Leita í fréttum mbl.is

Selja Rússar vinum sínum rusl? Eða eru vinir þeirra drasl?

Stærðarhlutföll K25-byggingarinnar

Mynd: Fjögurra hæða og þrjú þúsund vinnslu-þrepa úraníum K25-skilvindu-byggingin í Oak Ridge árið 1944 í Bandaríkjunum -þá stærsta og flóknasta bygging veraldar- sett í hlutfall við stærð Tjarnarinnar. Stóð klár og komin í notkun 18 mánuðum eftir fyrstu skóflustungu. Stræð: 2,7 milljón rúmmetrar. Barnaskólakennari útskýrir málið. Hér er einnig 9mb fróðleikur á PDF-sniði. En sjóleiðina til Oak Ridge stöðvarinnar verður kjarnorkuvopnaprógramm Norður-Kóreu flutt til gereyðingar. Vísindamenn Norðursins verða hins vegar fluttir á hassbúllu sem skolar úr þeim heilanum

****

Ísraelska varnarmálaráðuneytið hefur sent frá sér myndskeið þar sem ísraelski flugherinn grandar án sýnilegra erfiðleika rússneskt framleiddu Pantsir-S1 loftvarnarkerfi í höndum Írans í Sýrlandi. Framleiðandinn, Rússland, afsakar sig með því að segja að þeir sem stjórnuðu Pantsir-S1 kerfinu, hafi ekki farið rétt að og sýnt af sér kæruleysi. Rússar hafa um tíma haldið því fram að loftvarnarkerfi þeirra séu þau "bestu í heimi"

Auðvelt er að sjálfsögðu að segja slíkt, þar sem raunveruleikinn er oftast annar en áætlað og auglýst er. Lofvarnir eru háðar ratsjárkerfum og bendir margt til þess að rússneskar ratsjár séu ekki það sem þær eru sagðar vera, og ráði því ekki við þann raunveruleika sem ekki var auglýstur

Margir tóku eftir því um daginn er Bandaríkin, Bretland og Frakkland gerðu árás á efnavopnastöðvar í Sýrlandi -sem Rússar sjálfir virðast hafa notað til árása- að ríkin þrjú töldu það ekki þess virði að taka fyrst út neinar rússneskt framleiddar loftvarnir á jörðu niðri. Löndin þrjú sendu bara lágt fljúgandi flugskeyti sín beint á skotmörkin og komust þau vel til skila, án borgaralegs mannfalls

Af þessu má læra að flókin vesturlensk vopn í höndum þeirra sem framleiða þau, eru allt annar hlutur en flókin vopn í höndum vina á Neanderthalsstigi. Nú orðið segja vinir Rússlands meira um stöðu Rússlands í heiminum en um stöðu vinanna. Nema, að sjálfsögðu, að Rússar framleiði rusl

Fyrri færsla

Sektarkennd Þýskalands hefur tekið stökk (breytingum)


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Borgþór Jónsson

 Varðandi myndina.

Að eigin sögn hafa Bandaríkjamenn ekki tæknilega getur til að eyða kjarnorkuvopnum. Það er ástæðan fyrir að þeir hafa ekki staðið við samning um eyðingu plutons til sprengjugerðar. Þetta er því nokkuð digurbarkalega mælt hjá þér.

Rússar aftur á móti,sem eru bæði orðheldnir og tæknilega þróaðir byggðu strax stöð til að eyða sínu Plutoníum. Því er lokið fyrir nokkru.

Það verður að segja Putin til hróss að hann stendur við það sem hann segir,hvað sem það er.

Til dæmis þegar hann hringdi í Sakaswhili og sagði honum að hann mundi koma kl. 10 og byrja að eyða hernum hjá honum. Hann mundi stoppa við í fimm daga.  Sakaswhili eyddi því sem eftir var af deginum í að borða hálsbindið sitt ,og hugsa um ,að hann hefði kannski ekki átt að sprengja upp Rússnesku friðargæsluliðana. Putin var mættur á slaginu og kláraði það sem hann hafði lofað. Það er ekki skrítið að almenningur beri meira traust til hans en nokkurs annars þjóðhöfðingja,í dag. Orð skulu standa ,eins og Dr. Jón Helgason var vanur að segja.

Sama gegnir um ISIS. Þegar Bandaríkjamenn voru búnir að sprengja í 16 mánuði,án þess að hitta nokurntíma ,bauðst Putin til að hjálpa ef Bandaríkjamenn lofuðu að vera ekki fyrir. Enn þann dag í dag ,veit enginn hvað varð um sprengjurnar sem Bandaríkjameenn hentu niður. Þó er vitað með nokkrurri vissu að þessi eina árásaferð sem F 22 herþotan fór ,endaði með að hún sprengdi upp gamla hlöðu og drap asnann sem hafði verið hýstur þar yfir blá nóttina. Þetta tafði síðan vopnasendingu sem CIA var að koma til ISIS,enda asninn ógöngufær í marga daga.

Þotan er enn í viðgerð,enda þessar þotur með eindæmum viðhaldsfrekar. Flugmaðurinn er hinsvegar á gjörgæslu af því að flugmenn þessara véla geta ekki andað meðan á flugferð stendur.

Putin stóð hinsvegar við sitt og eyddi ISIS og öðrum hryðjuverkasamtökum í landinu. Nusra Front og önnur minniháttar samtök fylgdu með í kaupbæti,án sérstakrar gjaldtöku.Meðan á aðgerðum stóð þuftri hann samt að setja upp loftvarnakerfi af því að Bandaríkjamenn voru stöðugt að flækjast fyrirog stafaði nokkur hætta af þeim þegar þeir ösnuðust í veg fyrir Sukhoy vélarnar. Það var engu líkara en þær væru ekki með radar. Þetta var sérlega bagalegt fyrir Sukhoy 35 vélarnar af því að Bandarísku vélarnar eru svo hægfleygar. 1970 árgerðin af Sukhoy 24 var í minni hættu í þessari hægu umferð. Fljótlega hættu Bandaríkjamenn þó að fljúga og fóru í viðgerðarhlé.

Þessi ósköp enduðu svo með því að Trump fékk leyfi hjá Putin til að sprengja upp þrjá mannlausa húskofa með því fororði að Trump mundi ekki drepa neinn. Trump skaut samviskulega á húskofana,en gat ekki stillt sig um að svíkja það sem hann hafði lofað og skaut nokkrum eldflaugum í áttina að flugvelli í grenndinni. Þessar eldflaugar voru að sjálfsögðu skotnar niður ,og Trump fékk tiltal.

Nú er svo komið að það eru engir hryðjuverkamenn í landinu  nema á séstöku verndarsvæði fyrir hryðjuverkamenn sem Pentagon rekur í norðanverðu ríkinu. Nú standa yfir samningar um að láta þá lausa svo að það sé hægt að berjast við þá ,án þess að slasa Bandaríska hermenn í leiðinni. 

Borgþór Jónsson, 20.5.2018 kl. 22:23

2 Smámynd: Borgþór Jónsson

Varðandi myndbandið.

Þetta myndband sýnir hvað það er hættulegt að reykja og ætti að vera skylda að sýna það í öllum grunnskólum landsins. Og að sjálfsögðu í herbúðum Sýrlendinga.

Svona getur þetta farið illa.

Borgþór Jónsson, 20.5.2018 kl. 22:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband