Leita í fréttum mbl.is

Svona fór 19 tíma varðstaða Miðflokksins vegna OP3 fram á Alþingi

Þingmenn Miðflokksins eftir 19 tíma umræðu á Alþingi 21-22 maí 2019

Mynd: Þingmenn Miðflokksins eftir 19 tíma varðstöðu á Alþingi Íslendinga vegna esb-orkupakka þrjú

****

Hér má lesa um tímana frá klukkan 22 í gærkvöldi til 09 í morgun

Fyrst stutt frétt

Nú þykir langt því frá útilokað að styrjöld skelli á á milli landa Evrópu innan næstu 10 ára. Það segja kjósendur á meginlandinu hér. Þá er næsta víst að Bandaríkin verði kvödd á vettvang til að koma einhvers konar nýju og starfhæfu valdajafnvægi á í þessari næst minnstu heimsálfu veraldar, sem er ólæknandi uppspretta krónískra vandamála til allrar eilífðar

Öllum orkuinnviðum verður þá beitt, sama hvað það kostar. Og öllum orkuinnviðum verður þá eytt, sama hvað það kostar

Þetta er vert að hafa í huga, vegna þess að ný þverpólitísk samstaða er að myndast á bandaríkjaþingi um að hefja refsiaðgerðir á hendur þeim sem vinna að lagningu NordStream2 orkuleiðslunnar frá Rússlandi til Þýskalands, en sem sneiðir með fullum vilja fram hjá Úkraínu, Póllandi og Eystrasaltslöndunum þremur. Þannig varaði Rick Perry orkumálaráðherra Bandaríkjanna, í heimsókn sinni til Úkraínu í gær, við því að refsiaðgerðir geti verið á tröppunum innan skamms

Orkupakki 3 var notaður til að taka þessa leiðslu úr höndum Þýskalands. En Þýskaland var þó sett sem gæslumaður yfir framkvæmd regluverks OP3. Segir Paul Gregory við Hooverstofnunina (hér) að það sé eins og að láta ref gæta hænsnabús. Gífurleg spenna ríkir í stofnunum Evrópusambandsins vegna þessa máls

Það er því með næstum óyggjandi öryggi hægt að segja sem svo að sú mynd sem kynnt hefur verið af orkupakka-3 hér á landi, mun breytast til hins óþekkjanlega og Íslandi gert að kyngja öllu því sem samið er um til handa löndum sem eru á öðru heimshveli en við, sé hann samþykktur hér

Við erum á vesturhveli jarðar, saman með Bandaríkjunum, en meginland Evrópu, sem er útkjálki úr Rússlandi, er á austurhveli jarðar, þ.e.a.s. í gamla heiminum. Við erum hins vegar í nýja heiminum

En það verður í gamla heiminum sem allt mun hendast upp í loft á ný, og kannski innan næstu 10 ára, eins og kjósendur segja þar

Það sem hér þarf að fylgjast með er þetta:

1. Ferli málsins í bandaríska þinginu

2. Afstaða Hvíta hússins. Forsetinn er mjög svo neikvæður vegna NS2, því hann álítur að þau lönd sem verja á með bandarískum mannslífum í Evrópu, séu að búa til gildru sem Bandaríkin, þegar að kjarna málsins kemur, þurfa ein að glíma við

3. Þeim tiltökum sem Bandaríkin eru með í gangi til að létta þörf Evrópu á orku frá því ríki sem NATO er stofnað til að halda í skák og mát. Hingað til hefur sú þróunaraðstoð sem Bandaríkin enn veita Evrópu í þessu máli, mest verið tæknilegs eðlis. Minna má leslendur á yfir fimm þúsund kílómetra langa eldsneytisleiðslu NATO á meginlandinu og sem daglega er notuð til að skaffa öllum helstu flugvöllum meginlandsins það flugvélaeldsneyti sem knýr stærstan hluta farþegaflugs á meginlandinu og frá því. Og lesendur munu líklega sjálfir kunna að geta sér til um hver borgaði þann brúsa að mestu

Nú yfir til Alþingis

þriðjudagur, 21. maí 2019 kl. 22:06:40

Miðflokkurinn stendur enn vaktina á Alþingi Íslendinga

miðvikudagur, 22. maí 2019 kl. 00:01:06

Jón Þór Þorvaldsson segir að skattamál Evrópusambandsins á orku (raforkuskattpíning) muni líklega verða innlimuð í orkupakkaveldi ESB. Já já, það er hægt að bóka það með þúsund prósent vissu. Allar krísur verða notaðar til þess og í þá átt, og nóg framleiðir sambandið af þeim. Íslendingar verða skattaðir inn í rauðan dauðann í hvert skipti sem rafmagn sem Evrópa mun heimta er notað hér. Þannig endar þetta ef ekki er staðinn jarðfastur vörður um þjóðarhagsmuni okkar.

Er einhver sem kannast við það ESB sem kynnt var árið 1992? með Maastricht. Nei það er orðið óþekkjanlegt. Og allt í uppnámi, að sjálfsögðu, eins og við ESB-andstæðingar spáðum. Allt er í steik í sambandinu.

Gunnar Bragi Sveinsson segir að þetta sé sama ESB-fólkið og tísti að tekið yrði tillit til Íslands þegar það var ekki gert. Við erum að tengjast þessu með OP3

Jón Þór Þorvaldsson segir jú jú þetta er sama fólkið, þ.e. orkumála-stjórinn. Verðum við skattlögð vegna okkar hreinu orku til að jafna aðstöðuna úti? - já í þessu ORKU-BANDA-LAGI. Það er jú það sem það er. BANDALAG

Jón Þór Þorvaldsson segir að þetta orkubandalag ESB eigi eftir að breytast mikið. Já já. Það er víst. Við verðum látin nota kerti (ýsu) á meðan rafmagnið (þorskurinn) er fluttur út. "Bjarga verður útgerðinni".

Karl Gauti Hjaltason segir að allt hafi þótt óvinnandi verk þegar íslenskir bændur hófu að búa til virkjanir og smíða túrbínur úr skipsflökum. Við getum sjálf. Já það getum við. Þessi hlægilegi þokubakki með neytendavernd á úr munni xD-manna, er þvílíkur uppgjafartónn að réttast væri að taka af þeim strauminn. Eða bara fjarlægja einangrunina af kaplinum og leyfa þeim að þreifa á honum. Maður einn sagði mér að með því að setja tunguna á óeinangraðan kapalinn fengist allur okrupakki þrjú

miðvikudagur, 22. maí 2019 kl. 00:43:57

Gunnar Bragi segir að umgengni stjórnarflokkanna við OP3 minni á Icesave

Birgir Þórarinsson segir frá xD-þingmanni sem skrifaði grein í Morgunblaðið um neytendavernd og OP3. Jáh hún er frá Andrómedu. Þegar að x-D menn eru farnir að tala um þjóðina og einstaklinga sem "aðila" þá veit maður hvað er að gerast. Fólk er ekki "aðili" það er persóna. Og lönd eru lönd en ekki "aðilar". Kannski að xD-þingmaðurinn sé "aðili" á "aðilaþingi". Notkun þessa hugtaks um þjóðarhagsmuni Íslands er forkastanleg

Gunnar Bragi Sveinsson segir að allt bendi til þess að hann eigi ekki að lesa þessa grein xD-þingmannsins (aðilans). Þingmaðurinn ætti að koma og gera grein fyrir máli sínu

Gunnar Bragi Sveinsson segir að xD þingmaðurinn ætti að koma og útskýra rafmangsreikninga-hækkanir sem almenningur varð fyrir vegna OP1+2

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson segir að öll orkustefna verði að taka mið af þjóðarhag okkar Íslendinga, en ekki hag annarra landa eða "pakka". Meint stjórnarskrárbrot norsku ríkisstjórnarinnar vegna OP3 kemur fyrir rétt í haust

Gunnar Bragi Sveinsson segir að þá geti svo farið að norska ríkisstjórnin verið dæmd sek og að OP3 verði þá hvað?

