Mánudagur, 9. mars 2020
Wuhan-veiran: Stýrir Evrópusambandið sóttvörnum á Íslandi? Olíuverð hrunið
Mynd Telegraph: "The actual strategy we are following comes from the European Centre for Disease Prevention and Control (ECDC), the EUs main public health body" (sem nú er ein og samfelld rjúkandi rúst)
****
Á vefsíðum hins breska dagblaðs Telegraph, var á föstudaginn frétt þess efnis að öll lönd Evrópusambandsins, og EES-lönd líka, væru að fylgja stefnu og áætlunum ókjörinna embættismanna í Brussel í baráttunni við kínversku Wuhan-veiruna. Birt var mynd með íslenska þjóðfánanum í hrærigraut með öðrum ESB-löndum, sem annað hvort eru mjög sýkt af kínversku Wuhan-veirunni, eða eru að sýkjast af henni á ógnarhraða, og svo Ítalíu sem af sama fólki hefur verið sturtað inn í hið fullkomna stjórnleysi og allt að því upplausn. Blaðið segir að öll þessi lönd séu að fylgja áætlun og vinnuteikningum Evrópusambandsins í málinu, sem varðar lýðheilsu okkar Íslendinga allra, og efnahag landsins. Ítalía hefur verið að fylgja þessum vinnuteikningum og er því á barmi upplausnar núna, þar sem enginn veit lengur hver stjórnar landinu, eða hvort að því sé yfirhöfuð stjórnað, eða jafnvel hvort að það sé enn stjórnhæft eftir að hafa næstum liðast í sundur undir evru- og esb-aðild undanfarin 30 ár og sem grafið hefur svo undan heilbrigðskerfi landsins að það má alls ekki við neinum áföllum
Eurointelligence 26. febrúar 2020: "EU health ministers yesterday decided against border closures or even milder forms of travel restrictions on the grounds that they considered such measures disproportionate. One of those was Jens Spahn, the German minister, who claimed his country was well prepared for a crisis outbreak. The complacency of policymakers reminds us of the early phase of the eurozone crisis. That was based on backward-looking economic analysis at the time, and a lack of understanding how a financial crisis can spread across borders. We are seeing the same complacency at work again. [...] In view of the complacency of health ministers it is far from clear that we are better placed to deal with the disease than the Chinese. The Chinese initially allowed the disease to fester and spread unchecked, but have since taken draconian measures to control it."
Þann 25. febrúar síðastliðinn héldu heilbrigðisráðherrar Evrópusambandlanda fund um löngu lenta Wuhan-veiruna á Ítalíu og höfnuðu því að landamærum væri lokað. Þeir höfnuðu einnig öllum takmörkunum á ferðum manna, jafnvel þeim allra mildustu. Þar hélt þýski ráðherrann Jens Spahn því fram að Þýskaland væri "mjög vel í stakk búið" að takast á við veiruna. Komið er í ljós að svo var alls ekki. Þetta skrifaði Wolfgang Munchau þann 26. febrúar úr greiningarfyrirtæki sínu eurointelligence.com sem daglega greinir stöðu mála í Evrópusambandinu, en hefur nú flutt sig um set yfir til Bretlands. Munchau var áður ritstóri þýsku útgáfu Financial Times, sem lokað var vegna áhugaleysis Þjóðverja á umheiminum
GÁFU SÍÐAN ÚT GÚMMÍTÉKK KL. 05:00 Í DAG
Í Þýskalandi samkvæmt frétt Bloomberg áðan gefa hinir sömu ráðamenn út þann óútfyllta víxil í dag að "ekkert þýskt fyrirtæki megi verða gjaldþrota vegna Wuhan-veirunnar". Þetta er líklega stærsti óútfyllti víxill sögunar sagði fréttamaður stöðvarinnar. Fyrir nokkrum dögum síðan átti ekkert að vera að neins staðar í öllu Evrópusambandinu og allra síst í Þýskalandi. Svipað sagði sænska ríkisstjórnin er seðlabanki Svíþjóðar hækkaði stýrivexti í 500 prósentur til að verja einhliða EMS-bindingu sænsku krónunnar við musteri ERM-pyntingarklefa ESB 1992, en gafst svo auðvitað upp nokkrum dögum síðar. Aldrei að vanmeta heimsku, ábyrgðarleysi, vangetu og hroka embættis- og stjórnmálamanna
ÞOKULÚÐRASVEIT OG ÞOKUBAKKAR ESB
"Waiting for the brain fog to lift"
"Eurozone finance ministers reiterate that nothing is more urgent than waiting."
Þann 5. mars skrifaði Munchau einnig að beðið sé eftir að heilaþokunni létti hvað varðar ECB-seðlabankaling evru þegar að hans hlutverki kemur í þessu stórkostlega afneitunarmáli allra í Evrópusambandinu. Nokkrum dögum áður hafði bandaríski Federal Reserve seðlabankinn gripið til harkalegra mótvægisaðgerða til að létta Bandaríkjunum baráttuna gegn hinum efnahagslegum áhrifum Wuhan-veirunnar, með því að lækka vexti og tryggja aðgengi bankakerfisins að lausafé. ECB-seðlabankinn er enn að glíma við evru-hrunið-2009 og getur ekki lækkað vexti því þeir eru þegar núll. Engri þoku hefur þar létt. Hún er meira að segja borin á borð evru-landa á þökubökkum alla daga ársins, ár eftir ár
Fyrir mér hljómar sóttvarnarstefna- og aðgerðafærði embætta Landlæknis, Sóttvarnarlæknis, heilbrigðisráðherra og ríkisstjórnar eins og að þeir myndu senda Vestmannaeyingum þær nýju leiðbeiningar að aldrei aftur mættu þeir reyna að stöðva hraunflæði, sökum þess að slíkt gæti skaðað eldgos annars staðar á jörðinni. Ég bara skil ekki svona ESB/EES og Schengen-hálfkák og sýrusósur. Enginn dýralæknir myndi fara svona að í sóttvörnum, með því að innflutningi á sýkingum skuli hvað sem það kostar haldið áfram, í þeirri trú að hægt sé að hafa stjórn á þeim innan girðingar. Hvað er að gerast hér? Hefur fullveldi þjóðarinnar í þessum málum, sem og mörgum öðrum, verið kastað fyrir róða? Þetta mun kosta íslensku þjóðina ofboðslega. Þessi vanræksla mun kosta okkur ofboðslega
Á sama tíma hvetur Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands alla til að gera eins og gert var í Egyptalandinu (nú ESB) sem Ísraelar (nú Bretar) gengu út af; þ.e. að hlýða faraó og gagnrýna engan nokkru sinni fyrir að hafa breytt Íslandi í pestarbæli með því að hlusta áfram á þá sem breytt hafa 30 löndum í Evrópu í stjórnlausa ruslahrúgu ábyrgðarlausra embættismanna, sem hvorki getur skilgreinst sem réttaríki né siðmenntað fyrirbæri. Í gamla daga voru Ítalir fremstir í sóttvörnum. Þeir lærðu það í Svarta dauða, sem talinn er hafa komið í land um ítalskar hafnir á Suður-Ítalíu frá Asíu
LEVEL-4
Það er svona sem útbreiðsla Rússlands í Evrópu myndi ganga fyrir sig, væru Bandaríkin ekki þar. Hún myndi ganga jafnvel enn betur en útbreiðsla kínversku Wuhan-veirunnar. Þýskaland og Evrópusambandið viðhafa nákvæmlega sömu stefnu þar. Bjóða veirunni inn og taka upp löggjöf hennar og gera sig háða henni. Og enginn nema örfáir virðast setja spurningarmerki við að eina LEVEL-4 rannsóknarstofa Kína í veirurannsóknum, er staðsett rétt við Wuhan í Wuhan Institute of Virology of the Chinese Academy of Sciences, þar sem magn dýra er notað til rannsókna í því hvernig vopngera megi veirur, eða þróa bóluefni við þeim. Hvað nú ef fégráðugir svo kallaðir "kínverskir kommúnistar" seldu sýkt dýr á útimarkaðinum sem veiran er sögð hafa komist í umferð. Á þessum markaði er næstum hvað sem er lifandi selt sem mannamatur. Og enginn spyr heldur að því hvers vegna Ítalía og Íran, af öllum stöðum á jörðinni, eru nú orðin aðal-dreifingarmiðstöðvar fyrir kínversku Wuhan-veiruna í heiminum, fyrir utan Kína. Sumir vita kannski að Íran er náið samstarfsland Kína og Norður-Kóreu, og að Kína er einn stærsti viðskiptavinur Írans þegar að olíu kemur. Nánar um viðbrögð heimsins við Wuhan-veirunni má lesa í grein Victors Davis Hansonar sagnfræðings í klassískri sögu og hernaði; hér. Og atburðarrásar-greiningu Wall Street Journal á upptökunum að veirugosi kínverska kommúnistaflokksins yfir heiminn, má lesa hér. Það er sennilega af þeim flokki sem Evrópusambandið hefur lært að gjósa veirum yfir íbúa sambandsins, með því að aðhafast ekkert og afneita vandamálinu þar til allt logar stafnanna á milli
VAR EKKI Á "HÆTTUSVÆÐI"
Á gjörgæsludeild Landspítalans ættu þeir að vera sem skipulagt hafa þessa ruslahrúgu Evrópusambandsins,- EES-ríkja,- og Schengensósunnar. En í staðinn voru þar að störfum opinberir starfsmenn heilbrigðiskerfis okkar, ný komnir af Wuhan-veirusvæði kínverska kommúnistaflokksins í Evrópu og Evrópusambandsins á Ítalíu, þar sem þeir voru í fríi á veirusvæði sem heilbrigðisyfirvöld þar, og hér, og í 30 löndum Evrópu sögu að væri ekki veirusvæði, vegna þess að hvaða annar heiladordingull Evrópusambandsins sem er, sagði þeim að þar væru engar hættur samkvæmt ferða-lagaverki Evrópusambandsins
Mynd úr kerfi WSJ: WTI á Nymex og Brent
NÆST MESTA HRUN OLÍUVERÐS
"What makes this price war especially dangerous and historic is it breaks out simultaneously with a massive demand shock from the coronavirus" said Robert McNally, president of Rapidan Energy Group, a Washington, D.C.-based energy-market consulting firm. [..] "We have not seen that toxic combination since the early 1930s when [Texas] monster Black Giant field started up in the teeth of the Depression, sending crude oil prices down to pennies on the barrel." | WSJ
Næstmesta innan-dags hrun olíuverðs í sögunni varð í nótt, þegar það fréttist að samstaðan i export-karteli OPEC og Rússlands hefði rofnað. Á skrifandi stund er það rúmlega 32 prósent og virðist færast í aukna, en gæti þó rétt úr kútnum síðar í dag. Hver veit. Miklar og þungar hreyfingar hafa sést á gjaldeyrismökuðum heimsins
Mynd: Af forsíðu Telegraph
ESB-ÍTALSKUR FARSI BREIÐIR ÚR SÉR
"We thought wed find the army here, but there have been absolutely no checks," said Ali Anir, who was changing trains in Milan with his girlfriend on their way to their home in Verona. There was no immediate disruption to air travel, either, with scheduled flights still departing and landing in Milan. A sign at Milans Linate airport assured passengers that regular service was continuing. WSJ
Lítið hefur gerst við það að ítölsk stjórnvöld sögðust hafa lokað fjórðung þjóðarinnar inni í hvað-sem-það-kostar galopnu Schengen-pestarbæli Evrópusambandsins á Norður-Ítalíu. Engin flug frá Mílanó út í heim hafa stöðvast og lestir ganga áfram. Það eina sem virðist hafa gerst er að DDRÚV trúði á fréttir frá svo kölluðum ófullvalda yfirvöldum einhversstaðar á Ítalíu. Meira að segja var það sérstaklega tekið fram á vefsíðu alþjóðaflugvallar Mílanó að allt sé eins og venjulega og öll flug enn á lofti, þrátt fyrir yfirlýsingar stjórnvalda. Þetta er farsi segja menn í Bretlandi. Og allt að því sprenghlægilegt er að lesa grein Wall Street Journal um "ítölsku sóttkvína"
Fyrri færsla
ESB-sovétríkið: Kári fær ekki að skima fyrir kórónuveiru
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 08:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (21)
Bloggfærslur 9. mars 2020
Nýjustu færslur
- Ég óska Bjarna Ben til hamingju og velfarnaðar
- Víkingar unnu ekki. Þeir "þáðu ekki störf"
- Engir rafbílar segir Apple
- Grafa upp gamlar sprengjur og senda áleiðis til Úkraínu
- Geðsýki ræður NATÓ-för
- "Að sögn" háttsettra í loftbelg
- Skuldir Bandaríkjanna smámunir miðað við allt hitt
- Forsetinn og meiri-hluta-þvættingurinn
- Gervigreindar-fellibyl í vatnsglösum lokið
- Sjálfstæð "Palestína" sýnir morðgetu sína á tvo kanta
- Benjamín Netanyahu hringdi strax í Zelensky. Hvers vegna?
- Hlýtur að vera Rússum að kenna [u]
- Þjóðverji með ónýta mynt á Zetros
- Hvað er gervigreind?
- Kengruglaðir grænkommar
Bloggvinir
- Heimssýn
- Samtök Fullveldissinna
- ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE
- Guðmundur Jónas Kristjánsson
- Ragnhildur Kolka
- Hannes Hólmsteinn Gissurarson
- Haraldur Hansson
- Haraldur Baldursson
- Páll Vilhjálmsson
- Halldór Jónsson
- Valan
- Samstaða þjóðar
- Frjálshyggjufélagið
- Sigríður Laufey Einarsdóttir
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Jón Valur Jensson
- Samtök um rannsóknir á ESB ...
- Kolbrún Stefánsdóttir
- Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
- Jón Baldur Lorange
- Guðjón E. Hreinberg
- Jón Ríkharðsson
- Anna Björg Hjartardóttir
- Loftur Altice Þorsteinsson
- Valdimar Samúelsson
- Fannar frá Rifi
- Bjarni Jónsson
- Sigurður Þorsteinsson
- Gunnar Ásgeir Gunnarsson
- Haraldur Haraldsson
- Örvar Már Marteinsson
- Kristin stjórnmálasamtök
- Gestur Guðjónsson
- Ingvar Valgeirsson
- Predikarinn - Cacoethes scribendi
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Guðmundur Helgi Þorsteinsson
- Lísa Björk Ingólfsdóttir
- Bjarni Kjartansson
- Bjarni Harðarson
- Guðrún Sæmundsdóttir
- Sveinn Atli Gunnarsson
- gudni.is
- Gústaf Adolf Skúlason
- Tryggvi Hjaltason
- ESB
- Marinó G. Njálsson
- Baldvin Jónsson
- Elle_
- Sigurbjörn Svavarsson
- Emil Örn Kristjánsson
- Johnny Bravo
- Jón Finnbogason
- Rýnir
- Þórarinn Baldursson
- P.Valdimar Guðjónsson
- Már Wolfgang Mixa
- Ívar Pálsson
- Júlíus Björnsson
- Guðjón Baldursson
- Baldur Fjölnisson
- Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
- Einar Ólafsson
- Sigríður Jósefsdóttir
- Vilhjálmur Árnason
- gummih
- Sveinn Tryggvason
- Helga Kristjánsdóttir
- Jóhann Elíasson
- Baldur Hermannsson
- Kristinn D Gissurarson
- Magnús Jónsson
- Ketill Sigurjónsson
- Birgitta Jónsdóttir
- Axel Jóhann Axelsson
- Þorsteinn Helgi Steinarsson
- Aðalsteinn Bjarnason
- Magnús Þór Hafsteinsson
- Erla Margrét Gunnarsdóttir
- Sigurður Sigurðsson
- Þorsteinn H. Gunnarsson
- Haraldur Pálsson
- Sveinbjörn Kristinn Þorkelsson
- Bjarni Benedikt Gunnarsson
- Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
- Ægir Óskar Hallgrímsson
- Helgi Kr. Sigmundsson
- Óskar Sigurðsson
- Tómas Ibsen Halldórsson
- Axel Þór Kolbeinsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Hörður Valdimarsson
- Adda Þorbjörg Sigurjónsdóttir
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Margrét Elín Arnarsdóttir
- Ásta Hafberg S.
- Erla J. Steingrímsdóttir
- Helena Leifsdóttir
- Agný
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Jón Árni Bragason
- Jón Lárusson
- Högni Snær Hauksson
- Kristján P. Gudmundsson
- Kristinn Snævar Jónsson
- Sigurður Ingólfsson
- Rakel Sigurgeirsdóttir
- Sigurður Þórðarson
- S. Einar Sigurðsson
- Pétur Steinn Sigurðsson
- Vaktin
- Sigurjón Sveinsson
- Dóra litla
- Arnar Guðmundsson
- Jörundur Þórðarson
- Rafn Gíslason
- Hjalti Sigurðarson
- Kalikles
- Vésteinn Valgarðsson
- Bjarni Kristjánsson
- Egill Helgi Lárusson
- Gunnar Skúli Ármannsson
- Halldóra Hjaltadóttir
- Jón Pétur Líndal
- Guðmundur Ásgeirsson
- Reputo
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Sigurður Sigurðsson
- Ólafur Als
- Friðrik Már
- Gísli Sigurðsson
- Sigurður Einarsson
- Rauða Ljónið
- Sumarliði Einar Daðason
- Gísli Kristbjörn Björnsson
- Kári Harðarson
- Sigurður Antonsson
- Valdimar H Jóhannesson
- Rósa Aðalsteinsdóttir
- Dagný
- Guðmundur Pálsson
- Jakob Þór Haraldsson
- Birgir Viðar Halldórsson
- Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
- Tíkin
- Jón Þórhallsson
- Íslenska þjóðfylkingin
- Erla Magna Alexandersdóttir
- Óskar Kristinsson
- Dominus Sanctus.
- Ingólfur Sigurðsson
- Jón Þórhallsson
Tenglar
Hraðleiðir
- www.tilveraniesb.net www.tilveraniesb.net Vefsetur Gunnars Rögnvaldssonar
- www.mbl.is
- Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir
- Bréf frá Jerúsalem - Yoram Hazony Yoram Hazony er einn fremsti stjórnmálaheimspekingur Vesturlanda í dag
- NatCon Þjóðaríhaldsstefnan
- Victor Davis Hanson bóndi og sagnfræðingur Victor Davis Hanson er einn fremsti sagnfræðingur Vesturlanda í klassískri sögu og hernaði
- Bruce Thornton sagnfræðingur Bruce Thornton er sagnfræðingur - klassísk fræði
- Geopolitical Futures - geopólitík Vefsetur George Friedmans sem áður hafi stofnað og stjórnað Stratfor
- Strategika Geopólitík
- TASS
- Atlanta Fed EUR credit & CDS spreads
- N.Y. Fed EUR charts
- St. Louis Fed USD Index Federal Reserve Bank of St. Louis - Trade Weighted U.S. Dollar Index: Major Currencies
- Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983 Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983
Þekkir þú ESB?
Greinar
Lestu mig
Lestu mig
• 99,8% af öllum fyrirtækjum í ESB eru lítil, minni og millistór fyrirtæki (SME)
• Þau standa fyrir 81,6% af allri atvinnusköpun í ESB
• Aðeins 8% af þessum fyrirtækjum hafa viðskipti á milli innri landamæra ESB
• Aðeins 12% af aðföngum þeirra eru innflutt og aðeins 5% af þessum fyrirtækjum hafa viðskiptasambönd í öðru ESB-landi
• Heimildir »» EuroChambers og University of LublianaSciCenter - Benchmarking EU
Bækur
Á náttborðunum
-
: EU - Europas fjende (ISBN: 9788788606416)
Evrópusambandið ESB er ein versta ógn sem að Evrópu hefur steðjað. -
: World Order (ISBN: 978-1594206146)
There has never been a true world order, Kissinger observes. For most of history, civilizations defined their own concepts of order. -
: Íslenskir kommúnistar (ISBN: ISBN 978-9935-426-19-2)
Almenna bókafélagið gefur út. -
Velstandens kilder:
Um uppsprettu velmegunar Evrópu
: - Paris 1919 :
- Reagan :
- Stalin - Diktaturets anatomi :
-
Penge
Ungverjinn segir frá 70 ára kauphallarreynslu sinni
: -
: Gulag og glemsel
Um sorgleik Rússlands og minnistap vesturlanda - Benjamín H. J. Eiríksson :
- : Opal
- : Blár
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (6.5.): 17
- Sl. sólarhring: 18
- Sl. viku: 131
- Frá upphafi: 1381772
Annað
- Innlit í dag: 12
- Innlit sl. viku: 89
- Gestir í dag: 8
- IP-tölur í dag: 7
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Apríl 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Júlí 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008