Þriðjudagur, 3. apríl 2018
Með kveðju frá Rússlandi
Mynd: tímaritið Economist. "Olíuverð og sovésk/rússnesk stjórnmál". Nánar hér
****
Það er greinilegt að fyrir dyrum í Rússlandi standa stórir og alvarlegir hlutir. Rússland skildi nafnspjald sitt eftir í Salisbury í Bretlandi um daginn, til að tryggja hamrandi fréttaflutning og aðgerðir sér í útvortis óhag, en innvortis í hag. Á rússneska nafnspjaldinu stóð: svona fer fyrir þeim Rússum og fjölskyldum þeirra sem svíkjast undan merkjum á næstu mikilvægu árum. Við erum að skrifa reglubókina upp á nýtt, þar sem gömlum óskrifuðum reglum er hent út. Það er að okkar mati nauðsynlegt því svo mikið og stórt stendur fyrir dyrum á næstu árum. Á komandi árum berst Rússland fyrir tilvist sinni í núverandi mynd. Við stöndum afar illa. Okkur hefur mistekist að umbylta hagkerfinu, við erum enn að mestu í vösum afla sem við sjálfir ráðum engu um; þ.e. heimsmarkaðsverði á olíu, sem Bandaríkjamenn hafa rústað með enn einni af sinni nýju fjandans tækni. Almenningur er í sívaxandi mæli að missa þolinmæðina og trú hans á framtíð landsins er orðin mjög slöpp, miðað við bóluárin þegar olíuverð fór hækkandi í samfellt 15 ár. Undanfarið höfum við einungis haft efni á lyklaborðsaðgerðum í utanríkismálum og einni lágvöru-hersýningu í Sýrlandi. Ef olíuverð hefði ekki tekið upp á því að byrja að hrynja í september 2013 og fara fram af brúninni sumarið 2014, þá hefðum við haft efni á meiru. Við hefðum þá haft meiri peninga á milli handanna til að senda út í jaðra sambandsríkisins (stuðpúðana) og við hefðum þá sennilega nú þegar haft efni á Úkraínu, undir okkar formerkjum. Tveir þriðju hlutar ríkisfjárlaga okkar komu frá orkugeiranum
Mynd: Olíuútflutningur Bandaríkjanna, þúsundir tunna á dag: Banabiti OPEC og félaga. Um leið og olíuverð hækkar koma bandarískir olíubrunnar on-line og þrýsta því niður á ný. Og break-even kostnaðarmark þeirra fer sífellt lækkandi
****
Allir menn vita að um leið og Vladímír Pútín komst til valda árið 2000, þá breyttist Rússland og varð nokkuð samt við sitt gamla á ný. Það varð á ný hart og stjórnmálin urðu harðneskjuleg. Á komandi árum verða tónarnir sem frá Rússlandi koma, mjög svo harðir. Mikið liggur við og þeir sem svíkja það stóra prógramm sem við erum við það að gangsetja, já, svona fer fyrir þeim. Þetta tilkynnist hér með öllum. Rússland er og verður alltaf harðbýlt land og ríki, haldið saman af KGB-stofnunum
Og nú er loftið líka að fara úr Kína. Það mun hjaðna eins og Japan hjaðnaði frá því að vera 17 prósent af heimshagkerfinu 1989 og niður í sex prósentin sem það er í dag. En Japan stendur þó betur að vígi en Kína, því það hefur ekki þúsund milljón fátæklinga hagandi um háls stjórnvalda, sem ofaní kaupið byggja allt sitt á einræðisvaldi
Rússland et. al. eru þrjú misheppnuð ríki sem komin eru með eilífan forseta sem er sonur sólarinnar: Rússland, Kína og Norður-Kórea. Þvílík þrenna maður
Fyrri færsla
Pólland kaupir bandarískt Patriot-eldflaugavarnarkerfi
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkur: Evrópumál | Breytt s.d. kl. 14:03 | Facebook
Nýjustu færslur
- Lánshæfnismat Frakklands lækkað. Heil 25-35 ár af hergagnafra...
- Frakkland gæti gengið í Evrópusambandið og tekið upp evru
- Samfylkingin fékk 3,4 prósentum meira en Vinstri grænir
- "Stórgögn" og "gervigreind" hafa lítið fært okkur
- Ísrael er búið að vinna stríðið í Líbanon
- Natópóleon beinapartur
- Rússland nú fjórða stærsta hagkerfi veraldar. Lánshæfnismat F...
- Ég óska Bjarna Ben til hamingju og velfarnaðar
- Víkingar unnu ekki. Þeir "þáðu ekki störf"
- Engir rafbílar segir Apple
- Grafa upp gamlar sprengjur og senda áleiðis til Úkraínu
- Geðsýki ræður NATÓ-för
- "Að sögn" háttsettra í loftbelg
- Skuldir Bandaríkjanna smámunir miðað við allt hitt
- Forsetinn og meiri-hluta-þvættingurinn
Bloggvinir
- Heimssýn
- Samtök Fullveldissinna
- ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE
- Guðmundur Jónas Kristjánsson
- Ragnhildur Kolka
- Hannes Hólmsteinn Gissurarson
- Haraldur Hansson
- Haraldur Baldursson
- Páll Vilhjálmsson
- Halldór Jónsson
- Valan
- Samstaða þjóðar
- Frjálshyggjufélagið
- Sigríður Laufey Einarsdóttir
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Jón Valur Jensson
- Samtök um rannsóknir á ESB ...
- Kolbrún Stefánsdóttir
- Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
- Jón Baldur Lorange
- Guðjón E. Hreinberg
- Jón Ríkharðsson
- Anna Björg Hjartardóttir
- Loftur Altice Þorsteinsson
- Valdimar Samúelsson
- Fannar frá Rifi
- Bjarni Jónsson
- Sigurður Þorsteinsson
- Gunnar Ásgeir Gunnarsson
- Haraldur Haraldsson
- Örvar Már Marteinsson
- Kristin stjórnmálasamtök
- Gestur Guðjónsson
- Ingvar Valgeirsson
- Predikarinn - Cacoethes scribendi
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Guðmundur Helgi Þorsteinsson
- Lísa Björk Ingólfsdóttir
- Bjarni Kjartansson
- Bjarni Harðarson
- Guðrún Sæmundsdóttir
- Sveinn Atli Gunnarsson
- gudni.is
- Gústaf Adolf Skúlason
- Tryggvi Hjaltason
- ESB
- Marinó G. Njálsson
- Baldvin Jónsson
- Elle_
- Sigurbjörn Svavarsson
- Emil Örn Kristjánsson
- Johnny Bravo
- Jón Finnbogason
- Rýnir
- Þórarinn Baldursson
- P.Valdimar Guðjónsson
- Már Wolfgang Mixa
- Ívar Pálsson
- Júlíus Björnsson
- Guðjón Baldursson
- Baldur Fjölnisson
- Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
- Einar Ólafsson
- Sigríður Jósefsdóttir
- Vilhjálmur Árnason
- gummih
- Sveinn Tryggvason
- Helga Kristjánsdóttir
- Jóhann Elíasson
- Baldur Hermannsson
- Kristinn D Gissurarson
- Magnús Jónsson
- Ketill Sigurjónsson
- Birgitta Jónsdóttir
- Axel Jóhann Axelsson
- Þorsteinn Helgi Steinarsson
- Aðalsteinn Bjarnason
- Magnús Þór Hafsteinsson
- Erla Margrét Gunnarsdóttir
- Sigurður Sigurðsson
- Þorsteinn H. Gunnarsson
- Haraldur Pálsson
- Sveinbjörn Kristinn Þorkelsson
- Bjarni Benedikt Gunnarsson
- Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
- Ægir Óskar Hallgrímsson
- Helgi Kr. Sigmundsson
- Óskar Sigurðsson
- Tómas Ibsen Halldórsson
- Axel Þór Kolbeinsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Hörður Valdimarsson
- Adda Þorbjörg Sigurjónsdóttir
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Margrét Elín Arnarsdóttir
- Ásta Hafberg S.
- Erla J. Steingrímsdóttir
- Helena Leifsdóttir
- Agný
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Jón Árni Bragason
- Jón Lárusson
- Högni Snær Hauksson
- Kristján P. Gudmundsson
- Kristinn Snævar Jónsson
- Sigurður Ingólfsson
- Rakel Sigurgeirsdóttir
- Sigurður Þórðarson
- S. Einar Sigurðsson
- Pétur Steinn Sigurðsson
- Vaktin
- Sigurjón Sveinsson
- Dóra litla
- Arnar Guðmundsson
- Jörundur Þórðarson
- Rafn Gíslason
- Hjalti Sigurðarson
- Kalikles
- Vésteinn Valgarðsson
- Bjarni Kristjánsson
- Egill Helgi Lárusson
- Gunnar Skúli Ármannsson
- Halldóra Hjaltadóttir
- Jón Pétur Líndal
- Guðmundur Ásgeirsson
- Reputo
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Sigurður Sigurðsson
- Ólafur Als
- Friðrik Már
- Gísli Sigurðsson
- Sigurður Einarsson
- Rauða Ljónið
- Sumarliði Einar Daðason
- Gísli Kristbjörn Björnsson
- Kári Harðarson
- Sigurður Antonsson
- Valdimar H Jóhannesson
- Rósa Aðalsteinsdóttir
- Dagný
- Guðmundur Pálsson
- Jakob Þór Haraldsson
- Birgir Viðar Halldórsson
- Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
- Tíkin
- Jón Þórhallsson
- Íslenska þjóðfylkingin
- Erla Magna Alexandersdóttir
- Óskar Kristinsson
- Dominus Sanctus.
- Ingólfur Sigurðsson
- Jón Þórhallsson
Tenglar
Hraðleiðir
- www.tilveraniesb.net www.tilveraniesb.net Vefsetur Gunnars Rögnvaldssonar
- www.mbl.is
- Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir
- Bréf frá Jerúsalem - Yoram Hazony Yoram Hazony er einn fremsti stjórnmálaheimspekingur Vesturlanda í dag
- NatCon Þjóðaríhaldsstefnan
- Victor Davis Hanson bóndi og sagnfræðingur Victor Davis Hanson er einn fremsti sagnfræðingur Vesturlanda í klassískri sögu og hernaði
- Bruce Thornton sagnfræðingur Bruce Thornton er sagnfræðingur - klassísk fræði
- Geopolitical Futures - geopólitík Vefsetur George Friedmans sem áður hafi stofnað og stjórnað Stratfor
- Strategika Geopólitík
- TASS
- Atlanta Fed EUR credit & CDS spreads
- N.Y. Fed EUR charts
- St. Louis Fed USD Index Federal Reserve Bank of St. Louis - Trade Weighted U.S. Dollar Index: Major Currencies
- Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983 Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983
Þekkir þú ESB?
Greinar
Lestu mig
Lestu mig
• 99,8% af öllum fyrirtækjum í ESB eru lítil, minni og millistór fyrirtæki (SME)
• Þau standa fyrir 81,6% af allri atvinnusköpun í ESB
• Aðeins 8% af þessum fyrirtækjum hafa viðskipti á milli innri landamæra ESB
• Aðeins 12% af aðföngum þeirra eru innflutt og aðeins 5% af þessum fyrirtækjum hafa viðskiptasambönd í öðru ESB-landi
• Heimildir »» EuroChambers og University of LublianaSciCenter - Benchmarking EU
Bækur
Á náttborðunum
-
: EU - Europas fjende (ISBN: 9788788606416)
Evrópusambandið ESB er ein versta ógn sem að Evrópu hefur steðjað. -
: World Order (ISBN: 978-1594206146)
There has never been a true world order, Kissinger observes. For most of history, civilizations defined their own concepts of order. -
: Íslenskir kommúnistar (ISBN: ISBN 978-9935-426-19-2)
Almenna bókafélagið gefur út. -
Velstandens kilder:
Um uppsprettu velmegunar Evrópu
: - Paris 1919 :
- Reagan :
- Stalin - Diktaturets anatomi :
-
Penge
Ungverjinn segir frá 70 ára kauphallarreynslu sinni
: -
: Gulag og glemsel
Um sorgleik Rússlands og minnistap vesturlanda - Benjamín H. J. Eiríksson :
- : Opal
- : Blár
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.12.): 2
- Sl. sólarhring: 47
- Sl. viku: 441
- Frá upphafi: 1389084
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 246
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- September 2024
- Júní 2024
- Apríl 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Júlí 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
Athugasemdir
Mikið til í þessu hjá þér.
Það má búa til eftirfarandi kenningu með þvi að nefna líkindi:
Stalín tryggði völd sín með því að hræða sem flesta og til þess að vera öruggur lét hann til öryggis drepa miklu fleiri en þurfti.
Pútín getur haft þetta öfugt, passað sig á því að drepa eins fáa og unnt er að komast af með, en valið þá þannig, að hvert óupplýst morð verður aðvörun til andófsfólks og "svikara", til "skræk og advarsel."
Hver um sig getur hugsað: Fyrst hann lét drepa Skripal, sem var lítils virði, hvað þá um mig? Fyrst hann notaði taugaeitur á Skripal, hvernig get ég varist öllum þeim fjölbreytilegu aðferðum sem fyrrum KGB maður þekkir?
Með þvi að hafa drápsaðferðirnar fjölbreyttar og sýna fram á að andófsfólk er hvergi óhult í heiminum frekar en Trotskí var á sínum tíma, virkar fælingaraðferðin fullkomlega.
Ómar Ragnarsson, 3.4.2018 kl. 17:32
Þakka þér Ómar.
Já það er víst einhvernvegin á þennan veg sem þú lýsir hér, sem þessar "forvarnir" munu virka á mannfólkið í Rússlandi á komandi árum.
Kveðjur
Gunnar Rögnvaldsson, 3.4.2018 kl. 18:40
Rússland er mikilvægt land og stórt.Það er því afar merkilegt hvað þú ert illa að þér um þetta stæðsta ríki Evrópu.
Rússland er eini stóri olíuframleiðandinn sem getur rekið sig á 40 dollara olíuverði.
Saudar þurfa að minnsta kosti 70 dollara. Gjaldeyrissjóðurinn þeirra fuðrar nú upp eins og bensíntunna.
Fracking dæmið er álíka vonlaust fyrirbæri. Það þarf 80 dollara til að komast af. Það er eins og Bandaríski ríkissjóðurinn ,skrimtir áfram á síauknum lánum. Frackingiðnaðurinn hefur aldrei skilað eigendum sínum krónu ,samt er nuna eingöngu unnið á gjöfulustu svæðunum.
Þeir geta ekki einu sinni séð sjálfum sér fyrir gasi. LNG skipin koma nú siglandi í halarófu frá Yamal skaganum með nauðþurftir handa Bandarískum gasnotendum. Til að núa salti í sárin lestaði Putin persónulega fyrsta gasfarminn til Bandaríkjanna. Þetta er í raun eins og gamanleikrit. Bostonbúar orna sér nú við gas frá LNG stöð í Rússlandi sem Bandaríkjamenn gerðu bókstaflega allt sem í þeirra valdi stóð til að koma í veg fyrir að yrði til. Og fyrsti gasfarmurinn frá stöðinni fer einmitt til Bandaríkjanna og er afgreiddur af Putin persónulega. Þetta sýnir glögglega að áhrif Bandaríkjanna eru að fjara út. Enginn tekur lengur mark á þeim ,nema litlar eyþjóðir.
Bandaríkjamenn hafa enga möguleika á að keppa við Rússa á þessum markaði ,nema með hervaldi. Það verður hinsvegar sífellt erfiðara að gera út herinn ,af því hann er allur á lánum. Bæði tækin sjálf og rekstrarkostnaðurinn. Bandaríski herinn er hættur að vera arðbær.
Vissulega var hersýning Rússa í Sýrlandi ekki hástemmd,aðeins nokkrar herþotur og loftvarnakerfi,en hún sendi samt Bandaríkjamenn öfuga út úr Miðausturlöndum. Bandaríski herinn situr nú einangraður í Sýrlandi og vakir yfir örfáum hryðjuverkamönnum í algeru tilgangsleysi. Þeir hafa þurft að horfa aðgerðarlausir á meðan Rússar útrýmdu milljarða dollara hryðjuverkaher sem þeir voru búniir að koma sér upp. Þar fór mítan um yfirburði Bandaríska hersins. Það þurfti bara nokkur sett af loftvarnaflaugum til að stoppa hann. Sumt af hergögnum hans er sennilega nothæft í stríði,en mannskapurinn er hinsvegar til einskis nýtur.
Bandaríski flugherinn sem stendur nú aðgerðalaus á flugvöllum víðsvegar um Miðausturlönd reyndist ekki fær um að gera neitt. Það hefði ábyggilega verið hagstæðara fyrir þá að semja við Flugfélag Íslands um að henda niður þessum örfáu sprengjum sem þeim tókst að henda niður áður en Rússarnir komu og sögðu þeim að hafa sig hæga.
Eitt er samt rétt hjá þér í þessari greiningu,þó þú skiljir að sjálfsögðu ekki hvað þú ert að segja.
Það er að á næstu árum munum við sjá harðari tón frá Rússum,og það er þegar byrjað.
Skriptal málið er ágætt dæmi um þetta.
Það sem Bretar ætluðu sér með að eitra fyrir feðgininum ,var að reka málið á sama hátt og þeir gerðu þegar þeir eitruðu fyrir Litvinenko um árið. Þeir ætluðu að reka þetta með kjaftasögustíl ,þannig að það mætti spinna gróusögur árum saman ,en sýna aldrei nein gögn máli sínu til stuðning. Þannig gætu þeir kjamsað árum saman á gróusögum og illmælgi um Rússa ,út í eitt. Svo þegar þeir eitra fyrir næsta Rússa,gætu þeir svo rifjað upp gamlar lygar ,máli sínu til stuðnings. Þetta er nú smá saman að renna út í sandinn ,af því að Rússar þvinguðu Breta til að blanda alþjóðastofnunum inn í málið.
Líklega mun þessi stofnun bjarga Bretum frá mestu skömminni með því að gefa út loðna yfirlýsingu,en skömm þeirra mun engu að síður verða öllum ljós. En þetta verður samt til þess að þeir heittrúuðustu geta í þykistunni sagt við sjálfa sig að Bretar gætu í draumheimum haft rétt fyrir sér.
Borgþór Jónsson, 3.4.2018 kl. 19:31
Þetta er nokkuð rétt lýsing. Við hana má bæta því sem fram kom í sjónvarpsmynd í kvöld: Gríðarlegri spillingu í kringum Pútín og félaga. Og þá meina ég gríðarlega.
Nánast eini leikurinn í stöðunni hjá Pútín er að gerast það sem hann í raun er: Einvalds keisari í Rússlandi og nota svo Lénsskipulag sér til stuðnings.
Íbúar Rússlands eru um 140 miljónir. Þar af lepja 100 miljónir dauðann úr skel. Ca 10 miljónir hafa það nokkuð gott/mjög gott, en restin ca 30 miljónir eru "millistétt" með þetta 800-1400 dollara á mánuði í tekjur. Kennaralaun í Rússlandi 2016 voru um 180 Evrur á mánuði. Fátæktin er raunveruleg og áþreifanleg fyrir þá sem búa við hana. Stór hluti af íbúðarhúsnæði er í raun óíbúðarhæfur. Raki og mygla bara lítill hluti af vadnamálinu.
Ég er búinn að fara þarna austur 12 sinnum, frá því um 2000. Það er ágætt fyrir þá sem hyggjast "hasla sér völl" í viðskiptum þarna að horfa aftur á myndina á RUV og hafa þessa ofangreinda tölfræði í huga.
Guðmundur R Guðmundsson (IP-tala skráð) 3.4.2018 kl. 21:55
Þakka þér kærlega fyrir Guðmundur.
Þessi þáttur var jafnlélegur og flest annað sem DDRÚV sýnir um alþjóðamál.
Það var KGB sem stóð fyrir framkvæmd Glasnost og Pútín var einn af þeim sem þá viðleitni leiddu. Glasnost snérist um að KGB-menn voru orðnir sannfærðir um að Sovétríkin væru á svo hallandi fæti gagnvart Vesturlöndum, að þau væru komin fram úr því að vera umbætanleg, og þyrftu í raun á enduruppsetningu að halda. Og til þess sárvantaði beinhraða erlenda peninga og einnig erlendar fjárfestingar, sérstaklega í tækni. Ekki má gleyma því að aðalmiðstöðin gegn Kommúnistaflokknum var í Leníngrad og þar var Pútín einn af þeim sem þann flokk vildi dauðan.
Ef að Pútín á að hafa verið spilltur þá var það vegna þess að leikreglunar í Sovétríkjunum og einnig í rústum þeirra (e. transitional state economy) voru svo hroðalega og gerspilltar að lögmæti yfirstjórnar landsins var orðið ekkert gagnvart borgurunum. Hér er Pútín sem hvítskúraður engill í samanburði við það flokksapparat sem við var að etja.
Þessi vestræna árátta að gera Vladímír Pútin að andskotanum sjálfum er jafn glórulaus þvættingur og sá sem borinn er á borð fyrir okkur um Donald Trump.
Rússland er og verður Rússland með sína siði, hefðir og venjur. Landið verður aldrei Wisconsin frekar en Afganistan verður það. Ef Pútín hefði orðið fyrir bíl fyrir fimm árum síðan, þá hefði það engu máli skipt, forsetinn sem væri við völd í dag væri að gera það nákvæmlega sama og stjórnvöld Rússlands eru að gera í dag.
DDRÚV er að verða verra en Pravda var á Sovéttímanum.
Kveðjur
Gunnar Rögnvaldsson, 3.4.2018 kl. 22:27
Þegar Sovétríkin féllu, þá féllu margar mikilvægustu stofnanir landsins í leiðinni. Hið pólitíska kerfi féll saman undir Yeltsin. Skipulögð glæpastarfsemi og þjóðríkis-ræningjar áttu leikvöllinn, ofbeldi varð daglegar venjur og öngþveiti réði ríkjum. Moskva var að tapa stríðinu í Téténíu. Í kringum 1998 féll efnahagskerfi landsins, sem var á brauðfótum, loksins saman og gífurleg áföll dundu yfir. Læknar og kennarar fengu ekki laun og heilbrigðiskerfið var bókstaflega í öndunarvél. Rafmagn varð meira segja lúxusvara fyrir þær stofnanir og fólk króknaði úr kulda innandyra. Það fólk sem gat, flúði landið í faraldri og allir óskuðu sér burt. Allir vildu allt í einu læra ensku til að komast burt. Framtíðarvonir Rússa í sínu eigin landi voru brostnar. En árið 2005 hafði Pútín snúið þessari þróun við og Rússar fengu aftur trú á landinu sínu. Söguna síðan þá, þekkja flestir.
Nú hefur velmegunin tekið sér frí frá Rússlandi einu sinni enn og hver veit hvað gerist næst. En það veður að minnsta kosti ekkert í líkingu við það sem gerðist á tímabilinu frá 1987 til 2000. Við skulum að minnsta kosti vona ekki. En Rússland verður ávallt Rússland og því þarf að mæta af festu, þegar það á við. Og það á við einmitt núna.
Gunnar Rögnvaldsson, 3.4.2018 kl. 23:11
Guðmundur ,ég held að þú þurfir að fara að minnsta kosti 12 sinnum í viðbót til Rússlands áður en þú öðlast lágmarrks þekkingu á þessu samfélagi.
Það væri fróðlegt að vita hvar þú færð þessa tölfræði.
Það er um 20 milljónir manna sem búa við það sem er kallað fátækt í Rússlandi. Það er býsna há tala,svipað hlutfall og í Bandaríkjunum. Það er athyglisvert í þessu sambandi að Bandaríkin er eitt auðugasta ríki heims,en Rússland er í millitekjuflokki.
Launin sem þú nefnir eru mjög há fyrir Rússland. Einstaklingur með 1400 dollara á mánuði gæti tæknilega séð haft þjón.800 dollarar eru ágæt laun.
Það er ekkert til sem heitir "kennaralaun í Rússlandi".
Fyrst þú hefur komið þarna svona oft,hefurðu kannski tekið eftir að landið er hroðalega stórt. Það er líka mjög margbrotið.
Laun eru mjög mismunandi eftir landshlutum,og líka laun kennara.Þeir eru nefnilega ekki á launum frá ríkinu og laun þeirra fylgja því, því sem gerist almennt á þeirra svæði.
Ég þekki tvo Rússneska kennara ,annar býr á einu af fátækustu svæðum Rússlands,Siberiu, en hinn býr í iðnaðarborginn Perm. Hvorugur þessara kennara hefur 180 evrur í laun. Sá í Siberiu hafði 332 evrur í laun,en er nú kominn á eftirlaun og fær 210,5 evrur í eftirlaun. Það er hroðalega lágt,en hún kemst samt sæmilega af.
Kennarinn í Perm hefur ca 375 evrur í laun ef ég man rétt.
Laun eru almennt hærri í Moskvu og öðrum stórborgum í Evrópuhlutanum,en lægst í Suður Kákasus og norður Siberiu.
Það er alltaf erfitt að bera saman þjóðfélög og ekki síst svona gerólík eins og Ísland og Rússland.
Þó við séum moldrík,er samt sumt Rússum í hag.
Rússneka ríkið er líklega það auðugasta á jörðinni.Líklega auðugra en það Kínverska.
Það er líka afar lítið skuldsett. Þjóðin í heild er líka mjög lítið skuldsett og einnig Rússneskir einstaklingar. Þarna er verið að tala um sem hlutfall af launum,eða sem hlutfall af GDP. Hlutafall íbúa í eigin húsnæði er með því hæsta sem gerist,töluvert hærra en á Íslandi til dæmis. Eiginfjárstaða Rússa er hlutfallslega miklu betri en Íslendinga af því þeir skulda hlutfallslega miklu minna í húsnæðinu en við gerum,og lausaskuldir eru miklu lægri.
Þetta hefði McCin og Merkel mátt hugsa út í þegar þau ákváðu að setja efnahagsþvinganir á Rússa. Það er nánast ógjörningur að kúga þjóð til hlýðni sem er í þessari stöðu. Ekki síst þegar hún á eins mikla gjaldeyrissjóði og Rússland á.Og ekki síst þegar fórnarlambið hefur jafn mikinn jákvæðann viðskiftajöfnuð og Rússland hefur.
En það virðist vera að skilningur vestrænna ráðamanna á Rússlandi sé ekkert meiri en þinn. Ótrúlegt hvað við höfum vanhæfa stjórnmálamenn.
Einhverntíma sagði Hitler ,efislega þetta, þegar hann var að skipuleggja Barbarossa.
Við þurfum bara að sparka upp hurðinni og hreysið hrynur saman eins og spilaborg.
Hitler var ekki sá fyrsti og ekki sá síðasti sem sparkar í Rússnesku úthurðina.Nú hafa höfðingjarnir okkar ákveðið að gera það ,og bíða nú með vaxandi óþreyju eftir að eitthvað gerist. En Rússland er sjálfbærasta land Evrópu og eitt það best setta fjárhagslega. Okkar mönnum tekst ekki einu sinni með öllu þessu brambolti að stöðva hagvöxtinn í Rússlandi nema tímabundið.
Svona fer þegar menn eru farnir að trúa eigin lygi,eins og Hitler forðum daga.
Borgþór Jónsson, 4.4.2018 kl. 03:13
Mig grunar samt a Putin viti hreinlega ekki hver leggur inn á reikninga hjá honum né hver gerir hvað. Rússland sem önnur lönd í Asíu og Afríku ganga á mútukerfi og það getur engin breytt því. Ég veit mýmörg dæmi í mínu fagi á þessum slóðum að það þýddi ekkert að tala við hið opinbera nema semja fyrst en það var alltaf peningakit með í ferðum.
Ég man eitt sinn þá var ég beðin að fara $US 50.000 í brúnum bréfpoka á ákveðið hótel, þetta var 1977 til 1995 eða svo allaveganna mútur eru opinber partur af þessum þjóðfélögum og 50.000 dollarar voru miklir peningar á þessum tíma.
Valdimar Samúelsson, 4.4.2018 kl. 15:53
Ekkert af þessum ritum þínum eru rétt. Og hvað varðar olíu útflutning Bandaríkjanna, þá er hún engan veginn rétt. Bara skammsýni, og trúgirni.
"Of course, not everyone agrees that U.S. shale is gaining on Saudi Arabia. In fact, some observers and industry insiders argue that shale will never be able to compete with Saudi oil on an equal footing due to production costs. Some insist that what the shale producers are doing right now is creating a bubble by increasing production on the back of rising debt. The bubble, they warn, will soon burst and take many of them down."
Með öðrum orðum, olíu framleiðsla kanans er "blaðra". Þær eru ansi margar "blöðrurnar" sem kaninn hefur skapað, og allar sprunið. Sìðast 2008, sem sökkti nánast Íslandi.
Örn Einar Hansen, 4.4.2018 kl. 19:00
Og, hað varðar fyrsta ritið þitt ... þá er það á haus.
Örn Einar Hansen, 4.4.2018 kl. 19:01
Bjarne,! Gunnar ef ég má. Bjarne það er ógninni að olíu sem Trump er búinn að gefa grænt ljós á en það svæði er rétt austan við Prudhoe bay olíusvæðið og það eru mörg svoleiðis svæði og svo í suður Alaska í rétt utan við strandlengjuna hjá Homer. Alaska er stærsta olíulind USA.https://en.wikipedia.org/wiki/Prudhoe_Bay_Oil_Field
Valdimar Samúelsson, 4.4.2018 kl. 22:11
Valdimar, það breitir engu. Vinnsluaðferðinn er miklu dýrari ... hvað sem þessu líður. Eins og efnahagsfræðingar og þeir sem þekkja til benda á. Hér er verið að "dumpa" verðinu, og safna skuldum til að reyna að klekkja á Rússum. Og sama hvað kaninn framleiðir mikið, þá neytir hann enn meira ... sem þýðir að selji hann á undirverði, þá tapar engu að síður ...
Enginn leið út úr málinu, annað en enn ein bólan sem springur. Hvort maður svo taki rússann með sér er annar handleggur.
Örn Einar Hansen, 5.4.2018 kl. 10:10
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.