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson segir að staðan sé sú að stjórnarliðið vilji ekki móta íslenska orkustefnu, heldur sækja hana frá ESB. Já. Þetta er pólitískt makkverk. Hverjar eru hinar raunverulegu vonir sem ríkisstjórnin hefur. Vondar greinilega. Vondar vonir segi ég

miðvikudagur, 22. maí 2019 kl. 01:20:39

Þorsteinn Sæmundsson segir að málið um HS-veitur þurfi að upplýsast

Birgir Þórarinsson minnir á risavaxinn hagnað erlendra þar og sem hafa flutt hagnað sinn úr landi. Já einmitt það. Arðurinn var það mikill að kaupverðið fékkst inn á fjórum árum. Geggjað segi ég! Óskiljanlegt dæmi! Já það er einmitt svona sem þetta mun verða i sambandi við OP3 segi ég. Landið ryksugað. Blóðsugur sem ekkert byggja heldur bara brjóta. Sveifla pappírum en byggja ekki. Pappíra-kynflokkurinn. Þannig menn eru ekki "fjárfestar" - þeir eru lausfestar. Man einhver eftir kjölfestu fjárfestaþvælunni sem næstum allir fjölmiðlar hér messuðu um

Þorsteinn Sæmundsson segir að erlendir hafi 10 faldað eignir sínar þar (HS-veitur). Besta fjárfesting á Vesturhveli jarðar sagði Bloomberg. Já þetta er gildran segi ég. Lyktin til oligarka og hrægamma berst um allan heim. Bankabrasklyktin komin á ný

Birgir Þórarinsson segir ekki tilviljun að "fjárfestar" hafi áhuga. Já en fé þeirra er ekki fast eins og okkar Íslendinga. Það er ryksugupoki. Það er flóð og fjara eins og í banka- og sérfræðingakreppunni sem hófst 2008 og varir enn

Af hverju er þetta fjandans mál hér. Enginn "erlendur" myndi hafa byggt svo mikið sem einn stubb af virkjun hér frá upphafi rafvæðingar. Þess vegna gerðum við það sjálf. Já sjálf, vegna þess að við erum ríkið

Birgir Þórarinsson segir ekkert sé hægt að segja við því að við vísum þessu til sameiginlegu EES-nefndarinnar. Já auðvitað á að gera það. Annað er aulaskapur. Fullkominn aulaháttur. Sveitamennska af verstu sort

Þorsteinn Sæmundsson segir að xD þingmaðurinn sem skrifaði greinina sé velkomin því þingið sé ekki hertekið af Miðflokksmönnum. Já það er það svo sannarlega ekki. Enginn sést á vaktinni NEMA Miðflokkurinn!

Þorsteinn Sæmundsson segir að nýleg skoðanakönnun sýni að andstaðan við fyrirhugað valdaafsal okkar (þeirra, hinna fáu) í orkumálum sé ofboðslega mikill, eða meirihlutinn, 62% er andvígir OP3 en aðeins 27% fylgjandi. Grasrótin í öllum stjórnarflokkunum er á móti OP3.

Hvað er eiginlega að gerast hér!

miðvikudagur, 22. maí 2019 kl. 01:32:25

Jón Þór Þorvaldsson segir af hverju þessi asi um þetta mál. Ferðamannabólan er að hjaðna og er þessu því ekki ætlað að verða næsta fix? Að orkupakki3 eigi að framlengja partýi hinna fáu. Jú það er einmitt þannig segi ég.

Þorsteinn Sæmundsson segir að hér búi eitthvað á bak við sem við vitum ekki hvað er

Já. Því meira sem ég hugsa um þetta mál því meira er greinilegt hvers vegna á að troða því niður kok þjóðarinnar, áður en hún finnur skítabragðið af því. Það er einmitt ástæðan. Verið er að reyna að blekkja þjóðina. Já blekkja hana!

miðvikudagur, 22. maí 2019 kl. 01:37:41

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson segir að með því að senda málið til baka gætum við verið að reynast norsku þjóðinni sannur vinur. Því er ég hjartanlega sammála því þar er andstaðan mikil og hörð. Þar er biturleikinn vegna málsins að grafa um sig hjá þjóðinni. Við verðum að koma til móts við íslensku þjóðina. Við verðum segir SDG baráttumaðurinn mikli!

Fær mér kaffi og með því og segi amen..

miðvikudagur, 22. maí 2019 kl. 01:56:48

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson segir að VG sé lent í því að aðstoða norsku ríkisstjórnina

Já segi ég, og gegn þjóð sinni => hin fræga EU-coordination => ég skal gera þjóð minni eitthvað slæmt ef þú lofar að gera þinni þjóð eitthvað sem er að minnsta kosti jafnslæmt

Hvað sagði ekki Matthías Johannessen ritstjóri um svona mál. Jú þau eru "forsmán", sagði hann. Flytja á alla sjóði landsins til útlanda því hér eru menn farnir að haga sér eins og útlendingar. Já eins og ég segi stundum: Þeir lenda hér helst aðeins til þess að mjólka landann. Hér er Matthías. Hann varaði við þessu öllu og hann varaði menn við því að afhenda unga fólkinu okkar spegil til þess að dást að sjálfu sér, því það hefnir sín. Enda er þessi aldursfóbía orðin hluti af innfluttum auðkenna-stjórnmálum, aldur, kyn, staða, búseta og blaðurgeta. Allir þættirnir með Matthías eru hér

miðvikudagur, 22. maí 2019 kl. 02:18:22

Bergþór Ólafsson segir að við verðum að halda raforku ódýrri hér á landi. Við verðum að gera það

Jón Þór Þorvaldsson segir að í Noregi sé talað og fjallað um afleiðingar OP3, en hér sé ekkert þannig gert

Bergþór Ólafsson segir að engin slík úttekt hafi verið gerð hér. Engin úttekt. Já ekkert nema áróður og feluleikur fer fram um málið hér, segi ég

Bergþór Ólafsson segir hækkun raforkuverðs liggi í loftinu. Já segi ég og svo koma allir innfluttu orkuskattarnir. Ríkisstjórnin hagar sér eins og útlendingur. Hún lendir aðeins til að mjólka landann

Jón Þór Þorvaldsson segir að í niðurlagi norsku skýrslunnar segi að Norðmenn neyðist til að hækka orkuveð hjá sér

Bergþór Ólafsson segir óumflýjanlegt að við verðum að fá meiri tíma til að meta málið áður en sagt er af eða á um neitt. Hópþrýstingur hefur myndast um þetta svo illa upplýsta mál. Já þjóðin veit ekkert um hvað það snýst og ríkisstjórnin veit það ekki heldur

Bergþór Ólafsson segir að VG sé þekkt fyrir að svíkja kjósendur sína. Lítið sé að marka það sem þau segi. Já skjótt skiptast veður á því rauðahálofti já.

miðvikudagur, 22. maí 2019 kl. 02:50:48

Birgir Þórarinsson spyr hvort að þessir svo kölluðu fyrirvarar séu ekki bara til þess að friða til dæmis baklandið í xD (jú jú) og hinna flokkanna tveggja

Jón Þór Þorvaldsson segir að áhuginn löndum eins og okkar sé að aukast mjög mikið. Menn sjá að hér og þar geti menn látið fé sitt vinna fyrir sér. En þetta er ekki endilega þjóðinni til hagsbóta. Tekur Svíþjóð sem dæmi þar sem slíkt varð ekki hagur þeirrar þjóðar

Þorsteinn Sæmundsson segir að það hafi slegið menn hér að svo kallaður fyrirvari í þessu máli hafi ekki fundist þegar gáð var að honum. Ekkert fannst. Já segi ég, enginn var heima. Bara var hins vegar heima. Bara þetta. Og hitt. Já frú Bara. Skal gert frú Bara

Þorsteinn Sæmundsson segir að svo kallaðir "erlendir fjárfestar" (hrollur) hafi tífaldað sitt á örstuttum tíma. Og svo eru það svokallaðir íslenskir fjárfestar. Asi einkennir þetta mál. Asi. (og frú Bara)

Jón Þór Þorvaldsson segir að við séum komnir á þann stað í umræðunni að hægt sé að tala íslensku: hér er gróðavon. En hvað með íslensku þjóðina? Þessi margföldunartafla sem Þorsteinn nefndi, stóra margföldunartaflan, segir sitt

Birgir Þórarinsson segir að þingmaður xD verði að mæta til þings (aðila-þingsins!) og gera grein fyrir rangri grein sinni í blaðinu. Já þarna kemur enn einu sinni þvæla xD-þingmannsins um "neytendavernd". Hugsið ykkur að nota svona ábreiður yfir þetta myglandi mál. Birgir nefnir einnig þá óteljandi hópa sem hafa orðið fyrir barðinu á OP1+2. Þvert á það sem sagt var í upphafi

miðvikudagur, 22. maí 2019 kl. 03:21:33

Birgir Þórarinsson segir að kynna þurfi þetta mál miklu miklu betur fyrir þjóðinni. Segir rangt að búið sé að svara öllum spurningum um þetta mál. Já enda sést það á því sem reynt er að halda fram í málinu varðandi raforkuverð. Já OP1+2 hafa skaðað þjóðina

Þorsteinn Sæmundsson segir að teiknast sé upp sú mynd að OP3 málið sé mjög svo vanbúið mál og sé enn verra en þingmenn Miðflokksins hafi getað ímyndað sér. Valdaframsal og afsal forræðis sé mál sem ekki hafi verið rétt með farið af pakkamönnum. Ekki sé hægt að sjá hvar málið endi. Það er staðreynd sem ekki er hægt að horfa fram hjá. Stakkels stjórnarskráin okkar segir ég bara. Henni líður ekki vel núna

Þorsteinn Sæmundsson segir að hér sé líklega á ferðinni mesta valdaframsal innan EES-rammans. Ummæli þingmanna Viðreisnar í þessu máli vítaverð

Umræða á Alþingi heldur áfram

Og enn stendur Miðflokkurinn einn vaktina á Alþingi, þar sem allir þingmenn hafa heitið því að vernda okkur og stjórnarskrá okkar. En þarna er hins vegar Miðflokkurinn einn á vaktinni

miðvikudagur, 22. maí 2019 kl. 03:39:28

Jón Þór Þorvaldsson segir að allir séu sammála um að hér þurfi fyrirvara. En útilokað sé hins vegar að fá stjórnarþingmen til þess að taka tilliti til þess að svo skuli þurfa, og viðhafa því sérstaka varúð í málinu. Anað sé áfram

Þorsteinn Sæmundsson segir að Miðflokksmenn vilja ekki þurfa að koma eftir á og segja að við vöruðum ykkur við

Þorsteinn Sæmundsson segir að málið sé að verða það djúpt að um valdaafsal sé að ræða, en því var afneitað í byrjun. Af hverju þá verið að keyra málið svona í gegn. Jú vegna þess að þjóðin má ekki komast að því hvað er í pakkanum, segi ég

Bergþór Ólafsson segir þetta minna á að 7 ára greiðslufrestur hafi verið kynntur sem sigur í Icesavemálinu á sínum tíma. En var það bara ekki

Þorsteinn Sæmundsson segir að hér sé verið að ýta vandamálinu á undan sér (eins og þá). En lausnina hér sé hins vegar að finna í sjálfum EES-samningum og hann ber að nota. Nota ákvæði hans og vísa málinu til baka. En í staðinn er bara keyrður hræðsluáróður gegn því að nota samninginn. Menn þora ekki að nota hann. Já til hvers er hann þá ef menn þora ekki að nota heimildirnar í honum. Hann er þá verri en enginn samningur segi ég

miðvikudagur, 22. maí 2019 kl. 03:52:48

Karl Gauti Hjaltason segir vegna garðyrkjubænda, að hér hafi menn hlaupist undan merkjum. Verðið átti ekki að hækka, en það hækkaði. Og OP3 hafi verið kynnt sem núll-mál. En nú er himinn allt í einu að hrynja sé því ekki kyngt köldu

Bergþór Ólafsson segir að mótsagnir pakkamanna séu út um allt. Allt er sett til hliðar og enginn samtalsflötur sé viðhafður. Þetta er mjög skrýtið orðið allt saman

Bergþór Ólafsson segir að Moggagrein xD-þingmanns sé brandari og að höfundur hafi helst viljað svipta þá sem segja ekki já, málfrelsi. Já hún er algjör brandari, eins og málflutningur pakkamanna er orðinn, segi ég. Þetta er orðið felumál sem þolir ekki dagsins ljós

Birgir Þórarinsson bendir á að ca 300 í landinu hafi skipt um orkusala. Já þetta passar upp á hár við reynsluna í Danmörku, þar sem danska þjóðin er skömmuð fyrir það sama, og henni sagt að hún passi ekki inn í markaðskenningar orkupakkaveldis ESB í Brussel. Sé óhæf til að búa í sínu eigin landi og að vera eins og hún er. Það er þvæla að halda neytendavernd fram. Neytendur neita hins vegar að taka þátt í þessum sirkus Brussel-smart

Allir vita að þetta er milljón prósent þvæla. Algjör þvæla. Allir þessir pakkar eru milljón prósent þvæla af allra verstu sort. Lýðskrum!

miðvikudagur, 22. maí 2019 kl. 04:05:58

Hér er leiðrétting mín við þessu neytendaverndarþvaðri: Það eru stjórnmálamen sem eru hér að sækja sér vernd gegn kjósendum og íslensku þjóðinni. Þeir eru að reyna að sækja sér vernd til útlanda gegn því að þurfa að hugsa um þjóðarhag og hagsmuni íslensku þjóðarinnar. Það er jú það sem ESB gengur út á. Allt ber að sama brunni þar um að stjórnmálamenn eru hættir að gæta hagsmuna þjóðar sinnar

Vernd stjórnmálamanna er svona: Þetta "þetta" er komið yfir til Brusselveldisins og þeir ráða þessu um "þetta". Þannig get ég sem liðleskja, stjórnmálalegur undirförull fölsungur og dagsdaglegur hug- og getuleysingi, setið áfram og enn fastar sem klístruð klessa á háum opinberum launum ofan á kjósendum. Sem þá eru orðnir eins konar einkaþrælar valdaelítu sem enga ábyrgð ber gagnvart kjósendum. Er elítan þar með orðin eins konar sósíaldemókratískt nomen-klessu-klattúru-fílter á milli einræðisformsins og gervilýðræðis

miðvikudagur, 22. maí 2019 kl. 04:38:22

Jón Þór Þorvaldsson segir að stjórnarskráin veiti ekki heimild til þess valdaafsals sem OP3 krefst því ekki er vitað hvar málið endar né með hverju

Birgir Þórarinsson segir að ríkisstjórnin sé að velja vafasömu leiðina í þeim efnum og að það sé furðulegt þegar EES-samningurinn býður upp á annað. Já einmitt, því þar er hægt að leita þess réttar sem forsendurnar fyrir upphaflegu samþykki hans hvíla á, eins og Davíð Oddsson hefur bent á

Jón Þór Þorvaldsson segir að útskýra þarf í hverju sú pólitíska upplausn (pólitískur áróður frá xDBVGazprom) sem ríkisstjórnin boði, sé fólgin, sé þessu ekki kyngt, með því að notuð séu ákvæði EES-samningsins eins og til sé ætlast með því að hafa þar þau ákvæði sem þar voru sett til þess að nota við svona aðstæður.

Já segi ég, þetta er að verða ansi geggjuð þessi umgengni stjórnmálamanna við EES-samninginn. Stjórnmálamenn þola greinilega ekki að umgangast þennan samning. Þarf þá ekki bara að fjarlægja hann fyrst að ekki má nota hann án þess að Ísland leysist upp? Geggjun. Hrein geggjun. Lýðskrum!

miðvikudagur, 22. maí 2019 kl. 05:03:46

Birgir Þórarinsson segir frá að OP3 sýni sig vera ógn við atvinnulífið í Noregi. Líklegt að eins verði það hér heima. Mjög varasamt mál

Aeðins meira um neytendaverndarþvæluna hér:

1. Politiken 12. maí 2018: Kun 5 procent af danskerne skiftede elselskab i 2017 - trods selskabernes massive marketingindsats (aðeins 5 prósent danskra heimila skiptu um raforkufélag þrátt fyrir massífa markaðsherferð)

2. Energiwatch 5. mars 2018: Fjöldi þeirra Dana sem skipta um raforkufélag fellur annað árið í röð. Samkeppnin á raforkumarkaðnum í Danmörku hefur engin áhrif, sýna nýjar tölur.

Konkurrencen på det danske elmarked er mere eller mindre uden effekt, viser nye tal. For andet år i træk falder antallet af leverandørskifte på trods af den kostbare engrosmodels ambitioner om øget konkurrence på elområdet.

Niðurstaða: Danska þjóðin passar ekki við ESB-pakkana. Út með hana

miðvikudagur, 22. maí 2019 kl. 05:19:57

Þorsteinn Sæmundsson segir að öll orka stjórnmálamanna í pakkanum fari í að berja fólkið í landinu. Já það passar. Búið er að berja Dani í 10 ár með orkupökkum ESB og þetta er árangurinn. Fimm prósent og fallandi eftir massífan peningaaustur raforkufélaganna í núllið í stað þess að lækka bara verið og halda kjafti og koma straumnum á

Bergþór Ólafsson segir að þessi smölun í málinu fari að líkjast kattasmölun frá vissri fyrri tíð. En samt ekki í xD. Þar eru málin ekki þannig. Þeim þarf ekki að smala. En snúningur Framsóknar sé að slá met

Þorsteinn Sæmundsson segir að sinnaskipti þingmanna xD minni á áður og eftirmyndir fyrir flösusjampó. Hvað Framsókn varðar þá er núverandi forysta án sannfæringar í stjórnmálum. Eins og þegar hundur eltir skottið á sér. Tveir pistlar formanns xB voru barapistlar

miðvikudagur, 22. maí 2019 kl. 05:38:18

Jón Þór Þorvaldsson segir að málið snúist um afleiður málsins og þær séu meðal annars þær að stórnotendur á borð garðyrkjubændur sjái ekki lengur hvernig rekstur þeirra eigi að hanga saman

Bergþór Ólafsson segir að ekki fari saman hljóð og mynd þegar málið er skoðað og minni það á umhverfismálin. Menn eru ekkert að hugsa málin og um afleidd áhrif þess

Birgir Þórarinsson segir að upplýsingar Eflu um að 370 neytendur af 140.000 hafi skipt um raforkuveitu, sýni að málið sé að nálgast firrustigið. Mikið tek ég undir þetta. Hvílík þvæla sem þessir pakkar eru allir

Bergþór Ólafsson tekur undir

Og svo er náttúrlega þvælan sú að þegar firran er orðin þannig að talað er um "gegnsæi og neytendavernd" þá bendi ég á ógegnsæið sem blasir við í þessu máli sem enginn veit hvert leiðir og sé því að verða að stjórnarskrárbroti vegna ógegnsæis þess

Bergþór Ólafsson segir að ekkert sé minnst á "gegnsæi og netendavernd" í málinu frá utan ríkis ráðherra. Ekkert. Það finnst ekki frekar en fyrirvarar þess

miðvikudagur, 22. maí 2019 kl. 05:57:51

Jón Þór Þorvaldsson segir að störf þingsins og forgangsröðun þess séu umhugsunarverð. Í þjóðfélaginu séu mörg brýn verkefni sem þingið þarf að vinna úr. Vinna þarf lögfræðilega greiningu í OP3 málinu og hvaða áhrif það hafi á þjóðfélagið. Alls konar brýnni mál en OP3 þarf að vinna úr. Mótsagnir eru augljósar. Utan ríkis ráðherra hefur engar áhyggjur af afskiptum sendiherra ESB af málinu á sama tíma og hann ásakar norskan flokk um að hafa áhrif á Miðflokkinn

Ólafur Ísleifsson segir að OP3 málið sé á mörkum þess að geta talist þinghæft. Fyrirvarar gufa upp eins og ekkert sé. Þingmenn skrifa endurteknar klisjur þegar allir vita að svo er ekki. Ríkisstjórnin verður að sjá sóma sinn í því að fresta málinu og vinna það betur

Jón Þór Þorvaldsson segir og tekur undir vafasama þinghæfni OP3 málsins. Þessi leið sem valin er hafa lögmenn sagt að sé varla fær. En samt ætlar ríkisstjórnin að láta vaða

Ólafur Ísleifsson segir og gefur ekki mikið fyrir málflutning þingmanna í nýjustu greinum þeirra sem þeir apa upp eftir hvor öðrum. Hér sé um gríðarlegt hagsmunamál þjóðarinnar að ræða

Miðflokkurinn stendur vaktina!

miðvikudagur, 22. maí 2019 kl. 06:15:40

Jón Þór Þorvaldsson segir að troða á málinu niður kok þjóðarinnar og svo er borðið upp á hráa kjötið í eftirrétt. Já já, og svo ætlar Framsóknarflokkurinn að leggja sig á grillið. Hann verður þá fullsteiktur sem kjötpakki-1 um næstu verslunarmannahelgi

Ólafur Ísleifsson segir að í grein Vilhjálms Árnasonar í dag sé því haldið fram að neytendave...

Þá segi ég: Ó nei ekki meiri neitendaverndarþvæla. Er ekki allt í lagi með þessa lýðskrumara í xD! Það er bara ekki hægt að þola svona þvælu lengur. Þetta fólk er gjaldþrota!

Birgir Þórarinsson segir verðhækkanir blasi við. Þarna sé engin ábót til neytenda. Engin! Þetta eru rangfærslur og ryk í augu almennings. Það þarf að eiga orðastað við þessa þingmenn hér í þingsal

Ólafur Ísleifsson segir að pistlar eftir ágætis þingmenn sem enga skoðun standist séu að birtast. Hefur þetta fólk efni á þessum orðum? Það vantar alla greiningu á þessu máli. Alla

Miðflokkurinn einn stendur vaktina á Alþingi Íslendinga!

miðvikudagur, 22. maí 2019 kl. 06:27:59

Karl Gauti Hjaltason segir að munur hafi verið á innsendum umsögnum um þetta mál. En greinilegt sé að margir í hinu opinbera kerfi séu þar að senda bréf til sjálfra sín. En vönduðum umsögnum frá borgunum er hins vegar svipt af borðinu og ekki á þá hlustað

Ólafur Ísleifsson segir það mjög eðlilegt því að þeir sem þurfa að búa við afleiðingar þessa máls og borga það, já á þá er ekki hlustað. Ekki er hlustað á borgarana

Karl Gauti Hjaltason bendir á að næstum einu jákvæðu umsagnirnar komi frá hinu opinbera og samtökum. En þannig er það ekki með sveitafélögin sem þurfa að búa við nálægð borgaranna

miðvikudagur, 22. maí 2019 kl. 06:34:59

Miðflokkurinn stendur enn vaktina á Alþingi

Stendur vaktina vegna hins vanhugsaða orkupakka3 máls þeirra sem síst ættu að vera að berjast fyrir honum og þar með gegn íslensku þjóðinni

miðvikudagur, 22. maí 2019 kl. 06:51:16

Jón Þór Þorvaldsson segir hvergi sé það að finna í EES-samningum að notkun neinnar greinar hans jafngildi þeirri neyðaraðgerð sem doktor erlendur fyrrum dómsforseti segi það vera sé hann notaður eins og til var ætlast þegar hann var saminn

Ólafur Ísleifsson segir að tal um að notkun EES-samningsins stefni honum í hættu sé furðuelgur málflutningur

Er EES samningurinn þá kannski bara venjuelgur nauðasamningur? Kannski eins og subsidiariet þvælan sem lofað var í ESB og sem átti að vera neyðarbremsa fyrir þjóðþing ESB-landanna til að nota og sem togað hefur verið í í meira en hundrað skipti, en án þess að nein mál hafi tekist að stöðva í ESB

miðvikudagur, 22. maí 2019 kl. 07:03:05

Ólafur Ísleifsson segir allt í lagi að kalla til erlendan sérfræðing. En þessi erlendur sem kom var bara hér að velta sínum pólitísku vöngum. Okkur vantar grjótharðar lögfræðilegar staðreyndir. Ekki pólitískar vangaveltur

Birgir Þórarinsson segir að varla hefði ríkisstjórnin boðið erlendum manni hingað sem lagt hefði til að ákvæði EES-samningsins séu notuð eins og þau eru. Nei auðvitað ekki. Hingað kom bara kinka-kolli dúkka eins og þær sem komu með 77 sardínur til DDRÚV frá Möltu. Kalla hefði átt Vatíkanið til þá, því þeir hafa þó trúarlega reynslu af evru

Hver er trúarleg sannfæring ríkisstjórnarinnar í þessu máli núna?

miðvikudagur, 22. maí 2019 kl. 07:18:04

Þorsteinn Sæmundsson segir að brytja hafi þurft niður orkufyrirtæki í Þýskalandi til að þóknast orkupakkaveldi ESB

Anna Kolbrún Árnadóttir segir að horfa þurfi til dæmis á umsögn Ögmundar Jónassonar sem rekur hvernig málið verður keyrt hér sé það samþykkt. Við verðum að halda okkar orkufyrirtækjum í okkar eigu

Þorsteinn Sæmundsson segir að öll rauð ljós logi. Draumar xD manna í þessu máli séu víti sem þarf að varast. Selja fríhöfnina vilja þeir, en þeir vilja ekki eiga né reka heilsugæsluna á Patreksfirði

miðvikudagur, 22. maí 2019 kl. 07:40:25

Gunnar Bragi Sveinsson segir að stjórnaliðar ættu að koma hingað í þingið og gera grein fyrir því hvaða áhrif þetta mál muni hafa á Ísland og þjóðina - áður en þetta mál er samþykkt!

Anna Kolbrún Árnadóttir segir merkilegt að heyra um að álit erlends og fyrrum dómara hafi verið pólitískt álit. Ekki annað. Orðið "neyðarhemill" kemur ekki frá Íslandi og orðið "neytendavernd" komi heldur ekki frá Íslandi

Gunnar Bragi Sveinsson segir að við hefðum haldið að við værum í býsna góðum málum í kjötmálinu. En annað kom í ljós. Í ljós kom málshöfðun og skaðabótakrafa!

Já. Hvernig væri að stjórnarþingmenn leggi eigur sínar að veði fyrir orkupakka3. Nei þeir ætla að klessa þessu á herðar þjóðarinnar

miðvikudagur, 22. maí 2019 kl. 08:02:10

Anna Kolbrún Árnadóttir segir að átta settir fyrirvarar í Noregi sýni að þetta mál verði að senda til baka til EES-nefndarinnar. Grípa þarf inn núna á meðan það er hægt

Bergþór Ólafsson segir vegna blaðagreinar xD-manns í dag um "neytendavernd og gegnsæi" sé ekkert um þau mál að finna í málinu sjálfu. Já já, þau blaðuryrði eru innflutt fob. eftirá um málið sem átti ekki að vera um neitt nema um núllið

Bergþór Ólafsson segir að senda verði málið til baka til EES-nefndarinnar og að forsetinn ætti að taka það af dagskrá, sérstaklega í ljósi þess sem fram er komið um málið. Já málið sem átti að vera um ekkert en sem allir eru að skrifa innflutt fob. eftirá um í blöðum. Af hverju eru þeir að eyða rándýrum blaðapappír dagblaðanna í ekkert

miðvikudagur, 22. maí 2019 kl. 08:16:27

Gunnar Bragi Sveinsson segist ekki sjá umsögn frá Neytendasamtökunum. En að ASÍ hafi hins vegar látið það mál til sín taka og umsögn þess var ekki jákvæð. Ja hérna. Þar geta xD-menn fundið neytendaverndar fóður við sitt hæfi. En það munu þeir ekki gera. Þeir flytja bara inn og braska með sannleikann um hagsmuni þjóðarinnar eins og kexkökur

Bergþór Ólafsson segir að það mál (neytenda) sé enginn kjarni í þessu máli. Enda er það ekki í málspakkanum.

Gunnar Bragi Sveinsson segir að engin umsögn hafi borist frá Neytendasamtökunum um þetta mál

miðvikudagur, 22. maí 2019 kl. 08:34:27

Jón Þór Þorvaldsson segir að skaðabætur séu mál sem ekki sé hægt að horfa fram hjá. Þær lenda þá á ríkinu, skattgreiðendum

Bergþór Ólafsson segir (um skaðabótamál á hendur íslenska ríkinu) að þar séum við komin á vígvöll sem við séum ekki vön. Stjórnarþingmenn segja að allt sé fínt og flott, að "lítil" hætta sé hér á ferð en tala þó um fyrirvara (sem auðvitað halda ekki)

Jón Þór Þorvaldsson segir að þetta sé ekki beint kótlettumál. Þetta mál sé ekki af þeirri stærð

Gunnar Bragi Sveinsson spyr hvað komi í veg fyrir að Íslendingar sjálfir verndi sína neytendur. Allur heimur stendur opinn til rannsóknar á því hvar í landi það sé best gert

miðvikudagur, 22. maí 2019 kl. 08:42:44

Þingfundi er allt í einu slitið

Minna má á að fyrir aðeins rúmlega ári síðan sagði formaðurinn minn í Sjálfstæðisflokknum að:

"raforkumál Íslands eru ekki innri-markaðsmál ESB"

(sjá hér)

Var þetta þá bara "áður" myndin af honum á auglýsingu fyrir flösusjampói? Í dag er allt þetta horfið úr höfði hans. Hann er allt í einu orðinn að "eftir" myndinni

Er þá formaðurinn í þeim flokki sem ég er í bara ómerkielgur og ómarktækur lýðskrumari? Ég spyr. Hvað á eiginlega svona framkoma að þýða!

Hvað?

SIGNOFF

Fyrri færsla

Nóttina áður: Frá varðstöðu Miðflokksins á Alþingi síðustu nótt


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Takk fyrir afar greinargott rapport þitt Gunnar.

Enn er hafin varðstaða Miðflokksins á þingi.

Undarlegt að allir þingmenn og ráðherrar Sjálfstæðisflokksins eru nú farnir í felur. 

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 22.5.2019 kl. 16:01

2 Smámynd: Jón Valur Jensson

Flott hjá þér, Gunnar, að rekja þessar umræður hér svo rækilega.

Það er engum blöðum um það að fletta, að varðstaða Miðflokksins í þessu máli er glæsileg -- þjónusta í þágu lands og þjóðar -- já, einnig landsins, vegna fyrirsjáanlegs útlits þess á næstu áratugum.

Jón Valur Jensson, 22.5.2019 kl. 18:38

3 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka ykkur fyrir

Ég verð að segja að mér var öllum lokið þegar að Sjálfstæðismaður sem ég hef metið mjög svo mikils, Björn Bjarnason, talar í dag um Miðflokkinn sem "afturhaldafl" fyrir það eitt að standa á réttindum íslensku þjóðarinnar. Þetta er það sem Sjálfstæðisflokkurinn átti að gera og fæddist til að gera, en gerir ekki, heldur afhendir Miðflokknum það kefli sem átti xD átti að halda uppi. Mér er svo brugðið að mig langar helst til að leggjast niður og grenja af sorg. Aldrei aldrei hefði ég að óreyndu trúað þessu upp á Björn Bjarnason flokksbróðir minn. Aldrei. Hvílík sorg.

En þetta útskýrir kannski ýmislegt. Þetta útskýrir kannski að í stjórnmálum er ekkert álitið heilagt. Ég vona svo sannarlega að ég hafi rangt fyrir mér. En fyrir mér er þetta verulegt áfall. En heilagur er Sjálfstæðisflokkurinn ekki.

Það skal enginn aftra mér frá því að standa með fólki sem stendur með Íslandi og réttindum íslensku þjóðarinnar.

Ekki veit ég hvenær mér tekst að þvo þetta óbragð sem ég hef haft í munninum. Ég vona að það fari. ég vona það.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 22.5.2019 kl. 20:00

4 identicon

Sæll Gunnar

Björn Bjarnason má kalla hlutina hvað sem hann vill.

Taktu það ekki nærri þér, horfum fremur til gleðilegra hluta.

Ég hef áður minnst á það sem er að gerast í Bretlandi.

Þar eru turnarnir tveir í frjálsu falli.

Brexit flokkurinn mælist nú með 37% fylgi.

Fólk vill út úr þessu búrkrata helvíti, ESB sem Björn Bjarnason

dýrkar og dáir, lögregluríki í anda Stasi.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 22.5.2019 kl. 20:55

5 identicon

Sæll Gunnar - sem og aðrir gestir, þínir !

Gunnar !

Jú: aðdáunarvert má telja, orrustu þeirra Miðflokksmanna við C (C ? / jafnvel Ö, dygði ekki til) bekkjar TOSSA hinna flokkanna, (utan Flokks fólksins, vitaskuld) í þessu Andskotans Orkupakkamáli, nr. III.

Með sinni þvermóðzku og fundahöldum í þinginu -, eru þeir Miðflokksmenn búnir að slá puntstrá heimskunnar að mestu, úr höndum þessarra attaníossa Evrópusambandsins hér á landi, svo um munar.

Og: Miðflokksmenn, laga einungis sína siðferðilegu stöðu, varðandi Klaustur Bars scandalana, með þeirri elju, sem þeir viðhafa í þinginu, þessa dagana og næturnar.

Vona samt: að einhverjir þeirra, gefi sér tóm til, að svara þeim harðyrtu orðsendingum, sem ég beindi að ÖLLUM þeim 63, varðandi fjandsamlegan yfirgang EFTA/EES/ESB og ACER samteypunnar, illræmdu.

Þér Gunnar - sem og Jóni Val og Símoni Pétri og mjög mörgum fleirrum, verður ALDREI fullþakkað óbilandi baráttuþrekið í þessu máli / en þau þeirra þingmanna Suðurkjördæmis t.d.(hvar: ég hefi mitt aðsetur) sem álpazt kynnu til að samþykkja III. Orkupakkann skulu fá að finna til Tevatnsins, með harkalegi ákæru minni austur á Selfossstöð Lögreglunnar, með kröfu um Stofufangelsi þeim til handa, til að byrja með, a.m.k.

Það verður EINHVERS staðar og EINHVERN tímann: að draga strik í sandinn, svo þingmönnum forheimskunnar skiljizt !

Með beztu kveðjum: sem oftar, af Suðurlandi /   

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 22.5.2019 kl. 23:55

6 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka ykkur fyrir Símon Pétur og Óskar

Áfram með smjörið

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 23.5.2019 kl. 02:30

7 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

fimmtudagur, 23. maí 2019 kl. 02:30:50

Enn fara umræður um orkupakka3 fram á Alþingi og enn er það Miðflokkurinn sem stendur vaktina. Og aftur hlusta ég

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson - er í ræðustól Alþingis og talar um EES-samninginn. Telur ekki að Noregur sé að nota Ísland sem Albaníu í þessu máli

Gunnar Rögnvaldsson, 23.5.2019 kl. 02:32

8 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

fimmtudagur, 23. maí 2019 kl. 02:49:38

Bergþór Ólafsson segir að iðnaður á Íslandi geti misst samkeppnisforskotið sem raforka okkar hefur veitt honum. Starfshæfni stóriðju gæti kekkjast ef rafokurverð og stefna fer úr böndunum. Já og ekki þarf mikið til segi ég. Önnur lönd bíða spennt eftir að fá eitthvað af þessu til sín

Birgir Þórarinsson segir að forskort orkufreks iðnaðar sé viðkvæmt mál. Tenging til útlanda og afleiðingar á stóriðju ekki rannsakað

Bergþór Ólafsson segir að öflug íslensk fyrirtæki í kringum sjávarútveg þurfa ódýra orku. Þetta þarf að verja

Þorsteinn Sæmundsson segir að þjónusta við stóriðju sé hér í hættu. Hér eru íslensk fyrirtæki sem framleiða róbóta fyrir stóriðju sem seldir eru út um allan heim

Bergþór Ólafsson segir að andúðar gæti í garð uppbyggingar orkuframleiðslu. Andrúmið fjandsamlegt

Þorsteinn Sæmundsson að VG sé komið í fararbrodd markaðsvæðingar á þeirri grunnþjónustu sem rafmagn er fyrir okkur

Gunnar Rögnvaldsson, 23.5.2019 kl. 02:50

9 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

fimmtudagur, 23. maí 2019 kl. 03:00:43

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson talar um áhrif OP3 á landsbyggðina. Sé slæm í Noregi en verði enn verri hér. Atvinnuþróun landsbyggðar sé háð ódýrri raforku

Bergþór Ólafsson segir að áhrifin hér verði hlutfallslega meiri. Höggið verður stærra. Sérstaklega þau svæði sem hafa stóriðju í sínu nágrenni. Eyjafjarðarsvæðið treystir sér varla til að taka á móti nýjum fyrirtækjum eins og staðan er núna. Já þetta er rosalegt

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson segir að þessi áhætta muni virka illa. Í Noregi sé beinlínis stutt við að byggð sé í öllu landinu - í gegnum skattakerfið.

Eyjafjarðardæmið já. Verð að koma því að hér að reynsla mín frá meginlandi Evrópu er sú að ný iðnaðarfyrirtæki vilja helst staðsetja sig á landsbyggð því þar er vinnuaflið stöðugra og betra. Dæmi: fyrirtæki sem framleiðir stélið í F-16 orrustuþotur. Þetta gætum við tekið okkur af. Við erum í NATO og við höfum ál og rafmagn

Gunnar Rögnvaldsson, 23.5.2019 kl. 03:02

10 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

fimmtudagur, 23. maí 2019 kl. 03:19:31

Jón Þór Þorvaldsson segir hér sé verið að afvegaleiða í stað þess að koma hreint og beint fram og segja hlutina eins og þeir eru. ESB segir berum orðum hvert sé markmiðið með ORKU-BANDALAGI. Ekki sé sagt frá því í málflutningi ríkisstjórnarinnar. Já þar eru myrkraverk kynnt sem ljósapera segi ég. Já OKRU-BANDALAG er ORKU-BANDALAG og ekki banani

Jón Þór Þorvaldsson segir að þetta mál varði helstu auðlindir Íslands og sé risavaxið mál. Ríkisstjórnin veit þetta og var búin að segja að þetta myndi hún EKKI gera. Já risavaxið mál og feluleikur ríkisstjórnarinnar er risavaxnar blekkingar. Já blekkingar

Þorsteinn Sæmundsson segir að orka ríkisstjórnarinnar fari öll í að kenna þingmönnum að ganga í takt. Já svo mikið er víst segi ég. Ótrúlegar blekkingar og vanvirðing við kjósendur

Gunnar Rögnvaldsson, 23.5.2019 kl. 03:19

11 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

fimmtudagur, 23. maí 2019 kl. 03:39:26

Þorsteinn Sæmundsson segir og vitnar í Tómas Inga Olrich og hvernig hann varaði flokkssystkini  sín við í þessu máli. Þau hlusta til dæmis á sendiherra ESB og lögfræðiliði (já en ekki á flokksmenn). Málið illa búið og flausturslega unnið

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson segir að árið 1262 skipti máli. Orð innflutts erlends dómsforseta minna á þau. Að sýna þurfi Noregi "hollustu". Vitnar í viðtal við Bjarna Ben í VB þar sem Bjarni segir að ACER þýði veikingu okkar eigin valda og ásælni í gegnum ACER sé augljós

Þorsteinn Sæmundsson segir að menn eins og Ögmundur Jónasson hafi ekki hlustunarskilyrði í sínum flokki og sé hunsaður. Enginn heima þar á bæ segi ég

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson  segir að ráðherrar sem þvinga vilja OP3 niður kok þjóðarinnar séu komnir í andstöðu við sjálfa sig og láta aðra um að færa málið. Já segi ég, málafærslumenn og fluttir frá debet og yfir í kredit fyrir Ísland og þjóðina. Orðnir baggar á þjóðinni

Gunnar Rögnvaldsson, 23.5.2019 kl. 03:40

12 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

fimmtudagur, 23. maí 2019 kl. 03:53:32

Birgir Þórarinsson segir og vitnar í orð Bjarna Ben fyrir ári síðan um að "raforkumál Íslands séu ekki innri-markaðsmál ESB"

Þorsteinn Sæmundsson segir að þetta minni á Framsókn. Sinnaskipti Bjarna Ben í andstöðu við flokksmenn og meirihluta þjóðarinnar

Birgir Þórarinsson segir já hvað hefur komið fyrir hjá þessu fólki. 90 ára afmæli xD sé á næstu dögum. Á þar að endurflytja ræðu Bjarna Ben frá því í mars 2018: þ.e. "raforkumál Íslands séu ekki innri-markaðsmál ESB"

Gunnar Rögnvaldsson, 23.5.2019 kl. 03:55

13 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

fimmtudagur, 23. maí 2019 kl. 04:08:56

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson segir að Kýpur eigi að tengjast Grikklandi og Ísrael. Önnur staða þar en hér. En þetta sýnir okkur hvernig dæmið gengur fyrr sig. Fjárfestar mættir á staðinn og þeir komir á kaf - og ferlið tók við (ESB og stofnanir ORKU-BANDALAGSINS) og þeim gert skylt að halda ACER upplýstu svo það geti séð til þess að ENGAR hindranir verði settar í þeirra götu. Tafarlaust eigi að tilkynna ACER um áhuga fjárfesta. En það kom babb í bátinn. Fjárfestar lögðu að mati ACER of mikla áherslu á tengivirki við Aþenu en of lítinn áhuga á sæstrenginn

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson segir að við verðum að nota EES samninginn til að tryggja að þjóðarhagsmunum okkar sé ekki hent fyrir borð. Svo er það fjórði orkupakkinn. Lögformlegar undantekningar verða að fást. Hvern vegna er ríkisstjórnin að berjast fyrir því að við stöndum ekki á rétti þjóðarinnar?

Þorsteinn Sæmundsson segir lögformlega rétt að hafna þessu og leitar réttar okkar

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson segir að einhversstaðar hafði verið tekin ákvörðun um að KEYRA þetta mál í gegn, alveg sama hvað. Þá segi ég. Þetta er þjóðníð!

Gunnar Rögnvaldsson, 23.5.2019 kl. 04:10

14 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

fimmtudagur, 23. maí 2019 kl. 04:27:46

Birgir Þórarinsson segir og vitnar í Jón Baldvin Hannibalsson um EES-samninginn og Stjórnarskrá Íslands. Innfluttur dómsforseti alveg þversögn við það sem JBH hafi sagt

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson segir að stjórnvöld hafði þarna keypt og flutt inn ESB-sinnaða þjónustu. Ekki litið til baklands flokkanna en leitað á önnur mið. Já segi ég. Hef horft upp á þetta á meginlandinu í tæp 30 ár. Svona er ESB logið upp í smáskömmtum með hvítri og svartri lygi. Og sagt að aldrei sé hægt að bakka með neitt án þess að allt hrynji

Birgir Þórarinsson segir vitnar í JBH sem segir að EES-samningurinn hafi tryggt okkur óvefengjanlegan rétt til að hafna

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson segir já og segir að JBH hafi ekki verið kallaður faðir EES-samningsins fyrir ekki neitt, en honum er hins vegar bara afneitað. Já segi ég. Þetta er fjandsamleg yfirtaka á réttu og röngu og öllu snúið á hvolf

Birgir Þórarinsson segir að stjórnvöld viti ekki í hvaða ógöngur þau eru komin í. Ekki er hlustað á neinn. Já segi ég, nema þá innfluttu jólasveina sem "voru pantaðir". Á Bandaríkjaþingi er alltaf sótt í þá sem sáu um málin og vita mest, sérstaklega þegar um þjóðaröryggismál er að ræða og þjóðarhagsmuni sem tengd eru útlöndum: Ráð sótt til allra þeirra sem enn eru á lífi: dæmi: Shultz, Scowcroft, Albright, Kissinger. Þetta endar örugglega með uppsögn EES, sé ekki hlustað

Gunnar Rögnvaldsson, 23.5.2019 kl. 04:30

15 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

fimmtudagur, 23. maí 2019 kl. 04:42:30

Bergþór Ólafsson segir að innfluttur dómsforseti sé trommaður upp. Já segi ég og amen

Jón Þór Þorvaldsson segir að munur sé á að hafna og leiða mál til lykta með sáttarferli

Bergþór Ólafsson segir að innfluttur dómsforseti hafi lagt til að leitað sé réttar síns en litið hafi verið gert með þau orð hans. Já segi ég, og önnur voru trommuð upp

Gunnar Rögnvaldsson, 23.5.2019 kl. 04:43

16 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

fimmtudagur, 23. maí 2019 kl. 05:09:50

Jón Þór Þorvaldsson segir að væntingar um að hér sé gróðavon sé það sem málið snúist um og að innleiðing muni svo kalla fram skaðabótakröfur á hendur skattgreiðendum

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson segir að rauður þráður sé að ryðja eigi úr vegi hindrunum sem verja Ísland. Já segi ég, varnir þjóðarhagsmuna okkar veiktar

Jón Þór Þorvaldsson segir og tekur undir

Gunnar Rögnvaldsson, 23.5.2019 kl. 05:10

17 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

fimmtudagur, 23. maí 2019 kl. 05:23:49

Þorsteinn Sæmundsson segir að menn hér virðast halda að Evrópusambandið sé skátaflokkur. Já segi ég, því bunker-metnatliet ræður för í ríkisstjórn = "steypa er góður matur"

Þorsteinn Sæmundsson segir að manni dettur í hug að innfluttur dómsforseti hafi átt að skjóta okkur skelk í bringu. En þegar orð hans eru lesin nánar þá er ljóst að valið er úr því sem hann segir

Jón Þór Þorvaldsson segir og spyr af hverju er þessi leið valin

Birgir Þórarinsson segir að hagsmunir ESB eru ekki þeir sömu og Íslands. Engin þjóð veraldar framleiðir eins mikið af rafmangi og Íslendingar á hvern mann. Innleiðing tilskipunar ESB þýðir að erfiðara er að verja þann árangur

Jón Þór Þorvaldsson segir að loftslagsmál séu vandamál heimsins og að hætta sé á að hér eigum við að fórna minni (okkar) hagsmunum fyrir meiri (annarra)

Gunnar Rögnvaldsson, 23.5.2019 kl. 05:24

18 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

fimmtudagur, 23. maí 2019 kl. 05:37:15

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson segir og spyr þingforseta að utan ríkis ráðherra sjáist ekki og hvort að ekki megi vænta þess einhver viti hvar í heiminum hann sé staddur, svo hann geti mætt og svarað fyrirspurnum um það mál sem hann leggur hér fram

Jón Þór Þorvaldsson segir og spyr þingforseta hvort að ekki sé hægt að fá forsætisráðherra til að svara spurningum um málið, sérstaklega un umhverfismál sem tengjast því

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson segir og spyr hvort og hvar utan ríkis ráðherra, og segist gera ráð fyrir að hann sé enn  á jörðinni, sé staddur í heiminum svo spyrja megi hann um þetta mál

Þingforseti segir og gerir lítið úr þessu og háð hans leynir sér ekki

Gunnar Rögnvaldsson, 23.5.2019 kl. 05:39

19 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

fimmtudagur, 23. maí 2019 kl. 05:48:59

Þorsteinn Sæmundsson segir spyr hvers vegna er notað veikasta formið við að innleiða þetta mikilvæga mál sem ekki er vitað hvort að standist Stjórnarskrá. Jú segi ég, það er gert til þess að geta farið á bak við þjóðina. Þannig er allt sem viðkemur ESB. Koma á í veg fyrir að þjóðir fái notið þess sjálfsákvörðunarréttar sem Jón Sigurðsson barðist fyrir, yfir okkar hönd

Gunnar Rögnvaldsson, 23.5.2019 kl. 05:49

20 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

fimmtudagur, 23. maí 2019 kl. 06:02:27

Þingforseti frestar umræðu og þingfundi er slitið

Gunnar Rögnvaldsson, 23.5.2019 kl. 06:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband