slíkt sá maður aldrei þar á árum áður.

Kolbrún Hilmars, 27.10.2019 kl. 13:46

3 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka ykkur fyrir.

Yfirleitt skiptir það engu máli hvað hinum almenna Þjóðverja finnst um stjórnmálin í landi sínu Kolbrún. Það hefur alltaf verið farið með Þjóðverja sem einkaþræla hinnar þríhyrndu elítu landsins: 1) Útflutningsmafíunnar sem er gamli aðallinn. 2) Bankamafíunnar sem er gamli aðallinn og 3) Europhiles sem er gamli aðallinn líka. Þessar þrjár stjórna landinu utanþings. Þingið ræður litlu sem engu. Hinn almenni Þjóðverji á varla neitt. Það er varla svo að hann eigi bílinn sinn lengur. Húsnæðið á hann ekki. Þjóðverjar eru leiguliðar í sínu eigin landi.

Þetta sést ágætlega á því að markaðsvirði þýskra fyrirtækja í kauphöllum Þýskalands er 40 prósent minna en markaðsvirði franskra fyrirtækja er í kauphöllum í Frakklandi. Samt er þýska hagkerfið 44 prósent stærra en það franska og meiri sósíalismi er venjulega viðhafður í Frakklandi en í Þýskalandi, nema á köflum.

Ergo: þýska hagkerfið er enn að miklu leyti í einkaeigu gamla aðalsins. Fólkið skiptir elítur landsins bara máli þegar laun þess eru nógu lág.

Já, ég kom oft til Suður-Þýskalands og kunni vel við mig og sérstaklega kunni ég vel við Suður-Þjóðverja. En eftir tæplega 30 ára búsetu á meginlandi Evrópu var þolinmæði mín að þrotum komin. Þarna er flest að sökkva og er viðstöðulaust sökkvandi; meginland taparanna er því miður að of miklu leyti bara meginland taparanna.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 27.10.2019 kl. 16:31

4 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Þakka Gunnar fyrir fróðlega grein og ekki síst athugasemdirnar þ.e. viðbótina en hef lítið kynnst þjóðverjum sjálfum svo þetta er góð innsýn svo er Viktor alltaf jafn fróður líka.  

Valdimar Samúelsson, 27.10.2019 kl. 20:11

5 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Gott að ferðin gekk vel hjá þér Valdimar.

Já alltaf VDH toppurinn! 

Kveðja

Gunnar Rögnvaldsson, 27.10.2019 kl. 20:45

6 identicon

Sæll Gunnar.

Bestu þökk fyrir þennan pistil þinn
en um hann má segja sem stendur í
Orðskviðunum, 25. kafla að allur sé hann
líkastur gulleplum í skrautlegum silfurskálum;
orð í tíma töluð. (sbr. Biblíuþýðingu 1981)

Þeir fjölmúlar sem settir hafa verið
á þau lönd sem lúta yfirþjóðlegu valdi
EES og ESB, beint eða óbeint, hafa mátt lúta
í gras en verst eru þau ólög sem fæðast heima,
sbr. Pál Vídalín (1667 - 1727) :

Forlög koma ofan að,
örlög kringum sveima,
álögin úr ýmsum stað
en ólög fæðast heima.

 

 

Húsari. (IP-tala skráð) 27.10.2019 kl. 23:09

7 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér kærlega fyrir Húsari.

Já það er ömurlegt þegar að fullveldið sem svo hart var barist fyrir og lengi, skuli vera misnotað til þess að gefa erlendum lögum og löggjöfum skotleyfi á Íslendinga og landið okkar. Lög sem þess utan eru sett af þeim sem ekkert umboð hafa til eins né neins. Þá fæðingardeild ömurleikans þarf að loka á, og það verður aðeins gert hér heima með því að viðhafa þjóðarstefnu í stað al-þjóðastefnu (e. nationalism instead of inter-nationalism).

Tökum því okkar kæra Jón Sigurðsson upp á ný, þ.e. tökum upp mannasiði á ný.

Til fjandans með imperial-state heimsveldi á borð við ESB, og handlangara þess EES.

Kveðja

Gunnar Rögnvaldsson, 27.10.2019 kl. 23:40

8 Smámynd: Jón Valur Jensson

Tek sérstaklega undir þetta nýjasta hér frá þér, Gunnar.

Jón Valur Jensson, 28.10.2019 kl. 05:56

9 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Takk fyrir Jón Valur.

Kveðja

Gunnar Rögnvaldsson, 28.10.2019 kl. 13:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband