Leita í fréttum mbl.is

Miðflokkurinn stendur fast á rétti þjóðarinnar, gegn þríeykinu

"segist gera ráð fyrir að utanríkisráðherrann sé enn á jörðinni"

FYRIR - A N D R Ó M E D A - VARAR

M31 - Andrómeda - mynd NASA

Þreifað á ESB-strengjum
ESB-tenging drepur flokka
Nýtt: brennd börn íslenskra stjórnmála elska esb-eldinn
Elskið slysin

****

Baráttan á Alþingi gegn orkupakka þrjú heldur áfram

Á meðan ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks, Framsóknarflokks og Vinstri grænna berst fyrir því að ekki sé staðið á réttindum íslensku þjóðarinnar, þá standa þingmenn Miðflokksins á Alþingi og berjast gegn þeirri ríkisstjórn sem þannig hagar sér. Gegn ríkisstjórn sem hvorki er á bandi þjóðarinnar né í sambandi við vilja hennar. Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins gengur gegn Sjálfstæðisflokknum í málinu og það sama gildir um Framsóknarflokkinn. Og Vinstri grænir ganga þvert á allt sem þaðan þótti geta komið. Þessir þrír flokkar eru í andstöðu við bakland sitt og mikinn meirihluta kjósenda. Þarna hafði þið þá, mínar dömur og herrar; þríeykið

Stærsti stjórnarandstöðuflokkurinn, Miðflokkurinn, stendur hins vegar einn á vaktinni og berst fyrir réttindum þjóðarinnar. Nú fer hann svo í þandar þjóðar-skammar taugar þríeykisins, að þar titrar allt og skelfur. Ærandi glamrið í handjárnum þingmanna þríeykisins glymur sem þokulúðrasveit hinnar ærandi þagnar þessara flokka, sem falið hafa sig fyrir kjósendum og vonast til að geta hokrað enn um stund, á meðan flokkar þeirra molna niður innanfrá

Þegar ég komst til að hlusta síðustu nótt, þá var staðan svona. Þar kom ýmislegt athyglisvert fram

Þingmenn Miðflokksins eftir 19 tíma umræðu á Alþingi 21-22 maí 2019

Mynd; Þingmenn Miðflokksins

fimmtudagur, 23. maí 2019 kl. 02:30:50

Enn fara umræður um orkupakka3 fram á Alþingi og enn er það Miðflokkurinn sem stendur vaktina. Og aftur hlusta ég

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson - er í ræðustól Alþingis og talar um EES-samninginn. Telur ekki að Noregur sé að nota Ísland sem Albaníu í þessu máli

fimmtudagur, 23. maí 2019 kl. 02:49:38

Bergþór Ólafsson segir að iðnaður á Íslandi geti misst samkeppnisforskotið sem raforka okkar hefur veitt honum. Starfshæfni stóriðju gæti kekkjast ef rafokurverð og stefna fer úr böndunum. Já og ekki þarf mikið til segi ég. Önnur lönd bíða spennt eftir að fá eitthvað af þessu til sín

Birgir Þórarinsson segir að forskort orkufreks iðnaðar sé viðkvæmt mál. Tenging til útlanda og afleiðingar á stóriðju ekki rannsakað

Bergþór Ólafsson segir að öflug íslensk fyrirtæki í kringum sjávarútveg þurfa ódýra orku. Þetta þarf að verja

Þorsteinn Sæmundsson segir að þjónusta við stóriðju sé hér í hættu. Hér eru íslensk fyrirtæki sem framleiða róbóta fyrir stóriðju sem seldir eru út um allan heim

Bergþór Ólafsson segir að andúðar gæti í garð uppbyggingar orkuframleiðslu. Andrúmið fjandsamlegt

Þorsteinn Sæmundsson segir að VG sé komið í fararbrodd markaðsvæðingar á þeirri grunnþjónustu sem rafmagn er fyrir okkur

fimmtudagur, 23. maí 2019 kl. 03:00:43

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson talar um áhrif OP3 á landsbyggðina. Sé slæm í Noregi en verði enn verri hér. Atvinnuþróun landsbyggðar sé háð ódýrri raforku

Bergþór Ólafsson segir að áhrifin hér verði hlutfallslega meiri. Höggið verður stærra. Sérstaklega þau svæði sem hafa stóriðju í sínu nágrenni. Eyjafjarðarsvæðið treystir sér varla til að taka á móti nýjum fyrirtækjum eins og staðan er núna. Já þetta er rosalegt

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson segir að þessi áhætta muni virka illa. Í Noregi sé beinlínis stutt við að byggð sé í öllu landinu - í gegnum skattakerfið.

Eyjafjarðardæmið já. Verð að koma því að hér að reynsla mín frá meginlandi Evrópu er sú að ný iðnaðarfyrirtæki vilja helst staðsetja sig á landsbyggð því þar er vinnuaflið stöðugra og betra. Dæmi: fyrirtæki sem framleiðir stélið í F-16 orrustuþotur. Þetta gætum við tekið okkur af. Við erum í NATO og við höfum ál og rafmagn

fimmtudagur, 23. maí 2019 kl. 03:19:31

Jón Þór Þorvaldsson segir hér sé verið að afvegaleiða í stað þess að koma hreint og beint fram og segja hlutina eins og þeir eru. ESB segir berum orðum hvert sé markmiðið með ORKU-BANDALAGI. Ekki sé sagt frá því í málflutningi ríkisstjórnarinnar. Já þar eru myrkraverk kynnt sem ljósapera segi ég. Já ORKU-BANDALAG er ORKU-BANDALAG og ekki banani

Jón Þór Þorvaldsson segir að þetta mál varði helstu auðlindir Íslands og sé risavaxið mál. Ríkisstjórnin veit þetta og var búin að segja að þetta myndi hún EKKI gera. Já risavaxið mál og feluleikur ríkisstjórnarinnar er risavaxnar blekkingar. Já blekkingar

Þorsteinn Sæmundsson segir að orka ríkisstjórnarinnar fari öll í að kenna þingmönnum að ganga í takt. Já svo mikið er víst segi ég. Ótrúlegar blekkingar og vanvirðing við kjósendur

fimmtudagur, 23. maí 2019 kl. 03:39:26

Þorsteinn Sæmundsson segir og vitnar í Tómas Inga Olrich og hvernig hann varaði flokkssystkini sín við í þessu máli. Þau hlusta til dæmis á sendiherra ESB og lögfræðiliði (já en ekki á flokksmenn). Málið illa búið og flausturslega unnið

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson segir að árið 1262 skipti máli. Orð innflutts erlends dómsforseta minna á þau. Að sýna þurfi Noregi "hollustu". Vitnar í viðtal við Bjarna Ben í VB þar sem Bjarni segir að ACER þýði veikingu okkar eigin valda og ásælni í gegnum ACER sé augljós

Þorsteinn Sæmundsson segir að menn eins og Ögmundur Jónasson hafi ekki hlustunarskilyrði í sínum flokki og sé hunsaður. Enginn heima þar á bæ segi ég

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson segir að ráðherrar sem þvinga vilja OP3 niður kok þjóðarinnar séu komnir í andstöðu við sjálfa sig og láta aðra um að færa málið. Já segi ég, málafærslumenn og fluttir frá debet og yfir í kredit fyrir Ísland og þjóðina. Orðnir baggar á þjóðinni

fimmtudagur, 23. maí 2019 kl. 03:53:32

Birgir Þórarinsson segir og vitnar í orð Bjarna Ben fyrir ári síðan um að "raforkumál Íslands séu ekki innri-markaðsmál ESB"

Þorsteinn Sæmundsson segir að þetta minni á Framsókn. Sinnaskipti Bjarna Ben í andstöðu við flokksmenn og meirihluta þjóðarinnar

Birgir Þórarinsson segir já hvað hefur komið fyrir hjá þessu fólki. 90 ára afmæli xD sé á næstu dögum. Á þar að endurflytja ræðu Bjarna Ben frá því í mars 2018: þ.e. "raforkumál Íslands séu ekki innri-markaðsmál ESB"

fimmtudagur, 23. maí 2019 kl. 04:08:56

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson segir að Kýpur eigi að tengjast Grikklandi og Ísrael. Önnur staða þar en hér. En þetta sýnir okkur hvernig dæmið gengur fyrr sig. Fjárfestar mættir á staðinn og þeir komir á kaf - og ferlið tók við (ESB og stofnanir ORKU-BANDALAGSINS) og þeim gert skylt að halda ACER upplýstu svo það geti séð til þess að ENGAR hindranir verði settar í þeirra götu. Tafarlaust eigi að tilkynna ACER um áhuga fjárfesta. En það kom babb í bátinn. Fjárfestar lögðu að mati ACER of mikla áherslu á tengivirki við Aþenu en of lítinn áhuga á sæstrenginn

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson segir að við verðum að nota EES samninginn til að tryggja að þjóðarhagsmunum okkar sé ekki hent fyrir borð. Svo er það fjórði orkupakkinn. Lögformlegar undantekningar verða að fást. Hvern vegna er ríkisstjórnin að berjast fyrir því að við stöndum ekki á rétti þjóðarinnar?

Þorsteinn Sæmundsson segir lögformlega rétt að hafna þessu og leitar réttar okkar

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson segir að einhversstaðar hafði verið tekin ákvörðun um að KEYRA þetta mál í gegn, alveg sama hvað. Þá segi ég. Þetta er þjóðníð!

fimmtudagur, 23. maí 2019 kl. 04:27:46

Birgir Þórarinsson segir og vitnar í Jón Baldvin Hannibalsson um EES-samninginn og Stjórnarskrá Íslands. Innfluttur dómsforseti alveg þversögn við það sem JBH hafi sagt

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson segir að stjórnvöld hafði þarna keypt og flutt inn ESB-sinnaða þjónustu. Ekki litið til baklands flokkanna en leitað á önnur mið. Já segi ég. Hef horft upp á þetta á meginlandinu í tæp 30 ár. Svona er ESB logið upp í smáskömmtum með hvítri og svartri lygi. Og sagt að aldrei sé hægt að bakka með neitt án þess að allt hrynji

Birgir Þórarinsson segir vitnar í JBH sem segir að EES-samningurinn hafi tryggt okkur óvefengjanlegan rétt til að hafna

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson segir já og segir að JBH hafi ekki verið kallaður faðir EES-samningsins fyrir ekki neitt, en honum er hins vegar bara afneitað. Já segi ég. Þetta er fjandsamleg yfirtaka á réttu og röngu og öllu snúið á hvolf

Birgir Þórarinsson segir að stjórnvöld viti ekki í hvaða ógöngur þau eru komin í. Ekki er hlustað á neinn. Já segi ég, nema þá innfluttu jólasveina sem "voru pantaðir". Á Bandaríkjaþingi er alltaf sótt í þá sem sáu um málin og vita mest, sérstaklega þegar um þjóðaröryggismál er að ræða og þjóðarhagsmuni sem tengd eru útlöndum: Ráð sótt til allra þeirra sem enn eru á lífi: dæmi: Shultz, Scowcroft, Albright, Kissinger. Þetta endar örugglega með uppsögn EES, sé ekki hlustað

fimmtudagur, 23. maí 2019 kl. 04:42:30

Bergþór Ólafsson segir að innfluttur dómsforseti sé trommaður upp. Já segi ég og amen

Jón Þór Þorvaldsson segir að munur sé á að hafna og leiða mál til lykta með sáttarferli

Bergþór Ólafsson segir að innfluttur dómsforseti hafi lagt til að leitað sé réttar síns en litið hafi verið gert með þau orð hans. Já segi ég, og önnur voru trommuð upp

fimmtudagur, 23. maí 2019 kl. 05:09:50

Jón Þór Þorvaldsson segir að væntingar um að hér sé gróðavon sé það sem málið snúist um og að innleiðing muni svo kalla fram skaðabótakröfur á hendur skattgreiðendum

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson segir að rauður þráður sé að ryðja eigi úr vegi hindrunum sem verja Ísland. Já segi ég, varnir þjóðarhagsmuna okkar veiktar

Jón Þór Þorvaldsson segir og tekur undir

fimmtudagur, 23. maí 2019 kl. 05:23:49

Þorsteinn Sæmundsson segir að menn hér virðast halda að Evrópusambandið sé skátaflokkur. Já segi ég, því bunker-mentalitet ræður för í ríkisstjórn = "steypa er góður matur"

Þorsteinn Sæmundsson segir að manni dettur í hug að innfluttur dómsforseti hafi átt að skjóta okkur skelk í bringu. En þegar orð hans eru lesin nánar þá er ljóst að valið er úr því sem hann segir

Jón Þór Þorvaldsson segir og spyr af hverju er þessi leið valin

Birgir Þórarinsson segir að hagsmunir ESB eru ekki þeir sömu og Íslands. Engin þjóð veraldar framleiðir eins mikið af rafmangi og Íslendingar á hvern mann. Innleiðing tilskipunar ESB þýðir að erfiðara er að verja þann árangur

Jón Þór Þorvaldsson segir að loftslagsmál séu vandamál heimsins og að hætta sé á að hér eigum við að fórna minni (okkar) hagsmunum fyrir meiri (annarra)

fimmtudagur, 23. maí 2019 kl. 05:37:15

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson segir og spyr þingforseta að utan ríkis ráðherra sjáist ekki og hvort að ekki megi vænta þess einhver viti hvar í heiminum hann sé staddur, svo hann geti mætt og svarað fyrirspurnum um það mál sem hann leggur hér fram

Jón Þór Þorvaldsson segir og spyr þingforseta hvort að ekki sé hægt að fá forsætisráðherra til að svara spurningum um málið, sérstaklega un umhverfismál sem tengjast því

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson segir og spyr hvort og hvar utan ríkis ráðherra, og segist gera ráð fyrir að hann sé enn á jörðinni, sé staddur í heiminum svo spyrja megi hann um þetta mál

Þingforseti segir og gerir lítið úr þessu og háð hans leynir sér ekki

fimmtudagur, 23. maí 2019 kl. 05:48:59

Þorsteinn Sæmundsson segir spyr hvers vegna er notað veikasta formið við að innleiða þetta mikilvæga mál sem ekki er vitað hvort að standist Stjórnarskrá. Jú segi ég, það er gert til þess að geta farið á bak við þjóðina. Þannig er allt sem viðkemur ESB. Koma á í veg fyrir að þjóðir fái notið þess sjálfsákvörðunarréttar sem Jón Sigurðsson barðist fyrir, yfir okkar hönd

fimmtudagur, 23. maí 2019 kl. 06:02:27

Þingforseti frestar umræðu og þingfundi er slitið

Fyrri færsla

Svona fór 19 tíma varðstaða Miðflokksins vegna OP3 fram á Alþingi


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

föstudagur, 24. maí 2019 kl. 00:14:29

Jæja góðir lesendur. Áfram halda umræður um orkupakka þríeykis ríkisstjórnarinnar á Alþingi Íslendinga. Mál sem engu máli átti að skipta fyrir ríkisstjórnina en sem nú virðist af einhverjum óskiljanlegum ástæðum vera henni svo mikilvæg að flokkar hennar virðast tilbúnir að leggja allt annað til hliðar og sjálfa sig líka. Af einhverjum ástæðum er þessi orkupakki ESB-veldisins þó einhverjum í þessum flokkum svo mikilvægur að enginn botnar neitt í neinu.

Miðflokkurinn heldur því umræðum áfram um OP3 og reynir að draga staðreyndir málsins fram í það dagsljós sem þríeykið vill ekki að nái til þessa máls.

Í ræðustól Alþingis er Þorsteinn Sæmundsson og hann segir að stjórnmálamenn séu ekki að hlusta á þjóðina. Já segi ég. En hér ætla ég að hlusta á Miðflokkinn

Gunnar Rögnvaldsson, 24.5.2019 kl. 00:16

2 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

föstudagur, 24. maí 2019 kl. 00:34:03

Birgir Þórarinsson segir að umsóknum um virkjanir sem liggja undir ratsjárgeisla yfirvalda rigni inn

Þorsteinn Sæmundsson segir að þetta sé ekki í fyrsta skiptið sem Miðflokksmenn standi einir og berjist fyri rmálum 

Þorsteinn Sæmundsson segir að Miðflokkurinn taki upp hanskann fyrir meirihluta þjóðarinnar og reyni að finna út sannleika þessa máls. Já segi ég, þetta er ekki gúmmíþing ESB

Jón Þór Þorvaldsson segir að furðulegt að ekki sé hægt að sýna þjóðinni þá lágmarkskurteisi að hlustað sé á hana. Þingforseta brestur minnið og man ekki lengur tímalengd umræðunnar. Já segi ég. Þingforseti þarna er Brynjar N. xD-maður sem sagðist ekki taka mark á grasrót Sjálfstæðisflokksins

Jón Þór Þorvaldsson segir að hann fái meira en 40 skilaboð á klukkustund frá fólkinnu í landinu um að halda áfram við að reyna að fá málið upplýst, og sé hann þó enginn sérstakur tölvunarmaður sjálfur

Þorsteinn Sæmundsson segir að hælbítar skipti ekki máli. Já mikið rétt segi ég!

Gunnar Rögnvaldsson, 24.5.2019 kl. 00:36

3 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

föstudagur, 24. maí 2019 kl. 00:47:03

Birgir Þórarinsson segir að vera sé að undirbúa orkuútflæði burt frá Íslandi með OP3. Já þar sem við verðum látin um kerti og tólg en útlandið fær forgang. Já segi ég, þvi ég kyndi með rafmagni og hér rignir reikningunum inn. Alltaf skal liggja nýr rafmangsreikningur í heimabankanum. Alltaf! Mér finnst ég vera að fóðra Kremlargengi í raforkumálum. Sovétríki! Maður missir algjörlega allt verðskyn í svona frumskógum reikninga

Þorsteinn Sæmundsson segir að erlendir viðskiptamiðlar segi hér hafði erlendir peningamenn sótt sér bestra og mesta gróða á Vesturhveli jarðar samkvæmt fréttaveitu Bloomberg

Gunnar Rögnvaldsson, 24.5.2019 kl. 00:48

4 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

föstudagur, 24. maí 2019 kl. 00:51:03

Smá hlé. Konan var að koma heim af hreppsstjórnarfundi. 

Gunnar Rögnvaldsson, 24.5.2019 kl. 00:51

5 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

östudagur, 24. maí 2019 kl. 01:19:13

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson segir og vitnar í Björn Bjarnason 2002 um að ekki megi innleiða orkupakka ESB á Íslandi. Vitnar í annan sem þá sagði að ekki mætti taka þessa orkupakka ESB upp. Já hefur reynst Íslandi dýr mistök. Einar Oddur leggur þar til að máli sé skoðað það vel að Ísland sé ekki að skjóta sig í fótinn. Einu rökin þá á móti kom frá Valgerði Sverrisdóttur var þrælsóttakast við ESB-veldið. Best er að endurtaka EKKI þessi mistök á ný segir SDG.

Já svona er að vera aular. Alltaf er er hörfað þar til ekkert súrefni er eftir hana þjóðinni til að anda að sér og til að ala af sér betri tíma og blóm í haga fyrir okkur og afkomendur

Jón Þór Þorvaldsson segir að alltaf sér verið að seilast lengra og lengra, þar til ekkert sér eftir að fullveldi Íslands

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson segir hví sé lagasetning ekki viðhöfð með lærdóm af fyrri mistökum. Af hverju á að laga landið að tilskipunum

Gunnar Rögnvaldsson, 24.5.2019 kl. 01:20

6 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

föstudagur, 24. maí 2019 kl. 01:33:50

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson segir og spyr hvort að stjórnmálamenn séu farnir að líta fram hjá baklandi og kjósendum sínum. Hvernig stendur á því að t.d. Bretar séu ekki enn komnir út úr ESB. Jú það er vegna þess að flokkar hafa orðið viðskilja við fólkið sem kaus þá

Já xD er farið að minna illþyrmilega á klíku day-traders miða við Björn Bjarna þarna 2002 og Bjarna Ben í mars í fyrra. Ekkert að marka neitt nema nema í nokkrar sekúndur. Svona eins og verðmyndun á raforku er orðin í Danmörku þar sem sonur minn átti að velja úr meira en 50 orkuveitum á sömu og einu línunni. Vonlaust verk að eyða tíma í það. Já þúsund skip látin elta sama fiskinn í sjónum. Röksemdir kvótakerfisins hljóta þá einnig að vera fallnar, fyrst að 1000 orkuveitur séu settar til að elta sama kílóvattið í orkulandhelgi Íslands

Gunnar Rögnvaldsson, 24.5.2019 kl. 01:34

7 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

föstudagur, 24. maí 2019 kl. 01:39:50

Ég segi af hverju er verið að bögga þjóðina með þessu miðstýrða rugli frá umboðslausu ESB. Hvað er eiginlega að mönnum! Þetta er eins og að Ísland hefði verið þvingað til að taka upp sovétríkin af því að við seldum þeim síld í tunnum. Hvílíkur aulaskapur!

Jón Þór Þorvaldsson segir og les upp úr ruglveitum ESB (paragröf). Les upp þvæluna sem borin er á borð fyrir þjóðina

Gunnar Rögnvaldsson, 24.5.2019 kl. 01:39

8 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

föstudagur, 24. maí 2019 kl. 01:57:50

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson segir að Miðflokksmenn hafi hér flutt skák og mát ræður um þetta mál ríkisstjórnarinnar. Því að í pakkanum er það sagt að eyða eigi þeim möguleika að Ísland (ríkin) geti sjálft stjórnað sínum orkumálum. Verið er að draga út valdi þjóðríkisins. Enda segir ESB það. Slíkt er ekki í okkar þágu

Jón Þór Þorvaldsson segir að þetta sé sýn ESB á framtíðina. Já segi ég: að þurrka út sjálfsákvörðunarrétt Íslands og annarra landa. JÞÞ vitnar í Ara Trausta um að ACER sé ekki yfirríkisleg stofnun þar sem hann segir að ACER hafi endanlegt úrskurðarvald. En einmitt það sýni að þar er um yfirríki að ræða

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson segir að þeir sem reyna að halda því að ACER sé ekki yfirríki hafi einfaldlega ekki kynnt sér málið. Þá segi ég, auðvitað hafa menn ekki kynnt sér þetta frekrar en day-trader veit neitt í sinn haus nema sekúndu fram í tímann. Enda fær sú stétt þann dóm að vera verstir allra bílstjóra í Bretlandi. Mest kostar því að tryggja ökutæki þeirra. Ísland er ekki tryggt með svona menn við stýrið!

Gunnar Rögnvaldsson, 24.5.2019 kl. 01:57

9 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

föstudagur, 24. maí 2019 kl. 02:13:36

Jón Þór Þorvaldsson segir að OP3 sé orðið allt allt annað mál en rætt var um fyrir ári síðan. Fyrirvarar  halda ekki. Nefndarálit sem gerð voru sögðu á undanþágur sjá sameiginlegu EES-nefndinni væru það eina sem mark væri á takandi og sem haldi

Birgir Þórarinsson segir að einhliða fyrirvarar haldi ekki, það sjáist í kjötmálinu. Við innleiddum en með fyrirvörum sem áttu að vernda okkur, en sem þeir svo ekki gerðu. Lög lands okkar voru síðan af yfirríki ESB dæmd ólögleg

Ég segi að þetta orkupakkamál ESB á jafn mikið skylt við veruleikann og ef að xD myndi setja á fót súrefnisdreifingar-kerfi (pakka) þar sem 300 trading-félög eru stofnuð látin bjóða okkur að frjálsa samkeppni við að draga andann úr gufuhvolfinu. Við hvaða félag ætlar þú að skipta kjósandi góður. Svo sitja þeir og selja og verðið hækkar og hækkar á því sem allir þurfa á að halda til að geta lifað

Gunnar Rögnvaldsson, 24.5.2019 kl. 02:13

10 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

föstudagur, 24. maí 2019 kl. 02:22:08

Birgir Þórarinsson segir hvers vegna fylgja stjórnmálamenn ekki stefnu sinni. Ekki sé hlustað á umsagnir frá okkur Íslendingum. Hræða eigi málinu í gegn með því að segja að EES fari í uppnám séu ákvæði hans notuð

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson segir að þetta ótta-tromp sé þannig að í nefndaráliti var sagt að engin hætta væri á ferðum fyrir EES-samninginn, séu ákvæði hans notuð. En hér er bara sagt að "klára" eigi málið

Birgir Þórarinsson segir já, það er ekki heil brú í þessu. Keyra eigi málið í gegn með næturfundum. Af hverju ekki kynna málið fyrir þjóðinni. Af hverju má hún ekki koma að því. Er ekki betra að hafa þjóðina á sínu bandi fyrst að þetta á að vera svona gott og að ríkisstjórnin segir að þetta sé svona gott. Minnir á OP1+2 og slæmar afleiðingar þeirra

Gunnar Rögnvaldsson, 24.5.2019 kl. 02:22

11 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

föstudagur, 24. maí 2019 kl. 02:32:21

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson segir að ekkert hafi til dæmis verið gáð að því hvaða afleiðingar það hefði ef að álverið á austurlandi myndi hverfa vegna orkupakka3. Er hætta á þessu spyr hann. Veltum þessu fyrir okkur

Birgir Þórarinsson segir að engin hafi rætt hvaða áhrif OP3 muni hafa á stóriðju á Íslandi. Já hérna segi ég, eru það kannski VG sem vilja losna við stóriðjuna úr landi og sé með xD í vösum sínum eins og Bjarni Ben liggur nú ósjálfbjarga á bráðnandi ísjaka VG

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson segir að Landsvirkjun hafi sagt að OP3 styrki aðstöðu þess gagnvart stóriðju. Já segi ég, við missum allt úr landi. Það endar þannig. Endum sem passíf innstunga og leiksoppur annarra sem ekkert hafa með okkar mál að gera. Ég minni á bræluna sem leggur nú þegar frá OP1+2

Gunnar Rögnvaldsson, 24.5.2019 kl. 02:32

12 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

föstudagur, 24. maí 2019 kl. 02:41:20

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson segir óskiljanlegt að ekkert mat hafi farið fram hér á afleiðingum OP3 eins og gert var í Noregi

Þá segi ég: Var ekki bara gamla Samband Íslenskra Samvinnufélaga (SÍS) betra en þessir fjandans pakkar esb-veldisins. Hér hefur allt verið svikið. Allur andinn frá Thatcher-Reagan-Vatíkanið-Lech Walesa tímanum verið svikinn. En Walesa sagði um daginn að leysa þyrfti ESB upp. Það væri ónýtt.

Gunnar Rögnvaldsson, 24.5.2019 kl. 02:41

13 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

föstudagur, 24. maí 2019 kl. 03:08:41

Birgir Þórarinsson segir að Davíð Oddsson hafi sagt að xD sé að segja skilið við Sjálfstæðisstefnuna

Bergþór Ólafsson segir að það sé ekki bara Davíð sem hafi varað við þessu. Þorsteinn Pálsson hafi sagt að stefna xD núna byggist á lofsverðum blekkingum

Birgir Þórarinsson segir að þetta sé mjög athyglisvert. Flokkar framfylgja ekki þeirri stefnu sem boðuð er. Það sé kurteisi að fylgja því sem fólki er sagt. Sama sé að gerast í Framsóknarflokknum. Vinstri grænir séu þakklátir fyrir þetta. Vekur athygli á því sem Styrmir segir að hér sé í uppsiglingu, þ.e. verstu mistök okkar xD-manna í utanríkismálum. Já segi ég; svei og fussa

Bergþór Ólafsson segir að Styrmir líti ekki á Icesave sem utanríkismál. Hér fari fram Íslandsmeistaramót í þagnarbindindi

Birgir Þórarinsson segir að það séu fleiri þungavigtarmenn úr xD sem segi svipað. 90 ára afmælið flokksins er ekki skemmtilegt fyrir flokkinn.

Bergþór Ólafsson segir að enn sé ekki öll nótt úti fyrir xD. Það sé enn hægt að bæta ráð flokksins. Stíga eitt skref til baka og finna gamla taktinn á ný. 

Gunnar Rögnvaldsson, 24.5.2019 kl. 03:10

14 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

föstudagur, 24. maí 2019 kl. 03:10:56

Man eftir því að við gátum fengið íslenskt lambakjöt í Danmörku fram til þess tíma að Ísland gekk í EES. Þá hætti það að fást, og var manni sagt að það væri vegna þess að íslensk sláturhús uppflyttu ekki sovétreglur ESB. Svo var þeim umturnað fyrir gífurlegt magn peninga, en ekkert sést af því enn. EES-drap þetta. Grískir kokkar voru í öngum sínum því þeir sögðu að það væri það besta í heiminum. En nei, þá fylltist Danmörk bara af óætu nýsjálensku lambakjöti, af því að þeir eru náttúrlega ekki í sovétríki ESB. Og nú hafa Danir misst nær alla kjötvinnslu og slátrun úr landi niður til láglaunaholu Þýskalands og annarra ódýrari ríkja, þar sem fólk stendur á gólfunum fyrir 30-40 prósent af því sem borga þarf Dönum. Og svo segist ungt fólk vilja vera í EES vegna skóla og búsetu í EES-löndum. Þvílík firra því engir af bestu háskólum veraldar er að finna á meginaldni sovétríkja Evrópu. Þá er alla að finna utan ESB. Í Bretlandi og Bandaríkjunum. Og svo er Norðurlandasamstarfið miklu eldra en ESB.

Gunnar Rögnvaldsson, 24.5.2019 kl. 03:11

15 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

föstudagur, 24. maí 2019 kl. 03:15:36

Þorsteinn Sæmundsson segir að Landsfundur xD hafi hafnað frekara valdaframsali til Brussel-veldisins

Gunnar Rögnvaldsson, 24.5.2019 kl. 03:15

16 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

föstudagur, 24. maí 2019 kl. 03:37:16

Jón Þór Þorvaldsson segir og vitnar í Ögmund Jónasson fyrrverandi þingmann og ráðherra VG um að pakkar ESB sem markaðsvæða eiga grunnþjónustu séu kynntir sem ekki verri en þeir síðustu

Birgir Þórarinsson segir að mikilvægt sé að minna stjórnmálamenn á það sem þeir lofa kjósendum. Veita þeim aðhald. Hægt sé að skipta um skoðun en það verði þó að rökstyðja það

Jón Þór Þorvaldsson segir að þessi OP3 snúist að stóru leyti um umhverfismál. Hér hefur verið kallað eftir afstöðu utanþingsráðherra  þess málaflokks. Segir að það hafi ekki verið létt fyrir mann eins og Tómas Inga Olrich að gagnrýna opinberlega flokksmenn sína. Stjórnmálamenn hljóta að geta sameinast um grunn-sáttmála þjóðarinnar. Já segir ég, en það gera þeir ekki

Birgir Þórarinsson segir og hafnar að einangrunarsinna málatilbúnaði stjórnarliða. Hann sé út í hött. Menn eigi ekki að hafa óttablandna virðingu fyrir ESB-fyrirbærinu né neinu örðu á milliríkjasamstarfi

Jón Þór Þorvaldsson segir að þetta með einangrunartalið sé fjarstæða. En minnir á að á tyllidögum sé þetta sama fólk með mest loft í ranni um þjóðina. Það er ekkert athugavert við að vera stoltur af þjóð sinni og uppruna

Já segi ég og ég segi að þegar sú stund kemur, en sem aldrei kemur, að hagsmunir allra þjóða fari saman samtímis, þá verður það í eina skiptið sem alþjóðlegt samvinna virkar til dæmis í apparati eins og S.þ.. Sú stund kemur aldrei. Þetta verða menn að horfast í augu við. Allar þjóðir verða að gæta sinna hagsmuna. Annars bregðast þær sjálfum sér

Gunnar Rögnvaldsson, 24.5.2019 kl. 03:38

17 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

föstudagur, 24. maí 2019 kl. 03:44:55

Þorsteinn Sæmundsson segir að Styrmir Gunnarsson sé einn af fáum xD-mönnum sem skilur málið

Verð að segja að eftir Brexit og þetta bölvaða EES-pakkamál ESB okkar, skilur maður útgönguna af Egyptalandi í Gamla testamentinu miklu miklu betur. En lengi vel var sú bók eins konar stjórnarskrá Vesturlanda og frum-hornsteinn þeirra. Mikil er skömm þingmanna Sjálfstæðisflokksins í þessu máli. Mikil er skömm þeirra!

Gunnar Rögnvaldsson, 24.5.2019 kl. 03:47

18 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

föstudagur, 24. maí 2019 kl. 03:58:24

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson segir að skoðanakönnun sýni að breski Íhaldsflokkurinn hafi fengið 7% og Verkamannaflokkurinn 13% en Brexitflokkur Nigel Farage 37% í þeim kosningum sem núna fara fram til Evrópuþingsins, en hverra kosningaúrslit verði haldið leyndum þar til þær í öllum löndum ESB eru búnar. Hvað segir þetta okkur?

Jón Þór Þorvaldsson segir að hann voni að menn taki rökum í þessu máli. Það sé von Miðflokksmanna á þingi núna

Þorsteinn Sæmundsson segir að Miðflokksmenn hafi boðið að þessu máli sé frestað og önnur og mikilvægari tekin fyrir. Þetta mál snýst ekki um Miðflokkinn heldur um þjóðina. Ég segi; Abraham Lincoln hefði gengið í Miðflokkinn, þetta hefði honum líkað, þessi varðstaða Miðflokksmanna núna!

Gunnar Rögnvaldsson, 24.5.2019 kl. 04:00

19 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

föstudagur, 24. maí 2019 kl. 04:19:48

Birgir Þórarinsson segir að Neytendasamtökin hafi boðið út rafmangskaup til meðlima en aðeins eitt fyrirtæki sendi inn tilboð, dótturfyrirtæki Rarik (held ég), og bauð 0,65 prósent afslátt frá verðskrá. Þetta er þessi svokallaða neytendavernd. Gagnslaust. Já segi ég, ætti önnum kafinn maður að hafa tíma í þetta brask úr sömu burðarlínunni. Af hverju er þessi þvæla í gangi

Þorsteinn Sæmundsson segir að það séu mest samfylkingarflokkar sem tala fyrir þessu. Þetta er grunntilraun til að skipta brjóta upp eignarhald almennings á grunnþjónustunni rafmagni.  Heiðarlegra væri bara að koma hreint fram og segja að við viljum einkavæða þetta allt saman. Þetta er yfirskin

Birgir Þórarinsson segir og vitnar í skrif Páls Vilhjálmssonar um að húsmóðir á Spáni geti ekki þvegið þvott um miðjan dag vegna þess að þá er raforkuverð svo hátt. Hvað segja Íslendingar við þessu

Þorsteinn Sæmundsson segir að sama sagan sé í Noregi. Er þetta draumsýn t.d. Sjálfstæðismanna?

Gunnar Rögnvaldsson, 24.5.2019 kl. 04:21

20 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

föstudagur, 24. maí 2019 kl. 04:23:38

Ég spyr: er það frómasta markmið Sjálfstæðisflokksins að eyðileggja gott líf Íslendinga í sínu eigin landi?!!

Gunnar Rögnvaldsson, 24.5.2019 kl. 04:24

21 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

föstudagur, 24. maí 2019 kl. 04:40:02

Bergþór Ólafsson segir að stuðningsmenn innleiðingar OP3 hafi ítrekað talað um fólk ætti að geta lækkað raforkukostnað um jafnvel tugi þúsunda. En ekkert slíkt hefur komið fram um það m.tt. til dæmis útboðs Neytendasamtakanna

Birgir Þórarinsson segir að hér sé allt á sömu leið og þegar OP3 hafi verið innleiddur. Hér er bara kallað fram út þingsal að þetta sé ekki rétt. En þetta er rétt. Sagt var margsinnis og að Birgir hafi marg sannað það með göngum. En Áslaug Arna hafi enginn gögn komið með

Bergþór Ólafsson segir að það sé óþægilegt að fylgjast með þessu tali um meinta neytendavernd þegar það er sannað að það er loftið eitt

Birgir Þórarinsson segir að þessi málflutningur stenst ekki. Stjórnarliðið verður að svara þarna fyrir sig og koma hér og tala um málið. En þeir liggja bara sofandi heima

Já segi ég: og svo eru það sveitafélög erlendis sem neyðast til að slökkva á götulýsingu og skrúfa perurnar úr

Gunnar Rögnvaldsson, 24.5.2019 kl. 04:40

22 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

föstudagur, 24. maí 2019 kl. 04:56:58

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson segist ekki ætla að vera með dómsfagsspár um lokun álvers Reyðaráls fyrir austan. En ef fyrirsjáanleg er hækkun orkuverðs mun fyrirtækið samstundis fara að búa sig undir það. Þar verða keðjuverkunaráhrif. Já segi ég; óvissa myndast og setur þessar ofboðslegu fjárfestingar í uppnám. Já segi ég: og ekki er byggingartími þeirra skammur, hann er langur og þau eru hér fyrst og fremst vegna þess að við erum fullvalda ríki sem boðið getur upp á öryggi, stöðugleika og að hér sé hægt að tala við ríkisvald sem er ekki í vösum annarra og umboðslausra ríkja (þ.e. ætti að minnsta kosti ekki að vera það)

Bergþór Ólafsson segir já og þar fara afleidd störf fyrst undir hnífinn og minnir á áhrifin þegar Jóhönnustjórninni var loks ýtt burt. Þá komu þau störf til baka

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson segir að fyrirtæki hugsi til framtíðar og það væri óskandi að ríkisstjórnin gerði það líka. Vitnar í Árna Steinars Jóhannssonar um að staða raforkumála í ESB sé allt önnur en hér

Gunnar Rögnvaldsson, 24.5.2019 kl. 04:57

23 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

föstudagur, 24. maí 2019 kl. 05:05:21

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson segir að í grein Árna Steinars Jóhannssonar standi að "við í VG" lítum á að raforkukerfi Íslands eigi að vera á félagslegum grunni - að auðlindin sé nýtt sem undirstaða fyrir atvinnulíf og byggð í landinu öllu

Birgir Þórarinsson segir að við þurfum atvinnulíf í landinu öllu

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson segir að hann skilji ekki þessa Viðreisnarpólitík sem ríkisstjórnin er að stunda. Viðreisnarhugsun

Gunnar Rögnvaldsson, 24.5.2019 kl. 05:06

24 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

föstudagur, 24. maí 2019 kl. 05:20:14

Jón Þór Þorvaldsson segir að Ísland sem hafi farið í EES á jafnréttisgrundvelli sé nú sagt vera bara taglhnýtingur við Noreg í því

Bergþór Ólafsson segir að þegar á reynir sýni það sig að staðan sé ekkert jöfn. Þetta sést líka á Bretum sem hafði komist að því að á þá sé ekki hlustað

Já segi ég. Ég hlustaði á viðtal við lávarð Conrad Black af Crossharbour í gær þar sem hann sagði að Evrópa sé að springa í loft upp. Minni ríkin þola sambandið ekki lengur og að Þýskaland sé á leið inn í stjórnleysi. Þar séu miðjuflokkar sem enginn hlustar lengur á, og til vinstri eru gamlir ofstækiskommar og til hægri sé eina vitið að finna, en að eins og venjulega, eru þar líka gamlir nasistar að hluta til. Græni flokkurinn þar sé safn ofstækismanna sem ekki sé einu sinni hægt að eiga vitrænan orðastað við. Conrad stýrði einu sinni Ferguson dráttarvélafrmleiðandanum

Gunnar Rögnvaldsson, 24.5.2019 kl. 05:21

25 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

föstudagur, 24. maí 2019 kl. 05:43:19

Jón Þór Þorvaldsson segir að í pantaða innflutta álitnu sé kynntar mögulegar refsingar, en sem séu algerlega án nokkurs lagalegs rökstuðnings

Þorsteinn Sæmundsson segir og segist ekki getað varist þeirri hugsun að niðurstaðan (sú innflutta) hafi verið pöntuð fyrirfram. Átti að reyna að nota hana sem panik-hnapp. Verið var að leita að möguleika til að gera ekki hið rétta í málinu

Jón Þór Þorvaldsson segir að já, ekki sé hægt að verjast þeirri hugsun. En ef svo er ekki þá ættu menn að gera grein fyrir þessum esb-asa sínum. Eru þeir á leið inn í ESB bakdyramegin? Ef ræður hér á þinginu eru skoðaðar, þá sést að menn töluðu um að raforkukerfið ætti að vera okkar en ekki í pakka ESB og ekki kæmi til greina að kyngja. En svo snýst allt á einu mánuði

Þorsteinn Sæmundsson segir ekki eðlilegt að allir þingmenn snúi sér í sömu átt samstíga og samstundis. Það er einhverskonar samsæri í gangi segir Þorsteinn óbeint. Eitthvað sem er eins konar pakt þeirra á milli (en ekki milli þeirra og kjósenda segi ég) 

Gunnar Rögnvaldsson, 24.5.2019 kl. 05:43

26 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

föstudagur, 24. maí 2019 kl. 05:51:06

Þorsteinn Sæmundsson segir að þeir álitsgjafar sem fengu að koma að málinu sem nú er fyrir þinginu hafi þeir verið handvaldir, en öðrum hafnað. Hagsmunasamtök heimilanna hafi sagt að mikilvægt sé að endurtaka ekki mistök fortíðar. Hagsmunir heimilanna séu þeir að raforkukerfið sé í þjóðareigu. Enginn með það í einkaeigu mun bera minnstu ábyrgð. Skilst á Þorsteini að þeim samtökum hafi verið hafnað og ekki á þau hlustað. Umsögn. Markaðsvæða á það sem þjóðarinnar er. Hér er meginhættan sú að fólk muni krefjast að EES sé sagt upp

Gunnar Rögnvaldsson, 24.5.2019 kl. 05:51

27 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

föstudagur, 24. maí 2019 kl. 06:00:23

Jón Þór Þorvaldsson segir að menn eigi að fara efir því sem stendur í samningum (EES) og fara réttu leiðina

Þorsteinn Sæmundsson segir að það sem ríkisstjórnin hyggst gera hér í málinu feli í sér lögfræðilega óvissu. Menn þurfi þó að hafa smá kjark til að gera rétt, en hann sé varla að finna í þessari ríkisstjórn. Já segi ég: það hefur aldrei þurft kjark til að guggna og gefast upp (eins og gerðist í Icesave) 

Jón Þór Þorvaldsson segir að betra sé að fara að lögum en en að ekki sé farið að lögum. Og EES samningurinn er lög. Okkur sé skylt og rétt að fara að lögum. Vilja menn láta draga sig fyrir dómstóla eins og í kjötmálinu

Þorsteinn Sæmundsson segir ESB heilkennið sé rörsýn. Að setja allt sitt í að eiga allt komið undir álfum á niðurleið, hvers vegna að binda sig við þá. Þessi þrá að bindast þeim álfhóli á niðurleið er sú sýn. Við erum nýbúin að stíga í spínatið. Kjötmálið

Gunnar Rögnvaldsson, 24.5.2019 kl. 06:00

28 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

föstudagur, 24. maí 2019 kl. 06:01:23

Tek smá pásu, þó svo að þetta sé afar spennandi. Þorsteinn að tala um ASÍ og kjarasmninga

Gunnar Rögnvaldsson, 24.5.2019 kl. 06:02

29 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

föstudagur, 24. maí 2019 kl. 06:28:09

Jón Þór Þorvaldsson segir og fjallar um umsögn Skagafjarðar um að það sem eigi við um 500 milljónir þarna úti eigi ekki við hér hjá okkur. Já segi ég; það á reyndar hvergi við. Ekki einu sinni þarna úti

Karl Gauti Hjaltason segir að leiðin sem fær er sé að fara eftir því sem stendur í EES-samningum. Það verði fullur skilningur að fást og að hann fáist. En það þarf að sækja rétt sinn

Gunnar Rögnvaldsson, 24.5.2019 kl. 06:28

30 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

östudagur, 24. maí 2019 kl. 06:35:16

Karl Gauti Hjaltason segir að hann sé hreint ekki viss um hvar þessir fyrirvarar séu. Það sé bara bent í allar áttir en ekkert finnist. Við höfum tekið allt sem þau hafa nefnt og rökrætt það. Reglugerð sem gefin er út í Skuggahverfinu í formi reglugerðar hafi ekki lagalega þýðingu

Bergþór Ólafsson segir að honum hafði verið bent í eina fyrirvaraátt en ekkert hald sé þar að finna. Taka þarf málið af borðinu og vinna það betur

Karl Gauti Hjaltason segir og segist vilja af fullu ræða eitthvað nýtt við ríkisstjórnina í þessu máli en þetta sem núna er hér á borðinu, sé haldlaust

Gunnar Rögnvaldsson, 24.5.2019 kl. 06:35

31 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

föstudagur, 24. maí 2019 kl. 06:43:46

Birgir Þórarinsson segir að umhverfissamtök þegi alveg í þessu máli. Það sé engin stefna í þessum málaflokki og hér sé verið að byrja á öfugum enda. Stefnuleysi ríki í málaflokknum. Fjárfestar eru að kaupa upp landsvæði. Það verður að fást betri yfirsýn yfir áhrif þessa máls

Ólafur Ísleifsson segir að fyrirspurn hafi verið send til iðnaðarráðherra vegna virkjanaleyfa og fleira. Og nefnir að allskyns erlendir aðilar séu hér að kaupa upp dali og firði

Gunnar Rögnvaldsson, 24.5.2019 kl. 06:45

32 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

föstudagur, 24. maí 2019 kl. 07:04:20

Ólafur Ísleifsson segir að leit standi yfir eftir svo kölluðum fyrirvara í málinu, en enginn þessara fyrirvara finnast samt ekki. Sérfróðir hafa sagt að þeir geti ekki haft þjóðréttarlagalegt gildi

Jón Þór Þorvaldsson segir og bendir á þá þrjá milljarða sem kjötmálið með uppgufuðum fyrirvörum sem héldu ekki, kostuðu ríkið. En það séu hins vegar smáupphæðir miðað við stærð þessa máls sem hér er um að ræða

Ólafur Ísleifsson segir að fullkomlega sé mögulegt að við séum að flytja stórar byrðar yfir á herðar skattgreiðenda þegar verið er að handfjatla orkuauðlindir þjóðarinnar með þessum hætti eins og ríkisstjórnin hyggst gera hér. Já segi ég; hér eru day-traders á ferð og braskar með eigur þjóðar

Gunnar Rögnvaldsson, 24.5.2019 kl. 07:06

33 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

föstudagur, 24. maí 2019 kl. 07:17:12

Ólafur Ísleifsson segir af hverju er þetta leikhús fáránleikans í gangi hér. Fullt af fólki er í sjálfboðavinnu að leggja sig fram við að finna sannleikann í þessu máli. Já segi ég; ríkisstjórnin þegir bara eins neitar að koma fram fyrir þjóðina

Ólafur Ísleifsson segir og spyr hvernig utanríkisráðherrann geti komið svona fram í málinu. Hitt og þetta sé sagt um svo kallaða fyrirvara. Leit stendur yfir, og ráðherrann horfir bara á. Er þetta til álitsauka fyrir þetta fólk og sjálfu málinu. Heldur þetta fólk að fólkið í landinu hafi enga gagnrýna hugsun

Bergþór Ólafsson segir að talar um greinar Tómasar Inga Olrich um að hvergi komi fram að íslensk yfirvöld hafi heimildir að koma í veg fyrir framgang orkubandalagsins, það eina sem nefnt er að þeim beri ekki skylda til að vinna að lagningu sæstrengs. Barnaskapur og vitnað í pólitískar yfirlýsingar sem eru óskuldbindandi. Blasir við að menn Landsvirkjunar séu komnir framúr sér. Er hún líka komin fram úr ríkisstjórninni?

Gunnar Rögnvaldsson, 24.5.2019 kl. 07:17

34 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

föstudagur, 24. maí 2019 kl. 07:37:59

Birgir Þórarinsson segir og vitnar í umsögn Jóns Baldvins Hannibalssonar þar sem hann spyr: Mun höfnun lögleiðingu á OP3 setja EES samninginn í uppnám? Stutta svarið við því er nei. En ótímabær innleiðing (án þess að reynt sé að leita réttar síns, sennilega GR) mun hins vegar grafa undan traustinu á EES samningum hjá þjóðinni. Þess vegna mál ekki þjösnast svona við þetta

Bergþór Ólafsson segir óskynsamlegt að nálgast málið með þeim hætti sem ríkisstjórnin gerir

Birgir Þórarinsson segir að umsögn JBH sé mjög vel rökstudd. En hversu mikil umræða fór fram um hana í nefndum Alþingis?

Gunnar Rögnvaldsson, 24.5.2019 kl. 07:39

35 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

föstudagur, 24. maí 2019 kl. 08:00:41

Birgir Þórarinsson segir og vitnar í umsögn Jóns Baldvins Hannibalssonar sem segir að íslensk stjórnvöld verði að móta orkustefnu sem verndar íslenska neytendur áður en þetta OP-mál sé tekið fyrir. Þjóðin sjálf á að koma að því máli segir JBH. Já segi ég, þessi tröllríðandi húsum hér ekki hæf ríkisstjórn þríeykisins ætlar að sækja ófreskju þá sem Hjörleifur Guttormsson nefnir í sínu áliti og þvinga hana yfir okkur eins og að við séum orðin nýlenda aftur. Hvað á svona lagað að þýða?!! Skömm xD-manna í flokki mínum er að verða óendanlega stór. Þeir eru að breytast í þjóðarskömm!

Gunnar Rögnvaldsson, 24.5.2019 kl. 08:01

36 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

föstudagur, 24. maí 2019 kl. 08:06:45

Jón Þór Þorvaldsson talar um kjötsmálið og hvernig allt féll til jarðar þar eins og spilaborg

Lögreglan þyrfti að yfireyra þingmenn og láta þá sverja það af sér að ríkisstjórn Íslands sæti ekki fjárkúgun í þessu máli. Slík er framkoma hennar gagnvart þjóðinni. Svo óskiljanleg eru sinnaskipti þingmanna í þessu máli og svo óskiljanleg er þursaleg þögn þeirra

Gunnar Rögnvaldsson, 24.5.2019 kl. 08:07

37 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

föstudagur, 24. maí 2019 kl. 08:33:56

Birgir Þórarinsson segir að starfsmenn Alþingis hafi sagt að lykillinn að því að endurheimta traust þjóðarinnar á Alþingi sé að finna hjá stjórnmálamönnum

Þorsteinn Sæmundsson segir aðvörun Miðflokksmanna í þessu máli sér massíf. Já massíf

Karl Gauti Hjaltason segir að í þessu máli sé að finna slíkt valdaframsal að hér verði Stjórnarskrá Íslands brotin

Þorsteinn Sæmundsson segir að hér komi fram ein þversögnin enn. Að ríkisstjórnin líti á lögfræðileg álit sem hlaðborð sem hægt sé að velja úr. Þarna á að ýta vandamálinu á undan sér. Slæm aðferð við flest, en afleit við löggjafarstarfið

Gunnar Rögnvaldsson, 24.5.2019 kl. 08:34

38 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

föstudagur, 24. maí 2019 kl. 08:42:33

Karl Gauti Hjaltason segir upphaf málsins sé að finna hjá ESB (ekki hér), svo er það sent til EFTA ríkjanna. Þar er tækifæri til að fá undanþágur. Og sé þess óskað þá flagga EES-löndin rauðu. Þetta er flókið lagaverk. Þegar flaggað er þá þýðir það að við ætlum að fá samþykki hjá Alþingis (og þar með hjá þjóðinni, sem ekki er gert hér). Og svo leggur ríkisstjórnin þetta risavaxna mál fram á VORDÖGUM !! Flestar umsagnir eru neikvæðar (og þjóðin er á móti) . En þríeykið hlustar á enga og ekkert og það hlustar ekki á bakland sinna flokka. Hlustar ekki á sína lagaspekinga

Gunnar Rögnvaldsson, 24.5.2019 kl. 08:43

39 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

föstudagur, 24. maí 2019 kl. 09:04:11

Karl Gauti Hjaltason segir að leitin að lagalega fyrirvaranum standi yfir. Í hans ungdæmi var leikur sem hét skuggaleikur þar sem bundið var fyrir augu og sá átti að leita. Svona er leitin að fyrirvörunum. Skuggaleikur einn

Gunnar Rögnvaldsson, 24.5.2019 kl. 09:05

40 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

föstudagur, 24. maí 2019 kl. 09:06:10

Forseti slítur fundi 17 tíma þingfundi og málinu er frestað 

Þingforseti ætlar greinilega úr þessu að reyna að keyra málið á kostnað þjóðarinnar, ríkisstjórninni til gróða, en sem er umboðslaus í þessu máli. Eins og hann var umboðslaus þegar hann sveik kjósendur sína 2009

Gunnar Rögnvaldsson, 24.5.2019 kl. 09:07

41 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

föstudagur, 24. maí 2019 kl. 10:01:22

Ég hjó eftir því að Matthías Johannessen fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins sagði að útrásarvíkingaliðið sem hér reyndi að tæma alla sjóði landsins (og gerði það) og hegðaði sér eins og útlendingar, hefði aðeins verið framhald á nýlendukúgun Dana hér á árum áður.

Svo virðist sem að þetta eigi einnig við það fólk sem er ríkisstjórn Íslands núna. Enda er þetta að mörgu leyti aðeins framhaldslíf fyrir þá sem klöppuðu þá mest: Hér er Matthías með þetta

PWRSYSDWN

SIGNOFF

Gunnar Rögnvaldsson, 24.5.2019 kl. 10:03

42 identicon

Enn og aftur

kærar þakkir fyrir rapportið Gunnar. 

Og sömuleiðis fyrir snilldarlegar hugleiðingar þínar og innskot í tengslum við þetta mál. 

Ég er orðinn þess fullviss að Sjálfstæðisflokkurinn mun enda sem dvergflokkur vegna þessa máls og Framsóknarflokkurinn þurrkast út af þingi.

Miðflokkurinn hefur eflst gríðarlega í áliti við varðstöðuna í þessu máli og það fyrir hönd um 63% kjósenda. 

Miðað við að 52% Breta kusu Brexit, og Brexit Party fái líkast til um 37% fylgi,

þá geta menn rétt ímyndað sér hvert fylgi Miðflokksins gæti orðið með því að ganga einungis erinda meirihluta kjósenda hér á landi í máli sem er þjóðinni mjög heitt og kært:  Að láta ekki ræna þjóðina yfirráðum yfir eigin orkuauðlindum.   

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 24.5.2019 kl. 10:07

43 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér Símon Pétur.

Já ég tek undir með þér um Miðflokkinn. Þingflokkur þeirra er ekkert smávegis afl, verð ég að segja. Þetta hefur verið lærdómsríkt fyrir mig. 

Theresa May hefur sagt af sér. Henni verður hent út 7. júní, sennilega á hádegi, sem bæði forsætisráðherra og formanni breska Íhaldsflokksins. Það sama þyrfti að gerast í Valhöll, strax!

Hún er fimmti forsætisráðherra Bretlands í röð sem segir af sér vegna ESB-mála! Baneitruð blanda og hún er að gerast hér hjá okkur líka.

ESB-drepur öll stjórnmál allra landa vegna þess að sambandið gerir þau upptæk með því að þjóðnýta þau í þágu eins ákveðins málsstaðar: Samruna Evrópu. Öll önnur stjórnmál eru óheimil og allar aðrar skoðanir eru bannaðar en stjórnmál, skoðanir og lífsmáti sem samræmast samruna. Og lög sambandsins heimila heldur ekkert annað en samruna. Réttindi borgaranna eru ekki til, ef þau stangast á við samruna Evrópu. Það sér Evrópudómstóllinn um. Og þannig eru lög hans og túlkanir.

Þetta er nýtt Sovétríki í smíðum. Þar er því allt á leið í loft upp - eina ferðina enn.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 24.5.2019 kl. 11:24

44 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

En Bretland var aðeins of stórt og sjálfstætt fyrir ESB-kumbaldann: A bridge too far

Enda eyjar.

Það eina sem gildir er Atlantshafs andinn og sáttmálinn!

The Atlantic spirit- and charter!

Gunnar Rögnvaldsson, 24.5.2019 kl. 11:29

45 Smámynd: Eggert Guðmundsson

Ég er búinn að sitja yfir og hlusta á málflutning Miðflokksmanna á Alþingi hef sannfærst fullkomlega á þau rök sem þeir hafa fært fram gegn því að staldra við og fara betur yfir þetta mál.

Það hefur vakið furðu mína að enginn þeirra þingmanna sem eru samþykkir þessum Orkupakka 3 hafi ekki látið sjá sig í þingsal í þessum umræðum Miðflokksmanna og reynt að sannfæra þá og benda þeim á hvar þeir vaða í villu vegar.

Meirihluti þingmanna virðast hafa sannfæringu sína án neinna hnökra og ætla að samþykkja þetta valdaframsal sem felst í í þessum Orkupakka 3.- Þessir þingmenn virðast ekki hafa neina getu til að koma meðrök sín fyrir samþykki sínu á þessum pakka.

Nú hefur Forseti Alþingis setið alla þessa umræðu og hlustað á þau málefnanlegu rök Miðflokksmanna í næstum 70 klst og ef það er einhver snefill af einnhverri skynsemi sem fynnst í kolli hans, þá ætti hann að sjá sóma sinn í því að afturkalla þetta mál og setja það aftur til nefnda, til að fjalla um þau rök sem Miðflokksmenn hafa fært fram gegn samþykki þessa Orkupakka 3.

Eggert Guðmundsson, 24.5.2019 kl. 12:25

46 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér fyrir Eggert

Já þríeyki ríkisstjórnarinnar kann að leggja málin fram. Hún leggur það fram þegar loksins sólin byrjar að skína á þjóðina að vori til, og á  Eurovisiontíma, og svo heldur hún að allt sé bara í himna lagi. En allir vita samt hver hugur þingmanna til þessa máls var upphaflega. Hann var svartur.

Það er greinilegt að þríeykið heldur að bankabóluárin og dagar day-traders séu enn. En nú er ekki árið 2002. Það er árið 2019 EFTIR HRUN! þess fíflagangs.

Og það sem er enn fáránlegra er að til dæmis Björn Bjarnason sem árið 2002 sagði að ekki mætti innleiða orkupakka1+2, berst allt í einu fyrir því núna. Og nú þegar þessi sérpantaði og innflutti svo kallaði sérfræðingur segir að við séum bara taglhnýtingur Noregs í EES þá skrifar Björn það í dag að Miðflokknum sé farstýrt frá Noregi, en þegar það er ljóst að það er sjálfri ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks, Framsónar og Vinstri grænna sem er stjórnað frá Ósló í Noregi.

Þetta fer að nálgast svo mikið geggjunarstig þetta mál þríeykisins að gapastokkur fer að vera það eina sem setja á hana í við Austurvöll. Þetta eru alveg hroðaleg óheillindi sem þarna eru viðhöfð. Óheillindi, blekkingar og eins konar samsæri meðal þingmanna þríeykisins gegn þjóðinni.

Og svo er ruglað um fyrirvara sem rétt í þessu eru nýfallnir í samskonar eða sama eðlis máli.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 24.5.2019 kl. 13:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband