Leita í fréttum mbl.is

Liggur ESB-óðaverðbólga í kortunum ?

Cleveland Fed - Dollar liquidity Swaps

Mynd, Seðlabanki Bandaríkjanna í Cleveland: dölum veitt út í skiptum (PDF). Þorrinn af dölum fór í að bjarga evrusvæðinu, tvisvar!

****

ÓÐAVERÐBÓLGA PÓLITÍSKRA HUGMYNDA

Það fer lítið fyrir því í sögubókum samtíðarinnar að óðaverðbólgan í Þýskalandi frá og með 1922 sé sett í rétt samhengi við staðreyndir. En þá reyndi þýska ríkið að brenna skuldbindingar Versalasamningsins burt með verðbólgu. Reynt var að greiða stríðsskaðabætur með verðlausum peningum. Þýski seðlabankinn sat við stýrið. Þetta byrjaði með því að dalurinn kostaði 4,2 mörk sumarið 1914, 192 mörk í janúar 1922, en tveimur árum síðar þurfti fjögur þúsund og tvö hundruð milljarða af mörkum til að kaupa einn dal. Þessir verðlausu peningar voru um tíma sendir til Bandamanna sem greiðslur. En svo var leikurinn stöðvaður og gullmarka krafist

Hún fer heldur ekki hátt sú rannsókn sem Ashoka Mody og Milan Nedeljkovic birtu niðurstöður úr á vox-eu þann 14. janúar 2019, þar sem niðurstaðan er sú, að það var fyrst og fremst seðlabanki Bandaríkjanna, en ekki ECB, sem bjargaði evrusvæðinu frá hruni og tortímingu í fjármálakreppunni sem hófst 2007, og náði á evrusvæðinu hámarki árið 2012-2013. Niðurstaða Mody og Nedeljkovic er þessi:

Dollar liquidity was a very particular need. By alleviating the dollar shortage, the Fed made a significant contribution to the euro areas stabilisation. In contrast, the ECB’s euro liquidity to banks, by its very design, did little to create confidence in economic prospects. While the liquidity did bring temporary calm, it increased the risk-taking incentives of banks. The active, stimulative measures lacked clarity of strategy. Hence, markets had no reason to expect that such measures would continue, particularly since they often seemed to react to bad news rather than establish a forward-looking purpose. Not surprisingly, they did little to help.

Ekkert handbært yfirvald á evrusvæðinu var fært um að skapa skilyrði fyrir því að eftirspurn kæmist þar í gang, enda er hið efnahagslega svarthol jarðar -Þýskaland- sjálf vélin í evrunni. En það land lifir á því að soga til sín eftirspurn sem önnur ríki jarðar skapa. Eins og kunnugt er þá er ekki hægt að byggja sólkerfi á sporbraut um svarthol, og þess vegna er evrusvæðið eins og það er: steinrunnin 1920-kreppa til enda tímans

Mody og Nedeljkovic segja því:

While euro liquidity was a potentially stabilising influence, the real constraint to the euro areas economic recovery was a lack of demand. Unable to lend profitably to healthy borrowers, banks used cheap ECB liquidity to engage in a "carry trade"

Og eins og Sigurður Már Jónsson blaðamaður benti á um daginn, þá er Ashoka Mody "enginn venjulegur hagfræðingur"

Enn, tólf árum síðar, eru engir heilbrigðir lántakendur til í Suður-Evrópu. Þeir eru varnalega skaðaðir vegna þess að þeir eru á evrusvæðinu, og geta ekki nýtt sér nýtt fjármagn. Þeir eru hættir að anda og öndunarfæri þeirra eru ónýt af því að Þýskaland trampaði þau ónýt; þau voru utanáliggjandi

Á einn eða annan hátt, þegar evran hrynur, verður að greiða billjón evra greiðsluhallann í TARGET2 kerfi evrunnar. Óþarfi er að gera ráð fyrir því að Þýskaland fái áfram eitt að hafa notað verðbólgutrixið úr 1920-bókinni, og alveg sérstaklega ekki, þar sem það er sjálft Þýskaland sem endurskapað hefur 1920-ástandið sem ríkt hefur í 12 ár og ríkir enn á evrusvæðinu

Það voru sem sagt gjaldmiðlaskiptalínur Seðlabanka Bandaríkjanna sem komu í veg fyrir að evrusvæðið hrundi og að gjaldeyrishöftum og peningaskömmtun væri skellt á alla íbúa og fyrirtæki evrusvæðis. Grikkland og Kýpur fengu þó þær ESB-gjafir evrunnar í forgjöf, frá einmitt því rústasvæði sem sumir menn á Íslandi vilja að þvingi markaðssvartnætti ESB-útópíunnar í gegn yfir íslenskan raforkumarkað og íslensk raforkufyrirtæki. Þeir menn eru sannarlega steinrunnir afglapar sem vita ekkert hvað þeir eru að gera, frekar en þeir sem stofnuðu til evrunnar

Enginn vafi er á því að hinn þýski þjóðarsósíalismi (nasismi) kostaði Evrópu fleiri mannslíf en allt annað. En það verður samt hugmyndin um Evrópusambandið og evruna sem hafa mun vinninginn í efnahagslegu tapi- og eyðileggingu fyrir flest ríki álfunnar. Brostið líf kynslóða í galinni hugmynd elíta heldur áfram.. þar til þið vitið hvað gerist næst

Fyrir helgi voru hagvaxtarhorfur Þýskalands niðurskrifaðar í eitt prósent úr 1,8 og Brexit kennt um. Í Þýskalandi er ávallt allt öllum öðrum að kenna en svartholinu sjálfu. Tekur Victor Davis Hanson undir það í Hið stóra hrun Þýskalands

Fyrri færsla

Brjálaður seðlabankastjóri baðst afsökunar


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Lárus Ingi Guðmundsson

Þegar evran var sett a stofn að þa var þyska markið að fara að hrynja a gjaldmiðla morkuðum og linuritið hafði þa og þegar verið a niðurleið eftir sameiningu austur og vestur þyskalands..þa var hugmynd um að setja evruna af stað og losa sig við þyska markið og þannig að þa naðu þjoðv að dreifa oða verðbolgunni sem annars hefði drunið a þyskalandi yfir a hin Esb londin enda hækkaði verð a vorum þar næstum alstaðar i fyrstu m upptoku evrunnar.

ESB Er vatikanið og Brusel er stjornað af kaþolsku kirkjunni i Austurriki sem er með beina simal inn i Rom og þaðan in i washington DC sem er vatikanið og það skyrir siðan af hverju FED i Usa bjargaði evrusvæðinu.. allt a kostnaæ almennings i USa sem borgar brusan en hagsmunir vatikansins vega altsf þyngra en þjoðrikjana..

Nazi Hitler var lika stjornað af kaþolsku kirkjunni i Austurriki með simalinu til Romar og þaðan til washingt DC ..

2 heimstyraldir og altaf fekk PAFIN og ROM að vera u friði. ??*

Federal reserve i USA er Vatikanið sem var að lokum s heimstyr komin með 75 pros af olum gullf heimsins undir sina stjorn.

Hvaðan skyldi þ hafa komið.

Allt vatikanið..

Kv

Lig

Lárus Ingi Guðmundsson, 5.2.2019 kl. 00:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband