Leita í fréttum mbl.is

Malta læst sem nýlenda inni í Evrópusambandinu

Impact of Output Spillovers through the Trade Channel 

Ofangreind mynd AGS lýsir því hversu alvarlega sjúk lönd verða þegar sýklahernaður og vírusárásir flæða til þeirra í gegnum naflastreng viðskiptarásarinnar. Þegar Evrópa hóstar þá fær Malta lungnabólgu því Malta er komin með stöðu nýlendu gagnvart Evrópusambandinu. Malta á ekkert apótek. Þegar ESB fær síðan lungnabólgu þá fær Malta holdsveiki og leysist upp. Malta á enga mynt og það magnar nýlendustöðu hennar upp. En Ísland á krónu og er ekki nýlenda í Evrópusambandinu. Take that!

Fjármálaráðherrann Steingrímur J. Sigfússon er það illa að sér í utanríkisviðskiptum þess lands sem hann þykist vera ráðherra í, að hann kann ekki Gagn og Gaman utanríkisviðskipta Íslands: er sem sagt ólæs. Það kom í ljós á Alþingi nú á dögunum. Honum til styrktar er forsætisráðherrann hafður mállaus.

Engin hætta er á að holl og góð broddmjólk flæði til Möltu í gegnum þessa gátt, því Evrópusambandið er og verður ávalt gelt. Það étur ríki sem ábrysti.

PDF


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Júlíus Björnsson

Íslenska Ríkið hefur einkarétt á að gefa út sína mynt á Ísland. Á slíkum forréttindum má byggja um markaða uppsetningar sem gera Ísland að fyrirmyndar neytenda samfélagi.  Ísland þarf að hækka raunvirði sinnar sölu á eigin mörkuðum og annarra. Ísland skipuleggur sjálft sína reglustýringu á eigin mörkuðum sem eykur sölugengið á þeim, önnur ríki sjá um sína markaði. Ríkis sem byggja 90% á láraunvirðismörkuðum bjóða líka upp á langverstu almennu lífskjörin. Markaður er sjóður með sitt eigið raunvirðisgengi.

Júlíus Björnsson, 7.12.2011 kl. 17:36

2 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Það verður rússibanadýfa á mörkuðum í fyrramálið.

Jón Steinar Ragnarsson, 7.12.2011 kl. 17:50

3 Smámynd: Júlíus Björnsson

Malta var síðast Leppríki UK, Lettar undir Kommission Kreml, þeir segja Brussel örlátari í samanburði.

Júlíus Björnsson, 7.12.2011 kl. 20:06

4 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Hvað er þetta sem á að gerast með markaðina á morgun Jón Steinar?

Ég minni á að kauphöllin í París lokaði ekki fyrr en Þjóðverjar stóðu í dyragætt hennar sumarið 1940, eða í um það bil 10 km fjarlægð. Og jafnvel þá voru svo allt of margir franskir spilafíklar kauphallarinnar að hugsa sér gott til glóðarinnar í því að þarna væru að "opnast nýjir viðskiptamöguleikar" eins og þeir kölluðu innrásina hið innra með sér. Þeir sáu fram á að "ný viðskiptasambönd" myndu opnast undir eyðilegginu lands þeirra.

Þeir sem voru ekki aumingjar og fífl höfðu lokað öllu niður og forðað sér löngu áður. Þeir sáu stóru myndina og hryllinginn.

Þannig er staðan enn þann dag í dag. Þú sérð þetta m.a. á gegni evrunanr og taugakerfum kauphalla. Það lyftist um leið og Berlín opnar munninn eða lokar túllanum á herra G1 í París en sjaldnast öfugt. Gengið sveiflast í takt við kjálkaganginn. Þetta segir okkur að þeir sem enn eru eftir í markaðnum eru skyndibitar og fáráðlingar sem endurnýja stöðutöku sína í takt við tunguhreyfingar frú Merkel. Þegar og ef allt svo hrynur þá gerist það líklega á innan við fimm mínútum. 

Þarna áður fyrr hafði því verið spáð að kauphöllin í París myndi loka um leið Þjóðverjar réðust inn í Pólland í september 1939. Það gerðist ekki. 

Hvað merkilegt annað en sama súpa síðustu tveggja ára á að gerast á morgun frá kl 09:00 til 16:00 að staðartíma í mittelpunkt Europas?

Gunnar Rögnvaldsson, 7.12.2011 kl. 21:18

5 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Ég var að vinna í Möltu rétt eftir að Bretarnir komu sér út. Kínverjarnir voru komnir um leið inn á þá með allskonar gylliboð. Þeir byggðu þurrkvíar og komu skipaiðnaði einhvað í gang en þessi eyja var rétt í siglingarleið við Súes skurðinn. Nú er Ísland við aðra skipaleið og væri óeðlilegt að ætla Kínamönnum að gera hið sama og meira.

Valdimar Samúelsson, 7.12.2011 kl. 22:19

6 Smámynd: Haraldur Hansson

Á morgun og hinn er enn einn neyðarfundurinn þar sem á að redda Evrópu. Samkvæmt Reuter eru Þjóðverjar þegar farnir að dempa væntingarnar svo líklega verður útkoman jafn máttlaus og venjulega.

Sá þýski gefur þá skýringu að í hópi lykilmanna séu enn margir sem ekki geri sér grein fyrir alvarleika málsins.

Haraldur Hansson, 7.12.2011 kl. 22:24

7 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Redda Evrópu?

Það er ekkert sem getur reddað Evrópu. Alveg sama þó svo að myntinni sé bjargað þúsund sinnum. Að bjarga henni er eins og að ætla að bjarga hænsi frá dauða með því að gefa refnum að borða fyrirfram.

Já það er víst rétt. Þúsundasti og fyrsti neyðarfundur í Frankensteinfélagi evrunnar er á morgun. Þetta kallar á poppkorn og tinhatta.

Verður níunda rúgbrauðssynfónían leikin? Eyrnatappar kæmu sér þá einnig vel.    

Þakka ykkur kærlega fyrir innlitið.

Gunnar Rögnvaldsson, 7.12.2011 kl. 22:36

8 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Ég átti við að væntingar sveiflast eftir orðrómi um árangur fundarins og "bjartsýni" markaðarins. Seinnihluta dags hafa þessar væntingar verið talaðar rækilega niður og efinn hefur sest að. Menn sveiflast milli vonar og ótta. Ég ályktaði einfaldlega að það þýddi a.mk. að hækkanir síðustu daga gengju að minnsta kosti til baka.

Þetta er kannski óútreiknanlegt. Hermann Rúmpi kom svo með tillögur um slæglega beurokratíska lagakróka til að bregðast við vandanum og það fór þvert ofan í menn. Ekki síst fyrir það að almenningur hefur núll traust til embættismana EU og það eru að sjálfsögðu áhrif þess almannaálits sem vega þungt. Fólk er á fullu að koma eignum sínum og peningum í skjól.  Þegar almannavæntingar og markaðsvæntingar eða væntingaleysi fara saman er ekki mikil von til batnandi ástands.

Ég hef svosem ekki mikið vit á þessu, en fylgist með trendunum á yfirborðinu.  Líklega hefur þú dýpri greiningu a þessu. Ekki síst í sögulegu samhengi. 

Ég er ekki að segja að það sé að verða hrun og er sammála því að það gerist á 5 mínutum ef það gerist.  Það er ómögulegt að vita hvað af þessum sveiflum uppávið eigi uppruna í manipúleringum ríkja á markaðnum. Það getur allavega ekki gengið. Menn geta bara svo og svo lengi keypt í sjálfum sér til að halda uppi sýndarheilsu, eins og dæmin sýna.

Jón Steinar Ragnarsson, 8.12.2011 kl. 04:15

9 Smámynd: Júlíus Björnsson

EU [þjóðverja og Frakka] skortir mikilvæg efnasambönd, til að vera með þeim fremstu næsta árþúsundið í samhengi nútíma tækni. Allt hefur sinn þröskuld.

Júlíus Björnsson, 8.12.2011 kl. 15:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband