Leita í fréttum mbl.is

Brjálaður seðlabankastjóri baðst afsökunar

Operating expenses of private pension systems in selected OECD countries 2016

Mynd OECD: best reknu lífeyrissjóðir heimsins eru íslenskir. Umræða hér

****

BRJÁLAÐUR SEÐLABANKASTJÓRI

Donald Trump var gagnrýndur harðlega fyrir að segja að hann væri með "brjálaðan" seðlabankastjóra, sem hækkaði bara og hækkaði stýrivexti. Heimspressan stóð á öndinni. Hvernig dirfðist þjóðkjörinn og uppréttur maður að gagnrýna ókjörinn embættismann. Jæja nú er komið í ljóst að Trump hafði rétt fyrir sér og seðlabanastjórinn baðst afsökunar á að hafa lesið hagkerfið vitlaust. VB og WSJ eru með þetta (bæði þó fjandsamleg Trump):

1. Powell tekur u-beygju 2. The Fed Apologizes

Þar á undan var Donald Trump gagnrýndur heiftarlega fyrir að kenna demókrataleiddu Kaliforníufylki um að 14 þúsund heimili brunnu til grunna og að 86 manns misstu lífið vegna kæruleysis. Nú er komið í ljós að raforkufyrirtækið kveikti í vanhirtum skógum kerlingaflokks Demókrata og sætir ákærum fyrir að hafa kveikt 1500 elda í púðurtunnum umhverfisbjána flokksins. Fyrirtækið er því á leið í gjaldþrot í fylki Kaliforníu, sem þiggur 1/3 af öllum félagsmálaútgjöldum ríkisstjórnar Bandaríkjanna, sem eins konar bandarískt Venus-Súellen með ólöglega einkaþræla frá Mexíkó. Karlmenn eru eins og allir vita frá Mars og jafna skóga við jörðu, með glans

Krækja: PGE Sparked at Least 1,500 California Fires. Now the Utility Faces Collapse (2017) og rannsóknin vegna eldanna 2018 er í gangi, með horfum á sömu niðurstöðu

Fyrri færsla

Hvað segja bresk lög um Brexit?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þetta hlýtur að verða fyrsta fréttin á RÚV í dag.cool

Sigurður Bjarklind (IP-tala skráð) 3.2.2019 kl. 12:41

2 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér Sigurður.

Það góða við kjör Trumps er það að almenningur veit nú, tveimur árum síðar, staðfastlega hversu illa innrættir, lélegir, falskir og óheiðarlega-krónískt vinstri-pólitískt-pervertir helstu fjölmiðlar landa þeirra eru.

Í Bandaríkjunum var þessi grunur alltaf mjög svo djúpt til staðar í bakhöfðum þjóðarinnar frá því að vinstrisinnaðir fjölmiðlar þess lands drógu bandarísku þjóðina á tálar í því sem þá var kallað Watergate-hneykslið, og hröktu úr embætti réttkjörinn forseta landsins sem aldrei í sögunni hafði sigrað eins stórt í kosningum, og gerði það vegna dugnaðar og hugrekkis. Því hefur þjóðin ekki gleymt. Hún var dregin á tálar og fjölmiðlar landsins sviku hana.

Það þurfti því ekki mikið til að bandaríska þjóðin sæi í gegnum svikavef fjölmiðla þegar að síðustu forsetakosningum kom.

En eftir kjör Trumps hefur hið sanna svo verið neglt niður með sjö tommu saum meðal bandarísku þjóðarinnar. Fjölmiðlar eru óheiðarleg fyrirbæri, nema í örfárum undantekningartilfellum, segir þjóðin. Þeim er ekki treyst og þeim ætti heldur enginn að treysta.

Þetta er regla sem almenningur hér á landi veit að gildir alveg sérstaklega um DDRÚV-ríkisfjölmiðil vinstrimanna, sem þjóðin er kúguð og pyntuð til að halda uppi.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 3.2.2019 kl. 16:17

3 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þegar ég tala um illa innrætta, lélega, falska, óheiðarlega og krónískt vinstri-pólitískt-perverta fjölmiðla þá á ég við, svo ég nefni aðeins örfá tilfelli af þúsund, að þeir flagga til dæmis í hæstu stöng geðvilltri Madonnu sem sagðist ætla að sprengja Hvíta húsið í loft upp og skeinir sig á bandaríska fánanum, og svo til dæmis svörtum rappara sem sker hvítan mann á háls í garði Hvíta hússins og svo blaðamönnum sem líkja fundi Trumps og Pútíns í Helsinki við árásina á Perluhöfn, þar sem 3000 manns misstu lífið, og svo til dæmis ritstjórn New York Times sem segir á bloggi að vonandi hætti hvíti maðurinn að eignast börn svo hann deyi út.

Mest allt hið steingelda og náttúrulausa Hollywood-lið allra landa sem skorið hefur af sér gagnslaus kynfærin og látið líma þau framan á klesst andlit sín sem plastfyllingar, er einn stærsti bakvörður hins geggjaða liðs svo margra fjölmiðla.

Þetta perverta lið líkir stanslaust réttkjörnum forseta þjóðarinnar við Adolf Hitler, sem lét myrða sex milljónir Gyðinga með ísköldu mati hinnar endanlegu lausnar. Stærstur hluti þessa fólks þolir ekki hugrekki þegar það sér það og hatast því við Ísrael fyrir að verja sig og borgara sína.

Nýtt Gyðingahatur vex eins og gorkúluskógur meðal þessa vinstra pakks og það reynir ekki einu sinni að fela það, því það þykist jú vera svo heilagt að það treystir því að það komist upp með allt í sínu helsjúka fjölmiðlaveldi. 

Þetta voru bara örfá dæmi um hið helsjúka vinstra-perverta fjölmiðlalið Vesturlanda.

Gunnar Rögnvaldsson, 3.2.2019 kl. 17:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband